Lögberg


Lögberg - 30.09.1920, Qupperneq 1

Lögberg - 30.09.1920, Qupperneq 1
SPEIRS-PARNELL BAKING CO. ábyrgjast yður fulla vigt, beztu vörur fyr- ir lœgsta ver3 sera verið getur. R E Y N IÐ Þ AÐ! TALSÍMI: Garry 2346 - WINNIPEG Það er til myndasmiður í borginni W. W. ROBSON 490 Main St. - Garry 1320 33. ARGANC.UR WINNIPEG, MANITOBA, FIMTUDAGINN 30. SEPT, 1920 NUMER 39 Helztu Viðburðir Síðustu Viku Canada. Síma starfsmenn mjög margir hafa sótt til borgarinnar á alls- herjar fund, er stóð í nokkra daga, þar sem þeir réðu ráðum um hagi gína. J?eir kusu í sína stjórnar- nefnd mann, sem átt hefir heima í Winnipeg. peir sem tjón 'biðu af bruna í Manitoba fá skaðabætur hjá fstjórnum sveita er fyrir því urðu, en fylkisstjórnar formaður hefir lofað að greiða helming bótanna úr fylkissjóði. Viðarsölumenn í British Colum- bia kröfðust þess fyrir tollanefnd, að tollar haldist á við í því horfi sem nú eru þeir, en þeir nema 30 af hundraði unnins trjáviðar. í fylkinu teljast 26 þús. manna hafa atvinnu við viðarvinnu, og tekjur þeirra nema 29 miljónum dollara árlega. Hreyfimyndafélag með miljón dollara höfuðstól er í myndun í Canada, og er það hið fyrsta, er hér hefir verið myndað. Fyrsta viðfangsefni þessa nýja félags er saga Ralph Connors, “The For- eigner” og er hugmyndin að halda svo áfram að sýna ií hreyfimynd- um skáldsögur ’ canadiskra höf- unda, svo sem Parkers, Drum- monds, Service, Steads, Durkins, Ingersolls og fleiri. — Landi vor, Bjarni Björnsson, tekur þátt í að mynda sögu Ralph Connor’s, The Foreigner. Látinn er í Victoria, B.C., Hon. Robert Beaver, fyrverandi borg- arstjóri í Victoria og forsætisráð- herra í British Columbia. Hagfræðiskýrslur frá Ottawa sýna, að vöruforði í frystihúsum víðsvegar um landið hefir aukist i flestum tilfellum upp á síðkast- ið. Skýrslur þessar sýna, að 1. þ. voru í geymslu 23,825,514 pund af rjómabúasmjöri, en 1,315,709 pund af heimatilbúnu smjöri. Hefir þ'ví forði smjörbúanna auk- ist um 32.37 af hundraði frá þvá næsta mánuð á undan. ForSinn þó 23 af hudraði minni en í sama jnánuði í fyrra. Smjörlíkisforð- inn nemur 438,298 pundum. Ost- ur 16,041,019 pund, egg 14,615,300 tylftir í kæligeymslu, en 866,794 tylftir geymdar á annan hátt; og hefir eggjaforðinn aukist um 15 af hundraði á síðasta mánuði. — Alls eru í geymslu 28,069,530 pd. af svínakjöti, og er það 15.75 af hundraði minna en á sama tíma í fyrra. Frá 1. nóv. næstkomandi verður skattur sá, er “luxury tax” nefn- ist, innheimtur á annan hátt, en verið hefir að undanförnu. Verð- ur eftir þann tíma notuð sérstök tegund frímerkja við innheimt- una, sem nú eru í gerð. Tekjum- ar, sem ríkisféhirzlan fékk af skatti þessum í síðastliðnum mán- uði, námu sex miljónum dala. Er þó almælt, að margra bragða hafi verið neytt til þess að komast hjá greiðslunni og i nokkrum tilfellum bein sviksemi í þessum efnum orðið uppvís. Félag stjórnarþjóna í Ottawa h'efir ákveðið að láta fara fram atkvæðagreiðslu innan vébanda sinna fyrir 1. nóv. næstkomandi, til þess að láta skera úr, hvort •deild þeirra skuli ganga í Ame- ríska verkamanna sambandið eða eigi. John Morriison, sá er skipaði ful'ltrúasæti í fylkisþinginu fyrir Jtuperts Land síðastl. kjörtímabil, þefir verið endurkosinn í kjör- •dæmi sínu án gagnsóknar. Hann er eindreginn stuðningsmaður Norrisstjórnarinnar. Fylkiskosningar í New Bruns- wick eiga að fara fram 9. okt. næstkomandi. Líklegt er talið, að frjálslyndi flokkurinn undir for- ystu Foster yfirráðgjafa, muni bera sigur úr býtum. Félög hinna sameinuðu bænda útnefna að líkindum þingmannsefni í all- mörgum kjördæmum, og það gera íhaldsmenn sennilega líka, en al- ment álitið, að þeir muni fá þarna eitthvað svipaða útreið og í Nova Scotia síðast. Bændastjórninni í Ontario hef- ir verið borið það oft á brýn, að hún væri stéttdræg. Blaðið Canadian Countryman flutti ný- lega eftirfarandi smágrein, sem svar við þessum ákærum: “Að af- stöðnum síðustu fylkiskosningum í Ontario, þegar sýnt var orðið, að bændaflokknum nýja yrði fal- ið að mynda stjórn, ákvað fram- kvæmdarnefndin að stjórn fylk- isins skyldi halda fundi með vissu millibiili til að ráðgast við forvígismenn bænda um hitt og þetta, er að nýrri löggjöf og laga- breytingum lyti. Af þessu varð þó ekki. Hefði Drurystjórnin kvatt til slíkra funda, gætu ntenn ef til vill haft einhverja átyllu fyrir þvá, að hún bæri frekar hag sinnar eigin stéttar fyrir brjósti, en annara fk)kka í fylkinu. En bændastjórnir eiga samt sem áður það sammerkt við flestar aðrar stjórnir, að þær gætu ekki þó þær vildu verið mjög hlutdrægar. Að bændastjórnir kosti kapps um að bæta úr misréttinu og óréttinum, sem bændur iðulega hafa orðið að þola af völdum annara stjórna, oft líklega fremur af skilnings- leysi og vanþekkingu á högum þeirrar stéttar, en af ásettum ill- vilja, er ekki nema svo sem sjálf- sagt. En það út af fyrir sig, að Drurystjórnin kvaddi ekki fram- kvæmdarnefnd bænda til fundar við sig, eins og gert hafði verið táð fyrir í fyrstu, kemur af því einu, að hún sá enga ástæðu til þess að ráðgast við einn flo'kk fr^mur en annan; hefði sjálfsagf verið jafnfús á að kveðja verk- smiðju eigendur til fundar við sig, ef svo hefði borið undir. Drury- stjórnin, þótt sitthvað megi að henni finna, er vahalaust sann- asta fólksstjórn, er enn hefir set- ið að völdum í Ontariofylki.” Sagt er, að borgarstjórnin í Ottawa sé því hlynt, að borgin taki að sér strætisbrauta flutn- [ ingana og kaupi alt samgöngu-| kerfi rafbrauta félagsins. Tilraun var nýlega gerð til að sprengja í loft upp hús eitt á Tim- othee stræti í Montreal. Allír gluggar hússins brotnuðu til agna ! cg flísar úr veggjunum þeyttust yfir í næstu stræti og gerðu spell nokkur. í húsi þessu býr frönsk ekkja, og hefir sú verið rækilega ■yfirheyrð af lögreglunni, en gat engar upplýsingar veitt; kvaðst með engu móti geta í því skilið á hvern hátt sprengiefni hefði ver- ið komið inn í húsið. Manntal í Canada skal fara i fram einhvern tíma á næsta ári. j — Árið 1916 fór fram manntal í j vesturfylkjunum í sambandi við! ákvæði stjórnarinnar um fjártil- lagið til fylkja þeirra, en næsta ár verður mann talið tekið um alla Canada. Fyrsta manntal í Can- ada var tekið 1871. — Áætlað er, að fólkstala í landinu sé nú um átta miljónir og sjö hundruð og fimtíu þúsundir. Bændablaðið Farmers Sun telur tíma vera kominn til að breyta stjórnarskrá Canada þannig, að allir þingmenn efri' málstofunnar verði þjóðkjörnir eins og nú tíðk- ast í Bandaríkjunum. ■538^.': Dr. Glover, læknirinn í Toronto, er kveðst hafa fnudið óyggjandi ráð við krabbameinum, hefir haft afar mikla aðsókn og tekist í mörg- um tilfellum vel, ætlar nú á næst- unni að lýsa aðferð sinni fyrir fjölmennu þingi lækna, er koma á saman í Ottawa innan skamms. ------o----- Bandaríkin Úr skýrslum er sá fróðleikur unninn, að í Bandaríkjunum hafi nautn áfengra drykkja verið helmingi minni árið 1919 en fyr- irfarandi ár. Nautn áfengis nam árið 1918 1,701,827,271 gallónum eða 15 gallónum á hvert manns- barn að meðaltali, en 1919 var vín- nautnin 992 miljón gal'lónur, eða rúmlega 9 gallónur á hvert höfuð að meðaltali. petta hefir vínsölu- bannið fært vínnautnina niður. Félag hefir verið myndað í Maryland, sem hefir sett sér það mark og mið að fá Valsted bind- indislögin numin úr gildi, og Jeiða vínsöl aftur að stóli í Bandaríkjunum. Talsmenn sína . ætlar félag þetta að senda um alt land til þess að telja fólki trú um, að Bakkus sé því ómissandi föru- nautur í lifinu. Látinn er í Minneapolis, Minn., presturinn John Nathan Kildal, JÓN VÍDALÍN. Er norrænn aðall til Islands fór, Menn ancllega reyndust skyldir Þór. Svo Megingjarða og Mjölnis högg Á mannlífi okkar finnast glögg. 1 helgri víking, við heiðin tröll, Sér ha«laði margur kappinn völl. — Og einn varð hinn kristni Ása-Þór, 1 andlegri víking frægur, stór. En ættarlandið, með1 eld í sád, Og ódauðlegt, fagurt guðamál: Þitt frægðarorð barst um fold og Rán, En—fyrir þitt mikla barnalán. Og gullmunni íslands, guðmóð lians, Nú gleymir víst okkert barn vors lands.- En ekkert túlkar—sízt örstutt ljóð, Hvað íslenzkri var hann kirkju og 'þjóð. Er góðskáldin kváðu um goðmeim þín, Hví gleymdu þau—Jóni Vídalín? II. Vér eigum margar orkulindir, Og ótal bjartar jökulmvndir, Er auðgað gætu allan heim. — En lýsa naumast landsins börnum, Er leika sér að skeljum, kvörnum, Og meta ekki hinn sanna seim. Þar undi og margt af andans mönnum, Þeim orkulindum tærum, sönnum, Er auðga mættu andans heim :-— Háir — eins og hamra fjöllin, Hreinir — eins og vetrar mjöllin.; — Meistari’ Jón ber mjög af þeim. III. Um syndir kirkjunnar sagt er margt, Af sonum — er brugðust henni. Og “sumt er gaman, en sumt er þarft”, Er segja þau íturmenni.------ En þekkiugin nýja vel það veit Hver vitans a n d 1 e g a gætti, Ilver sögur og ljóð og sálma reit, Ilver siðu og menning bætti;------ Ilver fægði sverð og skygði skjöld Og s'kefti andans spjótin, Sem vitrir bera á vorri öld á vizku og frægðar mótin. Hver lýsti anda og lyfti heim í Ijós næst Guði sönnum ;------ — Þó nú sé vegið vopnum þeim Til vígs — gegn kristnum mönnum. — Hver lagði rækt við lýðsins vit Og landi skóla reisti, — Hver þýddi erlend úrvals rit Og andans fjötur leysti. — Hver ól upp flesta andans menn, — Þá andagift hjá Jóni, Er hljómaði—og hljómar enn— Sem heróp Guðs á Fróni. IV. I lyfting bar engan hærra’ en hann Á helgri trúar skeið, Þar orðgnótt heilags anda brann Sem eldur’ á Hórebs meið. — “Svo býður Drottinn”,—boðaði hann, Unz “buldur heimsins” dvín. — Sú djörfung hrífur enn margan mann Hjá meistara Vídalín. Hann sótti þann eld, sem aldrei devr; — Hans orð voru þrumugnýr, En leiftur andans sá goðageir, Sem geig því illa býr. En hjá þeim meistarans mælsku hjör Og mæki sannleikans, — — 1 hjöltunum — leyndist lækning, fjör, Og lífsteinn kærleikans. V. 1 ormagarði aldar sinnar sló Hann orðsins hörpu, fögrum guða tónum. — Og lengi slíkir strengir óma þó Að slitnir sé — í okkar miklu Jónum. En nú er skift um Skálholts fornu dýrð, Og skykkja meistarans er löngu'töpuð; I trúarlífi leiðtoganna rýrð, Og landsins kirkja í svipað ástand hröpuð. Er andagift og trúardjörfung dvín Og doðans hjátrú vex í trúarflagi, Þá skortir okkur einmitt Vídalín — 1 efans tízku og heimsins músanagi. En þú, sem íslenzk blessar börnin þín Og bæði ert Guð og faðir allra-þjóða : Ó, sendu okkur annan Vídalín, — Og annan Hallgrím,»trúarskáldið góða! VI. Við lands vors hjarta, í faðmi fjalla, Hinn frœgi biskup dó. 1 lýðsins hjarta, um lands tíð alla, Lifa mun hann þó. — Jónas A. Sigurðsson. llö varaforseti norsku kirkjudeildar-1 innar lútersku í Ameríku, 63 ára gamall. Séra Kildal var forseti St. Olaf háskólans í Northfield, Minn. Árið 1905 var hann sæmd- ur orðu Ólafs helga af Noregs- konungi. Hinn látni lætur eftir sig ekkju og fjögur börn. Tekjur járnbrauta í Bandaríkj- unum síðastliðinn maímánuð voru $32,000,000 meiri en þær voru í sama mánuði árið 1919, og er það dálagleg framfærsla. Látinn er í New York Jacob H. Schiff, nafnkunnur fjármálamað- ur af Gyðingaættum. Umboðsmaður Soviet stjórnár- innar á Rússlandi, Witty Schach- man að nafni, hefir verið tekinn fastur í Chicago, og í fórum hans fundust skipanir frá Soviet- stjórninni á Rússlandi um að vinna af alefli að því að hrinda á stað verkföllum og vekja óánægju meðal verkalýðsins, svo hægra yrði að hrinda landinu út í borg- arastríð. í skjölum þessum fanst tilkynning stjórnarinnar á Rúss- landi, eða umboðsmanns hennar, um að hið sama yrði reynt í Japan, Kína, Hindustan og á Tyrklandi. pessi skjöl sýndu og, að nýlega hefði Schachman tekið á móti 20 þús. dollars og borgað 15 þúsund aftur út. pessi Schachman var áður prívatritari Lenins, fæddur í Odessa á Rússlandi, flúði þaðan 20 ára gamall til þess að komast hjá herþjónustu, fluttist til Can- ada og vann þar um tíma, fór svo til Chicago, þar sem hann hefir að því er virðist unnið í klæðskera- búð. Hann er 27 ára gamall. Stigamenn með grímur fyrir andlitum réðust á járnbrautarlest, sem var á leiðinni til Chicago, skamt fyrir utan borgina, og rændu sex póstsekkjum og komust í burtu með þá. Skaðinn metinn alt að áttatíu þúsund dollars. Landbúnaðardeild Bandaríkja- stjórnarinnar hefir gefið út áætl- un um, að mais uppskera þar í landi á þessu ári verði 3,131,000,- 000 bush, og er það sx miljónum meira en sú uppskera var í Banda- ríkjunum árið 1912. Toll skrifstofa Bandaríkjanna nefir gefið út skipun um, að lækn- ar megi ekki gefa út ávtísanir á vínföng, ekki einu sinni handa sjálfum sér. Bretland Ensk blöð hafa um þessar mund- ir getið mjög þriggja merkis- manna á Englandi, sem allir eru nú vel við aldur, en þeir eru lá- varður Halsbury, fæddur 1825; lávarður Lindsey, fæddur 1828, og Sir Harry Doland, sem borinn er í heim þenna 1829. Allir hafa menn þessir verið mikið við opin- ber mál riðnir og tekið öflugan þátt í hinum margvíslegu nytja- fyrirtækjum þjóðar sinnar, og halda enn óskertum líkams og sál- arkröftum. Frá því að sá elzti þessara þrimenninga fæddist, hef- ir Bretland haft 19 forsætisráð- gjafa og 5 konunga; hafa í tíð þessara manna flest menningar- tæki nútímans verið fundin upp og innleidd, svo sem járnbrautir, ritsímar og talsímar, gufuplógar, saumavélar, ljósmyndavélar o. fl. Aukakosning á fram að fara innan skamms í Telford kjördæmi, sem liggur í einum útjaðri Lon- donborgar. Hiti mikill hefir þeg- ar komið í undirbúning við kosn- ingu iþessa. Sá er um kosningu sækir af hálfu stjórnarinar, heit- ir Frederick Wise, og hafa þeir Lloyd George og Bonnar Law þeg- ar heitið honum persónulegu lið- sinni. Verkamannaflokkurinn hef- ir útnefnt þingmannsefni fyrir kjördæmið, en fyrir hönd frjáls- lynda flokksins sækja þrír menn. Fergn frá Lundúnum getur þess, að Hon. Wm. M. Hughes, for- i sætisráðherra í Ástralíu, sé um þær mundir að leggja niður völd og hætta stjórnmála starfsemi að fullu og öllu. Mr. Hughes er fæddur í Wales árið 1864 og flutt- ist til Ástralíu tvítugur að aldri, en hefir haft á hendi stjórnarfor- ystuna í landi sínu siðan 1915. — Síðustu tvö árin hefir hann veitt forstöðu samsteypustjórn, er að- eins hefir tveggja atkvæða meiri- hluta í neðri málstofu þingsins. Fjármálaráðgjafi Manitoba-fylkis kosinn í Le Pas með miklum meiri hluta atkvœða < Kosning til fylkisþings fór fram í Le Pas kjördæminu þriðju- daginn 28. þ.m. — Var Hon. Edward Brown, fjármála ráðgjafi í Norrisstjórninni i Manitoba kosinn með miklum meiri hluta um- fram gagnsækjanda sinn, Allen Norgrove, þingmannsefni verka- mannaflokksins, er tapaði tryggingarfé sínu. Bæjarfréttir. Skáldið Magnús Markússon varö fyrir þeirri sorg að missa son sinn Philip, 21 árs að aldri, sáðastliðið mánudagskveld. — Philip heitinn var bráð efnilegur maður og hvers manns hugljúfi. Er hans sárt saknað af fjölmennum vinahópi. - Jarðarförin fer fram frá tJtfarar- stofu A. S. Bardals kl. 2 e. h. næst- komandi laugardag. Veðrátta hefir verið mjög vot- viðrasöm að undanförnu og kaldur norðanvindur s»»ma dagana. Nú er þó hlýrra í veðri aftur, enda ekki álitlegt ef strax þyrfti að fara að kynda með kolum til hlý- inda í húsum, með því háa verði, sem á þejm er nú. Séra Björn B. Jónsson, kirkju- félagsforseti kom heim i gær sunnan frá Battle Creek, Mich., þar sem hann hefir dvalið um hríð sér til heilsubótar. — Hefir honum batnað stórum við dvöl- ina syðra og tekur nú aftur til sinna fyrri starfa yngdur og end- urhrestur. Er slíkt vinum hans hið mesta fagnaðarefni. Næstkomandi sunnudag prédikar séra Björn B. Jónsson við báðar guðsþjónustur í Fyrstu lút. kirkju. Mr. Jón porsteinsson gestgjafi á Gimli kom til borgarinnar í verzlunarerindum fyrri part vik- unnar. Fyrir nokkry síðan gátum vér um það í Lögbergi, að hr. Sveinn Thorwaldson, fyrrum bankastjóri á Mountain, N. D., ætlaði að flytja alfarinn ásamt fjölskyldu sinni til California. Upp í ferð þessa lögðu þau 3. ágúst í bifreið. Ferð- in gekk ágætlega og auk þess að verða miklu kostnaðarminni held- ur en að ferðast með járnbrautar- lest, naut ferðafólkið meira næðis og skemtunar á þennan hátt. Til California kom það fyrsta septem- ber eftir 28 daga ferð og hafði þá farið 2,875 mílur vegar. Mr. Thorwaldson hefir sezt að í Fresno, Ca., þar sem framtíðar- heimili hans verður og er utaná- skrift hans 1873 Ferger Ave., Fresno, Cal. Jón skáld Runólfsson fer út til Lundar, Man., í dag. Hann ætlar að dvelja þar um tveggja mánaða tíma og vinna að þýðingu sinni á kvæðinu Enok Arden eftir Tenny- son, sem hann hefir haft á prjón- ubum alllengi. EkWi ólíklegt að Mr. Runólfsson gefi svo kvæði þetta út á prenti, og mega menn þá búast við góðum frágangi á þýðingu kvæðisins, því Jón er vandvirkur mjög, sem alkunnugt er orðið fyrir löngu. Meðlimir St. ísafoldar, I.O.F., eru beðnir að koma á fund regl- unnar, sem haldinn verður í Odd- fellows Hall, Kennedy St., fimtu- dagskv. 7. okt. par gefur að heyra æðsta mann reglunnar, Mr. W. Hunter, S.C.R., frá Toronto, og Mr. Hand, V.S.C.R. Gott og mik- ið prógram og vjeitingar og marg- ir nýir meðlimir'teknir inn. 1 J.W.M., R.S. Með Lagarfossi, er fór frá Montreal til íslands 29. þ.m., fóru þessir íslendingar og lögðu á stað frá Winnipeg á sunnudagsmorg- un 26.: Sveinbjörn Hjaltalín, Tan- taljon, Sask.; Sigurður Sigvalda- son, Sigríður Jónsdóttir, Lára Hermann, Gróa Kristjánsdóttir, Aðalbjörg Helgason, Thyri Bene- dicktson, Thorun Nielson, Jónína Pálsson, Thorvaldur Jónsson, Jó- hannes Bjarnason og Sigurgeir Jónasson, öll frá Winnipeg; Jó- hann Bjarnason og Mrs. Margrét Bjarnason, East Kildonan; Jón Sigurðsson, Selkirk; O. Johnson, Detroit, Mich.; Carl Thorlakson, Wpg.; Jónína Fredrickson, Sigur- veig Fredrickson, Guðrún Fred- rickson, Kristín Fredrickson og Inga Fredrickson, allar rá Mouse River, North Dakota; Thorgeir Jónsson, Kandahar, Sask., og Guð- mundur Reykholt, Wynyard, Sask. Mr. Hjálmar porsteinsson frá Gimli kom til bæjarins um síð- ustu helgi. Kvöldskemtun (At Home). tilefni af því að prestur Fyrsta lút. safnaðar, séra Björn B. Jóns- son, er kominn heim með endur- I bætta heilsu, frá heilsuhæli því er hann hefir dvalið á í liðinni tíð, þá hafa fulltrúar safnaðarins á- samt nokkrum konum úr söfnuðin- um undirbúið kvöldskemtun föstu- dagskvöldið kemur 1. okt., kl. 8, í sunnudagp skólasal kirkjunnar. par gefst fólki tækifæri að heilsa prestinum og mætast eftir sum- arhvíldina, Einnig hefir verið undirbúið gott prógram og veit- ingar, alt ókeypis. Komið, hafið góða kvöldstund. Allir velkomnir. /

x

Lögberg

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.