Lögberg - 03.08.1922, Blaðsíða 6

Lögberg - 03.08.1922, Blaðsíða 6
Ms. 6 LÖGBERG, FIMTUDAGINN 3. ÁGÚST 1922. Fjölskyldan á Haugh Saga frá Skotlandi eftir ANNIE SWAN. “Nær kemur Claude heim?” spurði frú Allardyce eftir stutta þögn. “1 þessari viku, annaðhvort á morgun eða á iaugardaginn”. “Til þess að vera heima?” “Já, Alek segir að liann verði að vera heima og sjá um búið”. “Eg veit ekki hvað eg ætti að gera, ef eg væri í yðar sporum”, sagði frú Allardyce. “Fyrst að ásigikomulagið er eins og þér segið, þá er Haugh ebki hentugur verustaður fyrir hann, en hvað er mögulegt að gera?” “ Eg veit það ekki. Yður furðar víst ekki á því, að eg er örvinglnuð, og að eg get ekki verið glöð, eins og maðurinn minn vill að eg sé. Þegar eg geng út úr húsinu, get eg ekki hugs- að mér hvemig alt muni vera, þegar eg kem aftur. Eg held að íEleanor og föður hennar komi ekki vel saman; þau eru of lík til þess. Hau hafa bæði of ákafa lund”. “!Nú ímvudið þér yður það lakasta. frú Kerr. Stúlkur eru vanalega fúsar til að hlýða föður sínum. Eg ber svo innilega samhygð með yður, en þér megið ekki gera flugu að fíli. Bömin geta ef til vill breytt lífsháttunum á Haugh, og óðalseigandinn getur orðið betri en hann hefir áður verið”. “Víndrykkja breytir eðli allra manneskja. Hann er sami maðurinn og eg þekti fyrir tutt- ugu árum síðan”. “En hann hefir al'taif verið geðríkur, er það ek*ki? Eg heyrði um hann tailað, löngu áður en sá hann”. “Enga manneskju af Kerr fjöliskyldunni, hefir verið auðvelt að umgangast”, svaraði frú Kerr, “eins og svo margar aðrar stúlkur gerði eg misgrip, þegar eg giftist manni mín- um. Eg ímyndaði mér, að eg gæti betrað hann, en það var enginn hægðariei'kur”. “Haldið þér að slíkt geti aldrei átt sér ■stað?” Eg hefi aldrei heyrt getið um neinn, sem heifir getað gert það”. “[Eg er hrædd um að það ,sé oftast gagn- laust að reyna það; en segið mér meira um Eleanor og fólkið, sem hún (kemur með. Þyk- ir henni mjög vænt um það!” “ Já, 'hún hrósar því mi'kið. Eg hefi jafn- vet grun uim, að eitthvað sé á seiði milli henn- ar og eldri sonarins”. “Þekkið þér notkkuð þetta fólk?” “Nei, við vitum aðeins, að frú Brabant er systir konunnar, sem Eleanor býr hjá, eða hefi r búið hjá. Henni voru veitt meðmæli af heldri konu, sem kom dætrum sínum fyrir hjá henni, og þessi kona sagði mér, að Brabants væri mentaðar manneskjur, en fátækar”. “Þegar þér fáið sjálf að sjá þetta fóllk, munuð þér sreta séð hvers konar manneskjur það eru. Haldið þér að maður yðar vilji, að Eleanor giftist þessum unga herramanni?” “Nei, það eru aðeins tveir menn í heim- inum, sem hann vill gefa Eleanor, og þeir eru sonur yðar og William Heron”. “William Heron”, hrópaði frú Allardyce undrandi, “hann á ekki einn skilding”! “En hann er skynsamur maður, segir Alek og hann er elskuverður ungur maður”. “Hvern þeirra kjósið þér heldur?” Indælt bros, líkt sólargeisla, leið yfir and- lit frú Kerr. “Tlm það þurfið þér ekki að spyrja. Eg hefi sagt Robert, að það mundi gleðja mig ó- segjanlega, að sjá Eleanor, sem konu hans. Eg vona að yður sé það ekki á móti skapi?” sagði hún og laut að vinkonu vsinni, sem alt í einu varð þögul og alvarleg. “ Athugasemdir mæðranna í slíkum tilfell- um, er oftast hægt að sigra”, svaraði frú All- ardyce nauðug, “hvað ætti eg að finna að þessu?” “Tjíst yður vel á Eleanor?” spurði frú Kerr kvíðandi. “Já, eg kann vel við hana, en eg efast um að hún kunni vel við mig. Eg er svo blátt á- fram og segi meinigu mína hiklaust; en það mun henni naumast líka ’ “Hefir Robert minst á þetta við yður?” “Já, hann talaði um þetta síðdegis fyrir þrem vikum síðan — eg held það hafi verið sama daginn, sem hann talaði um það við yður”. “Langar yður ekki til að Haugh og Castle- bar yrði tengt saman á þenna hátt?” spurði frú Kerr Ihikandi. “Ef þau yrði ánægð, þætti mér vænt um það. Ek á aðeins eitt barn, Alec, og eg reyni daglega að elska hann á réttan hátt, svo að hann verði mitt uppáhald. Hann er ást- ríkur sonur — það eru ekki margir, sem jafn- ast á við hann, og sú stúlka, sem giftist hon- um, mun blessa þann dag, sem hún mætti hon- um, ef hún er honum samboðin”. “Eg er sannfærð um þetta, og þess vegna vil eg biðja guð, að láta Eleanor ekki neita hon- um”. Viðkvæmnin, sem greip þessar tvær mæð- ur 'sökum þessa samtals, er auðskilin, en nú var dyrabjöllunni hringt, og ung, fögur stúlka kom inn í stofuna. Frú Allardyce heilsaði henni allúðlega. “Komdu inn Mary, það er aðeins frú Kerr og eg, sem erum hér. Janet, kveiikti á lömp- unum”. Marv Heron var nett vaxin stúlka, næst- um því bamsleg að útliti, en svipur hennar svndi að hún áti göfugt lundarfar. Það var ákveðinn dráttur um munn hennar, og öll fram- koma hennar benti á fjöruga geðsmuni og glögga skynsemi. “Hvemig líður yður, frú Kerr? Eg hefi heyrt að Eleanor komi heim í dag, er það satt, að hún komi í dag?” “ Já, góða stúlka. Er mamma þín betri?” “Nei, hún er mjög lasin. Hún neytir næsturn einskis matar. Eg kom ihingað til að fá fáein egg hjá yður, frú Allardyee. MÖmmu þykja svo góð eggin frá Castlebar. Hún hef- ir máske sagt, að hún hefði góða lyst á þeim, af því þau væri svo eftirsóknarverð ”. Mary tók ofan hattinn og strauk hárið sitt hálf vandræðaleg. “Eg er svo hrædd um mömmu, og Willie sömuleiðis. Hann langar til að heimsækja prófes sor frá Edinburgh, ef hann getur grætt svo mikla peninga, að hann geti borgað honum. 1 dag held eg hann hafi farið til að selja fögm myndina frá Sheffield. Eg er hrædd um að hann selji hana einhverjum, sem borgar hana lágu verði, og kann ekki að m'eta hve góð hún er”. “Hvers vegna lést þú okkur ekki sjá hana, Mary?” sagði frú Kerr ásakandi. “Af því þið hafið verið svo góð við okkur. Við verðum að reyna að ahlda í vini okkar, án þess að vera þeim til byrðar; en einhvem daginn batnar 'hagur okkar, ef aðeins mamma fær að lifa þangað til. En hvers vegna erað þér svo svipþungar frú Allardyce? Hafa hænsnin orpið á annars manns landi?” Það var eitthvað ósegjanlega aðlaðandi sú aðferð, sem hún notaði til að flytja asmtalið frá alvöru til skemtunar. “Og Eleanor kemur áreiðanlega heim í dag? Eg hlakka til að sjá hana. Emð þér ekki glaðar vfir því líka, frú Kerr?” / “ Jú, mjög glöð, og í næstu viku kemur Olaude Iíka heim, svo þá verður heimilislífið fjöragra á Haugh, og þá verður þú og Willie að heimsækja okkur”. “Það eram við sannarlega fús til, ef mamma verður betri. Verðið þér að fara heim undir eins?” bætti Mary við, þegar frú Kerr stóð upp og fór í yfirhöfn sína. “Hvers vegna viljið þér ekki bíða eftir Robert? Hann varður hér að hálfri stundu liðinni”, sagði frú Allardyöe. “Nei, eg verð að fara heim og líta eftir húsinu. Við verðum að hafa alt tilbúið fyr- ir gestina. Komið þér með Robert á laugar- daginn og neytið dagverðar hjá okkur. Mig langar til að sýna ykkur vini Eleanors”. Frú Allardyoe fylgdi henni til dyra, og þær töluðu saman fáeinar mínútur. Þegar hún köm áftur inn, var búið að kveikja á lampanum, ög Mary Heron sneri sér við og leit alvarleg á hana. “Þér erað hryggar yfir einhVerju, frú Allardvce! Frú Kerr hefir amað yður; eg ®á það þegar eg bom inn”. “Þey, talaðu ekki þannig; hún hefir sína galla, en hún er góð kona, og hefir þungar sorgir við að stríða. En það er ekki vegna hennar sorgar, að er hnuggin — það er af öðr- um ástæðum, sem eg get engum sagt frá — og síst af öllum þér”. 6. Kapítuli. I listigarðinum á Haugh, spásseraði Kerr og franska konan. Það var sunnudagsmörg- un og morgunverðurinn nýlega afstaðinn, en óðalseigandinn var alt af vanur, þegar veður levfði það, að reykja pípuna- sína úti áður en hann fór í kirkju. Veðrið var blítt og viðfeldið, og austan- vindurinn flutti hljóm kirknaklukkanna til þeirra. Frúin hafði séð óðalseigandann í gegnum gluggann, ganga út í listigarðinn, og hraðaði sér út til að tala við hann vitnalaust. iHann varð nú alls ekki glaður við að sjá hana, því hann hafði um ekkert að tala við hana. Honum geðjaðist hvorki að henni né - syni hennar, og vildi helst losna við þau, sem fyrst. “Eg sé að yður þykir vænt um pípuna yð- ar”, byrjaði frúin með töfrandi brosi, “má eg ganga með yður. Er þetta ekki ágætur • morgun ? ’ ’ Frúin, sem var vön við hlýjara loftslag, skalf af kulda undir þunna kniplingssjalinu, sem ekki gat varið hana fyrir hinum kalda vindi. “Veðrið er ágætt en grasið er vott, og skórnir yðar era of þunnir”. Fniin leitt á skóna sína. “Þeir era hlýrri en þeir líta út fyrir að , vera. Má eg verða yður samferða, eg hefi enn ekki skoðað listigarðinn? ó, hvað hér er fögur útsjón! En hvað þér erað lánsamur, að geta búið á jafn fögra landi, í fjarlægð frá hávaða heimsins”. “Ef þér viljið göngutúr ættum við helst að ganga eftir trjáganginum, hann er þur, en nú er komið að kirkjutímanum. Viljið þér ekiki verða okkur samferða; konan mín ekur alt af”. “Auðvitað vil eg vera með. Eg hefi heyrt mikið um Bkotland, en það er miklu fegurra en eg hafði ímyndað mér”. “Kingshorn er ekki álitið að vera róm- antiskt pláss”, sagði hann blátt áfram. “en oss þykir vænt um landsvæðið, af því við er- um fædd og uppalin hér.” “Hér er frelsi, ró og fegurð, og líf ykkar á vel við náttúrana í heild sinni. Nú skil eg mikið í lundarfari Eleanors, sem eg hefi ekki skilið áður. Hún hefir svo ákveðið geðslag, *og svo aðlaðandi framkomu, ólík öðrum ung- um stúlkum. Mig furðar slíkt ekki lengur. Sá, sem vildi reyna að flytja hana héðan, vði að vera djarfur maður”. “Hún skal aldrei verða flutt langt burt héðan, ef eg má ráða*’, svaraði Kerr. Það var heimska af okkur, að senda hana til Frakk- lands. Eg sagði konu minni það, en kven- fólk vill fullnægja sínum vilja”. “Sýnist yður þá ekki að framkoma og siðir dóttur yðar, hafi náð framför ihjá okkur?” “Jú, hún hefir meira af heldri kvenna svip en áður, það er alt, sem eg get sagt um þetta”, svaraði hann hreinskilnislega —N “en nú hringir klukkan í kirkjunni okkar, svo við verðum að ganga heim að húsinu aftur”. “Klukkan er aðeins fimtán mínútur eft- ir tíu”, sagði frú Brabant. “Frú Kerr sagði að við skyldum aka héðan, áður en hún væri hálf ellefu, en eg býst við að unga fóllkið vilji ganga til kirkjunnar”. “Hvaða unga fólk? Elleanor skal aka með móður sinni”, svaraði Kerr þurlega. “Son minn langar til að fylgjast með henni, þér megið ekki ræna hann þeir ánægju”. Eleanor á að aka með móður sinni“, endur- tók hann rólegur. “Komið þér nú, frú, eg verð’ að skifta um skó, og eg er viss um að þér verðið að gera það líka”. ‘Erá Brabant var nevdd til að snúa við Kerr var svo ákveðinn, ókurteis og laus við alla alúð, að hún vissi ekki hvað hún átti að segja, alt var undir honum komið. “Fáum við að sjá fallegu konuna með ó- skiljanlega nafnið í kirkjunni?” “Þér eigið við frú Alardyce?” “Já”. “Nei, hún gengur í frjálstrúar kirkjuna en við göngum í þá gömlu”. “Er mikill mismunur á þeim? Eg skil það ekki”, sagði frú Brabant, “er önnur guðs- þjónusta haldin í ikirkjunni, og hin í bænahúsi? Er þetta það, sem þér eigið við?” “ Já, máske” var svarað, “en þarna stend- ur sonur yðar í dyrunum. Hvaða atvinnu stundar 'hann?” “Hann stundar enga atvinnu; en hann er hermaður, þegar föðurland hans þarfnast hans ’ ’. “Til hvers eyðir hann þá tímanum?” “Ó, hann hefir fjölskyldu og kringum- stæður að anuast”. “Eigið þér land í Belgíu? Kona mín hefir minst á það”. Þetta var tækifærið, sem frúin beið eft- ir, og hún lét það ekki ónotað. Ó, já, Fraisfort, heimili Brabands fjöl- 'skyldunnar; en vondir tímar hafa rænt oss eignum voruim, og við höfum elkki efni til að búa á óðali okkar.” “Hvers vegna? Er akuryrkjan jafn illa stödd þar, eins og í Skotlandi?” spurði Kerr með dálítið meiri áhuga, en hann hafði áður fundið til viðvíkjandi gestum sínum, sem satt að segja ollu honum mikilla leiðinda. “Já, jafn illa stödd, ef ekki verri; au'k þess hefir vínuppskeran í mörg ár veitt léleg- ar tekjur”. “Já, þið ræktið vín. Gróðunsetjið vín- plöntur, eins og við jarðepli og sáðkom”. “Alveg á sama hátt; en frost, þurfcar og eyðilegging stríðsins, hafa komið í veg fyrir alla uppskera”. “Eg hélt með Þjóðverjum”, greip Kerr fram í fyrir henni. “Það var gleðilegt að lesa um hina ágætu foringja þeirra; frönsku foringjamir voru ekki Kkt því eins hygnir né duglegir, en stríðið í heild* sinni var aðeins dráp heiðarlegra manna”. “Eg er ekki frönsk, svo eg þoli vel að þér ásakið frönsku mennina”, svaraði frú Brabant alúðlega. “'Síðar getum við talað meira um stríðið. Þér ættuð að tala við son minn, hann er duglegur mótstöðumaður”. “Yar hann í stríðinu?” “Nei, við dvöldum í Englandi sökum heil- brigði yngri sonar míns.” “Konan mín hefir Kka sagt mér að þér ættuð annan son. Yinnur hann ekki fyrir sér?” “Hann sfcrifar bækur, og þeir sem þekkja þess konar störf, segja að hann sé bráðgáfað- ur”. i “lEinmitt það?” Frú Brabant varð þess vör að hún hafði ekki gert þau áhrif, sem hún vildi, og var að því komin að brevta umtalsefninu, þegar hún sá að frú Kerr veifaði hendinni til hennar í onnum glugganum, hún kinkaði alúðlega til Kerr og gekk inn í húlsið. Hún greip hendi sonar síns og leiddi hann inn í forstofuna, til þess að tala fáein orð við hann. “Eg ætla að revna gæfu mína áður en dagurinn er liðinn. Mér leiðist hér í þessu hiilsi”. Á sama augnabliki kom Eleanor í Ijós í stiganum, geislandi af ánægju, klædd verð- mikilli loðkápu. því Alexander Kerr vildi að kona hans og dóttir væru fallega klæddar, og borgaði reikninga þeirra án nokkurra mót- mæla. “Eruð þér hérna, frú?” sas^i Eleanor. “Mamma var að líta eftir yður. Vagn- inn er nú að koma að götudyrunum”. “Get eg ekki fengið að verða yður sam- ferða gangandi?” spurði Louis auðmjúkur. “Jú, velkomið, ef þér viljið það”, svar- aði Eleanor. “Þér akið með foreldram mín- um, frú. Þau aka alt af”. “Eg get nú verið heima”. sagði frúin, “en mig langar til að vera til staðar við sfcoska .guðsþjónustu — og þarna kemur hr. Kerr”. Húsbóndinn skildi un'dir eins áligfkomu- lagið. Yagninn er kominn að dyranum, Elea- nor”, sagði hann, “það er r>láss fvrir okkur öll, svo þú þarft ekki að flýta þér”. “Má eg ekki ganga, pabbi?” spurði hún hikandi. “Nei það mptt bú ekki”, svaraði hann styttingslega, um leið og hann gekk upp stig- ann og upp á Ioft. 1T/* ». 1 • V' timbur, fjalviður af öllum Nyjar vorubirgoir tegundum> geirettur og ai» konar aðrir strikaðir tiglar, Kurðir og gluggar. Komið og sjáið vörur vorar. Vér erumætíð glaðir að sýna þó ekkert sé keypt. The Empire Sash & Door Co. ----------------Limtted -—-------- HENRY 4VE. EAST - WINNIPEÍÍ Wionipeg Brick Company Limited Verksmiðjueigendur og kaupmenn — verzla með — SKRAUT-GRJÓT og ALGENGT GRJÓT Sandsteypulím, Möl, Lím, Cement og Liti í steypulím o. s. frv. Utanbæjar sem innan pantanir afgreiddar tafarlaust. Phones F.R. 700—701 The Dowse Sash & Door Co. Ltd. —Búa til og Verzla með — Hurðir, Glugga, Geirettur og Strykaða Tigla. Úrval af hörðu og mjúku timbri — Hringið N 1156 — Eleanor varð fyrir vonbrigðum og lagði sálmabókina frá sér á borðið. Veðrið er svo indælt — komið þér, hr. Brabant, við skulum lœðast í burtu, þau ná okkur á leiðinni til bæjarins”. Louis tók hattinn siun ánægður, og fór með henni. Þegar hitt fólkið steig upp í vagn- inn, saknaði Kerr hennar, og kona hans sá að hann var of gramur til að geta lýst tilfinningu tsinni með orðum. Eleanor forðaðist að mæta vagninum, hún gekk götuna yfir engj- arnar og gegnum skóginn til gömlu kirkjunnar, sem stóð á litlu nesi er lá út í sjóinn; hún og fýlgdarmaður hennar vora sest á einn af kirkjubekkjunum þegar hitt fólkið fcom inn. Það vora ekki margir áheyrendur, því engrir gestir voru í bænum um þetta leyti, og hinir vanalegu kirkjugestir vora ekki svo margir, að þeir gæti fylt þessa Íélegu byggingu. Guðsþjónustan var hversdagsleg, en það 'hviíldi slíkur friðnr og hreinskilni yfir henni, sem hlaut að hafa áhrif á hinn litla söfnuð. Eleanor fann til viðkvæmni, þar eð hún hafði verið fjarverandi heimilinu svo lengi. Það sem okkur hefir verið kent og okknr er kært, hefir einkennilcgt vald til að gera ofckur við- ikvæm, isérstaklega ef við höfnm verið fjarlæg því um langan tíma. Augu hennar fyltust tárúm, meðan presturinn flutti bænina og hún heyrði alvarlegu röddina hans. Hann var tryggur vinur fjölskyldu 'hennar, og um stund gleymdi hún alveg manninnm, sem utan við sig af leiðindum knéféll við hlið hennar. Þegar þau komu aftur út úr kirkjunni, var hann nógu hygginn til þess, að minnast ekki á guðsþjónustuua. I fyrsta skifti hafði Elea- nor fundið hve fögur hún var. Andlit henn- ar var ósegjanlega hlítt á svip og útlit, þegar hún gekk eftir aðalgötu bæjarins ásamt fvlgdarmanni sínum, þar sem þau óvænt mættu Robert Allardyce og móður hans. Óðals- « eigjandinu var mjög alúðlegur 'við þau, eins og hann hafði verið kvöldið áður á Haue-h. Hann var samþykkur giftingaráformi Roberts, og vildi að Brabants mæðgiuin skildu mein- ingu 'hans. Margir af íbúum bæjarins horfðu á þennan litla hóp, sem beið eftir komu vagnsins, og það var engin furða þó fólk Iiorfði á þan, því allir hugsnðn um Haugh fjöls'kylduna, því Haugh var eina plássið í héraðinu, þar sem markverðir viðburðir áttu sér stað, og nú var ungfrú Kerr komin aftur, og auðvitað var það henni, sem flestir veittu eftirtekt. Aður en hún fór að heiman, sáu menn hana alt af á ferðinni nm nágrennið, annaðhvort ríðandi eða gangandi, og öllum þótti vænt um að sjá haua aftur, en Robert Allardyce, sem með hinni glöggu sjón sinni, hafði séð hið sanna ásig- komulag, var freonur þunglyndur. Hann tók aðeins í hendi Eleanor, og gefck svð til móður sinnar. Það voru alls ekki viðfeldnar fimm mínútur, sem beðið var eftir vagniuum, uus hann kom; hrós frú Brabant yfir plássinu gat ekki fjarlægt óánægjuna, sem ríkti í litla hópnum. “En hvað hér er töfrandi fagurt”, sagði hún, “eg er alveg hrifin af landslaginu! Lít- ið aðeins á yfirborð sjávarins, er það ekki und- ravert?” Hun sneri sér að frú AJllardyce, en þorði ©kki að reyna að nefna nafn hennar. Hin góða kona leit undrandi á hana. “Eg sé ekkert undravert við þetta. Hann lítur þannig út, eins og óveður sé í vændum áður en dagurinn er liðinn”. Öll náttúran er svo heilnæm og huggandi, svo hrífandi”, bætti frúin við, sem ekki skildi það sem sagt var. “ Andrúmsloftið er eins og styrkjandi drykkur. Þið ættuð að vera óvanalega gæfuríkar manueskjur”.

x

Lögberg

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.