Lögberg - 22.03.1923, Side 2

Lögberg - 22.03.1923, Side 2
Bls. 2 LÖGBERG, FIMTUDAGINN 22. MARZ, 1923 Limir og líkami stokk- bólgnir. Fruit-a-tives læknuðu nýrun með öliu. Hið frægasta ávaxtalyf Öllum )>eim, er >jást af nýrna- .sjúkdómi, verða kærkomin þessi tíðindi um Frit-a-tives, >hið fræga ávaxtalyf, unnið úr jurtasafa, er gersamlega læknar nýrna og blöðrusjúkdóma, eins og bréf þetta bezt sannar. “Lili’a stúlkan okkar þjáðist af nýrnaveiki og bólgu — allir lim- ir hennar voru stokkbólgnir. Við reyndum “Fruit-a-tives.” Á skömir um tíma varð stúlkan alheil.” W. M. Warren. Port Robinson, Ont. 50c. askjan, 6 fyrir $2,50, reyn- sluskerfur 25c. Fæst hjá öllum lyfsölum, eða beint frá Fruit-a- tives Limited, Ottawa, Ont. Jón Trausti. r.rindi flutt á Giinli 2. Marc 1923. Kftir Halldór li. Johnson. Ritverk Jóns Trausta. Fyrsta bók Guðm. Magnússon- ar, var prentuð árið 1899. pað var litið ljóðakver, sem ,hann refndi: Heima og Erlendis. ís- landsvísur — lítil ljóðabók var prentuð 1903, og ári síðar kom ljóðleikurinn “Teitur” á markað- inn. AUar þessar bækur hlutu ó- mtlda dóma hjá ritskoðurum og áttu þá að minsta kosti, að nckkru leyti skilið. pó góð til- þrif væru þar innanum. Árið 1904 gaf hann út minning- ar um ferðir sínar í pýzkalandi, Englandi og Sviss. pað var eink- ar fróðleg og skemtileg bók. Eft- ir það skrifar hann bækur sínar undir dularnafninu: Jón Trausti. Fyrsta skáldsaga Jóns Trausta — Halla, var gefin út árið 1905. Halla vakti strax mikla eftirtekt,1 því sagan þótti óvenjulega vel rit- uð, en hitt var þá flestum dulið, að Guðm. Magnússon, sem ritdóm-: endurnir höfðu húðstrýkt og Jón' Trausti, sem þeir lofuðu nú há- stöfum var ein og sama persón- an. Skömmu síðar kemur “Leys-! ing” út, og svo hver sagan af annari. Fjörutíu og tvær sögur, smáar og stórar, tvö leikrit og þrjár kvæðabækur skrifaði hann! á tuttugu árum. (Síðasta kvæða-1 bókin var prentuð að honum látn- [ um og er nýkomin út.) Auðvitað endist mér ekki tími til þess, að gefa nákvæma lýs- ingu af öllum ritverkum Jóns Trausta. Eg verð að láta mér næja, að I minnast á tvær þær helztu og að j minni skoð'un bestu sögur höfund-! arins: Höllu og Sögur frá Skapt-1 áreldum. Halla er sveita saga og lýsir i persónu einkennum og æfikjörum þeirra Halldórs prests, Olaís' sauðamanns og Höllu vinniukonu.' Séra Halldór er smámenni en j ekkert illmenni, til að byrja með. Hann var sonur einhvers em-! bættismanns í sveit,, og hafði því að líkindum snemma vanist á, -.5 álíta sig ágætari en aðra. Ung- ur var hann sendur til höfuðstað- arins og kostaður í s'kóla. í lat- ínu skólanum rataði hann í ýn> smá æfintýri — upp á einhverju varð hann að taka sjálfur, úr þv*í hamingjan og umönnun ann- ara hafði losað hann við áhyggj- ur og ábyrgð lífsins. pví miður endaði eitt af þessum æfintýrum dálítið óþægilega með hálfgerðri nauðungar giftingu. Við þettað losnaði hann undan foreldra um- sjninni að mestu en komst í stað- inn undir miklu strangari tengda- móur aga. Ári síðar var demt yfir hann prestahempu og biskups blessun, svo hann komst þá í em- bættismanna tölu. Alt var þettað góður undirbúningur fyrir fram- tíðina, eða hitt þó heldur. Skömmu eftir víxluna varð hann að hrekjast frá konunni og Reykj avíku r-dýrði n n i út í eitt- hvert afskektasta og nyrsta brauð landsins. í sókninni sá hann heldur ekkert aðlaðandi nema Höllu, uppáhalds vinnukonu gömlu prestsekfcjunnar á staðn- um. Svo fór, að ihann gleymdi bæði embættis eiðnum og eigin- konunni; gleymdi jafnvel að geta um það við íHölIu, að hann væri' giftur. Sárkvalin af leíðindum og einstæðingskap, leitaði hann hugarléttis og samúðan hjá þess- Pfel I ^ M| Hví aB þjást af | 3 L blæíandá 05 bólg- i 11 * 11 inni Bylliniæð? ■ ■ ■■ Uppskurður ónauð- sj-nlpgur. f>vl Dr. Chase'* Ointment hjaipar þír strax. 60 cent hylklð hjá lyfsölum eða frá Edmanson, Bates & Co., I.imited. Toronto. Iteynsluskerfur senHur ó- keypis, ef nafn þeasa bláBs er tiltek- ið o)* 2 cent frfmerki sent. ari tápmiklu og ástríku sveita- stúlku, sem elskaði hann með öllu hinu unga ástriðu magni óspiltr- ar sálar. Séra Halldór elskaði hana líka, en með prestslegum hyggindum samt, því þegar ó- gætni hans 'hafði teflt geistleg heitunum og embættinu í voða þáði hann það með gleði að Halla giftist nauðug, til þess að hylja faðerni barns sins. Eftir það lá lífsleið prestsins niður á við til yfirskins og augnaiþjónustu, • útvortis gengis og innri 'hörmung- ar. Slí'k Júdasarlaun hreppa þeir allir, sem svíkja sjálfa sig. Halla var bara ein af vinnu- 'konunum á prestssetrinu — en hún var fögur og ung, frjáls og glöð — hún fann hjá sér kraft ; og heilsu til að vinna sér brauð, ; var öllum óháð og sj'álfri sér nóg. Hún var einræn og þóttafull, hafði yndi af dálæti piltanna og gaf þeim undir fótinn, en þótti þó ennþá meira gaman að hrinda I þeim aftur frá sér með kaldlyndi j og háði. Hún var ennþá óbeygð i og ótamin af alvöru lífsins, og ó- víst hvaði úr henni yrði. I Óforsjál hafði hún verið í ásta- ! málum og óeigingjörn reyndist j hún líka. Til þess að elskuhug- inn tapaði hvorki kjól né kalli, giftist hún Ólafi, þó henni bein- leiðis biði við húsfrejustöðunni á heimili sauðamannsins. Til þess, því betur að leiða allan ljót- an gruh frá .sálnahirðinum, flýði hún með barn sitt í eyðibýli fram til heiða, svo að gætin og kunnug augu, sæju ekki ættar- markið á syni hennar. Ólafur sauðamaður og eiginmaður Höilu, var sérvitur, einrænn og ómann- blendin, væskilsmenni, rýr, ófróð- ur og ókarlmannlegur, en var þó ' í raun og veru meiri maður en , hann. sýndist. Fjármaður var hann með afbrigðum og — það eru ekki allir sem skara framúr i ein hverju. í vetrarhörkunum stáð hann yfir fénu einn og óskelfdur. Með karlsmensku, ró, þrautsegju og lægni kom hann fénu á mó:i mannskaða veðrum, heim að hús- ' um á kveldin. Ólafur hafði J fengið ofur-ást á Höllu og ætlaði að farga sér, fengi hann hennar ekki, en rólegur var hann og ! gafst ekki upp þó illa horfðist á með bónorðið. Hann beið eftir færi og það kom að lokum. Höfundurinn heldur æfisögu Hö'llu áfram i fjórum söguþátt- um, sem hann nefnir einu nafri “Heiðarbýlið”. Fyrst af þess- um sögum heitir “Barnið”. pað lýsir heimili Höllu og Ólafs. Heiðarhvammi. par situr hún yf- ir veiku barni ssínu og þaðan fylgir hún þv.ú áleiðis til grafar- innar. pað hefur reynst mörgum skáldum erfitt að lýsa móður-sorg- inni án þess, að nota smekklaus- ar upphrópanir eða fjas. Óvíða hefi eg séð íslenzkum höfundum takast það betur en Trausta í þessari sögu og ihelst finnst mér listagrip hans þar minna á hina laðandi list frönsku höfundanna sumra. Aldrei hefi eg þennan kafla sögunnar lesið án þess að vikna, og fáir munu þeir sem enga samúð eignast með krossibertím lífsins við að sitja eina vornótt með Höllu í heiðarkotinu, þegar morgungeislinn leitar að brosandi barnsaugum í auðri rekkjunni. í næsta þætti: Grenjaskyttunni kemur nýr maður til sögunnar porsteinn Egilsson frá Hvammi. Hann er í raun og veru allra besti drengur —• full- hugi, tilfinninga-ríkur, sjálfstæð- ur í skoðunum og frjáls við hleypi- dóma og smásálarskap sinnar sveitar og samtíðar, en hann var einnig geðríkur, einrænn, þrár og ódæll. pettað mikla mannsefni lendir í andlegt og líkamlegt vol- æði fyrir glapræði og misskilning þeirra, sem elskuðu ihann mest og vildu honum best. úr þessum vesaldlómi Ibjargar Halla honum að síðustu. pá kemur þriðji þátturinn, sem heitir “Fylgsnið”. í þeim kafla sögunnar er Pétur prófastsson á Kroppi aðal persónan. Hann var listamannsefni, en prestleg hygg- indi og föðurlegur metnaður mat þær gáfur lítills, sem ekki leiddu til embættis eða auðlegðar. Péfur var sendur til R.vík fyrst til þess að læra latínu og síðan til þess að nema járnsmáði en söng hneigðin var álitin að koma frá fjandanum og reynt eftir megni að berja hana úr honum. Afleiðingin varð, eins og vænta mátti, sú, að Pétur varð svo sem ekki neitt. Seinast lagði hann lag sitt við versta ill- þýði sveitarinnar og gerðist þjóf- ur, til þess að 'bjarga börnum sínum frá hungrinu eða hreppn- um. “Porradægur” heitir fjórði og síðasti þátturinn. Hann er um stríð 0g raunir Höllu við örbirgð- ina, einverura og veikindi bónda sfrs og barna. Að síðustu skilur sorgin við hana sem unga ekkju, með nægilegt þrek og úrræði til þess, að sjá sér og sínum fyrir heimili og lífsnauðsynjum. íslenzk alþýða hefur jafnan metið það kost á sögum, séu þær látnar' fara vel — ef persónurn- ar eru látnar njóta hamingju í sögulokin. Engar sögur geta far- ið betur en Höl'lu sögurnar, svo framarlega, sem við það er kann- ast, að meira sé vert um þroskun sálarinnar en nautnir Lífsgæð- anna, að manngildið sé meira virði en peningar. Halla þroskaðist við hverja raun. Hún giftist án ástar en reyndist trúföst og umhyggjusöm eiginkona. Hún var dæmd til útlegðar fram á heiðum, en varð þó ýmsum til blessunar og fann til þeirrar gléði, sem góðsemin veitir. Hún var tortryggð, en á- | vann sér tiltrú og virðingu ná- 1 granna sinna. Hún var fátæk, ! en samt veitandi. Halla færir okkur lífsskoðun | vonarinnar og trúarinnar á fram- för lífsins. pannig getur mann- dóms kjarninn þroskast í eldi reynslunnar og þannig hefur hann þroskast og mun þroskast, : þar sem fórnfús ást situr við barns vöggurnar, þar sem mann- ! dáð og síjálfsvirðing heldur vörð | yfir samvizku og hjarta fólksins | Slikar mæður, sem Halla, eftir- ! skilja börnum sínum góðar arf- 1 leifðir: sjálfstraust í baráttunni. djörfung í framsókninni og dreng- I skap í freistingun.um. Næstar að skáldskapargildi tel | eg ‘kSögur frá Skaftáreldum”' I Holt og Skál og Sigurdífsins. pær gerast á einhverju hinu allra mesta hörmungar tímabili sögu vorrar. pað er sem náttúr- an leiki þar undir eitthverf ægi- j legt undirspil með eldgosum, 1 jarðskjálftum, þrumum, öskufalli ' og öðrum fyrnum. Glóandi hraun móðan flæddi yfir fagrar sveitir. Kolsvört eldfjallaaskan Há sem svartur hjúpur yfir heilum hér- uðum. Loftið varð eitrað af brennisteini og eldfjallagufu, svo fólk og fénaður hrundi niður. Samt reis ísland úr öskunni fegra en áður, og Skaptárgosin urðu þjóðinni eldskírn til endur- vakningar og stærri starfa, þess vegna endar alt með sigri lífsins. En eyðingaröfl náttúrunnar eru enganvegin ein að verki í sögum þessum — þau fá drjúga hjálp, hér sem oftar, frá blindum ástríð- um mannanna, við að gera lífið að harmsöguleik. Æskuást tveggja saklausra unglinga — Vigfúsar í Holti og Guðrúnar í Skál, átti þar í stríði við aura og ættarhroka helstu ihúsfreyjunar á Síðunni, sem ekki vildi gifta dóttur sína manni af brennimerktum ættum. Raunar var Vigfús allra besti drengur og mannsefni, en hvað um það, faðir hans var brennimerktur glæpamaður. Enginn arfur hafði honum verið eftirskilinn nema Iþetta brennimark. petta ættar- merki var hann dæmdur til að bera af rangsleitnasta og misk- unarlausasta dómaranum sem til er, almenningsálitinu. í þessu til- felli sem oftar var sá dómur nærri því búinn að gera góðan mann að glæpamanni. Samt sigraði ást hans og Guðrúnar að Jokum — en heimskan heimtar æfinlega sínar fórnir, og Guðrúnu lagði hún í gröfina. Síðari sagan, “Sigur lífsins, er skemtilegri en ekki eins fullkom- ið skáldverk. Hún segir frá viðreisn suðursveitanna eftir eldgosið og um afrek og ástir séra Jóns Steingrímssonar og frá lífstríði og sigri Gísla á Geirlandi. Séra Jón er langstærsta mann- eskjan í þessum sögum báðum enda er hans hvervetna að góðu getið. Hann er hetljan í hætt- unni 1— hinn ráðsvinni foringji sóknarbarna sinna og sveitunga, hin 'hreinhjartaða trúarhetja, sem aldrei lætur bugast, þrátt fyrir líkamlega og andlega van- heilsu 0g alskyns stríð og raunir. jSumum hefir fundist skáldið gera honum rangt til, með því að minnast á veikleik hans og bresti, en mikilmenni verða ekki síður aðdáunarverð þó þau séu mann- leg. Gallar manna eigi síður en kostir þeirra móta sérkenniu 0g engin mynd er fullkomin nema hún sýni vankantana líka. Gísli á Geiralandi er frjálslynd- ur, þróttmikill og bjartsýnn bú- maður. Enginn af skáldum vorum getur lýst dáðríki og karl- mensku betur en Trausti o? Gísli á Geirlandi er 'hreinasta fyrirmynd í hvorutveggja. Á þeim árum, sem sögur þess- ar gerðust var hjátrú og forneskja afar-ník í huga alþýðunnar. Tekst j höf. vel að kynna lesendunum aldarhátt og hugsanalíf þeirra: tíma. Andi Ólafs beininga- manns Og skálds var alinn og nærður á þeim “fræðum”. Heim- ilislaus rölti þessi auðnuleys- ingi milli bæja og gerði ýmist að | þylja bænir sér og vinum sínum til verndar gegn draugum og djöflum eða kveða dömmustu særingar óvinum sínum til ó- hamingju, því heimurinn var fullur af englum og árum, < e lán og lífskjör mannanna lág í þeirra höndum. Um aðrar sögur Trausta skal eg vera fáorður. ‘Ltysing’ segir frá verzlunar- stríði, mil'li hins nýstofnaða kaupfélagsskapar og dönsku sel- stöðu verzlunarinnar. Efnið er óskáldlegt, enda er sagan fremur hagfræðis ritgerð en skáldverk. þó eru þar nokkrar góðar mann- lýs’ngár “Borgir” herma frá fríkirkju- hreyfingu í Grundarfirði. Hún hefur að bjóða góðar mannlý3- ingar, af Torfa presti, konsúL- um á Gráfeldseyri og pórdisi og Hildi dætrum þeirra. Sagan er ágætlega skrifuð og hrífandi. Hún hefir líka að geyma heil- mikið af heilbrigðu lífsviti (lif- es philosophy), en skáldskapar- gildi hennar er ekki mikið. “Anna frá Stóruborg” er ljóm- andi lagleg saga. Hún sýnir í áhrifamiklum myndum hinn frjálsborna og sjálfstæða anda húsfreyjunnar á Borg, sem berst sigursælli baráttu fyrir ást sinm við hleypidóma Og löghflgaðar venjur samtíðarinnar. Hún er fyrstS kvenfrelsis 'kona íslands, sem heimtar almenn mannrétt indi sér og kynsystrum sínum til ihanda. “Veizlan á Grund” skýrir frá Grundaríbardaga, þegar Sraiður hirðstjóri og Jón Skráveif 1 lög- maður voru drepnir. Ilúr, sýn- ir vel og fimlega hetjudug og vík- ingsskap Grundar-Helgu, sem var í raun og vern foringi Eyf.>-Jr inga í aðförinni að koriungs- mönnum. pá er “Hækkandi stjsrna”, mjög aðlaðandi saga. Hún hermir frá uppvaxtarárarn Vatils- fjarðar Kristínar, eins hins mesta skörungs, sem isaga vo” getur um. Meira skáldskapargildi hofir smásagan “Söngva-Borga. Má hiklaust telja hana með b -ztu sögum höfundarins. '“Krossinn í Kaldaðarnesi”, gefur góða hugmynd um trúar- og hugsjónalíf þjóðarinnar um siða- bótaskiftin. “Sýður á Keipum”, er sjómanna saga undan Jökli. í henni er áhrifamiki I örlagapungi, sem vefur óheilla vef sinn í kringum sögu persónur^iar. Örlagaþung' sagði eg — reyndar veldur óbil- girni of hefndarþorsti manr.a mestu um forlögin, en hver mur. spinna vorn örlagaþráð fremur en illa agaðir geðsmunir og blindar hvatir. “Bessi gamli” kom síðast af hinum lengri sögum höf. Hún gerist í Reykjavík og er sú af sögum Trausta, sem einna minst skáldskapargildi virðist hafa, enda sýnist hún fremur skrifuð til þess að gefa jafnaðarstefn- unni blátt auga en af skáldlegum guðmóði. iLoks má geta þess, að Jón Trausti hefir skrifað allmargar smásögur, og eru sumar þeirra svo sem “Á fjörunni”, “pegar eg var á freygátunni,” “Spilið þið kindur”, “Synir Odds biskups”, og “Séra Keli” með því bezta sem hann hefir skrifað. Tvö leikrit hefir 'hann skrifað: Ijóðleikinn “Teit” og “Dóttir Far- ós” (í óbundnu máli). í báðum eru allgóð tilþrif, en þau skortir dramafciska eiginlegleika til þess að njóta sín. Af kvæðum Trausta má helzt geta: ‘Konan í Málmey’, “Norðri.’ “Skautamenn” o. s. frv. Annars þarf ekki að fjölyrða um hann sem ljóðskáld, þó sum kvæði hans séu allgóð, hann lifir í minningu þjóðar sinnar að eins sem sögu skáld, en þannig á hann sér líka langan aldur. \ Ritdómur. Nú er að gera sér grein fyrir helztu einkennum Jóns Trausta sem rithöfunds og s'kálds — kost- um hans og göllum. Trausta lætur vel að segja sögur: Ymsir hafa að vísu fund- ið að málfæri hans, þótt það frem- ur alþýðulegt en vjsindalegt. Um þá staðhæfingu vil eg vera fáorð- ur, bæði vegna þess að eg tel mig ekki fullkomlega dómfæran í þessum sökum, og svo vegna þes : að of mikil ihótfyndni virðist mér oft brúkuð við rithöfunda vora útaf meðferð hins lifancii máls, sem auðvitað hlýtur að lúta lífsins lögum — hlýtur að breytast, fella úr og aukast að ný- yrðum eftir þv*í sem breytingar verða á hugsunarhætti og and- Iegum viðfangsefnum þjóðar- innar. Fornyrði og eintrján- ingsleg framsetning á nútíðar hugmyndum, bindur tíðum ís- lenzkum skáldskap ihlekki við fót, svo hann vtrður þunglama’Iegur um of. Mál og efni í sögum Trausta er hvorttveggja runnið undan hjartarótum þjóðarinnar, svo bún- ingurinn á æfinlega við innihald- ið. pað er að miklu leyti hálfkveðnar hugsanir og hug- sjónir fólksins, sem þar eru færð- ar til betra máls. pað mál er máske ekki fágað og lært eftir ýtrustu kröfum hinna hálærðu, en það er síungt og lifandi, ljóst, þróttmikið og með ýmsum blæ brigðum eftir efninu. Stund- um er Trausti angurblíður og lai- andi í orðum, oft er hann mælsk- ur og hrifandi. Hann hefir það til að dæma hart, en þó í raun og veru fullur samúðar. Fáum höfundum tekst betu. að vekja samúð rneð sögupersón- um sínum en honum. Við f: 'ii- um til með Höllu, þegar han gengi^r um gróðurlitlar heiðar í íslenzkri vorþoku í útlegðina inn að Heiðarhvammi. Okkur svellur móður að sijá hana brjh- ast til bygða í mannskaðavArí, börnum sínum til ibjargar. Við skiljum betur einstæðingssKap ólánsmannsins eftir að kynnast Vigfúsi. Við eignumst hl.t- deild i kjörum sorgar-barnanna við að lesa um SöngvanBorgu, sem söng svo aðrir gleymdu sér, þó heift og sorgir hefðu firt hana sjálfa dómgreind og ráði. Að vekja þessa hlutteknir.gu með öðrum er annað höfuðeán- kenni og höfuðkostur Jóns Trausta sem skálds. ímyndunargáfa þessa höfundar var láka sérstök, vel þroskuð. A’- staðar finnúr hann yrkisefni, í moldarkofum uppi á heiðum, i sjóbúðum undir Jökli, á höfðing- jaheimilum og þ'ingum, já, jafn- vel í sölubúðum og kaupmanna- skrifstofum og því ekki það. Hver mannsál á sína hugar- heima, sínar vonir, sína dag- drauma, sínar langanir og sín- ar sorgir og þar sannast hið forn- kveðna, að “margt er það í koti karls, sem kongs er ekki í ranni”. Jón Trausti var alþýðumaður, enda eru langfrumlegustu drætt- irnir í lyndis og sálarlífslýs- ingum hana af alþýðumanninum: Ólafi sauðamanni, Einari í Bæl- inu, Agli í Hvammi, Salómon sjó- manni, Sigmundi Gamla, Hrólfi formanni, Pétri á Kroppi, Gísla á Geirlandi og mörgum fleir- um. pað er nokkurnveginn glöggum einkennum lýst á yfir 70 mann- eskjum í sögum Trausta. Alt þetta fólk er hvert öðru fra- brugðið. Persónurnar eru ekKi steyptar i einskorðuðum mótum eins og átt hefir sér stað hjá sumum thöfundum og þ. á. m. hjá Dickens. Ekkert lætur Trausta bó eins vel að lýsa og íslenzkri karl- mensku, þess vegna verða sögur hans einkum vinsælar hjá alþýð- unni, sem dáir hreysti og karl- mensku mest allra dygða. pað hefir oft verið dáðst að náttúrulýsingum Jóns Trausta. pegar hann dvaldi í Khöfn, fékst ihann eitthvað við að mála. Sú æfing á meðfæddri smekkvísi hefir áreiðanlega skerpt sjón hans og skilning á fegurð og margbreytni náttúrunnar. Helzt til margorðar eru þó náttúrulýs- ingar hans — höfuðdrættirnir ekki gerðir með örfáum penna- dráttum eins og hjá Guðm. / á Sandi. Œfikjörin gera hér mestar. muninn. Jón Trausti dáist að fegurð náttúrunnar, eins og fá- séðu undri. Guðm. á Sandi þékkir hana af daglegri um- gengni. Skáldið úr Reykjavik leitar sér svölunar og styrks við barm hennar. Bóndinn í ping- eyjarsýslunni er alinn upp við brjóst hennar, honum er hún bæði móðir og skólameistari, þess vegna nemur hann ekki staðar HEIMSINS BEZT/. MUNNTÓBAK COPENHAGEN Wn'ÍÍÁGÉN 'SNUFF * Hefir góðan keim Munntóbak sem endist vel Hjá öllum tóbakssölum við hin ytri einkenni, — hann yrkir um sál náttúrunnar: dutl- unga hennar og munarbMðu. pað mun ekkert ofmæli að Jón Trausti sé einn af hinum allra vinsælustu nútíðarhöfundum vorum. En það má segja um hann eins og sagt var um Tennyson lávarð: menn lesa hann jafnan sér meira til gamans en fróðleiks. Mönnum getur græðst hress-1 ing, styrkur samúð með mönnum og náttúrunni, við að lesa sögur j Trausta, en erfiðustu lífsgáturn- [ ar eru þ^r sjaldan lagðar fram, | og en sjaldnar svarað. Að eins | í HöLlu er ofurlítið fengist við að j rekja hina ýmsu þræði sálarlífs- [ ins að rótum fram. Ef menn girnast að skygnast [ um í dularheimum sálarlífsins 1 hefðu þeir meiri not af leiðsogn 1 Kvarans. Trausti var of mikill alvöru- maður til þess að vera verulega ! kíminn (humoristic) í sögum ! sínum (íslenzkar bókmentir eru 1 snauðar af þeirri list enn sem komið er). Bitur hæðinn var hann stundum, en aldrei til lengdar. Til þess var hann alt of bjartsýnn og hluttekningar- samur. pess hefir áður verið getið að Trausta hafi græðst náin kynni af alþýðunni og hversdags- lífi þjóðarinnar þegar hann var sjálfur sjómaður og vinnumaður í sveit. En hefðu lífskjörin verið öðruvísi og hann hefði not- ið meiri fagurfræðismentunar í æsku er mjög líklegt að hann hefði orðið smekkvísari í skáld- skap sínum. Oft gætir ósmekks í meðferð hans á ástum milli ■karla og kvenna. Hörmulegt er það, t. d. hvernig hann spillir því sem hefði átt að vera frum- leg og eðlileg lýsing á ósín- gjörnum kærleika (Platonic ■love) á milli Höllu og porsteins með óskáldlegum útúrdúrum. Fáir menn hafa verið stórvirk- ari en Jón Trausti og sýnir það bæði miklar gáfur og vinnuþol. Hitt kemur þó einnig í Ljós að sögurnar hafa verið skrifaðar fremur í flýtir en af vandvirkni. Ártölum ber ekki æfinlega Samjui og stundum er frá sama atviki sagt á fleiri en einn veg. iHelzti gallinn á sögusmíði höf. er formið. ’Jón Trausti er ættjarðarvin- ur og upibótamaður og stundum hættir honum við að gera útúr- dúra frá efni sögunnar með hug- leiðingum um landsmál. Slíkir útúrdúrar frá aðalefninu eru al- veg óhafandi í skáldskap. —peir slíta samhengið og þrí og tvítaka ■sarna efni. Sagan sjálf á að lýsa öllu sem þarf að lýsa, segja frá, öllu sem þarf að segja frá. Tökum t. d. læknirinn í “porra- dægrum”, hann heldur ræðu — ágæta ræðu — um kotbúskapinn og ástand fátæklinganna fyrir hreppsnefndinni. pess hefði nú ekki átt að þurfa, sagan hefði sjálf átt að sýna þetta hvorutveggja. Trausti dregur ekki efni sög- unnar nógu vel saman til þess að gera þær verulega dramat’skar. Hann gerir ekki heldur æfinleg.i nógu glögga skilgreiningu á aðal- atriðum og aukaatriðum, en á- hrifa mikil er framsögn hans oft, og enginn af skáldum vorum hef- ir gefið okkur fleiri né fjölbreytt- ari myndir af íslenzku þjóðlífi en hann. Trausti er stundum íkinn, eins og t. d. þegar hann talar um veizluna á Brekku, þar sem kaU- ið var soðið í ullarpottum og kleinur og fínindis kökur voru reiddar að veizlustaðnum á klyfjahestum. Samt er hann mörgum fremur laus við skáldlegar öfgar. íiann lítur langoftast með rólegri a: hugun á hlutina. Hann lætur ekki, eins og til dæmis Gunnar Gunnarsson, lítt þekt öfl 0g á- stríöur fr áundirvitund sálarinn ar leggur höft á dómgreindina og viljann, svo manni verður jafnvel að spyrja hvort hér sé fremur farið með mikið vit eða vitleysu. Út af Sléttunni, all-skamt frá fæðingarstað Guðm. Magnúisson- ar stendur klettur úr hafi, sem Eckhart, þýzkur fræðimaður o-g rithöfundur, sem ferðaðist um þær slóðir gaf höf.nafn skáldsins og nefndi Trausta. Nafnið er vel til fallið, því um þúsundir ára hefir þessi Trausti ihrundið frá sér öldunum og gnæft yfir hafrótið. Nafni hans rithöfundurinn het’ir líka staðið af sér margan skell- inn. pegar flestir níddu hann hér á árunum, kvörtuðu menn um að Guðm. semdi skáldverk hvað sem hver segði. Nú mun hann lifa í minningu þjóðarinn- ar, sem einn af vorum mætustu mönnum, hvað sem hver segir. Aths: Erindi þetta er samið í minningu um hálfrar aldar af- mæli Guðm. Magnússonar, en hann var, sem kunnugt er, fædd- ur hinn 12. dag febrúarmánaðar, árið 18T3. E'cts from What Prize Winniníí X ers Prize Winnind Farmers Say ,,^Prvs5aKe^ Wheeler. LL.D.. Rosthern. Sask.: — .hef' n°fað Formaldehvde hlOndu fvrir korn. meo bezta áranerri. Hefi ekki orðiB var við myeiu 1 uppskeru minni árum saman." The Sutherland Canadian Land Co.. Ltd. R. B. *nK£ter’ A«t.. Brooks, Alta:—"Ee hefi aldrei not- ao vio korn mitt annað en Formaldehvde 1 mörk af 40 prct. =terkri blöndu I tunnu af vatni. Pað er ekk- ert betra til a8 verja korn ok kartöflur fvrir mvelu. en Formaldehyde. oe hvi ráðieee ee það.” W.A.A. Rowe. Neepawa. Man:— “Eg tók að nota Formaldehvde strax oe mælt var með bvl til flt- rVminttar mvBlu í hveiti. höfrum ok bVKKÍ. ok hefir það ávait bor- ið áeætan áranKur.” Davis Bros.. Perdue. Saslc.: — “Með því að nota Formaldehyde- blöndu. 1 pd. I 32 Kal. af votni. til þess að veria korn við mvKlu, hefi eK trvKt uppskeru mína fvr- ir þessum illræmdu óvinum." J. H. Richard. Roland. Man.:— “1 sambandi við Formaldehvde Ket ee saKt. að það hafi revnst mér óbriRðult meðal K»"n mvelu I korni. þessi fimm ár. sem ee er búinn að nota það.” Jno. W. Lucas, Calgary, Alta.:- “Við notum Formaldehyde við allar okkar kartöflur, sem hefir borið áeætan áraneur. sé það hétt notað. Ek mæli með bvl.” KILLS SMUT STANDARD CHEMICAL CO., LTD. Montrcal WINNIPEG Toronto 24 Kvíðinn og hugsýkin, sem á- sækir fólk stundum, eru átakan- legustu einkenni taugaveiklun- ar. petta bréf er hughreystingar tkeyti til allra þeirra sem þjást af taugaveiklun. Mrs. Geo. T. Tingley, Albert, N. B., skrifar:— “'árum saman voru taugar mínar í hinni mestu óreiðu, svo eg var í sannleika sagt að verða reglulegur aumingi. Eg hrökk upp við hvað lítinn ys sem var og fanst stundum eins og eg mundi missa vitið. Eg reyndi lækna án árangúrs. “Vinur einn ráðlagði mér Dr. Ohase’s Nerve Food og það með- al var ekki lengi að láta til sín taka. Mér batnaði talsvert þeg- ar af fyrstu öskjunni og eftir að hafa Lokið úr tólf, var eg orð- in heil heilsu 0g laus með öllu við hinar óþægilegu tilfinning- ar, sem taugaveikluninni fylgdu. Eg ar ávalt reiðubúin til þess að mæla með þessu á- gæta meðali.” Dr. Chase’s Nerve Food, 50 c. askjan, hjá öllum lyfsölum eða Edmanson, Bates & Co. Ltd., Toronto.

x

Lögberg

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.