Lögberg - 26.07.1923, Blaðsíða 1

Lögberg - 26.07.1923, Blaðsíða 1
Það er til myndasmiður í borginni W. W. ROBSON Athugiö nýja staöinn. KENNEDY 8LDG. 317 Portage Ave. Mót Eaton SPEIRS-PARNELL BAKING CO. ábyrgjast yður fulla vigt, beztu vörur fyr- ir lœgsta verð sem verið getur. R E Y N 1Ð Þ AÐI TALSIMI: N6617 - WINNIPEG 35. ARGANGUR WINNIPEG, MAN., FIMTUDAGINN 26. JÚLÍ 1923 NÚMER 29 FJOLMENNID Helztu Viðburðir Síðustu Viku. Canada. [ í Lake Annis, skamt frá Yarmo- uth, Nova Scotia, en þar hafði prófessorinn verið að eyða sumar- John Queen hefir verið kjörinn leiðtogi verkamanna flokksins frnnu- í Manitoba þinginu, í stað F. J. j .... . » skömmu lét af1 Fimm þusundir 'manna, starfa j nú að því að reyna að s'lökkva j skógarelda iþá hina ægilegu, er Viðskiftaráðið í Saskatchewan, geysa yfir Quebec fylki- hefir skorað á stjórnarfojmann- Dixons, er fyrir -þeirri stöðu- inn í Canada, Rt. Hon. W. L. Mac- kenzie King, að kveðja til auka- þings nú þegar og knýja fram fjárveitingu þá til þjóðeigna- kerfisins, Canadian Nationál Railways, er neðri málstofan hafði samþykt, en öldungadeildin felt- Sár óánægja ríkir í Vesturland- inu, isem vonlegt er, yfir skanrm- sýni hinna stjórnkjörnu þing- manna, að því er mál þetta áhrær- ir. Skógareldar skæðir mjög, geysa um Maurice héraðið í Quebec og hafa orsakað feykilegt tjón. Um tvö þúsund og fimm hundruð manns starfa að slökkvitilraunum j á svæði þessu. Samkvæ'mt skýrslu frá forstjór- um C.anadian Pacific járnbraut- ar félagsins og þjóðeigna braut- anna — Canadian National Rail- way, þarfnast bændur Vestur- 'landsins sextíu þúsund vinnu- menn meðan á kornslætti og þreskingu stendur á sumri því sem nú er að líða. Járnbrautar- félögin telja það afar miklum erfiðleikum bundið, að útvega slíkan mannfjölda og télja næsta vafasamt, hvort 'þess verði nokkur kostur- Sa'mkvæmt yfirlýsingu frá Hon. .John Bracken, forsætisráðherra Manitoba fylkis, þarfnast stjórn- in tveggja miljón dala til þess að kaupa fyrir áfengi, áður en stjórnarbúðirnar verða opnaðar. Siðastliðinn laugardag, 'lagði Drurystjórnin í Ontario niður völd, en hið nýja Ferguson’s ráðuneyti var svarið inn. > \ 'Efcki mun afráðið enn, hýort Hon. E. C. Drury, fyrrum stjórn- ar formaður í Ontario, muni halda áfram leiðsögn bænda- flokksins í fylkisþinginu. Hann getur það því að eins, að einhver rými fyrir honum sæti, því eins og kunnugt er þá náði hann ekki fcosningu í kjördæmi sínu. Hon George P. Graham og Sir Lomer 'Gouin, leggja af stað til Englands, þann 25. ágúst næst- ko'mandi, til þess að mæta fyrir hönd Canada á þingi þjóðbanda- jagsins — League of Nations. Miklar l'íkur eru til að verkfall- ínu í Nova Scotia, muni lokið innan skamms- Meiri hluti verkfallsmanna að Cape Breton, hefir fallist á að taka upp vinnu sína nú þegar og má gera ráð fyrir að hið sama verði ofan á í Sidney. Greinilegar fregnir af samkomulags atriðum, eru enn eigi við hendina. Mælt er að annarhvor þeirra W. E. Sinclair, K C. þingmaður fyrir South Ontario, eða Harold Fisher, þingmaður í Vestur Ottawa kjör- deildinni, muni takast á hendur forystu frjálslynda flokksins í Ontario fylkisþinginu. Leiðtogi hans, Mr. Wellington Hay, beið ósigur í síðustu kosningum. Sir George Foster, hefir ákveðið að ferðast um Vesturlandið, síð- ari hluta sumars og flytja fyrir- lestra um þjóðbandalagið- — Lea- gue of Nations. Er hann einn ákveðnasti talsmaður þeirrar stofnunar. Sir Foster talar í Winnipeg annaðhvort þann 21. eða 22. ágúst næstkomandi. Douglas Killam, prófessor í stærðfræði við iháskólann í Al- berta, druknaði þann 22 þ. m. Stuðningsmenn Mackenzie King stjórnarinnar, hafa nýlega haldið fjölsótta fundi, bæði í Edmonton og Calgary í þeim tilgangi að efla samtök frjálslyndra manna í fylkinu eins og framast megi verða. Á Edmonton fundinum flutti Hon. Charles Stewart inn- anríkisráðgjafi, langa og snjalla ræðu. — Sandford Evans, íháldsflokks þingmaður í Manitoba þinginu, fyrir Winnipegborg, hefir verið á ferð og flugi fræm og aftur um fylkið að undanförnu, til 'þess að breiða út fagnaðar erindi flokks síns. Spáir hann því að íhalds- menn gangi sigrandi af hólmi við næstu fylkiskosningar. Sir Henry Thornton, forseti þjóðeignakerfisins — Canadian National Railways, er staddur í óorginni um þessar mundir- Er hann að ráðgast hér við ýmsa af hinum leiðandi iðnaðar of víð- skifta frömuðum um það, hvort ekki mundi tiltækilegt, að selja skuídabréf ;í þeim tilgangi að afla nægilegs fjár til þess áð ljúka við hinar mörgu járnbrautar álmur, er neðri málstofa sambandsþings- ins veitti fé til, en öldungadeildin feldi. — Um flutningstæki á vötnunum miklu, fórust Sir Henry þannig orð: í því falli að eigendur skipa þeirra, er korn flytja milli hafnstaðanna við vötnin miklu, gerðu nokkurskonar “verkfall” það er að segja neituðu að fara eftir fyrii'mælum síðasta þings í sambandi við flutningsgjöldin, þá væri sjálfsagt að grípa til verzlun- arflota stjórnarinnar og nota hann til slíkra flutninga. Fregnir frá Regina, Sask., hinn 23. þ- m., segja fulltrúa bænda frá sléttufylkjunum þrem, hafa komið sér saman um stofnun hveitisölunefndar, án þess þó að um skýldusölu geti verið að ræða. Óvíst enn hvort væntanleg nefnd getur tekið það snemma til stafa, að henni verði kleift, að annast um iþessa árs upp'skéru. Yfirheyrslunni í máli Adelard Ddlorme prests í Montreal, er sakaður var um að hafa myrt Ra- oul hálfbróðir sinn til fjár, þann 6. jan. s. 1-, lauk þannig í bráð- ina, að kviðdó’miurinn varð ósam- mála. Ný yfirheyrsla hefir ver- ið fyrirskipuð á öndverðu kom- anda hausti. Rannsóknardóm- arinn synjaði þeirri kröfu verj- anda, að láta prest lausan gegn veði og kvað slíkt ná engri átt- Svo sagðist dómara frá, að 'mlál þetta væri búið að kosta fylkið 160,000. Bandaríkin. ISLENDIN G AD AGINN ÍGÚST. • Senators kosningunni, sem fram fór í Minnesota rfkinu, síðastlið- inn mánudag, lauk þannig, að frambjóðaridi bænda og verka- manna, Magnus Johnson, svensk- ur að ætt, gekk sigrandi af hólmi, með feykilega miklu'm at- kvæðafjölda umfram megin keppi naut sinn, J. A- 0. Preus ríkis- stjóra. pegar þessi fregn er skrifuð er enn ófrétt úr nokkru'm kjörstöðum, en fullyrt er að meiri hluti Johnson’s muni nema um 75 þúsund atkvæðum. John- son hét því í kosningarimmunni að veita Lafolette og skoðana- bræðrum hans fylgi í senatinu. Preus ríkisstjóri var merkisberi Hardingstjórnarinnar í fcosningu þessari- Harding forseti hefir lýst yfir því, að eigendur og fra'mkvæmd- arstjórar flestra stáliðnaðar fé- laganna í Bandaríkjunum, sé staðráðnir í að afnema tólf stunda vinnutíma á dag, jafnskjótt og trygging fáist fyrir nægum vinnukröftum. George M. Bourquin, dómari að Helena í Montana ríkinu, hefir með dómsúrskurði lýst yfrr því, að þingið i Washington hafi ekki nokkurt minsta vald til þess að takmarka forskriftir lækna í sam- bandi við áfengi. Allar samkamulags tilraunir milli hinna tveggja bænda og verkamanna flokka í Bandaríkj- unum, hafa farið út um þúfur og hefir hvor flokkurinn um sig ákveðið að útnefna þingmannsefni við næsta árs kosningar. Thomas Walter Higginbotham, hefir verið dæmdur í tuttugu ára fangélsi fyrir morð Martin Fa- berts frá North Dakota- Tekjur póstmáladeildar Banda- ríkjastjórnarinnar, fyrir hið ný- liðna fjárhagsár, urðu 12,16 af hundraði ‘meiri en í fyrra. Alls námu tekjurnar $533,000,000. Nefnd sú er verið hefir að und- anförnu að rannsaka ásigkomulag kolaframleiðslunnar í Bandaríkj- unum, leggur það til í skýrslu sinni til Hardings forseta, að stjórnin taki að sér starfrækslu kolanáma, ef til þess kæmi sökum verkfalla, að þjóðin horfði fram á kola skort. William R. Day, fyrrum aðstoð- ardómari í hæstarétti Banda- ríkjanna, er nýlátinn að heimili sínu á Mackinac Island f Michi- gan ríkinu. Hann var 75 ára að aldri- ýti All-alvarlegra landskjálfta- kippa varð vart hér og þar í Suð- ur Californiu ríkinu þann 22. þ. m. Litlar sem engar skemdir er þó getið um í Los Angelos, en sú borg hefir þó sjaldan farið varbluta af slysum, þegar um landskjálfta hefir verið að ræða. Fregnir frá San Francisco hinn 20. þ- m., láta þess getið að gufu- skipið Malahat, hafi skotið á land $2,006',000 virði af whisky, nálægt Montara. 'George E. Duis, í Grand Forks, hefir verið kjörinn forseti félags hveitiræktunarmanna í North Dakota. Bretland. Á síðari árum hefir oft verið sagt, að það yrði að heyja stríð til þess að binda enda á stríð og hefir það sjálfsagt verið meining margra þá. En reyndin hefir verið alt önnur enn sem komið er, og þv ímiður hætt við að svo verði að minsta ko®ti fyrst um sinn- því þjóðirnar eru nú að hervæð- ast hver í kapp við aðra, þó það sé á dálítið annan hátt en áður. Áður bygðu þær herskip tugum isaman, nú byggja þær loftför. 26. júní sl. flutti forsætisráð- herra Breta, Baldwin, ræðu í þing- inu á Englandi, þar sem hann gjörði lýðum ljóst hvað stjórn hans ætlaði að gjöra í þá átt. Hann sagði að áformað væri, að byggja þrjátíu og fjóra loftflota einingar, og sagði hann að stjórn- in ætlaði sér að verja $2,500,000 til þess að byrja bygging þeirra og að um það leyti að lokið væri við að byggja þær allar 'mundi kostnaðurinn við þær nema $27, 500,OCO, en hann tök það fram, að til þess mundi þurfa nokkur ár. Fáorðir voru þingmenn um þessa yfirlýsing stjórnarinnar, en blöðin isum á Englandi tóku hana óstint upp og víttu stjórnina mjög fyrir að vera að kasta fé út til vígbúnaðar. Forsætisráðherran lét þess getið í ræðu sinni, að stjórnin hefði afráðið þetta til þess að halda dálítið í við Frakka með loftskipasmíði. Bretar hafa nú fimtíu og tvær 'einingar af loftförum til hern- aðar, í alt 624 loftdreka, þegar viðbótin er öll komin ,þá yerður tala þeirra 1,032- Frakkar hafa nú 1,260 slík loft- för og hafa ákveðið að vera búnir að koma þeirra tölu upp í 1,530 árið 1926. óánægja allmikil, sérstaklega á meðal verkafólk^ á sér stað á i Englandi út af því, að það þykist j svikið á bjórkaupum sínum, svo megn er óánægjan að hún hefir | komist inn á þing Breta, og þar komið fram sár kvörtun yfir því að bjórinn hefði ekki ilengur hið forna hressandi bragð, heldur væri nýtízfcu gutl, sem ekkert væri í varið og ólifandi við. Ný teguiíd vif^rifta heiir náð sér niðri í Lundúnum, og ef til vill í fleiri stórborgum á Eng- landi, og það eru hinir svo nefndu neðanjarðar klúbbar. Eru það skemtistaðir, sem eru aðgjörða- lausir á daginn, en önnu'm kafn- ir á nóttum. Er þá dansað og drukkið eftir vild. Eigendur klúbba þessara eru allir útlend- ingar, ítalskir og rússneskir, Anarkistar, sem hafa útsendara sína í öllum áttum til þess, að, ná efnuðu ferðafólki á þessar nætur skemtanir, bæði konum og körlum, þar sem leifcnir vasaþjóf- ar stela af því peningum og öðru fémætu er það hefir meðferðis,; og þarf því ferðafólk að vera mjög vart um sig, þegar það er á ferð á þeim slóðum- \\ Árið 1910 lést enskur maður að nafni Dr. Ludwig Mlond, sem áfcti eitt af verð'mestu listasöfn- um sem til voru í höndum ein- staklinga. í erfðasfcrá sinni tók hann fram, að eftir dauða konu sinnar skyldi listasafninu breska afhentar fimtíu og sex myndir úr safninu, og ef forstöðumenn safnsins vildu, gætu þeir fengið % af öllum ‘myndunum. Nú er ekkja Mr. Mond látin, og verður því ákvæði erfðasfcrárinn- ar fullnægt. Á meðal listaverka þeirra, sem hér er um að ræða, er krossfest- ingin eftir Raphael, sem hann málaði 16 ára gamaill, og er $250, 000,00 virði. “Madame and child” eftir Titian. Mynd af Pietro Aretino eftir sa'ma. “Ma- dame and child” eftir Gentile Bellini og Pieta eftir sama. Auk ■þessa ýms fleiri nefnkunn lista- verk eru í safni þesíia. Minnismerki hefir nýlega ver- ið afhjúpað 'í Westminister Abbey, af Walter Hines Page, fyrrum sendiherra Bandarífcjastjórnar í Lundúnum. Mussolini stjórnin á ítalíu, féfck nýlega traustyfirlýsingu í þinginu í sambandi við frumvarp hennar um rýmfcun kosningarétt- arins. Samkvæmt frumvarpi þessu, eiga ítalskar konur að -öðl- ast kosningarétt og kjörgengi- Lausanne stefnunni er enn eigi slitið, og er mælt, að snurða hafi enn einu sinni hlaupið á sa'm- fcomulags þráðinn milli Tyrkja og bandaþjóðanna. Varnarsambandið mill Rúmen- iumanna og Jugo-Slava, hefir ver- ið endurnýjað til þriggja ára. Ástandið í Ruhr héruðunum, er að vera æ ískyggilegra með hverj- um deginum er líður. Rán og gripdeildir fara þar jafnt og Iþétt í vöxt og þúsundum pjóðverja liggur við hungumorði. Fimfcán manns létu líf sitt i Breslau, þann 22. þ- m. í uppþoti, sem sagt er að stafað hafi frá vistasfcorti. Þýzka stjórnin tilkynnir að hún hafi gert samning við Soviet stjórnina á Rússlandi um að fá þaðan 400,000 smálestir af hveiti í vöruskiftum. Fregnir frá Peking, segja Dr. I V. K- Wellington Koo, hafa tekist | á hendur utanríkis ráðgjafa em- bættið. Hvaðanœfa. Þýzkaland hefir gert samninga við Bandaríkin, um að fá þaðan að minsta kosti 750,000 smálestir af kolum á ári því, sem nú er að líða. Öll verkamannafélög í París, þau er byggingavinnu stunda, hófu verkfal'l hinn, 20- þ. m. og fcrefjast kauphækkunar, er nemur um 20 af hundraði. Uppreistarforinginn nafntogaði í Mexico, Francisco Villa, var skotinn fyrir skömmu til bana, að heimili sínu Canutillo í Chihua- hua fylkinu. Efcki hvað lög- reglunni hafa hepnast enn sem komið er, að hafa hendur í hári 'morðingjans. -Hollenzka stjórnin hefir knúð fra'm fjárveitingu þá er hún fór fram á í þinginu til eflingar flot- anum. Telja Norðurálfu fregn- I ir vist, að aukning þessi við flot-! ann sé gerð í þeim höfuðtilgangi, að tryggja hinar Austur ind-; versku lendur Hollendinga. Dr. J. G- Rutherford, einn af meðlimum járnbrautarráðsinjs í Canada, lézt að heimili sínu í Ott- ; awa, að morgni hins 24. þ. m Hann var fæddur að Mountain Cross, Peeblesshire á Skotlandi, 25. desie'mber árið 1857- Síðastliðinn þriðjudagsmorgun, rændu sex bófar í félagi banfca og aðrar fésýslu skrifstofur í Toronto og námu á bro-tt, að því kunnugt er, $125,000- Skutu þeir á tvo bankaþjóna og komust þann- ig yfir allmifcið fé- Særðust bankaþjónar þessir nokkuð, en er þó hugað líf. Ekki ihefir spurst til bófanna. Hon. Mary Ellen Smith, fyrrum ráðgjafi í British Columbia stjórninni, er ný lögð af stað til Bretlands, til iþess að starfa að út flutningi fólks þaðan til Canada- Sir Richard Squirés, stjórnar- formaður á ’Newfoundland, heflr sagt af sér e'mbætti og mælt með því, að Hon W. R. Warren, K.C-, verði falin myndun nýs ráðuneyt- is. Friðarsamningar Lausanne stefnunnar, eru nú undirskrifaðir af eftirgreindum þjóðum, Bret- um, Frökkum, ítölum, Japönum, Grikkjum, Rumeníumönnum og Tyrfcjum. Er stefnu þessari þar 'með slitið- Frumvarp það er Lady Asthor bar fram í enska þinginu, um að banna að selja unglingum jnnan 18 ára aldurs áfengi, hefir nú hlotið samþykk beggja þngdeilda. Islendingar í Vatnabygð par sem nú er sfcamt til Islend- igadagsins, sem haldinn verður hátíðlegur 2. ágúst n. k. í Wyny- ard, væri ekki úr vegi að minn- ast ýmsra ástæða fyrir því að íslendingar ættu að fjölmenna | þangað í ár. Ymsar ráðstaf- anir hafa nú verið gerðar til að bæta úr al'mennum aðfinslum við ihátíðahaldið undanfarið-. T. d. þetta: Sýningarsvæði bæjarins, hvergi þak yfir höfði eða skjól fyr- ir vindi og hitinn ætlaði að drepa mann. Ekki full not af ræð- um og söng fyrir hávaða í bif- reiðum. Fjölbreytni lítil á skemtiskránni yfir höfuð, mikið af skemtunum farið út í veður og vind. — Nú hefir nefndin verið svo heppin að finna nógu stórt þak til að skýla öllum, sem koma. Hún hefir lánað nýja skautaskál- ann í Wynyard, par er húsrúm fyrir nofckur þúsund manns. Mið- byggingin verður fylt 'með sætum- Ræðupallur og söngpallur bygð- ur, og hann í stærra lagi því fjöldi fólks syngur í blönduðum kór undir stjórn B. Guðmundssonar. Auk þess syngur karlakór frá Leslie og ef til vill fleiri tegund- ir af söng. Tvö minni verða flutt. Minni íslands, séra Ragnar Kvaran, Minni Canada, Dr. K- Austmann. Nýmæli í skemtun sýningar úr 'islenzku þjóðlífi. Framsögn, bóndi, hús- freyja, bóndadóttir, vinnukona, vinnumaður og smali. Gamli sjó- maðurinn kann frá mörgu að segja, — og Fjallkonan talar til fólksins, og fleira til skemtunar og fróðleiks. Nú getur enginn íslendingur setið heima. — Nú geta menn notð alls sem fram fer í næði- Enginn hávaði af bif- reiðum. fþróttirnar fleiri en hægt er hér upp að telja. Stangarhlaup 4 í flökk. Stangarstökk og fleira stökk. Allskonar hlaup löng og stutt- Kaðaltog milli bæj- anna. — Verðlaun gefin fyrir allar . íþróttir að ógíleymdum dansinum. Hátíðin hefst stundvíslega kl. 12,15 e. h- — Inngangur í skauta- skálann 50 cent. — Engin útgjöld fyrir bifreiðar. Allskonar veit- ingar seldar á staðnum. Árni Sigurðsson (Ritari ísl—dagsins í Wynyard). Leiðrétting Fyrir nokkru síðan gátum vér um lát Ásgeirs J. Hallgrímssonar, sem lézt í Los Angeles, Cal., 18. júní s.l.. í þá grein slæddist inn j slæm prentvilla; þar stendur Lin- 1 dal í staöinn fyrir Hallgrimsson. Asgeir heit. var fæddur í Rosseau, Muskoka County, Ont., 20. febrú- ar 1877, sonur Þorsteins Hall- grímssonar og fyrri konu hans Ing- unnar * Jónatansdóttu|r.t Fluttist hann vestur til North Dakota með foreldrum sínum 1881 og ólst þarj upp unz hann fór norður til Can-' ada 1898 og vann við verzlun hjá Árna Friðrikssyni í Winnipeg um tíma. Siðar fór hann vestur á Kyrrahafsströnd og stundaði þar málaraiðn og fasteignasölu. Urn 1910 fluttist hann til Edmonton í Alberta, hvar hann veitti hreyfi- myndahúsi forstöðu, og gekk hann að eiga Kristínu Árnadóttur Sveins- sonar bcínda í Argyle og konu hans. 1921 komu þau hjón til Winnipeg og dvöldu hér eitt ár. en fluttu vestur til Los Angeles 1922 þar sem hann lézt 18. júni, eins og sagt hefir verið. — Ásgeir heitinn lætur eftir sig auk ekkjunnar tvö ungbörn, pilt og stúlku. Tarðar- för Ásgeirs heit. fór fram 22. júni. Hann var jarðsunginn af ensk-lút- erskum presti i Ingleside grafreit, að viðstöddum nokkrum íslend- ingutn. — Af alsystkinum Ásgeirs heit, eru á lít'i Lindal T. Hall- grímsson í Winnipeg og Þorsteinn I. Hallgrímsson bóndi i Argyle. En látinn er Tryggvi Hallgríms- son, lézt í Seattle 1913. Hálfsyst- kini þeirra eru þrjú og eru hjá föður sínum, Þorsteini bónda Hallgrímssyni í Argyle. Islendingadagurinn 2- ágúst, 1923. Óðum líður nú að íslendinga- deginum og hefir nefndin gert sitt ítrasta til að hafa hátíðahaldið sem fullkomnast. Ymsum erfið- leikum hefir það verið bundið, en þó má segja að allvel hafi tefcist, og vonast nefndin til að íslend- ingar launi fyrirhöfnina með því að fjöhnenna í River Parfc á ís- lendingadaginn. Um ræðumenn og skáld dagsins hefir áður verið talað og þarf þar engu við að bæta, en hér fer á eftir skrá yfir íþróttirnar og verilaun fyrir þær: I. partur byrjar kl. 10,30 árdegis. fþróttir að eins fyrir íslendinga- 1. —'Stúlkur innan 6 ára, 40 yards Verðlaun: 50, 35, 25. 2. —Drengir innan 6 ára 50 yards Verðlaun: 50, 35, 25. 3.—'Stúlkur G—8 ára, 50 yards Verðlaun: 50, 35, 25. 4.—Drengir 61—8 ára, 50 yards Verðlaun: 50, 35, 25. 5-—Stúlkur 8—10 ára, 75 yards, Verðlaun: 50, 35, 25. 6. —Drengir 8—10 ára, 75 yards, Verðlaun: 50, 35, 25. 7. —Stúlkur 10Í—12 ára 100 yards Verðlaun: 75, 50, 35. 8. —Drengir 10—12 ára 100 yards Verðlaun: 75, 50, 35. 9. —Stúlkur 12)—14 ára 100 yards Verðlaun: 1.00, 76, 50. 10—Drengir 12-14 ára 100 yards Verðlaun: 1.00, 75, 50. 11.—Stúlkur 14-16 ára 100 yards Verðlaun: 1.50, 1.25, 100. 12—Ðrengir 14—16 ára 100 yards Verðlaun: 1.50, 1.00, 75. 13— —Ógiftar stúlk. 16 ára 75 yard Verðlaun: 2.C0, 1.50, 1.00. 14— Ógiftir menn, 100 yards Verðlaun: 2.CO, 1.50, 1.00. 15— Giftar konur, 75 yards Verðlaun: 3.00, 2.00, 1.00. 16— Giftir menn, 100 yards Verðlaun: 3.00, 2.00, 1.00. (Hlaupaskór ekki leyfðir). Klukfcan 12.30 byrjar einnig verðlaunasamkepnin um silfur- bifcarinn, beltið og skjöldinn. Silfurbikarinn gefinn þeim til eins árs er flesta vinninga fær. Beltið þeim er flesta vinninga fær í íislenzkri glímu. Sfcjöldurinn þeim 'íþróttaflokki til eins árs. er flesta vinninga hefir. Ekki skulu fálla úr leikir í neínum lið íþróttaskrárinnar, þó ekfci vilja tafca þátt í leiknum ne*ma einn leikandi frá hverju félagi. Fleiri geta þeir verið ef vill. 17— Konur 50 ára og eldri 50 yard 18— 'Karlar, 50 ára og eldri 75 y. Verðlaun: 3.00, 2.00. II. partur byrjar kl. 12.30 síðd. Samkepni fyrir alla um bikarinn. 19.—'100 yards Dash. 21.—Running Broad Jump 22—'Running Hop iStep. 23.—220 yards Race. 24—'Standing Broad Jump. 25.—Shot Put. 26—440 yards Race 27.'—Running High. Verðlaun fyrir 19-17, :5.00, 3.00, 2. 28.—Glíma um Hannessons beltið Verðlaun: 8.00, 6.C0, 4.00. 30—Barnasýning í tveimur þáttum 1.—Innan 6 mánaða. Verðlaun: 6.00, 4.00, 2—Innan eins árs. Verðlaun: 6.00, 4.00, TIL GAMALS VINAR. Motto: Tryqíhr eg ungur vifi Barleycorn batt. Eg heilsa þér aftur í hlæjandi tón og höndina rétti þér, Meistari Tón. T dagrenning fer eg nieð fuglnm á sveim. Er fvrstur að bjóða þig velkominn heim. Eg veit, að þú hefir ei gqðvini gleymt, og gamla Jón Barleycorn hefir ntig dreymt. Nú hcld eg í norður að hafa “sonxe fun” með heiðruðum kjósendum, vinur ntinn “John”. Vinsamlegast, K. N.

x

Lögberg

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.