Lögberg


Lögberg - 26.07.1923, Qupperneq 5

Lögberg - 26.07.1923, Qupperneq 5
LÖGBERG, FIMTUDAGINN 26. JÚLt 1923. Búnaðarhorfur I- Tímarnir breytast. Gamall málsháttur segir, að tímarnir 'breytist og mennirnir með. Það er í sjálfu sér eðlilegt. En stundum eru breytingar tím- ans svo hraðfara, að menn átta sig tæpast á þeim og fylgjast <»kki með. Tíminn breytsit fljótar en mennirnir, ef svo mætti að orði kveða, og þá fer stundum ver en skyldi. Síðustu árin hefir “rás við- burðanna”, verið óvanalega ör og áhrifamikil. 'Aðal aflið eða að- alöflin, sem því hafa valdð, eru hei'msófriðurinn og afleiðingar hans. pessi öra og um leið breytilega "rás viðburðanna” hefir svo að segja haft áhrif á alt milli himins og jarðar- Eink- um hafa þessir viðburðir haft róttæk áhrif á alla verzlun og öll viðskifti í heiminum, hverju nafni sem nefnast. Ófriðarárin og næstu árin þar á eftir, hljóp ofvöxtur í alla verzl- un. Vörur allar komust í geysi- verð. Hefir slík verðhækkun naumast átt sér stað síðan 1807 —1814. petta voru mikil við- brigði fyrir menn og ekki síst bændur, sem yfirleitt voru þá ó- vanir öllu'm gönguhlaupum. Mörgum þótti að vísu vænt um verðhækkunina á innlendu af- urðunum, en alt jafnaði sig, er öllu var á botninn hvolft- Árið 1914 var sæmilegt verzl- unar ár ,eftir því sem þá gerð- ist, en þó lakara en árið á undan. Um vorið 1914 var verð á kúm 150—200 kr. og hestum 100—150 kr. CEr voru seldar á 15—25 kr., eftir þvi hvar var á landinu. Verð á kjöti um haustið í smá- sölu mun hafa verið nálægt kr- 1,30—1,60' kg. Kaupamönnu'm voru þá goldnar 18—24 krónur um vik- una og kaupakonum 10—12 kr. En svo kemur ófriðurinn mikli til sögunnar, og þá fer alt að hækka í verði. Verð á innlend- um búsafurðum varð hæst árið 1919. Þá voru kýr seldar og keyptar á 700—1000 fcr., algengir brúkunarhestar á 500)—600 kr-, kynbótahestar 1500—2000 kr. og reiðhestar, 2000—3000 kr. Verð á ám að vorinu, var 60—80 kr. og dæmi til að þær voru seldar fyr- ir 90)—100 kr. Kjötverðið í Reykjavík var þá um haustið kr. 2,50—3,10 eftir gæðum- og þá var kjöttunnan seld í útlandinu — fyrst um haustið á 345—365 kr. Verð á jörðu'm fyrir stríðið víir orðið 150—200 kr. Jarðarhundr- aðið. En þetta ár — vitlausa árið 1919, — voru jarðir seldar á 1000 —1500 kr. hundr- á landvísu, og oft hærra, jafnvel 2500—3000 kr. hundr. Öll vinna var og eftir þessu í háu verði. Kaup kaupajjianna um sláttinn, var þá 60—80 fcr- um vik- una og dæmi til, að þeim voru goldnar 100—120 kr. um vikuna- Koifur fengu 30—40 krónur og hæst 50. Árskaup vinnumanna komst þá upp í 800—1000 krónur og hæst um 1200/—1500. Árið 1920 fer verðið á innlend- um búsafurðum að smálækka nerna smjörinu- Það mun hafa náð hámarksverðinu þetta ár, sem sé 6—7 kr. kgr. Verð á jörðum lækkaði heldur ekki. Og öll vinnu- laun voru jafn há og árið áður eða jafnvel hærri. petta ár voru flestar útlendar vörur í háu verði- Verðið á þeim hafði verið hækkað fram að þessu, og varð einna hæst á þessu herrans ári 1920. Þá höfðu t. d. allsfconar kornvörur hækkað frá því í okt. 1914, um 370%, sykur um 585%, kol og olia um 655 % o- s. frv. iEf verðið á ýmsum nauðsynja- vörum, seldum í ^másölu í Reykja- vík, er sett í júlí 1914, 1G0 kr. þá hefir hækkunin numið, samkvæmt Hagtíðindum, í okt. 1919, 371 kr. og ári síðar — í okt. 1920 — 454 fcr- Breytingin eða verðlækkunin á búsafurðum bænda byrja í raun og veru 1920, og hefir haldið á- fram síðan fram að þessu. En útlendur varningur hefir ekki læfckað hlutfallslega, og því helst dýrtíðin. petta, samfara misæri og ýms- u'm mistökum í búskapnum og viðskiftalífinu, veldur nú kreppu og erfiðleikum hjá bændum. Þeir vöruðu sig heldur ekki almenni- lega á þessum snöggu breyting- um í verzlun og vöruverði. Og þeir eru jafnvel til, sem geta ekki trúað því, eða vilja ekki trúa því, að “gullöldin” <— mesta vitleysan — sé um garð gengin- II. ÁstæðUr bænda. Það var töluvert um það rætt í blöðunum manna á milli í fcaup- stöðunu'm hér, að bændur græddu fé stríðsárin. — Margur hyggur auð í annars garði. Það er satt, að bændum leið yfirleitt vel árin 1916—1919, og sumir — betri bændurnir að minsta fcosti—græddu á búskapn- um, einkum árin 1918»—1919- En flestir gerðu þó litið betur en halda við, eða vel það. í þessu sambandi má geta þess, að fram- kvæmdir í jarðabótum voru þessi ár — og öll stríðsárin — mun minni alment en áður hafði verið, nema hjá stöku manni. —- Þeir, sem bygðu þessi árin hleyptu sér margir í sfculdir, er þeir búa enn að. Frostaveturinn 1917—1918 og afleiðingar hans, sköðuðu bændur nokkuð, en þó minna en áhorfðist. pað er svo alvanalegt hér, að búendur í hinum ýmsu sveitum landsins bíði meiri og minni hnekk af vanhöldum á sauðfé, sem talið er að stafi af lélegu fóðri, eða þá einni og annari fjár- sýki. Þetta á sér nálega stað annað og þriðja hvert ár- Og stundum eru vanhöldin þannig vaxin, að það er ekki haft hátt um þau. Mestan hnekk gerði grjisleysið bænduntrm sumarið 1918. pó rættist furðu vel fram úr því, sem meðal annars var því að þakka, að næsti vetur, 1918»—19, reynd- ist meðalvetur og ekki meira. Árið 1919 voru flestar búsaf- urðir í háu verði, eins og áður var getið. Margir bændur munu og hafa grætt eitthvað þetta ár, einkum fjárbændurnir. — En svo snýst alt við og efnahagnum hnignar ótrúlega fljótt- Og ó- hætt mun að fullyrða, að það sem bændur kunna að hafa grætt ár- in á undan, hefir gengið af þeim aftur næstu ár, 1920—1922, og meira til. — En eins og öllirm er kunnugt, þá var þetta efcki neitt eiris dæmi um þá. Sömu söguna hafa og aðr- ir atvinnuvegir landsins að segja, einkum sjávarútvegurinn — þar með talinn síldarútvegurinn og það miklu stórkostlegri. Það, sem meðal annars olli þess- ari hnignun og efnahags-aftur- för hjá bændum, var: 1. Harði snjóaveturinn 1920' og þar af leiðandi stórfeld fóður- bætiskaup. 2- Verðfall á nálega öllum bús- afurðum, einku'm kjöti, er byrjaði seint á árinu 1919, og hélt svo áfram og helst enn. 3. Dýrtíð áframhaldandi á öll- um aðkeyptum nauðsynjavör- um, er n'áði sínu hámarki 1920. 4. Vinnulaun öll hækfcandi og miklu hærri en bændur stóðu sig við að gjalda 5. Auknir skattar og aðrar álög- ur til ríkissjóðs, sýslusjóða og sveitafélaga. Alt þetta og fleira þrengdi svo að kosti bænda, að þeir fengu ekki rönd við reist. Sfculdirnar hjá mörgum hafa verið að auk- ast fram að þessu, eða búin færst sa'man. Aðeins fáir staðið í stað árið sem leið, efnalega. Ástæðurnar eru þá í stuttu máli þessar, að undanfarin 3 ár — 1920 til 1922 — hafa skuldir bænda alment aukist mjög, og eru vaxnar sumum yfir höfuð- Og þó segja megi með nokkrum sanni, að þeir eigi sjálfir sinn þátt í því, hvernig komið er, þá er það samt sem áður “rás viðburðanna” er mestu veldur um ástAndið. Með þqssu sem hér var sagt, er þó ekki verið sérstaklega að sneiða bændur fyrir óvarfærni eða gapaskap. Hitt er kunnugra en frá þurfi að segja, að mörg- um hefir alla tíð hætt til þess, að setja ógætilega á að haustinu. Og á því brendu margir bændur sig veturinn 1920. Að öðru leyti er óþarfi og þýð- ingarlaust úr þessu að vera að minnast á “annara manna synd- ir” frá þessum árum, enda lifir enginn á þei'm til frambúðar. En illur ásetningur er jafnan vítaverður- En hvað sem. annars er um •þetta að segja, þá er það víst, að strí&sgróði bænda, svo sem ann- ara, er horfinn, út i veður og vind hvort sem hann hefir nú verið mikill eða lítill. Gamla sagan endurtekur sig. Mögru fcýrnar hans Faraós hafa þegar etið upp þær feitu. S. S. Höfnin í Vestmanna- eyjum. Efitr mikla örðugleika og margra ára tilraunir hafa Vest- manneyjingar loks fengið höfn, sem öll von er til að standfet gegn öllum árásum sjávargangs- ins. í síðas>tliðin 10 ár hefir ver- ið unnið öðruhvoru að byggingu hafnargarðanna, en framan af höfðu sjávaröflin betur g eyði- lögðu að kalla mátti jafnóðum það, sem gert var; braut skörð í garðana og garðhaus brotnaði og fluttiat úr stað. Tvö síðastliðin sumur hefir ver- ið unnið að endurbyggingu hafn- argarðanna tveggja, og var henni lokið í fyrrahaust. Sama félagið, sem bygði höfnina hér, N. C. Monberg í Kaupmannahöfn, hafði þetta verk með höndum og stjórn- aði N- Monberg verkfræðingur því Er það al'menn trú manna, að garðarnir séu nú orðnir svo ramm- byggilegir, að ekki sé hætt á að þeir falli. 'Hafnagarðarnir tveir: — Hring- skersgarður svonefndur að aust- anverðu, nokkru fyrir au^tan kaupstaðinn og Hörgeyrargarður að vestan og liggur hann nokfcru innar en ihinn. Endurbygging hafnarinnar var í því faiin að austurgarðurinn var gerður miklu sterkari en áður og nýr garðhaus gerður, í stað þess sem hrunið hafði. Utanvert á allan garðinn var sett röð af stein- steypukössum neðst meðfram garðinum, en síðan steypt lag frá þeim upp á garðbrúnina. Getur því enginn sjór komist inn í garð- inn og sprengt hann. 1 garð- hausnum nýj^ eru stór \ steypu- björg se'm eftir voru af gamla hausnum, en í bilin milli þeirra voru steyptir tveir fcassar, um 300 smál- að þ. hvor svo að stykkin mynduðu samfeldan hring. Varð undirstaðari því miklu breiðari en hún hafði verið áður. Ofan á þetta var síðan steypt samfelt lag, sem bindur saman stykkin í und- irstöðunni svo að sjálfur haus- inn er eitt samfelt 'múrstyfcki um 200G' smálestir á þyng. Var vatn- inu bægt frá með segldúkum með- an garðhausinn var steyptur. Hörgeyjargarðurinn var lengd- ur um 100 metra, og steypuköss- um raðað utanvert á allan garð- inn eins og þann eystri, til þess að verja því, að sjór fcomist inn í hann. Eftir að garðar þessir eru komnir hefir mjög 'mikið dregið úr sjávargangi á höfninni og hef- ir það þegar sýnt sig, að bátar eru tiltölulega öruggir á höfninni- En hinsvegar vantar mikið á, að höfnin sé komin í það lag, s'«n hún þarf, til þess að verða full- nægjandi. Til þess þarf að mjókka innsiglinguna til muna, á þann hátt að lengja Hörgeyrargarðinu til austurs, og byggja nýjan garð frá austurlandinu beint ,á móti Hörgeyrargarðinum, sem jafn- framt getur orðið hafskipa» bryggja, þegar höfnin very.ir dýpkuð. Hefir N. Monberg verk- fræðingur gert áætiun og tillög- ur um þetta verk, og látið hafn- arnefndina hafa án nokkurs end- urgjalds. Er þei'm þannig hagað, að hægt er að framkvæma verkið smátt og smátt, eftir því sem á- stæður of efni leyfa, á þann hátt, að steyptir eru kassar og settir í framlengingu garðsins hver af öðrum. Dráttarbraut til iþess að steypa kassana á, er til, og þarf aðeins að stækka hana lftilshátt- ar- Gert er ráð fyrir, að bryggju- garðurinn verði einnig gerður úr steypukössum, fyltum með grjóti. Innanvert verður garður þessi hallandi eins og bryggja, syo að bátar geti lagst við hann, hvort heldur er flóð eða fjara, en að ut- anverðu verður hár Öldugarður. Hafnagarðarnir í Vestmanna- eyjum hafa kostað ’mikið fé. Kosta Vestmanneyjingar sjálf- ir verkið að %, en landið hefir lagt itil fjórða hlutann, og enn- fremur ábyrgð fyrir hinu fénu. Alls eru það um 1300000 krónur sem höfnin hefir kostað. — Lögrétta- ISLENOINGADAGURINR. Nú er farið að verða skamt til Islendingadagsins. Enda heyr- ist tæplega um annað talað en þetta vort næstkomandi þjóðminn- ingarhátíðarhali^. Oft Ihefir að sjálfsögðu verið vel til hátíða- haldsins vandað, en vafasamt mun hvort það, hafi nokkru sinni verið gert betur en ein- 'mítt nú. Nefndin hefir á að skipa úrvals ræðumönnum, þeim Joseph reotor Thorson, séra Frið- rik Hallgrímssyni og síðast en ekki sízt Dr. Á?úst H. Bjarna- syni prófessor í heimspefci við háskóla íslands. Vert er að festa það í minni, að prófessor- inn kemur ékfci hingað á hverju ári og ætti fólk því alment að nota sér tækifærið, og hlusta á fósturjarðarminni hans, þann 2. ágúst næstkomandi. Kvæði fyr- ir minni íslands, hefir nefndinni borist frá skáldinu Jakob Thorar- insen í Reykjavík á íslandi, og ennfremur yrkir Gutt. J. Gutt- ormsson, skáld iþeirra Ný-lslend- inganna, landnemaminni- — 1- þróttir dagsins verða næsta fjöl- brejdtar og ágætis lúðraflokkur spilar frá fcl. 1 til 6 e. h. — Látið þetta verða fjölsóttasta og fræg- asta fslendingadaginn sem nofckru sinni hefir háldinn verið í Winni- peg-borg. Aðalfundur Ræktunarfélags Norðurlands var haldinn í húsi félagsins í Gróðr- arstöðinni dagana 22. og 23. þ- m. Formaður félagsins, Sig. Eln- Hlíðar, setti fundinn og bauð fulltrúa velkomna. Var síðan kosinn fundarstjpri, en til vara Stefán alþm- Stefánsson frá Fagraskógi- Ritarar voru kosn- ir: Báldv. Friðlaugsson búfr. á Reýkjum og Konráð Vilhjálmsson bóndi á Hafralæk- Stjórnarnefndarmennirnir: Sig. Ein. Hlíðar, Guðmundur fcennari Bárðarson og Sigtryggur Jóns-- son byggingameistari í stað Bryn- leifs Tobíassonar, sem er er- lendis, sátu fundinn, og auk þeirra fyrverandi- framkvæmdar- stjóri Einar J. 'Reynis og 32 full- trúar víðsvegar af félagssvæðinu- Fyrv. framkvæmdarstjóri lagði fram endurskoðaða reikninga fé- lagsins árið 1922 ’og útsfcýrði þá Skuldlaus eign félagsins við árs- lok 1922 nam kr.. 51,337,47- En reikningshalli á árinu kr- 2122,65. Voru þeir síðan samþyktir í einu hljóði með tillögum til úrskurðar frá endurskoðendum. Fráfarandi fra'mkvæmdarstjóri skýrði frá starfsemi sinni fyrir félagið á undanförnum starfs'ár- um sínum- Vpttaði formaður honum þafckir fyrir vel unnin sfcörf og góða saipvinnu. Formaður lagði fram fjárhags- áætlun stjórnaririnar fyrir næsta ár og skýrði hana all-ítarlega Var kosin 5 manna nefnd til að taka fjárhagsáætlunina til íhug- unar og koma-fram 'með tillögur um framtíðarstarfsemi félagsins- Guðm- G. Bárðarson hélt ítar- lega ræðu um fjármálasögu og framtíðarstarfsemi félagsins. Voru því næst tefcnir til um- ræðu eftirfarandi liðir framtíðar- starfseminnar: a) 'Sýslubúfræðingar- b) Tvískifting framkvæmdar- stjórastarfsins. c) Rekstur kúabúsins- d) Verzlun og pantanir félags- ins- e) Ársrit félagsins- Urðu allmiklar umræður um verzlun og útvegnun á fræi og út- lendum áburði, og í sambandi við þær umræður samþykt svohljóð- andi tillaga: "Aðalfundur Rf. N1 skorar á stjórn félagsins, að hún hlutist til um og geri sitt ítrasta til, að fé- lagsmenn fái sem allra hagfeldust kaup á útlendum áburði Og fræi — og treystir því jafnframt, að stjórn Búnaðarfélags lslands vinni einnig að því ” Fjárhagsnefnd nlagði fram svo- hljóðandi tillögu er var samþykt í “fundurinn ályktar að skora á stjórn félagsins: aj að hún sjái um að reikningum yfir rekstur kúabúsins á Galtalæk sé haldið fráskildum reikningum Gróðrarstöðvarinnar og að á bú- inu sétt færðar mjólkur- og fóður- skýrslur; b) að kúabúinu sé leigður Galta- lækur með tilheyrandi tún fyrir á- kveðið ársgjald.” Urðu all-langar umræður um þá ákvörðun stjórnarinnar, aið láta jarðabótamælingar niður falla. Var það mál að lokum afgreitt með svo hljóðandi rökstuddri dagskrá: “I því trausti, að stjómin láti mæla hjá þeim félögum, sem ekki var mælt hjá í fyrra, tekur fund- urinn fyrir næsta mál.” I sambandi við fjárhags áætlun- ina var svofeld tillaga samþykt: “Fundurinn lítur svo á, að æski- legt, að Rf. Nl. geti eftirleiðis haldið áfram leiðbeiningarstarf- semi á félagssvæðinu, þannig, að maður ferðist um sýslurnar til skiftis, t.cí. fjórða hvert ár, og þá svo rækilega að allir félagar Rf. geti orðið leiðbeininganna aðnjót- andi.” í tilefni af nokkrum umræðum um hin nýju jarðræktarlög frá Al- þingi samþykti fundurinn í einu hljóði svolátandi tillögu: “Fundurinn felur stjórn Rf. Nl. að vekja athygli Búnaðarfélags ís- lands á því, að nauðsynlegt sé, að hið opinbera annist mæbngar allra jarðabóta, sem unnar verða eftir 14. maí 1923, hvort sem þær, — samkvæmt jarðræktarlögunum — eiga að verða styrks aönjótandi eða ekki.” Út af umræðum um tvískiftingu þá, sem verið hefir á frarnkvæmd- arstjórn Gróðrarstöðvarinnar að undanfömu, kom fram svohljóð- andi tillaga, sem var samþykt: “Fundurinn ákveður, að fram- kvæmdarstjóri hafi eftirleiðis alla umsjón með störfum félagsins, en telur rétt, að stjórnin ráði honum til aðstoðar garðyrkjukonu, ef að fjárhagur leyfir.” í sambandi við umræður um verkfæraverzlun félagsins, var svohljóðandi tillaga samþykt: “Fundurinn er því fylgjandi, að stjórn Rf. Nl. sinni ekki frekar en þegar er orðið innkaupum og verzlun með stærri jarðyrkjuáhöld eða önnur vinmltæki fyrir félags- | menn, en hlutist hins vegar til um, j að kaupfélögin á félagssvæðinu taki slíkar pantanir og verzlun að sér fyrir félagsmenn. — Pöntun og sölu útlends áburðar og fræs telur fundurinn aftur á móti nauðsvn á að stjórn félagsins annist sem ver- ið hefir.” Formaður skýrði frá, að stjórn- in hefði ráðið stúd. agr. Ólaf Björgvin Jónsson sem framkv.- stjóra félagsins frá 1. mai 1924. að afloknu prófi við Landbúnaðar- háskóla Dana, en til bráðabirgða þangað til gagnfræðing Ingimar Óskarsson með tilsjón Páls Zóph- óníassonar skólastjóra á Hólum sem lofað hefir félaginu ráðuneyti sínu næsta ár. Kom fram beiðni frá Búnaðar- félagi Svarfdæla um, að æfifélaga deild búnaðarfélagsins yrði tekin upp sem deild í Rf. Nl. Sömuleið- is kom fram umsókn frá Búnað- arfélagi Siglufjarðar um inntöku í Rf. Nl. Var hvortveggja sain- þykt í einu hljóði og bauð formað- ur félögin velkomin. í stjórn félagsins var kosinn Bjöm Lindal lögm. á Svalbarði til næstu þriggja ára, í stað Brynleifs Tobiassonar kennara. Fndurskoð- endur voru endurkosnir, þeir Da- víð hrepstjóri Jónsson og Láras J. Rist kennari. v Fundurinn fól stjórninni að á- kveða stað fyrir næsta aðalfund. (Útdr. úr fundargerð aðalf.J Sig. Ein. Hlíðar. —tslendingur. Tell E1 Amarna Það þóttu fréttir mifclar þegar að gröf Tutankhamen fanst nú fyrir skömmu og ilíka sjálfsagt mikið varið í að finna öll þau kynstur sem í grafhvelfingu þeirri var af gulli og gersemum- En þótt tíðindin þættu mikil, þá samt fylgdi fundi þessum tilfinnng fyrir því, að þar væri verið að skerða grafarró hins löngu látna höfðingja, sem dró efcki alllítið úr fögnuði sumra út af fundi þess- um. En þessi fundur hefir orðið til annars. — þess að hópur fjár- málamanna hefir nfú tekið slg saman og lagt fram fé til þess að grafa upp borgina Tell El-Am- arna. Borg þá bygði Akenaten tengdafaðir Tutankhamen fyrli þrjú þúsund árum síðan, sem var boðberi nýrrar trúar á þeirri tíð, eingyðistrú og er því haldið fram að hann sé sá fyrsti, sem ein- gyðisstefnunni í trúmálunum haii haldið fratm.. Það liggur í aug- um uppi að breytingar í trúmálum mjög stórkóstlegar hafa átt sér stað þar. Enda er það víst, að Tell El-Amarna var 'borg, sem fræðimenn spekingar og fram- GOTT BOD 10 ekra Dairy Farm, ásamt fjósi fyrir 30 gripi, gott vatn, gott mjólkurhús og 5 herbergja Cottage. 7 mílur frá Winnipeg og iy% mílu frá Transcona. — hefi einnig nokkrar J4 Sections af ágætis landi fyrir blandaðan land- búnað, að Eriksdale og Lundar, Manitoba. — Áreiðanlegir menn geta fengið eignir þessar leigðar, eða þá til kaups, gegn lágri borgun. Phone A-3185. CHAS. LY0NS, 74 Princess St. Winnipeg kvæmdamenn þeirrar tíðar streymdu til og er ekki ólíklegt að hin forna borg beri þess 'menj- ar. — Aðal þungamiðjan í allri hugsun lista og lærdómsmanna þessa nýja siðar var leit eftlr sannleikanum og til þess að of- metnast ekki, þá eru verk lisia- mannanna frá þeirri tíð sneidd fegurð — gjörð hrikaleg og ljót. Samt er það mjög eftirtefctavert að þegar listin greip inn í líf fólksins sjálfs, að þá verður ann- að upp á teningnum. Nálægt borginni Tell El-Amarna, hefir verið grafið upp þorp, sem vlnnu- fólk hefir átt heima í. Er álit bygginga'meistara og| fagurfræð- inga að fyrirkomulag þess bæjar sé eitt hið fullfcomnasta, sem þeir hafi séð og geti verið til fyrlr- myndar þeim, sem nú eru að fást við mæling á bæjarstæðum og eins að því er kemur til húsabygg- inga. Þeir segja að sum af þeim húsum se*m þarna hafa verið graf- in upp, séu frábærlega fögur að stíl og allri gerð og sama sé að segja um musteri þau, sem grafið hefir verið í kringum. Hugmyndin er að grafa þessa borg upp á sama hátt og borgina Pompeei. Láta hana og alt sem í henni er halda sér, og vera á komandi öldum talandi vottur irm list og menning forn Egypta. Frá Islandi. Egger Laxdal listniálari er ný- kominn hipgað til bæjarins land- veg sunnan úr Reykjavik. Er hann fyrir skömniu kominn til landsins eftir nærfelt tveggja ára dvöl á Þýzkalandi. . Borgarness læknishérað hefir á Vopnafirði. verið veitt Ingólfi Gíslasyni lækni Sextujs afmæli á Stefán Stef- ánsson alþm. í Fagraskógi í dag. i. I'—íslendingur. Kennari óskast fyrir Norður- stjörnu skólahérað, no- 1226, fyr- ir næsta kenslutímabil, er hefst 30. sept og endar 15. des, 1923. Umsækjendur verða að hafa ann- ars flokks skírteini og taki fram æfingu og kaup- A. Magnússon, eec treas., P. O. box 91, Lundar, Man- Miljöna virði selt án þess að penna- skrjáf heyrist! örðugt að trúa því? þó er það satt engu að síður, að mest alt hveiti í Manitoba, er selt yfir símann. púsundir vagn- hlassa og miljónir mæla, án þe>ss að ipenna- skrjáf heyrist. Hversvegna? Vegna þess að hveiti það, sem fyrst er búið til markaðs, selst bezt, og vegna þess einnig eins og kornkaupmennirnir segja, að nauðsýlegt að koma sem mestu af hveiti hér á markað áður en hveitiflutningar frá Sasfcatchewan byrja. Án Long Distance eða firðsímans, væri eigi unt að selja hveitið nógu snemma, og mundu Manitoba bændur þá tapa þúsundu'm dollara. Hafið þér athugað firðsímann í þessu ljósi- Lífsábyrgðar umboðsmaðupr nokkur notaði firðsimann fr»á 50—75 sinnum sama daginn. f viðskifta'lífinu ei firðsí'mínn blátt áfram ómisteandi. Hafið þér gert yður að venju að nota hann? Manitoba ■ 'SL telephone SYSTEM • y-c'ly 3AY li KHUIII iiiHinn 1 I 1 1 ■ !l i. Canadian Pacific Steamships Nö er rétti tlminn fyrir yður að fá vini yt5ar og ættingja frá Evrópu til Canada. — öll farþegagjöld frá Evrópu til Vestur-Canada hafa nýlega veriS lækkuC um $10.60. — KaupiC fyrirframgreidda farseSla og gætiB þess aS & þeim standi: CANADIAN PACIFIC STEAMSHIPS. Vér eigum skip. sem siglh frá öllum megln hafnbæjum Bretlands. svo sem Livérpool, Southampton, Glasgow og Belfast. — Vér leið- beinum yfur eins vei og verBa ml — Skrifið eftir upplýsingum til: \V. C. CASEY, General Agent, Canadian Paoiflc Steanishlps, Ltd. 361 Main Street, Winnipeg, Man. lUHBUIMDl IIIIMIIIHIII IIIHIII llllll I niiMitS

x

Lögberg

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.