Lögberg - 20.11.1924, Blaðsíða 4
hÍA. 4
LGGBERG, B ÍMTUDAGINN 20. NÓVEMBER. 1924.
o
3£ogberg
Gefið út hvern Fimtudag af The Cci
urabia Press, Ltd., tCor. Sargent Ave. &
Toronto Str.. Winnipeg, Man.
Talnimari .>'-«327 og N-632S
JÓN J. BILDFELL, Editor
Utanáskrift til blaðaina:
TKf 60LUNIBI4 PRES3, Ltd., Box 317i, Winnipeg, M»n-
Utanáakrift ritatjórana:
íOiTOB LOCBERC, Box 3172 Winnipeg, M»n-
'tne “Lögberg” is printed and published by
| Tne Columbia Press, Limited, in the Columbia
I Building, 695 Sargent Ave, Winnipeg, Manltoba.
Heimskringla og hrœsnin.
í síSustu viku lætur Heimskringla refsivönd sinn
dynja yfir kirkjur landanna og klerkalýS, meÖ svo mik-
illi kyngi, að hárin rísa næstum á höfði manns viÖ
lesturinn.
Það sem svo mjög hefir sært siÖferÖistilfinningu
og sannleiksást þeirrar gömlu, er yfirlýsing frá kirkju-
deild einni um þaÖ, að hún aðhyllist eigi þá stefnu frið-
arvina, sem veiki hollustu, eða kasti skugga á glæsta
þjóðernistilfinningu og fööurlandsást, og að þeir
menn, sem yfirlýsinguna gera, séu á móti öllum ófriSi.
“Nema til hans sé lagt í réttlátri sjálfsvörn, eða brýn
nauðsyn beri til þess, að ley.sa undirokaðar þjóðir úr
viðjum.'’
í þessari yfirlýsingu finst blaðinu, að hræsnin kom-
ist á sitt hæsta stig. Eða með öðrum orðum, það
brennimerkir menn þá, er þessari kirkjudeild tilheyra,
erki-hræsnara fyrir það, að þeir vilja ekki þola neinum
einstaklingum eða þjóðum, að kasta skugga á*sæmd.
eða heiður annarar þjóðar né heldur að rýra hollustu
manna til þjóða sinna—gjöra menn að heitrofum og
að þeira taka fram, að þeir vilji ekki út í stríð fara,
nema að þeir eigi hendur sínar að verja, eða þá til þess
að leysa undirokaðar þjóðir úr viðjum, þegar brýn
nauðsyn ber til.”
Vér viljum ekki vera málsvarar fyrir hræsnina í
neinni mynd. En vér viljum ekki heldur sjá, að kveðn-
ir séu upp hræsnisdómar yfir mönnum, nema að þeir
séu á rökum bygðir.
Hví þurfa þessir menn að vera hræsnarar, þó þeir
lýsi yfir því, að þeir vilji frið, en að eins heiðarlegan
frið ?
Getur það ekki verið hræsnislaust frá þeirra hálfu,
að vilja ekki vinna það til friðar, að þjóðfélag þeirra
sé svívirt og meðborgarar þeirra lokkaðir til þess að
bregðast borgaraskyldum sínum, og að þeir vilji held-
ur berjast, heldur en að láta óaldarseggi taka af sér fé
og fjör varnarlaust?
Mundi það ekki vera mannlegu eðli fjær, og öllum
mannskap, að lýsa hinu gagnstæða yfir? Finst mönn-
um nokkur von til þess, að menn muni nokkurn tíma
láta möglunar- og viðstöðulaust af hendi það, sem
mönnum er kærast í lífinu, við óaldatlýð, sem vill troða
það undir fótum sér? Mundi það ekki í orðsins fylsta
skilningi vera ræfilsháttur og bera vott um skort á
þrótti og sjálfsvirðingu, og mundi ekki vera fult eins
mikil ástæða til þess að væna menn þá, sem slíjku lýstu
yfir, um hræsni eins og hina?
Sannleíkurinn er sá, að það er aldrei friðar að
væuta í heiminum, ef krefjast á þess, að vissir partar
mannkynsins eigi að vera svo mikið betri en aðrir, að
þeir leggi alt í sölumar.
Menn verða að læra að bera virðingu hver fyrir
annars skoðunum, og krefjast ekki þess af öðrum, sem
þeir ekki vilja eða geta veitt sjálfir, réttlætistilfinn-
ingar sinnar, eða sóma síns vegna.
En svo er nú þessi hræsnisgrein í Heimskringlu
ekki að eins rituð til þess að ávita þann löst, né heldur
til þess, að henda gaman að því, að kirkjunnar menn
báðu sama guðinn að blessa eigin málstað, en fordæma
aftur málstað fjandmannanna—það er, blessa vopn
Englendinga, en bannsyngja, vopn Þjóðverja, sem
blaðinu finst sú dómadags vitleysa, þar sem báðar
þjóðirnar séu lúterskir prótestantar!
Hræsnis og sjálfsvarnar textanum er haldið áfram
þar til takmarkinu er náð, nefnilega því, að festa
hvorutveggja við England. Samt segist greinarhöf-
undurinn ekki gjöra það af þvi, að yfirdrepsskap-
ur Englendinga sé svo miklu meiri en annara þjóða,
heldur af því, að Englendingar eru stærsta nýlendu-
þjóðin. En þó verða það nú samt Englendingar, sem
haldið er uppi sem fyrirmynd í hræsni og yfirdreps-
skap öllum Islendingum Jil athugunar.
í sambandi við afskifti Englendinga af Canada far-
ast blaðinu þannig orð: “Ætli það hafi ekki verið af
því, að þeim fanst ‘brýn nauðsyn’ bera til þess, að
‘leysa Indíánana úr viðjum’, — eins glæsilega og þeir
hafa með þá farið, að þeir tóku Canada af Frökkum?”
Ekkert er á móti því, að segja rétt og hispurslaust
frá misgjörðum Englendinga sem annara. En það er
hvorki ætlast til, að menn fái rétta hugmynd um af-
skifti Englendinga og Frakka af þessu landi á tímabili
því, sem átt er við, með því sem sagt er, né heldiir af-
skiftum Englendinga af Indánum. Saga þessa lands
gefur ekki á neinn hátt til kynna, að Englendingar,
sem þjóð, hafi^misboðið Indíánum Canada, eða farið
illa með þá, og er þvi su staðhæfing blaðsins óverð-
skulduð og villandi.
Vér segjum ekki, að Indíánarnir hafi ekki verið
beittir órétti, að því er til verzlunarviðskifta kemur, af
einstökum mönnum og félögum,~en fyrir það er ekki
neitt vit í að dæma heila þjóð.
Hvað viðskiftum Frakka og Englendinga viðvíkur
á því tímabili, sem hér um ræðir, er það að segja, að
báðar þjóðirnar váttu nýlendur í Ameríku. Nýlendu-
fólkið leit á sig sem óaðskiljanlegan hluta af heima-
þjóðunum fyrst framan af, og þegar heimaþjóðirnar
voru í striði, álitu nýlendurnar sig vera það líka.
Þannig hófst hið svo nefnda sjö ára stríð á milli
franska og enska nýlendufólksins fyrir vestan haf, og
hugmyndin hjá hvoru þjóðarbrotinu út af fyrir sig var
að vinna sigur á hinu fyrir heimaþjóðina, en ekki nein-
ar landavinningar, og það hefði þjóðarbrotinu öðru-
hvoru eða máske báðum, tekist, ef heimaþjóðirnar
hefðu ekki veitt þeim að málum, og i þeirri viðureign
urðu Englendingar yfirsterkari. Þeir voru með her-
ferð sinni á hendur Frakka í Canada, að vernda ný-
lendubygðir sínar miklu fremur en að ásælast Can-
ada, því það þótti einskis virði á þeim dögum.
Um Búastríðið farast blaðinu þannig orð: “Eða
efast nokkur um, að það var réttlát sjálfsvörn, sam-
fara kristilegu bróðurþeli. er Englendingar færðu þetta
hálskalega illþýði, Búana, — friðsama bændur — úr
sauðargærunni — sem reyndar var alsett demöntum?”
Ekki kemur meiri sanngirni fram í garð Englend-
inga í þessum ummælum, en þeim um Canada.-
Vér höfum tekið fram, að oss detti ekki í hug að
mæla striðum bót, því þegar bezt lætur, eru þau öm-
urleg. En þegar um þau er talað, þá eiga báðir eða
allir málsaðilar að njóta sannmælis, að svo miklu leyti
sem unt er, og það er ekki að láta Englendinga njóta
sannmælis, að mála þá svarta en Búana hvíta, í þessu
sambandi.
Tilfinning sú, að Englendingar hafi misboðið Bú-
unum með því að fara út í stríð við þá, sem allmjög
hreyfði sér hjá sumum frændum vorum á Islandi á
þeim dögum.bygðist ekki á því, að málstaður Eng-
lendinga væri verri, heldur á hinu, að leikurinn, eða ó-
leikurinn, væri ójafn, að það væru of margir Englend-
ingar um einn Búa. En ójafn leikur, eins og ófagur
leikur hefir frá alda öðli þótt miður drengilegur.
Englendingar reyndu alt sem þeir gátu til þess að
jafna sakir við Búana á friðsamlegan hátt, en það tókst
ekki, ef til vill sökum þess, að forseti lýðveldisis í Suð-
ur Afríku, Kruger gamli, reiddi sig um of á loforð
konsúls Þjóðverja þar syðra, sem taldi Kruger trú um,
að Þjóðverjar væru reiðubúnir að veita honum alla þá
hjálp, sem hann þyrfti gegn Bretum. Óeirðimar á
milli flokkanna innan lýðveldisins í Suður-Afríku,
voru ægilegar, eins og sjá má af ummælum forseta
lýðveldisins, Rev. Tomas Francois Burgers, manns af
hollenzkum ættum, stýluðum til og fluttum á Volks-
raads þinginu: “Eg vildi heldur vera lögregluþjónn í
þjónustu sterkrar stjórnar, heldur en forseti slíks rík-
is. Það eruð þið, þingmenn Raad þingsins og Búarn-
ir, sem hafið tapað landinu—sem hafið selt sjálfa yð-
ur fyrir brennivínsstaup—, þið hafið farið illa með
innfædda fólkið, þið hafið skotið það niður, þið hafið
selt það i þrældóm, og nú verðið þið að þola dóm
þeirra misgjörða. Vitið þið hvað nýlega kom fyrir í
Tyrklandi? Sökum þess, að stjórnarfarið þar var
ekki samboðið siðuðu fólki. Stórveldin skárust í leik-
inu og sögðu: ‘Hingað og ekki léngra’. Og ef þetta
er gert þar sem stór þjóð á í hlut, mun þá smáu lýð-
veidi verða fyrirgefið, þegar það misbýður réttlæti og
velsæmi ?”
Innan lýðveldisins sjálfs var barist um hérað, sem
gull og demantar fundust i. Og innan lýveldisins var
hérað, sem brezkir borgarar bygðu. Þeir kvörtuðu
sáran undan illri meðfreð af hendi þeirra, sem ráðin
höfðu þar syðra, en Bretar eða Englendingar skiftu
sér ekkert af því unz árið 1899 a® 21,000 brezkir borg-
arar i Uitland sendu bænarskrá til Victoriu drotningar
og báðu um vernd frá yfirgangi og ofríki Krugers for-
seta. Sir Alfred Milner, sem þá var umboðsmaður
Breta í Suður Afríku, var falið að reyna að semja við
Kruger á friðsamlegan hátt, en það tókst ekki. Svo
hið svonefnda Búa-stríð í Suður Afríku hófst 11. okt-
óber 1899.
Það var ekki nema um tvent að gera fyrir Eng-
lendingum . Fyrst það, sem þeir gerðu. I öðru lagi,
að láta níðast á þeim brezkum borgurum, sem innan
lýðveldisins voru og láta yfirgangsseggi reka þá frá
eignum sinum og óðulum, og í tilbót að láta kúgast af
ófyrirleitnum óeirðarseggjum, eins og þeir sem mest
máttu sín á meðal Búanna á þeim dögum óneitanlega
voru.
Vér höfum fært fram vörn i þessu máli að eins til
þess að islenzkir lesendur fengju að vita, að ef frá
málavöxtum er skýrt rétt, þá er England í hvorugu
þessu tilfelli svo svart, að ástæða hefði verið til þess
að benda á það sérstaklega, og oss finst að blað, sem
gefið er út innan brezka ríkisins, ætti fremur að sjá
sóma sinn í að halda uppi heiðri þess—minsta kosti að
látæ það njóta sannmælis—, heldur en að sverta það í
augum alheims og þess eigin borgara um skör fram.
Alþjóðaþingið í Genf,
Því var slitið 20. október siðastliðinn, eftir að hafa
setið rúmar fjórar vikur, eða frá 1. september 1924.
Þing þetta var að mörgu leyti merkilegt. Þó aðal-
mál það; sem það hafði rneð höndum, hafi sjálfsagt
verið afvopnunar- og friðar málið, þá voru þar mörg
önnur mál rædd, sem snerta velferð mannkynsins í
heild.
Þetta er hið fimta alþjóða-þing, sem haldið hefir
verið og líka hið atkvæðamesta. Fyrstu þingin gengu
mjög í undirbúning, því margt var að athuga og fram
úr mörgu að ráða í sambandi við stofnun alþjóða sam-
bandsins, og var það fyrst nú, sem hinar ýmsu deildir
þingsins vissu sjálfar hvar þær stóðu og hvernig hægt
væri að beita afli því, sem stofnun sú ætti yfir að ráða,
enda virðist sem þingstörfin og framkvæmdir þings
þessa hafi gengið betur nú, en riokkru sinni fyr.
Á þingi þessu mættu umboðsmenn frá fjörutíu og
fimm þjóðum. Tólf forsætisráðherrar.og á meðal ná-
lega hverrar einustu sendinefndar til alþjóðaþingsins,
var að finna utanríkisráðherra, nú eða fyrverandi, og
fullur helmingur sendinefndanna höfðu lika leiðandi
mann úr andstæðingaflokki ráðandi stjórnarflokkanna
heima fyrir. Menn voru því í færum um að ræða
málin á grundvelli reynslunnar, en ekki að eins frá
hugsjóna sjónarmiði. Þetta var í fyrsta sinni, sem
forsætisráðherrar þjóðanna höfðu mætt á alþjóða-
þinginu til þess þar að standa fyrir málum þjóða
sinna og á ákveðinn hátt að taka þátt í velferðarmál-
um allra þjóða. Telja menn slíkt hafi haft hin beztu
áhrif og dregið þjóðir þær, sem i Alþjóðasambandinu
eru, nær hver annari en þær áður voru, og í öðru lagi
fundu menn til þess, að þing þetta síðasta í Genf vakti
svo mikla og almenna eftirtékt, að ekki er gott að hugsa
sér stað, sem er hagkvæmari til þess að breiða út hug-
sjónir manna, en einmitt hann, og’ þangað munu þeir
því, sem einhverjar hugsjónir hafa til þess að birta
heiminum, fara ótrauðir.
Það, sem ef til vill veitti nýjum lífsstraumum inn í
athafnir manna á þessu þingi, voru ræður þeirra for-
sætisráðherra Breta, MacDonalds, og forsætisráðherra
Frakka, Herriots. MacDonald flutti ræðu sína 4.
september, um afvopnun þjóða og frið á meðal mann-
anna. Reifði hann mál sitt svo vel, að efni þess
smaug i gegn um merg og blóð þingheims. Hann tók
fram, að í sambandi við friðarstefnuna færi hann ekki
fram á neina nýja löggjöf, heldur að sá partur reglu-
gjorðar Alþjóðaþingsins, sem um það mál fjallaði
yrði endurbætt. “En áður en það er gjört, þarf hún
að verða mönnum kunn.” *
r Her^T0tÍÓk 1 Sama streng’ Þe&ar hann talaði, og tók
fram: ‘Það er með því< að ihugsa um og leiða í gildi á-
kvæði þessa alvarlega hjálparmeðals, a^ Frakkar von-
ast eftir að finna reglugjörð þá, sem þeir geta stutt sig
við, þegar um framtíðar framkvæmdir þjóðarinnar er
að ræða og utanríkismál.”
Á meðal mála þeirra, sem rædd og afgreidd voru
á þessu þingi, voru: Málið um velferð barna. I því
mli var etfirfylgjandi yfirlýsing samþykt:
1. Sjá verður um, að hverju barni veitist þau
þroskáskilyrði, sem það þarf til þess að það geti náð
líkamlegum og andlegum þroska.
2. Barn, sem er hungrað, verður að fá saðning;
þau, sem eru veik, lækning; andlega fötluð, aðstoð;
þau föðurlausu og hin, sem látin eru afskiftalaus,
hjálp.
3. Á neyðartímum eru það 'börnin, sem fyrstu að-
stoð verður að veita.
4. Hverju einasta barni verður að veitast tækifæri
til þess að vinna fyrir sér, og það verður að vernda
þau frá fjárplógstilraunum annara.
5. Innræta verður öllum börnum, að líf þeirra eigi
að vera þjónustustamt líf í þarfir meðbræðra þeirra.
I júlímánuði síðastliðnum fékk stjórnarnefnd Al-
þjóðasambandsins tilboð frá stjórninni á Frakklandi
um að gefa Alþjóðasambandinu hæfilega byggingu,
þar sem rannsaka mætti og leita upplýsinga í öllum
vandamálum, og veita nægilegt fé henni til viðhalds.
—Út úr þessu tilboði varð talsverður meiningamunur í
þinginu. Fanst sumum, sem Frakkar mundu ekki geta
gjört stofnun þá “international”, eða að óháðri al-
þjóðastofnun. Samt varð það ofan á, að þiggja boðið,
eftir að fcúið var að trtyggja hag Alþjóðasambandsins í
því sambandi.
Stjórnin á ítalíu hefir einnig boðið Alþjóðasam-
bandinu að setja stofnun á fót tiDþess að athuga mál
þau, sem sambandið hefir með höndum, frá lögfræði-
legu sjónarmiði.
Eitt af því, sem bent hefir verið á sem aðfinslu-
vert, hæði af Bandaríkjaþjóðinni og fleiri þjóðum við
Alþjóðasambandið, er ósamræmi í alþjóðalögum. Á
fyrsta fundi Alþjóðsambandsins var það mál tekið til
umræðu og falið nefnd til athugunar, eins og öll önnur
mál. Sú nefnd benti á það í skýrslu sinni, að hún lijú
svo á, að hagkvæmasti vegurinn til þess að ná því tak-
marki, væri, að gæta samræmisins, þegar nýir sátt-
málar væru gerðir á mitti þjóða, og það hefði Alþjóða-
sambandið gert i þeim tuttugu og fjórum sáttmálum,
sem það hefði verið við riðið síðan það tók til starfa.
Sænsku umboðsmennirnir létu einkanlega í ljós, að
þeir væru samþykkir þeim skilningi, en fóru fram á,
að stjórnarnefnd sambandsins færi þess á leit við þær
þjóðir, sem í sambandinu væru, að þær legðu fram
skrá yfir lög þau, sem liklegust væru til samræfhis og
sameiginlegra aiþjóðalaga. Samþykt var á þinginu, að
kalla fund til þess að ræða þetta mál og bera sig sam-
an um það, áður en langt um liði.
Samkvæmt bendingu frá Senator Siraola, formanns
Rauðakrossfélagsins á ítalíu, samþykti Alþjóðaþingið
að boða til alþjóða fundar til þess að tala um og ráða
fram úr hverngig bæta skyldi hag þeirra, sem fyrir
stór-óhöppum verða, og Friðþjófur Nansen var leyst-
ur frá því embætti að sjá um allslaust fólk í stríðs-
löndunum, og verkamálaskrifstofu sambandsins falið
það.
Mörg önnur mál, svo sem þrælasölumál, ópium-
nautna mál, og fjármál, komu upp á þessu þingi, og
voru ýmist afgreidd eða fengin standandi nefndum.
Eitt af því, sem fjármálin snerti, var skýrsla frá
eftirlitsmanni Sambandsins í Ungverjalandi, sem sýndi,
að hið f járhagslega ástand þeirrar þjóðar, var að kom-
ast í hið ánægjulegasta horf frá því sem var, og er það
önnur þjóðin, sem Alþjóðasambandið hefir reist úr
rústum. Hin er austurríska þjóðin.
Ein smáþjóð sótti um inngöngu í Sambandið,—
það var Dominician lýðveldið í Suður Ameríku, sem
til skamms tíma hefir verið undir vernd og umsjá
Bandaríkjastjórnarinnar. Og fyrirspurn um inntöku-
skilyrði kom frá Þjóðverjum, sem lét í ljós, að sú þjóð
vildi ganga í sambandið, ef það gæti látið sig gera und-
ir þeim skilyrðum, sem hún gæti sætt sig við. — Eftir
að þigninu var slitið, létu sendinefndir Breta og Frakka
það í ljós, að þær væru þess fýsandi, að Þjóðverjar
væru teknir inn í sambandið skilyrðalaust með fullum
réttindum; en ekkert ákvæði var um það tekið í þing-
inu, sem ekki stóð heldur til.
Vér sögðum í byrjun þessa máls, að aðal málið á
þessu þingi hefði afvopnunar, eða friðarmálið verið.
I því máli var eftirfylgjandi sáttmáli dreginn upp af
utanríkisráðherra Czecho-Glóvakiu, IBenés, og stað-
festur af þinginu, eða þeim af umboðsmönnum þjðó-
anna, sem v^ld höfðu til þess að undirskrifa hann, og
yfirlýsingu ninna, sem undirskriftirnar urðu að láta
biða, unz löggjafarþingin heima fyrir væru búin að
samþykkja hann.
Sáttmálinn.
Með það eitt í huga, að tryggja alþjóða frið og
verndun allra þjóða, sem eiga tilveru sína, sjálfstæði
og landeignir í hættu.
Viðkomandi sameinuðu malþ^pða styik og takandi
fram, að strið, sem sótt eru á hendur þjóðum, eyði-
leggja hinn sameiginlega þjóðarstyrk, og að þau séu
alþjóðaglæpir.
alþjóðaglæpur.
Það er vilji vor, að flýta fyrir því, að sáttmáli sá,
eða grundvallarlög, sem alþjóða sambandið byggist á,
geti notið sin að fullu; að því er til sameiginlegs sam-
komulags kemur um atriði þau, er þjóðir greinir á um,
og að fyrirbyggja alþjóða glæpi og að sem fyrst kom-
ist í framkvæmd það, sem tekið er fram í 8. grein
þeirra laga um afvopnun þjóða, svo að ihjá þeim sé
ekki um meiri vopnaútbúnað að ræða en til þess þarf
að þær geti haldið þjóðarsóma sínum og tekið sinn
þátt í að framkvæma þær athafnir, sem skyldur þeirra
í Alþjóðasambandinu krefjast.
Við, sem undir þennan sáttmála ritum samkvæmt
heimild, höfum komið okkur saman um eftirfylgj-"
andi:
1. gr. Ríki þau, sem staðfest hafa þennan samn-
ing með undirskrift sinni, lofast til þess að gjöra alt,
sem í þeirra valdi stendur til þess að fá hann sam-
þyktan sem viðauka við 'grundvallarlög Alþjóðasam-
bandsins, og þau ganga inn á, að því er þau sjálf
snertir, að það sem tekið er fram í þessum sáttmála,
skuli vera bindandi fyrir þá, frá þeim tíma, að hann
er sarrtþyktur, og að þvi er hann sjálfan snertir, þá skal
Alþjóðasambandið.og stjórn þess liafa vald til þess að
beita ákvæðum þeim, sem fram eru tekin í horium, eins
og frá honum hefir verið gengið af Alþjóðasamband-
inu nú.
2. gr. Ríki þau, sem undir þennan sáttmála hafa
/ ritað, skulu ekki hafa rétt til þess að fara út í stríð
hvert við annað, eða við neitt annað riki, sem gengur
inn á skilyrði þau, sem hér eru sett, nema að veita mót-
stöðu, ef á þau er ráðist, og skal þá fylgja ákvæðum
þeim, sem Alþjóðasambandið, eða stjórn þess, hefir
sett og í samræmi eru við ákvæði þessa sáttmála.
Hversu mikið
munt þú eiga þegar
þú ert orðinn 65 ára?
ÞAÐ ætti að vera auðvelt fyrir yður að
eiga frá $5,000 til $50,000 um 65 ára ald-
ur, í hlutfalli við laun yðar.
Með því að eyða öllu er þér vinnið
yður inn, ogtreysta á einhvern dag, er “veitir yð-
ur auð“, hefir fátæktin yfirhöndina á eldri árum
yðar og þér verðið upp á aðra komin, Það er til
öruggarivegur, sem tryggir yður tekjur á efri árum.
Bæklingur vor “The Measure of Your Income
sýnir yður hvernig slíku má til leiðar koma.
636 McDERMOT AVE.
. Gleymið ekki
Ald McKERCHAR
Greiðið
bæjarfulltrúa
TOM BOYD
1. atkvœði yðar
við bæjarstjómarkosning-
arnarar, sem fram fara
Föstudaginn 28. Nóv.
Hann hefir starfað dyggilega
fyrir yður í fjögur ár. Reynsla
hans kemur yður að góðu
haldi.
Mjerkið seðilinn þannig:
Boyd, Thomas 1
Traveller JL.
MckÍ'rCHAR
œskir virðingarfylst
áhrifa yðar og at
kvœða
eitið honum for-
gangs atkvœði til
endurkosningar
tem
Bæjarfulltrúa í
2. kjördeild
♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦“♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦
4^4 4^4 4^4 4^4 4^4 1.^4 Al
T
3. gr. Ríki þau, sem undir þenn-
an samning rita, ganga inn á að við-
urkenna skilyrðislaust og án nokk-
urra sérstakra samninga, vald hins
ráÖandi alþjóÖaréttar, þegar um
atriði er að ræða, sem tekin eru
fram í 2. kapitula 36. greinar
grundvallarlaga alþjóðaréttarins, án
þess þó að skerða rétt neins ríkis,
sem tekinn eru fram, á sérstakan
hátt, sem heimilaður er í samningi
þeim, sem staðfestur var 16. des.
1920 og gefur leyfi til sérstakra
sáttmála i samræmi við áðurnefnda
grein.
Samþykt á þeim sérstaka sátt-
mála, sem lagður var fram 16. des.
1920, verður að fást innan mánað-
ar frfí þvi að þessi samningur, sem
nú er lagður fram, gengur í gildi.
Ríki þau, sem samþykkja sátt-
mála þann, sem nú ey lagður fram,
verða að fullnægja hinu ofan-
nefnda skilyrði innan mánaðar frá
því þau gefa samþykki sitt.
4. gr. Til þess að ákvæðið, sem
tekið er fram i 4., 5., 6. og 7. grein
15. kafla aðal-sáttmálans nái gildi,
þá lofast ríki þau, sem undir þenn-
an samning rita, til þess að ganga
inn á eftirfylgjandi:
1. Ef fram úr ágreiningi, sem
lagður er fyrir Alþjóðasambandið,
er ekki greitt af því, samkvæmt fyr-
irmælum 3. gr, 15. kafla, þá skal
stjórn þess reyna sitt ýtrasta að fá
hlutaðeigandi málsaðila til þess að
leggja mál sitt í gjörðardóm.
2. (a). Ef hlutaðeigendur geta
ekki komið sér saman um að leggja
ágreiningsmál sín í gerð, þá skal
samkvæmt ósk að minsta kosti eins
af hlutaðeigendum gjörðardómur
settur, sem er i samræmi við vilja
allra hlutaðeigenda, að svo miklu
leyti sem unt er að ná því samræmi.
(b) Ef að hlutaðeigendur ekki hafa
getað komið sér samanan um hvaða
menn skuli kvaddir til gjörðar-
dómsins annað hvort alla, eða þá
eitthvað af þeim innan tíma þess,
seni stjórn Alþjóðasambandsins á-
kveður, eða um starfsvið þeirra og
vald, þá skal stjórnarnefnd Al-
þjóðasambandslns taka að sér að
ráða fram úr ágreinings atriðunum.
Hún skal eins fljótt og unt er, í
samráði við hlutaðeigendur, velja
menn til gerðardómsins og formann
gjörðarnefndarinnar, og skal hún í
þvi vali gæta þess, að velja menn,
sem sökum þektra hæfileika og
þjóðernis að treystandi sé til þess
að vera óvilhallir og hæfir til þess
að athuga ágreiningsmáliný-— (c)
Eftir að kröfur málsaðila hafa ver-
ið lagðar fram, þá skal gerðardóms-
nefndin, ef eirihver af hlutaðeig-
SPARAÐ FÉ SAFNAR FÉ
Ef þér hafið ekkl þeffar SparisjéSsreikning, þá getiS þér ekki
breytt hyKerileerar, en aS kífrerja peninga ySar lnn á eittlivert af vor-
um næstu útibúum. par bíSa þeir ySar, þegar rétti tímlnn kemur tll
aS nota þ;V yður til sem mests haffnaðar.
Union Bank of Canada heflr starfað í 58 ár og hefir á þeim tíma
komið upp 845 útibúum frá strönd til strandar.
Vér hjóðiim yður lipra of» ábyggilega affrrelðslu, hvort sem þér
gerlð mikil eða lítil viðskifti.
Vér hjóðum yður að hcimsækja vort næsta útibú, ráðsmaðnrinn
og starfsmenn hans, munn finna sér Ijúft og skylt að leiöbelna yður.
ÚTIBÚ VOR ERU A
Sargent Ave. og Sherbrooke Osborne og Corydon Ave.
Portage Ave. og Arlington I.ogan Ave og Sherbrooke
Portage Ave, og Good St. og 9 önnur útibú í Winnipeg.
A» ALSKRIFSTOFA:
UNION BANK OF CANADA
MAI.V and WIIJJAM — — WINNIPEG