Lögberg - 19.03.1925, Qupperneq 1
Látið taka af yður MYND
í nýju loðyfirhöfninni
W. W. ROBSON
rEKUB GAÐ/VR MYNDIR AÐ 311 PORTAGF. AVE.
PBOVINCF
THEATBE 1 A
pessa vlku
Tom Mix í uThe Deadwood,,
Næstu vlku:
Margaret de la Motte í
“The BELOVED BRUTE”
38. ARGANGUR
WINNIPEG, MAN., FIMTUDAGINN 19. MARZ 1925
NOMER 12
Helztu heims-fréttir
Canada.
Hon. James Robb, settur fjár-
málaráögjafi, hefir tilkynt aí5 fjár-
lögin verSi lögð fyrir sambands-
þingið seinni part yfirstandandi
vi'ku.
* * #
Greenfield stjórnin í Aflberta,
hefir lagt fram í fylkisþinginu fjár-
lögin fyrir 1925, meS $368,632,51
tekjuhalla. Leiðtogi andstæðinga-
flokksins, Hon. Chas Mitchell, full-
yrðir, að tekjuhallinn sé í rauninni
helmingi meiri.
* * •
Ralph Connable, forstjóri F. W
Woolworth verzlananna í Canada,
hfir sagt af sér þeirri stöðu og
kveðst vera staðráöinn í aö leita
kosningar til sambandsþingsins.
# * #
I síðastliðnum febrúarmánuðl
var sextán bifreiðum stolið í Cal-
gary borg. Allar hafa þær fundist
aftur, að einni undanskilinni.
• # #
A W. Neill, utanflokka þing-
maöur í sambandsþinginu, frá Co-
max Alberni í British Columbia
fylki, hefir nýlega boriö fram
Jjingsályktunar tillögu, er fram á
það fer, aÖ hervarnir viö strendur
Canada, veröi auknar til muna.
Telur hann þjóöina í raun og veru
standa uppi varnarlausa í þessu til-
liti.
* * *
Til Vesturlandsins hafa komið í
síðastliðnum mánuði um ellefu
hundruð innflytjendur, frá hinum
ýmsu Norðurálfuríkjum.
• * •
Fylkisþingið í New Brunswick,
kom saman hinn 12. þ. m. Meðal
löggjafarnýmæla þeirra, er hásætis-
ræðan drap á var þaö, aö barna-
skólanemendur skuli framvegis fá
ókeypis kenslubækur.
# • •
Tveir póstþjónar hafa verið tekn-
ir fastir í Moose Jaw, Sask., og
sakaðir um aö hafa verið viðriðnir
póstránið þar í borginni, hinn 1.
desember síðastliðinn. Rán það
nam fullum þrjátíu og átta þúsund-
um dalá.
• • •
Rt. Hon. W. L. Mac Kenzie
King, forsætisráðgjafi Canada, hef-
ir í þingræðu lýst yfir því að stjórn-
in sá staðráðin í að gera samning-
ana við Peterson eimskipafélagið
aö kappsmáli og standa eða falla
með þeim.
* * •
James Serda, járnbrautarþjónn
í Hamilton, Ont., hefir erft $300,
000 dali eftir föður sinn, sem ný-
látinn er á Spáni.
• • •
Hon. T. C. Norris, leiðtogi frjáls-
lynda flokksins í fylkisþinginu í
Manitoba, hefir borið fram tillögu
til þingsályktunar, þar sem skorað
er á stjórnina að hlutast til um að
skipuö verði konungleg rannsókn-
arnefnd, til þess aö rannsaka allar
ástæður til fjárhagshruns Hearst
músíkverslunarinnar og Farmers
Packing félagsins.
# # #
lagt hefir stund á kristin vísindi -—
Christian Sciende, var tékinn fast-
ur og sakaður um að vera valdur
að dauða 12 ára gamallar stúlku
er Doreen Watson hét. Stúlka þessi
lést úr barnaveiki — diptheria, hinn
22. nóvember síðastliðinn. Var það
boriö á Mr. Elder, að hann heföi
komið í veg fyrir, aö barnið yröi
aðnjótandi venjulegrar læknishjálp-
ar, það er að segja innsprautunar
gegn veikinni. Eftir langa vitna-
leiðslu í málinu, var Mr. Elder fund
inn sekur fyrir kviðdómi. Dóm-
ur í málinu verður kveöinní upp þ.
26. þ.m.
• • •
Nýlátinn er á sjúkrahúsi í
Guelph, Ont., senator W!. H. Benn-
ett frá East Simcoe. Hann átti um
alllangt skeið sæti í neðri málstof-
unni, af hálfu íhaldsflokksins, áð-
ur en hann hækkaði í tigninni.
----------------o-------
Bretland.
Austen Chamberlain, utanríkis-
ráðgjafi Breta, hefir neitað aö
skrifa undir friðarsáttmála þjóö-
bandalagsins, þann er saminn var
i fyrra, að tilhlutan Ramsay Mac-
Donald, fyrrum stjórnarformánns
og Herpiots forsætisráðgjafa
Frakka. Veröa tillögur þær í heims-
friðarmálinu, líklegast því miður,
að liggja í þagnargildi fyrst um
sinn.
# * #
Níu aukakosningar til þjóðþings
fríríkisins írska, fóru fram í lok
fyrri viku. Urðu úrslitin þau, að
Cosgrave-stjómin gekk sigrandi af
hólmi í sjö kjördæmum. Heldur hún
því vafalaust völdum fyrst um
sinn.
• • •
Fjártapið vitð sýninguna að
Wembley hefir numiö $9,250,000.
Uefir þess nú verið farið á leit við
stjórnina, að hún legði fram -5,000,
000 eða meira upp i tekjuhallann.
Ákveðið hefir verið, að sýningin
skuli opnuð 1. mai næstkomandi
og standa opin fram í október.
# * *
Breskur þingmaður, sem kosinn
var til þjóöþingsins í síðustu kosn-
inguin, hafði heitið því, að kyssa
alla kvenkjósendur í Mid-Essex
kjördæminu, þar sem hann bauð
sig fram, ef hann yrði sigursæll.
Nokkru seinna var hinn nýkosni
þingmaður staddur á skemtisam-
komu í Brantwood. Bar forseti
samkomunnar honum það á brýn,
að hvað sem öðru liði, þá væri það
víst, aö hann heföi svikið þetta
mikilvæga kosningaloforö. “Eg
viðurkenni sekt mína’’, sagði þing-
maðurinn, “en hér er ekki um á-
setningsynd að ræða, heldur hafa
annir hamlað mér frá að fullnægja
þessari skyldukvöð. Sem sagt, er
eg þess albúinn, að byrja á athöfn-
inni nú jægar.” Tala kvenkjós-
enda í umræddu kjördæmi, nam
16,269. —
Bandaríkin.
Síðastliöinn föstudag lést að
heimili sínu hér í borgnni, John T.
Speirs, forseti Speirs — Parnell
brauðgerðarverksmiðjlunnar 'hér í
borginni, einn af best metnu við-
skiftafrömuðum Vesturlandsins.
Hann var 65 ára að aldri og hafði
dvalið í Manitoba síðan 1881 Mr.
Speirs átti um hríð sæti i bæjar-
stjórninni Winnipeg. Hann lætur
eftir konu og þrjú börn. Er son-
urinn, James M. Speirs, fram-
kvæmdarstjóri við brauðgerðar-
verksmiðju þá, er faöir hans
stofnaði.
• • •
Coderre dómari, sá er undanfarna
þrjá mánuði hefir verið að rann-
saka ástand lögregflumálanna i
Montreal, hefir nú lokið starfi og
komist að þeirri niðurstöðu, að
ýmsir af yfirmönnum lögreglunn-
ar hafi ekki verið starfi sínu vaxn-
lr °g aö margskonar siðspilling hafi
látin verið viögangast visvitandi.
Tcggur hann meðal annars til, að
yfir lögreglustjóranum, Belanger,
verði vikið frá embætti.
• • •
Mál eitt hefir staöið yfir fyrir
dómstólunum undanfarandi hér í
borginni, sem vakið hefir óvenju-
mikla eftirtekt meðal almennings.
F.r því þannig háttað, aö maður
einn William Elder aö nafni, er
Fjármálaráðuneyti Bandaríkj-
anna, hefir krafist þess, að senator
Couzens, frá Detroit, Michigan,
verði dæmdur til að greiða $10,861,
131.50 í skatt af hlutum þeim, er
hann átti í Ford bifreiðafélaginu,
en seldi árið 1919. Er því haldið
fram, að senatorinn hafi vísvitandi
vilt skattheimtumönnunum sjónir,
á sanngildi téðra vegðbréfa.
Mr. Couzens telur hér aðeins
vera um pólitískar ofsóknir að ræða.
Þykir slíkt ]>ó harla ólíklegt, þar
sem senatorinn er ákveðinn Re-
publican og þarafleiðandi einn af
ákveðnustu stuðningsmönnum
Coolidge-stjórnarinnar. —“
• • •
Þess var getið í síðasta blaði, að
bráðkvaddur hefði orðið í Wash-
ington, senator, Medill McCormick,
Republican frá Illinois. EftirmaÖ-
ur hans hefir enn eigi verið skipað-
ur, en sagt er að f jöldi manna keppi
um hnossið. Ríkisstjóri skipar
mann i embætti þetta, fyrir það
sem eftir er kjörtímabilsins.
• • •
Nýlega skipaði Coolidge forseti
Charles Beecher Warren til dóms-
málaráðgjafa. Þegar til kasta
senatsins koni, sem staðfesta átti
útnefninguna, var henni synjað. Er
slíkt taliö einstætt, í sambandi við
val nýs ráðgjafa.
6. styrkur vegna óskilgetinna
barna kr. 27542.08.
7. styrkur veittur af öðrum ástæð-
um kr. 12738.31.
Næst er skrá yfir ómaga yngri
en 16 ára. Styrkþegar voru 21 (T7
árið áðurj og styrkveitingar námu
alls kr. 8754.73, en endurgreiddar
voru 460 krónur.
Þriðja skráin er “yfir fjárveit-
ingar til innansveitarmanna, sam-
kvæmt berklavarnalögunum, og
endurgreiðslur samkv. sömu lög-
um.”
Styrkþegar eru taldir 54, en fjár-
veitingin samkvæmt þessum lið kr.
22615.00 og teljast þessar greiðslur
ekki fátækrastyrkur. Endurgreiðsl
ur námu 39 kr.
Fjórða skrá er um “fjárveitingar
til innansveitarmanna, skv. lögum
nr. 61 frá 27. júní 1921” (breyting
á fátækralögunum, 77. gr.J. Fjár-
veitingar samkvæmt lögum þessum
teljast ekki fátækrastyrkur. Þær
hafa numið alls kr. 30813.29. End-
urgreiðslur skv. þessum liö hafa
numið kr. 1474.50.
Þá kemur fimta skráin. Hún ræð-
ir um þurfamenn annara sveita,
styrkveitingar annara sveita, styrk-
veitingar og endurgreiðslur árið
1923.” — Námu styrkveitingar
þessar alls kr. 69025.30 (árið áður
kr. 51951.42). — Endurgreitt hafði
veriö af styrkþegum og framfærslu-
sveitum kr. 52073.70.
Sjötta skráin skýrir frá fjár-
veitingum til “utanbæjarmanna
árið 1923, samkv. berklavarnarlög-
unum og endurgreiðslum samkv.
sömu lögum.” — Fjárveitingar sam
kvæmt þessum liö námu alls kr.
49706.00 — Endurgreiðslur eru
taldar kr. 30081.89.
Sjöunda og síðasta skráin er
“yfir fjárveitingar til utanbæjar-
manna áriö 1923 skv. Iögum nr. 61
frá 27. júni 1921 og endurgreiðslur
samkvæmt sömu lögum.”
Fjárveitingar samkvæmt þessari
skrá eru taldar alls kr. 16041.15 —
Endurgreiðslur námu kr. 14861.19.
Vísir 5. febr.
Mag. Holger Wiehe
í fyrradag barst danska sendi-
herranum hér i Reykjavík skeyti
um, að Holger Wiehe, sem um eitt
skeið var sendikennari hér við há-
skólann, væri látinn. Hann hafði
upp á síðkastið þjáðst mjög af
brjósttæringu, sem þá, og hefir
orðið banamein hans.
Margir Islendingar þektu Wiehe
frá eldri tíö, frá námsárum hans
við háskólann í Khöfn, svo mjög
sem hann þá umgekst ísl. stúdenta,
til þess af viðræðum við þá að
fullkomna sig í islenzkri tungu.
Því að hann haföi valið sér nor-
ræna málfræði að aðalnámsgrein.
En honum nægði ekki að kynnast
fornmálinu. • Hann vildi einnig
!æra nútíðarmálið, enda náði hann
þegar á stúdentsárum sínum
þeirri fullkomnun í því, sem
sjaldgæf er með Dönum, aö hann
gat talað þaö viðstöðulaust og
laukrétt að mestu. Við dvöl sina
síðar hér í bæ fullkomnaðist hann
enn meir í tungu vorri og mundi
mega segja, að hann hafi talaö
hana og ritað eins og innfædddur
maður væri um það leyti, er hann
hvarf héöan aftur heim til átthag-
anna.
Frá dvöl hans hér í .bæ, árin
1914 til 1918, er hans minst af
mörgum með hinum hlýjasta hug,
svo vel 'kynti hann sig í vorum
hóp. Hann kom hingað sem densk-
ur sendikennari við háskóla vorn
á fyrsta ári ófriðarins mikla og
tók þegar um haustið að flytja fyr-
irlestra um danskar bókmentir.
Lagði hann mikla alúð við starf
sitt og lét ekkert skorta á sem bezt-
an undirbúning við þaö, enda voru
fyrirlestrar hans einkar fróðlegii
En þeir voru miður sóttir, en búast
hefði mátt við, og mun mega gera
ráö fyrir, að það hafi ýtt undir H.
W. aö hverfa heim aftur eftir 4 ára
dvöl sína hér, svo vel sem hann
annars undi hag sínum á meðal
vor, þrátt fyrir alla — og ekki litla
í því skyni, var skrifað af einlægu
vinarþeli og meö rétt óvenjugóð-
um skilningi á högum þjóðar vorr-
ar.
Árin sem H. W. dvaldi hér í bæ
vann hann meö kappi að undirbún-
ingi hinnar nýju dönsku orðabók-
ar, sem kend er við Sigfús Blön-
dal, og nú er senn fullprentuð. A
H. W. ekki lítinn þátt í heppileg-
um dönskum þýðingum íslenzkra
orða og talshátta, sem þar verða
fyrir manni, enda var hann manna
snjallastur á danska tungu að
fornu og nýju.
H. W. var alla tíð vinsæll mjög,
og vinsælda átti hann ekki siöur
að njóta hér á landi en heima fyr-
ir. Hann var allra manna yfirlæt-
lausastur og hafði sig mjög lítt í
frammi, en i hóp vina sinna gat
hann verið hinn skemtilegasti, eins
og hann var ávalt hinn ástúöleg-
asti í viðmóti. Vildu menn fræðast
af honum um efni, er snertu hans
vísindalegu áhugamál, var hann
hinn allra greiðasti til svara, rétt
eins og þægðin væri hans en ekki
spyrjanda, enda fór maður sjald-
an erindisleysu til hans.
Wiehe sál. var fæddur 5. janúar
1874, og því rúmlega 51 árs, er
hann lézt. Afi hans var bróðir
dönsku leikaranna, sem frægastir
voru um eitt skeið, Michaels og
Wilhelms Wiehe. Hann varð stú-
dent áriö 1893 og lauk meistara-
prófi i norrænni málfræði 1899 °S
haföi síðan ofan af fyrir sér með
kenslu í skólum uns hann fluttist
hingað. Eftir burtför sína héöan
settist hann að í Silkeborg og varð
fastur kennari þar við Frk. Langs
skóla. Hann lætur eftir sig ekkju
°g fjögur börn.
Við íslendingar eigum einlæg-
um vini á bak að sjá, þar sem Hol-
ger Wiehe var, og höfum ástæðu
til að minnast hans liðins meö
þakklæti og hlýjum hug.
Dr. J. H.
—Morgbl.
Island og Grænland. Á fundi
Fiskifélagsins í gærkveldi, var
samþykt svohljóðandi tillaga hr.
Óskars Halldórssonar: Fundur-
inn skorar á stjóm Fiskifélagsins,
að leita til Alþingis um alt aö 50
þús. kr. styrk til þess aö gera út
tvö skip, er leiti fiskimiða við
Grænland á komanda sumri. Skal
annað skipið vera botnvörpungur,
en hitt línuveiðaskip, útbúið meö
öll síldar og þorsk veiðarfæri.
Landhelgisgæzla var eitt af þeim
málum, sem rædd vom á Fiskifé-
lagsfundi í gærkveldi, og voru all-
ir á einu máli um þaö, að auka bæri
gæzluna, og að Islendingar sjálfir
létu smíða skip til strandgæzlunn-
ar, sem svij^iðast botnvörpungi, en
öllu hraðskreiðara.—Visir'.
Rvík, 15. febr. 1925.
Af togurunum, sem ekki hefir
til spurst, Leifi hepna og Robert-
son, hefir ekki frézt enn. Þó eru
menn að vona, aö enn geti þeir ver-
ið ofansjávar. En verið getur, að
þeir séu hjálparþurfar. — Fylla,
sem er að leita, haföi í gær farið
um þá leið, sem helzt er hugsan-
legt, að þeir hittust á, en ekki orð-
ið neins vör. En ekki er það
undarlegt, því eitt skip getur auð-
veldlega farið fram hjá þeim á
svo stóru svæði, sem um er að
gera. Félag togaraeigenda -hefir
nú tekið leitarmálið í sínar hendur,
og fara 10 togarar héöan í dag
snemma, mæta öðmm 6, sem eru á
veiðum fyrir sunnan land, og hefja
síðan leitina. Víðir kom inn i fyrra
kvöld, og hafði séö mjög ísaðan
togara 20 mílur SVS af Reykja-
nesi, en eigi sást, að neitt væri að
því skipi. Viðir hefir engin loft-
skeytatæki, og vissi því ekkert um.
að togaran vantaöi.*—Mbl.
Á ársfundi Jóns Sigurðssonar
félagsins hlutu þessar konur kosn-
ingu i stjómarnefnd félagsins á
næstkomandi ári: Hon. Regents:
Mrs. F. J. Rergmann, Mrs. B. J.
Nicholas Longwort, Republican
frá Ohio, hefir verjö útnefndur
sem forsetaefni neðri málstofunn-
ar, en af hálfu Demokrata, hlaut
Finis J. Garnett frá Tennessee út-
nefningu.
• * *
Látinn er í New York, William
Andrews Clark, fyrrum senator
frá Montana. Var hann alment tal-
inn einn auðugasti námueigandi i
heimi. Hann var fæddur í Conn-
ellsville í Pennsylvaniaríkinu árið
1839.
• • •
Neðri málstofan hefir samþykt
þingsályktunar tillögu, borna fram
að Theodore Burton, er krefst þess
að Bandaríkjastjórn viðurkenni
þegar alþjóðadómstólinn ■—World
Court, og taki starfandi þátt i
stofnun þeirri.
» • •
Fullyrt er, að Jakob Gould Schur
man núverandi sendiherra Banda-
ríkjastjórnar í Kína, muni í náinni
framtið hljóta sendiherraembætti á
Þýskalandi. Mr. Schurman var
áöur forseti Cornell háskólans.
----------------o-------
Hvaðanœfa.
Látinn er nýlega stjómmálamað-
urinn nafnkunni, Sun Yat Sen, sá
er kallaður hefir verið faöir hins
kinverska lýðveldis. Varð krabba-
mein honum að' bana. Var hann
fyrsti lvðveldisforseti þjóðar sinn-
ar og þótti í hvívetna hinn merk-
asti maður.
• • •
Fjörutiu smálestir púðurs, sprungu
í loft upp á Caju-eynni, sem liggur
skamt frá Nictheroy í Brazilíu. Átta
menn létu þar líf sitt, en um sex-
hundruð hlutu meiri og minri
meiðsl. Eignatjónið er metið á
freka miljón dala.
• • •
Ráðuneyti þaö á Tyrklandi, er
Ftehi Bey veitti forystu, hefir orð-
ið að láta af völdum. Báru and-
stæðingar stjórnarinnar henni þaö
á brýn ,að hún hefði verið orðin
svo afturhaldssöm, að við slíkt
hefði ekki lengur verið unandi.
* * *
Þjóðbandalagið hefir boöið
Þýskalandi inngöngu með fullum
og ótakmörkuðum meðlimsréttind-
um. Þykir líklegt, að stjórnin taki
boðinu tafarlaust.
# » •
Stjórnarformaður ítalíu, Benito
Mussolini, hefir legið rúmfastur
undanfarnar vikur, en nú sagður
að vera á góðum batavegi.
• * •
Maður einn 130 ára gamall og
steinblindur, búsettur í Lydenburg,
Suður-Afríku, brá sér aö því að
gifta sig núna fyrir skemstu. Um
aldur brúðarinnar er ekki getið.
• • *
Sykurframleiðslan á Queensland,
varð á síðastliðnu ári 200,000 smá-
lestum meiri, en hægt var, að fá
markað fyrir. Af þessu hefir það
leitt, að ákveöiö hefir veriö, að hafa
miklu minna land undir sykurrækt
i ár, en í fyrra. —
• • •
Fyrrum landbúnaðarráðgjafi
ítala, de Capitani, lýsti nýlega yfir
þvi í þingræðu aö hagur landbún-
aðarins á ítalíu hafi stórum breyst
til hins betra, frá því er Mussolini
stjómin kom til valda.
Skýrsla
um fátækraframfæri í Reykjavik
árið 1923 hefir nýlega verið birt.
Em þar upp taldir allir þeir, sem
styrks hafa notið úr bæjarsjóði á
árinu, greint frá upphæð styrksins
til hvers einstaklings og ástæðan til
styrkveitingar. Með þvi að skýrsla
þessi mun vera í fárra manna hönd-
um, þykir ekki úr vegi, aö birta hér
nokkurt ágrip af henni.
Fyrst er skrá um þurfamenn, er
sveitlægir eru í Reykjavik, styrk-
veitingar og endurgreiöslur.
Styrkveitingar til þeirra námu
alls kr. 259606.41 (áriö áður kr.
213810.58). — Endurgreiðslur
námu kr. 14572.47, en þar af voru
165 kr. endurgreiddar af dýrtíðar-
lánum. — Styrkþegar voru 325,
en 283 næsta ár á undan. —■
Styrkveitingum er skift niður í
þessa flokka:
r. styrkur vegna ellilasleika kr
42138.64.
2. styikur vegna veikinda kr.
86430.63.
3. styrkur vegna ómegðar kr.'
57106.88.
börn í ómegð kr. 28951.37.
5. styrkur veittur fráskildum kon-
um kr. 4698.50.
— erfiðleika ófriðaráranna. Því
að H. W. hafði það fram yfi»*
tlesta aðra útlendinga, sem hing-
að hafa fluzt til lengri dvalar, aö
honum bótti verulega vænt um
hvorttveggja, landið okkar og
þjóðina, enda haföi hann áður en
hingað 'kom fylgst manna bezí
með íslenzkum málum, og verið
boðinn og búinn að taka málstab
okkar, er honum fanst á okkur
hallað. Og alt, sem hann skrifaði
Brandson; Regent: Mrs J. Thorpe;
ist Vice Reg.: Mrs. H. Lindal; 2nd
Vice Reg.: Mrs. J. K. Johnson;
Sec’y: Miss G. Magnússon; Corr.
Sec’y: Mrs. G. Jónsson; Ed. anc
“Echoes” Sec’y: Miss E. Thor-
valdson; Treas.: Mrs. P. S. Páls-
son; Stand. Ber.: Mrs. E. Hanson.
CounciIIors: Mrs. Finnur Tohnson,
Mrs. J. J. Bildfell, Mrs.‘ W. G.
Simmons, Mrs. Th. Johnson, Mrs.
J. Smith.
Hon. Wiiliam Pugsley.
Fyri.r skömmu var þess getið hér
i blaðinu, aö látist heföi i Toronto
Hon. William Pugsley fyrrum ráð-
gjafi opinberra verka í stjórn Sir
Wilfrids Laurier. Er með honum í
val falinn, einn hinn áhrifamesti
stjórnmálamaður canadisku þjóð-
arinnar í seinni tíð, — maður, sem
var elskaöur af skoðanabræðrum
sínum, en jafnframt virtur undan-
tekningarlaust af öllum andstæð-
ingum, er eitthvað þektu til hans.
Mr. Pugsley, var mælskumaður,
stefnufastur og hreinskilinn, en
svo nærgætinn í orði, hve bitrir
andstæðingar, sem í hlut áttu, að
alment var á orði haft, jafnt utan
þings sem innan.
Árið 1885 var Mr. Pugsley kos-
inn á fylkisþingið í New Bruns-
wick. Sat hann á þingi þar til 1892,
að hann sagði af sér. Fjórurn árum
síðar leitaði hann kosningar til
sambandsþingsins i St. John, en
beið lægra hlut. Þrem árum seinna
var hann kosinn á ný á fylkisþing-
iö og tókst þá á hendur dómsmála-
ráðgjafaembættið i stjórn þeirri, er
Hon. L. J. Tweedie veitti forystu.
Árið 1907 varð Mr. Pugsley for-
sætisráðgjafi í New Brunswick.
Ekki gegndi hann því starfi lengi,
því nokkrum mánuðum síðar lét
hann af því embætti og bauð sig
fram að nýju til sambandsþingsins
i St. John borg og náði kosningu
með miklu afli atkvæða. Kvaddi
Sir Wilfrid Laurier hann þá sam-
stundis til ráðgjafatignar í stjórn
sinni og fékk honum á hendur ráð-
gjafaembætti opinberra verka.
Gegndi hann því embætti þar til
Laurierstjómi.n féll í kosningunum
1911. Eftir fall Laurier’s átti Mr.
Pugsley sæti á þingi, þar til 1918,
að hann var skipaður fylkisstjóri í
New Brunswick. Hélt hann þeirri
tignarstööti í fjögur ár, en var ár-
ið 1923 valinn af núverandi stjórn-
arformanni, Rt. Hon. W. L. Mac
Kenzie King, til að skipa forsæti i
nefnd þeirri, er rannsaka átti
skaöabótakröfur Canadamann?. á
hendur Þjóðverjum.
Hon. William Pugsley var fædd-
ur að Sussex, N. B. hinn 20. dag
septembermán. árið 1850. Fulln-
aöarprófi í lögum, lauk hann 27.
júní, 1872 og tók samstundis að
gefa sig við málafærslu Hann var
tvíkvæntur og lætur eftir sig einn
son, af fyrra hjónabandi.
Hinn látni forseti
Þjcðverja.
Það mundi hafa gengið dular- ■
fulum fyrirbrigðum næst, ef ein-
hver heföi spáð því, aö söðlasmíða-
neminn Ebert, yrði síðar forseti
Þýskalands, þess lands, þar sem
keisaradýrkunin og hervaldsfrægð-
in haföi komist á hæst stig. Samt
varð sú raunin á, aö keisarinn varð
að flýja land, en við stjórnartaum-
unum tók í hans stað, þessi hóg-
láti og hygni söðlasmiður, sem ekki
var ver við nokkurn skapaðan hlut
í víöri veröld, en sjálfsdýrkunina.
Ekki getur hjá því farið, að
Ebert forseti hafi stundum þurft
að stýra stjórnarfleyinu gegn um
brim og boða, önnur eins ókyrð og
að sjálfsögðu var komin á hugs-
analíf þjóðarinnar, eftir blóðsút-
hellingarnar og ósigurinn. En þess
er hvergi getið, að skipstjórinn hafi
nokkru sinni mælt æðru orð. Hann
unni lýðstjómarhugmyndinn af
heilum hug og bar djúpa lotningu
fyrir hinni nýju stjómarskrá þjóð-
ar sinnar.
Stjórnarskifti voru engin nýjung
í forsetasæti Eberts. En þaö stóð
alveg á sama hver meö völdin fór,
hann sýndi í breytni sinni við þá
alla, sömu festuna, og sömu vin-
gjarnlegu einurðina. Þessvegna
naut hann ávalt sama traustsins
hvernig svo helst, sem ráðuneyti
hans var mannað.
Þegar tillögur Dawesnefndarinn-
ar í skaðabótamálinu, voru gerðar
heyrinkunnar, lýsti forseti yfir
fylgi sínu viö þær tafarlaust, við-
urkendi, að þótt sitthvað mætti að
þeim finna, þá væru þær samt á-
kveðið spor í rétta átt, til þess aö
greiða fram úr skaðabótaflækjunni.
Samkvæmt stjómarskrá Þýska-
1ands, skal forsetinn kosinn til sjö
ára. Átti Ebert ekki eftir nema
örskamman tima, til að útenda
forsetatímabil sitt.
Ekki allfáir virðast þeirrar skoð-
unar, að fráfall Eberts og nýjar
’cosningar geti auðveldlega leitt til
íýs stjórnmálaöngþveitis á Þýska-
’.andi og jafnvel veitt keisarasinn-
um og hermáladýrkendunum að-
gang aö völdunum. Á hverju helst
sem ótti sá kann að vera bygöur,
þá er hitt þó víst, að lýðstjómar-
fyrirkomulag Þýskalands, er svo
ungt og óharðnaö enn, að það þol-
ir ekki miklar ágjafir, nema þá þv!
aðeins aö við stýrið sitji gætinn
foringi, sem reyndur er að skap-
festu og dáð. Vera má að vekjast
kunni upp með þjóiðinni einhver
slíkur leiötogi, og er þá vel.
Orherbúðum sambands-
þingsins.
Siðastliöna viku flutti verzlunar-
ráðgjafinn, Hon. Thomas A. Low,
snjalla ræöu um einokunarhring
eimskipafélaganna, og sýndi fram
á meö óhrekjandi rökum, að við
svo búið mætti ekki lengur standa,
Canadiskir bændur væru f legnir inn
að skyrtunni og hefðu verið til
fleiri ára. Taldi hann hinn fyrir-
hugaða samning við Peterson eim-
skipafélagið, veröa mundu til stór-
bóta og knýja fram heilbrigða sam-
kepni, hvað snerti flutningsgjöld
með eimskipum, milli canadiskra
og breskra hafna. Aö undanskilinni
þessari ræðu og umræðum þeim, er
út af henni spunnust, geröist fátt á
þingi síðustu viku, það er tíðindum
þykir sæta.
Mr. Low lagði áherslu á það, að
fyrir tveimur árum, heföi sérstök
þingnefnd, undir forystu Andrew
R. McMaster frá Brome (Quebec)
tekið landbúnaöarmálin til ná-
kvæmrar yfirvegunar og sömuleðis
flutnngsgjöldin á afurðum cana-
diskra bænda, meö eimskipunum.
Hefði sú nefnd þegar komist aö
þeirri niöurstöðu, að um einokun
væri að ræða af hálfu eimskipafé-
laganna, er beinlínis stæði i vegi
fyrir eðlilegum þroska landbúnaö-
arins. Preston-tíllögurnar væru í
raun og veru ekki annaö en fram-
hald af starfi hinnar fyrri nefndar,
aðeins nokkru víðtækari, með því
aö höfundur þeirra hefði átt greið-
ari aðgang að sönnunargögnum,
máli sínu til stuönings, austan við
haf.
lhaldsmenn mótfallnir tiUögum
Prestons.
Andstæðingaflokkur stjórnarinn-
ar, undir forystu Arthur Meighens,
virðist næsta andivíguF Prteston-
tillögunum. Ekki hafa þó þingmenn
þess flokks, séö sér beinlínis fært
að neita því, aö einokun ætti sér
stað. En er þeim augsýnilega ekki
ljúft að viðurkenna, að Mr.
Preston skyldi verða fyrsti maö-
urinn, er hugrekki haföi til að kveða
upp úr meö einokunarathæfi eim-
skipafélaganna, og að frjálsylnda
stjómin skyldi eiga upptökin að
rannsókn þessari.
Mr. Low kvaö sér koma þaö
cynlega fyrir, að háttvirtir þing-
menn íhaldsflokksins, skyldu að
óessu sinni vera að bera í bætiflák-
ann fyrir eimskipafélögin, þar
sem á allra vitorði væri, að tveir af
mestu áhrifamönnum þess flokks,
heföu ekki alls fyrir löngu átt sæti
í nefnd, sem komist hefði að þeirri
niðurstöðu, að einokun á flutnings
gjöldum með skipum, milli brezkra
og canadiskra hafna ætti sér stað,
og væri að sjálfsögðu bændum og
búalýð til hins mesta óhags. Ann-
ars kvaðst ráðgjafinn ekki í nokkr-
um minsta vafa um, að mikill meiri
hluti þings, mundi verða stjórninni
þakklátur fyrir tilraunir hennar í
þessu máli, og sama mætti vafalaust
segja um þjóöina í heild sinni. Sér-
stök þingnefnd hefir verið skipuð
til aö athuga þetta mikilvarðandi
mál frá öllum hliöum. Verður öllum
aðiljum jafnt veittur réttur til aö
mæta fyrir nefndinni til sóknar og
varnar málstað sínum.
Bændaflokksþingmenn bíða átekta.
Nokkrir af þingmönnum bænda-
flokksins, hafa þegar tjáð sig mót-
fallna þeirri aðferö ,að stjórnín
legði fram fé til Peterson’s eim-
skipfélagsins, eða nokkurs annars
félags, eins og sakir stæöu. Aftur
á móti hefir leiðtogi flokksins lýst
yfir þvi, að svo fremi aö sannað
verði, að eimskipafélögin hafi ein-
okað á flutningsgjöldum, þá muni
hann hiklaust greiða atkvæöi með
uppástungum stjórnarinnar í mál-
inu og hið sama muni meirihluti
flokksbræðra sinna gera.
f vikulokin var afgreiddur, að
heita mátti umræðulaust. sá samn-
ingur stjórnarinnar við Bandaríkin,
er það hefir að markmiði, að út-
rýma vir.smyglun. Skal hann gilda
í eitt ár, en vera uppsegjanlegur að
þeim tíma liðnutn, með ]>rjátiu daga
fyrirvara.