Lögberg - 02.07.1925, Blaðsíða 6
a». 6
LÖGBERG FIMTUDAGINN,
2. JÚLÍ 1925.
Stefán Stefánsson,
fyr?. alþm.
Eins og stuttlega var um getið
í síðasta tbl., andaðist Stefán
Stefánsson fyrv. alþm. í Fagra*
skógi aðfaranótt 25. f. m. Hann
d:«,úr lungnabólgu; var á heimleið
fri Akureyri, er hann kendi veik-
innar, settist að á Hjalteyri, hjá
dóttur sinni, og lá þar þungt hald-
inn nokkra daga og dó þar.
Hann var tæpra 62 ára, fæddur
29. júní 1863 á Kvíabekk í Ólafs-
firði, sonur séra Stefáns Árna-
sonar, sem þar var þá prestur, og
konu hans Guðrúnai Jónsdóttur
bónda á Brúarstöðum í Fljótum.
Séra Stefán Árnason fékk síðar
Háls í Fnjóskadal cg þar ólst
Stefán alþm. upp. Hann fór á ibún-
aðarskólann á Eiðum og útskrif-
aðist þaðan 1885. Var síðan eitt ár
á Möðruvallaskóla. En árið 1890
kvæntist hann Ragnheiði Davíðs-
dóttur prófasts á Hofi i Hörgár-
dal, keypti um sama leyti Fagra-
skóg, fór að búa þar og bjó þar
síðan til dauðadags.
Árið 1901 var hann kosinn þing-
maður Eyfirðingá og hefir síðan
setið á öllum þingum, sem full-
trúi þeirra, fram til 1924, nema
þinginu 1903. Sýnir þetta bést hve
mikils trausts Stefán naut heima
í hérað sinu. Hann brást ekki
heldur því trausti, en >mr kjör-
dæmi sínu þarfur þingmaður og
fylgdi hann fast fram áhugamál-
um kjósenda sinna. Hann var vin-
sæll maður á þingi, eins og heima
i héraði, samviskusamur maður og
réttsýnn, athugull og gætinn, og
yfir hðfuð góður þingmaður.
í sveit sinni og héraði tók hann
mikinn þátt f almennum málum
og gegndi þar altaf hinum ábyrgð-
armestu störfum í almennings-
þarfir. Hann var hreppstjóri og
sýslunefndarmaður, formaður
sparisjóðs og /búnaðarfélags
hrepps síns o. s. frv. Búmaður var
hann talinn góður og heimili hans
hið mesta rausnarheimili.'Sveitin
og héraðið hefir því mikils mist
við fráfall hans.
Stefán var gerfilegur maður,
fríður og vel,vaxinn og karlmenni
að burðum; glaðlyndur maður og
félagslyndur.
Frú Ragnheiður lifir mann sinn
og 7 börn þeirra hjóna, hið yngsta
14 ára. Meðal þeirra eru Davío
skáld nú á Akureyri, og Stefán
lögfræðingur hér í bænum.
Lögrétta.
ÚR HAFNARFIRÐI.
Það er byrjað á viðbótarbygg-
ingu við hafskipabryggjuna. Er
ætlunin að stækka bryggjuna svo
hægt verði að afgreiða fjögur skrp
samtfmis; nú er aðeins hægt a3
afgreiða þar tvö skip. Er þessf
stækkun 'bryggjunnar eitt hið
mesta nauðsynjaverk fyrir Hafn-
arfjarðarkaupstað, því útvegurinn
hefir tekið svo stórfeldum fram-
förum þar nú síðasta árið. Félag
einstakra manna á hafskipabryggj
una; heitir það “Félag skipa-
bryggju Hafnarfjarðár.” Er á-
ætlað að aukning sú, er félagið
ræðst nú í, kosti nálega 150 þús.
krónur.
FRÁ ÍSAFIRÐI 25. maí.
Mokafli í Djúpinu á skelfisk-
beitu. Á árabát einum fengust í
gær yfir 4000 pund. Á Álftafirði
varð vart smásíldar, fengust sex
tunnur. Á þeim vélbátum, sem
beittu þeirri síld, varð hiaðafll.
Undir Jökli er Fisklaust. — Tíð
hagstæð.
FRÁ SAUÐÁRKRÓKI.
Á nýafstððnum kaupfélags.
fundi var þar samþykt, að skora
á stjórn Sambandsins, að hlutast
til um, að samvinnulögunum verði
breytt í þá átt, að hin ótakmark-
aða samábyrgð verði afnumin. Að
eins tveir fulltrúar greiddu at-
kvæði gegn tillögu þessari.
Á fundinum var og borin fratn
tillaga um það, að skora á Sam-
bandsstjórnina, að takmarka fjár.
framlagið til blaðanna, Tímans og
Dags, eins og áður var. Veittar
yrðu 4000 krónur til að semja rit-
gerðir um sanyvinnumál og annað
ekki.
Minningarsjóður Helga læknis
Guðmundssonar á Siglufirði.
28. maí átti Helgi Iæknir" Guð-
mundsson 70 ára afmæli. Skömmu
eftir hádegi fóru nokkr-
ir borgarar bæjarihs heirn til hans
með 1000 krónu gjðf frá Siglfirð-
ingum, er stofna skyldi af minn-
ingarsjóð, er bæri nafn læknisins.
Síðar um daginn fóru bæjarbúar
í fjölmennri skrúðgöngu suður
að heimili læknisins og vottuðu
honum þakkar- og virðingarvott
fyrir Janga og góða þjónustu I
þágu heilbrigðismála Siglfirðinga.
Um kvöldið Kafði hinn sjötugl
en sí-ungi læknir fjölment boð innl
er stóð fram á nótt við glaum og
gleði.
Gjörðabók kirkjuþingsins.
Framh. írá 2. bls.
Forseti tilkynti, að virðulegur sendiboði National Lutheran
Council væri nú reiðubúinn að ávarpa þingið, samkvæmt undan-
gengnum ákvæðum þar að lútandi. Flutti þá Dr. J. A. Morehead
skörulegt og stórmerkilegt erindi um hið umfangsmikla og merkilega
verk Nat. Luth. Council. Bar hann og um leið fram tilboð til kirkju-
fél. um áframhaldandi samvinnu við þann merkilega félagsskaþ.
Þá er Dr. Morehead hafði lokið ræðu sinni, tdnefndi forseti séra
J. A. Sigurðsson, fyrir hönd þingsins, að svara ávaxpinu. Þakkaði
Dr. Morehead fyrir svarið og var síðan sungið sálmsvers kl. 12 á
hádegi, og fundi frestað til kl. 2 e. h. sama dag.
ÞRIDJI FUNDUR—kl- 2 e-h. sama dag.
Við nafnakall voru fjarverandi: séra Rúnólfur Marteinsson og
séra H. J. Leó.
Samþykt var, að veita séra R. O. Sigmond, prófessor við Jóns
Bjarnasonar skóla, er kominn var til þings, málfrelsi i þinginu, sam-
kvæmt tillögu séra Haraldar Sigmar.
Ávarpaði séra Sigmond síðan þingið.
Þá lagði séra Jónas A. Sigurðsson fram fyrir hönd dagskrár-
nefndar þetta nefndarálit:
Til kirkjuþingsins 1925—
Dagskrárnefnd þingsins leggur til, að þingið taki eftirfarandi
mál til meðferðar:
1. Heimatrúboð.
2. Heiðingjatrúboð.
3. Sunnudagsskólamál.
4. Ungmennastarfið. .........
5. Jóns Bjarnasonar skóli.
6. Betel.
7. Útgáfumál. ,
8. Fjármál.
9. Styrkur til ekkju séra Adams 1 Þorgrímssonar.
10. Nat. Luth. Council og Luth. World’s Convention.
Að þingið ítreki þau ummæli forseta kirkjufélagsins, er lúta að
hinum sára missi, er kristindómsstarf vort varð fyrir við andlát séra
Adams Þorgrímssonar og tjá ekkju hans og börnum hjartanlegustu
hluttekning.
Að þingið þakki embættismönnum sínum og starfsmönnum fyrir
vel unnið verk á liðnu ári og minnist sérstaklega séra Friðriks Hall-
grímssonar og þess missis, er burtför hans er þingi og kirkju.
Á kirkjuþingi 19. júní 1925.
/. H. Hannesson.
Klemens Jónasson.
Jónas A. SigurSsson.
Var þá tekið fyrir 1. mál á dagskrá: Heimatrúboð.
Samþykt var, að málið sé sett í 5 manna þingnefnd. í nefndina
voru skipaðir: séra N. S. Thorlaksson, Tómas Halldórsson, Finnur
Johnson Mrs. Sigríður Tergesen og Gísli Egilssop.
Þá var tekið fyrir 2. mál á dagskrá: Heiðingjatrúboð. —
Samþykt var að setja það mál í 5 manna þingnefnd. í nefnd-
ina voru settir : séra J. A. Sigurðsson, Thorbergur Halldórsson,
sera Páll Sigurðsson, Mrs. María Árnason og Runólfur Benson.
Þá var næst tekið fyrir 3. mál á dagskrá: Sunnudagskólamál.
t Samþykt var að vísa þvi máíi til 5 manna þingnefndar. 1 nefnd-
ina voru sett þau: J. J, Swanson, séra Sig. Ólafsson, Jón Hannesson,
Mrs Guðný Frederickson og Mrs. Violet Ingjaldsson
Samþykt var, að fresta 4. máli á dagskrá: Ungmennafélög, þar
td erindreki frá ungmennafélögunum sé kominn til þings.
Pá var tekið fyrir 5. inál á dagskrá: Jóns Bjarnasonar skóli.
Samþykt var áð visa því máli til 9 manna þingnefndar. 1 nefnd-
ina voru skipaðir: Arni Eggertsson, séra Rúnólfur Marteinsson,
Ólaför Ihorjacius, K. S. Askdal, Gunnar Hallsson, Tryggvi Ingj-
aldsson. H. J. Christie, Árni Árnason og Bjarni Ingimundarson.
Þa var tekið fyrir 6. mál á dagskrá: Betel — Samþykt var, að
fresta því máli. / %
Þa var tekið fyrir 7. mál á dagskrá: Útgáfumál. — Samþykt
var, að vísa því máli til 5 manna nefndar. í nefndina voru skipað-
ir: G. B. Björnsson, O. Anderson, Valdimar J. Eylands, Helgi
Thorlaksson, og Gunnl. Oddson.
Þá var tekið fyrir 8. mál á dagskrá: Fjármál. — Samþykt var
að vísa þvi til fjármálanefndar og að kosnir séu tveir menn í viðbót
i nefndma, samkvæmt aukalaga-breyting frá kírkjuþingi 1922. Kosn-
jr voru þeir Klemens Jónason og séra H. Sigmar.
/ Þá var tek'ð fyrir 9. mál á dagskrá: Styrkur til ekkju séra Ad-
ams horgrímssonar. — Sér B. B. Jónsson lagði til, að málið sé sett
í 3 manna nefnd. Finnur Johnson gerði þá breytingartillögu, að
málinu sé visað til fjármálanefndar. — Breytingartillagan borin upp
og feld. Aðal tillagan svo borin upp og samþykt. I nefndina skip-
uö: Dr. B. B. Jónsson. Mrs. Briem og Mrs. H. Helgason.
Þa var tekið fyrir 10. mál á dagskrá: National Lutheran Coun-
cil og Lutheran IVorld 'Coiivention.
Samþykt var, að vísa þvi máli til 5 manna nefndar. í nefndina
skipaðir. séra H. Sigmar, séra J. A. Sigurðsson, Gamalíel Þor-
leifsson, séra Guttormur Guttormsson og séra S. S. Christopherson.
Séra H. Sigmar tilkynti fyrir hönd kjörbréfanefndar, að nefnd-
in legði til, að hr. kand. Valdimar J. Eylands sé veitt full þingrétt-
indi. Samþykt í einu hljóði.
Með því að öll þingmál voru nú komin í nefndir, var samþykt
að hafa fundarhlé frá kl. 3.20 til kj. 4 e. h.
Áframhald fundar kl. 4 e. h. — Rætt um, með hvaða móti gefa
skyldi út Gjörðabók. V ar samþykt að fylgja sömu reglu og í fyrra,
sem sé, að fá hana fyrst prentaða í Lögbergi og síðan prentaða í
bókarformi V ar svo fundi frestáð þar til kl 8 e h sama dag
f " ,
FJÓRDI FUIfDUR—kl. 8 e. h. sama dag.
Fundurinn byrjaði með bænargjörð, er séra Páll Sigurðsson
stýrði. — Fjarverandi við nafnakall voru: séra Sig. Ólafsson og R
S. Benson.
y
Flutti þá séra Tiúnólfur Marteinsson fyj-irlestur, er hann nefndi:
“t>AR SEM GARÐURINN ER LÆGSTUR.’’
V ar honum að fyrirlestrinum Ioknum greitt þakklætisatkvæði með
því, að allir stóðu á fætur, samkvæmt tillögu séra N. S- Thorlaksfcon-
ar. Var svo stinginn sálmur og fundi síðan frestar þar tiUkl. 9 f.h.
næsta dag.
%
FIMTI FUNDUR—kl 9 f. h. þ. 20. júní.
Fundurinn hófst með bænargjörð, er séra S. &. Christopherson
stýrði. — Fjarverandi við nafnakajl voru, með /eyfi forseta, þau:
Mrs. Sigríður Tergesen og R. S. Benson-
Gjörðabók 1„ 2., 3. og 4. fundar Iesin og staðfest.
Fyrir hönd kjörbréfanefndar skýrði séra H- Sigmar frá, að til
þrngs væri kominn Thorsteinn J. Gíslason, erindreki Guðbrands-
safnaðar. Bauð forseti hann velkominn. Skrifaði hann svo undir
játningu kirkjuþingsins og tók sæti sitt í þinginu.
Þá var tekið fyrir á ný fyrsta mál á. dagskrá:
Heimatrúbað.
Fyrir hönd þingnefndar í því máli, lagði séra N. S. Thorlaks-
son fram þetta nefndarálit: >
Herra forseti I Nefndin í Heimatrúboðsmálinu leggur til:
aj Að þingið biðji séra Jónas A. Sigurðsson að heimsækja Swan
River bygðina og gera tilraun til að reisa við söfnuðinn þar og koma
á fót aftur safnaðarstarfi.
bj Að séra Carl J. Olson sé beðinn að heimsækja söfnuðinn i
Brandon eftir ástæðum.
c) Að þingið láti ánægju sína i ljós út af því, að Betel söfn-
uður skuli hafa beiðst prestlegrar þjónustu af séra *S. S. Christoph-
erssyni og mæli sterklega með því, að hinir söfnuðirnir prestlausu
þar i grendinni beiðist þess hins sama af honum.
dj Að öðru leyti sé málið í höndum framkvæmdarnefndarinnar
og henni falið að gera alt það, sem þarfir heimta og ástæður leyfa
því til eflingar.
Á kirkjuþingi, 20. júní 1925.
N. S. Thorlaksson.
Thomas HaUdórsson.
G. Egilsson.
Finnur Johnson.
Þegar nefndarálitið hafði verið lesið, gat séra R- Marteinsson
þess, að séra Carl J. Olson hefði veitt söfnuðinum í Brandon nokkra
prestsþjónustu á liðnu ári.
Var nefndarálitið síðan tekið fyrir lið fyrir lið.
Voru 1., 2. og 3. liður lesnir og samþyktir.
í staðinn fyrir 4. lið gerði séra Jóhann Bjarnason þá tillögu, að
þingið veiti séra S. S. Christopherson $300 til heimatrúboðsstarfs á
árinu. Tillöguna studdi séra Hjörtur J. Leó.
Lán úr Minningarsjóði........................... 13,631.55
Skuldir alls.................$19,631-55
Mismunur ("Byggingarsjóður) ............. 1,436.30
$21,067.85
Yfirskoðað í Winnipeg 18. júni 1925.
T. E- Thorsteinsson.
F. Thordarson-
Stephcn Johnson Memorial Fund. ,
Tekjur—
í sjóði frá fyrra ári............................. $ 16.00
Árs-ifirður......... /........................... 300.00
$316.00
Útgjöld—
Styrkveiting til nemenda við J. B. Academy .. 30(0.00
Mismunur, í sjóði ................ 16.00
$316.00
Eignir—• f
Peningar í sjóði ........ .... ................ $ 16.00
Eiginvíxill *).................................. 100.00
$316.00
*) Þessi víxill borgaður 19. júní 1925.—S.W.M-
Breytingartillögu gerði Finnur Johnson, studda af Tómaso Hall-
dórssyni: að vísa þessu máli til fjármálanefndar- Breytingartillag-
an var samþykt.
1 sambandi við umræður þær, er fram fóru um heimatrúboðs-
málið, gaf séra H. Sigmar ítarlega, munnlega, skýrslu um starf sitt
á heimatrúboðsvæðinu í Vatnabygðum í Saskatchewan, er hann hefir
stundað jafnframt því að þjóna söfnuðum sínum.
Sa!mþykt var, að veita málfrelsi í þinginu hr. J. Gillies frá
Brown, Man., samkvæmt tillögu Tómasar Halldórssonar. Sagði for-
seti hann velkominn og þakkaði Mr- Gillies fyrir um leið og hann tal-
aði nokkur orð til þingsins.
Þá var tekið fyrir á ný fimta mál á dagskrá:
Jóns Bjarnasonar skóli.
Lagði Dr. Björn B. Jónsson fram, fyrir hönd skólaféhirðis, fjár-
hagsskýrslu skólans:
Minningarsjóður Dr. Jóns Bjarnasonar.
... $' 860.80
5,700.00
... 1,750-92
... % 1,349.60
' 90.00
... 1,031.78
833.34
... 13,631.55
-------------- $25,247 99
... $35,251.90
95.00
—------------ 35,156.90
$60,404.89
Samkvæmt áður birtum skýrslum, var stofn Minningarsjóðsins
$62,904.89. Hlutabréf Columbia Press félagsins voru seld fyrir
$2,500.00. Nafngildi var reiknað $5;000.00.
Ýfirskoðað i Winnipeg, 18. júní 1925.
Efnahagsreikningur—Eignir:
Peningar í sjóði.................
Skuldabréf.......................
Veðbréf og Eiginvíxlar...........
Fasteign (Shaw Land).............
Vextir áfallnir ............. •
Jón Bjarnason Acaúemy.............
Jón Bjarnason Academy.. ..........
J. Bj. Academy fByggingarlán .
Ógreidd loforð:
í byrjun fjárhags tímabilsins .. .
Borgað á árinu .,.............. .
T. E- Thorsteinsson.
F. Thordarson-
Jón Bjarnason Academy. ,
Efnahágsreikningur—Eignir:
Peningar í sjóði.................... $ 89.29
Loforð dborguð ........................ 195.00
Kenslugjöld frá fyrra ári .............. 67.00
Námsstyrkur Stephen Johnson Memorial
Fund ('ógreiddur).................. 300.00
Bókasafn, áhöld og útbúnaður ...... 1,941.91
EJdsábyrgðargjöld fyrirfram borguð 63.40
United Lutheran Church in America .. 833.34
Mismunur........................... 100.18
----------- $3,590.12
Skuldir—
Royal Bank of Canada .................$1,500.00
Minningarsjóður Jóns Bjarnasonar .. 1,031.78
Minningarsjóður J. B.................. 833.34
Vextir af veðskuld fáfallnir en ekki
fallnir í gjalddagaj.............. 2/5.00
$3,590.12 $3,590.12
Yfirskaðað í Winnipeg 18. júní 1925.
T. E- Thorsteinsson.
F. Thordarson.
Rekstursreikningur Jóns Bjarnasonar skóla.
Tekiur:—
Gjafir .................... ..........$3,473.11
Gjafir ('Síðasta árs loforðj ....... 105.0^
----------- $3,578.11
Kenslugjöld greidd....... .... ...............’. 2,266.00
United Lutheran Church, styrkveitfng............. 2,000.00
Arður af Minningarsjóðnum .. .... •........... 325.66
$8,169.77
Gjöid—
Starfslaun kennara og; ^tnnara starfsm. $5,550 00
Unniversity of Manitoba................ 112 00
Prentunar kostnaður, auglýsingar, pappír,
frimerki, excise stamps o. fl. .. 343.95
Vextir..................... ........... 126 93
Ferðakostnaður........................... 116.00
Ýmislegur annar kostnaður.. ,........... 1415
----------- 713.03
Eldiviður..............................$ 411-72
Raflýsing og vatn......................... 115.89
Eldsábyrgð ............................. 56.50
Vextir af veðskuldinni.................... 529.95
Eignarskattur............................. 432.99
Viðgerðir, breytingar o. fl............... 297.01
----------- 1,844.06
$8,107-09
Tekjuafgangur ...................... 62.68
$8.169.77
Yfirskoðað í Winnipeg 18. júní 1925.
T. E- Thorsteinsson.
F. Thordarson■
Skólahúsið á Home Str\ í Winnipeg.
Eignir—
Skólahúsið með lóð, samkvæmt fyrri skýrslu. .$21,067.85
$21,067.85
Skuldir—
Lán gegn fyrsta veði................/ ..........$ 6,000.00
Yfirskoðað í Winnipeg 18. júrií 1925.
T. E- Thorsteinsson.
‘ F. Thordarson•
Þá lagði séra Rúnólfur Martéinsson framl skýrslu skóla-
stjóra: ’ •
(Tramh. á 7. bls.J
Lilja Jóhannesdóttir Gottskálksson.
Fædd 24. maí 1842; dáin 13. apríl 1924
Sælt er að minnast þín móðir,
og muna þær stundir,
er varstu minn vörður í æsku,
og vökurnar lengdir
til arðs fyrir andlegan þroska,
og eins til að vinna
fyrir' því (brauði og blessun,
sem börnin þín nutu.
Sælt er að minnast þín móðir,
því margt var þér gefið
úr dýrara andlegu efni
en auður má veita;
því alls konar stunur og stritið
æ stöfuðu geislum
á vegleysu vankanta hraunsips,
sem varst þú að ganga.
Sælt er að minnast þín móðir,
og myndirnar skoða,
sem greyptust af geislunum þínum
í gárótta bergið.
Þar runnu í rúnir og letur
þær raunir og sæla,
er æskan og árin mín finna
að áttum við saman.
Sælt er að minnast þín móðir,
því morgun er runnfnn,
og nýtt er þér umhverfi orðið
að andlegu ljósi.
Þar veit eg við fáum að finnast,
og fræðast og tala
um Guð, og hið góða og sanna,
sem gátum ei skilið.
Sælt er að minnast þess mamma,
að mundin þín góða
í hættum og háska mig studdi,
og hjúkrun mér veitti;
því ðrugg mig enn muntu Ieiða,
er aftur þig hitti,
á brautinni björtu, sem ]j)rottinn
þig biður að ganga.
Sælt er að minnast þess mammá.
og muna það lengi,
að lítið var æfinnar unnið
í angist og kvíða,
því lifandi orka og iðja
var afl þitt frá Guði;
æ, láttu það lýsa um hraunið
svo Ijósið eg sjái. >
Fyrir hönd dóttur hinnar látnu, Mrs. Á. Eggerts.
son.
i >j J. F.
"mmmmmmmmmmmmmmmmmmmm^mmmmmmmmmammmmmmm
RJOMI
t ‘ - ■ 11 ■■ —
Styðjið heimaiðnað með því að styrkja yðar
eigið félag og fá fult verð fyrir framleiðsl-
una. 1
| Hafið hugfast, að samvinnu markaðurinn er
eini framfaravegurinn að þvi er landúnaðinn
snertir. Látið ekki glepja yður sjónir, farið
að fordæmi annara þjóða, sem hafa sannað, að
samvinnumarkaðs aðferðin er sú eina, er
skapar gott verð á mjólkurafurðum.
SENDIÐ RJOMANN TIL
Thc Manitoba Go-operative Dairies
LIMITKD
0