Lögberg - 12.11.1925, Síða 6

Lögberg - 12.11.1925, Síða 6
8 i. 6 LÖGBEKG FIMTQDAGINN, 12. NÓVEMBER 1925. PEG. Eftir J. Hartley Manners. “Hvernig á eg þá að haga mér?” spurgi Ethel. og leit undrandi á hann. “Á eg máské að biðja um fyrirgefning? Eg hefi þvert á raóti vænst þess, að þér munduð gera það.” Brent umlaði eitthvað óþolinmóður og gekk aftur að. glugganum. Um leið kom Alaric inn um dyrnar. “Góðan daginn, Brent,” sagði hann innilega. “Hvernig líður yður?” “Vel, þökk fyrir,” svaraði Brent, um leið og ihann reyndi að dylja undrun sína yfir því, hve Alaric var óvanalega vingjarnlegur. “Það gleður mig. Og konu yðar líka?” “Já, þökk fyrir.” “Og hinni yndislegu dóttur?” kæfði niður hjá sér ekka. “Hver gæti líka. um- gengist Ethel, án þess að gera það.” “Áreiðanlega enginn,” svaraði Alaric. “Við vitum raunar aldrei hve mikið af endur- bótunum er rótgróið, og hve mikið er uppgerð,” kveinaði frú Chichester. “En eg get þó með sann- færingu sagt hr. Hawkes, að hún er stundum mjög hlýðin og sanngjörn í framkomu sinni.” “Já, tvær mínútur á viku, þegar Jerry er hér. Hún hlýðir honum eins og hundur; hlustar á það, sem hann segir, og hagar sér skikkanlega. En und- ir eins og hann er farinn, /byrjar hún aftur á kækj- um sínum! Hún er sköpuð til að vera kenjafífl.” Alaric hallaði sér aftur á bak á stólnum, og dreifði heita loftinu með hattinum sínum. “Á eg að segja hr. Hawkes þetta?” spurði frú Chichester. “Nei,” svaraði Alaric; “en eg mundi segja að það væri fyllilega unnið fyrir þessum þúsund pundum á ári. Nathanael hefði átt að ákveða tíu þúsund pund — og það er þó of lítið líka. Seg þú honum að við ætlum að halda áfram samkvæmt ósk hins framliðna, og að við höfum von um árangur, þó lítil sé.“ “Já, þökk fyrir.” '■* “Þér verðið að koma með þær einlwerntíma. Það myndi gleðja mömrtiu að sjá þær, og Ethel h'ka. Ethel elskar lítil börn. Er það ekki, Ethel?” Án þess að ibíða svars, sagði hann: “Þrátt fyrir börnin — hefir þú séð Margréti nokkursstaðar?” Ethel laut höfði í áttina til garðsins: “Já — þarna úti.” “Það er ágætt. IMamma vill tala við hana. Við verðum að ráðgasrium ýmislegt viðvíkjandi henni, undir eins. Mamma kemur að augnaibliki liðnu. Þér þurfið ekki að fara, Brent.” Svo flýtti Alaric sér út í garðinn. Brent hljóp til Ethel og sagði: “Eg held til á hótelinu. Sendið mér svar. Eg skal vaka og bíða eftir því í alla nótt.” Hann þagnaði. “Viljið þér?” spurði hann. “Máské,” svaraði Ethel. “Mér þykir leitt ef nokkuð af því, sem eg hefi sagt eða gert, hefir fallið yður illa. Þér megið trúa mér — það er engin ástæða til þess. Ó, ef þ.ér aðeins —” Hann ætlaðPað gripa hana í faðm sinn, en Ethefi gat stöðvað hann á sama augnabliki og móð- ir hennar kom í ljós í stiganum, og um leið kom her- bergisþernan inn um dyrnar. Frú Chichester heilsaði Brent vingjarnlega. Svo sneri hún sér að þernunni og sagði: “Nær sáuð þér frænku mína seinast?” “Það er meira en klukkustund síðan, frú.” “Biðjið þér Jarvis að líta eftir ihenni í garðin- um — í hesthúsinu — á þjóðbrautinni —” “Já, frú,” svaraði þernan «g hljóp út. ‘Afsakið, hr. Brent,” sagði frú Chichester við gestinn. ‘1Eg var að því kominn að fara, frú Chiöhester. Eg fer til útlanda á morgun, og kom hingað í því skyni að kveðja.” “Einmitt það,” sagði frú Chichester. “Þá óska eg yður og konu ýðar þægilegrar ferðar. Þið verð- iS bæði að heimsækja okkur undir eins og þið kom- ið aftur.” “Þökk fyrir,” sagði Brent. “Vevið þér sælar, frú Chiohester'— og —Ethel —” Hann leit þýðingarmiklum augum til Ethel og hvarf. 6 • Ethel varð að ákveða um stefnu ókominnaf æfi sinnar, án þess að ráðgast um það við nokkurn —sízt af öllu móður sína. Frú Chichestar hafði aldr- ei reynt að ná trausti barnanna, og ef þau lentu í vandræðalegar kringumstæður, urðu þau þessvegna að ráða fram úr þeim sjálf, eða fara til óviðkom- andi manna, til að f& rtáðleggingar og hjálp. Ethel varð að taka áform sitt áður en nóttin væri enduð, annars væri það of seint þar eð henni vár ogeðfelt að áforma eiíthvað ákveðið, afréð hún að fresta því þangað til um kvöldið. Það gat skéð að eðli hennar gæfi henni leið- beiningu á þessu tímabili, svo hún þyrfti ekki að ' brjóta heilann um þetta, og þá félli áformið af sjálfu sér, og án þess að ábyrgðin hvíldi Jbeinlínis á henni. En á meðan ihún var að hugsa um þetta kom Alaric þjótandi inn úr gjarðinum. “Margaret. finst hvergi nokkursstaðar,” sagði hann gremjulegur, og fleygði sér í hægindastól. “Þetta má ekki eiga sér stað,” sagði frú Chic- hester hörkulega. “Hr. Hawkes símritar, að hann ætli að koma á morgun og heyra fyrstu lýsingu mína. Hvað á eg að segja honum? Að allir kenn- ararnir, sem eg hefi útvegað henni hafi gefist upp? Enginn íhafi fengst til að vera lengur en eina viku. A eg að segja honum það?” “Það getur þú auðvitað mamma, en ætli það sé hyggilegt?” spurði Alaric. • “Á eg að segja, að engin af þjónustustúlkun- um vilji aðstoða hana? Að hún sýni engan vilja til þess, að stunda námið. Að hún hæðist að fcenn- urunum, hermi eftir þeim og stríði þeim, neiti að læra það, sem henni er fengið, og finni upp á alls- konar gletnibrögðum? Á eg að segja honum það?” “Það væri henni mátulegt, að þú gerðir það; er það ekki satt, Ethel?” sagði Alaric. “Jú,” svaraði Ethel. Á þessu augnabliki komu þjónninn og herberg- isþernan inn úr garðinum, ibæði lafmóð. , “Eg hefi leitað hennar alstaðar frú, en ekki fundið hana,” sagði Bennett. “Ekki í hesthúsinu, heldur ekki á þjóðbraut- inni. Og hundurinn er burtu.” sagði Jarvis, “Pet?” • “Nei, ungfrú. Hann liggur úti á flötinni og nagar bein. Hinn rakkinn.” # “Það er gott,” sagði frúin, og sendi þau út aftur. “Ó, ef eg aðeins gæti hætt við þetta,” sagði hún grátklöikk. “Eg ligg vakandi á nóttunni og hugsa um þetta en hverrtig getum við komist af án þessa mánaðar- gjalds?” / “Eg skal segja þér hvað við eigum að gera,“ sagði hinn vonaríki sonur hennar. “Látum okkur reyna stelpuna einn mánuð ennþá. Látum hana sleppa að þessu sinni, og látum hana svo heyra orð Páls, þegar lögmaðurinn er farinn. Haltu fast í taumana og láttu hana finna að það er alvara.” “Við getum reynt það,” sagði frú Chichester og þurkaði tárin af augunum. “Hún hefir skánað tals- vert, að því er snertir framkomu og siði, og það megum við þakka Ethel fyrir.” Hún leit viðkvæmum augum á dóttur sína og Ákaft hundgá heyrðist nú úti í garðinum. “Pet!” hrópaði Ethel og flýtti sér út. Frú Chichester og Alaric flýttu sér að glugg- anum til að ihorfa út. “Margaret!” hrópaði frúin. “Og völskuhundurinn. Hún æsir hann á Pet. Þarna er lEthel,” sagði hann, þegar systir hans kom hlaupandi yfir flötina og greip þennan vesa- lings skikkjurakka. “Farðu og skildu þá,” sagði frú Chichester. “Nei, eg held nú síður,” svaraði Alaric. “Það verður Ethel að gera. Eg get ékki liðið hunda — get ekki skilið hversvegna hefðarmeyjar eru að dekra við þessi íjótu, lyktvondu dýr, sem urra og (b!ta að ástæðulausu.” Etlhel kom aftur inn gröm í skapi, og hélt á Pet, sem var afar reiður. Hversvegna vogaði þessi óskikkanlega stelpa sér, að láta hundskömmina sína snerta við uppáhaldshundinum hennar? ’Strax á eftir kom Peg með sigurhetjuna Michael í fanginu. í augum hennar fólst gletnis- leg ánægja; hún var lafmóð og all-æst. Fallegi nýi kjóllinn hennar bar merki eftir iblautu lappirn- ar ihans Michael. “Farðu út með hundinn undir eins,”. hrópaði frúin, þegar hún sá Peg. Peg snéri sér við, gekk út í garðinn með Mich- ael og fór að hlaupa og leika sér við hann á flöt- inni. Frú Chichester beið flitla stund eftir henni, hrópaði svo til hennar enn þá hörkulegar en áður: “Margaret! Margaret! Heyrir þú ekki! Eomdu inn undir eins!” / Peg hélt áfram að leika við Mitíhael, og svaraði aðeins: “Jú, eg heyri.” “Komdu hingað!” • “Má Michael koma líka?” spurði Peg. “Þú átt að koma og láta hundinn vera kyrran úti.” I “Ef iMichael má ekki koma inn, þá vil eg held- ur ekki koma,” sagði Peg. “tíerðu eins og eg segi. Komdu undir eins,” skipaði frúin. Peg batt Michael við dyrnar á sólbyrginu og kom með hægð inn í stofuna. “Hvar hefir þú verið?” spurði frúin. “Niður víð sjóinn,” svaraði Peg kæruleysislega. “Hefi eg ekki sagt þér, að þú megir aldrei fara í burt ein?” “Jú.” “Hversvegna ert þú þá svona óhlýðin?” “Eg mátti til að vera það.” ‘“Þú máttir til?’ ’ “Já.” t “Hversvegna? ef eg má spyrja. “Það þurfti að baða Michael, og svo tók eg hann með mér ofan að sjónum og baðaði hann. Honum líkar bað.” “Það áttu að .láta þjónana annast um. Veist þú það efcki?” “Þeir hata Micihael og eg hata þá. Eg vil ekki láta þá snerta hann.” »“Þú varst með öðrum orðum sagt, óhlýðin skipan minni.” “‘Já, það var eg.” “Finst þér það vera viðeigandi framkoma gagn- vart móðursystur þinni?” ‘Máské eficki. En eg haga mér nú þannig samt sem áður.” “Óskir mínar hafa þá enga þýðingu hjá þér?” Gamla hefðarkonan virtist vera mjög hrygg, um leið og hún var reið, Peg varð undir eins auð- mjúk og reyndi að bæta úr þessu aftur. “Jú, það hafa þær, frænka —- það’hafa þær sannarlega.” “Líttu á kjólinn þinn!” kallaði frúin alt í einu. Hún hafði tekið eftir blettunum eftr lappirn- ar á Michael. Peg leit niður og sagði kæruleysislega: “Þeir ihverfa; það er Michael, sem hefir látið þá þama.” Frú Chichester horfði hörkulega á blóðrauða andlitið ungu stúlkunnar, umkringt hrokknum hár- lokkum, sem Bennett hafði gréltt svo fallega um morguninn, en. héngu nú mjög óreglulega niður. ‘IQetur þú aldrei lært að h$lda hárinu á þér í steUingum? Hvað ætli verði úr þér?” “Eg vona að lenda á bmnum að lokum, eins og allir góðir katólíkar,” sagði Peg. Frú Ohichester sneri sér'frá henni með örviln- unar svip. “Eg hætti við þetta! Eg bætti við þetta!” sagði hún með grátklökkri rödd. “Eg geri alt sem eg get, og þú — þú —” Hún þagnaði snöggvast, og sagði svo: “Eg skií þig ekki? Eg sjcil þig ekki!” “Þessi sömu orð hefir faðir minn alt af sagt,” sagði Peg áköf. “Og þegar hann getur ekki skilið mig, er lítil von til að aðrir geti það. En eg skal segja þér hvað eg held það sé. Eg held að það búi í mér dálítill djöfull, sem af og til kemur j Ijós.” “Djöfull?” hrópaði frú Chichester mjög skelk- uð. “Já, frænka,” sagði Peg alvarleg. “Að þú skulir leyfa þér að brúka slíkt orð — við mig.” “Eg brúka það um sjálfa mig. Eg vejt ekk! hvort þú munir líka hafa vondan anda í þér. En eg held, að eg hafi hann sjálf.” Frú Ohichester gaf henni Ibendingu að þegja, og sagði: “Á morgun á eg að gefa hr. Hawkes mína fyrstu lýsingu af þér.” Peg hló hátt, en áttaði sig svo strax “Af hverju hlær þú?” spurð frænka hennar byrst. “Eg hugsaði að eins um, bvað þú mundir segja honum.” “Eðli þitt er fyrir neðan alla gagnrýni.” “Já, frænka.” “Hvað á eg þá að segja hr. Hawkes?” “Seg þú honum sannleikann, frænka, og kast- aðu allri ábyrgðinni á djöfulinn.” “Margaret!” Gamla konan leit óttaslegin á hana. “Fyrirgefðu frænka,” sagði Peg iðrandi. “Langar J)ig ekki til að vera hér?” spurði frú- in. “Stundum langar mig til þess, stundum ekki.” “Geri eg ekki alt fyrir þig?” “Jú frænka.” “Hversvegna ert þú þá alt af óhlýðin við mig?” “Eg býst við að það stafi af erfðasyndinni,” sagði Peg hugsandi. - “Hvað þá?” hrópaði frú Chichester aftur all- skelkuð. | ? “Hún er sannarlega góð!” sagði Alaric hlæj- andi. Peg mótmælti og Alaric þagnaði. Ethel gaf þeim engan gaum. Peg settist við Mið frænku sinnar og fór að segja henni hvað hún meinti: “Þegar eg var barn og var óskikkanleg, sagði pabbi alt af að það kæmi af erfðasyndinni í mér, og að mér skyldi ekki vera hegnt, af því að eg gæti ekki gert við því. Hann var vanur að hegna sjálf- um sér fyrir mína galla. Og þegar eg sá að hon- um féll þetta afar þungt, varaðist eg að gera það aftur, um nokkurn tíma að minsta kosti. Þetta var góð fyrirmynd til að ala upp dóttur Sína eftr. Síðan eg kom hingað, hefi eg hugsað um það, hvort móð- ursystir mín gæti alið upp systurdóttur sína þann- ig.” Hún leit egnandi til frú Chichester. “Setjum svo til dæmis, að þú vildir hegna sjálfri þér fyrir alt það ranga, sem eg geri og að mér sárnaði það svo, að eg gerði það aldrei oftar— þó eg geti ekki ábyrgst það. Eg held að pabbi þekki mig betur en eg geri.” “Faðir þinn hefir hlotið að hafa mjög léleg áhrif á þig,” sagði frú Chichester skapþung. “Nei, þvert á móti,” mælti Peg æst. “Pabbi er sú ibesta manneskja.” "Margaret,” greip frú Chichester fram í fyrir henni. Peg leit til jarðar og sagði dauflega: “Haffn hefir þá haft það, samt sem áður.” “Hefi eg ekki sagt þér, að þú megir ekki mót- mæla mér?” “En þú mótmælir mér alt af.” “Þegiðu.” “Það er ekki réttlátt að þú mótmælir mér, og að eg fái ekki leyfi til —” “Viltu þegja?” “Já, frænka. En þá verður þ"u að vera svo góð, að tala ekíki um föður minn eins og þú gerir. Það kvelur mig. Eg elska föður minn —” “Vilt — þú — þegja?” “Eg skal þegja.” Peg settist aftur á stólinn, hún stundi þungan og barði hnefunum saman. , Frænka hennar kom svo með eftirfylgjandi uppástungu: “Ef eg samþykki að annast um þig eftirleiðis, viltu þá lofa mér að gera það sem þú getur til þess, að ná framförum á þeim mánuði, sem kemur.” “Já frænka.” svaraði Peg hiklaust. “Og ef eg ræð nýja kennara henda þér, vilt þú þá lofa því að reyna að láta þér þykja vænt um þá?” “Já, frænka.” “Gott. Byrjaðu þá í kvöld. • "Með hvað?” spurði Peg áköf. “Sæk þú bæ&urnar þínar,” sagði frænka henn- ar. “Það skal eg gera.” Svo fór hún að leita að bókunum og fann lands- uppdráttabók þarna, bókmentasögu hérna, Eng- landssögu undir borðinu og landafræðina á píanó- inu. Að síðustu hafði hún fundið þær allar, sett- ist og fór að lesa. Jarvis kom inn með bréf á litlum diski. “Hvað er þetta?” spurði frú Chichester. “Bréf til ungfrú Ethel, frú.” Meðan Ethel opnaði bréfið og las það, benti Peg þjóninum að koma til sín. “Micbael stendur bundinn fyrir utan sólbyrgis- dyrnar hérna,” sagði Peg. “Hann hefir verið í á- flogum og er þeyttur; gerðu svo vel að gera hann rólegan fyrir mig.” Jarvis fór nauðugur út, leysti hundinn og fór með hann inn'í húsið, sem hafði verið búið til handa honum. Bæði ihundurinn og eigandi hans, féllu honum ila í geð. öllu var snúið upp og niður í þessu reglubundna húsi, síðan þau komu þangað, og síðasti mánuðurinn hafði verið mjög ónotalegur fyrir hann. “Frá hverjum er bréfið?” spurði frú Chichest- er Ethel. Frá hr. Brent,” svaraði Ethel kæruleysislega. Brent? , Hvað hefir ihann til að skrifa þér um núna?” spnrði Alaric. “Hann biður mig að gera nokkuð fyrir sig.” Hún reif bréfið í smáagnir og lét þær í rusla- körfuna. “Gera nokkuð?” » “Já — ekki neitt marfevert. Það er best að eg svari honum strax.” Svo settist hún róleg niður til að svara bréfinu. Frú Chichester sá að Peg var farin að lesa — það er að segja að blaða í bókunum sínum, þangað til hún fann eitthvað, sem vaktj athyglj hennar, og sem hún svo lak aftur og aftur, linz hún hélt sig kunna það. Hún sagði við Peg, að einnar stundar lestur væri nægilegur, og fór svo út úr stofunni, um leið og hún gaf Alaric bendingu að koma með sér. Þegrar hún var horfin út úr dyrunum, gekk hann til Peg og gretti sig framan fyrir hejini. Erfðasyndin. Hún er þó sannarlegá. ekki slæm.” Peg leit á hann með hættulegum eldingum í augunum. Hún skelti aftur bókinni, sem hún var að lesa í, og hélt henfti á loft hótapdi. “Er það djöfullinn, sem nú er á ferðinni?” spurði Alaric egnandi. * “á, eg finn að hann klórar og kippir í mig. Það hlýtur að vera djöfull, sem hatar alt nám; hann reynir að minsta kosti að hindra mig frá að nema.” Alaric hló aftur með egnandi hlátri. “Líttu á frænku þína — reyndu að verða eins og Ethel — litli djöfla-unginn þinn.” Peg kastaði foókinni á eftir honum. Hann vék til hliðar, svo hún 4com næstum í Ethel, sem þá var að standa upp. Peg tók bókina upp um lleið og Alaric hvarf út úr dyrunum, og Ethel, róleg eins og hún var vön, tók smávindil úr hylkinu sínu og kveikti i honum. Pe^r tók undir eins smávindil, sem lá á borð- inu og kveikti í honum, en fórst það klaufalega, þó hún reyndi að haga sér eins og Ethel að ölllu leyti. Þegar Ethel var búin að skrifa áritanina útan á bréfið, snéri hún sér við óg sá Peg sitja á borð- röndinni reykjandi, og horfa á sig með egnandi augnatilliti. # Ethel fleygði smávindli sínum í öskulbikarinn, sem stóð á borðinu, gröm í skapi. Peg gerð það sama. “Ethel stóð upp allreið.” „Því glápir þú þannig á mi^?” “Frænka mín hefir sagt mér að gera það. Þú átt að vera fyrirmynd mín.” Ethel sneri baki að henni Ibálreið og fór að ganga upp stigann. Peg gekk á eftir henni og sagði: “Má eg tala dálítið við þig?” “Þú átt að lesa bækurnar þínar,” svaraði Ethel vonskulega. “Þú vilt þá ekki leyfa mér að tala við þig. Þú hefir ekki talað við mig eitt einasta vingjarnlegt orð, síðan eg kom hér,” sagði Peg í biðjandi róm. Ethel svaraði engiu. Peg sagði: ,‘Við erum þó báðar ungar og náskyldar, og erum í sama húsinu og hér um bill á sama aldri. Samt sem áður hefir þú aldrei litið á mig, án þess að augu þín leiftruðu af hatri. Hundurinn þinn er þér eflaust meira virði en eg.” Ethel leit niður á Pet, klappaði honum og kysti hann. “iMér þykir leitt að Micíhael flaug á hann — það er aumingjalegt- að foerjast við þann, sem er miklu minni — en það var efcki Mic'hatíl að kenna, það var eg, sem sigaði honum, hann gerir alt, sem eg segi hojium — þó eg sigaði honum á ljón, mundi hann ráðast á það.” “Þú komst honum til að ráðast á Pet?” hrópaði Ethel. “Já, eg gerði það. Eg hata hann; hann er svo sléttur, feitur og vel taminn. Eg foata alla, sem eru feitir og vel uppaldir. Mér geðjast vel að þeim, sem eru margir og blátt áfram, eins og Michael og eg.” Ethel umlaði af vonzku og ætlaði að halda á- fram; en Peg stððvaði hana. “Vilt þú ekki vera vina mín?” “Við eigum ekkert sameiginlegt,” svaraði Ethel. “Við getum nú þrátt fyrir það hagað okkur vingjarnlega hvor við aðra. Eg skal mæta þér á miðri Ieið, ef þú vilt vera dálllítið vingjarnleg við mig.” Hún leit foiðjandi augum á Ethel og bætti svo við: . “Þú mundir gera það, ef þú vissir hvað eg hugsa.” Ethel sté eitt þrep niður aftur og leit rann- sakandi augum á Peg. Svo sagði hún: “Þú ert sjaldgæf stúlka.” “Nei, það eruð þið, sem eruð sjaldgæfar. Eg er alveg eins og guð foefir sfcapað mig, en þið látist »11 saman vera öðruvísi, heldur en þið eruð í raun og veru.” “Við hvað áttu?” spurði Ethel grúnsöm. “ó, eg hefi athugað yfckur!” sagði Peg áköf. “Þú sýnir almenningi andlit, sem segir: Lítið á * unga stú'lku. Er eg\ekki lagleg, kyrlát, siðuð, elsku- leg ung stúlka? En þú ert raunar öll önnur, það ert þú.” Ethe.1 gekk hægum skrefum til Peg og horfði í augu hennar. “Auðvitað er ekkert rangt við siðferðið, hegð- anina og fegurðina, en hugsanirnar og tilfinning- arnar eru alt öðru vísi heldur en þú lætur í ljós. Þú ert alveg eins bráðlynd og eg til dæmis.' Þú ert mjög ákaflynd, Ethel — það er stór synd að þú skulir ekki láta það í Ijós stöku sinnum. En þú lætur ekki bera á því, af því það þykir ekki viðeig- andi. Og gæfurík ert þú samt sem áður ekki, eða ert þú það?” “Nei, það er eg ekki,” viðurkendi Ethel ósjálf- rátt. “Eg heldur ekki — hérna. Getum við þá ekki reynt að hugga og hjálpa hvor annari ofurlítið?” Það skein svipur hreinskilni og sambygðar í augum Pegs, og hreimurinn í rödd hennar var hlý- legur. “Þú vilt hugga mig?” hrópaði Ethel fyrirlit- lega. “Já, Ethel. Það er sagt að fallegar hugsanir geri andlitin falleg, og eins áreiðanlegt er það með góð störf. — þau gera hugann ánægðan og hlýjan — það mundir þú sanna, ef þú værir ofur- Hltið vingjarnleg við mig —- einstöku sinnum. Hin hreinskilna alúð Pegs hafði undir eins áhrif á Ethel. Hún snéri sér að frænku sinni og sagði með alt annari rödd, heldur en hún var vðn: “Eg hefi máské verið of kuldaleg ■—” “Já, það foefir þú verið,” sagði Peg. “Eg krefst þess aðeins að þú talið við mig eins og manneskju, en ekki eins og eg væri moldarhnaus.” “Því lofa eg. Góða nótt Margaret.” Ethel áleit samtalinu lokið með þessu og ætl- aði að vfirgefa herbergið. “Hinkraðu ögn vlð, að eins mínútu. Eg foefi nokkuð að segia þér,” sagði Peg. ‘HTvað er það?” “Fg vil tsla við þig um nokkuð.” “Hvað þá?” Peg hugsaði sig um. leit niður foálf feimin, dróg audsnn þunglega og sagði svo með alvar- legri rödd: i “Veist foú nokkuð UTU — ást?” "Ást?” endurtók Etfoel undrandi.

x

Lögberg

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.