Lögberg - 15.07.1926, Blaðsíða 2

Lögberg - 15.07.1926, Blaðsíða 2
tSlB. 2. LÖGBKKG FIMTUDAGINN, 15. JÚLÍ 1926. Fiéttabréf. Innisfail, 5. júlí 1926. Herra ritstjóri Lögb. '0 íslendingadagur Albertinga að Markervjlle, rann uppskír og fag- ur 17. júní s.l. Sáust jeljadrög í jökulskörðum Klettafjallanna, í austri blika, en í suðri móða, en græn norðurhafs brún; ótryggur þurkur í dag. Nær hádegi í Fensala fjöllum tók lúðrasveit hljóðfæri sín og söng hergöngulög sín alla leið á trjálundinn yndislega á bökkum Medicine árinnar. Inngang keyptu nær 500 manns ofan 12 ára, börn frítt. Spilarar, forseti og fleiri skemtanir, byrjuðu 1.30: ávarp forseta, lúðrasöngur; — ræður héldu: Pétur Hjálmsson, Mrs. Laura Goodman Salverson, á ísl. cg ensku; W. H. Paulson, á ísl. og ensku. Að þessum ræðum var gerð einróma þakklætis viður- l^enning. — Nú kom Daníel Morkeberg. Sagði hann það vera 27. sinni, er hann væri með okkur á íslend- ingadegi; verst að við lögðum niður 2. ágúst, af því það væji af- mælisdagur hans. Sagðist honum vel að vanda. En nú kom einn ráðherra fylkisstjórnarinnar; fór þá að hvessa og rigna, svo vart heyrðist orðaskil; en brátt skein sól í heiði og lognmollu andvari lék við limið alt um kring. Fóru þá fram leikir, veðreiðar, hlaup, hopp og stökk, en lúðraflokkurinn spilaði milli ræðanna og af og til unz kl. 6 að kvöldi, er á skall þoka og regn er viðhélzt sólar- hring eða meira. Eg vildi, að eg hefði getað sent Lögbergi ræður þeirra Mrs. Sal- verson og Mr. Paulson; þær voru þess virði, að þær kæmust ein- hvers staðar á prent. En það er r.ú ekki hægt. — Fjárhagslega vóg dágur sá salt, með inntektir og útgjóld. Útlit er ágætt, ekkert hagl, en frost bleiklitaði akra á smáblett- um siðustu daga í júní, en þeir nú aftur algrænir og í þann veginn að springa út. Aðkomugesti á íslendingadag- inn varð eg var við, þessa landa: Mr. og Mrs. Jóhannson, Edmon- ton; G. S. Grimsson, Calgary, og Mrs. A. E. Einarson, Los Angeles, er hefir verið um tima hjá frænd- systur sinni, Mrs. Sveinson, Burnt Lake; leizt henni vel á fóstru vora, f.allasveitina fögru, skrautbúnu landana yngri sem eldri, engjar, skóga, akra og sauðfjárhópana stóru, rétt eins og heima á íslandi; sagði hún sér hefði liðið ljómandi vel, og bað mig, ef eg mintist sín, að þakka innilega heimboðin og alla alúð sér auðsýnda. Kom son- ur hennar frá Hallson, N. Dak., að sækja hana. Þrír ungir piltar hafa gift sig annara þjóða meyjum, og annara þjóða piltum giftu sig tvær ís- lenzkar ungmeyjar nýlega. Svona fer blóðblöndun í vöxt hér á þessu herrans ári 1926. Miss Lilla Con- kordia Stephanson kom frá Blaine að heimsækja bróður og systur sína hér snöggva ferð. — Hér var byrjað að safna í Björgvinssjóðinn 22. apríl. J. Björnsson. — --o——— GEFIÐ AÐ BETEL í JÚNÍ. Kvenfél. Árdals safn..... $50.00 Kvenfél. Djörfung, Rivt 25.00 Mrs. Katr. Bergman, Gimli P. O., 7 pund af ull. Mrs. C. Paulson, Hekla P.O.: 340 p. kartöflur, 15 p. lard. Bjarni Jakobsson, Geysir.... 5.00 Pétur Pétursson, Minneota 5.00 Mrs. María Árnason, Minn. 2.00 Bjairni Jones, Minn..... .... 1.00 John Williams, Minn......... 5.00 ívar Jónasson', Langruth.... 1.00 Svb. Loptsson, Bredenbyrv 5.00 Guðrún K. Breckman, Lundar 5.00 Mr. og Mrs. W. Nordal, Selk. 5.00 Árni Björnsson, Selkirk..... 5.00 Joe Walterson, Cypréss Riv. 5.00 Mr. og Mrs. Guðm. Breckman, Lundar .... .... ........ 10.00 Mr. og Mrs. Gutt. Finnbogason, Lundar.............•...... 5.00 Mr. og Mrs. Jóh. Breim Rivt. 10.00 Mr. og Mrs. Sig. Melsted, Wpg 5.00 Mr. og Mrs. G. J. Oleson, Glenboro................. 10.00 Mr. og Mrs. Einar Jónsson.... 3.00 O Th. Finnsson, Milton ... 5.00 séra J. A. Sigurðsson.... .... 5.00 Mr. og Mrs. J. H, Paulson, Lamp, Sask................ 5.00 Mrs. Hannes Sigurðsson Cypr. River............... 1.00 Systir Jóhanna Hallgrímsson, Minneota ............ .... .... ,5.00 S. F. Olafsson, Wpg......... 5.00 Mrs. M. Thorlaksson, Selk. 5.00 Vinur frá Wpeg..............25.00 Frá Ónefndum, Ivanhoe....... 5.00 Fyrir alt þetta er mjög inni- lega þakkað. J. Jóhannesson, féh. 675 McDermot^ave., Wpg. Fertugasta og annað ársþing Hins ev. lút. Kirkjufélags íslendinga Framh, Fóru þar næst fram nokkrar umræður um skýrsluna og trúboðsstarfið, er lýstu ánægju þingsins yfir skýrslunni og fögnuði þingmanna yfir áhugasömu starfi trúboða vorra þar éystra. Klukkan 6 e. h. samþykti þingið, að heimila hinu “Sam- einaða kvenfélagi kirkjufélagsins” þingstað og tíma kl. 2 e.h. ^ næsta dag. Var síðan sunginn sálmur o^ fundi síðan frest- að til kl. 8 að kvöldi. FJÓRÐI FUNDUR—kl. 8 e.h. sama dag. Fundurinn hófst með bænargjörð, er séra Valdimar J. Ey- lands stýrði. — Fjarverandi við nafnakall voru: séra Sigurð- ur Ólafsson og Jón Gíslason. Séra Hjörtur J. Leó flutti fyrirlestur er hann nefndi: “Sá, sem elskar Guð, þekkir Guð.” ■ Var honum, að fyrirlestrinum loknum, greitt þakklætisat- kvæði með því, að allir stóðu á fætur, samkvæmt tillögu séra Rúnólfs Marteinssonar. Forseti tilkynti, að til þings væri kominn séra Jón J. Clemens, sem virðulegur sendiboði “Sameinuðu lút. kirkjunn- ar í Ameríku”, og bauð hann velkominn. Dr. B. B. Jónsson mintist þess, að séra Jón J. Clemens væri fyrrum starfsbróð- ir í kirkjufélaginu og einnig þess, að á þessu vori sé liðin 30 ár frá því, er séra Clemens tók prestvígslu. Gerði Dr. Björn síðan þá tilögu, að honum sé veitt fult málfrelsi og réttindi í þinginu og var það samþykt í e. hlj. með því að allir stóðu á fætur. Ávarpaði séra Jón J. Clemens þá þingið með nokkrum vinsamlegum orðum, en flytur aðal erindi sítt síðar, eftir því sem fyrir verður mæltN Var síðan sungið sálmsvers og lýst hinni postullegu blessan af forseta, og fundi svo frestað þar til kl. 9 ,f.h. næsta dag. FIMTI FUNDUR—kl. 9 f.h. þ. 19. júní. Fundurinn hófst með bænargjörð, sem séra N. S. Thorlaksson stýrði. — Við nafnakall var fjarverandi J. G. Stephanson. — Gjörðabók 1., 2., 3. og 4. fundar lesin og staðfest. Fyrir hönd kjörbréfanefndar tilkynti séra Haraldur Sig- mar, að til þiíigs væru komnir þeir Helgi Ásbjörnsson, frá Mikleyjar söfnuði, og Thorsteinn J. Gíslason, frá Guðbrands- söfnuði. Skrifuðu þeir undir hina venjulegu játning þingsins og tóku síðan sæti sín í þinginu. Þá var tekið fyrir annað mál á dagskrá: Heiðinjgatrúboð. Séra G. Guttormsson gjörði þá tillögu, er studd var af mörgum, að þingið þakki trúboðum vorum, séra S. 0. Thor- láksson og frú hans, hina ágætu og ánægjulegu skýrslu, er lesin var hér í þinginu; þingið gleðst h;artanlega yfir hinu blessunarrika starfi, sem truboðarnir eru að vinna, og árnar þeim, í Jesú nafni, ríkulegrar blessunar Drottins. Tillagan var samþykt í e. hlj. með því, að allir stóðu á fætur. Var skrifara falið, að tilkynna trúboðunum þessa samþýkt. Samþykt var að vísa fjármálahlið heiðingjatrúboðsins til fjármálanefndar þingsins. Eftir nokkrar umræður, um málið, var því vísað til fimm manna þingnefndar. í nefndina voru skipaðir: séra R. Mar- teinsson, séra V. J. Eylánds, Klemens Jónasson, Mrs. María G. Árnason og Mrs. Hólmfríður Daníelsson. Þá var tekið fyrir fjórða mál á dagskrá: Heimatrúboð. Forseti vék úr sæti, og afhenti vara-forseta fundarstjórn, og lagði málið, með ítarlegri ræðu, fyrir -þingið. Hófust síð- an almennar umræður' um málið og tóku margir til máls. Lýstu umræður þær miklum áhuga hjá þingmönnum fyrir heimatrúboðsmálinu. í sambandi við þessar umræður flutti séra Rúnólfur Marteinsson þinginu, kveðju og árnaðarósk frá Hallgrímssöfnuði í Seattle, og þar með þakklæti safnaðarin3 fyrir fjárstyrk, er þingið væntanlega mundi veita. Mintist hann og á tvo guðfrðanemendur, er nú stunda nám á hinum lúterska prestaskóla í Seattle. Það eru þeir Kolbeinn Sæ- mundsson og Jóhannes Sveinsson. Fór hann lofsamlegum orðum um kristilegt starf þeirra, er þeir stunduðu í Hall- I grímssöfnuði og víðar, jafnframt náminu. Séra Jón J. Clemens bauðst til að vinna að einhverju leyti kristilegunf málum meðal íslendinga í Chicago, eftir því sem hann hefði færi á, og það þó endurgjaldslaust væri með öllu. Var því boði tekið með fögnuði af þingmönnum, þó eng- in formleg samþykt væri gjörð. í þessu bili tilkynti A. C. Johnson, fýrir hönd kjörbréfa- nefndar, að komnir værir til þings þeir séra Jónas A. Sigurðs- son og Árni Árna^on, frá Konkordía söfnuði. Bauð forseti þá þá velkomna, skrifuðu þeir síðan undir játning þingsins og tóku sæti sín í þinginu. Eftir að umræður höfðu enn haldið áfram nokkra stund, var heimatrúboðsmálinu vísað til sjö manna þingnefndar. f nefndina voru skipaðir: séra J. A. Sigurðsson, séra G. Gutt- ormsson, Jón Halldórsson, Sigvaldi Nordal, Finnur Johnson, Bjarni Jones og Þorsteinn J. Gíslason. Þá las séra S. S. Christopherson þessa skýrslu um starf sitt á heimatrúboðssvæðinu á árinu: Skýrsla yfir starf mitt á heimatrúboðssvæðinu árið 1925—6: Með hjartans þakklæti vil eg byrja skýrslu um starf mitt, því mér dylst ekki, að góður Guð hefir leitt mig og verið með mér á þeim tíma, sem skýrslan fjallar um, eins og hann hefir að náð sinni leitt mig um öll liðin æfiár. Lika þakka eg þeim, sem veittu mér fjár- munalegan styrk til að geta unnið verkið á liðnu ári; þeim, sömu- leiðis, sem voru fúsir til samstarfs og greiddu mér góðan beina, þar sem mig bar að garði. Strax eftir kirkjuþing fór eg til Poplar Park, flutti þar eina guðsþjónustu og skírði 5 börn. Þ. 5. júlí messaði eg í Ralph Con- nor skóla í Silver Bay bygð og starfaði á því svæði um tíma: mess- aði, skírði börn og bjó unglinga undir staðfesting og fór suour rreð vatninu víða. Þá fór eg til Weedy Point, sem liggur fyrir norðan Silver Bay, en um mílu suður frá Steep Rock. Þar búa nokkrir íslendingar og annara þjóða menn. Þar flutti eg hina fyrstu ís- lenzku guðsþjónustu, sem þar hefir verið haldin. í annað^skiftið fór eg þangað í vor. Sunnudaginn 27. september tel eg merkisdag: þá staðfesti eg í Silver Bay bygð 8 unglinga, flutti tvær guðsþjónustur og skírði 8 börn. Óskaði eg, að allir dagar mættu verða eins viðburðaríkir. Sunnud. 25. október og 1. nóv. var eg i Poplar Park og las dag- lega með fermingarbörnum og öðrum unglingum. Þá hvarf eg heim og hélt kyrru fyrir tæpan mánuð. Desember mánuð og fram í janúar var eg til heimilis hjá Geirfiuni Péturssyni við Hayland; uppfræddi ibörn og messaði af og til. Þaðan fór eg til Asham Point. og var iþar til loka febr. mánaðar; úppfræddi unglinga i kristin- dómi, íslenzku o. f!., og staðfesti þar 8 unglinga og skírði nokkur börn. • Þá fór eg suður til BeckviIIe P.O., sem er um 50 mílur þar suð- ur, og var þar í tvc» sunnudaga og framkvæmdi skirnir nokkrar. Sunnudagana tvo næstui messaði eg í Haylands og Sigluness bygð- um. Páskadaginn, þ. 4. april messaði eg i Ralph Connor skólanum við Silver Bay og hélt Iþar til um tíma hjá Sigurði Sigurðssyni; uppfræddi börn á rúmhelgum dögum og messaði á helgum. Mín siðasta guðsþjónusta þar í bygð var á hvitasunnudaginn þ. 23. mai. Hefi eg tekist á hendur að starfa fyrir Betel söfnuð á þessu sumri í likingu við það, sem eg gerði í fyrra. F.r söfnuðurinn smár en á- hugasamur um kristileg efni. Leggja ýmsir hart á sig, til stuðnings starfinti. Hafa jafnvel gefið lifandi nautgripi til að styðja sofnuð- inn í fjármálum. Hefir einhver fátækasti maður safnaðarins gefið kú á þessu ári til þess að ná upp peningum fyrir starfið. AIls Ijefi eg flutt á timabilinu 31 guðsþjónustu, skírt 44 börn, lesið kistindóm og önnur fræði með 40 ungmennum og þar af stað- fest 17. Með fáum undantekningum voru guðgþjónusturnar vel sóttar. Skilningur fyrir kristinni uppfræðslu unglinganna virðist vera vax- andi. Eg gat ekki liðsint öllum þeim, sem leituðu til mín í því efni, nteð því ekki voru þau efni fyrir höndum, að eg gæti veitt mér far- arskjóta til' að! flýta för minni. Milliferðirnar tóku nokkurn tímá, íþvi eg varð iðulega að fara fótgangandi, og þó var margur fús til að létta undir með mér og fyltja mig á milli, þegar hentugleikar leyfðu. —■ Svæðilð er afar erfitt, fjarlægð mikil og kostnaðarsamt, varð eg iðulega að ganga margar mílur á dag vota og illfæra vegi. Starfið á hér það sameiginlegt við heimatrúboðsstarf yfir höfuð, að það getur ekki borið sig efnalega, þótt margur leggi fram fé fúslega til stuðnings verkinu. Það er engum vafa bundið,' að á þfessu svæði á kirkjufélagið sér heimatrúboðsköllun til sameiningar í andlegum skilningi. Á kirkjuþingi á Gimli, Man., í júní 1926. Sig. S. Christopherson. Samþykt var að vísa skýrslu séra Sigurðar til heimatrú- boðsnefndar. Samþykt var, eftir tillögu dagskrárnefndar, að bæta tveim málum við á.dagskrá: Útgáfumál og Bindindismál. Sam- þykt var einnig, sökum þess, að enginn þingfundur var á- kveðinn seinni part dags, að lengja fund um hálfa klukku- stund. Þá var tekið fyrir fimta mál á dagskrá: Sunnudagsskólamál. Var málið lagt fyrir þingið með inngangsræðu af skrifara, síðan rætt lítið eitt og svo sett í sjö manna nefnd. í nefnd- ina voru skipaðir: séra S. S. Christopherson, Jón Gíslason, Mrs. V, J. Eylands, Mrs. S. Sigurðsson, Mrs. Sigríður Paul- son, Magnús Jónasson og Jón Halldórsson. Þá var tekið fyrir níunda mál á dagskrá: Útgáfumál. Samþykt var að vísa því máli til fimm mamia nefndar. í nefndina voru skipaðir: Bjarni Marteinsson, Bjarni Jones, O. Anderson, C. J. Vopnford og Benóní Stefánsson. Þá var næst tekið fyrir tíunda mál á dagskrá: Bindindismál. Skrifari lagði málið fyrir þingið með stuttri inngangs- ræðu og skýrði um leið frá áskorun, er þinginu hefði borist,. frá íslenzkum Good Templara stúkum í Manitoba, um, að taka bindindismálið til alvarlegrar íhugunar og meðferðar á þessu þingi. Samþykt var að vísa þessu máli til fimm manna þing- nefndar. í nefndina voru skipaðir: séra Jóhann Bjarnason, Einar Johnson, ívar Jónasson, Miss Jóhanna G. Sturlaugsson og Ketill Valgarðsson. Forseti tilkynti, að búist væri við, að almenn heimsókn þingmanna, til Betel, færi fram um kl. 2 síðdegis. Og séra Sigurður ólafsson skýrði frá, að skemtiferð með gufubát væri fyrirhuguð, út á vatn, seinni part dags, fyrir alla er þess æsktu. Var síðan sungið sálmsvers og að þvi búnu fundi frestað þar til kl. 8 að kvöldi. SJÖTTI FUNDUR—kl. 8 e. h. sama dag. Byrjaði fundurinn með bænargjörð, er séra Jóhann Bjarna- son stýrði. Fundurinn settur og honum stýrt af vara-forseta, séra Rúnólfi Marteinssyni. Fjarverandi við nafnakall voru: Dr. B. B. Jónson, séra Haraldur Sigmar, G. B. Olgeirsson, Benóní Stefánsson, A. G. Johnson, Pétur Pétursson, Stefán Guðmundsson, Mrs. Daní- elsson, Thorsteinn J. Gíslason, S. S. Johnson og J. G. Steph- ansson. Séra'fKristinn K. ólafson flutti fyrirlestur, er hann nefndi: “Kirkjulegar horfur og hlutverk.” Var honum, að fyrirlestrinum loknum, greitt þakklætis at- kvæði með því, að allir stóðu á fætur, samkvæmt tillögu frá séra J. A. Sigurðssyni. Var síðan sungið sálmsvers, hinni postullegu blessan lýst af vara-forseta, og fundi síðan frestað kl. 9.30 e. h., þar til kl. 7. á sunnudagskvöld. Sunnudaginn 20. júní fóru fram guðsþjónustur á fjórum stöðum í Gimli prestakalli: (1) kl. 9.30 f.h. á gamalmenna- heimilinu Betel, séra N. S. Thorláksson prédikaði. (2) í kirkju Víðinessafnaðar, kl. 11 f.h., séra G. Guttormsson prédikaði. (3) í kirkju Gimli safnaðar, kl. 11 f.h., séra Jónas A. Sigurðs- son prédikaði. (4) kirkjuvígslu guðsþjónusta, í kirkju Árnes- safnaðar, kl. 2 e.h., séra Kristinn K. ólafsson prédikaði. Fjpl- menni við allar guðsþjónusturnar. — Á eftir vígsluguðsþjón- ustunni í Árnesi fór fram rausnarlegt heimboð, er söfnuður- inn hafði^stofnað til, í samkomusal bygðarinnar. Fjöldi manns þar saman kominn. SJÖUNDI FUNDUR—Sunudaginn 20. júní, klukk- an 7 e. h. — Fundurinn byrjaði með bænagjörð, er séra Rún- ólfbr Marteinsson stýrði. FjarveTandi við nafnakall voru: séra G. Guttormsson, Benóní Stefánsson, Miss Olive H. Hillman, G. Narfason,, Bjarni Jakobson, P. T. Frederickson, Einar Johnson og J. G. Stephanson. Fundurinn var trúmálafundur þingsins. Umræðuefnið: “Hvað ber oss að gera í kirkjulegu og kristilegu tilliti fyrir æskulýðinn?” Málshefjandi var séra V. J. Eylands. Lagði hann málið fyrir þingið með rækilegum og vönduðum fyrir- lestri. Var honum, að loknum fyrirlestrinum, þakkað erindið með því, að allir stóðu á fætur, samkvæmt tilögu séra N. S. Thorlákssonar. Fóru síðan fram fjörugar úmræður um umtalsefnið, er stóðu til kl. 10 e. h. Tóku margir til máls. Fundurinn í heild sinni mjög uppbyggilegur. Forseti auglýsti, að séra Jón J. Clemens mundi ávarpa þingið á mánudagskvöld. Sömuleiðis tilkynti hann, að þing- inu hefði borist heimboð frá Víðinessöfnuði, til skemtistund- ar seinni part mánudags. Var í tilefni at því samþykt, að halda morgunfundi áfram þann dag til kl. 12.30. — Var síðan sunginn sálmur, lýst hinni postullegu blessan af forseta, og fundi síðan frestað til kl. 9 næsta morgunn. ÁTTUNDI FUNDUR—mánudaginn þ. 21. júní, kl. 9 að morgni. — Fundurinn byrjaði með bænagjörð, sem séra G. Guttomsson stýrði. Fjarverandi við nafnakall voru: séra Sig. ólafsson, séra Jónas A. Sigurðsson og Kristján Sigurðsson. Gjörðabók 5., 6. og 7. fundar lesin og staðfest. Fyrir hönd kjörbréfanefndar tilkynti séra Haraldur Sigmar, að kömnir væru til þings þeir G. J. Oleson frá Glenboro söfnuði og T. E. Thorsteinson frá Fyrsta lút. söfnuði. Skrifuðu þeir að því búnu undir játning þingsins og tóku sæti sín í þinginu. Þá var tekið fyrir annað mál á dagskrá: Héiðingjatrúboð. Fyrir hönd þingnefndar í því máli, lagði séra V. J. Ey- lands fram þetta nefndarálit: Nefndin í Heiðingjatrúboðsmáljnu leyfir sér að leggja til: 1. AS þingið lýsi þakklæti sínú fyrir skýrslu trúboðanna, og gleði yfir hinum dásamlega árangri af starfi þeirra, sem hún ber vott um. 2. Að prestarnir séu beðnir, að haldai áhuganum fyrir trúboð- imv vakandi, með því að prédika sérstakara ræður um það efni, fræða um það á hvern þann hátt, sem hentugur þykir, glæða í hugum manna meðvitundina um nauðsynina og skylduna, sem hvílir á oss í því efni. 3. Að í hverjum söfnuði, þar sem möguleikar leyfa, sé einhver sá félagsskapur, sem hafi þetta mál sérstaklega á dagskrá sinni. 4. Að kostað sé kapps um að glæða áhuga fyrir þessu máli í sunnudagsskólum og ungmennafélögum kirkjufélagsins. 5. Að skýrsla trúboðanna sé prentuð í “Sameiningunni”, og að sérprentuð verði nægilega mörg eintök af sömu skýrslu, bæði á ensku og íslenzku, til að útbýta í sunnudagsskólum, ungmennafé- lögum, og kvenfélögum kirkjufélagsins. 6. Að framkvæmdarnefndinni sé falið að útvega blöð og bækl- inga um trúboðið meðal heiðingja, til útbýtingar meðal safnaðanna. Á kirkjuþingi að Gimli, Man., 21. júni 1926. Valdimar J. Eylands. María G. Arnason. Rúnólfur Martcinsson. Hólmfríður Daníelsson. Kl. Jónasson. Samþykt var að taka nefndarálitið fyrir lið fyrir lið. Fyrsti liður var samþyktur með því, að allir stóðu á fætur. Annar liður samþ. 3. liður og 4. liður sömuleiðis. Fimti lið- ur var ræddur allmikið og honum síðan vísað til útgáfunefnd- ar. Sjötta lið var vísað, eftir nokkrar umræður, til nefndar- innar aftur. Þá var tekið fyrir þriðja mál á dag skrá: Betel. Fyrir hönd stjórnarnefndar lagði Dr. B. B. Jónsson fram þessa skýrslu: ( Skýrsla frá Stjórnarnefnd Bctel. Starfræksla þessarar stofnunar á liðnu ári, er liægt að segja, að hafi gengið yfirleitt Vel, og hefir nefndin engar nýjar tilögur fram að bera í þetta sinn. Þrengsli á heimilinu eru tilfinnanleg, og margir, sem hafa sókt um inngöngu, hafa neyðst til að biða inntöku; þetta kemur að nokkru leyti til af því, að sérstaklega fá dauðsföll hafa átt sér stað á heim- ilinu á þessu ári, og engir vistmenn flutt burtu. Ein stór gjöf, fyrir utan. dánargjafir, hefir heimilinu borist til handa á þessu ári. Herra Sveinn Josephson, að Mountain, N. Dak., gaf stofnuninni 320 ekrur af landi fyrir austan Emerson í Mani- toba. Þetta er eign, sém er töluvert mikils virði, og sem nefndin vonast til að geíta, selt. Samkvæmt ráðstöfun gefandans, skal and- virðið ganga i styrktarsjóð stofnunarinnar. Fvrir þessa gjöf vill nefndin sérstaklega þakka. Meðfylgjandi fjárhagsskýrsla sýnir, að fjárhagur stofnunar- innar er í þolanlegu ásigkomtdagi. Samt skal bent á, að nefndin gat ekki látið nema eina af dánargjöfuAi þeim, sem henni bárust. ganga í styrktarsjóðinn, heldur varð 'að nota meiri liluta þessarar gjafar til starfrækslu stofnunarinnar. Til þess að allar slikar gjaf- ir gangi i styrktarsjóð, verða fjárframlög til starfrækslu að verða meiri en hvað nú á sér stað. Á þetta vill nefndin sérstaklega benda fólki voru. Nefndin þakkar innilega hinu dygga starfsfólki heimilisins fyrir þess vel unna verk, og.svo öllum, fjær og nær, sem rétta stofn- uninni hjálparhönd. Gimli, Man., 19. júní 1926. B. J. Brandson, íorseti nefndarinnar. Bctcl—Tckjur og útgjóld, 1. júní 1925 til 1. júní 1926. Tekjur— í sjóði 1. júní 1925, hjá féhirði í Winnipeg, (’i Sparisjóðsdeild í Royal Bank of CanadaJ .. $ 12.03 í sjóði 1. júlí 1925, á Betel 418.76 Gjöld vistmanna 2,277.00 Gjafir frá almenningi, borgað féhirði . 2,001.75 Gjafir frá almenningi, borgað á Betel . 1,020.07 Styrkur frá Man. Prov. Gov 750.00 Rentur á veðbréfum 499.13 Úr dánarbúi frú Láru Bjarnason .. . 950.00 Úr dánarbúi Aðalsteins Jónssonar . . . 75.00 Smá inntektir af ýmsu tagi 204.55 Banka vextir - 29.15 Útgjöld— Vinnulaun .$2,164.75 Matvara o. s. frv . 2.673.97 Eldiviður . 308.80 Meðöl og læknishjálp 87,87 Útfararkostnaður 52.00 Prestslaun . 300.00 i Byggingarviðhaldskostnaður 5^4.20 Eldsábvrgð 90.00 Ein kýr keypt á árinu 50.00 Telephone 47.00 Skattur á fasteignum . 396.67 Útborganir af ýmsu tagi 58.32 í sjóði á Betel . 303.63 í sjóði hjá féhirði í Winnipeg ... . 1,180.23 (\ sparisjóðsdeild hjá R. B. of Can.J $8,237.44 $8,237.44 r Yfirskoðað i Winnipeg, 17. júní 1926. . T. E. Thorsteinson. F. Thordarson. Bctcl—Efnahags. reikningur. Nýja heimilið, virt á ... .1...................$10,000.00 Húsbúnaður, eftir síðustu ■skýrslu.... $1,260.98 Að frádregnu áætluðu verðfaíli......... 126.09 « —--------- 1,134.89 Sjö kýr............................. !.......... 300.00 Hænsni virt á........................................ 40.00 Eldiviður, áætlaður................................. 200.00 Fjórar lóðir á Fleet Street, Winnipeg............ 1,600.00 Hlutabréf Eimsk. fél. Isl., 100 kr., óvíst;..... 60 ekrur (hér um bil) Sec. 17 við Gimli, Man... 997.50 í sjóði áBetel..................................... 303.63 í sjóði i sparisjóðsdeild i R. B. of C....... 1,180.23 / ' --------------------------------------- $15,756.25 Yfirskoðað i Winnipeg, 17. iúní 1926. T. E. Thorsteinson. F. Thordarson. Minningarsjóður BrautrySjenda. í sjóði, 31. maí 1925 ..................... .... $ 930.11 Afborganir af veðbréfum........................... 275.00 Dánargjöf, Johri Anderson, Vernon, B. C....... 500.00 Bankavextir........................................ 39.85 1 sjóði 31. maí 1926.......................$1,744.96 Efnahagsrcikningur, MinningarsjóSs BrantrySj. Útistandandi veðbréf ............................ $5,525.00 Peningar i sjóði............................. 1,744.96 $7,269.96 Yfirskoðað í Winnipeg, 17. júni 1926. T. E- Thorstcinson. F. Thordarson. Framhald á 7. bls. VER ÞURFUM MEIRI RJÓMA! Vér ábyrgjumst hæzta markaðsverÖ, skjóta af- greiðslu og peninga um hæl. Sendið oss dúnk til reynslu og sannfærist. Vér sendum ókeypis merkiseðla, þeim er óska. Sendið oss líka egg, ST. B0NIFACE CREAMERYCOMPANSÍ 373 Horace Street, St. Boniface, Manitoba.

x

Lögberg

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.