Lögberg - 07.07.1927, Síða 3
LÖGBERG, FI3VTTUDAGINN 7. JÚLÍ 1927.
BIs. 3.
43. Kirkjuþing
Hins evangeliska lúterska kirkjufélags íslendinga*
í Vesturheimi.
HALDIÐ í WINNIPEG. MANITOBA,
22.-27. Júní 1927.
FYRSTI FUNDUR.
Fertugasta og þriðja ársþing Hins ev. lút. kirkjufélags
íslendinga í Vesturheimi, var sett í kirkju Fyrsta lút. safnaðar
í Winnipeg, Manitoba þ. 22. júní 1927, kl. 8. e. h. Þingið hófst
með guðsþjónustu og altarisgöngu. Prédikun flutti séra Gutt-
ormur Gutkormsson og hafði fyrir ræðutexta 54. kap. í spá-
dómsbók Jesja. — Setti síðan forseti, séra Kristinn K. Ólafs-
son, þingið á venjulegan hátt.
Skrifari las upp þessa skýrslu um embættismenn, presta
og söfnuði kirkjufélagsins:
I. Embœttismcnn:—Séra Kristinn K. Ólafson, forseti; séra Jó-
hann Bjarnason, skrifari; hr. Finnur Johnson, féhirðir; séra Rún-
ólfur Marteinsson, vara-forseti; séra Sigurður Ölafsson, varafskrif-
ari; hr. Jón J. Bíldfell, vara-féhirðir.
II. Prestan — N. S. Thorlákson, Björn B. Jónsson, Rúnólfur
Marteinsson, H. B. Thorgrímssen, Pétur Hjálmsson, Friðrik Hall-
grímsson, Kristinn K. Ólafson, Jóhann Bjarnason, H. J. Leó, Gutt-
ormur Guttormsson, S. S. Christopherson, Haraldur Sigmar, Sig-
urður Ólafson, S. O. Thorlákson, Halldór E. Johnson, Jónas A. Sig-
urðsson, Páll SigurSsson, Valdimar J. Eylands.
III. Söfnuðir:—í Minnesota: St. Páls söfnuður, Lincoln söfn-
Vesturheims söfn., — I Norður Dakota: Pembina söfn., Grafton söfn.,
Vídalíns söfn., Hallson söfn., Péturs söfn., Víkur söfn., Garðar söfn.,
Fjalla söfn., Melanktons söfn. — í Manitoba: Fyrsti lút. söfn., Sel-
kirk söfn., Víðines söfn., Gimli söfn., Árnes söfn., Breiðuvíkur söfn.,
Geysis söfn., Árdals söfn., Bræðra söfn., Víðir söfn., Mikleyjar söfn.,
Furudals söfn., Fríkirkju söfn., Frelsis söfn., Immanúels söfn., Glen-
boro söfn., Brandon söfn., Lundar söfn., Grunnavatns söfn., Jóns
Bjarnasonar söfn., Betaniu söfn. Betel söfn., Hóla söfn., Skálholts
söfn., HerSibreiðar söfn., Strandar söfn:, Winnipegosis söfn., Swan
River söfn., Guðbrands söfn. — í Saskatchewan: Konkordía söfn.
'Þingvalla-nýlendu söfn., Lögbergs söfn., Isafoldar söfn., Síons söfn.,
Hallgrims söfn., Elfros söfn., Sléttu söfn., Immanúels söfn., Ágpjstín-
usar söfn., Foam Lake söfn. — í British Columbia: Vancouver söfn.
— 1 Washington: Þrenningar söfn., Blaine söfn., Hallgríms söfn.
Á kirkjuþingi í Winnipeg, Manitoba, þ, 22. júní 1927.
Jóhann Bjarnason, skrifari.
1 kjörbrefanefnd skipaði forseti þá séra Sigurð Ólafsson,
Jón J. Vopna og W. G. Hillman.
Forseti tilkynti, að til þings væri kominn Dr. J. A. More-
head, framkvæmdarstjóri National Lutheran Council. Mundi
hann nú ávarpa þingið og bað þingmenn og áheyrendur aðra,
að vera kyrra í sætum sínum og hlýða á erindi hans. Flutti
Dr. Morehead síðan skörulegt og fróðlegt erindi um starf
National Lutheran Council, og skýrði frá starfi þess í ýmsum
löndum, með sérstöku tilliti til starfs þess á Rússlandi.
Dr. Björn B. Jónsson, fyrir hönd Fyrsta lút. safnaðar, bauð
þingmenn velkomna og lét í ljós þá von sína og ósk, að þingið
yrði að öllu hið ánægjulegasta.
Var síðan sungið: “Son guðs ertu með sanni”, lýst bless-
un af forseta, og fundi svo frestað þar til kl. 9 f.h. næsta
morgun.
ANNAR FUNDUR—kl. 9 f.h. þ. 23. júní. — Fundurinn
hófst með bænagjörð, er séra N. S. Thorlaksson stýrði.
Fyrir hönd kjörbréfanefndar lagði séra Sigurður ólafsson
fram þessa skýrslu:
Skýrsla kjörbréfanefndar:
Auk presta og embættismanna kirkjufélagsins eiga þessir erind-
rekar safnaðanna sæti á þinginu, samkvæmt framvísuðum kjörbréf-
um sem hér segir:
Frá St. Páls söfn.: A. R. Johnson; frá Lincoln söfn.: Skafti Sig-
valdason og Gunnar Bardal; frá Vesturheims söfn.: Mrs. Ágúst
Josephson; frá Pembina söfn.: J. H. Hannesson; fráVidalíns söfn.:
Joseph Einarsson; frá Hallson söfn.: A. M. Ásgrímsson; frá Péturs
söfn.: Ásbjörn Sturlaugsson; frá Víkur 9Öfn.: Valdimar Björnsson
og G. B. Núpdal; frá Gardar söfn.: B. M. Melsted, O. K. Ólafson og
Benóní Stefánsson; frá Fjalla söfn.: Hermann Bjarnason; frá
Melankton söfn.: W. G. Hillman og Siguröur Jónsson; frá Fyrsta
lút. söfn.: Olgeir Friöriksson, J. J. Swanson, Árni Eggertsson og
J. J. Vopni; frá Selkirk söfn.: Kl. Jónasson, Mrs. Björg Kristjánsson
og Mrs. Guðfríður Nordal; frá Víðines söfn.: Þorvaldur Sveinsson;
frá Gimli söfn.: Th. Thordarson og Harald Bjarnason; frá Geysir
söfn.: Gísli Gíslason og Fr. P. Sigurðsson; frá Árdals söfn.: Tryggvi
lugjaldsson; frá Bræðra söfn.: Jón S. Pálsson og Sigurbjörn Sig-
urðsson; frá Viðir söfn.: Óli Fredericksson; frá Mikleyjar söfn.:
Mrs. C. P. Paulsson; frá Fríkirkju söfn.: Mrs. Guðrún Sigurðsson
og Thorsteinn Sveinsson; frá Frelsis söfn.: Sigurður A. Anderson;
frá Immanuels söfn. (B.) : Vilhjálmur Pétursson og Árni Johnson;
frá Glenboro söfn.: A. E. Johnson og Sigmar Bjarnason; frá Guð-
brands söfn. :Thorsteinn J. Gíslason; frá Lundarsöfn.: Bjarni Lopt-
®on; frá Grunnavatns söfn.: Mrs. E. Thorleifsson; frá Betel söfn.:
Ólafur Thorlacius; frá Herðibreiðar söfn.: Finnbogi Erlendsson;
frá Konkordia söfn.: B. E. Hinriksson og Th. Vigfússon; frá Elfros
söfn.: Thor. Guðmundsson; frá Sléttu söfn.: H. B. Grimsson; frá
mlmanuel söfn. (W) : Árni G. Eggertsson; frá Foam Lake söfn.: Gisli
J. Bildfell; frá Blaine söfn.: Andrew Danielsson; frá Hallgr. söfn.
(Seattle) : Mrs. K. Simundsson. i jíj
Sig. Ólafsson.
John J. Vopni.
W. G. Hillrhan.
Var skýrslan samþykt og skrifuðu þingmenn síðan undir
hina venjulegu játningu þingsins.
J. J. Vopni tilkynti fyrib hönd kjörbréfanefndar, að henni
hefði gleymst að setja í skýrsluna tillögu um full þingréttindi
fyrir guðfræðiskandídat Kolbein Sæmundsson, en legði nú
fram fyrir þingið slíka tillögu sérstaka. Var tillagan sam-
þykt í einu hjóði.
Þá lagði forseti fram ársskýrslu sína:
ÁRSSKÝRSLA FORSETA 1927.
Samkvæmt lögum og venjum í kirkjufélagi voru, ber mér nú að
gefa yfirlit yfir sögu hins liðna árs að því er snertir ástæður og starf
innan félagsskapar vors í kristilegum og kirkjulegum málum.
En þó félag vort sé heild út af fyrir sig, þá gerum vér oss grein
fyrir því, að í raun réttri erum vér partur af stærri heild eða heild-
um. Vér erum hluti í íslenzkri, lúterskri kristni. Ástæður og horfur
innan kirkjunnar á íslandi snerta oss að minsta kosti óbeinlínis. Þó
ekkert formlegt samband sé á milli kirkjufélags vors hér og lútersku
kirkjunnar á íslandi. Þá berast áhrif þar á milli sem halda við
þeirri meðvitund að margt og mikið eigum vér sameiginlegt og skyld-
leikinn er dýrmætur. Að þetta víkki sjóndeildarhringinn og sé and-
legur gróði, teljum vér vist ekkert efamál. Stundum kann oss að
hafa fundist anda kalt að oss frá einstaklingum innan þjóðkirkjunn-
ar á Islandi, en hins.er ljúfara að minnast, að hlýhugur, viðurkenn-
ing og bróðurþel úr þeirri átt, hefir einnig náð til vor. Ummæli
biskups Islands í vorn garð á þessu síðasta ári eru svo ákveðin í
vínarþelsáttina, að þau ber að meta. Álit hans að það sé kirkjufélag
vort, “sem mest og bezt hefir unnið að kristindómsmálum meðal
landa vorra vestra síðan það var stofnað,” ættu að vera oss uppörfun
að verðskulda slik umrnæli í framtiðinni, og að þjóðkirkjan íslenzka
telji sér “skylt eftir rnegni að styðja kirkjufélagið í starfi þess,” er
gleðiefni öllum þeim er þrá að sam’band megi vera milli íslenzkrar,
lúterskrar kristni beggja megin hafsins.
En því ber heldur ekki að gleyma að vér erum hluti lútersku
kirkjunnar i Ameríku og innlendrar kristni þeirra þjóða, er vér hér
tilheyrum. Lítillega höfum vér verið í samvinnu með trúbræðrum
vorum hér og innlendri kristni, án þess að bindast föstum félagsleg-
um böndum við nokkra deild kirkju vorrar. Frá fyrstu tíð kirkju-
legrar starfsemi vorrar, höfum vér átt fjölda vina og velunnara í
deildum lútersku kirkjunnar hér, og metið það bróðurþel er oss hefir
v
verið sýnt að staðaldri. Að samband vort við trúbræður vora hér og
ameríska kristni hefir aukist, eftir þvi sem árin líða, er gefin sök.
Það hefði verið óheilbrigð einangrun, ef svo hefði ekki verið. Vér
höfum verið arfþegar íslenzkrar kristni, en hlutverk vort og viðhorf
hér, er Sem deild í kristni þessa meginlands. Mun á þessu bera meir
og meir eftir því, sem yngri kynslóðin lætur meira til sín taka á sviði
hins kristilega og kirkjulega. Um þetta er ekki að fást. Það er svo
eðlilegt og óhjákvæmilegt, að engnm ætti að koma það að óvörum.
Endur fyrir löngu var allsterk hreyfing innan félagskapar vors í þá
átt að bindast félagslegum tengslum við aðra deild lúterska hér í
álfu (General Council), og síðan hefir það má að bindast tengslum
við trúbræður vora hét í álfu, oft borið á góma. Sameinaða lúterska
kirkjan hefir boðið okkur á síðustu árum að gerast hltxti í þeirri
miklu heild. Norsk-lúterska kirkjan í Ameríku hefir rétt okkur
bróðurhönd til nánara samfélags, ef vér sæjum það bezt henta. Hefir
þetta eðlilega leitt til þess að mikið og af mörgum hefir verið um
þetta hugsað. Engum hefir mér fundist koma það til hugar, að æski-
legt væri á nokkurn hátt að skerða sjálfstæði vort og yfirráð vor
yfir sérmálum vorurn, en inn á leið samvinnu með öðrum lúterskum
kirkjufélögum höfum vér færst, án þess að skerða sérstöðu vora eða
sérkenni. Vil eg nú ráða til að kirkjuþing þetta taki þetta mikils-
verða mál til yfirvegunar, og géri sér grein fyrir því, hvert beri að
'Stefna i þessu efni. Er ekki tími til þess kominn að vér athugum á
ný hvað mæli með því og á móti að vér sem sjálfstætt kirkjufélag
göngum inn i samband með öðrum trúbræðrum vorum á einhvern
hátt? Hver sem niðurstaðan yrði, finst mér málið verðskulda að fá
afgreiðslu á grundvelli nákvæmrar athugunar.
Tilfinning fyrir því hjá oss að vér séum hluti stærri heilda
kristninnar eins og bent hefir verið á, ætti að auka hjá oss víðsýni í
'kristilegum efnum, Jafnvel vort litla kirkjufélag ætti að finna til
þess að ekkert kristilegt á að vera því óviðkomandi. Að áhrif bæði
íslenzkrar og amerískrar.kristni leika um hið andlega viðhorf vort,
ætti að gera oss hæfari til að skilja samtíð vora og hlutverk kirkj-
unnar. Og í öllu yfirliti yfir starf vort, eigum vér að finna til þess
að trúmenska við hlutverk allrar kristninnar, er krafa til vor, ekki
síður en stærri heilda.
Tala safnaða kirkjufélagsins eru 56, eins og á síðasta kirkju-
þingi. Nokkra af þeirn söfnuðum er þó tæpast hægt að telja með
lífsmarki, því litil eða engin kirkjuleg starfsemi nmn hafa verið hjá
þeim á árinu. Þyrfti bót á því að vera ráðin, þar sem starfið getur
átt viðreisn. Prestar kirkjufélagsins veri(S svo bundnir við starf á
árinu, að ekki hefir náðst til allra.
Prestar kirkjufélagsins eru hinir sömu og á síðasta kirkjuþingi.
Voru þá taldir átján prestar á skrá kirkjufélagsins. Þrír þeirra þó
horfnir frá starfi meðal Vestur-íslendinga. Einn var ný-farinn, en
hinir tveir munu hafa óskað að nöfn sín væru kyr á skrá vorri. Tveir
prestar bætast félagi voru væntanlega á þessu þingi.
Séra Haraldur Sigmar hafði á siðasta kirkjuþingi sagt upp söfn-
uðum sínum í Saskatchewan og tekið köllun frá söfnuðunum i Pem-
bina county í Norður Dakota. Hann flutti sig með fjölskyldu sinni
að áliðnu sumri til Mountain, þar í bygð, og var settur inn í embætti
við afarfjölmenna guðsþjónVistu þann 12. september af forseta
kirkjufélagsins með aðstoð séra N. S. Thorlákssonar. Guðsþjónustan
fór fram í rúmbeztu kirkju bygðarinnar—eldri kirkju Gardar-safn-
aðar. Hefir séra Haraldur tekið að sér þjónustu. í Guðbrands söfn-
uði, Pembina söfnuði og Fjalla söfnuði, auk safnaðanna í aðalbygð-
inni. Einum söfnuði utan kirkjufélagsins—Þingvalla söfnuði—veitir
hann einig þjónustu. Þjónar hann þannig svæði, sem telur 9 söfnuði
eða 10, ef Grafton söfn. er talinn með. Fer hið bezta orð af starfi
hans þar syðra.
Prestakallið, er séra Haraldur yfirgaf, hafði fyrir síðasta kirkju-
þing sent séra Sigurði Ólafssyni á Girnli köUun að taka þar við þjón-
ustu. En eftir að ráðfæra sig við söfnuði sína, sem með engu móti
vildu af honum sjá, hafnaði hann kölluninni. Voru það mikil von-
brigði fyrir söfnuðina í Saskatchewan, og hurfu þeir frá því í bili
að gera tilraun með að fá fastan prest.
Á siðastl. sumri áliðnu varð það kurmugt að séra Carl J. Olson,
sem í nokkur ár hefir horfið frá prestskap, var ákveðinn í því að taka
prestsköllun á ný, ef þess væri kostur. Fékk þá skólaráð Jóns Bjarna-
sonar skóla hann í sína þjónustu í nokkra mánuði til að safna fé til
skólans. Byrjaði hann á því starfi með september mánuði og lét ekki
af því til fulls fyr en í ffebrúar. Ferðaðist hann viða um bygðir með
góðum árangri. Fékk hann beiðni frá söfnuðunum í Vatnabygðunum
í Saskatchewan að vera hjá þeim yfir hátíðarnar og flytja guðs-
þjónustur. Varð hann við þeirri beiðni. Skömmu þar á eftir fékk
hann köllun frá söfnuðunum að gerast fastur prestur jjeirra, og tók
hann kölluninni. Var hann settur inn í embætti af forseta kirkjufé-
lagsins sunnudaginn þriðja apríl síðastl. að viðstöddu fjölmenni,
þrátt fyrir lítt færa vegi. Er hann búsettur í Wynyard. Er það
gleðiefni að fá aftur til vor jafn hæfan starfsmann og séra Carl er.
Yfirgaf hann stöðu, sem veitir að minsta kosti tvöfalt í aðra hönd
við prestsstöðuna, og er það vottur um áhuga hans. Séra Carl sæk-
ir um inntöku í kirkjufélagið á þessu þingi, og verður eflaust boðinn
hjartanlega velkominn til samvinnu á ný.
Séra Hjörtur J. Leó hafði, áður en hann yfirgaf Jóns Bjarna-
sonar skóla fyrir ári síðan, tekið köllun frá söfnuðunum við Lundar
og Langruth. Hafði hann þjónað þar öðru hvoru meðfram skólan-
um, en eftir síðasta kirkjuþing tók hann þar við fullu starfi. Á síð-
astl. vetri hefir hann auk þessarar prestsþjónustu, gegnt kennara-
embætti við miðskólann á Lundar. Einungis frábær dugnaðar og
hæfileika maður eins og séra Hjörtur, getur annað svo miklu verki.
Séra Valdimar J. Eylands hefir mest af árinu þjónað hjá söfnuði
sínum í Upham, N. Dak. (Melankton söfn.). Var hann ráðinn þar til
hálfrar þjónustu, en söfnuðurinn bætti svo við sig þjónustu, að séra
Valdimar hefir þjónað þar alt árið, að undanteknum einum mánuði
á ‘SÍðastl. hausti, er hann var við prestlegt starf norður með Mani-
toba vatni. Auk þess hefir séra Valdinxar í vetur veitt tilsögn í biblíu-
legum fræðunx við miðskólann í Upham. Er fræðsla í ensku biblí-
unni viðurkend námsgrein við miðskóla í Norður Dakota. Sérstaka
rækt hefir séra Valdimar lagt við ungmennafélag safnaðarins, og
hefir það staðið í miklum blóma. Er það ákjósanlegt frá sjónarmiði
starfsins, þegar prestur getur gefið sig við því svo að segja algerlega
að þjóna einum söfnuði. En aftur á móti, er oft þannig erfitt að
veita manninum fuHnægjandi lifibrauð.
Séra S. S. Christophersson hefir á árinu verið styrktur til heima-
trúboðsstarfs af kirkjufélaginu, samkvæmt ráðstöfun síðasta kirkju-
þings. Voru lionum veittir $300 til starfsins, og hefir hann aðallega
starfað eins og undanfarandi norður með Manitobavatni. Hefir
hann sjálfur skýrt opinberlega frá því starfi, og gefur þinginu þar
að auki þær upplýsingar, er óskað kann að vera eftir. Starfið er
erfitt á margan hátt, en séra Sigurður er fórnfús og ósérhlífinn. Nær
han rneð starfi sinu einungis til nokkurs hluta af svæðinu norður með
Manitoba-vatni, og væri þar þörf á auknum kröftum.
Eftir kirkjuþing í fyrra, þjónaði séra Rúnólfur Marteinsson einn
mánuð hjá Fyrsta iúterska söfnuði í Winnipeg, á meðan presti
safnaðarins veittist hvild. Á sarna tíma mun hann hafa stundað nám-
skei$ þar við háskólann. í Ágúst mánuði starfaði hann fyrir kirkju-
félagið að heimatrúboði, en fór seint i mánuðinum áleiðis til Seattle.
Á leiðinm þangað flutti hann guðsþjónustu í Vancouver. 1 átta
mánuði starfaði hann þar hjá Hallgríms söfnuði með góðum og mikl-
um árangri, eins og kunnugt er. Söfnuðurinn réðist í að kaupa sér
myndarlega kirkju á siðastl. hausti, og hefir starfið vaxið og eflst
stórlega síðan. Séra Rúnólfur hafnaði því að vera í vali við prests-
kosningu í söfnuðinum i marz síðastl. Kaus söfnuðurinn þá stud.
theol. Kolbein Simundson til prests, og fer vigsla hans fram á þessu
þingi. Er hann hinn efnilegasti maður, og má vænta góðs af lionum
í starfinu. — Séra Rúnólfur hefir tekið köllun frá skólaráði Jóns
Bjarnasonar skóla, að taka þar við starfi ámý sem skólastjóri, og mun
hann hefja starf í þarfir skólans strax eftir þing. Á heimleið frá
Seattle fór séra Rúnólfur skipaleið suður í gegnum Panama skurð-
inn og þaðan áleiðis til New Y®rk. Kunnugt er mér um að á heim-
leið flutti hann guðsþjónustu meðal íslendinga í Chicago, og, ef til
vill viðar. Um jólaleytið í vetur flutti séra Jón J. Clemens þar einnig
guðsþjónústu.
Kunnugt er að í haust er leiö sagði séra N. S. Thorláksson söfn-
uði sinum í Selkirk upp þjónustu frá 1. ágúst þ. á. Hefir hann þá
verið þjónandi prestur i 40 ár. Sjötugs afmæli átti séra Steingrímur
í vetur þann. 20. jan. 1 sambandi við þessi afmæli í lífi séra Stein-
grims munu margir nxinnast þess mikla og góða verks, sem hann og
hans góða kona hafa unnið í þarfir kirkju og kristindóms. Ekki ein-
ungis söfnuður þeirra nú eða söfnuðumir, sem áður hafa notið starfs
þeirra, eiga þeim rnikið upp að unna, heldur kirkjufélag vort i heild
sinni. Þau eiga itök í hjörtum fólks vors eins og fáir aðrir, og er
það óblandin gleði að eiga þau enn hjá oss svo ern og ung í anda.
verðskulda þau hvíld eftir vel unnið dagsverk, en rneðan kraftar
endast þeim munu þau verða liðsinnandi hinum kristilegu málum.
Veit eg að sú ráðstöfun forseta að séra Steingrímur flytji annan
fyririesturinn á þessu kirkjuþingi, sem nokkurskonar ályktunarorð
> Framh. á bls. 7.
Ferðaminningar.
Eftir Laufey Valdimarsdóttur.
Framh.
Árum saman gætu menn skoðað
dýrgripi þessa safns og altaf fund-
ið eitthvað nýtL
Skamt frá Louvre eru Rue de
Rivoli, sem tröllskessurnar ruddu,
að því er segir í Heljarslóð. I boga-
göngum hennar er fult af hinum ó-
teljandi smekkvísu smábúðum
Parísar, er þar margt ginnandi en
fólksmergðin fjarskaleg. Geta
menn þar gert samanburð á nútíma-
konunni og konum fyrri alda, sem
sjá má í Louvre. Óneitanlega eru
þær fallegar á velli Parisarkonum-
ar, og frjálsari og hollari eru bún-
ingarnir en áður var. Tískan er sá
mikli samnefnari, sem öll mann-
brotin stór og smá ganga upp í.
Hún gefur fjöldanum fallegan
heildarsvip, en þurkar út sérkenni-
leikann, nema vel sé með farið.
Það kunna Parísarkonurnar kvenna
best. Kaupa þær sem vandfýsnar
eru ekki föt. sín úr stórbúðunum,
sem sent hafa föt hingað til íslands,
heldur láta sauma á sig hjá stærri
og minni spámönnum í hóp skradd-
ara og saunxakvenna. Hafa margir
þeirra búðir í grend við operuna
eða á Ódáinsvöllunum.
Eftir svona erfiðan dag þurfum
við að skemta okkur dálítið. Það
er heldur heitt til þess að fara í
leikhús eða óperuna. Við mætum
raunar fólkinu, sem er að fara
þangað í vögnunr eða gangandi.
Kvöldkápur kvennanna eru í sam-
ræmi við kjólana. Sumar eru úr
pelli og silfur- eða gullvef, skraut
leg sjöl eru líka notuð sem
yfirhafnir. Leiksalur óperunnar er
logagyltur og klæddur rauðu flau-
eli, sitja konurnar í stúkum eins og
gimsteinar í öskjum. Á milli þátta
ganga menn i hinum glæsta foyer,
og sjá menn þar varla listaverkin
fyrir dásemdum guðs og skraddar-
anna. — Ópera Frakka þykir ágæt,
en naumast munu Frakkar þó al-
ment eins miklir söngmenn og sum-
ar þjóðir aðrar. Rétt hjá óperunni
er Café de la Paix. Held eg að
þúsundir manna hljóti að geta setið
þar og á gangstéttunum í kring.
Sko alvarlegu og hreinu augun í
gamla Arabanum, sem situr þarna
og horfir á iðandi stórborgarlífið.
Við setjumst upp í bil og keyr-
um burt frá öllu þessu. öndum að
okkur svölu og hreinu kvöldloftinu.
Alstaðar blikar ljósadýrðin og spegl
ast í dimmum vatnsfleti Signu. Hin
stóru opnu svæði, eru eins og slétt-
ur mitt í húsaskóginum, hæstu turn-
ar og hvolfþök í fjarska koma í
staðinn fyrir fjallagnípur og jökul-
skalla. Við sem komum frá víðum
sjóndeildarhring, kunnum að meta
þetta rými og stórhug þeirra, sem
bygt hafa París. Nú ökum við upp
Ódáinsvellina. í görðunum til
beggja handa sjást ljóshvirfingar,
þar eru veitingahús og danssalir. —
Ljósauglýsingarnar blika við loft-
ið. Skrautlegust allra er ávarp
Frakklands: ‘Styðjið ríkissamskot
Hækkið gengi frankans.” Við kom-
um nú upp á Stjörnuhæðina, þar
sem mætast 12 stórgötur, boule-
vards, allar með trjágöngum. Vagn-
arnir fossast i allar áttir, en í miðri
hringiðunni stendur sigurboginn,
eitt af ölturum þeim, er Frakkar
hafa reist gyðju sinni, Frægðinni.
Eru þar skráð nöfn helstu herfor-
ingja Frakka. Undir boganum
blaktir litil eldtunga nótt og dag.
Þar hvílir óþekti hermaðurinn und-
ir flötum steini. Altaf eru nýir og
nýir blómsveigar á leiði hans. Aldr-
ei er þar mannlaust.
Við keyrum enn spölkorn eftir
breiðum, hálum brautum og kom-
um nú í Boulogne skóginn. Skóg-
ar og engjar skiftast á. Maurilda-
eyjar spegla sig í dimmum vötnum.
Það eru veitingastaðirnir. Þar sitja
menn úti x görðum innan um blóm
og marglit ljós. Ágætis hljómsveitir
leika. Unga fólkið dansar. En hvað-
litla kreolastúlkan, sem dansar
þarna er yndisleg. Hún er eins og
sjaldgæft blóm, sem hefir sprungið
vit undir suðrænni himni en þessum,
þar sem nóttin er heit og ilmþrung-
in og ókunnar stjörnUr skína.
í Boulogne skóginum eru veð-
reiðarvellir Parísár. Þangað þyrp-
ast allir, sem vetlingi geta valdið,
þegar veðreiðar eru. Þar bera kon-
urnar skrautlegri föt en annarsstað-
ar og fara menn ekki þangað síður
til að sjá tískuna en hestana. Dag-
inn, sem eg sá veðreiðarnar, voru
stærstu verðlaun ársins veitt þar.—
Á þriðja hundrað þúsund manna
voru á völlunum. Forseti Frakka
var þar og Spánarkonungur, sem
mannfjöldanum virtist þykja gam-
an að sjá, þó lýðveldissinnar væru.
Þrengsjin voru ógurleg. Eg sá eftir
að hafa farið. — Þangað til að
hestarnir runnu á stað, allur mann-
fjöldinn stóð á öndinni, og varð
eitt augablik að einni veru. Franska
konan, sem var með mér greip i
handlegg mér og hrópaði upp:
‘Þeir synda.’ Það var satt, hestarn-
ir sýndust synda í loftinu. Svo laust
upp þúsundrödduðu fagnaðarópi.
Hestur, sem fáir höfðu búist við að
ynni 1. verðlaun varð fyrstur, Eng-
inn hafði trúað á hann nerrta hesta-
sveinninn, sem reið honum. Þeir,
sem höfðu veðjað um hann báru
40 falt úr býtum.
Næturlíf Parísar blómgast þó að-
allega í Montmartre. Þar halda sig
listamenn og loddarar, þar eru ó-
teljandi skemtistaðir, fjölleikahús
og knæpur. Á daginn sjá menn lítil
merki þessa, þó þeir fari þar um.
En á kvöldin springa ljósauglýs-
ingarnar út eins og sveigar af
kynjablómum. Vængir Rauðu mill-
unnar glóa við loftið, sjálf er hún
sveipuð einhverjum hyllinga vaf-
urloga. Þessari hlið Parisar kynt-
ist eg ekki. Eg færði mér ekki í nyt
gott tilboð ferðamannaskrifstof-
anna, sem alstaðar sást auglýst:
Gerðar út ferðir til að skoða næt-
urlif borgarinnar. Ef til vill var
það einn af þeim ferðamannabilum,
sem mannfjöldinn réðst á skömmu
síðar uppi á Montmartre hæðinni.
Montmartre þýðir pislarvotta-
hæðin. Þræði menn upp hinar mjóu
og kræklóttu götur fyrir ofan f jöl-
förnu vegina, þá koma menn að há-
um stigum, sem liggja upp hæðina.
Þar uppi gnæfir kirkjan Sacré
Coeur, Hjartað helga, yfir alla
París. Hún er baseliskakirkja eins
og Péturskirkjan í Róm og er úr
ljósum granít. Er hún afar tilkomu-
mikil utan og innan. Ofan af hæð
þessari er stórfengleg útsjón, ekki
síst ,ef heiðskírt er og tunglsljós.
Við hliðina á Sacré Coeur er lítil
eldgömul kirkja. í garðinum í kring
um hana eru einkennilegar gamlar
myndir úr piningarsögu Krists og
á hæsta hólnum á hæðinni standa 3
krossar, með Kristi og ræningjun-
um, hvorum til sinnar handar.
Þarna segir sagan að fyrstu dýr-
lingarnir frönsku hafi látið lifið.
En rétt fyrir neðan kirkjurnar er
myndastytfan af Chevalier de la
Barbe. — Hann var kvalinn og líf-
látinn 19 ára gamall, af því að hann
henti gaman að helgigöngu, sem fór
fram hjá honum.
Auk kirknanna eru nokkur veit-
ingahús uppi á hæðinni. Er eitt
þeirra, “Hjá Ka,trinu gömlu” frá
1793. Þar geta menn setið úti í
garði, drukkið og etið hinn víð-
fræga franska mat, en alþýðusöng-
menn leika á strengjahljóðfæri og
syngja undir. Ljós og skuggar skift-
ast á í gömlu húsagörðunum í
grendinni, birtan frá rúðunum,
mislitum lömpum og tunglskininu
blandast saman og gefur öllu ein-
kennilegan blæ. Nú syngja allir:
‘,Comme il est beau mon village,
mon Paris, notre Paris.” — Hvað
hún er falleg borgarkrílið hún Paris
mín, hún París okkar. — Alt er
leyfilegt, en ekki er alt gagnlegt,
segir postulinn. Það er hætt við því
að einhver kunni að gleyma eftir-
setninguni á stað, sem er jafn f jar-
lægur daglega lifinu og þessi.
Paris er skift í 18 eða 19 hverfi
og hefir hvert sérstaka hverfis-
stjórn og heldur árlega hátíð, sem |
stendur í marga daga á götum úti.
Þegar eg var að fara frá Mont-
martre, heim til mín, sá eg að há-
tíð var á götunum. Menn þeyttust á I
hringekjum, á tréhestum eða svín-
urn og léku sér og köstuðu konfetti
hver á annan. — Á Montmartre
var þetta ekkert furðuleg sjón, en
skrítnara var að sjá það í rólegum
hverfum bæjarins, eins og þar sem
eg bjó. Þar skemti fólkið sér eins
og smábörn, dansaði á götum úti,
skaut til marks, dró á tombólu,
keypti alskonar glingur, og hring-
sólaðist á hringekjunum. — Aldrei
var eg neitt hrædd, þó eg yrði að
fara alein fram hjá þessu að kvöld-
lagi, enginn áreitti mig.
Aftur kom það fyrir mig, eitt af
fyrstu kvöldunum í París, að verka-
maður, sem eg spurði til vegar,
fylgdi mér álengdar, eins og hann
væri lögregluþjónn. I hvert sinn og
hann sá, að eg ætlaði að villast korn
hann og sýndi mér hvar eg ætti að
fara, en hvarf svo aftur, án þess að
segja meira. Svona fylgdi hann mér
heim að húsdyrum mínum.
Þetta litla atvik minti mig á
gamla kunningja, frönsku sjómenn-
ina„ sem voru hér jafn vissir vor-
boðar og lóan, þegar eg var barn.
— Þeir áttu sér hreiður í frönsku
húsunum svörtu við Austurvöll,
sem nú eru týnd og gleymd inn í
Skuggahverfi. Mér er sem eg sjái
stóru hleraopin full af hlæjandi sjó-
mönnum, sem fleygðu keksi til
krakkanna niðri á götunni. Talna-
bönd og litla silfurpeninga með
Maríumynd lögðu þeir í lófana á
litlu stúlkunum. Börnin skildu þessi
hýru andlit, þó þau kynnu ekki
nema 3 orð í golfrönsku: “Bonn-
sjúr fransí, biskví.”
Það er ekki að búast við, að
menn geti dæmt um lyndiseinkunn-
ir ókunnugrar þjóðar, þó menn
dvelji hjá henni i nokkrar vikur.
Tilviljun ræður því hverjum menn
kynnast, en eftir þvi dæma menn
ósjálfrátt alla þjóðina.. Frakkar eru
taldir allra þjóða kurteysastir. Siðu
þeirra hafa aðrar menningarþjóðir
tamið sér eða stælt. Sjálft orðið
kurteysi höfum við fengið að láni
hjá þeim. Margar slikar venjur
virðist okkur óbreyttum íslending-
um hégómi, vegna þess að menn
taka þær oft hugsunarlaust hver
eftir öðrum. Alveg eins og menn
sletta útlendum orðum, án þess að
skilja merkingu þeirra. Kurteysi
Frakka er ólík þesskonar stælingu.
Hún er þeim svo eðlileg og sprett-
ur af meðfæddum næmleik þeirra,
sem bannar þeim að vera nærgöng-
ulir við aðra, en kemur þeim til að
draga fljótt að sér hendina, ef
þeim þykir ástæða til. Aftur hafa
þeir manna mest af því örlæti hug-
ans, sem þarf til þess að viður-
kenna aðra. Þessi ljúfmenska dreg-
ur broddinn ur kýmninni, sem
skarpleik þeirra er eiginleg. Svona
komu Frakkar mér fyrir sjónir, en
galla þeirra gat eg ekki þekt á svo
skömmum tíma.
Mér virtist svo sem menning og
smekkvísi væri almennari 1 Frakk-
landi en víðast hvar, þar sem eg
Niðurl. á bls. 5.
XKHKHKHKHKhKKKHKHKKHKHKHKHKHKKHKHKHKHKKHKHKHKHKKKKKHW
ISendið korn yðar I
UNITED grain growers t?
Bank of Hamilton Chambers Lougheed Ðuilding 5
WINNIPEG CALGARY
Fáið beztu tryggiugu sem hugsanleg er. |
KHKHKHKHKBKHKKKHKHKxtHKHKHKHKHKHKKHKBKHiHKHKHKHKHKHKtO
RRAID & lyiCrURDY
BUILDERS’ SUPPLIES
--------------KOL---------------------
Selja eftirfylgjandi byggingaefni:
Sand, Gravel, Stone, Lime
Hardwall Plaster, Portland
Cement, Drain Tile, Sewer
Pipe, Fire Brick, Metal Lath,
Stucco.
Sand og Gravel Pits að Bird Hill, Man.
Skrifstofa: Vöruhús:
136 Portage Ave. Við enda BannatyneAve
WINNIPEG, Canada
Talsími: 26 880 og 26 889
--------------------------------f------