Lögberg - 14.07.1927, Síða 3
LÖGBERG, FIMTUDAGINN 14. JÚLÍ 1927.
Bls. 3.
43. Kirkjuþing
Hins evangeliska lúterska kirkjufélags íslendinga
í Vesturheimi.
HALDIÐ í WINNIPEG, MANITOBA,
22.-27. Júní 1927.
Þá lagði skrifari fram ársskýrslu sína:
ÁRSSKÝRSLA SKRIFARA
Til kirkjuþingsins 1927.
Tala safnaða kirkjufélagsins eru nú 56, eða einum söfnuðl færra
en í fyrra, sem stafar af því eingöngu, að sameining tveggja safnaða
í eina heild, er þá varí aðsígi, er nú fullgjör.
Fólkstal fullorðinna í kirkjufélaginu má og heita hið sama og
fyrir ári síðan. Aftur er tala ófermdra fullum tveimur hundruðum
lægri. Mun þetta vera að kenna ónákvæmni nokkurri, er á sér víða
stað i safnaðarskýrslunum. Er tala hinna ófermdu alveg vafalaust
of lág, mjög víða, og sumir söfnuðirnir gefa alls enga skýrslu um
fólk innan fermingaraldurs. Virðist mér bera meira á þessari óná-
kvæmni í ár en nokkru sinni fyr. Býst eg við að samanlagt fólkstal
í kirkjufélaginu sé i raun og veru æði mikið hærra, en kemur fram í
tölum i ársskýrslu vorri í þetta sinn.
Tala altarisgesta er talsvert lægri síðastliðið ár en hún áður var.
Nokkuð margir söfnuðir gefa enga skýrslu um það efni. Eru sumir
þeirra þó gamlir, starfandi söfnuðir, með stöðugri prestsþjónustu.
Er annaðhvort að þar hefir orðið afturför, að því er þetta snertir,
eða að aðgæzluleysi hefir átt sér stað, þegar skýrslurnar voru samd-
ar. í einstaka tilfelli er getið um forföll er komið hafi í veg fyrir
altarisgöngu. Getur það auðvitað komið fyrir og verið afsakanlegt.
En að skýrslurnar nú skuli sýna nærri þrjú hundruð manns færra við
kvöldmáltiðarborðið en áður var, það hygg eg stafi að einhverju
leyti af ófullkomnum skýrslum, fremur en af þvi að svo ákveðin
afturför hafi orðið i þessu efni innan kirkjufélagsins.
Félagatal í ungmennafélögunum hefir og fremur gengið saman.
Var sú tala í fyrra 769 en nú 579.
Fé notað til safnaðarþarfa, eftir skýrslum að dæma, hefir og farið
niður um full sjö þúsund. Er sú upphæð nú $30,815.75. í fyrra var
þessi útgjaldaliður talinn að vera $37,901.34. Mun hér aftur vera
gölluðum skýrslum um að kenna. Þó nokkrir söfnuðir gefi enga
skýrslu að því er þetta snertirt Hafa sumir af þeim stöðuga prests-
þjónustu og talsvert mikil útgjöld. Er nærri vafalaust að þessi út-
gjöld safnaðanna eru í heild sinni æði mikið meiri en ársskýrslan
sýnir í þetta sinn.
1 sunnudagsskólastarfinu hefir orðið heldur framför. Einum
skóla nú fleira, að þvi er virðist, eri áður var. Eru skólarnir nú 35.
Nemndatal níutiu hærra en var í fyrra, þá 2,095 en nú 2,185. Kenn-
arar og starfsfólk sunnudagsskólanna nú talið að vera 252, eða tuttugu
og þrem manns fleira en í fyrra. Er ánægjulegt að vita, að starfið
góða meðal hinna ungu er fremur að taka framförum. Markmiðið
ætti, í þessu efni, að vera sunnudagsskóli í hverjum söfnuði kirkju-
félagsins. Það gæti hæglega orðið og verður, ef rétt er að farið i
nálægri tið.
Meiri vandvirkni, að því er skýrslur áhrærir, þarf að komast á í
kirkjufélagi voru. Að öðrum kosti er næstum ómögulegt að gefa
greinilegt yfirlit yfir hag þéss.
Árborg, 21. júni 1927.
Jóhann Bjarnason, skrifari.
í nefnd til at! yfirvega ársskýrslur forseta og skr'ifara og
að raða málum á dagskrá, voru kosnir þeir séra G. Guttorms-
son, J. J. Swanson og B. M. Melsted.
Dr. B. !B. Jónsson vakti máls á, að nefnd þessi ætti sem
fyrst að fá tækifæri að íhuga það atriði í ársskýrslu forseta,
er lýtur að andláti hins ágæta látna manns, Hon. Thos. H.
Johnsons. Mundi nefndin semja sérstaka ályktan í því efni,
sem þingið svo samþykti, og væri æskilegt, að sú þingsályktan
kæmi fram sem fyrst, svo blöð, þau er vilja, geti birt hana taf-
arlaust. Var það einróm samþykt af þinginu.
Þá lagði féhirðir fram ársskýrslu sína:
Kirkjufélagssjóðar 10. júní 1927.
Tekjur—•
í sjóði 10. júní 1926 ...........................
Borguð safnaðargjöld.............................
Innheimt fyrir Gjörðabók.........................
Bankavextir ....................................
Betel söfn., borgað af láni......................
Fært úr útgáfusjóði........... .........................
Útgjöld—
Þóknun til skrifara.......................... $ 50.00
Þóknun til féhirðis............................. 100.00
Ferðakostnaður.................................. 60.60
Smá útgjöld af ýmsu tægi ........................ 142.93
Prentun Gjörðabókar............................... 68.25
Ábyrgð á féhirði.................................. 12.00
I sjóði ....................................... 683.00
$ 470.66
473.40
42.00
12.62
30.00
88.10
$1,116.78 $1,116.78
Eignir—
1 sjóði 10. júní 1926 ............................... $ 683.00
Ógreidd safnáðagjöld.................................... 224.00
Lán til safnaða.......................................... 57.50
Typewriter and Duplicator ................................ 81.00
—EEEE EE $1045.50
Yfirskoðað í Winnipeg, Man. 20. júní 1927.
T. E. Thorsteinson.
F. Thordarson.
Heimatrúboðssjóður 10. júní 1927.
Tekjur—
í sjóði 10. júní 1926 ............ .................... $ 416.54
Tillög frá söfnuðum kirkjufélagsins.......... j........ 391.48
Mrs. C. Paulson, Hecla, Man. .......................... 3.00
Offur við guðsþjónustu á kirkjuþingi 1926 .................. 55.11
Frá Islendingum i Keewatin.................................. 24.55
Frá íslendingum í Piney..................................... 16.96
Frá íslendingum í Caliento................................... 6.00
Kvenfél,-Frelsis safn........................................ 5.00
Dorkas fél. Frelsis safn. . ^................................ 5.00
Kvenfél. Melankton safn..................................... 10.00
Kvenfél. Tilraun, Hayland................................... 10.00
Kvenfél. St. Páls safn..................................... 25.00
Ónefnd, Winnipeg............................................. 5.00
Kvenfél. Baldursbrá, Baldur ..... ..........'.......... 10.00
Kvenfél. Gardar safn...............................*... 10.00
Kvenfél. Vesturheims safn.................................... 5.00
Kvenfél. Vídalíns safn...................................... 10.00
Samskot við jólaborðið hjá S. í Wpg......................... 8.50
B. Walterson, Wpg........................................... 10.00
Trúboðsfélag Fyrsta lút. safn............................... 25.00
Kvenfél. Fyrsta lút. safn.................................. 50.00
Ónefndur vinur............................................... 5.00
J. S. GiIIis, Brown................................ ... .■ 5.00
K. Valgardsson, Gimli....................................... 5.00
O. Thorlacius, Dolly Bay..................................... 1.00
Mr. og Mrs. G. J. Oleson..................................... 2.00
Gjöld—
Til Hallgríms safn.......................... $ 300.00
Sr. S. S. Christopherson......................... 300.00
Sr. R. Marteinsson, (Laun) ..................... 100.00
Sr. R. Marteinsson, (Ferðakostnaður) .... 15.15
1 sjóði ........................................ 404.99
$1,120.14 $1,120.14
Yfirskoðað í Winnipeg, Man. 20. júní 1927.
T. E. Thorsteinson.
F. Thordarson.
Hciðingjatriiboðssjóðnr 18. júnl 1927.
Tekjur—
I sjóði 10. júní 1926 ................. ............... $ 2.88
Tillög frá söfnuðum kirkjufélagsins .... l............. 493.06
Skapti Sigvaldason, Lvanhoe............................ 15.00
Mr. C. Paulson, Hecla............................. .... 2.00
Kvenfélag St. Páls safn. .............................. 36.00
J. S. Gilies, Brown......................................... 5.00
Björn Jónsson, Churchbridge ................................ 3.00
Ónefnd, Winnipeg............................................ 5.00
Sd. sk. Grunriavatns safn................................ 5.50
Ónefndur vinur, Bradenbury .... ............................ 5.00
Ónefndur, Árborg............................................ 1.00
Kvenfél. Immanúels safn. Wynyard .......................... 25.00
Guðm. Oddson, Selkirk....................................... 1.00
G. T. Hjaltalín, Mountain............................... 4.50
Sd. sk. Gimli safn.......................................... 3.60
Séra P. Hjálmsson, Markerville............................. 10.00
Mr. og Mrs. S. S. Grímson og Mr. og Mrs. G. S. Grím-
son, Red Deer.......................................... 15.00
Kvenfélagið Dörfung, Riverton.............................. 10.00
Mrs. L- Th. Björnsson, Riverton............................. 5.00
Kvenfél. Vídalíns safn.................................... 10.00
Mr. Guðni Olson, Minnesota................................. 10.00
Kvenfél. St. Páls safn..................................... 57.80
O. Thorlacius, Dolly Bay.................................... 1.00
Guðm. Guðmundsson, Linton................................... 2.00
Ónefnd hjón,'Winnipegosis................................... 5.00
Kvenfél. Herðubreiðar safn................................. 10.00
Bandalag Herðubreiðar safn.................................. 2.00
Kvenfél. Melankton safn.................................... 20.00
Mrs. Guðbjörg Freeman, Upham ............................ 5.00
Ónefnd, Winnipeg........................................... 10.00
B. S. Thorvaldson, Cavalier................................. 5.00
G. C. Helgason, Churchbridge................................ 5.00
Björn Jónsson Churchbridge ............................... 2.00
Magnús Magnússon, Ohurchbridge .......................... 1.00
Kvenfél. Bræðra tsafn...................................... 15.00
Helgi Thorláksson, Hensel................................... 6.00
Stephan Eyjólfsson, Edinborg................................ 5.00
Th. S. Laxdal, Mozart .... ................................. 5.00
Jón Hannesson, Akra......................r............ 5.00
J. S. Gillis, Brown...................................... 5.00
S. S. Hofteig, Cottonwood . ............................... 5.00
Halldór Anderson, Hensel.................................... 5.00
O. Th. Finnson, Milton...................................... 5.00
Ladies Missionary Society, Wynyard......................... 25.00
Mr. og Mrs. A. A. Johnson, Mozart .'.......... 10.00
Thorlákur Björnsson, Hensel................................. 5.00
Mr. og Mrs. Stgr. Johnson, Kandahar......................... 5.00
Sd. sk. Lundar safn......................................... 9.50
St. Gilbertson, Minneota.................................... 5.00
H. Guðbrandsson, Gardar.......................... .... 5.00
J. K. Ólafson, Gardar........................................ 5.00
O. K. Ólafson, Gardar....................................... 5.00
A. C. Johnson, Winnipeg .................................. 10.00
Sd. sk. Glenboro safn...................................... 12.15
Mr. og Mrs. G. J. Oleson, Glenboro.................... 3.00
Mr. og Mrs. Thomas Halldórsson, Mountain .................. 10.00
J. K. Johnson, Mountain.......................................5.00
Hans Einarsson, Gardar.................................... 5.00
Séra H. Sigmar............................................. 3.00
Kvenfél. Baldursbrá, Baldur................................ 10.00
S. S. Grimsson, Milton...................................... 5.00
Bandalag Selkirk safn...................................... 25.00
Trúboðsfélag Fyrsta lút. safn.............................. 38.45
J. J. Swanson, Winnipeg...................................... 5.00
G. B. Björnson, St. Paul.................................... 5.00
Guðjón ísfeld, Taunton...................................... 5.00
Trúboðs£élag Selkirk safn.....•....................... 75.00
Sd. sk. Selkirk safn.................................... 10.00
Sd. sk. Bræðra safn......................................... 5.00
Ónefndur .'................................................. 2.00
Th. J. Gíslason, Brown..................................... 5.00
Mrs. S. O. Paulson, Blaine.................................. 5.00
Fred Johnson, Hensel....................................... 5.00
S. B. Erickson, Minneota.................................... 5.00
Johann Briem, Riverton..................................... 5.00
Ben. Anderson, Cypress River................................. 5.00
Kvenfél."'Glenboro safn..................................... 25.00
Kvenfél. Björk, Lundar..................................... 25.00
Mr. og Mrs. Guðjón Rafnkelson, Stony Hill ................. 10.00
Halldór Anderson, Cypress River............................. 5.00
O. Anderson, Baldur.......................................... 5.00
Borgað L. B. Wolfe.......................... $ 350.00
f sjóði.................................... 907.44
$1,257.44 $1,257.44
Yfirskoðað í Winnipeg, Man. 20. júní 1927.
T. E. Thorsteinson.
F. Tltordarson.
Kirkjubyggingarsjóður 20. júní 1927.
í sjóði 10. júní 1926 .. ~. .............................. $ 289.00
Árdals söfn. borgað............................................. 50.00
Árnes sijfn. borgað............................................ 25.00
Selkirk söfn. borgað ........................................... 70.00
Lán Hallgríms söfn............................ $ 300.00
f sjóði 20. júní 1927 .............. ......... 134.00
— „$434.00 $434.00
Eignir—
í sjóði 20. júní 1927 ................................. $ 134.00
Árdals söfn................................................ 150.00
Árnes söfn............................................... 150.00
Selkirk söfn............................................... 210.00
Hallgríms söfn.....................^................... 300.00
Loforð ógoldin ...................*.... ............... 200.00
$1,144.00
Yfirskoðað í Winnipeg, Man. 20. júní 1927.
T. E. Thorsteinson.
F. Tltordarson.
Yfirlit yfir fjármál.
Kirkjufélagssjóður ...................... $ 683.00
Heimatrúboðssjóður .......................... 404.99
Heiðingjatrúboðssjóður ...................... 907.44
Kirkjubyggingarsjóður...................... 134.00
í kirkjufélagssjóði í The Royal Bank,
sparisjóðsdeild........................... $2,129.43
Yfirskoðað í Winnipeg, Man. 20. júní 1927.
T. E. Thorsteinson.
F. Thordarson.
Fjárhagsskýrsla útgáfufyrirtœkja 10. júní 1927.
Tekjur—
Áskriftargjöld Sam.................................... $
Auglýsingar í Sam............ ........................
Peningar frá bókaverði................................
Útgjöld— i
Prentun og útsending Sam. 1 maí 1926
til 1 maí 1927 ........................... $1,215.50
Borgað fyrir innköllun ...; ................ 20.90
Fært í kirkjufélagssjóð .................... 88.10
595.45
387.25
341.80
$1,324.50 $1,324.50
Yfirskoðað í Winnipeg, Man. 20. júní 1927.
F. Thordarson.
T. E. Thorsteinson.
Efnahagsreikningtir xítgáfufyrirtœkjanna.
Óseldar bækur og fleira, samkv. fylgiskj................... $2865.60
Sálmabækur hjá bókbindara................................... 286.44
Prentletur sálmabókar....................................... 147.00
Útist. áskriftargjöld Sam. 31 des. 1927 .... $2,100.00
Áætluð prentun og útsending Sam. maí—
desember þ. á.............................. 700.00
•------- 1,400.00
Gjört ráð fyrir afföllum...................... 2,400.00
Mismunur —. eignir ......... .... ............ 2,299.04
$4,699.04 $4,699.04
Yfirskoðað í Winnipeg, Man. 20. júní 1927.
F. Thordarson.
T. E. Thorstcinson.
. ’ Framh. á bls. 7.
Bréf
séra Matthíasar og óprentuð
kvæðL
Eg undirritaður auglýsti fyrir
nokkru, að eg hefði í hyggju að
gefa út áður en langt um líður ó-
prentuð kvæð'i 0g bréf frá föður
mínum til ýmsra kunningja hans.
Jafnframt skoraði eg á allá, sem
ættu í fórum sínum bréf eða
kvæði, að gera svo vel og lána
mér þau eða senda mér afrit af
þeim.
Þó stutt sé liðið síðan, hefi eg
þegar fengið nokkurn bunka,, og
býst við að safnið verði mikið
áður en lýkur.
Til þess að minna menn enn
betur á, að verða vinsamlega við
tilmælum mínum, hefi eg hugsað
mér með nokkru millibili, að birta
í nokkrum tímaritum og blöðum
eitt og eitt af kvæðum þeim eða
bréfum, sem mér verða send. Á
þessu byrja eg nú í dag með ein-
um bréfkafla.
í gær var hr. Páll Bergsson í
Hrísey Svo vænn að senda mér
nokkur bréf, er hann átti frá föð-
ur mínum. Um leið og eg þakka
honum sendinguna, leyfi eg mér
að setja hér útdrátt úr einu bréf
anna:
“Akureyri, 2. nóv. 1905.
Kæra þökk fyrir þína ýsu—
þarna færðu hálfa vísu,
spyrður þínar fyrir fjórar,
feitar, nýjar, þykkar, stórar.
En ekki kann eg á að gizka
áður en kref eg téða fiska,
hvaða gæði gamla Braga
geymi þær í sínum maga.
Ekki í maga, heldur höfðum,
hitti eg nóg af samanvöfðum
óskasteinum—eða kvörnum—
einstaklega vel til kjörnum.
Úr þeim steinum strax eg seiði
. sterka töfra, þá er leiði
ríkan hlut á hverjum degi
heim til þín úr Ránar-legi;
einnig það, að ósk þín rætist,
og að hvað, sem vantar, bætist,
öll þín auðna eflist, kætist,
alt þitt böl til fjandans tætist.
Lifðu sæll í ljósi þvísu,
lifðu sæll við þorsk og hnýsu,
lifðu sæll í lofsöngs-vísu,
lifðu sæll — og meiri ýsu.
Ekki er vakurt, þótt riðið sé —
á Pegasusi.
Allir komnir upp í háttinn,
einn eg sit við hörpusláttinn, ,
enda verð nú ýsu-þáttinn,
opin, trú’ eg, stendur gáttin.
Þér sjáið, að þetta er rímbeygla
r;tuð éins og úr pennanum fellur,
annars hefi eg sjaldan látið þá
konst eftir mér — nema stöku
sinnum í bréfum til góðs kunn-
ingja. Þess konar er mest alt
komið fyrir kattarnef og stein-
gleymt Fyrir 20 árum gisti eg
hjá góðum skólabróður, og las
hann mér lengl skrítlur úr göml-
um bréfum. Loks spurði eg hver
ort hefði. Það kom þú upp úr
soðinu, að það var alt frá minni
ruslaskjóðu. Maðurinn var séra
Páll Sigurðsson, síðast í Gaul-
verjabæ. Þér fáið hér með mín-
ar tfjórar ']jóða-[ýsuspyrður. Það
er heldur léleg ljóða-ýsa, nærri
því tóm erfiljóð. En samt nenni
eg ekki að skammast mín fyrir
allan fjöldann af þéim. Og enn á
eg 40—50 erfiljóð, auk ótal týndra
og tröllum gefinna.
Item fáið þér 2. bindi af Her-
læknissögum Z. Topelíusar, og
loks leikinn Gísla Súrsson, því ef
þér eigið hann áður, getið þér not-
að hann til einhvers annars, eg á
ærið nóg af honum óselt — mink-
un hvað þjóðin er mikið barn, að
skilja ekki þann leik, því að hann
er meistralega saminn — af
enskri stúlku.
Dimmviðri í dag og logndrífa;
útlitið líkt og í íslands innri póli-
tík og — á horfum þessa eyfirzka
höfuðstaðar. Líklega er, að bæj-
argreyið hrynji ekki né hvolfist
kollhnýs í Poljinn úr þessu, en
“krach” fær hann líklega, því alt
of margir “svindla” sig áfram
með oftrú á bankana, en hvorki
kendir Við trú á Drottinn, sjálfa
sig, síldina eða framtíðina.”
Nuga-Tone Gerir Þá
Hrausta sem Veiklaðir Eru.
Nuga-Tone hefir gert krafta-
verk síðustu 35 árin í þeim efn-
um, að gefa fólki aftur heilsu
sma, dugnað og áhuga, og það í
millíóna tali, bæði^örlum og kon-
um, sem af ýmsum ástæðum hafa
mist heilsuna að meiru eða minna
leyti, og eru_ ekki orðnir nema
hálfir menn við það sem þeir voru
og ættu að vera. Hversu vel með-
alið hefir reynst ótal öðrum, ætti
að sannfæra þig um gæði þess.
Það er óþarfi að dragast með
einhvern kvilla, sem rænir þig
heilsu, fjöri og ánægju, þegar
Nuga-Tone getur hjálpað þér og
losað þig við þá kvilla, sem eru
því valdandi, að þér finst þú vera
gamall og ónýtur, meðan þú enn
ættir að vera í fullu fjörí og
njóta lifsins. Nuga-Tone bregst
þér aldrei og það er selt með
fullri tryggingu og peningum
skilað aftur, ef þú ert ekki á-
nægður. Fáðu þér flösku strax
í dag og vertu viss um, að fá
Nuga-Tone. Eftirlíking er ekki
neins virði.
Hæsta verð
fáið þér fyrir
Rjómann
yðar frá “Co.-Op.” vegna þess að útibú er rétt í
nágrenni við yður, sem kemur í veg fyrir að hann
skemmist á löngum flutningi. Sendið allan yðar
rjóma til
COOPfRATIVE
CRfAMERIES LTa
Faðir minn átti bréfaviðskifti
við fjölda manna víðsvegar um
land og erlendis, og var fljótur að
svara, þegar honum var skéifað
til. Var þá algengt, að stökur
fylgdu í bréfunum og stundum
heil kvæði. Megnið af þessum
kveðskap er því dreift víðsvegar
og týnist óðum, því það var að
eins stöku sinnum, sem hann fékk
tíma til að taka afrit af slíku.
Akureyri, 19. maí 1927.
Steingrímur Matthíasson.
—íslendingur.
borgari þessa lands.
Hann andaðist 21. marz sl .. að
Birkilandi hjá dóttur 's'inni og
tengdasyni. Fluttist þangað frá
eignarjörð sinni Sandnesi, að eins
til þess að liggja þar banaleguna.
Vinir og vandafólk kveður hann
með söknuði og ástarþökk.
J. S. frá Kaldbak.
Œfiminning.
Helgi Sigurðsson.
Hann var fæddur 'á Kúskerpi í
Engihlíðarhreppi í Húnavatns-
sýslu 12. febr. 1844. Faðir Hefea
var Sigurður Vigfússon bóndi á
Kúskerpi, voru þe'ir Sigurður og
Helgi, afi séra Jóhanns Bjarna-
sonar, bræður. Móðir Helga Sig-
urðssonar, kona Sigurðar á Kú-
skerpi, var Guðrún ólafsdóttir,
ættuð af Skagaströnd.
Helgi var tekinn í fóstur á
þriðja ári af hjónunum Jóni Jóns-
syni og Guðbjörgu Halldórsdótt-
ur á Tungu í Gönguskörðum í
Skagafjarðarsýslu. Þar var hann
15 ár. 1862 fór hann að Þingeyr-
um til ekkju Magnúsar Olsens og
var þar tvö ár. Að þeim tíma
liðnum fór hann suður í Borgar-
fjörð. Þar kvæntist hann árið
1872 eftirlifand'i konu sinni, Val-
gerði Brynjólfsdótttur bónda á
Hreðavatni. Hún var fædd á
Hreðavatni 4. ág. 1853. Brynj-
ólfur faðir hennar var stórbónd'i.
Hann var Einarsson hreppstjóra
á Hreðavatni. Móðir Valgerðar,
kona Brynjólfs, var Guðrún Hann-
esdóttir úr Húnavatnssýslu. Eft-
ir sjö ára dvöl í Borgarfirði fluttu
þau Helgi og Valgerður norður í
Húnavatnssýslu og bjuggu á
Kirkjubæ. Þaðan fluttu þau til
Ameríku 1893 og settust strax að
í Mikley, námu þar land og nefndu
Sandnes.
Af 13 börnum þeirra hjóna lifa
þrjú: 1. Þorste’inn Brynjólfur, er
kona hans látin, hét jGuðríður Jó-
hannesdóttir, ættuð af Skaga í
Húnavatnssýslu. 2. Anna Sigríð-
ur, gift Þorbergi Brynjólfssyni á
Birkilandl. 3. Guðbergur Ástín-
us, kvæntur Ingibjörgu Gunnars-
dóttur Goodman, frá Winnipeg.
4. Sigríður, dóttir Helgu, stjúp-
dóttir Valgerðar, er kona Péturs
Bjarnasonar á Melstað í Mikley.
Helgi heitinn Sigurðsson, var ó-
svikinn íslendingur í húð og hár.
Skapaður til þess að heyja baráttu
lífsins án þess að hopa um eitt
fet. 1 svip hans lá ættarmót hinsj
forna norræna víkings, sem var
i*eiðubúinn að sækja því harðar
fram, sem mótstaðan var meiri. |
Hann var maður afburða dugleg-
ur og brá aldrei í barningi lífs-
ins, þó að á gæfi á bæði borð—j
að undanteknu því, þegar hannj
varð að sjá á bak börnunum sín-
um á landamerkjum lífs og dauða.
Þá kiknaði hugur kappans og
hárið hvítnaði. En hann rétti úr
sér aftur og hélt leiðar sinnar,
gegndi kvöðum skyldunnar og
bar harm sinn í hljóði. Hann var
maður barngóður með afbrigð-
um og mátti yfirleitt ekkert
aumt sjá.
Helgi sál. var búmaður góður
og farnast vel í Sandnesi, enda
var hann starfsmaður mikill og
gekk að verki alt fram að bana-
legunni — þá hálf níræður. Er
slíkt fágætt. Það mun óhætt að
slá fram þeirri staðhæfing, að
göulu landnemunum hér í Mikley
— sem nú eru flestir til moldar
gengnir — var ekki fisjað saman,
en þó hygg eg að Helgi á Sand-
nesi hafi skákað þeim öllum í á-
tökum við ell'i og örbirgð.
Helgi var greindur vel og bók-
hneigður. Hann var gestrisinn
og góður heim að sækja. Var
honum yndi að ræða um liðna tíð,
því að hugurinn dvaldi “heima”.
ísland var honum landið helga—
hann sá alla hluti í íslenzku ljós'i,
það ljós brást honum ekki, þó að
hann dveldist síðari hluta æfinn-
ar í framandi landi. Hann vann
sitt verk vel og trúlega, meðan
dagur var á lofti og langt fram
á kvöld, 0g var góður og tryggur
HELGI SIGURÐSSON,
undir nafni Valgerðar konu hans.
Ljósin mín dóu við dauða þinn.
Ó, dimt er í heiminum, vinur
minn!
Nú kemurðu aldrei aftur inn
með ylinn, þó döpur eg þreyi
og kvíði konianda degi.
Svo ástríðu-fult hefi’ eg unnað
þér,
að örlög Bergþóru eg kysi mér.
Ást hennar hátt yfir aldirnar ber,
ung var hún gefin Njáli
og með honum brann á báli.
Ung gaf eg Helga ást mína‘ og
trú,
aldin og farlama syrgi ’ann nú.
Hugurinn mænir á Heljar brú,
—heimurinn einskis virði—
um lífið eg lítið hirði.
Eg sá þig alt af sem ungan svein
og aldrei því breytt gátu skilyrði
nein;
sú æskunnar hugsjón í heiði skein
þó hrumur þú værir og farinn,
af ellinnar ofviðrum barinn.
Það húmar—og ekki’ er mér hlát-
ur í hug,
þó hlægir mig eitt, að með kjarki
og dug,
sem hetja hófst þú hið hinsta flug
án hjálpar—þú skuldar ei ne’in-
um,
þú varðist með viljanum einum.
Eg veit ei hvort vinur til vinar
fer,
því vonir fáu hvísla að mér,
en annars heims—einasta ósk
mín er—
aldrei til lífs að vakna,
ef þarf eg þín þar að sakna.
—J. S. frá Kaldbak.
Skriðjökull.
(Hringhenda.)
Jakar skiljast jöklum frá,
jarðar dyljast teigir,
sundur myljast björgin blá,
breiðir hyljast vegir.
—M. I.
Frá Islandi.
Keflavík, 10. júní.
Bátar hafa ekki komið að enn,
verða sennilega 3-4 daga úti enn.
Einn bátur kom að í gær, reri
með línu og aflaði vel. 1 Sand-
gerði hafði einn bátur róið í
fyrradag og komið að í gærkv.,
aflað sama og ekkert.
Hallgeirsey, 10. júní.
Tíðarfar frábærlega gott, gras-
vöxtur með allra bezta móti á
þessum tima árs. Suðurlands-
skipið kom nýlega á ýmsa staði á
hina hafnalausu Suðurlands-
strönd, svo sem Vík, Skaftárós,
Hvalsíki, Ingólfshöfða, Holtsós,
og Hallgeirsey, og þykir frásagn-
arvert, að skipið tafðist að eins
tvo sólarhringa vegna brima (í
Hvalsíki), að öðru leyti gekk upp-
skipan eins vel og ef hafnir væru
á þessum stöðum. >— Róið var
nýlega frá söndum og fengu mer.n
24—43 í hlut. Úr Landeyjum
reri einn bátur til Dranga. Slík-
ar Drangaferðir voru almennar
áður, nú frekar “sport” — Tvö
framboð eru komin fram hér í
sýslunni, frá Einari Jónssyni og
Klemens Jónssyni og væntanleg
frá Skúla Thoarensen, Gunnari
frá Selalæk og Björgvin sýslu-
manni, og ef til vill fleirum. Hafa
2 Reykvíkingar verið tilnefndir,
j sem líklegir eru til framboðs, en
hvað af verður, er óvíst, en hins-
vegar má telja víst um framboð
Skúla, Gunnars og Björgvins.
Suðurlandsskipið kom með síma-
j staura í Fljótshlíðarlínuna, sem
verður lögð í vor, frá Efra-Hvoli
að Múlakoti.—Vísir.