Lögberg - 01.12.1927, Blaðsíða 2

Lögberg - 01.12.1927, Blaðsíða 2
Bls. 2 LöCtítíílG, FIMTUDAGINN 1. DESEMBER 1927. Sérstök deild í blaðinu SHSESHSBSHSHSHSlSHSasaS^SaSHSasaSHSHSESasaSESHSaSSSSSHSHSaKSHSHSaSESSSHSaSHSHSHSESESSSaSHSHSÍSHSESHSHSaS^BHSSSiaSHSESaSBSHSHSHSHSasasasaSHSHSÍSHSHSHSSSlSHSZSHSlSHSPTt T a 3 3 SOLSKIN Fyrir börn og unglinga SHSHSHSHS?cí Sti,tSttbd5HSHSHSHSH5H5HSH5H5HSHSHSH5H5aSHSH5aSH5aSHSH5HSHSHSHSHSahH5SaSHSHSHSHSHSHSHSHSHSHSHSa5HSHSHSHSasaSHSHSHSHSHSHSHSH5HSHSHSHSHSHSHSH5HSHSasaSH SHSHSESHSHSHSi VISUR. Til lóunnar. Litli vinur! Lóan mín, Ijóðafuglinn mætur; mér eru kærust kvæðin þín kvöldin sem þú grætur. Svefnfró. Fyrir dagsins hagri hönd hníga dagsins þrautir. Inn á draumalífsins lönd liggja fagrar brautir. Vetrarkoma. Loftið fyllist frosti og snjó, fjölga jarðar sárin. sólargeislar glitra þó gegnum skýja tárin. V orvísur. Sólar.blossar bjóða títt blómum kossa léða. Vindar hossa vængjum þýtt, vorljóð fossar kveða. —óðinn. S. P. JAPANSKUR BARNAVINUR. Ishii Juji hét ungur japanskur námsmaður, sem var að lesa læk'nisfræði. Hann snerist til kristinnar trúar og varð kaþólskur; en við lest- ur ritningarinnar hvarf hann frá þeirri kirkju- deild og gekk í söfnuð Congregazionalsta. Hann var fátækur og varð að vinna fyrir sér, jafnhliða því að stunda námið; en ekkert tækifæri lét hann ónotað, til að leiða landa sína til kristinnar trúar. Þá kom til Japan árið 1886 bamavinurinn nafnkunni George Muller, frá Bristol á Englandi, sem sett hafði þar á fót fjölda af heimilum fyrir munaðarlaus börn, án þess nokkum tíma að biðja nokkum mann um styrk til þess, heldur að eins biðjandi borið málefni sitt og þarfir þess fram fyrir guð með dýrðlegum bænheyrslu-árangri. Hann hélt fyr- irlestra um þetta starf sitt og afl trúaðrar bæn- ar í Japan, og þeir fyrirlestrar höfðu mikil á- hrif á læknisfræðinginn unga og vöktu hjá hon- um stefka löngun til að geta orðið verkfæri í hendi guðs, til að leiða líka blessun yfir mun- aðarleysingjana hjá þjóð sinni. Árið eftir vildi svo til, að fömkona sár-fá- tæk var á ferð með tvö börn sín og gisti eina nótt í kofa nálægt þar sem Ishii átti heima. Hann kendi í brjósti um þau og fór til þeirra með skál af hrísgrjónum, fékk hana drengnum, sem var átta ára gamall; en hann rétti skálina . undir eins systur sinni, sem var kryplingur. Móðir þeirra sagði honum, að hún ætti fult í fangi með að sjá fyrir stúlkunni, en fyrir drengnum ætti hún ómögulegt með að sjá. — Ishii tók hann þá að sér og flutti sig skömmu síðar til Okayama. 0g þar byrjaði hann í sept- ember 1887 í Búdda-hofi, sem hann leigði sér, líknarstarf, sem seinna varð að merkasta mun- aðarleysingja-hælinu í Japan. Fyrsti skjól- stæðingur hans þar, var drengurinn, sem hann hafði tekið sér í sonar stað, og tveir aðrir mun- aðarleysingjar. Skjólstæðingum hans fjölgaði óðum. Og hann hætti við læknisfræðina og gaf sig alveg við líknarstarfinu í anda George Mullers. Oft var þar þröngt í búi og horfur óefnilegar; en alt af lét guð, sem Ishii bað seint og snemma fyrir vinunum sínum litlu, einhvern veginn ræt- ast úr fyrir þeim. Þeir skiftu þúsundum, munaðarleysingjam- ir, sem “Faðir Ishii” hefir annast um, og djúpa lotningu hafa þeir lært að bera fyrir hinni barnslegu trú hans. Stundum hafa 1200 verið í einu á hælinu hjá honum. Hofið hefir færst út; út-frá þessu munaðarleysíngjahæli hafa önnur verið sett á fót, og sömuleiðis skólar fyr- ir verklega fræðslu; keisarinn hefir veitt þessu starfi fjárstyrk; og öll japanska þjóðin hefir veitt því eftirtekt og margir lært fyrir það að meta og eignast kristna trú. Ishii andaðist 30. janúar 1914. Hann var alla æfi heilsulítill, en þó sístarfandi, knúður af brennandi trúar-áhuga. Þegar hann skildi við, var hópur af munaðarleysingjum hans hjá hon- um; hann kvaddi þá vonglaður, og þeir vissu, að hann fór á undan þeim til til föðurhúsanna, þar seni hann hlakkaði til að fá að hitta þá aftur. — lÆfistarf þessa góða manns er eitt sýnis- hom þess, hve mikla blessun fagnaðarerindi Jesú Krists leiðir inn í líf heiðinna þjóða. Það ætti að vera oss hvöt til þess, að leggja sem mesta rækt við trúboðið. Og það sýnir líka það, að þegar menn láta kristindóminn sinn þýða það, sem hann á að þýða hjá okkur: að þeir gangi Jesú Kristi á hönd af öllu hjarta í einlægu trausti og þjón- ustu, — þá verða þeir miklir menn og mörgum til blessunar. Guð gefi, að trúin verði það blessunarafl í lífi vor allra, — ekki dauð játning, heldur lif- andi starf! — Sam. FÉLAGSSKAPUR. Sophronius hét grískur spekingur í foraöld. Hann lét sér mjög ant um uppeldi barna sinna og reyndi að sjá svo um, að þau hefði ekki sam- neyti við óvandað fólk. Einu sinni kom það fyr- ir, að hann bannaði dóttur sinni að fara í heim- sókn til nágranna síns, sem var óáreiðanlegur maður og málugur. Stúlkunni féll þetta mjög illa. “Þú hlýtur, góði pabbi!” — sagði hú4—, “að álíta okkur mjög þroskalítil, ef þú Jert hræddur um að það skemmi okkur, að koma til hans.” Faðir hennar tók þegjandi brannið kol af arninum og rétti henni. “Taktu við því, barnið mitt,” — sagði hann—, “það brennir þig ekki.” Stúlkan gjörði eins og henni var sagt, — en höndin hennar hvíta varð svört af kolinu og aska kom líka á hreina hvíta kjólinn hennr. “Hvers vegna lézt þú mig gjöra þetta, pabbi?” sagði hún; “það verður aldrei of var- lega farið með kol.” — “Það er alveg satt,” svaraði Sophronius; “þó að kolin brenni ekki, þá óhreinka þau samt; og alveg eins er með fé- lagsskap vondra og óvandaðra manna.” Gættu vel að því, í hvaða félagsskap þú ert. Vertu vandaður að því, hverja þú velur fyrir vini og kunningja. Margt ungmenni hefir orð- ið afvegaleitt af vondum félögum. óhreint orð, óhreiri saga getur vakið óhollar hugsanir í sálu þinni og sett blett á hana; forðastu þá áhættu, eins og þér er unt. En góðir, vandaðir vinir eru dýrmæt blessun; þakka þú guði fyrir þá og sýndu þeim trygð. Það er mikil speki í þess- ari grein Orðskviðanna (13, 20): “Haf umgengni við vitra menn, þá verður þú vitur, en ílla fer þeim, sem leggja lag sitt við heimskingja.” —Sam. KÓNGSVEIZLAN. Það var einu sinni vinsæll og voldugur kon- ungur, sem réð fyrir víðlendu ríki. Einhverju sinni var hallæri mikið um alt landið; allir urðu brauðr og kjötlausir, svo að rófur og vatns- grautur þótti herramanns réttur, og var þetta ár sannkallað sorgarár. Konungurinn var hnugginn mjög yfir eymd þegna sinna og hafði smátt og smátt látið af hendi alla peninga sína til að kaupa matvæli handa þeim. Þessi góði konungur átti stóran aurabauk, sem hann geymdi í alla smápeninga þá, er hann mátti án vera, og brúkaði þá svo til að skemta sér fyrir; en þessi stóri baukur var nú, eins og aðrar f jár- hirzlur konungsins, orðinn tómur; já, svo gal- tómur, að það hringlaði ekki svo mikið sem einn tvíeyringur innan um hann, þótt hann væri hristur. Hvað átti hann til bragðs að taka? Það var ekki um annað að gjöra, en að láta sækja kórónuna, ekki hversdags, heldur spari- kórónuna, þá sem hann brúkaði á sunnudögum og hátíðum og þegar hann hafði meira við. Kóngurinn horfði nú raunalega á kórónuna sína, því hún var svo falleg og prýdd tuttugu stóram demöntum; kóngunum þykir nefnilega eins vænt um kórónumar sínar eins og krökk- unum um sparifötin sín; en samt sagði kóng- urinn við æðsta ráðgjafa sinn: “Það er ekki til neins oð tala um það, við megum til að fá peninga með einhverju móti. Far þú til nágrannakonungsins og seldu honum kórónuna, því þar er ekkert hallæri; kauptu svo brauð fyrir peningana, svo við getum útbýtt því meðal fátæklinganna. ” Ráðgjafinn gjörði sem honum var boðið, og upp frá því brúkaði konungurinn hversdags- kórónuna, en þegar hann hafði meira við, og fyrir augliti guðs var hún eins fögur og þótt hún hefði verið sett tuttugu demöntum. Af því að kóngurinn var svona góður, lét guð hallærinu linna; tíðin varð góð, og upp- skeran svo ríkuleg, að allar kornhlöður í öllu landinu urðu fullar, og það fór að hringla og glitra í peningakössunum og aurabaukunum. Þá lét konungurinn smíða sér aðra spari- kórónu, miklu skrautlegri og dýrmætari en þá gömlu, og svo sagði hann við ráðgjafann: “Nú vil eg láta byggja stórar og fagrar kirkjur, guði til dýrðar og vegsemdar, svo menn geti þar þakkað honum alla hans velgjörn- inga. ” Svo lét konungurinn byggja hinar fegurstu og skrautlegustu kirkjur víðs vegar um borgir og sveitir; tumamir gnæfðu við himinn og að innan voru þær prýddar gulli og fögrum litum. Þegar smíðinni var lokið, sagði konungurinn 1 við ráðgjafa sinn: t “Nú ætla eg að ferðast um alt ríkið, en fyrst verð eg að fá mér drotningu til þess að hún geti séð allar fallegu kirkjumar með mér.” “Yðar hátign,” sagði ráðgjafinn. “Þókn- ast yður, að eg fari til nágrannakonungsins og biðji dóttur hans yður til handa?” “Nei,” svaraði konungurinn, eg vil enga ó- kunna drotningu, eg ætla að velja mér einhverja hérna úr ríkinu.” Sunnudaginn næstan eftir, hélt konungur- inn dýrðlega veizlu. Þangað bauð hann, fyrst og fremst, öllum þeim, sem kórónur bára, en jafnframt var tiltekið, hve marga odda kórón- an ætti að hafa; í öðra lagi öllum þeim, sem heiðursmerki höfðu hlotnast; og í þriðja lagi þeim, sem einhvem tíma höfðu áunnið sér lár- viðarsveig. Þeir, sem ekkert áttu af þessu tagi, urðu því í þetta sinn að sitja heima með sárt ennið, því kóngarnir geta aldrei boðið til sín öllum úr ríkinu í einu, bæði vegna þess, að þeir eiga aldr- ei nógu stóra höll handa svo mörgum og efcki heldur nógu marga diska og hnífapör. Einn maður var í ríki konungsins, sem lifði á því að mála stórar og fallegar myndir og selja þær; hann gat farið í konungsveizluna, því hann hafði bæði fengið heiðursmerki og lár- viðarsveig. Þessi maður átti þrjár dætur. Þegar þeim J var sagt, frá hátíðahaldinu, báðu þær föður sinn að lofa sér að fara þangað. Elzta systirin sat allan daginn og málaði; hafði lært það af föður sínum og einu sinni fengið lárviðarsveig fyrir mynd, sem hún hafði málað. Sú næst- elzta lék allan daginn á hljóðfæri og hafði einu sinni í samkvæmi fengið lárviðarsveig fyrir að kunna það; þær gátu því báðar farið í veizluna. En það var öðra máli að gegna um yngstu systurina. Hún kunni hvorki að mála né leika á hljóðfæri; hún kunni bara að matreiða og sauma ný föt handa systram sínum, en enginn fær nú lárviðarsveig fyrir að kunna það, svo hún varð að reyna að láta sér lynda að vera heima. Samt sem áður fór ekki kóngsveizlan úr huga hennar og hún hugsaði um það dag og nótt, hvernig hún ætti að fara að, til þess að komast þangað. Loksins fór hún til föður síns, sem þótti vænst um hana, og sagði: “Æ, pabbi minn, gefðu mér nú einn af lár- viðarsveigunum þínum, þú átt svo marga.” “Hvað ætlar þú að gjöra við hann, litla uppáhaldið mitt?” spurði faðirinn. “Mig langar svo skelfing til að fara með ykkur í veizluna.” Þá svaraði faðirinn alvarlega: “Nei, við megum ekki svíkja konunginn. Þú getur komið með mér, af því þú ert dóttir mín, en þú verður strax að segja honum, að þú hafir aldrei fengið neinn lárviðarsveig. Með því skil- yrði lofa eg þér að fara og svo fáum við þá að vita, hvort hann vill lofa þér að vera þar eða ekki.” . Stúlkan dansaði og hoppaði og fór svo að keppast við að sauma sér nýjan kjóh Tíminn var orðinn naumur, en samt lauk hún við kjól- inn í tæka tíð. Þegar hún svo kom á ákveðnum tíma; gekk inn í veizlusalinn með föður sínum og systrum og konungurinn hafði heilsað þeim og boðið þau velkomin, herti hún upp 'hugann, gekk fyr- ir konunginn og sagði honum, að hún hefði aldrei fengið neinn lárviðarsveig og spurði feimnislega, hvort hún mætti vera þar, meðan á veizlunni stæði. * “Þér þykir víst gaman að dansa»>” sagði konungurinn góðlátlega, því hann kunni vel við hina látlausu framkomu stúlkunnar. Hún játti því brosandi. Þá brosti konungurinn líka og sagði: “ Vertu .bara kyr og skemtu þér eins og þú getur.” Svo var sezt að borðum. Söngflokkurinn blés í hom og lék á strengjahljóðfæri svo unun var á að heyra og maturinn var borinn inn á gullfötum. Þegar máltíðinni var lokið, stóð konungurinn upp, því nú átti að fara að dansa; en þá festist gullofni hátíðafrakkinn hans á silfumagla í hátsætinu og rifnaði hann tölu- vert. “Þetta var auma slysið,” sagði kóngurinn og kallaði á ráðgjafa sinn. “Eg verð að láta gjöra við þetta,” sagði hann, “þetta era beztu fötin mín og mér þykir svo leiðinlegt að þurfa að fara í hversdagsfötin. Láttu fallegustu stúlkuna, sem hérna er, koma að hásætinu mínu. ’ ’ Elzta dóttir málarans var fallegasta stúlk- an í salnum. Hún vissi það mæta vel og hélt að kóngurinn ætlaði að spyrja sig, hvort hún vildi verða drotningin hans. En kóngurinn vildi henni þá ekkert annað en að spyrja hana, hvort hún kynni að sauma. “Sauma!” sagði list^konan móðslega. “Nei, yðar hátign, svo ómerkilega vinnu hefi eg aldr- ei lært, en eg kann að mála. ’ ’ “Það var leiðinlegt,” sagði konungurinn, “þá verð eg að fá einhveyja íðra til^þess.” Svo kallaði konungur aftur á ráðgjafann og sagði honum oð láta skynsömUstu stúlk/úna, sem þar væri, koma að hásætinu. Nlæst-ellzta dóttir málarans var annáluð fyrir greind; nú hélt hún, að konungurinn hefði einnig heyrt þess getið, og ætlaði nú að ta'ka sig fyrir drotningu. Henni brá því heldur en ekki í .brún, þegar hann í þess stað spurði hana, hvort hún saumaði efcki ákaflega vel. “Sauma!” sagði hún alveg hissa. “Nei, svo leiðinlegt verk hefi eg aldrei lært að vinna. Þegar mig langar til að gjöra eitthvað, þá leik eg á hljóðfæri. Yngsta systir mín kann að sauma. ” Þá lét kóngur sækja yngstu systirina. “Viltu ekki gjöra svo vel, að sauma saman þessa rifu á sparifrakkanum mínum?” sagði hann. “Jú,” sagði stúlkan vingjarnlega, tók nál og fingurbjörg upp úr vasa sínum og saumaði rifuna svo vel saman, að ráðgjafi konungsins setti upp gleraugun sín, til þess að geta séð hvar rifan hefði verið, en samt var honum ó- mögulegt að sjá það. Kónginum þótti svo vænt um þetta, að hann kysti litlu saumastúlkuna og sagði: “Engin önnur en þú skal verða drotningin mín.” Svo urðu hinar að fara heim aftur með lár- viðarsveiga sína, en saumastúlkan varð drotn- ing.—Kveldúlfur. Það mun vera stúlkan mín— Stúlkurnar ganga sunnan með sjó með línsvuntur langar og léreftin mjó. Það mun vera stúlkan mín, sem á undan gengur, hún ber gull og festi Professional Cards DR. B. J. BRANDSON 216-220 Medlcal Arts Bldg. Oor. Graham og Kennedy Sts. PHONE: 21 834 Office tímar: 2—3 Phone: 27 122 Winnlpeg. Manitoba. COLCLEUGH & CO. Vér leggjum sérstaka á-herziu 4 aC ælja meSul eftir forskrtftum lœkna. Hin beztu lyf, sem hœgrt er aC fa, eru notuC eingöngru. Pegar þér kómiC meb forskriftlna til vor, megtð þér vera viss um, aC f& rétt þaC aem lœknirinn tekur tH. Nótre Dtme and Sherbrooke Phones: 87 659 — 87 656 Vér seljum Giftingaleyfisbréf DR O. BJORNSON 216-220 Medical Arts Bldgr, Cor. Gnaham og Kennedy Sta. PHONE: 21 834 Office timar: 2—3. Helmili: 764 Vlctor 8t. Phone: 27 586 Winnipeg, Manltoba. DR. B. H. OLSON 216-220 Medical Arts Bldg. Cor. Graham og Kennedy Sta. Pbone: 21 8S4 Office Hours: S—6 Helmlll: 921 Sherbume St. Wlnnipeg, Manltoba. DR. J. STEFANSSON 216-220 Medlcal Arts Hldg Cor. Qraham og Kennedy Ste. Phole: 21 884 Stundar augna, eyrna nef og kverka ejúkdóma.—Er a6 hittta kl. 10-12 f.h. og 2-5 e.h. Heimili: 373 Rtver Ave. Tiala. 42 691 DR A. BLONDAL Medical Arta Bldg. Stundar sérstaklega Kvenna o* Barna sjúkdóma. Br aC hltta frft kl. 10-12 f. h. og 8—5 e. h. Offlce Phone: 22 298 Helmill: 806 Vlctor 8t. Sfmi: 28 180 Dr. Kr. J. Austmann, Wynyard, Sask. DR. J. OLSON Tarmlæknir 216-220 Medlcal Arts Bldg. Cor. Graham og Kennedy Ste. Phone: 21 834 Heimllls Tais.: 38 626 DR. G. J. SNÆDAL Tannlæknlr 614 Somerset Blook Oor. Portage Ave og Donald St. Talslrrí: 28 889 Dr. Sig. Júl. Jóhannesson stundar almennar lœkningar 532 Sherburn St. Tals. 30 877 G. W. MAGNUSSON Nuddlæknir. 607 Maryland Street OÞriðja hús norðan við Sarsr.) Prone: 88 072 Viðtalstími: kl. 3-7 e.h. og á Sunnudögum frá 11-12 f.h. Giftinga- og JarCaTfara- Blóm meC Mtlum fyrirvara BIRCH Blómsali 593 Portage Ave. Tals.: SO 720 St. John: 2, Ring 2 THOMAS H. JOHNSON H. A. BERGMAN íel. lögfræðtngar. Skrifstofa: Room 811 McArthur Building, Portage Ave. P.O. Box 1656 Phones: 26 849 og 26 840 JOSEPH T. THORSON ísl. lögfræðingur Scarth, Guild & Thorson, Skrifstofa: 308 Great West Permanent Building Main St. south of Portage. Phone 22 768 LINDAL, BUHR & STEFÁNSON fslenzklr lögfræSlngar. 356 Main St. Tals.: 24 963 peir hafa einnig skrifabofur aC Lundar, Rlverton, Gimii og Piney og eru þar aö hitta & oftlrfylgj- andl ttmum: Lundar: annan hvern miövikudag Riverton: Pyrsta. fimtudag, Gimll: Fyrsta miövikudag, Piney: J>riðja föstudag I hverjum m&nuði J. Ragnar Johnson, bj.,ub,lim. Isleazkur lögmaður með MoMnrrty Sk MoMnrray 410 Electric Railway Chamber Winnipeg, Man. Simar: Skrifst. 26 821. Heima 29 014 A. G. EGGERTSSON fri. lögfræölngur Hefir rétt til að flytja m&l bæði 1 Manitofoa og Saskatóhewan Skrifstofa: Wynyard, Saak. A. C. JOHNSON 907 Confederatlon Uíe Bldg WINNIPEG Annast um fasteignir manna. Tek- ur aö sér aö ftvaxta eparifé fólks. Selur elds&byrgö og bifreiða ftbyTgÖ- ir. Skriflegum fyrirspurnum svaraö samstundis. Skrifstofusimi: 24 263 Heimaslmi: 33 328 J. J. SWANSON & CO. IiIMITKD R e n t a 1 8 Insurance RealEstate Mortgages 600 PARIS BLDG., WINNPEG. Phones: 26 349—26 340 £!mil Johnson SERVIOE EIiEfmUC Rafmagna Contracting —— Allskyna rafmagnaáhöld seld og viO þau gert — Eg sel Moffat og CcClarg clda- vélar og heft þwr til sýnis á verk- stæOi mínu. 624 SARGENT AVE. (gamia Johnson’s bygglngin vlö Young Street, Wlnnlpcg) Verkst.: 31 507 Heima:27 286 A. S. BARDAL 848 Sherbrooke 8t. Selur líkkistur og annast um út- farir. Allur útbúnaður sá beatiL Ennfromur selur hann allskonar minnisvaröa og legsteina. Skrifstofu talis. 86 607 Helmilis Tals.: 58 302 Tals. 24 163 NewLyceum Photo Studio Kristín Bjarnason eig. 290 Portage Ave, Winmpeg Næst við Lyceum leikhúsið. Holmes Bros. Transfer Co. Ðaggage and Futniture Moving Phone 30 449 668 Alverstone St., Winnipe* ViðskiftiUlendinga óskað. og spennur niður á belti, laufa-prjóna ber hún þrjá, fögur er hún framaná með gullspöng um ennið, og það sómir henni, stúlkunni minni. Hún er dýr og drengileg, hún er skýr og skikkanleg, hún gengur hvert sinn hógvær um hæinn, reisuleg og ráðsvinn reyna má það huga minn, hvenær sem eg fljóð finn fagnar allur þankinn, þá er úti hrygðin og vermanna stygðin.—Ari Jónsson.

x

Lögberg

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.