Lögberg - 29.12.1927, Side 1
40. ARGANGUR |
Helztu heims-fréttir
Canada.
Látinn er nýverið aS heimili
systur sinnar í Banbridge á ír-
landi, David Wilson, fyrrum þing-
maður í fylkisþinginu í Manitoba,
fyrir Gladstone kjördæmið, kominn
fast að sjötugu. Fylgdi hann í-
haldsflokknum að málum, og var
eindreginn stuðningsmaður Roblin-
stjórnarinnar.
* * *
Sá orðrómur hefir verið á sveimi
undanfarandi, að í norðurhluta
Ontariofylkis, væru leynifélög að
verki, með það markmið fyrir aug-
um, að útbreiða kenningar Comm-
únista á meðal skólabama. Nú
hefir stjórnin skorist í leikinn og
fyrirskipað rannsókn í málinu.
* * *
Rt. Hon. L. C. Amery, nýlendu-
ráðgjafi Breta, er væntanlegur
hingað til lands þann 6. janúar
næstkomandi, og ráðgerir að dvelja
hér í mánaðartíma. Er búist við
að hann flytji einar fjórtán til
fimtán ræður í hinum stærri borg-
um.
* * *
Forseti þjóðbrautakerfisins, Sir
Henry Thomton, hefir tilkynt, að
innan skamms verði byrjað á að
byggja veglega, nýja járnbrautar-
stöð í Hamilton borg í Ontario
fylki.
* * *
Látinn er fyrir skömmu í Mon-
treal, Robert Caspar Wills, nafn-
kunnur fuglafræöingur, hálf ní-
ræður að aldri.
* * *
Fimtíu canadiskir bændur, sigla
frá Halifax þann 8. janúar næst-
komandi, áleiðis til Englands, og
þaðan til Norðurlanda. Ætla þeir
að kynna sér helztu búnaðarnýj-
ungar á brezku eyjunum, sem og í
Danmörku og Sviþjóð. Landbún-
aðarráðuneyti sambandsstjórnar-
innar, átti fmmkvæði að leiðangri
þessum.
* * *
Maður að nafni William Wat-
son, að Vulcan, Al.berta, lézt ný-
lega af því að borða skemt kjot.
Alfred Brown, er neytti með hon-
um máltíðarinnar, liggur svo
hættulega veikur, að tvísýnt er tal-
ið um líf hans.
* * *
R. M. Rouleau, erkibiskup í
Quebec, hefir fyrir skömmu hlotiÖ
kardínálatign.
* * •
Bæjarstjórnin í Pembrdoke, Ont.
hefir veitt $8,ooo dali, til þess að
láta gera minnismerki yfir her-
menn þá úr bænum og grendinni,
er líf sitt létu í heimsstyrjöldinni
miklu.
* * *
Ákveðið hefir verð að rifa niður
St. Lawrence Hall, eitt hið allra
elzta og frægasta grstihús Mon-
treal borgar. Meðal frægra gesta,
er þar höfðu bækistöð sína, má
nefna Edward Bretakonung, Sir
John A. MacDonald, George Eli-
enne Cartier, Jefferson Davis og
Charles Dickens.
Bandaríkin.
Coolidge (forseti hefir skipað
Henry Lewis Stimson frá New
York , fyrrum hermálaráðherra,
landstjóra á hilippine eyjunum í
staðinn fyrir Leonard \Vjood, sem
nú er dáinn.
* * *
A síðasta fjárhagsári hafa ver-
ið teknir fastir 64,836 menn í
Bandarikjunum fyrir brot á vín-
hannslögunum og sektir fyrir þau
brot hafa á sama tíma numið $5,-
775.225
* * *
Ung stúlka, Farmie Broyles í
Lurah, Va. varð fyrir því slysi að
þung viðargrein féll á höfuðið á
henni og misti hún máttinn svo al-
gerlega að allir héldu að hún væri
dáin. Hún var kistulögð og eftir
að hún hafði legið í líkkistunni 5
heila nótt var byrjað á útfararat-
hönfinni. En meðan á henni stóð,
tók bróðir stúlkunnar, sem stóð rétt
hjá opinnj kistunni. eftir því, að
systir hans hreyfði augnalokin.
Var nú hætt við útförina og byrj-
að á tilraunum að lífga stúlkuna.
sem hepnaðist von bráðar. Sagð-
ist hún hafa vitað um alt sem fram
fór, en ómögulega getað hreyft sig,
nema loksins augnalokin, en ó-
óslkaplega hrædd hafi hún verið.
+ * *
Eona ein í Seattle, Wash., Mrs.
Lay J. Dunseah, stefndi nágranna-
konu sinni, Mrs. Lillian De Grace
fyrir að hafa gefið sér utan undir
þegar þær voru að jagast út af
eldiviðar hrúgu, sem látin hafði
verið á gangveginn rétt hjá heim-
ilumi þeirra. Hin síðarnefnda varð
að borga hinni fyrnefndu eitt cent
i skaðabætur fyrir þa,ð að hafa mis-
boðið virðingu hennar.
Eins og áður hefir verið skýrt
frá hér í blaðinu, var miklu fé
skotið saman í Bandaríkjunum til
styrktar skylduliði þeirra flug-
mannanna 'Nungesser og Coli, sem
fórust á Atlantshafsflugi í maí-
mánuði í vor. Nú hefir þessu fé
verið skift, og er Mme. 'Coli sáró-
ánægð út af því, hvernig þeim
hluta fjárins hefir verið úthluað,
er Coli fölskyldunni hlotnaðist og
finst að hún sjálf og börn hennar
hafi fengið alt of lítið í saman-
burði við tengdaforeldra sína.
Hún hefir skrifað Poincaré langt
bréf og beðið hann að skerast i
þetta og sjá til þess að hún fengi
einhverja leiðréttingu á þessu
máli.
* * *
Á föstudaginn í vikunni, sem
leið lagði Mrs. Frances Wilson
Grayson af stað frá New York í
loftfari sínu “The Dawn’’ áleíðis
til Sýfundnalands, þar sem hún
ætlar að koma við og. hafa nokkra
dvöl, en halda síöan áfram alla leið
til Norðurálfu. Með frúnni voru
í loftfarinu þrír menn og eru nöfn
þeirra: Brice Goldsborough, Oskar
Omdal og Fred Kohler. Þegar síð-
ast fréttist, á þriðjudag, hafði loft-
farið ekki komið fram í Nýfundna-
landi og veit enginn hvað af því
er orðið, og er nú talið nokkurn
veginn víst að það hafi farist með
öllu innanborðs.
* * *
Fyrir 54 árum tók barnaheimili
í San Francisco að sér að ala önn
fyrir tíu ára gömlum, munaðar-
lausum dreng, sem Rube Robert
Fogel hét. Hann varð síðar gim-
steinasali og græddi auð fjár, og
nú hefir hann arfleitt bamaheim-
ilið, sem fóstraði hann að mestum
hluta eigna sinna, eða nálega tveim-
ur miljónum dala.
* * *
Svo að segja öll blöð, sem mað-
ur sér síðustu dagana, flytja lang-
ar frásagnir um hræðilegt morð,
sem fyrir skömmu hefir framið
verið í Los Angeles, Califoríu.
Tólf ára gömul stúlka, Marion
Parker, var að leilka sér með öðr-
um stúl'kum úti fyrir skólanum,
sem hún gekk á, þegar maður kom
þar að i bíl, tók þessa stúlku og
hafði hana burt með sér. Skömmu
síðar er faðir stúlkunnar látinn
vita að dóttur hans hafi verið
rænt og að henni verði skilað aft-
ur, ef hann láti af hendi $1,500
Hann gerði þetta og stúlkunni. var
skilað heim að húsi hans á vissum
tíma, en þegar foreldrarnir komu
til að taka á móti henni fundu þau
að hún var dáin, hafði verið myrt
og hræðilega limlest. Unglings
maður, innan við tvítugt, Edward
Hickman að nafni, var skömmu
síðar tekinn fastur og grunaður um
þennan glæp. Hefir hann nú ját-
að á sig glæpinn og jafnframt að
hann hafi áður framið rán og
þjófnað hvað eftir annað og á ýms-
um stöðum. Segist hann hafa rænt
stúlkunni til að hafa út peninga, en
ekki þorað að skila henni lifandi,
því hún hafi þekt sig. Mál þetta
verður nú rannsakað af réttvísinn-
ar hálfu.
Bretland.
Mesti bylur, sem komið hefir 5
hálfa öld, gekk yfir England á
annan í jólum. Sex feta þykkur
snjór féll í London og skóf saman
í skafla. sem sumstaðar urðu sex-
tán feta háir. Tepti það umferð
bæði í borginni og víða annarsstað-
ar í landinu og símasambönd slitn-
uðu víða um landið. Þrjár mann-
eskjur urðu úti, sem frést hefir
um þegar þetta er skrifað. Ein-
hverjir veðurspámenn hofðu spáð,
að í London mimdu verða “hvít
jó!” og þótti það ekki rætast, því á
jóladaginn rigndi mikið. En þess
WINNIPEG, MAN., FIMTUDAGINN 29. DESEMBER 1927
NÚMER 52
Lögberg óskar öllum Islendingum
góðs og farsæls Nýárs!
varð þó ekki langt að bíða að þessi
veðurspádómur kæmi fram.
* * *
Eitt af því, sem Bretar hafa nú
töluverðar áhyggjur út af er kven-
réttindamálið, eða það að nú er
mikið talað um, að veita öllum
konum kosningarétt og kjörgengi,
sem eru 21 árs að aldri, eins og
karlmenn nú hafa. Þetta mætir
mikilli mótstöðu og er því haldið
fram, að nái þetta fram að ganga
þá verði það í raun og veru kven-
fólkið, sem mestu ráði um stjórn
ríkisins. Hefir félag verið stofnað
á Englandi til að berjast á móti
því að yngri konur fái þar kosn-
ingarétt, heldur en nú hafa hann.
Segir skrifari félagsins Mr. John
McArthur, að gjarnan geti þeir,
sem vilja kallað félagsmenn kven-
hatara og öllum illum nöfnum, sem
þeim sýnist, en það væri full al-
vara félagsins að berjast á móti
því með öllu heiðarlegu móti, að
konurnar næðu yfirráðum í stjórn-
málum rí'kisins, þannig að þær réðu
'því hverjir færu rrieð völdin. Sjálf-
ar mundu þær ekki sækjast eftir
þeim fyrst um sinn og sízt af öllu
ábyrgðinni, sem þeim fylgir, en þær
vildu endilega hafa tækifæri til að
segja karlmönnunum fyrir hvernig
stjórna skyldi, án þess að bera á-
byrgðina sjálfar.
* * *
Sú frétt kemur frá Englandi, að
þar sé verið að byggja loftfar, sem
svo sé stórt, að það taki 100 far-
þega og 10 tonn af póstflutningi,
auk þess fólks, sem vinnur á þess-
um mikla loftbát. Gert er ráð fyr-
ir að það verði fullgert í apríl mán-
uði og er búist við að það geti far-
ið frá London til Montreal eða
New Yorik á 48 klukkustundum og
að fargjaldið yfir hafið verði
hundrað Sterlings pund, eða í
mesta lagi 125 pund. Flest þæg-
indi eiga að verða á þessu stóra
loftfari, en borðsalurinn þó ekki
stærri jen svo að( hann rúmi 50
manns í einu, en breyta má hdnum
í danssal, þegar farþegum langar
til að dansa. Hvað úr þessu verð-
ur er ekki enn vel gott að segja, en
það þykir nú ekki lengur neitt ó-
líklegt að áður en langt líður geti
menn flogið yfir Atlantshafið á
mjög sítuttum tíma og tiltölulega
lítilli áhættu, ekki bara einn og
einn eða örfáir í einu, heldur f jöldi
fól'ks á einum loftbát.
Hvaðanœfa.
Stjóm sú á Finnlandi, er V. A.
Tanner veitti forystu hefir neyðst
til að Iáta af völdum, með þvi að
hún fékk vantraustsyfirlsingu í
þinginu, sökum stefnu sinnar í toll-
málum. Vildi 'hún hækka vernd-
artolla að mun, en fékk því eigi
framgengt.
* * *
Bærinn Mulga á Tyrklandi,
hrundi 'að heita mátti til grunna, af
völdum jarðskjólfta, er nýverið
geysaði yfir landið. Fjöldi fólks
kvað sætt hafa meiri og minni
meiðslum, en engir látið lífið.
• * •
Stjórnin í Austurríki hefir feng-
ið $30,000,000 3án hjá National
City bankanum i New York, er
er varið sknl að mestu til sam-
göngubóta í Vínarborg, svo sem út-
færslu sporbrautakerfisins.
* * *
Hinn nýi sendiherra Persa á
Frakklandi, hefir þann sið, að bera
á sér, hvert sem hann fer, nál og
tvinna. Þótti ýmsum þetta kyn-
Iegur siður, og reyndu að grenslast
eftir hvernig á honum stæði, en
urðu engu nær, því sendiherra
vildi engar upplýsingar veita. En
núna fyrir skemstu, stakk sendi-
herrann því að forseta Frakklands,
að hann bæri ávalt á sér nál og
tvinna, til þess að geta gert sjálfur
við sokka konu sinnar og dætra,
með því að hann tryði engum öðr-
um en sjálfum sér fyrir því vanda-
verki.
Við manntal það, er nýlega fór
fram á Tyrklandi, kom það í ljós
að í landinu voru fjörutiu og átta
þúsundum fleiri konur en karlar.
# ■» *
Eamon De Valera, kom til New
York hinn 21. þ. m. Það hafði
áður heyrst að erindi hans til
Bandaríkjanna í þetta sinn væri að
fá landa sína þar til að leggja fram
$450.000 til að stofna blað á Ir-
landi, sem haldi fram lýðveldis-
stefnunni. Ekki hafði De.Valera
neitt um það að segja við blaða-
menn í New York, hvert erindi
sitt aðallega væri, en gat þess þó
að mikil þörf væri á nýju blaði á
írlandi, sem héldi fram stefnu sins
stjórnmálaflokks.
Kuldar óvanalega miklir hafa
verið víða í Evrópu að undan-
förnu, svo að ekki hafa slíkir
kuldar komið þar síðan árið
1895. Hefir kuldanum fylgt mik-
ill vindur og snjókoma, og hefir
þetta mikla kuldakast náð yfir
mestan hluta álfunnar. Á sunn-
anverðu Frakklandi hefir fallið
óvanalega mikill snjór.
geir Jóhannsson, og beið hann hana
bana af.
Þetta vildi til með þeim hætti,
að meðan skipið var að leggja frá,
lá gildur kaðall í “keva” fram af
því í bryggjuna. Þegar stríkkaði
á kaðlinum brotnaði “kevinn” og
kastaðist styktkið í höku og kjálka
Ásgeirs sfýrimanns og féll hann
þegar í öngvit.
Hknn var strax fluttur á spít-
ala, og fékk þá rænu stutta stund.
En 3 klst. eftir að hann fékk högg-
ið var hann örendur.
Ásgeir heitinn var ókvongaður
maður og átti heima hér í Reykja-
vik.
0r bœnum.
Mr. .Srgurður Baldwinsson, er
nýlega kominn til borgarinnar
vestan frá Alberta, þar sem hann
hefir gefið sig við gripakaupum
um hríð. Lét hann hið bezta af
förinni, sem og hag almennings
þar vestra yfirleifp
Eins og sjá má af tilkynningu
frá forseta Þjóðræknisfélagsins,
séra Ragnar E. Kvaran, þá byrj-
ar Brynjólfur Thorláksson sðng-
kenslustarf sitt meðal íslenzkra
barna í Winnipeg, þann 7. janúar
r.æstkomandi. Er hér um þýðing-
armikið þjóðræknismál að ræða,
er verðskuldar allan þann stuðn-
ing, sem hægt er að láta í té.
Frá Islandi.
Um 3,500 tunnur af síld eru enn
á 'Siglufirði, að því er fregn að
norðan hermir. Af því á Kveld-
úlfur um 3,000 tunnur. Búist er
við því, að þessi síld fari ðll inn-
an skamms. — Allar verksmiðjur á
Siglufirði eru nú hættar bræðslu,
að undantekinni verksmiðju Goos,
en hún hættir störfum einhvern
r.æstu daga.
Reykjavík 1. des.
í gær kl. að ganga 5 kom eldur
upp í bænum Hliði á Álftanesi, og
magnaðist hann svo fljótt, að ekki
varð við hann ráðið, og brann
timburhúsið til kaldra kola.
Húsið var lítið, og öllu lauslegu
innan stokks varð bjargað úr því.
Skúr, sem stóð áfastur við það, og
geymt var í hey, tókst að bjarga og
sömuleiðis heyinu.— Skemdist að-
eins sú hlið skúrsins, er að húsinu
vissi. Fjós stóð einnig fast við
húsið, en það tókst að verja það,
svo um það haggaði ekki.
Þeim, sem Morgunbl. átti ta! við
í gærkvöldi suður á Álftanesi um
brunann, var kunnugt um það með
öllu, hvernig eldurinn hafði komið
upp. Sömuleiðis um það, hvort
húsið hefði verið vátrygt.. En þó
taldi heimildamaður blaðsins lík-
legt, að það hefði ekki verið vá-
trygt. Bíður því bóndinn þar,
Lárus, tilfinnanlegt tjón, ef svo
hefir verið.
Bjöm Blöndal, kaupmaður, and-
aðist í fyrrakvöld að heimili sínu
hér í bænum, eftir langa vanheilsu.
f fyrramorgun Ikom togarinn
“Leiknir” frá Englandi til Patreks-
fjarðar. Hann var afgreiddur þar
í fyrra dag og ætlaði á veiðar
seinnipart dagsins. . Þegar hann
var að fara frá bryggjunni, vildi
það sviplega slys til, að jámstykki
slöngvaðist á stýrimanninn, Ás-
Ólafur Ólafsson trúboði, er ver-
ið hefir í Kina á undanfömum ár-
um sendi skeyti hingað i gær um
það, að hann komi hingað með
“Lyra,” eftir áramótin. fLyra fer
frá Bergen 5. jan.). Ætlar Ólafur
aö dvelja hér í vetur, en ikona hans,
sem er norsk, verður heima í Noi
egi hjá foreldrum sínum. — Þeg-
ar mestur gauragungurinn var 1
Kína í fyrravetur og sumar, var
trúboðum þar ekki vært, og urðu
þeir að flýja frá stöðvum sínum.
Ólafur fór þá með konu sina til
Japan, og dvaldi þar síðan hjá ís-
lenskum trúboða, Okta\úus Thor-
láksson, syni séra Steingrims N.
Thorlákssonar. Trúboðsstarf séra
Oktavíus í Japan. er styrkt af
Vestur-íslendingum.
Helgi Tómasson læknir varði í
fyrradag við háskólann í Kaup-
mannahöfn doktorsritgerð sina, er
nefnist “Undersögelser over nogle
af Blodets Elektrolyter og det
negatative Nervesystem.” Helgi er
ungur maður, fæddur 1896. Hann
lauk embættisprófi 1922 og hefir
siðan verið læknir við geðveikra-
hæli Vordingborg, sjöttu deild
borgarspítalans í Höfn, og hefir
auk þess stundað “psyldatri” við
Strángenás-ispítala í IS v í þ j ó ð.
Helga hefir verið boðlð fyrsta
varalæknisembœtti við borgarspí-
talann í Böfn, en hann mun hafa
hafnað þvi og ætlar að helga ís-
landi starfskrafta sína og frábæra
þekkingu.
Rauðbrystings hreiðrið.
(Harmsaga.)
1 grein á valbjörk, sem gegn mér hefst
og gullfaldar há og sterk,
er rauðbrystings hreiður, sem hringinn í kring
er hreinasta meistaraverk.
Þar átti’ hún börn; þar sat hún og söng:
ein sælust móðir í heim,
eða hún trítlaði út um grund
að afla sér brauðs og þeim.
Svo var það einn morgun, er móðirin þyrst
í munni sér vætti af lind,
að drengur, sem gekk hjá, greip upp stein
og guðlausa framdi synd:
hún féll við drápshögg með brotið brjóst,
og blóðið draup munni frá.
Hann sá það sá litli’, að(hann hafði hæft,
og hróðugur var hann þá.
En sólin tárblíðum geislum grét
þann guðslanga dag, því hún sá
f blóðfjöðrum hjúfra sig hjálparlaus
í hreiðrinu börnin smá,
unz af þeirri harmsýn meir en mett
í mistri’ hún tárug hneig.
Frá hreiðrinu sárveikt kvala-kvein
í kulið næmt þá steig.
Því að hún, sem þau fyrir brjósti bar
og bjástraði æ að þeim,
lá myrt, og henni því auðið ei
var afturkomu heim.
Og náttkulið óx um óttubil
unz aftur sólin skein
og sá þau, grátperlum daggar dreifð,
nú dáin og laus við mein.
Og stráofna hreiðrið stendur nú tómt
og stöðugtf því hnignandi fer,
en kvöldgola sumarsins kyssir það
og kveinstafi þaðan mér ber;
þá hugsa eg dapur um drenginn þrátt
og drembinn föðúr Tians,
sem tjáir sig mynd síns góða guðs,
en — getur slíkt efni manns.
—“Sam.”
ífi
1
Stykkishólmi 22. nóv.
Guðmundur GuÖmpndsson hér-
aðslæknir i Stykkixhólmshéraði
haföi verið fimmtiu ár héraðslækn-
ir í júlí i sumar. Sapði hann af
sér embættisstörfum frá 1 ,nóv.
þessa árs. I tilefni af þvi, héldu
Stykkishólmsbúar honum og konu
hans fjölment samsæti og færðu
honum aS gjöf veglegan sjónauka.
Fór samsætiS hiS bezta fram.
Skemtu menn sér viS ræSuhöld,
söng og dans. ASalræSuna hélt
Páll Barnason sýslumnSur. TíS-
arfar hefir veriS mjög milt. Er
klaki mikiS til farinn úr jörS
kringum Stykkishólm.
Hleilsufar. Þungt (kvef hefir
gengiS um sveitirnar og kaupstaS-
inn.
Afli er allgóSur, þegar gefur á
sjó. Bætti mikiS úr, aS síld hefir
veiSst dálitiS undanfariS á Grund-
arfirSi.
I DrápuhlíS vtri í Helgafells-
sveit andaSist fyrir nokkru Sig-
urSur bóndi Ulugason, góSur maS-\,
ur og gegn. Hann var á sjötugs
aldri. Dvaldi hann allan sinn ald-
ur í Helgafellssveit.
Barnastúka var stofnuS hér ný-
lega, eru þrjátíu til fjörutíu börn
í henni.
Barnafélag (Barnavinurinnj var
ennfremur stofnaS hér og eru í því
börn yngri en 10 ára. Eru haldnir
fundir meS börnunum, þegar messa
ber í Stvkkishólmi. Er reynt aS
hafa áhrif á siSferSis- trúar- og
fegurSar hugmyndir bamanna.
Ennfremur verSa þau frædd um
merka menn í sögu þjóSarinnar o.
fl. og loks fá þau, á fundinum,
tækifæri til þess aS vera saman aS
leíkum. í félaginu eru fimtíu til
sextíu börn.
Yngingartilraunir.
ÍJslenzki skurSlæknirinn, Jónas
Sveinsson er nýkominn til Kaup-
mannahafnar á leiS heim og hefir
“Politiken” haft tal af honum.
SagSist lækninum svo frá, aS á-
rangurinn af þeim "tveimur ynging-
artilraunum, sem hann hefSi gert
á íslandi, hefSu knúS sig til aS
takast ferS á hendur til Vínarborg-
ar til þess aS kynnast nýjustu aS-
ferSum Eiselbergs prófessors og til
aS sitja læknafund í Budapest, þar
sem Voronof-bræSúrnir skýrSu
frá seinustu yngingartilraunum sín-
um og árangri þeirra. Ein grein af
tilraunum Vöronofs, þótti Jónasi
lækni sérstaklega merikileg. Hann
hafSi tekiS kirtla úr ungum dýrum
og sett þá í eldri dýr og árangur-
inn varS sá, aS þessi gömlu dýr
yngdust og tóku aS þroskast. Þetta
kom t. d. þannig fram há kindum,
aS ullarvöxtur þeirra jókst um
helming. Franska stjómin hefir
fengiS Voronof 300 fjár í Tunis
til þess aS gera rannsóknir á, og
heldur hann tilraunum sínum þar
áfram, og er þaS ætlun hans aS
meS þessum yngingartilaunum muni
sér takast aS skapa alveg nýtt fjár-
ikvn, sem verSi miklu meir arSber-
andi heldur en þau fjárkyn, sem
nú þekkjast. Ef þetta revnist rétt,
hlýtur þaS aS hafa afarmikla þýS-
ingu fyrir fjárrækt íslendinga.
“Og eg ætla mér aS minsta lcosti
aS gera tilraunir meS vngingar á
fé á íslandi,” sagði Jónas.
—Mbl.
Reykjavík, 18. nóv.
GuSrún Pálsdóttir, móSir séra
FriSriks FriSrikssonar, lést á heim-
ili sonar síns í fyrrinótt, eftir aS-
eins tveggja daga legu.
Frúv GuSrún var komin fast aS
níræSu, var 88 ára gömul. Var hún
mjög þrotin aS heilsu hin siSustu
árin tvö aS minsta kosti en þrek
hennar og dugur hélt henni oftast
á fótum.
GuSrún veitti lengi forstöSu
heimili sonar síns, séra FriSriks,
og gerSi þaS meS þeirri rausn og
prýSi, sem einkendi hana alla æfi.
Hún var orSlögS ágætiskona, gest
risin mjög og örlát viS hvern, sem
aS garSi bar. Vinir hennar eru
fjölda margir um land alt.
—Mbl.
Eimskipafélagið kaupir Villcmoes.
Nýlega hefir veriS gengiS frá
samningum miltí, rikisstjórnarinn-
ar og Eimskipafélags Islands, um
þaS aS félagiS kaujpi Villemoes
fyrir 140 þús. krónur. Tekur fé-
lagiS viS honum um áramót.
SkipiS er bygt í Porsgrund í
Noregi áriS 1914 og er 775 smá-
lestir brúttó.
Landstjórnin keypti skipiS áriS
1917, og hefir þaS aSallega veriS í
fönun fyrir landsverzlunina, en
Éimskip»afélagiS hefir haft útgerS-
arstjórn á hendi.
SkipiS á framvegis aS heita Sel-
foss, og verSur næsta ár í förum
milli Hamborgar, Hull og Islands.
Eins og kunnuigt er, hefir GoSafoss
annast þœr ferSir í ár. En viS-
skiftin viS Hamborg og Hull auk-
ast svo mikiS, aS taliS er aS nauS-
synlegt sé aS bæta öSru skipi viS.
Á GoSafoss aS fara fleiri milli
landaferSir næsta ár, en hann fer í
ár, en Villemoes aS annast flutn-
inga til smáhafna, fra Hamíborg
og Hiull.
Reykjavík, 19. nóv. 1927.
Á fundi “Hins íslenzka kvenfé-
lags” í vikunni sem leið, var tek-
ið til umræðu “hvað hægt væri að
gera til að fegra og prýða Reykja-
víkurbæ fyrir 1930” Að loknum
umræðum var samþykt tillaga
þess efnis, að Hið íslenzka kven-
félag legði til, að kosnir yrðu
tveir fulltrúar í nefnd, er starfaði
að því ásamt fulltrúum frá öðrum
félögum í bænum að athuga hvað
gera mætti til að fegra og prýða
Reykjavík fyrir 1930. Kvenfélagið
kaus Ragnheiði Pétursdóttur á Há
teigi og Halldóru Bjarnadóttur,
Hátegi, í nefndina.
Magnús Helgason, stólastjóri
Kennaraskólans varð sjötugur 12.
þ.m. Yngri og eldri nemendur
skólans héldu honum samsæti og
og fluttu honum góðar gjafir.
16. þ.m. andaðist ér í bæ Helgi
Zoega kaupmaður. Banamein hans
var heilabróðfall. -— 17. þ.m. and-
aðist frú Guðrún Pálsdóttir, móð-
ir séra Friðriks Friðrikssonar, 88
ára að aldri.