Lögberg - 19.04.1928, Side 3
LÖGBERG, FIMTUDAGINN 19. APRÍL 1928.
Bls. 3.
Fær heilsubót af þessu
canadíska meðali.
Þetta Segir Kona í Nova Scotia
Um Dodd’s Kidney Pills.
Mrs. B. L. Jamieson Notaði Þær
Við Bakverk og Nýrnaveiki.
North Wallace, N. S., 16. apríl.
i(lEinkaskeyti).'—
í öllum hlutum Canada er ein-
hver, Sem mælir fastlega með
Dodd’S Kidney Pills. Þær hafa
læknað nýrnaveiki um alt hetta
land í meir en þrjátiu ár. Þær
éru nýrnalyf. Þær eiga að eins
við nýrun og þá sjúkdóma, sem
frá sjúkum nýrum stafa; Þess
vegna eru þær ávalt svo vinsælar.
Það sem Mrs. B. L. Jamieson seg-
Ir um þær, er stutt en greinilegt.
Hún skrifar oss: ‘-'Eg hefi brúk-
að Dodd’s Kidney Pills og þær
hafa reynst mér ágætlega við
bakverk og nýrnaveiki.”
Dodd’s Kidney Pills hreinsa
blóðið, og hreint blóð færir öllum
líkamanum heilsu og líf.
Hafir bú séð einhvern, sem þja-
ist af nýrnaveiki, þá geri rþú alt
sem þú getur, til að-forðast hana.
Eina örugera vörnin er Dodd’s
Kidney Pills. Reynið það—strax
í dag. , , _
Pást hjá öllum lyfsolum, eða
hjá Dodd’s Medicine Co., Ltd.,
Toronto 2, Ont.
Heimförin og fjárveit-
ingarnar.
Rétt mun það athugað vera, að
bezt færi á því í alla staði, að ekk-
tert fé sé þegið frá hérlendum
'stjórnarvöldum til styrktar heim-
för vorri 1930. Og þá mun mörg-
um þykja beinast liggja við, og
fenjallræði í fljótu bragði séð að
<skila aftur þejm styrkveitingum
'ög ógilda þau loforð, sem fengist
hafa. En eg lít öðrum augum á
síðara atriðið. Mér sýnist ei
betur, en með því hlyti ei einung-
is að falla mjög svartur skuggi á
beimferðarnefnd þá, sem nú er
Starfandi vor á meðal, og fyrir
fjárbeiðninni stendur, heldur
Ynundi allur þjóðflokkurinn ís-
lenzki vestan haæs, kenna þaðan
foráælu.
Kðlilega líta fylkjastjórnirnar
svo á, að nefnd þessi sé fulltrúi
Þjóðræknisfélags íslendinga í
Vésturheimi, og að félag það sé
fulltrúi vor allra Islendinganna
('að minna eða meira leyti), sem
vestra búum. Og þótt vér, sum-
ir hverjir, kunnum að vera ann-
arar skQðunar, hjálpar það lítt í
þessu máli.
Hvort sem nefndin sjálf væri
neydd til að skila aftur fénu og
afþakka loforðin, eða aðrir gerðu
það fyrir hennar hönd og sína,
þá hygg eg að hérlendir menn
mundu líta svo á, að styrkbeiðni
nefndarinnar hefði bygst á grun-
samlegum rökum, svo vægustu
orðin séu um það notuð.
Það er ekki nemá gott og
blessað, að vér bítumst og berj-
umst vor á meðal. Vér erum fædd-
ir hávaðamenn og bardagamenn,
og fer það vel. Enda veitir sum-
um ekki af því, að liðka sig í ís-
lenzkunni endrum og eins. En
að vér förum að hengja sjö-
manna-nfend á mannorðs-gálgan-
um, frammi fyrir öllum þorra
hérlendra manna, er mjög var-
hugaverður leikur, allra vor
vegna. Einkum fyrir það þjóð-
brot, sem ekki þolir að sjá einn
mann hengdan, ef hann er ís-
lendigur, og Canadamenn eiga að
horfa á. Og yrði þó skugginn,
sem á oss félli, stærri, af sjö en
einum, þótt gálgarnir yrðu senni-
lega þeim mun lægri, sem afbrot
ið er minna.
Vér eigum að þiggja féð, en—
ekki handa sjálfum oss.
Vér eigum að koma því til leið-
ar, að Canada gefi íslandi mynda-
styttu Úlfljóts lögsögumanns, er
fyrstur samdi Islandi lög, og gaf
því þau, 930. Minningu hans, er
þessi þúsund ára hátíð Alþing-
is helguð, meir en nokkurs ann-
ars manns. Og sé svo, að brezk
löggjöf hafi eitthvað til þessara
laga sótt, og tylftardómur Can-
ada eigi því þangað rætur sínar
að rekja, þá finst mér að mynda-
styttan úlfljóts lögsögumanns,
v®ri ei nema höfðinglega goldin
gömul skuld, á árþúsund afmæli
^öggjafar hans. En þótt skyldleiki
brezkra laga kæmi hér ekki til
greina, er þá þess að minnast, að
íslands börn hafa búið hér meira
en hálfa öld í landinu, bygt upp
borgir þess og eyðilönd, og verið
að flestra dómi allra manna lög-
hlýðnastir, sem Canada má ef til
vill þakka áhrifum frá Úlfljóts-
^ögum, langt fram 1 aldir sótt. i—
Eitt er víst: svo margt löglega
unnið handtakið eigum vér hér,
að vel mætti unga fóstran minn-
ast þeirra með heiðursgjöf til
móðurinnar.
Þessa gjöf Canada (stjórnar
hennar eða fylkjastjórna), gæti
eginn maður í öllum heimi skoð-
að ölmusu né náðarbrauð. Og
enginn þyrfti að óttast hreppa-
fluting hér, né burtflutninga-
burgeisa þar. Og að stjórnunum
yrði ljúft, — og ljúfast — að
verja gjafafé sínu til þessa á-
kveðna verks, efast eg ekki um.
Að sjálfsögðu yrði það starf
Einars Jónssonar, að skrýða lög-
manninn forna, og til þess er næg-
ur tími enn.
Frá Úlfljóti segý- íslendinga-
bók Ara Þorgilssonar svo:
“En þá es ísland vas ,víþa bygt
orþit, þá hafþi maþr austrænn
fyrst lög út hingat ýr Norvegi, sá
es Úlfljótr hét, suá sagþi Teitr
oss, oc vóru þá Úlfljótzlög kölloþ,
— hann vas faþer Gunnars, es
Diupdælir ero comnir frá í Aya-
firþi, — en þau vóro flest sett at
þuí, sem þá vóro Golaþings lög,
eþa ráþ Þorleifs ens spaca Hörþa-
cára sonar vóro til, hvar viþ
scylldi auca eþa annan veg setja.
Úlfliótr vas austr í Lóni, en svá
er sagt, at Grimr geitscor væri
fóstbróþir hans, sá es kannaþi ís-
land alt at ráþi hans, áþr alþingi
væri átt, en honum fecc hverr
maþr pening til á landi hér, en
hann gaf fé þat síþan til hofa.”
Og í kaflanum “Úr Melabók
hinni yngri”, í Viðbæti Landnamu-
bókar, stendur:
“Úlfljótr hét maðr norrænn,
systurson Þorleifs spaka; hann
kom út í Lóni, ok keypti land at
Þórði skeggja, alt fyrir austan
Jökulsá. Enn þá er hann var
nær hálfsextugur at aldri, fór
hann utan ok var þrjá vetr með
Þorleifi frænda sínum; þeir sam-
anskrifuðu lög þau, er hann hafði
út ok þá voru kölluð Úlfljótslög.
Enn er hann kom út, þá var sett
alþingi, ok höfðu þá allir ein lög
hér á landi, ok voru þau nokkurn
veg samin eftir Gulaþingslög-
um----------”
Svo mörg og löng eru orð þeirra
gömlu bókanna, um fyrsta, ís-
lenzka löggjafann, og verður hér
eigi við þau bætt að sinni. En
þeim, sem líkaði þessi framan-
greinda ráðstöfun, á fé því sem
nefndin hefir ráð á og von um að
fá, gerðu vel í því að láta vilja
sinn opinberlega í ljós í blöðun-
um, sem allra fyrst. Og eins þeir,
er aðra sæu betri leið eða hag-
feldari, Alþingishátíðinni til sæmd-
ar og íslandi til gagns, en sjálf-
um sér til heilla.
iSín á meðal getur almenningur
íslendinga hér í álfu ráðið niður-
lögum heimfararnefndarinnar eins
fyrir þessu, sé það á rökum bygt,
að hún hafi unnið sér til falls.
Og Þjóðræknisfélagið sé eg ekki
að nauðsynlega þurfi að hafa mál
þetta með höndum, fremur en
verkast vill. Það verður eftir
fólkstrúnni á því í framtíðinni.
En hvernig sem eg lít á opinbera
afturköllun hins gefna fjár, finst
mér hún mjög snubbótt. Og þótt
hægt væri ^ð benda mér á van-
virðulausa leið til þess, þótt eg
sjái hana ekki nú sem stendur,
þá er gagnsleysið auðsætt. En ef
Canada, eða Canada og íslend-
ingar hér, í samlögum, heiðruðu
ísland með því, á þann hátt, sem
hér á undan er drepið á, og söfn-
uðu meira, ef á þyrfti að halda,
þá hlyti það að verða öllum til
sóma og sameiginlegrar ánægju.
Winnipeg, 14. apríl 1928.
Þorsteinn Þ. Þorsteinsson.
Til Þjóðræknisfélagsins
og annara Islendinga í Vestur-
heimi.
Stjórnarnefnd Þjóðræknisfélags-
ins hefir rætt á fundi þær blaða-
deilur, sem hafist hafa í sam.
bandi við starf heimfararnefnd-
ar þeirrra, sem þing félagsins hef-
ir kosið til þess að greiða fyrir
för þeirra Vestur-íslendinga, sem
kynnu að vilja fara til íslands til
þess að vera viðstaddir hátiða-
höldin 1930.
Stjórnarnefndinni er það mikið
áhugamál, að með þetta mál verði
fgrið á þann þátt, að allur ís-
lenzkur almenningur megi vel við
una. En henni þykir auðsætt, að
þeim tilgangi verði ekki náð,
nema menn, sem skiftar hafa
skoðanir um aðferðir, ræði mál
sín með þeirri forsjá, er lítur á
fulla sanngirni, ekki síður en með
kappi. Sjálf er hún staðráðin i
því, að taka til greina óg til íhug-
unar allar þær sanngjarnar bend-
ingar, er henni berast um heppi-
lega meðferð þessa máls, svo sem
annara mála.
Nú sem stendur, er rætt um
það í blöðunum, hvort rétt hafi
verið af heimfararnefndinni, að
sækja um eða þiggja styrk frá
stjórnarvöldum hér í landi, til
undirbúnings fararinnar. Það
hefir enn fremur verið fullyrt, að
óánægja sé almenn út ráðstöfun
nefndarinnar í því efni. Að sjálf-
sögðu er stjórnarnefndinni ekki
kunnugt um, hvort svo er. Henni
hafa ekki borist neinar skýrslur
eða fréttir um það, að þetta mál
hafi verið rætt í deildum félags-
ins eða á almennum mótum nein-
^taðar, meðal íslendinga, og þá
vitaskuld heldur ekki um það, í
hvaða átt umræður kunna að hafa
fallið, hafi það verið rætt. En
henni vírðist bersýnilegt, að tvær
aðalhliðar séu á málinu, sem
mestu máli skifti að átta sig. á.
Fyrri hliðin stendur í sam-
bandi við spurninguna: Er það
sæmilegt af Vestur-íselndingum,
að þiggja styrk nokkurn frá can-
adisku þjóðinni til þess að unt
verði að búa svo í haginn, að
förin verði sem greiðlegust og
veglegust?
Hin síðari stendur í sambandi
við spurninguna: Getur þjóðin á
íslandi litið svo á, að efnt sé til
fararinnar í einhverjum tilgangi,
sem óhollur sé fyrir hana, ef
þess konar fé er þegið, sem um er
að ræða?
Síðara atriðið skal 'fyrst at-
hugað.
Á það skal fyrst bent, að eng-
inn maður hefir enn haldið þvi
fram í blöðum vorum, að fyrir
nefndinni, sem um heimfararmál-
ið fjallar, hafi það eða muni það
nokkuru sinni vaka, að gera
nokkura þá ráðstöfun, sem hún
geti álitið, að ísland megi tjón af
hljóta. Því hefir heldur ekki ver-
ið haldið fram, að líklegt sé að
Þjóðræknisfélagið — en því á
nefndin að standa skil á gjörðum
sínum — muni nokkuru sinni
samþykkja neinar ráðstafanir,
sem það telji íslandi óhollar. Og
það er ekki sennilegt, að á slíkt
tal mundi verða litið öðru vísi en
fávizku, kæmi það fram hér eftir.
Hitt er ekki gjörsamlega óhugs-
andi, að fjarlægðin til íslands geti
valdið því, að einhverjar slíkar
hugsanir kæmust þar á fót. Virð-
ist því auðsætt, að sjálfsögð lausn
á þessari hlið málsins sé sú, að
grenslast eftir því, hvernig
stjórnarvöld íslands og hátiða-
nefnd Alþingis líti á málið.
En undir þeim úrslitum er það
að vorum dómi að miklu leyti
komið, hvernig líta beri á fyrri
hlið málsins. Sé nokkur skuggi af
efa um það í huga hlutaðeigandi
manna á íslandi, að fyrir mönnum
hér vaki þær ráðstafanir einar,
sem séu gerðar til þess að auka
sóma þjóðarinnar, þá er ekki rétt
að þiggja neinn styrk, að vorum
dómi. En reynist sá efi ekki til,
þá horfir málið annan veg við;
en samt sem áður teljum vér
sanngjarnt, að mönnum félags
þess, er vér störfum fyrir. sé
gefið tækifæri til þess að leggja
fullnaðarúrskurð á málið.
Með því að mál þetta hefir þeg-
ar vakið nokkuð heitar umræður
í blöðum vorum, og með því að
það er þannig vaxið, sem vér höf-
um gert grein fyrir, þá höfum vér
átt tal um þetta við heimfarar-
nefndina og farið þess á leit við
hana, að hún varðveitti það fé, er
hún kynni að hafa veitt viðtöku,
ósnert, þar til þær upplýsingar
yæru fengnar, er bent hefir verið
á, að sjálfsagt sé að afla sér.
Jafnframt því höfum vér beðið
hana að halda áfram að afla sér
allra annara upplýsinga, er að
heimfararmálinu lúta, svo að al-
menningur geti átt kost á nokk-
urn veginn fullnaðarskýrslu bráð-
lega.
Heimfararnefndin hefir orðið
við þessum tilmælum. Og hún læt-
ur þess jafnframt getið, að vegna
fjærveru allmikils hluta nefndar-
manna, sem utanbæjar búa, hafi
hún ekki getað tekið endanlegar
ákvarðanir um ýmsar mikilvæg-
ar hliðar á starfi sínu. Nefndin
býst við að þessir utanbæjarmenn
—Mr. W. H. Paulson, þingmaður;
Mr. J. Thorson, þingmaður;. Mr.
Gunnnar Björnsson, ritstjóri, og
Mr. Guðmundur Grímsson, dóm
ari — muni flestir eða allir geta
mætt á fundi í næsta mánuði, og
að þeim fundi afstöðnum, mun
nefndin láta almenning til sin
heyra — að líkindum á almennum
fundi í Winnipeg.
Um leið og, vér birtum almenn-
ingi þetta, viljum vér benda
mönnum á, að það færi ekki vel á
því — væri ekki kurteist gagn-
vart hérlendum stjórnarvöldum,
stjórn og Alþingisnefnd íslands,
né mönnum í heimfararnefndinni
—ef sú vanstilling birtist í blöðum
vorum, sem því miður hefir kom-
ið fyrir út af þessu máli. Sann-
gjarnast væri, að hlé yrði á um-
ræðum um það í opinberum blöð-
um, þar til þær upplýsingar fengj-
ust, er alt veltur á.
Að endingu skal þessa getið:
Vér teljum það ekki rétt, og jafn-
vel alveg rangt frá fjárhagslegu
sjónarmiði, sem talað hefir verið
um í einni greininni, að einhverju
skipafélagi væri nú þegar falið
málið í hendur, til fullrar með-
ferðar héðan af. Með því væri
loku skotið fyrir það, að unt yrði
að leita frekari samninga, sem
full ástæða er til að búast við að
gætu orðið að mun hagfeldari
síðar.
í stjórnarnefnd Þjóðræknisfé-
lagsins:—
Ragnar E. Kvaran, J. J. Bíld-
fell, Rögnvaldur Pétursson, Rún.
ólfur Marteinsson, Ólafur S. Thor-
geirsson, H. S. Bardal, J. G. Jó-
hannsson, Árni, Eggertsson, J. F.
Kristjánsson.
Sveitabann.
Svo segir í hinum nýju vínlög-
um Manitoba — er ágrip birtist
af í síðasta Lögbergi og þýtt var
á íslenzku af stórkanslara G. P.
Magnússyni — að hver sú sveit,
er með meiri hluta atkvæða sýndi
sig mótfallna rýmkun á vínsölu
25. júní 1927, hafi heimild til að
skera úr því með almennings at-
kvæði á ný, hvort ölstofur skuli
þar opnaðar. Og þær sveitir voru
margar. 1 23 kjördæmum voru
hvorki fleiri né færri en 97 sveit-
ir, sem tóku af allan vafa um það
með atkvæðagreiðslunni, að þær
æsktu ekki eftir, að áfengissala
væri þar hafin á ný. Eru nú að
minsta kosti 50 af þeim farnar
af stað að safna nöfnum á bænar-
skrá sem sendar verða sveitar-
stjórnunum síðar til frekari fram-
kvæmda. Bænarskrárnar, sem
fara fram á, að atkvæðagreiðsla
sé viðvíkjandi opnun ölstofanna,
verða að sýna 20 prócent nafna
allra atkvæðisbærra manna, ef til
greina skulu teknar. Segir W. R.
Wood, sem fyrir hðnd “Bannfé-
lagsins í Manitoba” hefir verið
að ferðast um og dijálpa til að
hrinda bænarskránum af stað, að
verk það gangi mjög vel. í þorp-
inu Killarney hafi t. d. á auga-
bragði fengist 200 nöfn á bænar-
skrána, þó 85 væri alt sem þörf
hefði verið á. I Turtle Mountain
fengust einnig 380 nöfn, þó 197
nægðu. Og samkvæmt því er séra
K. K. Olafsson segir í síðasta
hefti “Sameiningarinnar”, er út-
litið ágætt í Cypress River. í
Shoal Lake hafa bannvinir, einn-
ig hafist handa.
um, teija kunnugir lítið vafamál.
Harla lítill munur.
Munurinn á ölstofunum nýju og
stíunum gömlu, sem voru í hótel-
unum fyrrum, er næsta lítill í
augum W. R. Wood, ritara Bann-
félagsins í Manitoba. Eftir að
hafa athugað ástandið í ölstof-
unum á kvöldin fyrstu tvær vik-
urnar, sem þær voru opnar, seg-
ist honum svo frá:
“í hverri ölstofu voru frá 25—
75 manns. Andrúmsloftið, reykj-
arsvælan, orðbragðið, hlátursköll-
in, látæðið, trylling geðshræring-
anna og ölvíman, sór sig alt í ætt
við það, sem gerðist í stíunum
þömlu. Og slangrandi stauluð-
ust margir út. í morgun sagði
mér kunningi minn, að hann hefði
séð konu koma inn í eina ölstof-
una, með þrjú börn hahgandi ut-
an í sér, til þess að ná eiginmanni
sínum þgðan. Er það gamla sag-
an endurtekin. Bölvun ofdrykkj-
unnar hefir ávalt komið og kem-
ur enn þyngst niður á konunni og
börnunum.
S. E.
Sigríður Sveinsdóttir.
Þann 7. maí síðastl. andaðist í
Mountainbygðinni, merkiskonan
Sigríður Sveinsdóttir, ekkja eftir
Sveinbjörn sál. Sigurðsson, bónda
hér í sveit. Náði Sigríður hárri
elli, var nærri 88 ára gömul, er
hún lézt. — Sigríður sál. var fædd
á Hofi í Svarfaðardal 29. maí
1839. Voru foreldrar hennar hin
valinkunnu sæmdarhjón, Sveinn
Björnsson og Elín Sigurðardóttir,
er allan sinn „búskap bjuggu á
Hofi við veg mikinn og risnu. —
Foreldrar Sveins voru Björn og
Sigríður, merkileg og göfug hjón,
er allan sinn búskap bjuggu stór-
búi á þessari nafnkunnu land-
námsjörð, síðari hluta 18. aldar
og fram á miðja 19. öld; bjuggu
þar þeir feðgar hver fram af öðr-
um, Björn, Sveinn og Sigurður, á
þessu gamla höfuðbóli, við auð
og allsnægtir. Á þessu tímabili
gengu oft óár mikil og harðindi
yfir þessar sveitir, sem víða ann-
ars staðar; var það oftast við-
kvæði hinna bágstöddu manna, að
hughreysta hver annan með því:
Það þarf ekki annað að fara en að
Hofi, til að fá hjálpina, þar er
bæði viljinn og getan. —
Kona Sveins á Hofi, en móðir
Sigríðar, var Elín Sigurðardóttir
prests frá Auðkúlu í Svínadal, hin
mesta gæða og mannkosta-kona,
orðlögð um allar þær sveitir fyrir
brjóstgæði og hjálpsemi við fá-
tæka. — í þessum skóla var Sig-
ríður alin upp, samfara hinum
meðfæddu eiginleikum sínum:
kærleikanum til guðs og manna,
svo ekki var að undra, þótt hún
reyndist vel í lífinu, því það er
forn orðsháttur, að hverjum kippi
í kyn og eplið falli sjaldan langt
'frá «eikinni.
Sigríður ólst upp við auð og vel-
sæld og eftirlæti mikið og ástríki
af foreldrunum og systkinum og
allra, sem með henni voru á upp-
vaxtarárunum. Systkini hennar
voru tvö, Sigurður, sem tók við
föðurleifð sinni Hofi, og Rósa,
kona Árna hreppstjóra á Syðra-
Holti 'á Upsaströnd. Seinni mað-
ur Rósu var Sigurður Sigurðsson
á Tungufelli í sömu sveit. Var
Sigríður yngst barna þeirra Hofs-
hjóna. Þá er hún var 21 árs að
aldri, giftist hún frænda sínum,
Sveinbirni Sigurðssyni, Sigurðs-
sonar prests á Auðkúlu. Var
móðir Sveinbjarnar, Valgerður
Björnsdóttir frá Hofi, systir
Sveins föður Sigríðar, og Sigurð-
ur faðir Svejnbjörns var bróðir
Elínar á Hofi. Voru þau Sveirt-
björn og Sigríður því systkinabörn
í báðar ættir. Fósturdóttir þeirra
Hofshjóna, Sveins og Elínar, var
Elín Pétursdóttir Gunnlaugssonar
á Miklahóli í Viðvíkursókn í
Skagafirði. Giftist hún Albert
Þiðrikssyni, ættuðum úr Skaga-
firði, dáinn að Húsavík í Nýja ls-
landi 1916. Elín lifir enn, og
minnist í elli sinni með hlýjum hug
og ljúfum endurminningum sinn-
ar ástkæru fóstursystur; með
innilegri ást og virðingu standa
enn fyrir hugskotssjónum hennar
hin sælu bernskuár á Hofi, og
síðar á Ási með fóstursystur sinni.
Hún lifir enn að Húsavíkur póst-
húsi í hárri elli.
Brúðkaup þeirra Sveinbjörns
og Sigríðar, var haldið 3. júní
1860, með hinni mestu rausn á
Hofi. Fluttu þau því næst að Ósi
í Hörgárdal, sem var óðalseign
þeirra, og reistu þar bú. Á Ósi
bjuggu þau hjón í 23 ár, með mik-
illi rausn, virt og vel metin af
öllum, sem til þeirra þektu; —
gjörðu þau hjón, sem kallað var,
skála um þjóðbraut þvera að forn-
um sið, sem laðaði gesti; öllum
var heimilt það sem hafa þurfti.
En með því að búskapur á þeim
árum var erfiður og harðindi mik-
II, en gestrisni og góðvild við alla,
sem að garði bar, takmarkalaus,
gerðist fjárhagurinn ógreiður, svo
’efni gengu til þurðar. Tóku þau
hjón sig þvi upp, ásamt einka-
syni sínum Sveini, og fóru til
Vesturheims árið 1883, settust að
við þorpið Gardar, N.D., og bjuggu
þar í 15 ár; árið 1898 fluttu þau
til Mouseriver bygðar og námu
þar land, og á því bjuggu þau hjón
þar til Sveinbjörn lézt árið 1910,
þann 7. september. Þá um vorið
höfðu sveitungar þeirra merku
hjóna haldið þeim heiðurs sam-
sæti, 3. júní, til minningar um 50
ára hjúskap þeirra. í þeirri há-
tíð tók öll bygðin þátt með mestu
viðhöfn, og sýndi þeim maklega
viðurkeningu fyrir þeirra langa
æfistarf á svæði mannúðarinnar
og kærleikans.—Sigríður lifði all-
an þennan langa tíma í ástríku
hjónabandi og mátti aldrei af
manninum sjá. Hafði hún haft
v iklaða heilsu mikinn hluta æfi
sinnar, en maðurinn hennar bar
hana á höndum sér á líkan hátt
og foreldrar hennar gjörðu, með-
an hún var í föðurgarði; varð
henni því svo mikið um fráfall
manns síns, að hún hafði lítið
yndi, dvaldi frá þeim tíma meðal
vandalausra manna innan bygð-
arinnar, hin síðusut 16 árin, sem
hún lifði, og mikið af þeim tíma
aumingi. En allir voru henni
mjög góðir. Sást það aldrei bet-
ur en þá, hvað mikilla vinsælda
hún naut meðal samferðafólksins,
því slíkrar hluttekningar verí^a
fáir aðnjótandi.
Sigríður sál. var á yngri árum
hin mesta fríðleikskona, bar útlit
hennar og svipur órækan vott um
hinn innri mann, sem hún hafði
að geyma. Eins var öll hennar
framkoma, hún' helgaði alt sitt líf
öllu því bezta í mannseðlinu alla
sína löngu æfi; kærleikurinn til
guðs og manna var ávalt í fyrir-
rúmi fyrir öllu öðru. Hafði hún
alla tíð sterka umhyggju fyrir
velferð allra manna, sem hún náði
til. Silfur og gull átti hún ekki,
en það sem hún hafði, það gaf
húri.
Sigríður var vel viti borin, skýr
í tali og stálminnug, var mjög fróð
um menn og málefni frá hinni
fyrri samtíð; kunni mikið af ljóð-
um og versum frá, æskuárunum.
Þessu góða og mikla minni hélt
hún og ráði til æfiloka. En um
tíu árin seinustu var hún blind.
— í hjónabandi sínu eignaðist
Sigríður 3 börn; tvö dóu í æsku,
en einn sonur lifir móður sína,
sem alla æfi hefir verið með
henni og reynst henni sem sann-
ur og góður sonur í meðlæti og
mótlæti; var Sveinn sonur hennar
á hinum efri árum hennar eina
yndi. Með Sigríði er til grafar
gengin eih af mestu ágætiskonum
sem þjóð vor hefir átt, sem alla
sína æfi lifði eftir kenningu
frelsarans, að elsWa náungann
eins og sjálfan sig.
Sigríður var jarðsett í grafreit
Melanktons safnaðar við hliðina á
manni sínum. Prestur safnaðar-
ins flutti mjög góðar ræður yfir
leifum hennar og veitti henni
hina síðustu prestsþjónustu.
Sigurður Jónsson.
—Blöðin á Akureyri eru vin-
samlega beðin að taka upp dán-
arfregn þessa. S. J.
Dr. Á. W. Myles
leyfir sér að tilkynna, að hann
sé tekinn að stunda tannlækn-
ingar með lækpisstofu að
W. Somerset Block
Ofice sími 26 944. Heim: 63 135
Opið á Þriðjudags, Fimtudags
og Laugardags kveldum.
frá kl. 7—9.
[Bezta Fatahreinsunar og Litunar-
• húsiÖ í Canada
.rxuiv peascira ou sveita, Dyst w.
R. Wood við að 20 aðrar bætist
við og sendi bænarskrár til sveit-
arstjórna fyrir lok þessa mánað-
ar.. En atkvæðagreiðslan mun
víðast fara fram í byrjun júní-1
mánaðar. Og að bannmenn vinni
1 þessum sveitum, flestum eða öll- J
vrixviv WLj SúJM
VIÐGERÐIR OG BREYTINGAR Á FUR-FaTNAÐI
Er þýðingarmikill hluti af voru verki. Vér höfum heztu og fullkomnustu
geymsluklefa fyrir fur sem hægt er aS fft. Vér ráðum yður að senda oss fur
yðar til geymslu yfir sumarmánuðina.
VERK AFGREITT Á
HVERJUM DEGl
Veikt Taugakerfi
Þarfnast Járnefnis. {|
Járnefni er nú tekið úr ungum, {Í
hraustum skepnum, og það er |
gert með mestu flákvæmni og I
vandvirkni. Þetta er það járn- {!
efni, sem vér verðum að hafa nóg I
af í æðum vorum, ef vér eigum! |
að hafa stælta vöðva og sterkar i;
taugar. Þetta járnefni fær á-{!
gætis vitnisburð hjá þeim. sem j j
reynt hafa við taugaveiklun, j j
svefnleysi og þessari þrevtutil- I
finning, jafnvel eftir næturhvíld-{í
ina, og eins reynist það ágætlega, | j
þegar maður er að missa kraft-
ana. hefir litla matarlyst. slæma
meltingu, höfuðverk, svima og
aðrá slíka kvilla, sem stafa af
bví, að _í blóðinu er ekki nægilegt
járnefni.
í Nuga-Toné er mikið af bessu
iárnefni, og það er langtum betra
en alt annað iárnefni. sem enn er
bekt, og samlagast blóðinu miklu
betur. Þar að auki er phosnhorus
í Nuga-Tone. en bað er ómissandi
fyrir taugarnar; einnig fleiri efni,
sem líkamanum eru nauðsynleg til
viðhalds og uppbvggingar. Sé
heilsa bín slæm og bér finnist að
bú sért að tapa kröftum osr kiarki.
’ - ættir þú að fá þér flðsku af
Nuga-Tone, svo taugarnar geti
notið þessa ágæta járnefnis í
nokkra daga. Ef það reynist bér
ekki eins og bú átt von á. þá skil-
aðu afganginum og lyfsalinn skil-
ar þér aftur peningunum.
Fatahreinsun gerð með umbættum aðferðum
GL0VER S'ÍEÍ. FYRIRK0MULAG
NYJAS'PA.
OG BEZTA
H Samkvæmt stefnu vorri að umbæta altaf verk vort, höfvér meS ærnum kostn^ði sett upp Glover áhöld, eins
B og myndin hér að ofan sýnir. pessi áhöld hreinsa ekki aðeins ör fötunum vanaleg öhreinindi, heldur llka fitu,
| gerla og allskonar óþverra, sem safnast hefir í fötin. possvegna er það. að þessi áhöld eru öilum öðrum betri.
s Pessi nýi útbúnaður vör og hreinsunarefni er trygging fyrir þvi að fötin eru hreinsuð eins vel og frekast er
H kostur á. Næst þegar þarf að hreinsa fötin yðar, þá hafið þau Glovenized hjá oss og sjáið mismuninn.
Talsími:
31 443
Skrifstofa
Vinnustofa
i horni Ellice og Simooe
ll WINNIPEG, MAN.
II
Talsími:
31 443
DAN McCARTHY
ráðsmaður
DYERS and
DRY CLEANERS
Yerki utan af landl
sérstakur cjaumur gefinn