Lögberg - 03.05.1928, Page 5

Lögberg - 03.05.1928, Page 5
LÖGBERG, FIMTUDAGINN 3. MAÍ 1928. Bli. B. DODDS KIDNEY PILLS J THEP® 1 meir en þriðjung aldar hafa Dodd’s Kidney Pills verið viður- kendar rétta meðalið við bak- verk, gigt, þvagteppu og mörgum fleiri sjúkdómum. Fást hjá öll- um lyfsölum, fyrir 50c. askjan, eða 6 öskjur fyrir $2.50, eða beint frá The Dodds Medicine Co., Ltd., Toronto, ef borgun fylgir. sem eg hefi minst á. (1) Valdið til að hefja stríð og gera friðarsamninga.— Það er mála sannast, að þátt- taka Ganadamanna í stríðinu mikla, gerði mikið til þess að þjóð vor fengi viðurkenning sem sér- stök þjóðarheild, og átti sú viður- kenning sér stað ekki einungis innan brezka veldisins, heldur og meðal allra bandaþjóðanna. En það í sjálfu sér hefði ekki veriðrCanada er í miðstjórninni, er það nóg, hefði ekki ýmsir aðrir við- burðir komið fyrir á eftir, sem sýna svo ótvíræðilega, hvaða áhrif það hafði í för með sér. Þegar að því kom, að semja átti frið eftir stríðslok, þá var spurt, hvort Canada hefði nokk- urn rétt til þess að senda sína eigin erindsreka á friðarþingið. En málið var eiginlega ekki rætt, engin veruleg mótsyrna fanst — og sendi því Oanadastjórnin sína eigin fulltrúa á þingið í Versöl- um — ekki sem part af fulltrúa- deild þeirri, sem Bretland átti heimting á að senda, heldur sem erindsreka sjálfstæðrar þjóðar___ Þá í fyrsta sinn í sögu hennar, skipaði Canada sæti á friðarþingi með sömu réttindum og aðrar sjálfstæðar og fullvalda þjóðir. Og svo vel hittist á, að þetta var hið mikilvægasta friðarþing, er sögur fara af. Með þátttöku sinni á friðarþinginu í Versöíum fékk Canadaþjóðin alþjóðaviðurkenn- ing um rétt hennár að semja úð- arsamninga. Rétturinn til að hefja stríð og rétturinn til að semja frið, fylgj- ast ætíð að. Um leið og Canada ávann sér annan réttinn, fékk hún og hinn. Vonandi er, að við þurf- um aldrei að beita þeim rétti. Varla förum við að segja Banda- ríkjunum eða Japan stríð á hend- ur. Eg get varla ímyndað mér svo alvarlegt tilfelli, að nauðsyn- legt verði fyrir þetta ríki, eitt fyrir sig, að nota stríðsréttinn. En um tækifæri að nota réttinn, þarf eigi að ræða, rétturinn er til, viðurkendur í Versölum, ef á þarf að halda. (2) Að þjóðin hafi rétt til að skipa sæti á öllum alþjóða- og al- heimsfundum með öðrum óháðum þjóðum og taka þátt í fundar- gjörðum þar. í friðarþinginu í Versölum var stofnað “The League of Nations” —Alþjóðasambandið. Canada, sem öðrum frjálsum og sjálfstæðum þjóðum og ríkjum, var boðið að gerast meðlimur þess. Hún þáði Þoðið og hefir verið meðlimur sambandsins frá því er það var stofnsett. Engum datt til. hugar að álíta, að Canada væri enn þá einungis brezk nýlenda og ætti ekki inngöngurétt í þetta alþjóða- samiband. 'Eitt kom fyrir árið sem leið, sem er frábærlega markvert, að minsta kosti frá sjónarmiði Can- ada að dæma. Fjórtán þjóðir skipa miðstjórn alþjóðasambands- ins. Fimm stórveldin hafa var- anleg sæti í þeirri stjórn, en hin- ar níu þjóðirnar eru kosnar á árs- fundum sambandsins. í fyrra hlaut fulltrúi Canada sæti í þeirri stjórn. í sambandi við kosningu miðstjórnarinnar í það skifti, er eitt mjög eftirtektar- vert, og er það haft eftir Seriator Dandurand. Hann var um tíma, sem öllum er kunnugt, forseti sam- bandsins. Hann er 'Canadamað- ur, og það, að hann var forseti sairibandsins sýnir, hvaða álit aðrar þjóðir hafa á Canada. Sen- ator Dandurand hefir sagt, að það, sem reið baggamuninn og aðal- lega kom því til leiðar, að Canada var kosin í miðstjórnina, var það, að stefna fulltrúa hennar í friðar- málum, var frábreytt stefnu full- trúa Bretlands. Þetta sýnir og sannar sjálfstæði Canada. Hún tekur þá stefnu, sem hún álítur rétta, jafnvel þó hún sé gagnstæð stefnu Bretlands eða hinna bi æðraþjóðanna í Brezka sam- bandinu. Það, að Canada var kosin í mið- stjór Aljóðasambandsins, er að mínu áliti eitt hið þýðingarmesta spor, sem þetta ríki hefir nokkurn tíma stigið. í sjálfstæði innifelst ekki einungis vald, heldur og á- byrgð og skyldur. Á meðan að skylda hennar, að koma með það bezta, sem hún hefir til brunns að bera til þess að skera úr, ekki að eins öllum þeim vandamálum, sem koma fyrir miðstjórnina á- hrærandi Canada eða brezka veld- inu, heldur og öllum málum á- hrærandi hvaða þjóð sem sam- bandinu tilheyrir. Hver getur með nokkurri sanngirni sagt, að Canada skipi bekk neðar öðrum sjálfstæðum þjóðum, þar sem hún er ein af fjórtán þjóðum, sem kosnar hafa verið til þess að rannsaka og leysa úr málum og spurningum, vísað til sambands- til samibandsins. Á herðum Canadaþjóðarinnar hvíla nú ekki að eins hennar eigin mál, ekki að eins innanríkismál brezka veldisins, heldur og öll ut- anríkis- og alþjóðamál allra þjóða. hvar í heimi sem er. Að vísu til- heyra ekki enn allar þjóðir sam- bandinu, en enginn efi er á því, að öll stórmál, þar sem meira en ein þjóð á í hlut, verða beinlir.is eða óbeinlínis lögð fyrir Aiþjóða- sambandið, og þess vegna beinlin- is eða óbeinlínis lögð fyrir Can- ad á meðan að hún er í miðstjórn- inni. 03) Að engin önnur þjóð geti gert samninga, hvaða eðlis sem er, sem skuldbindi þessa þjóð án hennar eigin vitundar og sam- þykkis. — Til dæmis ómögulegt væri að segja, að íslendingar væri sjálfstæð þjóð, ef stjórnin í Dan- mörku gæti gert samninga við aðrar þjóðir, sem skuldbindi ís- land án samþykkis þess. — Nú virðist svo, esm allir flokkar í ís- lenzka þinginu séu sammála um það, að sem fyrst ætti að segja upp sambandslaga samningnum við Danmörku, og að ísland ætti að taka við sínum eigin utanrík- ismálum. óánægja getur risið upp, ef þjóðir eru ekki fullvalda um utanríkismál sín, þess vegna verður maður að athuga þenna þriðja punkt. Þið munið ef ti lvill eftir fund- inum, sem haldinn var í Locarno árið 1925 og sem kallaður er á ensku “The Locarno Conference.” Það þing var sett aðallega til þess að reyna að koma á samningum milli Evrópuþjóðanna, einkum og sér í lagi Frakklands og Þýzka- lands. Engin þörf er að útskýra, hvað kom fyrir á þeim fundi, því þau mál tilheyra ekki Canada. En eitt í sambandi við þann fund er mjög markvert. Canada sendi Ye Olde Firme HEINTZMAN & C0. PIANO Gerið þér yður grein fyrir því, að það er hsegt að fá beztu piano I Canada með rétt eins þægilegum kjörum eins og þau, sem lakari eru. HEIMILI TÐAR ÆTTI AÐ HAFA þAÐ BEZTA. Skrifið strax eftir verðlista, sem tekur fram verð og söluskilmála Seld í Manitoba aðeins hjá I I 1 H Mr\ fan &Co- J • «J« n. lYlCLi HAIN Ltd. The West’s Oldest Music House, 329 Portage Ave. - Winnipeg ekki fulltrúa á fundinn. Þegar brezku fulltrúarnir skrifuðu und- ir samninga þá, er þar voru gerð- ir, þá skrifuðu þeir undir þá, ekki sem erindisrekar Brezka veldis- ins í heild sinni, heldur sem erind- isrekar Bretlands. Brezku stjórn- inni kom ekki til hugar að álíta, eða krefjast þess, að samningar, sem hún undirritaði, gætu að nokkru leyti skuld'bundið ný- lenduþjóðirnar brezku án þeirra samþykkis. Þetta var sérstaklega tekið fram, er samningarnir voru gerðir, og var Canada, sem hinum brezku þjóðunum, gefið tækifæri seinna að staðfesta samningana. Hún neitaði því, sem mjög eðli- legt var, og hefir engum dottið til hugar að mótmæla rétti hennar til þess. Eitt annað dæmi vil eg benda á. Fyrir nokkurm dögum síðan var brezka stjórnin í þann veginn að gera samninga við Egyptaland. Álitið var, að þetta væri velferð- armál Brezka veldisins í heild sinni, og var því hugmyndin í fyrsta sú, að samningar væri gerðir sem næðu yfir alt brezka veldið. Canadastjórninni var því tilkynt innihald þessa fyrirhugaða samnings, og var hún beðin að láta í ljós, hvort hún vildi vera með í þeirri samningagjörð. Þess ber að gæta, að fyrir nokkrum tugum ára síðan hefði Canada- stjórninni ekki einu sinni verið til- kynt hvað stóð til, hvað þá held- ur gefið tækifæri að taka þátt í samningsgjörðinni. Mr. King, fyrir hönd Canada, neitdði að taka þátt í þessu máli vegna þeirr- ar einföldu ástæðu, að málið kom Canada ekkert við. Úrslitin urðu því þau, að ef þessir samningar komast á, þá skuldbinda þeir að eins Bretland, en ekki samlendur þeirra. Fróðlegt er að lesa, hvað Lord Salisbury sagði, er málið var rætt í lávarðadeildinni í brezka þinginu. Hann var að tala um ný- lenduþjóðirnar torezku og afstöðu þeirra gagnvart heimaþjóðinni og fórust honum orð á þessa leið: “Bönd þau, er binda oss saman, eru eigi lagabönd, heldur bönd þau, er einn tengja við annan í sömu fjolskyldu. Okkur dettur ekki til hugar að vér að nokkru leyti getum takmarkað rétt hinna brezku þjóðanna til að taka sína eigin stefnu í hvaða málum sem er.” Ýms önnur tilfelli og dæmi gæti eg nefnt ef tími leyfði, svo sem Chanak viðburðinn árið 1922, Lausanne þingið árið 1923 og svo framvegis. öl lþesSi tilfelli sanna ótvíræðilega, að brezka stjórnin getur ekki gert og mun ekki reyna að gera samninga við aðrar þjóð- if, sem að nokkru leyti skuldbinda hinar brezku þjóðirnar nema með þeirra eigin vitund og samþykki. (4) Að þjóðin hafi rétt til þess að gera löglega verzlunar- landa- merkja- og þessháttar samninga •við aðrar þjóðir. Hér áður, þegar álitið’ var að Canada væri að eins brezk ný- lenda, voru allir svoleiðis samn- ingar áhrærandi Canada, samdir af brezku stjórninni. Það er löng og mikil raunasaga, því Canada var ætíð látin sitja á hak- anum. Brezka stjórnin hafði æf- inlega mörg járn í eldi, og til þe s að komast að sem beztum samn- ingum um málefni er Bretland snerti, var hún ævinlega tilbúin slaka til í málum, er nýlendunum tilheyrði. Þetta er ræðuefni út af fyrir sig, en út í þá sálma get eg ekki farið í þetta sinn. Árið 1878 fór Canadastjórnin að fara fram á það, að brezka stjórnin ætti áð kjósa fulltrúa frá Canada til að gera samninga við aðrar þjóðir, ef að um málefni væri að ræða, er Canada snerti. Þá svar- aði innanríkisráðgjafi Bretlands á þessa leið: “Mér er falið á hendur, að láta yður vita, að það er ekki álitið æskilegt að canadiskur fulltrúi sé kosinn til þess að taka þátt í samningagjörð við aðrar þjóðir, en ef stjórn yðar æskir að senda einhvern til þess að gefa okkur bendingu, þá væri það brezku stjórninni mikil ánægja, að hlusta á það sem hann hefði að segja.” Ekki vantaði á hrokann þá, en nú er þetta alt orðið breytt. ó- þarfi er að rekja þá breytingar- sögu spor frá spori. Eg ætla ein- ungis að benda á dæmi, sem sýna hvenrig litið er á svona mál þann dag í dag.. Árið 1923 komst Canadastjórn- in að samningum við Bandaríkja- stjórnina um fiskiveiðar í norður Kynjahafinu, sem kallaðir eru “The Halibut Treaty”. Var það í fyrsta sinn, sem eg veit til, að Canadaþjóðin gerði svoleiðis samninga við aðra þjóð. Fyrst var þó nokkurt veður gert út af þessu víða um berzka veldið af h\num svo kölluðu veldissinnum (ilmperialistum). Þeim fanst þetta vera landráð, sama og að slíta smbandinu við Bretland. En hróp þeirra féllu á dauf eyru og gleymdust fyr en varði. Nú sem stendur er sambands- stjórnin í þann veginn að semja við Bandaríkin um dýpkun á St. Lawrence fljótinu og framleiðslu á rafafli í fossunum í ánni. Að þessu hefir brezka stjórnin ekki látið þessa samninga sig neinu skifta, sambandsstjórnin hefir ekki leitað ráða hennar, og er enginn efi á, að hún verður ekki að neinu leyti riðin við þá samn- ingagjörð. Réttur Canada til að gjöra verzlunar- viðskifta- og þessháttar samninga við aðrar þjóðir, er nú viðurkendur um alt brezka veldið. (5) Að þjóðin hafi rétt til að skipa sína eigin sendiherra eða ræðismenn, til annara þjóða, til að vernda þar rétt lands og þegna. Á meðan að sú skoðun réði, að Cariada væri nýlenda og eign Bret- lands, var engum blöðum um það að fletta, að hún hafði ekki rétt til þess að senda umboðsmenn sína til annara þjóða. En eftir að þjóðin fór að þroskast, var farið að ræða um það, bæði á sambandsþinginu og í ritum og ræðum, að Canada ætti að mega skipa sendiherra til annara þjóða. Ekki er nauðsynlegt að rekja sög- una frá fyrstu, því nú dettur eng- um til hugar að neita þessum rétti Canadaþjóðarinnar. Sendi- herra til Bandaríkjanna var kos- inn fyrir nokkru síðan, og er hann nú í Washington með fullu um- boði frá Canadastjórninni. Nú lítur út fyrir, að innan skamms verði sendiherrar frá Canada skip- aðir bæði til Frakklands og Japan og án efa til annara landa, ef þess er þörf. Þessi dæmi frá helztu viðburð- um nútímans, er eg hefi minst á, sýna skýlaust að Canadaþjóðin hefir öðlast þau fimm forréttindi, sem einkenna óháða og fullvalda þjóð. Hvað meira getur maður óskað eftir? Það vírðist, að eng- inn réttur eða vald sé til, er full- valda þjóð á yfir að ráða, sem Canadaþjóðin hefir ekki öðlast og nýtur þann dag í dag. En á jsálfstæði þjóða getur maður litið frá öðru sjónarmiði. Þjóð getur verið að nafninu til frjáls og sjálfstæð, en í virkileika mjög háð öðrum þjóðum. Frelsi þjóða frá þessu sjónarmiði er mikið undir því komið, hvaða bekk þær skipa í áliti annara þjóða, sérstaklega stórþjóðanna. Þjóðir eru sem einstaklignar, þær fara eins langt og þær þora. Auðvelt væri að sýna ykkur, að hinar svo- kölluðu frjálsu og sjálfstæðu þjóðir í Mið-Ameríku og með norðurströnd Suður Ameríku, eru mjög mikið háðar Bandaríkjunum. Engin þdirra gæti komist að jafn- sanngjörnum samningum við Ban- daríkin eins og t. a. m. Canada Mér er alveg sama hvert málefn- ið er. Eg skal benda ykkur á eitt dæmi. óánægja og deilur hafa nú í seinni tíð átt sér stað milli Banda- ríkjanna og Nicaragua — einnar af Mið-Ameríku þjóðunum. Stjórn Bandaríkjanna hefir sent sjóher til Nicaragua í því yfirskini að vernda þar rétt og eijrnir þegna sinna. Þetta er ekki nema fyrir- sláttur, því hin verulega ástæða er sú, að verja og halda við i em- bætti mönnum, sem Bandaríkja- stjórnin veit að eru henni vel- viljaðir. HÍað myndi Canadastjórnin segja, hvað myndir þú og eg segja, vil eg spyrja, ef Bandaríkin sendu hermenn sína inn til Canada, til þess að varðveita eignir og rétt- indi Bandaríkjaþegna, vegna þess að einhver misskilningur eða óá- nægja ætti sér stað um málefni, er þessar þjóðir væru eigi ásáttar um? Eg vil fara lengra — hvað myndi Bretland segja? Hvað myndi Ástralía segja? Hvað myndi Brezka veldið í heild sinni segja eða gera? Eg held það liggi í augum uppi að nú, þegar Canada er orðin við- urkend sem sjálfstætt og fullvalda ríki, þá skipar hún æðra sæti í alþjóða áliti, en ella hefði verið, vegna þess, að hún er eitt af mörgum ríkjum, sem til samans mynda Brezka veldið. Eg er sann- færður um, að Canadaþjóðin ,er miklu frjálsari, það er að segja, er miklu óháðari öðrum þjóðum, af því hún tilheyrir Brezka sam- bandinu. Þegar þjóðir gera samninga við Canada eða eru í deilum við hana, þá vita þær, að Canadþjóðin hefir á bak við sig velvild, ef ekki algjörðan stuðning Brezka veld- isins í heild sinni. ,Nú er Canadaþjóðin fullorðin, komin til lögaldurs. Rétt eins og lög landsins veita hinum unga manni öll réttindi fulltíða manns, eins hefir Canadaþjóðin öðlast öll forréttindi sjálfstæðrar og full- valda þjóðar. En hinn ungi maður hefir ekki skilið við föðurhúsin. Nú vinnur hann með foreldrum sínum í ráðsmensku heimilisins. Foreldr- arnir hafa viðurkent í orði og verki, að hann er eigi harn leng- ur. Það sem átti við, er hann var að alast upp, er fyrir löngu orðið úrelt og gleymt. En hingað til hafa engar lagabrejrtingar verið gerðar — enga skrifaða samninga hefir þurft að gera til þess að lýsa hinni markverðu breytingu, sem komin er á heim- ilið. Á þessum degi, samkvæmt göml- um og fallegum, islenzkum sið, samgleðjumst vér af því, að sum- arið er komið. Vér Vestur- íslendingar höfum tvöfalda á- stæðu til að samgleðjast: sumar- ið er komið og einnig sumardag- urinn fyrsti hinnar ungu, sjálf- stæðu Canadaþjóðar. umboðsmaður brezku stjórnar- innar, en landstjórinn umboðs- maður konungsins. Sendiherra frá Englandi. Sir W. H. Clark hefir brezka stjórnin skipað sem nokkurs konar sendiherrá sinn til Canada, og er, hann nefndur “high commission-| er”, eins og umboðsmaður Can-* 1 2 ada í London. Þessi maður er Fám orðum fljótlega svarað. í mjög varhugaverðri grein, eft- ir herra Hjálmar A. Bergman, sem birt er í síðasta Lögbergi, er minst á bending þá, er eg gaf í næsta blaði á undan, um það, að mér þætti bezt fara á því að þiggja ékki “stjórnarpeningana” handa sjálfum oss, heldur láta stjórnirnar snúa þeim upp í aðra gjöf. Eru orð Hjálmars fá, en meiningin full. — “Tillaga” mín, sem hann kallar syo, finst honum “með öllu óhæfileg”, og nota pen- ingana þannig sé “vægast talað, blátt áfram óheiðarlegt — og einnig ólöglegt.” Með einu móti getur greinár- höfundur réttlætt þessi þungu orð: að hann játi algerðan mis- skilning sinn á anda og efni grein- ar minnar. Eg hefi aldrei ætlast til, né til hugar komið, að íslendingar vestra færu á bak við stjórnir þessa lands, og fengju féð undir fölsku yfirskini. Vér eigum að koma því til leið- ar, að Canada gefi “íslandi mynda- styttu Úlfljóts lögsögumanns”, — “eða Canada og íslendingar hér”, stóð í grein minni. Engum getur blandast hugur um, að hér eigi að ganga beint til verks. Það er auðskilið mál, að í stað þess að skila aftur fénu með van- þakklæti, skilyrðislaust, þá er hér ætlast til, að stjórnunum sé skýrt frá, að vér getum ekki þegið það handa sjálfum oss, á þeim grund- velli, sem uphaflega var um það beðið, en oss þætti vel við eig- andi, að þær heiðruðu þúsund ára DREWRY5 LAGER P imtíu ára stöð- ug framsókn hef- ir gert þennan drykk fullkom- mn. Biðjið um það með nafni. The Drewry’s Ltd. Winnipeg Phone 57 221 402 Gasoiíu Skattlögin og regl- ur þeim viðvíkjandi. (Ganga í gildi i. maí 1928) Hver sá, sem flytur inn gasoline, framleiðir eða selur, skal mánaðarlega gefa Provincial Secretary, Regina skýrslu. er sýni hve mörg gallon af gasoline hann hefir selt í Saskatchewan næstliöinn mánuð. Það má vera að gasoline skattur verði endurborgaður, af Provincial Secretary, af þeirri olíu, sem keypt hefir verið en ekki notuð til ferðalaga á keyrsiuvegum fylkisins. Eyðublöð fást, ef urn er béðið, hjá Department of the Pro- vincial Secretary, Legislative Building, Regina. Þessi eyðu- iblöð verða að vera nákvæmlega útfylt og kvittanir fyrir keypta gasolíu fylgi. Engin endurborgun á sér stað, ef sú upphæð, sem krafist er, er ekki yfir $3.00. Endurborgun fer fram aðeins fjórum sinnum á ári, nefni- lega rétt eftir 1. ágúst, 1. nóvember, 1. febrúar og 1. maí. Hver, sem brotlegur verður við þessi fylkislög og er sekur fundinn. verður að greiða sekt, seni ekki er minni en $10.00 og ekki meiri en $100.00 fyrir fyrsta brot og ekki minni en $25.00 og ekki meiri en 200.00 ef brotið er endurtekið. Department of the Provincial Secretary Búið til yðar eigin Sápu og sparið peninga Alt gem þér þurfið er úrgansfeiti og GILLETTS HREINT I VC OG GOTT LY L Upplýsingar eru á hverri dós Fæst I mat- vörubúÖum. hátíð vors íslenzka Alþingis, með samskonar gjöf — hvort sem sú gjðf kæmi úr öðrum sjóði en upp- haflega var ætlast til, eða ekki. Eg er sannfærður um, að hægt væri að koma því til leiðar með fullri sæmd, að Sambandsstjórnin ein framkvæmdi starf þetta. Og það er trúa mín, að sá tími komi, að hún í nafni Canada heiðri ís- land á einhvern góðan hátt, á hátíð þess, 1930. Og hið fengna fé, álít eg ekki svo háskalegt, þótt vont kunni að vera, að ekki megi skifta því hjá stjórnunum fyrir steypumálm, eða snúa því upp í hverja gjöf sem vera vill. En vel má vera, að ekki verði auðhlaupið að steypa hugmynd þessa í standmynd, með því hug- arfari, sem nú virðist ríkja vor á meðal. Enda var þetta aldrei nema bending frá mér, en aðrir áttu að fullkomna., væri hún þess verð. Nær hún þá ekki lengra, en festast á agnúum viljaleysisins öðru megin, þjóðtýningarinnar hinu megin og óbilgirninnar öllu megin. - 28.-4.-’28. Þorsteinn Þ. Þorsteinsson. Eins og höf. þessa greinarstúfs er kunnugt um, vorum vér tillögu hans alveg mótfallnir, og^teljum þetta skrif hans í rauninni ekkert svar.—Ritstj. W O NDERLAND. HON. S. (]. LATTA, Provincial Secretary. J. W. McLEOD, Deputy Provincial Secretarv. Þrjá síðustu dagana af þessari v'ku sýnir Wonderland leikhúsið kvikmyndina “The Wagon Show”, þar sem Ken. Maynard er aðal- persónan. Hann er vel þektur frá “Circus” kvikmyndum og sýnir framúrskarandi fimleik og snar- ræði, sem er reglulegt yndi að horfa á. — Mr. Rost, ráðsmaður Wonderland leikhússins, lætur þess getið, að á triánudaginn og næstu tvo daga, sýnir Dolores Cos- tello þar leiklist sína í leiknum “The College Widow”. Það er sérstaklega fjörugur og skemti- legur leikur, sem allir hljóta að hafa gaman af. “White Seal’’ langbezti bjórinn KIEWEL Tals. 81 178 oi! 81 179

x

Lögberg

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.