Lögberg - 17.05.1928, Blaðsíða 8
BIh. 8.
LöGBERG, FIMTUDAGINN 17. MAl 1928.
r
Þér fáið fleiri
brauð og betri ef þér
notið
RobinHood
FLOUR
ABYGGILEG PENINGA TRYGG
ING I HVERJUM POKA
,Ur baenum.
Eitt herbergi til leigu að 1098
Ingersoll Street.
Dr. Tweed verður í Árborg á
þriðjudaginn 22. maí.
í dag, fimtudag, er uppstign-
ingardagur. Guðsþjónusta í kvöld
í Fyrstu Iút. kirkju kl. 8.
Gefin saman í hjónaband, 30.
apríl Thorvaldur Skafti Éinars-
son og Elinborg Eiríksson, bæði
frá Gimli. Séra Björn B. Jóns-
son, D.D., gifti.
Mr. Egill Fáfnis kom til borg-
arinnar á laugardaginn frá Chi-
cago, þar sem hann hefir verið
síðan í haust og stundað guð-
fræðanám. Mun , hann ætla að
verða hér í sumar, eða þangað til
hann byrjar aftur á námi með
haustinu.
Mr. Á. E. ísfeld, frá Winnipeg
Beach, kom til borgarinnar fyrir
helgina norðan frá Langruth, þar
sem hann hafði dvalið nokkra
daga í gistivináttu systkina sinna,
er þar eiga heima.
Mr. Bjðrn B. Johnson frá Gimli,
kom til borgarinnar seinni part-
inn í vikunni sem leið, og hélt
heimleiðis á laugardaginn.
Takið eftir!
$450.00 Doherty Mahogany
Piano til sölu fyrir $295.00.
$150.00. MoLagan Mahogany
Phonograph fyrir $50.00. —
Regluteg kjörkaup. —
Sími 89 001 eftir kl. 6.
Mr. John B. Johnson-frá Gimli,
var staddur í borginni seinni part
vikunnar sem leið.
Séra Haraldur Sigmar kom til
borgarinnar á fimtudaginn í síð-
ustu viku og fór vestur til Wyn-
yard á föstudagskveldið, til að
vera við jarðarför Guðl. Krist-
jánssonar, sem fram fór á laugar-
daginn. Séra Sigmar prédikaði
þar vestra á sunnudaginn í sínu
gamla prestakalli. Hann kom aft-
ur til bæjarins á þriðjudaginn var.
Mr. Árni Josephson og Mr. G.
J. Oleson frá Glenboro og synir
hans tveir, komu til borgarinnar í
bíl á föstudaginn. Þeir fóru heim-
leiðis næsta dag.
fþróttafélagið Sleipnir byrjar
æfingar í Goodtemplarahúsinu á
Sargent Ave. (ineðri salnum),
mánudagskv. 21. maí 1928. Það
heldur æfingar framvegis hvert
mánudagskveld á sama stað. —
Leikfimiskennari fyrir drengi er
Óskar Helgason. ísl. glímu kenn-
ir B. ólafsson, og C. C. Can P. Sig-
urdson. — Drengir 15 ára og yngri
byrja kl. 7.30, fullorðnir menn:
glíma o. fl. 8.30. Allir velkomnir.
Þess var getið hér í blaðinu í
vetur, þegar skýrt var frá síðasta
ársfundi Fyrsta lút. safnaðar í
Winnieg, að á þessu ári væru lið-
in fimtíu ár frá því söfnuðurinn
var stofnaður og ákvað fundurinn
þá að söfnuðurinn skyldi minn-
ast þessa hálfrar aldar afmælis
síns á þessu ári. Hefir nefnd
manna verið valin til að standa
fyrir því hátíðarhaldi. Prestur
safnaðarins. Dr. Björn B. Jóns-
son, er formaður nefndarinnar, en
auk hans eru í nefndinni þessir
níu menn: Dr. B. J. Brandson,
A. C. Johnson, Árni Eggertsson,
A. S. Bardal, Jónas Jóhannesson,
J. J. Swanson, J. J. Vopni, A. P.
Jóhánnsson og S. W. Melsted.
Hefir nefndin nú þegar gert sín-
ar ráðstafanir þessari afæmlishá-
tíð viðvíkjandi. Söfnuðurinn var
stofnaður í ágústmánuði, en það
þykir óhentugur tími til hátíða-
halds, því um það leyti eru marg-
ir ekki heima. Verður því afmæl-
ishátíðin væntanlega haldin seint
í september. Nefndin býst við, að
á töluverðu fé þurfi að halda til
að koma því í framkvæmd, sem
hún hefir hugsað sér í þessu sam-
bandi, og er þess vænst, að sem
allra flestir meðlimir yngri og
eldri, helst alveg allir, taki ein-
hvern ofurlitinn þátt í því.
íslendingar í N. Dakota ætla að
minnast 50 ára afmælis bygðar-
innar í sumar, með hátiðahaldi,
sem fram á að fara að Mountain 2.
júlí. Hefir nú þegar verið mikið
unnið að undirbúningi hátíða-
haldsins og er engin hætta á því,
að íslendingar í N. Dakota láti
sér ekki farast það vel úr hendi,
þó ekki kunnum vér frekar frá því
að skýra í þetta sinn.
Hinn 2. þ.m. var silfurbrúð-
kaupsdagur þeirra Mr. og Mrs.
S. Ingimundarson, að 467 Lipton
St. hér í borginni. Heimsóttu
margir vinir þeirra þau þá um
kveldið og var þar góður mann-
fagnaður. Meiri hluti gestanna
var frá Selkirk, en þar áttu þessi
hjón heima í mörg ár, þangað til
nú fyrir fáum árum að þau fluttu
til Winnipeg. Þau voru þar mjög
vinsæl og mikils virt, eins og þau
nú eru í Winnipeg. Séra Jónas A.
Sigurðsson stýrði samsætinu, séra
Rúnólfur Marteinsson flutti bæn,
Mr. Klemens Jónasson talaði fyr-
ir minni silfurbrúðhjónana og af-
henti þeim minningargjöf frá
gestunum og fleiri vinum. Séra
Björn B. Jónsson D.D. flutti líka
ræðu. Margt fleira var þar ur»
hönd haft til skemtunar og ágæt-
ar veitingar fram bornar og var
samsætið hið ánægjulegasta.
Gift voru hinn 11. þ.jn. þau Jó-
dís Hólmfríður Sigurðsson og Ei-
ríkur Hjálmar Sigurðsson, bæði
til heimilis hér í borginni. Séra
Rúnólfur Marteinsson gifti.
Séra Ragnar E. Kvaran, prest-
ur Sambandssafnaðar 1 Winnipeg,
hefir sagt söfnuðinum upp þjón-
ustu sinni, frá næstkomandi októ-
bermánuði að telja.
í þessu tölublaði Lögbergs, birt-
ist auglýsing frá Commercial Mot-
ors, Ltd., er aðal skrifstofu hefir
á mótum James og Princess. Fé-
lag þetta, verzlar aðallega með
hina góðkunnu Chrysler bíla, auk
þess sem það hefir afarmikið á
boðstólum af brúkuðum bílum,
með sérstaklega sanngjörnu verði.
—Félag þetta hefir ráðið í þjón-
ustu sína ungan íslending, Mr.
Bowery, er um allmörg • undan-
farin ár hefir starfað í þjónustu
T. Eaton verzlunarfélagsins mikla.
Er Mr. Bowery sérlega lipur mað-
ur í umgengni, og mun verða það
sérstakt ánægjuefni, að greiða
fyrir viðskiftum íslendinga, þeg-
ar þeir þurfa að kaua nýja, eða
brúkaða bíla.
Allir fyrverandi nemendur Jóns
Bjarnasonar skóla, eru beðnir að
mæta á fundi í skólanum, á föstu-
daginn í þessari viku, klukkan 8
að kveldi.
íslenzki söngflokkurinn, Ice-
Iandic Choral Society, og hljóð-
færaflokkur sd.skóla Fyrstu lút.
kirkju, ásamt Canadian Legion
flokknum, efna til hljómleika
þriðjudagskvöldið þann 29. yfir-
standandi mánaðar. Nánar aug-
lýst í næsta blaði.
GEYSIR BAKARÍIÐ
724 Sargent Ave.
Talsími 37 476
Heildsöluverð nú á tvíbökum til
allra, sem taka 20 pund eða meira
20c. pundið, á hagldabrauði 16c.
pundið. Búðin opin til kl. 10 e.m.
Séra Rúnólfur Marteinsson
heimsótti íslendinga í Brandon um
helgina og prédikaði fyrir þá á
sunnudaginn.
Shaunavon, 11. maí 1928.
Herra ritstjóri Lögbergs!
Eg get ekki minna gert, en
senda nokkrar línur í þakklætis-
skyni fyrir síðasta Lögberg. Það
er reyndar æfinlega velkomið,
því ætíð færir það eitthvað af
fréttum og fróðleik. Ef út af
því ber, að eg fái ekki blaðið á
laugardögum, sem er þess rétti
dagur, sakna eg vinar í stað. —
Greinin “Atvik og athugasemdir”
frá Foam Lake” eftir Jón Einars-
son, er svo smellin og orðfyndnin
svo mikil, samtvinnaður sannleiki
og napurt háð, að maður getur
ekki annað en hlegið hátt; ekki
eru stóryrðin. Jón er ekkert hrif-
inn að af að vera kominn af öp-
um, og það þó hann gæti talið sig
i skyldleika við “aumingja Gor-
illu.”
Jón Einarsson ætti skilið, að
Lögberg færði honum þakklæti
fyrir ritgerðir hans í blaðið;
þakklætið mætti gjarnan vera frá
gamalli konu í Saskatchewan.
Kaupandi Lögbergs.
TIL HLLGRMSKIRKJU.
Safnað af B. Jones, Minneota:
Arngrimur Joþnson....... $1.00
J. H. Frost............... 1.00
Ella Magnússon ........... 1.00
Mrs. J. H£llgríms'>nn ... 1-00
John Williamson.......... 1.00
Mrs. Helga Josephspn .... 1.00
Mrs. K. S. Askdal ....... 1.00
Jóhanna Hallgrimsson .... 1.00
Mrs. John A. Johnson..... 1.00
Mrs. Hinrik Guðmundsson 2.00
Anna O. Anedrson ........ 1.00
Mr. og Mrs Otto Anderson 2.00
E. Hjálmar Rjörnsson ..... 1.00
Björn Björnsson .......... 1.00
P. P. Jökull ...............50
Mrs. Fr. Guðmundsson .......50
Rev. og Mrs. G. Guttormss. 2.00
Mr. og Mrs. B. Jories .... 2.00
Albert Johnson .......... 1.00
Jenny Johnson ............ 1.00
Samtals $23.00
Sam. Benson, Wpeg. .. .......1.00
Ól. Thorlacius, Dolly Bay .... 1.00
J. J. D., Árborg, Man. .... 5.00
Áður auglýst ......... $329.35
Alls nú $359.35
E.P.J.
AUGLÝSINGAR.
Föstudaginn 18. maí—Mrs. Sarah
Rowell Wright, alþjóða forseti
Women’s Christian Temerance
Union, talar í kirkju Quill Lake
safnaðar (brick kirkjunni), um
mjög áríðandi málefni.
Sunnud. 20. maí—þessar mess-
ur: Foam Lake (Bræðraborg), kl.
1, CFast Time). — Holar, kl. 4 e.h.
i|Stand.).—Ejfros, kl. 7.30 (Stan-
dard). — Sunnudagsskóli verður
stofnaður að Bræðraborg.
Þriðjud. 22. maí — Bænafundur
í kirkju Immanúelssafn. kl. 8 e.h.
Miðvikud. 23. maí — Fundur í
kirkju Quill Lake safnaðar. Rev.
W. E. Millson talar þá. Dr. Mill-
son er stórmerkur maður í Sam-
einuðu kirkjunni Canadisku. —
Guðrún Johnson og Conrad Walk-
er' flytja þar ræður fyrir hönd
ung° fólksins. Þar að auki verð-
ur mikið um ágætan söng.
Fjölmennið á allar þessar sam-
komur og guðsþjónustur.
Vinsamlegast,
Carl J. Olson.
WONDERLAND.
“Cohens and Kellys in Paris”,
kvikmyndin, sem sýnd verður á
Wonderand þrjá síðustu dagana
af þessari viku, er með afbrigðum
skemtileg. Margir kannast við
Cohens og Kellys frá kvikmynd-
um, sem áður hafa verið sýndar
í Wonderland, og þessi mynd er
alveg sérstaklega skemtileg og
ge*ur ekki hjá því farið að hún
komi áhorfendunum í gott skap.
“The Road to Romance” heitir
myndin, sem sýnd verður fyrstu
þrjá dagana af næstu viku. Aðal
persónan er Spánverji, sem fullur
af æfintýralöngun kemur til hins
nýja heims. Helztu hlutverkin
leika Marcelina Day, Roy D’Arcy,
Marc McDermot, Otto Matieson,
Cesare Cærvin, Bobby Mack og
Jules Cowles.
Félagið Sleipnir.
Ársfundur íþróttafél. “Sleipnis”,
var haldinil í Goodtemplarahús-
inu 9. apríl 1928.
Fundinn setti forseti félagsins,
Jack Snædal. Skýrði hann þá frá
því, að félagið hefði verið svo ó-
heppið, að ritari þess, hr. R. H.
Ragnar, hefði flutt úr borginni,
en vararitari Einar Haralds vissi
ekkert um bækur félagsins og
neitaði að sinna störfum í fjar-
veru aðal ritara, yrði hann því
að biðja B. ólafsson að vera rit-
ara þessa fundar.
Var þá síðasta ársfundargjörð
(sem birt var í ísl. blöðunum) les-
in og samþykt.
Næst kom skýrsla féhirðis, sem
var í sérlega góðu lagi, þar sem
félagið telur fáa meðlimi, en hef-
ir há útgjöld. Skýrslan var sam-
þykt, og fékk W. J. Jóhannsson
hrós fundarins fyrir góða og
drengilega framkomu í þarfir fé-
lagsins.
Því næst bað forseti fundinn að
láta skoðun sina í ljós, hvort nokk-
ur möguleiki væri fyrir. félagið
að halda áfram starfi á komandi
ári, sér og íslendingum til sóma.
Á fundinum voru 15 meðlimir,
sem allir létu eindregið í ljós þá
skoðun sina, að Sleipnir mætti ekki
leggja niður starf,
Þar sem svo fáir félagsmenn
voru viðstaddir, kom fundurinn
sér saman um að hyggilegra væri
að fresta að kjósa stjórnarnefnd
að sinni. Kom Iþá tillaga frá P. N.
Johnson, studd af Sigfúsi Hall-
dórs frá Höfnum, að fresta fundi
þar til í lok apríl mánaðar, og var
hún samþykt.
Var þá skipuð af forseta fimm
manna undirbúningsnefnd fyrir
þann fund; voru það: Sigfús Hall-
dórs frá Höfnum, Oskar Helga-
son, John Peterson, John Vopn-
fjord og S. Johnson..
Var þú fundi slitið.
7. maí 1928 var fundur settur
af forseta félagsins í G. T. hús-
inu á Sargent ave. 1— Fundar-
gjörð frá 9. apríl samþykt.
Var þá lagt fyrir fundinn, af
forseta Jack Snædal, hvort félags-
menn sæju sér fært að halda á-
fram starfi. Var málið rætt frá
ýmsum hliðum og sýnt fram á,
hvað þessi félagsskapur hefði
orðið Jslendingum til stórsóma 1.
júlí 1927, ásamt ýmsu öðru, er það
hefði gjört í þarfir íþrótta með-
al íslendinga hér í bæ, og jmr sem
það væri nú fyrst komið í rétt
horf, hefði bæði steyipböð og
ýms íþróttatæki, með hgakvæmu
fyrirkomulagi í G. T.'húsinu, er
allir meðlimir gætu notið.
Lét þá fundurinn eindregið
þann vilja í ljós, að halda félags-
skapnum áfram..
Tillaga kom frá C. Thorlakson,
studd af J. Vopnfjord, að félagið
héldi áfram starfi á komanda ári.
—Samþykt.
Var þá kosin stjórn félagsins,
og hlutu þessir kosningu:
Heiðurs forseti: Jóhannes Jós-
efsson; heiðurs varaforsetí, A. P.
Jóhannsson; heiðurs ritari, A. iS.
Bardal; allir endurkosnir.
Forseti: Jack iSnædal.
Varafors.: Oskar Helgason.
Gjaldk.: John Pétursson.
V-gjaldk.: Ásbj. Eggertsson.
Ritari: C. Thorlakson.
Vararit.: B. Olafsson.
Eignavörður: John Vopnfjörð.
Walter Jóhannsson gerði tillögu
um breyting á elleftu lagagrein
félagsins, studda af J. Vopnfjörð,
að í stað 18 ára aldurs komi 15
ára og yngri, greiði $1.50 ársgjald
og að aldurstakmark drengja sé
8 ára, er fái inngöngu i félagið.—
Samþykt.
Fundi slitið.
C. Thorlakson, ritari.
Verðlaun fyrir drengi, 15 ára
og yngri.
íþróttafélagið “Sleipnir” gefur
þeim félaga verðlaun, er flestum
áskrifendum safnar.
Hver keppandi verður að koma
með ekki færri en fimm nýja á-
skrifendur fyrir 2. ágúst 1928, til
stjórnarnfendar félagsins; með
hverri umbeiðni verður að fylgja
ársgjald umsækjanda, sem er fyr-
ir fullorðna $3.00 en fyrir ung-
linga $1.50.
1. verðlaun, vörur fyrir $6.00,
gefnar af Thomas Jewellery Co.
2. verðlaun, vörur fyrir $4.00,
gefnar af Sargent Bicycle Shop.
3. verðlaun, vörur fyrir $2.50,
gefnar af Bjarnason Bakery Co.
Hvetjið drengi yðar til starfs.
Stjórnin.
RO S V
Theatre“
Fimtud. Föstud. Laugard.
Mary Pickford
“MY BEST GIRL”
Annar þátturinn af
WISE CRACKERS
Mánudag og Þriðjud.
JANET GAYNOR
Stjarnan frá Sjöunda himni
GLENN TRYQN
Two Girls Wanted
Gaman
Fréttir
ÞAKKLÆTI.
Það hefir dregist lengur en
skyldi, að iþakka ollum þeim, sem
sýndu mér hjálp og hluttekningu
þegar eg varð fyrir þeirri sorg að
missa drenginn minn. Nöfn þeirra
allra get eg ekki talið, eri nokk-
urra verð eg þó að minnast per-
sónulega. Er það þá fyrst og
fremst A. S. Bardal og hans fólk,
sem í alla staði reyndist mér eins
osr bezt hefði verið mögulegt að
reynast systur sinni.
Stórkostlega gladdi það mig, að
ungir vinir drengsins míns söfn-
uðu fé til þess að kaupa fyrir blóm
og leggja á kistuna hans. Þá var
það einnig ánægjulegt — sæla í
sorginni — að leikbræður hans
báru hann til grafar og tóku ein-
læp>an þátt í athöfninni.
Þeim sem blóm gáfu votta eg
innilegt þakklæti, og eru það
bessir: Bardals fólkið, Mr. og Mrs.
F. Thordárson, systurnar Lilja og
Dora Dalman, Mr. og Mrs. H. Jó-
hannesson, nokkrir drengir, vinir
hins látna; nokkrir nágrannar,
Hudsons Bay félagið. Þá þakka
eg þeim sérstaklega, Mr. Bardal
yngra og Mrs. Hope, sem bæði
sungu vel og hjartnæmt við þetta
tækifæri. Sömuleiðis Mrs. Lilju
Dalman, sem lék á hljóðfæri.
Síðast en ekki sizt þakka eg séra
B. B. Jónssyni fyrir þá ógleyman-
legu ræðu og pau huggunarorð,
senr hann flutti.
Winnieg, 17. mai 1928.
Maria Stevenson.
* * *
Guðjón A. Stevenson,
fæddur 13. nóv. 1904,
dáinn 23. marz 1928.
Hann flaug eins og fugl úr hreiðri
í fjarlægan, nýjan heim
frá systur ,og móður sinni
—1 sál hans var mynd af þeim. |
Og sólfagurt suðrið brosti
við sjónum hins unga manns:
“í guðs nafni sælar — sælar!”
var síðasta kveðjan hans.
Hann systur og móður mundi
í mannþröng hins nýja lands:
hvert blað og hvert bréf frá honum
var bjart eins og sálin hans.
í sumar hann sagðist koma
til systur og móður heim
og segja þeim fréttir sjálfur
að sunnan — og fagna þeim.
Og heim er hann kominn—kaldur;
hún kyssir hann móðirin
i og bænhlýjar vefur hún blæjur
um blessaðan drenginn sina.
Sig. Jú’ Jóhannesson.
THE
W0NDERLAND
THEftTRE
Fimtud. Föstud. Laugard.
þessa viku,
The
Cohens & Kellys
in Paris
með GEOP.W E. SIDNEY og
J. FARRELL MacDONALD
TRAIL OF THE TIGER 4. þ.
Jh FELIX
dP THE CAT
Sérstakt gaman laugardags
eftirmiðdr»g
Mánud. Þriðjud. Miðvikud.
21., 22. og 23. maí
Ramon Novarro
í The
Road to Romance
Comedy Racing Mad og
Hodge Podge
Bráðum kemur
THE BIG PARADE
ÞJ0ÐLEGASTA
Kaffi- og Mat-söluhúsið
sem þessl borg heflr nokkurn tima
hitft lnnnn vébcinda slnnt
Fyrirtaks máltfiSir, akyr, pönr.u-
kökui, rullupyisa og þJÖÖrieknla
kaffi. — Utanbæjarmenn fft sí
avalt fyrst hressingu ft
WEVEIi CAFE, 6»2 Sargent An
Síml: B-3197.
Hooney Stevens, eigandi.
Gefið HeimiliYðar
MAJESTIC
K0LA
RENNUR
Vottur um fyrirmyndar heimili,
—kemur í veg fyrir- aögerða
kostnað. Abyrgst að þær brotna
ekki. Gerðar úr Malleable jftrni
og Keystone Copþer Steel.—
Byðga ekki. Komið og sjáið
“Majestic.”
GUNNLAUGUR SÖLVASON
í Riverton, Man., er tekinn við
umboði fyrir
De Laval Cream Separator
Company
á óákveðnu svæði, og óskar eft-
ir viðskiftum íslendinga.
Áreiðanlega beztu fatakaupin í Winnipeg
Föt tilbúin eftir máli fyrir
$30.00 Ty%r«r $35.00
English Whipcord*, Fancy V/orsted’s, Serges and Tweeds
MEN’S CLOTHES SHOP
304 Donald Strect
Aðeins 50 fet frá Portag*
A Strong, Reliable
Business School
MORE THAN 1500 ICELANDIC STUDENTS HAVE
ATTENDED THE SUCCESS BUSINESS
COLLEGE OF WINNIPEG SINCE 1909.
It will pay you again and again to train in Win-
nipeg where employment ls at its best and where you
can attend the Success Business College whose
graduates are given preference by thousands of em-
ployers and where you can step right from school
into a good position as soon as your course is finished.
The Success Business College, Winnipeg, is a strong,
reliable school—Its superlor service has resulted in
its annual enrollment greatly exceeding the combined
yearly attendance of all other Business Colleges in
the whole province of Manitoba. Open all the year.
Enroll at any time. Write for free prospectus.
BUSINESS COLLEGE, Limited
385^2 Portage Ave. — Winnipeg, Man.
■aíÆ5H5HSHSHS2SE5H5HSa53SE525H52SHSH5E5E5E5H525E5ES2SE525E5H5E5a52?
ÞÉR ÞURFIÐ
KÆLISKÁP
Nú er þægilegt að fá
hann. Tíu mánuðir til
að borga fyrir skápinn
og ísinn alt sumarið.
Spyrjið oss um
verðið.
ARCTIC.i
ICEsFUELCaim
439 PORTACE AVL
Oppcs/t* Hudton* &*y<
PHONE
42321
DRS. H. R. & H. W. TWEED
Tannlæknar.
406 Standard Bank Bldg.
Cor. Portage Ave. og Smith St.
Phone 26 545. Winnipeg
Póstpantanir. Vér önnumst nákvæmlega pantanlr með pösti, hvert sem eru meöul, patent meðul, togleður vörur, áhöld fyrir sjökra herbergi eða annað, með sama verði og í borginni. Kynni vor við Islendinga er trygg- ing fyrir sanngjörnum viðskiftum. THE SARGENT PHARMACY, ETD. Sargent & Torontio - Winnipeg Simi 23 45S
Úrvals Canadiskar varphæn-
ur. Þúsundum ungað út viku-
lega af reyndum, stjórnarvið-
urkendum tegundum. Eggja-
hanar frá 313—317 skrásettir
í útungunarvélum vorum. 100
per cent. ábyrgst að hafi útung-
unaregg. Incubators og Brood-
ers. Komið eða skrifið eftir
gefins verðskrá, til
Alex TayloFs Hatchery
362 Furby St. Wpg. Sími 33 352
CARL THORLAKSSON
úrsmiður
Ákveðið metverð sent til yðar
samdægurs. Sendið úr yðar til
aðgerða. — Hrein viðskifti
Góð afgreiðsla.
THOMAS JEWELRY CO.
666 Sargent Ave. Winnipeg
Talsími 34 152
ALLAR TEGUNDIR FLUTN-
INGA.
Nú fer að líða að vorflutning-
um og er þá tryggast og bezt að
leita til undirritaðs.
JAKOB F. BJARNASON
662 Victor St. Sími 27 292
A. SŒDAL
PAINTER and DECORATOR
Contractor
Painting, Paperhanging and j
Calsomining.
407 Victor SL Phone 34 505
Baby Chicks
Stort, hreinlegt og gott pláss
fyrir hænuunga. Frá 56 beztu teg-
undum í Manitoba komu 51,000
egg í raf-útungunarvélum vorum.
Hænuungar tilbúnir að sendast
burtu strax. Ábyrgst, að 100%
komi lifandi.
Hvít og brún Leghorns,. Mottled
Anconas:
25 50 100
$4.50 $8.50 $16.00
Barred Rocks, Single or Rose
Comb, R. I. Reds, White Wyan-
dottes, Black Minorcas, Buff Orp-
ingtons:
25 50 100
$5.00 $9.50 $18.00
IPantið samkvæmt þessari aug-
lýsingu, eða skrifið eftir verð-
lista.
Hambly Electric Hatchery.
601 Logan Ave., Winnipeg, Man.
Tals. 80 623. Heimili: 88 026
C. J0HNS0N
675 Sargent Ave.
Umboðsm. fyrir Hecla Furnace
Allar viðgerðir gerðar.
Áætlanir gerðar yður að
kostnaðarlausu.
Blómadeildin
Nafnkunna
Allar tegundir fegurstu blóma
við hvaða tœkifacri sem er,
Pantanir afgreiddar tafarlaust
Islenzka töluð í deildinni.
Hringja má upp á sunnudftg.
um B 6151.
Robinson’s Dept. Store.Winnioeg
f