Lögberg - 04.04.1929, Síða 8
Bls. 8.
LÖGBERG FIMTUDAGINN 4. APRÍL 1929.
RobínHood
PLíOUR
EF ÞÉR hafið í hyggju að byggja, þá tryggið yður hjá oss
TIMBUR
The Mc.Arthur Lumber & Fuel Co., Ltd.
Cor., PrinccBs & Higgins Avc., Winnipegr. Simi 86 619
Gerir brauðið hvítara
og léttara, en hœgt er
að fá úr öðru mjöli.
r
Ur bœnum
íslenzka Stúdentafélag-ið hetfir
ákveðið að boða til stórrar veizlu
á mánudagskveldið 8. aríl, kl. 6, í
Hudson’s Bay Banquet Hall. —
Heiðursgestir félagsins þetta kveld
verða allir íslenzkir stúdentar, er
útskrifast í vor frá hinum ýmsiu
deildum háskólans og frá kenn-
araskólanum. Aðgöngumiðar fást
hjá öllum meðlimum stjórnar-
nefndarinnar og kosta 75c.
Miðvikudaginn, 27. marz, voru
þau Harry Mills frá Regina, Sask.,
og Emily Norma Johnstone frá
Winnipeg, gefin saman í hjóna-
band, að 493 Lipton St., af séra
Rúnólfi Marteinssyni. Brúðhjón-
in lögðu af stað samdægurs til
heimilis síns í Regina.
Þeir Capt. Jóhann Jóhannson,
Jens Jónsson, og Guðjón Guð-
jónsson, frá Hecla P. O., Man.,
komu til borgarinnar í byrjun
vikunnar.
þessi hepnist eins vel og augna-
miðið á skilið, sýnist nauðsynlegt
að sem allra fyrst sé gjörð og
auglýst einhver ákvörðun um,
hver taki við því fé, sem safnað
verður í þessum tilgangi.
Vill Lögberg eða Sameiningin
takast þann starfa á hendur?
Virðingarfylst,
J. H. Frost.
Látinn er í Selkirk, Mr. Frank
Genímel, canadiskur maður, er
reit og talaði íslenzka tungu, sem
móðurmál sitt. Var hann hinn á-
gætasti drengur í hvívetna.
Dr. Tweed verður í Arborg mið-
vikudag og fimtudag, 10. og 11.
þessa mánaðar.
Messur í Nýja íslandi í apríl:
7. apr.: Geysir kl. 2 e. h., Ar-
borg, kl. 8 síðd. — 14. apr.: Betel
kl. 9.30 f.h.; Árnesi, kl. 2 e.h. og
Gimli kl. 7 síðd. — 21. apr.: að
Hanusum kl 11 árd.; Riverton kl.
2 e. h. — 28. apr.: Betel kl 9.30
árd.; Húsavík kl. 2 e. h.; Gimli
kl. 7 síðdegis S. 0.
Séra Jóhann Bjarnason messar
væntanlega í Grunnavatnsbygð og
að Lundar næsta sunnudag, þ. 7
apríl, og í Langruth og Big-Point-
bygð sunnudaginn 14. apríl. All-
ar messurnar á þeim tímum, sem
venjulegir eru á hverjum stað.—
Fólk er beðið að veita þessu eft-
irtekt og að koma til messu.
Ársfundur íþróttafél. Sleipnis,
verður haldinn í Good Templara-
húsinu, neðri salnum, á föstudag-
inn, hinn 12. apríl og byrjar kl. 8
að kveldinu. Fjölmennið.
Minneota, Minn.,
18. marz 1929.
Herra ritstjóri Lögbergs!
Greinin “Alt. Hvað?”, sem
birtist í Lögbergi 14. þ. m., er vel
og snildarlega skrifuð, og virðist
hafa vakið talsverðt athygli hér
syðra, einkum vegna uppástung-
unnar, sem höfundur greinarinn-
ar ber þar fram fyrir almennings-
álitið, sem sé, að safnaðafólk vort
skjóti saman fé í dálítinn sjóð,
og sendi hann sem sumargjöf til
trúboðans okkar, séra Octavíusar
Thorlakssonar, sem vott viður-
kenningar og þakklætis af hálfu
íslenzkrar alþýðu vestan hafs,
fyrir þá aðdáanlegu fórnfýsi og
það lofsverða stöðuglyndi, sem
hann hefir sýnt í trúboðsstarf-
seminni.
Eg vonast ekki eftir stérfé frá
neinum hér í þennan sjóð, en er
viss um að nokkuð margir vilja
“vera með”, þó máske lítið eitt
komi frá hverjum einstakling, þá
gjörir margt smátt eitt stórt, og
meira að segja, væri eg í sporum
trúboðans, mundi eg gleðjast
meira yfir gjöf, sem kæmi frá
mörgum, heldur en jafnhárri upp-
hæð frá fáum.
Mér finst að undirtektir þær,
sem málefni þetta fær, hljóti að
vera all-áreiðanlegur hitamælir
trúboðs-áhuga vestur-ísl. kirkju-
lýðs; en til þess að fjársöfnun
Einvaldsstjórnin
í Belgrade
Konungsríki Serba, Króata og
Slóvena stendur nú á alvarleg-
um tímamótum. — Stofnun júgó-
slavneska ríkisins var afleiðing
heimsstyrjaldarinnar. Ríkisstofn-
unin varð með hlezt til mikum
flýti, sem kom til af því, að þessir
þrír náskyldu þjóðflokkar fyltust
samhug, er þeir sáu, að draumur-
inn var alt í einu að rætast, er þá
hafði dreymt í marga áratugi. Það
sem tengdi þjóðflokkana saman,
var vilji þeirra allra til þess að
mynda eitt ríki, en að öðru leyti
fóru óskir þeirra sín í hverja átt-
ina og í Belgrade, Agram og Lai-
bach höfðu menn mjög ólikar
hugmyndir um, hvernig samband-
inu yrði fyrir komið. Þess vegna
reyndist það einnig örðugt, að
koma hinu nýja stjórnskipulagi á
laggirnar. Það var ekki einung-
is um margar leiðir að velja,
heldur varð einnig að talta tillit
til hinna mismunandi skoðana,
sem fram komu. — Það voru bæði
sambandssinnar og sjálfstæðis-
menn af ýmsum tegundum. Sum-
ir vildu styðja að öflugri ríkisein-
ingu undir einni allsherjar
stjórn, en aðrir vildu koma á
bandaríkjum, þar sem hvert fylki
eða ríkishluti hefði sjálfstjórn í
sínum eigin málum og þjóðarsér-
kenni öll fengi að njóta sín.
Árið 1920 var Protitj-stjórnin á
góðum vegí með að skifta Júgó-
slavíu í mörg stjórnarumdæmi, er
hvert um sig hefði talsvert sjálf-
stæði gagnvart öðrum ríkishlut-
um. Þetta hyggilega ráð strand-
aði þó vegna þess, að Pribitjevitj,
sá sem nú er meðal hinna fremstu
í flokki Agramstefnumanna, sem
berjast fyrir sambandsfylkjaskip-
aninni, Iagðist eindregið á móti
því. Að miosta kosti varð Pro-
titj að víkja frá völdum, og Pasitj
samdi stjórnskipunarlög frá 28.
júní 1921, sem hafa orðið til þess
að skerpa mljög andstæðurnar
milli Króata og Serba, og æsa
þjóðflokkana gegn hvor öðrum.
Þegar í upphafi var það ljóst,
að þetta stjórnskipulag gerði ekki
annað en auka á vandræðin og
flækja það viðfangsefni, sem úr
ætti að leysa, en allar tilraunir til
þess að ráða bót á því, fóru út um
þúfur. 0g síðan hinn örlagaríki
atburður gerðist í þinginu í Júgó-
slavíu í fyrra, er serbneskur þjóð-
arofstækismaður skaut til bana
þingmenn úr Raditj-flokknum, þá
virðist alt samkomulag á grund-
velli núverandi stjórnskipulaga
óhugsandi. Samband bænda og
demókrata, fylgismenn hins kró-
atiska bændapostula Raditj og
serbneska stjórnmálamannsins
Pribitjevitj, er komið höfðu ágætu
skipulagi á flokk sinn, lagðist ein-
huga gegn sambræðslu Serba og
Króata. Það lýsti allar ályktan- Bransby Williams.
ir þingsins ógildar og að engu Mánudagskveldið, þann 8. þ.m
hafanda og lét all-ófriðlega. -sýnir Walker leikhúsið leikinn
Korosetj-stjórnin, sem kom til l,TheUívasure,Is!Í*nc* , með Brans-
valda eftir hryðjuverkin i þ.ng- Er hann> sem kunnufrt er> einn af
inu, bauð hin álitlegustu boð til færustu og víðþektustu leikurum
samkomulags; við og við voru Breta. Það má óhætt fullyrða,
gerðar sáttatilraunir, en eigi tókst hér sé um einn allra skemtileg-
þó að nema burtu þá hættu, sem as*"a teikinn að ræða, sem sýnd-
ríkisheildinni var búin. Þó að ''“r verður á yfirstandandi árstíð,
, . . . _ , 'og er þess þvi að vænta, að leik-
menn i konungshollmn. . Belgrad |húsi8 verði þéttskipað við tœki.
kunni að hafa vonað, að takast færi sem þetta.
mætti að gera Króata ánægða
með því að taka kaþólskan SIóv-
ena í forsæti ráðuneytisins í stað
Serba, þá reyndist slíkt tálvon.
Það, sem hinum gamla og hyggna
Pasitj hafði tekist áður, nefnilega
að vinna bug á stjórnmálamönn-
um Króata og fá Raditj til þess
að snúast á sitt mál, brast Koro-
setj nú lagni og einurð til þess
að gera.
í Agram neituðu menn að sýna
nokkra undanlátsssem við þingið,
sem valið var í september 1927,
en heimtuðu, að hlutlaus stjórn
skyldi boða tiÞ'nýrra kosninga og
semja ný stjórnarskipulög í sam-
ræmi við söguleg einkaréttindi,
þ. e. a. s. hinar mismunandi kröf-
ur einstakra þjóðflokka. — Þess-
ari stefnu tjáðu þeir Matjek og
Pribitjevitj sig fylgjandi við kon-
unginn, sem ráðfærði sig við þá,
eins og aðra stjórnmálaforingja,
eftir að ráðuneyti Korosetjs var
farið frá völdum. Þeir drógu enga
dul á, að þolinmæði þeirra væri
að þrotum komin, og nú riði á því
að taka á þessu máli með fylstu
alvöru, áður en það yrði um
seinan.
Alexander konungur var í vanda
staddur. Hann gat ekki lengur
setið hjá, því að útlend og inn-
lend stjórnarerindi biðu úrlausn-
ar. í Parfís og London fylgdust
menn iheð auðsærri óró með hinni
vaxandi ringulreið í landinu. Þá
ákvað hinn júgóslaviski lands-
drottinn að láta til skarar skríða
og gera sjálfan sig að alræðis-
manni. Hann nam úr gildi stjórn-
skipunarlögin, sem höfðu leitt til
svo mikils ills fyrir hann sjálfan,
landið og þjóðina, og gaf út skip-
un um að leysa þingið upp og tók
sér vald sem einvaldsherra. Með
ströngum lagaboðum, afnámi
prentfrelsis, einkafélaga og fleiri
þess konar ráðstöfunum, tókst að
halda uppi reglu í landinu.
Alexander konungi hefir áreið1-
anlega fallið það þungt, að þurfa
að stíga þetta spor. Hann var
ætíð hinn frjálslyndasti konung-
ur og fylgjandi lýðræði og lét
jafnan lítið á sér bera. Það var
því ekkert mas út í loftið, er hann
í yfirlýsing sinni harmaði giftu-
leysi og ómegin síðasta þingsins
og staðhæfði, að hann teldi þing-
ræðið hið hagkvæmasta fyrir-
komulag um stjórnarháttu. Nú
reið á því, að taka upp nýjar
starfsaðferðir og leggja út á nýj-
ar brautir til þess að einingu rík-
isins mætti verða
skemstum tíma.
Konunginn hafði áreiðanlega
WALKER
Canada’s Flnest Theatre
Vikuna, sem endar mánudag-
inn 8. Apríl
Aukasýning miðvd. og laugd.
Síðasta sinn
BRANSBY WILLIAMS
og Lundúnafélag hans
TREASURE
ISLAND
í leiknum
eftir Robert Louis Stevenson
Úr hinni heimsfrægu bók
hans “Gulleyjan”
Aðgöngumiðar nú til sölu:
Kveld: $2, $1.50, $1, 75c., 50c.
Miðvd. og Laugd. e. h.: $1, 75c,
50c., 25c. Skattur að auki.
ekki dreymt um það fyrir 10 ár-
um, að hann, sem var af ætt
Karageorgevitj, myndi neyðast til
að fylgja fordæmi hinna ógæfu-
sömu fyrirrennara sinna af Ob-
renovitj-ættinni. Jafnvel Milan
konungur og Alexander konung-
ur, sem síðar lét lífið á óvægileg-
an hátt voru neyddir til þess
að breyta stjórnarfars tilhögun-
um. Og þó réðu þeir fyrir litlu
landi þar sem íbúarnir voru allir
af sama þjóðerni. Það var ekki
neinn hægðarleikur að stofna
lýðríki og gera alla hluta þess á-
nægða. Dæmi Austuríkis og Ung-
verjalands hefir sannað það.
Franz Jósef keisari átti oft við
svipaða erfiðleika að stríða sem
Alexander konungur á nú.
Hann styðst nú við stjórn, sem
ber einungis ábyrgð gagnvart
honum sjálfum. í þeirri stjórn
eru bæði stjórnmálamenn og aðr-
ir, bæði Serbar, Króatar og Slóv-
enar, og þó að fyrverandi stjórn-
arforsetar eins og Korosetj og
Uzunovitj séu í ráðuneytinu, er
hin eiginlega stefna þess mótuð
af herforingjilnum tveimur, sem
í því eru, Zivkovitj stjórnarfor-
seta og Hadjitj hermálaráðherra.
— Zivkovitj, sem áður var líf-
varðarforingi, er einn hinn vold-
ugasti maður í Júgóslavíp. Hann
nýtur óskerts trausts við hirðina
og í hernum. Samkomulagið milli
hans og íbúanna í Agram hefir
batnað upp á síðkastið, en því má
ekki gleyma, að Stefan Raditj
hafði hvað eftir annað krafist
þess, að herforingi yrði gerður að
forsætisráðherra.
ROSE
Thurs. Frl. Sat. (this week)
ANOTHER DOUBLE PROGRAM
< i,
IN SOUND
‘SAILORS WIVES”
wlth
MARY ASTOR,
LLOYD HUGHES
added
“BROTHERLY LOVE”
wph
KARL DANE and
GEORGE K. ARTHUR
SERIAL - - FABLE8
Mon. Tues. Wed. (next week)
Here At Last—
A picture you’ve been
waiting for
“You Mu§l See It!”
The Smashíng Screen Success
IN SOUND
“Mother KnowsBest’’
MADGE BELLAMY
LOUISE DREÍ3SER
BARRY NORTON
COMEDY - - NEW8
Continuous
Daily
2-1 1 p.m.
Telephone 87 025
Wonderland
Saturday
Show
starts I p.m.
THURSDAY, FRIDAY, SATURDAY-(THIS WEEK)
JOHNNY HINES
in
“CHINATOWN CHARLIE”
Jldded yittraclion--
Roblnson Crusoe
yllso “The Mystery Rider,” Chapter 9
MONDAY, TUESDAY, WEDNESDA Y—APRIL 8-9-10
NORMAN LEWIS
KERRY and STONE
in
“The FOREIGN LEGION”
With SYCary CNjtlan---June JXCarloule
COMEDY and COLLEGIANS
Coming—Jlpril I5th—Colleen Moore in “Lllac Time”
Frá Islandi.
Skýring
WALKER.
Herinn hefir .fylstu ástæðu til
þess að óska eftir friði og sam-
komulagi milli ríkishlutanna. —
Hann getur því ekki stutt þá
stjórnmálamenn, sem vilja fela
Serbum einum yfirstjórn ríkisins.
Hann getur eigi heldur fylgt þeim
að málum, sem viilja fullkominn
skilnað ríkishlutanna, þ. e., að
Króatar segi sig úr lögum við
Serba til þess að trygjga frið-
inn. Einhverja samkomulagsleið
verður að finna. Þá skoðun hafa
borgið á sem einnig helztu kennararnir í þjóð-
arrétti við háskólann í Belgrad,
prófessorarnir Jovanovitj og Ar-
andjelovitj.
En hingað til hefir alræðis-
stjórnin setið að völdum og eng-
inn veit, hvernig stjórnarskipun-
arlögin muni verða, hvernig það
má takast, að gera öllum til hæf-
is, hinum kröfuhörðustu Serbum,
seon heimta Serbneska yfirstjórn
í landinu, demókrötum, sem hæg-
fara eru af flokki Serba undir
forystu hins gáfaða stjórnmála-
manns Davidovitj, Slóvenum, sem
fylkja sér undir merki Korosetjs,
fylgismönnum Matjeks og Pribi-
tjevitjs og Múhameðstrúarmönn-
um undir forystu Spahos. Og
þannig mætti lengi telja. í Agram
hafa menn þó nú sem stendur
hneigst til sátta. Síðasta ráðstöf-
unin hefir gert Króata ánægða.
Forysta Serba og forréttindi hafa
fallið úr sögunni og einvalds-
stjórnin gengur jafnt yfir alla og
vekur enga andúð. Tilgangurinn
helgar meðalið. Júgóslaví berst
nú fyrir tilveru sinni Hvernig
sú barátta tekst, er framtíðarinn-
ar að skera úr. Alt er undir því
komið, að samkomulag náist milli
þjóðarbrotanna á grundvelli þjóð-
ernislegs jafnræðis.—Lesb. Mgbl.
í 5. tölubl. Lögbergs þ. á stend-
ur ritgerð, með nafninu “Viðar-
kol’, eftir Odd Oddsson, tekin úr
Eimreiðinni. Nafn greinar þess-
arar ber það með sér, að höf. er
að lýsa þar viðarkolum, brenslu
þeirra og notkun á íslandi til
forna og alt fram á síðustu öld.
Dvelur hann all-lengi við að segja
frá sláttuverkfærum, orfum, ljá-
um og denging þeirra, og ljábönd-
um, sem þrúkuð voru til að festa
ljáina með í orfunum fram undir
miðja síðustu öld, að hætt var við
þau, þegar orfhólkarnir komu. En
Mr. Oddss'on virðist ekki kunnugt
um, hvaðan þeir voru upprunnir,
heldur helzt, að þeir hafi verið
innleiddir frá útlöndum, ejns og
stendur i grein hans, í 4. dálki og
14. línu að neðan.
En Mr. Oddsson hefir máske
ekki séð eða munað eftir ritgerð,
er kom út í nokkiuð mörgum blöð-
um Lögbergs, fyrir líklega í kring
um 14 árum siðan, undir nafn-
inu: “í Breiðdal fyrir 60 árum”,
eftir skýran og merkan öldung,
Árna Sigurðsson, að Mozart,
Sask., Canada (nú nærfelt níræð-
an að aldri), er sannar það gagn-
stæða, þar sem Mr. Sigurðsson
tekur það skýrt fram í sinni
grein, að maður að nafni Arnbjörn
Sigmundsson, ættaður úr Fljóts-
dalshéraði, mesti hagleiksmaður,
bjó fyrstur manna til hólkana og
leiddi þá inn í Breiðdal á árunum
1942—43. Þessa nýbreytni tóku
svo allir upp eftir Arnbirni, og
þótti góðra gjalda vert. — Arn-
björn þessi á son búsettan hér í
Seattle borg, Þorgrím að nafni,
sem er listasmiður á tré. Veit
hann ekkert um, að eg er að nefna
hér nafn föður hans, fyrir löngu
látins. En eg þekti svo vel í ung-
dæmi mínu, suma af þessum
Arnbjamarsonum, þegar þeir voru
sveitungar mínir heima, að eg
fann hvöt hjá mér til að benda á
rétta manninn, föður þeirra
bræðra, sem fyrstur manna fann
upp orfhólkana á íslandi.i—Hand-
ritið af ritgerð Árna Sigurðsson-
ar, “í Breiðdal fyrir 60 árum”, á
Sveinn sonur hans, búsettur hér
og embættismaður við herskipa-
flotann í Bremberton. Það hefi
eg mér til stuðnings í ofanrituðu.
Hefði ritgerð þessi átt að vera
sérprentuð, svo hún glataðist
ekki, svo merkileg, sönn og vel
rituð var hún.
H. Thorláksson,
Seattle, Wash., 19. marz 1929.
Seyðisfirði, 9. marz 1929.
Hér á Seyðisifirði er nýlega
stofnuð deild í Slysavarnafélagi
íslands. Tala félaga 130. — Og
önnur deild hefir verið stofnuð á
Norðfirði. Flagatala þar 300.
Landburður af þorski um alla
Austfjörðu, 6—26 skippund á bát |
í róðri. Loðnuveiði í Hafnar-
firði nægileg til beitu.
Inflúenza magnast hér, um
þriðjungur af börnum skólans
veik og hefir honum verið lokað.
Öndvegis veðrátta um allar
sveitir austanlands.—Vísir.
The Cake Shop
702 SARGENT AVE.
Við Toronto St.
Dainty Cookies, Light Tea Cakes
fyrir bridge samkomur og tedrykkj-
ur seinni part dags. Efnið í kökum
vorum á engan sinn llka. peir, sem
koma inn með þessa auglýsingu fá
ðkeypis sýnishorn af vörum vorum.
Sérstakt fyrir Laugardag:
Raisin Pies .......15c
Apple Pies.........20c
Cherry Pies .......25c
Reykjavík, 8. febr.
Samþykt var á bæjarstjórnar-
fundi í gær, að fela borgarstjóra
að rannsaka, hvað kosta myndi að
kom upp bálstofu hér í Reykjavík.
Kirkjugarðs tæði handa bænum
er nú helzt í ráði að velja inn við
Elliðaár, á bökkunum sunnan
vegarins, þar sem skeiðvöllur
“Fáks” er nú.
“Lausar skrúfur” voru sýndar
í Iðnó í fyrsta sinn í gærkveldi.
Húsið var troðfult og áhorfendur
virtust skemta sér ágætlega. Las-
leiki mikill hefir verið meðal leik-
endanna síðustu dagana og hefir
það mjög tafið fyrir æfingum, og
hefir orðið að skifta um leikend-
ur í sumum hlutverkunum, og
kemur slíkt sér mjög illa, ekki
sízt þegar langt er liðið á æfing-
arnar.
í nótt var brotist inn í Lands-
bankann. Hafði rúða verið brot-
in að norðamverðu í húsinu og
glugganum síðan lokið upp. —
Engu fémætu var stolið, nema
tæmdur var baukur, sem Elliheim-
ilið átti þar, en sennilega hefir
ekki mikið verið í honum. — Vísr.
Electricálly
Hatched
BABY
CHICKS
"Fyrir afuröir, sem eg hefi selt
og það, sem eg á óselt hefi eg feng-
ið $125.00 ágóða af þeim $18.00, sem
eg í apríl í fyrra borgaði yður fyr-
ir 100 Barred Rock unga,” skrifar
oss Mrs. C. B. Denny, Milden, Sask.
pessi vitnisburður, eins og margir
aðrir, sem oss berast án þess við
biðjum um þá, er oss sönnun þess.
að það borgar sig vel fyrir bændur
að fá eitthvað af vorum kynbættu
varphænum. Bók, sem er 32 bls. og
með litmyndum fáið þér gefins.
Hún gefur yður allskonar upplýs-
ingar um hænsni og hvernig með
þau á að fara. 10% afsláttur á öll-
um pöntunum fyrir 1. marz.
Hamhley Windsor Hatcheries, Ltd.
601 Logan Ave., Winnipeg, Man.
BJÖRG FREDERICKSON
Teacher of Piano
Ste 8, Acadia Apts. Victor St.
Telephone: 30 154
Hænu ungar, sem verða beztu
varphænur í Canada; ábyrgst að
ungarnir komi allir lifandi. Skýrsla
um kyn unganna látin fylgja þeim.
Ýmsar tegundir, svo sem Leghorns,
Barred Rocks, Reds, Anconas, Min-
orcas, Wyandottes, Orpingtons 12
mánaða tilsögn kostnaðarlaust. Út-
ungunarvélar og áhöld til að ala
upp ungana. ókeypis verðlisti.
Alex. Taylor’s Hatchery, 362 Furby
St., Winnipeg, Man.
PRINCESS FLOWER SHOP
Laus blóm—Blóm í pottum
Blómskraut fyrir öll tækifæri
Sérstaklega fyrir jarðarfarir.
COR. SARGENT and VICTOR
Phone 36 102
RAMONA BEAUTY PARLOR
íslenzkar stúlkur og konur. Þeg-
ar þið þurfið að klippa, þvo, eða
laga hárið, eða skera eða fága
neglur, þá komið til okkar. Alt
verk ábyrgst. Sanngjarnt verð.
251 Notrc Dame Ave.
Sími: 29 409
Inga Stevenson. Adelaide
Jörundson.
Tilkynníng!
Vér tilkynnum hér að vér höfum
flutt verzlun vora, The Sargent
Tailors Ready-to-Wear frá 491 Sarg-
ent til 524 Sargent Ave. Höfum
vér nú mikið úrval af kvenfatnaði
af öllum gerðum, ásamt Fox Furs.
pvi ekki að gar%a vel til fara.
Borgið frá $2,00 til $3.00 ciður,
og afganginn samkvœmt
ástœðum. -
Sargent Tailors
and
Ladíes’ Ready-to-Wear
524 SARGENT, COR. YOUNG.
Slmi: 30 419
Fishermen’s Supplies Limited
Umboðsmenn fyrir—
Tanglefin Fiskinet, tilbúin af National Net and Twine Co.
Brownie kaðla og tvinna.
Vér höfum í Winnipeg birðir af
Tanglefin Fiskinetjum, með lögákveðinni möskvastærð.
Maitre kaðla og tvinna.
Kork og blý.
Togleður fatnað.
Komið og sjáið oss, þegar þér komið til Winnipeg, eða skrif-
is oss og vér skulum snda yður verðlista og sýnishorn.
FISHERMEN’S SUPPLIES, LTD.
401 Confederation Life Bldg. Winnipeg. Sími 28 071
A UTLEIÐ
sjónleikur í þremur þáttum eftir Sutton Wane,
leikinn af Leikfélagi Sambandssafnaðar
þriðjudaginn 9. og miðvikudaginn-10. apríl 1929
kl. 8 síðd. í fundarsal Sambandssafnaðar.
PERSÓNUR:
Anna .............. Miss Guðrún Benjamínsson
Henry.............................. Steindór Jakobsson
Prior ....................Hafsteinn Jónasson
Frú Clivenden-(Banks ..... Mrs. S. Jakobsson
Séra William Duke ............. P. S. Pálsson
Frú Midget ............. Mrs. J. Kristjánsson
Lingley ................. Ragnar Stefánsson
Scrubby ................... Ragnar E. Kvaran
Séra Frank Thomson .......... Björn Hallson
Aðgöngumiðar 50c. og fást hjá Sargent Grocery
og West End Food Market. (