Lögberg - 02.05.1929, Side 8
Bls. 8.
LÖGBERG FIMTUDAGINN 2. MAÍ 1929.
Brauð úr Robin Hood mjöli
; helst lengi mjúkt og gott.
RobinHood
PIiOUR
Ur bœnum
Veitið athygli!
Hin árlega vorsamkoma Dorkas
félags hins Fyrsta lút. saifnaðar,
verður haldin í Goodtemp'larahús-
inu, á mánudags- og þriðjudags-
kveldið, þann 6. og 7. maí næst-
komandi. Verður þar þá sýndur
sjónleikur í þrem þátturn, sem
heitir, “The Path Across the
Hill”, eftir Lillian Mortimer. Leik-
urinn fer allur fram í sömu stof-
unni; líða því aðeins fáar mínút-
ur milli þátta, og leikur þá hljóm-
sveit á meðan. — Eins og iflestum
er kunnugt, verður öllum arði af
samkomunni varið til líknar bág-
stöddum. Er þess því að vænta,
að almenningur fjölmennl svo á
leik þenna, að húsfyllir verði bæði
kveldin.
Safnið myndaspjöldunum.
Það hefir jafnan verið stefna
Macdonalds tóbaksfélagsins, híð-
an það tók til starfa í Canada ár-
ið 1858, að gefa viðskiftavinum
sinum sem bezt kaup. Lengst hef-
ir verið gengið í þessa átt, þar sem
um Macdonald’s Fine Cut Tobacco
er að ræða. IPakki af Zig-Zag
vindlingapappír fylgir hverjum
tóbakspakka, og það er enginn
betri vindlingapappír til. Þetta
þykir reykingamönnum mikið í
varið. Á nokkurs aukakostnaðar
geta þeir búið til sína eigin
vindlinga og hafa til þess ágætt
tóbak og ágætan pappír.
-Önnur vilkjör, sem þetta félag
hefir að bjóða, eru myndaspjöld-
in, sem fylgja hverjum pakka af
Macdonald’s Fine Cut og sem
skifta má fyrir spil og marga aðra
eigulega hluti.
Guðsþjónusta boðast að Poplar
Park, sd. þ. 5. maí, á vanalegum
tíma og stað. S. S. C.
í vikunni sem leið, andaðist
Mrs. Guðrún Finnbogason, 75 ára
að aldri, að heimili dóttur sinn-
ar, Mrs. J. Russell, að 284 Kens-
ington St., St. James.
Messuboð. — Séra Sigurður Ól-
afsson messar í Víðir næsta sd.,
5. maí, kl. 11 árdegis, en í Árborg
kl. 2 e. h.
Vel að verið.
í hljómlistar samkepni þeirri,
sem staðið hefir yfir í Winnipeg
undanfarandi, vann Miss Sophia
Ólaifsson frá Selkirk, Man., fyrstu
verðlaun í fiðluspili í hópi stúlkna
innan við tólf ára aldur. Vann
hún einnig fyrstu verðlaun fyrir
einsöng og upplestur vísna.
Þessi unga og efnilega stúlka,
er dóttir Mrs. A. ólafsson, er
heima á í Selkirk.
Dýravemdunarfélagið í Winni-
peg, ætlar á laugardaginn, hinn
18. maí, að afla sér pæninga með
því, að selja merki á strætum
borgarinnar, eins og nú er altítt.
Þetta félag er ekki í sambandi við
“Fedérated Budget” og hefir ekki
aðrar tekjur en tillög meðlim-
anna og það, sem góðir menn vilja
láta af hendi rakna dýrunum til
verndar og líknar. Þess er vænst
að dýravinirnir séu svo margir 1
Winnipeg, að þessari fjársöfnun
verði vel tekið.
Gjafir til Betel.
Mr. og Mrs. S. Árnason, Chicago,
í minningu um Halldór Daníels-
son, dáinn á Betel, 8. apríl $15.00
Ásta Áraason, Limeri ak,
Sask., (áheitX.......... $5.00
Innilega þakkað,
J. Jóhannesson, iféh.
675 McDermt Ave., Wpeg.
Messuboð 5. maí — Kandahar,
Wynyard, Klfros (á ensku). Allir
boðnir og velkomnir. Vinsamleg-
legast. C. J. 0.
Guðsþjónustur í prestakalli séra
H. Sigmars sunnudaginn 5. maí:
Hallson kl. 11, Brown kl. 3, og að
Mountain á ensku kl. 8 e. h. —
(Mothers’ Day Service). H. S.
Mr. Jón Runólfsson skáld, var
staddur 1 borginni um helgina.
Jóns Sigurðssónar félagið held-
ur fund, hinn 3. þ. m., kl. 8, að
heimili Mrs. P. Sivertsen, 497
Telfer Str.
Mr. Hjörtur Guðmundsson, frá
Áraes, Man., er staddur í borginni
um þessar mundir. Kom hann
hingað í kynnisiför til dætra
smna.
Solveig Pearl Stone, dóttir Mr.
og Mrs. Th. Stone, 719 Wlliam
Ave., hér í bænum. lézt á þriðju-
daginn í þessari viku. Jarðarför-
in fer fram frá heimilinu kl. 3,30
á föstudaginn.
SÉRA EINAR VIGFÚSSON
látinn.
Síðastliðinn þriðjudagsmargun,
andaðist að heimi’li dóttur sinnar
og tengdasonar, Mr. og Mrs. Hall-
dór Johnson, 217 Spence St. hér í
borginni, prestaöldungurinn, séra
Einar Vigfússon, fyrrum prestur
að Desjarmýri, í Borgarfirði,
eystra, 78 ára að aldri. Jarðar-
förin fer fram frá Fyrstu lútersku
kirkju klukkan 1.30 e.h. á föstu-
daginn þann 3 maí.
Walker Leikhúsið.
“The Desert Song.”
Hundrað radda söngflokkur, sem
kemur til Winnipeg á mánudag-
inn, hinn 20. þ.m. og syngur þar
á hverju kveldi alla vikuna, hefir
lengi verið í Los Angeles og San-
Francisco og haft þar fjölda af
hljómleikjum, sem allir hafa ver-
ið afar vel sóttir. Þaðan fór söng-
flokkurinn til Vancouver og nú
er hann kominn til Winnipeg, og
verður það síðasta borgin í Can-
ada, þar sem hann syngur, því
þaðan fer hann til St. Paul og
Minneapolis og þaðan til New
York. Fólk getur nú þegar skrif-
að leikhúsinu og pantað sæti fyr-
ir hvert kveldið sem er.
add Locals
Kvenvélagið Björk, að Lundar,
ætlar að halda sína árlegu útsölu
10. maí í samkomuhúsinu að Lund-
ar. Verður þar selt fatnaður, út-
saumur, og kaffi allan daginn.
Þann 25. þ.m. lézt að heimili
sonar síns, Sigtryggs Jónassonar,
að Gimili, ekkjan Steinunn Gríms-
dóttir Stefánsson, 81 árs að aldri.
Steiunnn heitin var ekkja Jónas-
ar heitins Stetfánssonar, er and-
aðist fyrir 17 árum síðan. Þau
hjón voru í fyrsta hópnum, sem
kom til Gimli, haustið 1875, höfðu
árinu áður komið vestur um haf
og sezt að við Kinmount, Ont.
Steinunn heitin var fædd á
Brettingsstöðum í Flateyjardal í
Þingeyjarsýslu, 8. okt. 1847. Ólst
hún þar upp hjá móðurforeldrum
sínum þar til hún var 8 ára, að
hún fluttist til föður síns, Gríms
bónda Grímssonar á Egg í Skaga-
firði. Var hún þar til heimilis
unz hún giftist Jónasi heitnum.
Bjuggu þau eitt ár á Skinnþúfu
þar til þau fluttust vestur um haf
árið 1874.
Steinunni heitna lifa fjögur
börn: Sigtryggur Jónasson, Gimli;
Mrs. Pétur Féldsted, í California;
Mrs. A. N. Sommerville, í St. Vit-
al, og Mrs. V. Abrahamsson, Brom-
field, Sask. Fjögur elztu böra
þeirra hjóna dóu í æsku.
Steinunn heitin var jarðsungin
laugardaginn 27. apríl, frá kirkju
sambandssafnaðar á Gimli; séra
Rögnv. Pétursson jarðsöng, á-
samt séra Þorgeiri Jónssyni.
Þakkarorð.
Öllum þeim, er sýndu okkur
hluttekning með blómagjölfum,
samhygðarskeytum, eða með því,
að vera viðstaddir jarðarför okk-
ar elskaða eiginmanns og föður,
Egils J. Thorkelssonar, vottum
við okkar innilegasta þakklæti.
Mrs. Ragnhildur Thorkelsson
og fjölskylda.
Árnes PjO., Man.
TIL SÖLU
eða leigU', 230 ekrur lands, 4% mílu
ustur af Árborg. Góðar bygging-
ar og góður brunnur. Býlið liggur
eina mílu frá skóla.
705 Home St., Winnieg.
Upplýsingar veitir
G. JOHNSON,
Sími: 27 257.
Kveðja
Samsæti var haldið að heimili
Víglundar Vigfússonar í Thing-
vallabygð, í tilefni af því, að þau
hjón og sonur þeirra, Þorsteinn,
eru að flytja burt úr bygð vorri
til Winnipeg
Þau hjón komu til Vesturheims
árið 1900, og staðnæmdust í Sel-
kirk, en eftir þriggja ára veru
þar, komu þau hingað í bygð. —
Þau bjuggu síðast á íslandi á
Útey í Laugardal, og 'fluttu það-
an til Vesturheims. Víglundur er
fæddur á Syðra Langholti í Hruna
mannahreppi árið 1863, sonur
Vigfúsar Guðmundlssonar í Hlíð
og Guðbjargar Þorsteinsdóttur
jarðyrkjumanns í Úthlíð í Bisk-
upstungum. En kona hans er Sig-
ríður Jónsdóttir frá Breiðabóls-
stað í Reykholtsdal; mér er ekki
kunnugt um fæðingardag.
Mér er í fersku minni fyrsta ár
þessara hjóna hér. Eg man það
glögt, er þau voru að mynda sitt
heimili í amerískum jarðvegi.
Hvað þau voru örugg í trú sinni
á farsæla framtíð í sínu nýja
kjörlandi, hvað þau voru lífsglöð
mitt í erfiðleikunum. Og er þau
keyrðu um bygðina á uxapari til
að heimsækja nágranna, eða fóru
fótgangandii, sem oftar var, þá
var fyrsta umtalsefnið “ísland”,
mér er nær að segja heim, eða
heima. Þetta leyndardómsfulla
orð, “heim”, sem aldrei deyr á
vörum landnámsmanna; þetta hér
að framan er veganesti, sem aldr-
ei verður metið til fjár.
Samsætið fór vel fram, og var
hið ánægjulegasta í alla staði.
Tölumennimir voru: Guðg. Egg-
ertsson, Kristján Jónsson, Ás-
mundur Loptsson, Mark. Bjarna-
son, og Björn Hinriksson. Einnig
flutti Kristján vel ort kvæði til
heiðursgestanna. Var svo skemt
með söng, sem flestir tóku þátt í,
en Guðrún Kristjánsson spilaði;
EF ÞÉR hafið í hyggja að byggja, þá tryggið yður hjá oss
TIMBUR
The Mc.Arthur Lumber& Fuel Co., Ltd.
Cor., Princcss & Higgins Avc., Winnipcg. Simi 86 619
einnig sungu þær sænskt lag,
Mrs. Kr. Jónsson og dóttir þeirra,
sem var mjög ánægjulegt á að
hlýða; en að síðustu tekið hönd-
um saman af öllum öllum og sung-
ið “Hvað er svo glatt, sem góðra
vina fundur”. Þakkaði Ásm. Lopt-
son gestum fyrir hönd heiðurs-
gestanna. Fóru svo allir að týgja
sig heim, eftir skemtilega stund.
— Það er einlæg ósk mín að alt
mætti verða þessu fólki, sem nú
er að fara úr bygð vorri, að láni
á þeirra ófaraa æfistigi.
Halldór B. Jónsson.
Frá Islandi
Akureyri, 15. marz.
Nýlega hefir rannsónardómar-
inn, Halldór Júllíusson, kveðið upp
dóm í Hnífdalsmálinu. Er Hálf-
dán Hálif'dánarson dæmdur í átta
mánaða fangelsi, Eggert Halldórs
son í sex mán. fangelsi og Halld.
Hálfdánarson í þriggja mánaða
fengélsi. — Dómnum hefir þegar
verið áfrýjað til hæstaréttar.
Kjarnanýræktina á nú að leigja
út til næstu f jögra ára í 2—5 dag-
sláttu spildum. Afgjald af dag-
sláttu 8—20 kr. eftir gæðum.
Friðrik Magnússon, Kristjáns-
sonar ráðherra, hefir nýlega lok-
ið prócfi í lögum við háskólann,
með góðri 1. eink.
Á sunnudaginn mistu þau hjón
Snæbjörn Þorleifsson bílstjóri og
kona hans unga dóttur sína, Erlu
að na/fni. — Þá er 8. þ. m. látinn
að Þríhyrningi í Skriðuhreppi,
Páll Guðmundsson, ungur Tnaður,
sonur hjónanna þar. — Þá er og
nýlegða látinn á Blönduósi Böðv-
ar Þorláksson póstafgreiðslumað-
ur.
Eldur kom upp í morgun í sölu-
búð Stefáns ó. Sigurðssonar kon-
súls. Brunaiiðið kom tímanlega
á vettvang og tókst að bjarga
húsinu, en Ibúðin brann að innan
og vörur og húsgögn, er þar voru
geymd, eyðilagðist. Húsið vá-
tiygt, annað ekki. — íslendingur.
PRINCESS FLOWER SHOP
Laus blóm—Blóm í pottum
Blðmskraut fyrir öll tækifæri
Sérstaklega fyrir jarðarfarir.
COR. SARGENT and VICTOR
Phone 36 102
Ferðist með
Stœrstu
Canada Skipum
Canadian Pacific skipin eru hin
stærstu, hraðskreiðustu og nýjustu
skip, sem sigla milli Canada og
annara landa. Veljið þau, ef þér
farið til Islands, eða annara landa 1
Evrðpu, eða ef þér hjálpið frænd-
um og vinum til að koma frá ætt-
landinu.
Ágætur viðurgerningur og allur að-
búnaður veldur því, að þúsundir
manna kjðsa þau öðrum fremur.
Tíðar og reglulegar siglingar
THIRD CLASS
$122.50
TOURIST THIRD CABIN
$132.50
Milli Canada og Reykjavíkur
Séð um vegabréf og annað, sem
þér þurfið við.
Allar sérstakar upplýisjngar veitir
W. C. CASEY, aðalumboðsmaður.
C. P. R. Bldg., Main & Portage,
Winnipeg.
eða
H. S. BARDAL,
894 Sherbrook St., Winnipeg.
Canadian
PaclSic
Steamships
Dorkas Félag Fyrsta Lúterska Safnaðar
Leikur
“THE PATH ACROSS THE HILL”
I GOODTEMPLARAHÚSINU 6. og 7. MAl
Leikendur í þeirri röð, sem þeir koma fram:
Zuzu, negra vinnukona............ Mrs. C. B. Howden
Ruth Conrad, skólakennari.... ... Mrs. Albert Wathne
Samuel Crawford, afi Ruth........Mr. Chas. B. Howden.
Walter Conrad, hróðir Ruth .......... Mr. Sig. Bardal
Lutie, skólasystir Walters, .......Miss Lena Folson
Mrs. Mary Davis, amma Lutie...Miss Dora Hendrickson
Robert Post, aðkomumaður.......... Mr. Thor. Melsted
Dr. Jimmie Reed, unnusti Ru......... Mr. Carl Preece
FIo Gray, frænka Ruth ............ Miss Alla Johnson
Salamander, brúðgumi Zuzu ....... Mr. Kjartan Cryer
Aðgangur 50c. Byrjar kl. 8.30
Aðalfundur fiskisamlagsins
Manitba Co-operative Fisheries, Ltd.
verður haldin í Goodtemplara hús.inu, á horni
Sargent Ave. og McGee St., þann 15. maí 1929,
og hefst kl. 2 síðdegis. — Funarefni: Kosn-
ing framkvæmdarstjórnar, og lagt fram yfirlit
yfir fjárhag félagsins, ásamt nýjum málum, er
upp kunna að koma.
Aríðandi, að meðlimir fjölmennil
Winnipeg, 29. apríl, 1929,
G. F. JÓNASSON,
f ramkvæmdarst j óri.
Skrifstofusími: 24 142.
✓
MACDONALD’S
Eirie Cut
Bezta tóbak í heimi fyrir þá, sem
búa til sína eigin vindlinga.
Gefinn með
ZIG-ZAG
pakki af vindlingapappír.
HALDIÐ SAMAN MYNDASEÐLUNUM
Continuous
Daily
2-1 1 p.m.
Telephone 87 02S
Wonderland
Saturday
Show
starts I p.m.
DOUBLE PROGRAMME—THUR.-FRI.-SAT,—MaY 2-3-4
UISLE oS LOST MEN”
with TOM SANTSCHI, ALLEN CONNOR
JAMES MARCUS a n d PATSY O’LEARY
TIM McCOY In
‘ ‘The AD VENTURER”
TWO BIG FEATURES-Mon.. Tues., Wed.-MAY 6-7-8
“The SCARLET
LADY” featuring |
LYA de PUTTI with
DON ALVARADO, WARNER OLAND
ADDED FEATUAE
CHARLES [Buddyl ROGERS
and MARIAN NIXON In
“RED LIPS”
wíth HAYDEN STEVENSON and
HUGH TREVOR
Also “THE COLLEGIANS’
ROSE
Thurs. Fri. Sat. (this week)
Another Big SOUND Special
“THE AIR
CIRCUS”
with
SUE CAROL
DAVID ROLLINS
LOUISE DRESSER
“Terrible People” Last
Chapter
Co'medy - - Fables
Mon. Tues. Wed. (next week)
NORMA TALMADGE
íí i
m
THE DOVE”
with SOUND
A Wonderful story full of
Human Interest
Comedy
News
INGA STEPHANSON
er áður starfaði við Ramona
Beauty Parlor, er nú í þjónustu
GRACE’S BEAUTY SHOPPE
og æskir þar eftir heimsókn
sinna fyrri viðskiftavina. Alt
verk ábyrgst. Sanngjarnt verð.
29 Steele Block
360 Portage Ave. Sími 88 443
Hænu ungar, sem verða beztu
varphænur I Canada; ábyrgst að
ungarnir koml allir lifandi. Skýrsla
um kyn unganna látin fylgja þeim.
Ýmsar tegundir, svo sem Leghorns,
Barred Rocks, Reds, Anconas, Min-
orcas, Wyandottes, Orpingtons 12
mánaða tilsögn kostnaðarlaust. Út-
ungunarvélar og áhöld til að ala
upp ungana. ókeypis verðlisti.
Alex. Taylor’s Hatchery, 362 Furby
St., Winnipeg, Man.
Elecirically
Hátched
BABY
CHICKS
“Fyrir afurðir, sem eg hefi selt
og það, sem eg á óselt hefi eg feng-
ið $125.00 ágðða af þeim $18.00, sem
eg f aprfl f fyrra borgaði yður fyr-
ir 100 Barred Rock unga,” skrifar
oss Mrs. C. B. Denny, Milden, Sask.
pessi vitnisburður, eins og margir
aðrir, sem oss berast án þess við
biðjum um þá, er oss sönnun þess.
að það borgar sig vel fyrir bændur
að fá eitthvað af vorum kynbættu
varphænum. Bðk, sem er 32 bls. og
með litmyndum fáið þér gefins.
Hún gefur yður allskonar upplýs-
ingar um hænsni og hvernig með
þau á að fara. 10% afsláttur á öll-
um pöntunum fyrir 1. marz.
Hamhley Windsor Hatcheries, Ltd.
601 Logan Ave., Winnipeg, Man.
100 herbergi,
með eða án baðs.
Sanngjarnt
verð.
SEYMOUR HOTEL
Sími: 28 411
Björt og rúmgóð setustofa.
Market og King Street,
C. G. Hutchison, eigandi.
Winnipeg - Manitoba
The Cake Shop
70* SARGENT AVE.
Við Toronto St.
Dainty Cookies, Light Tea Cakes
fyrir bridge samkomur og tedrykkj-
ur seinni part dags. Efnið f kökum
vorum á engan sinn lfka. Peir, sem
koma inn með þessa auglýsingu fá
ðkeypis sýnishorn af vörum vorum.
Sérstakt fyrir Laugardag:
Raisin Pies .......15c
Appie Pies..........20c
Cherry Pies ...... .25c
SAFETY TAXICAB C0. LTD.
Beztu bílar í voröldiuni
Til taks dag og nótt. Sann-
gjarnt verð. Sími, 23 309.
Afgreiðsla: Léland Hotel.
N. CHARACK, forstjóri.
TIMBUR
Allur efniviður, þak-
spónn, sérstakar hurðir
og gluggar, járnvara o. s.
frv., fyrir nýtt heimili eða
til endurbóta á núverandi
heimili yðar. Fæst áreið-
anlega með sanngjörnu
verði og tafarlaust í
þessum eina stað. Látið
oss gera áætlun um það
sem þér þurtfið.
,^nnipegpajnt
áGlaSS C&mlted
179 Notre Dame East
Simi 27 391
EIGENDUR NÝRRA HEIMILA!
Það kostar ekkert og oss er áncegja að láta það úti.
ÞEGAR ÞÉR HUGSIÐ UM AÐ BYGGJA NÝTT HEIMILI
þá gætið þess að raforkutækin fullnægi kröfum nútímans og fram-
tíðarinnar.
FÆRIÐ YÐUR í NYT VORA MIKLU
REYNSLU.
c^c ^
Gerið virlagningu samkvæmt nýjustu uppfynd-
ingum. Fylgið Red Seal víringar aðferð.
Sími: 846 715
WINNIPEG ELECTRIC C0MPANY
“Your Guarantee of Good Service.”
Fishermen’s Supplies Limited
Umboðsmenn fyrir— *
Tanglefin Fiskinet, tilbúin af National Net and Twine Co.
Brownie kaðla og tvinna.
Vér höfum í Winnipeg birðir af
Tanglefin Fiskinetjum, með lðgákveðinni möskvastærð.
Maitre kaðla og tvinna.
Kork og blý.
Togleður fatnað.
Komið og sjáið oss, þegar þér komið til Winnipeg, eða skrif-
is oss og vér skulum snda yður verðlista og sýnishorn.
FISHERMEN’S SUPPLIES, LTD.
401 Confederation Life Bldg. Winnipeg. Sími 28 071