Lögberg - 12.09.1929, Page 1
PHONE: 86 311
Seven Lines
tori X
uw2e'
a
i>«T no
c°r* *
For
Service
and Satisfaction
lil
42 ARGANGUR
I
WINMIPEG, MAN.t FIMTUDAGINN 12. SEPTEMBER 1929
NÚMER 37
/poc
u
o
(3
Helztu heims-fréttir
o<=i)
Canada
Þrátt fyrir það, þó uppskera
verði vafalaust heldur lítil í þetta
sinn í Manitoba og hinum Sléttu-
fylkjunum, þá er ekki um neinn
verulegan uppskerubrest að ræða,
og hún reynist viða meiri og betri
heldur en líkindi eru til eftir alla
þá þurkatíð, sem gengið hefir svo
að segja í alt sumar. Hveiti, sem
búið er að þreskja, og þresking er
langt komin í Manitoba, hefir
reynst vel og kostnaður við upp-
skeruna er lítill, því stráið er lít-
ið og verðið er hátt, og eru því
líkur til, að þetta verði sæmilega
arðsamt ár fyrir bændurna.
* * *
í mörg undanfarin ár hefir
blaðið "Manitoba Free Press”, um
þetta leyti árs, gefið út áætlun
um það, hve uppskeran mundi
verða mikil í Sléttufylkjunum
þremur, og hefir sú áætlun venju-
lega farið nærri lagi. Er nú þessi
áætlun nýkomin út og eftir henni
að dæma, verður hveitiuppskeran
nálega helmingi minni heldur en í
fyrra, en þess er að geta, að þá
var hún miklu meiri en í meðal-
lagi. 'Sé þar á móti tekið meðal-
tal af uppskerunni sex síðustu ár-
in, kemur í ljós, að í þetta sinn
verður hveitiuppskeran í Manito-
ba 2.3 mælum minni, í Saskatche-
wan 6.1 og í Alberta 9.2 mælum
minni en meðal uppskera síðast-
liðin sex árin. Áætlun þessi ger-
ir ráð fyrir, að í Manitoba verði
hveitiuppskeran að jafnaði 14
mælar af ekru, Saskatchewan 11
og Alberta 11%
í fljótu bragði sýnist þetta ekki
nærri álitlegt, en þó mun svo
reynast, að bændurnir hafi sæmi-
lega góðan arð af uppskeru sinni
á þessu ári, yfirleitt, og kannske
eins mikinn eins og í fyrra, þegar
uppskeran var óvanalega mikil.
Kemur þetta til af því, að hveitið
er að miklu leyti óskemt í þetta
sinn og reynist ágætlega, verðið
er hátt og kostnaður inn við upp-
skeruna miklu minni en vanalega
vegna þess hve stráið er lítið. Tíð-
in hefir líka alt til þessa verið
hentug.
Hafra uppskera verður óvana-
lega lítil, væntanlega ekki nema
15—20 mælar af ekru, og einnig
heldur lítil uppskera af byggi,
rúg og f lax.
Hveitisamlagið hefir líka gefið
út áætlun um uppskeruna, og er
þar gert ráð fyrir, að hveitiupp-
skeran verði nokkru meiri heldur
en Free Press áælar, en önnur
uppskera heldur minni. En mun-
urinn er ekki mjög miklll.
* * *
Það er haft eftir forsætisráð
herra Ontario-fylkis, Mr. Fergu-
son, að kol séu fyrir skömmu fund-
in í norðanverðu fylkinu, einar 90
mílur norðan við Cochrane, ekki
all-langt frá James Bay. Er álit-
ið, að þarna sé mikið af sæmilega
góðum kolum, og kemur það sér
Vel fyrir Ontario-fylki, sem alt til
þessa hefir verið kolalaust, eins
og Manitoba er enn, en vel getur
verið, að þau finnist líka hér
norður í fylkinu, og er það talið
«kki ólífdeg.
* * *
Á keyrsluvegum í Manitoba, ut-
an Winnipeg borgar, hafa 27
manneskjur mist lífið af bílslys-
um á þeim átta mánuðum, sem
liðnir eru af árinu 1929. Mikið
kefir þó verið unnið að því að
k>æta vegina og gera þá hættu-
minni, meðal annars með því að
taka af þeim skarpar bugður og
Fera þá breiðari. Nákvæmar
akýrslur hefir lögreglan yfir öll
Þessi slys og sýna þær, að þau eru
ávalt keyrurunum að kenna. Er
■°rsökin lang-oftast sú, að of hart
er keyrt. Hefir nú stjórnin haf-
lst handa að kenna fólki fyrst og
fremst að þekkja keyrslulögin og
koma því í skilning um, að það
yerði að fylgja þeim. 'Og verður
^ér eftir stranglega gengið eftir
Því, að keyrslulögunum sé fylgt.
En það eru ekki aðeins þessar
o<-->rw------------>rw----->n*->r>^7
sjötíu þúsundir manna í Manito-
ba, sem bíla keyra, sem hér hafa
eitthvað að læra, heldur líka
fólkið, sem fer fógangandi um
vegina, því það gætir sín oft mjög
illa.
* * *
Síðan 28. júlí hefir hin hættu-
lega máttleysisveiki (infantile
paralysis)], sem legst á börn og|
unglinga sérstaklega, gengið í
Ottawa, og höfðu á laugardaginn
var veikst alls 65. Á föstudaginn
veiktust tíu og hafa aldrei veikst
svo margir á einum degi, þar í
borginni, síðan veikinnar varð
þar vart.
* * *
Bæjarstjórnarkosningar í Win-
nipeg fara fram 22. nóvember, en
útnefningardagurinn er 8. nóvem-
ber. Verður kosinn borgarstjóri
og þrír borgarráðsmenn í hverri
kjördeild, en þær eru fjórar, eins
og kunnugt er. Hverjír kunna að
verða ií kjöri, vita menn ekki enn,
en sjálfsagt má gera ráð fyrir,
að þeir, sem nú skipa þessi em-
bætti, en sem hafa útendað sitt
kjörtímabil á þessu ári, verði
flestir eða allir í kjöri, ef v að
vanda lætur.
* * •
Fylkisþingið í Saskatchewan
var sett hinn 4. þ. m., eins og get-
ið var um í síðasta blaði að til
stæði. Var því slitið á föstudag-
inn, 6. sept., og stóð því að eins
þrjá daga. Fimm smávægileg
lagafrumvörp voru samþykt, en
þing liggur, var það að fella
stjórnina með vantraustsyfirlýs-
ingu, sem samþykt var með 34 at-
kvæðum gegn 27. Var einn af
þingmönnum frjálslynda flokksins
ekki viðstaddur, og einn af hinum
sameinuðu mótstöðuflokkum var
þingforseti, og greiddi því ekki
atkvæði. Á föstudaginn lýsti Mr.
Gardiner yfir því, að hann hefði
samkvæmt yfirlýstum vilja meiri-
hluta þingsins, sagt af sér fyrir
sína hönd og stjórnarinnar í heild
og jafnframt ráðið fylkisstjóran-
um til að fela Dr. Anderson að
mynda nýja stjórn. Mundi Dr.
Anderson verða tilbúinn að taka
við á mánudaginn og héldi því
gamla stjórnin áfram þangað til.
Á mánudaginn, hinn 9. sept.,
fóru stjórnarskiftin fram. Lagði
hinn nýi forsætisráðherra, Dr. J.
T. M. Anderson, þá af sinn em-
bættiseið og ráðherrar hans all-
ir, og er annarsstaðar í blaðinu
skýrt frá hverjir þeir eru. Sinn
fyrsta stjórnarráðsfund hélt nýja
stjórnin á þriðjudaginn.
* *
Hinir nýju ráðherrar í Saskat-
chewan, þurfa að leita endurkosn-
ínga í kjördæmum sínum, eins og
jafnai^ er menn takast ráðherra-
stöður á hendur. Fara þær auka-
kosnjngar fram í Regina, Moose
Jaw, Saskatoon og Lumsden, hinn
7. október, en í Tisdale, Mooso-
min og Yorkton hinn 14. október,
en þetta eru kjördæmin, þar sem
hinir nýju ráðherrar eiga þing-
sæti. Þingið verður ekki kallað
saman fyr en eftir nýár, væntan-
lega snemma í janúar.
William Green, forseti hinna
Sameinuðu verkamannafélaga í
Bandaríkjunum, lét þess getið í
ræðu, sem hann fyrir skömmu hélt
í Baltimore, að það, sem verka-
mannafélögin mundu sérstaklega
beita sér fyrir þetta árið, væri það
að koma á fimm daga vinnuviku
í öllum verksmiðjum.
* * *
Mrs. Charles A. Lindberg er
búin að læra það af manni sínum,
að fljúga einsömul.
* * *
Henry Ford hefir keiypt guíl-
námurnar í Orange County, Va.
* * *
Árið 1929 voru 3,220,000 nýir
bílar seldir í Bandaríkjunum.
* # *
Ný brú yfir Lake Champlain,
milli Crown Point, N. Y. og Chim-
ney Point, Vermont, sem kostað
hefir eina miljón dollara, var vígð
og tekin til afnota 26. ágúst.
Bretland
Þurkar óvanalega miklir hafa
gengið á Englandi í sumar, og
reyndar víðar í Evrópu, ekki síð-
ur en hér í Canada. Um helgina
sem leið komu þær fréttir frá Lon-
don, að þar hefði alls ekki rignt
í tvær vikur og líti því út fyrir
vatnsskort, því þar hefir nú all-
lengi verið svo vatnslítið, að lög-
reglustjórnin hefir bannað að
nota vatn til að vökva garða og
grasfleti og hefir verið óttast, að
jafnvel nejizluvatn mundl ek'ki
verða nægilegt. Það sem af er
þessu ári, hafa verið 175 þurkdag-
aðal verkið, sem eftir þetta auka- ar 1 London, sem er óvanalega
mikið þar. Á ýmsum öðrum stöð-
um er vatnsforðinn líka orðinn
mjög lítill, og er það því sparað
alt sem hægt er.
* * #
Enskur flugmaður, H. R. D.
Waghorn að nafni, hefir fyrir
jj skömu flogið hraðara en dæmi eru
til að áður hafi gert verið, eða
með þeim hraða, er svarar 329
unílum á klukustund, á 217 mílna
flugi.
síðan á stríðsárunum. Hafa menn
hugsað sér, að öllum ríkjum í
Norðurálfunni væri það fyrir
beztu, að mynda með sér eitt alls-
herjar samband í líkingu við það,
sem á sér stað með Bandaríkin í
Ameríku. Sendiherra Frakka,
Paul Claudel, hélt fyrir skömmu
ræðu í West Point, N. Y., þar sem
hann mintist á þessa hugmynd,
og sagði meðal annars, að þessi
hugmynd ætti sér nú ekki aðeins
stað í hugum einhverra draum-
óramanna, heldur væru nú marg-
ir hinir helztu iðjuhöldar og við-
skiftaleiðtogar, alvarlega farnir
að hugsa um þetta mál og að
Bandaríkin hefðu kent Norður-
álfumönnum, að skilja það, að iðn-
aður og viðskifti væru sterkari en
her og floti.
Hvaðanæfa
Bandaríkin
Tollagafrumvarpið, elns og meiri
hluti fjármálanefndarinnar hefir
frá því gengið, hefir nú verið gef-
ið út. Búist er við, að verði það
samþykt, veiti það Bandaríkjun-
um $605,000,000 tekjur.
* • •
Hinn 3. þ.m. dó William E.
Denver, borgarstjóri í Chicago ár-
Það eru alt af einhverjir, sem
langar til að breyta tímatalinu.
Það ero Rússar í þetta sinn, sem
eru að ráðgera það. Er gert ráð
fyrir að skifta árinu í 12 mánuði,
eins og er, en hafa aðeins 30 daga
í hverjum mánuðí, jafnmarga í
þeim öllum. verða þá 360 dagar í
tólf mánuðum, en þessir fimm
dagar, sem þá eru eftir af árinu,
eða sex, þegar hlaupár er, eiga að
vera nokkurs konar aukadagar,
eða frídagar. Mánuðinum vilja
þeir svo skifta í fimm vikur, og
verða þá 25 vinnudagar í hverjum
mánuði og fimm hvíldardagar.
“Sex daga skalt þú verk þitt
vinna”, o.s.frv., á ekki lengur að
takast til greina, ef þeta nær fram
að ganga. En það er ekki talið
líklegt, að þessi tillaga fái mikinn
byr, nema þá kannske á Rúss-
landi.
* * *
Graf Zeppelin, þýzka loftskipið
mikla og fræga, kom hinn 4. þ. m.
aftur heim til Friedrichshafen,
efir að hafa flogið umhverfis
jörðina á 20 dögum, 7 klukku-
stundum og 16 mínútum. Það var
14. ágúst, sem loftskipið lagði á
stað frá Friedrichshafen áleiðis
til Tokyo í Japan, með 60 manns,
40 skipverja og 20 farþega. Það-
an flaug til LoS Angeles, þá til
Lakehurst og svo heim, eða alla
leiðina í fjórum áföngum. Nokkra
viðdvöl hafði það á öllum viðkomu-
stöðunum. Gekk ferðin alla leið
algerlega slysalaust og má óhætt
in 1923 til 1927. Hann var 67 segja, að hún hafi hepnast ágæt-
lega að öllu leyti. Sjálfsagt er
þetta þýzka loftskip það mesta
loftskip sem enn er til, en nú er
verið að byggja tvö á Englandi,
sem eiga að verða enn meiri og
taka fleira fólk og meiri flutn-
ing, og er sagt, að ekki verði langt
að bíða að þau verði fullgerð.
ara.
* * ♦
Henry J. Brown . hefir hlotið
fimm þúsund dollara verðlaun
fyrir að vinna flugsamkepni milli
Los Angeles og Cleveland án þess
að koma nokkurs staðar við á leið-
inni. Hann flaug þessa leið á 13
klukkustundmum og 18 mínútum.
Hann á heima í Gleveland og
stundar þá atvinnu að flytja póst
í flugvélum.
“Bandaríki Norðurálfunnar” er
hugmynd, sem margir hafa hugs-
að mikði ámu789ö$....... 798$0
Tryggvi Björnsson
í þjóðsögam, vestrænum og
austrænum, er oft sagt frá því,
að þegar ungir menn fóru fyrst
að heiman frá sér, í gæfuleitina,
þá var þeim sagt frá tveim veg-
um.
Annar var auðfarinn, því þar
voru engar hættur né erfiðleikar
á leið. Hinn var illræmdur fyrir
ljón og önnur óargadýr, er á hon-
um voru, auk þess sem hann var
ýmsum öðrum hættum alsettur.
Én það brást ekki, ef um hug-
stóran mann ræddi, að hann kaus
síðari veginn.
Og það var fyrir handan hann,
að yfirstignum þrautunum, að
hann fann það, sem hann óskaði
eftir, og það í mikið dýrðlegri
mynd, en hann hafði dreymt um.
Mér flugu i hug þessar þjóð-
sagnir, þegar eg las um Tryggva
Björnson, í Lögbergi um daginn,
að hvernig sem hann var varaður
við New York borg, þá fór hann
þangað samt.
Það var líka þá sagt, að þessir
þjóðsagna-drengir fengju ráð og
hjálp úr heimahúsunum, þeirra,
sem bezt unnu þeim, og það var
svo að sjá, sem að þessum unga
manni hafi orðið þau útilátin
drjúg; enda tekur hann sjálfur
það skýrt fram, að það sem hann
sé, sé hann fyrir íslenzka arfinn.
Þessi ungi sveitapiltur réðist
inn , New York borg, og að dæma
eftir frásögninni um hann, er það
eitthvað virkilegt, sem knúði hann
áfram. (Sbr. grein Th. J. W. um
hann). '
Nú er Tryggvi Björnson búinn
að heimsækja Leslie. Hann er
ungur maður og býður af sér
hinn bezta þokka.
Manni finst hann muni bera
gæfusteinininn í hendi sér, því
hann er glaður, viðmótsgóður og
fullur af áhuga fyrir því, sem
hann er að gera.
Eg kann ekki að dæma um söng
né hljóðfæraslátt, frá þekkingar-
innar sjónarmiði, þó nokkuð hafi
eg heyrt af því, og það eru fáein
blóm heima hjá mér, og þegar eg
segi þau séu rauð og hvít, skilja
menn að um einhverja fegurð
ræðir, fult eins vel eða öllu bet-
ur, en ef sagt væri að þau saman-
stæðu af bikar, blöðum o. s. frv.
Eg trúi því fastlega, að Tryggvi
Björnson eigi listræna sál, því
hann lét mig gleyma, ekki einung-
is sér, heldur og sjálfri mér, á
meðan hann spilaði.
Líka af því, að á tali hans má
heyra, að hann kann að meta það,
sem fagurt er, bæði komið og ó-
útkomið, í sönglist.
Hve djúpt að Tryggvi ristir, það
er, hve varanleg áhrif hann lætur
eftir sig, verður vart fullsagt enn;
því bæði er starfsbraut hans að
byrja og svo er hann svo ungur
og sál hans aðeins mótuð af sól-
skini lífsins, svo langt sem kom-
ið er.
En prýðilega létu “Dew Drops”
í eyrum. Og svo mikið er víst, að
þeir, sem heyrðu hann í Leslie,
vænta mikils af honum, og manni
finst maður skilja eitthvað í á-
stæðum fyrir áhlaupi hans á
Nýju Jórvík.
Við þökkum Tryggva Björnsyni
fyrir komuna, og óskum honum
gæfu og gengis.
R. K. G. Sigbjörnsson.
Björn B. Gíslaon
Iátinn.
Með Birni B. Gíslasyni er til
moldar hniginn mikilhæfur mað-
ur og drengur góður.
Hann andaðist að heimili sínu
í Marshall, Minn., suunudaginn
1. sept. Lengst af hafði hann
átt heima í Minneota, og var um
aldarfjórðung einhver fremsti
maður í því mannfélagi. Bana-
mein hans var krabbamein inn-
vortis, og hafði hann þjáðst af því
frá því í maí í vor sem leið.
Björn var á 57. aldursári, fædd-
ur á Grímsstöðum á Fjöllum 29.
maí 1873. Voru foreldrar hans
merkishjónin Björn Gíslason og
Aðalbjörg Jónsdóttir. Með þeim
fluttist Björn, sex ára gamall, til
Vesturheims árið 1879. Landnám
Björns Gíslasonar hins eldra var
í Vesturheims-bygð svo nefndri í
Minnesota og kallaði hann , bæ
sinn Stórhól. Þar ólust þeir allir
upp hinir mannvænlegu “Stórhóls-
bræður”, synir Björns og Aðal-
bjargar: 'Þorvaldur kaupmaður,
Jón bóndi og alþingismaður, Björn
lögfræðingur, sem nú er látinn,
Halldór háskólakennari og Árni
dómari.
Björn B. Gíslason lærði í skól-
um beggja þorpanna, Minneota og
Marshall, og í háskóla Minnesota-
ríkis í Minneapolis. Meðan hann
var við háskólann og las lög skall
á stríðið milli Spánar og Banda-
ríkja (1898). Gekk Björn þegar
í Bandaríkjaherinn og fór með 13.
deild Minnesota-ríkisins til Fil-
ipps-eyja, var þar í mörgum or-
ustum og þótti hinn mesti full-
hugi. Að loknu stríði, hélt hann
áfram námi og lauk lögfræðis-
prófi árið 1900. Stundaði hann
lögmannsstörf all-lengi og var um
hríð ríkissóknari í Lyon-þinghá í
Minnesota. Mjög gaf hann sig
alia tíð við stjórnmálum og var
einhver fremsti maður í flokki
Democrata í Minnesota-ríki. Mörg
ár var hann forstjóri eins hins
stærsta fasteignafélags í því ríki,
Græddist því félagi fé mikið, unz
styrjöldin mikla skall á, en af-
leiðingar hennar og verðhrun á
bújörðum riðu félaginu því nær
að fullu, og tapaði Björn þá eig-
um snum. Lét hann þó ekki hug-
fallast og átti glaða framtíðarvon,
er sjúkdómurinn tók hann hönd-
um.
7. okt. 1903 kvæntist Björn B.
Gíslason og gekk að eiga Jóhönnu
dóttur Jónatans Péturssonar frá
Eiðum. Er hún kona ágætlega
vel mentuð, útskrifaðist, ásamt
Rósu systur sinni, úr háskóla rík-
isins með Bachelor of Arts nafn-
bót árið 1895, og munu þær syst-
ur verið hafa fyrstar allra ís-
lenzkra kvenna að Ijúka hóskóla-
prófi. Þau Björn og Jóhanna
Gíslason eignuðust fjögur börn
og eru þau öll á lífi: Brentwood,
Rose, Sidney og James.
Björn B. Gíslason var mikill
maður veXti, fríður sýnum og höfð-
inglegur, kappsmaðpr um alla
hluti og fylginn sér, prýðilega vel
máli farinn og vel að sér um
marga hluti. Hann var maður
hjartahreinn og göfuglyndur. Við
fráfall hans er stórt skarð höggv-
ið í hóp Vestur-íslendinga.
Ragnar H. Ragnar
Silfurbrúðkaup
Mr. og Mrs. Ásbjörns Eggertssonar.
Hinn efnilegi, ungi píanókenn-
pri, sem nú er nýbyrjaður kenslu
hér í borginni, eftir að hafa dval-
ið í Medieine Hat, Alta., undan-
farin tvö ár. Hefir Mr. Ragnar í
seinni tíð stundað nám hjá Eva
Clare, nafnkunnri kenslukonu í
píanóspili hér í borginni.
Það fór fram, að kvöldi þess 26.
ágúst s.l., í fundarsal Goodtempl-
ara hér í bænum.
Samsætið hófst kl. 9 e. h. og
var margt fólk saman komið.
Fyrir samsætinu stóð aðallega
stúkan Skuld, ásamt sumu af ætt-
fólki og vinum þeirra Eggert-
sons hjóna.
Veizlustjóri var A. S. Bardal,
fyrrum stórtemplar. Stýrði hann
samsætinu með þeim skörungs-
skap, sem alkunnur er og honum
er laginn.
Um leið og þau Mr. og Mrs. Egg-
ertsson voru leidd til öndvegis í
veizlusalnum, færði lítil stúlka
Mrs. Eggertsson fagran blóm-
vönd. Litla stúlkan var Ruth
Gottfred, dóttir þeirra Mr. og Mrs.
Oscar Gottfred. Er hann bróður-
sonur Mrs. Eggertsson, sonur Jó-
hannesar heitins Gottskálkssonar,
er vel var þektur hér í bæ, nú lát-
inn fyrir nokkru. Voru þau, Sess-
elja, kona Ásbjörns, og Jóhannes
Gottskálksson, alsystkin, þó miklu
væri hann eldri en hún. Skilst
mér, að fjölskylda Jóhannesar
heitins hafi lagt niður Gottskálks-
nafnið, sökum erfiðleika í með-
förum í þessu landi, en tekið í
þess stað nafnið Gottfred, sem er
svipað, en mun þægilegra fyrir
Enskinn, sem annars er ekkert
verulega slingur að fara rétt með
nöfn, sizt ef vandasöm eru að ein-
hverju leyti. Getur vel verið
spursmál, beint af praktiskum á-
stæðum, hvort vér íslendingar
ættum ekki að taka upp meira af
þægilegum ættarnöfnum, en vér
gerum. Mörg íslenzku nöfnin, þó
falleg séu, eru sífelt vandræða-
efni hér vestra, og er meira en
von að sumir reyni að bæta úr því
með því að taka upp ný nöfn, sem
að einhverju leyti eru þægilegri.
Þá er veizlustjóri hafði sett
samsætið, lét hann syngja þjóð-
sönginn “>0 Canada”, er sunginn
var af öllum. Kallaði hann að
því búnu á séra Jóhann Bjarna-
son, er lét syngja sálminn: “Hve
gott og fagurt”, las biblíukafla og
flutti bæn, og var síðan sungið
versið “Ó, lífsins faðir, lán krýn”,
en Jóhann Beck lék á píanó, bæði
sálmalögin og lög söngva þeirra,
er sungnir voru í veizlunni. Þá
afhenti veizlustjórjij silfurbrúð-
hjónunum vandaða silfur blóma-
krús, með peningasjóði í, er alt
var í 25 centa silfurpeningum.
Var þetta heiðursgjöf frá sam
kvæmisgestum og vinum þeirra
Mr. og Mrs. Eggertsson. Sömn-
leiðis fengu þau gjöf, vandaðan
silfur borðbúnað, frá tveim elztu
sonum sínum, Harald og Arnold,
sem báðir eru mjög myndarlegir
ungir menn. Hefir Harald verið
undanfarið 1 Chicago, bæði unn-
ið þar við verzlun og verið að taka
æfingar í fluglist. Arnold er
einnig verzlunarmaður, vinnur hjá
stórverzlunarfél. Hudsins Bay
Co., í borginni Saskatoon, í Sas-
katchewan fylki. — Fylgdi silf-
urborðbúnaðinum fagurt ávarp, á
ensku, er Harald hafði samið.
Þau Eggertsons hjon eiga sex
sonu, sem allir eru hinir efnileg-
ustu. Tveir þeir elztu eru þegar
nefndir. Hinir yngri heita Her-
man, Lawrence, Victor og Cecil
Ásbjörn. Voru þeir allir þarna i
veizlunni. Sömuleiðis voru þar
systkin Ásbjörns, Ólafur Eggerts-
son leikari og Ásdís, kona Jósefs
Johnson smiðs. Eru þau hjón nú
búsett í New York ríki. Komu
‘alla leið þaðan, til að sitja silfur-
brúðkaupið. Bróðir Ásbjörns er
og Guðgeir Eggertsson, bóndi í
Þingvallanýlendu. Annar bróðir
var Guðvaldur sál. Eggertsson, er
vel var þektur hér í bæ. Var ekkja
hans þarna viðstöd, Mrs. Ragn-
heiður Eggertsson, og uppkomin
börn hennar.
iSamsætið fór fram hið bezta.
Skiftist á jöfnum höndum íslenzk-
ir úrvalssöngvar og ræðuhöld.
Einnig lék Miss ÍPearl Pálmason á
fiðlu, prýðis vel, eins og jafnan.
Ræður fluttu, auk v.eizlustjórans,
Sigurður Júlíus læknir Jóhann-
esson, Guðmundur M. Bjarna-
son, Jóhannes Eiriksson, G. H.
Hjaltalín, Gunnl. Jóhannsson, og
þau silfurbrúðhjónin, er bæði
fluttu þakkir veizlugestum og öðr-
um vinum, fyrir heiðursgjafir
frambornar og þá sæmd, er þeim
var þarna sýnd. Þá flutti og G.
H. Hjaltalín kvæði. Eru þeir
æskuvinir, Ásbjörn Eggertsson og
hann. Er kvæðið nokkurs konar
minningar í ljóðum um viðburði
frá æskuárunum, ásamt ýmsu
fleira. Sennilega birtist kvæðið
nú í þessu blaði, eða hinu næsta.
Þau Eggertsons hjón hafa stað-
ið framarlega í fylking í bindind-
ismálum í langa tíð. Þegar sam-
komuhöll Templara var reist, var
Ágbjörn formaður í byggingar-
nefnd,' er stúkurnar Hekla og
Skuld kusu sameiginlega. Gat
hann sér þar orðstír fyrir dugnað
og áhuga. Kom*það og glögglega
fram í veizluræðunum, að þau Mr.
og Mrs. Eggertsson eru vinamörg
og njóta góðs trausts og hylli fjöl-
margra, er verið hafa í samstarfi
með þeim um margra ára skeið.
Jóh. B.
Á samleið
með Ásbirni Eggertssyni,
flutt í silfurbrúðkaupi þeirra
hjóna, 24. ágúst 1929.
Góðar konur og góðir menn
oft greinast í bindindis skara.
Eitt silfurbrúðkaup er setið enn,
í sal vorra Goodtemplara.
Á inndælli kveldstund eigum nú
von,
hér alir við borð erum seztir.
Sesselja og Ásbjörn Eggertsson
hjá oss eru heiðursgestir.
Eg sezt hér ei niður við sagnagerð,
en svolitlum braga tónum
hreyfi, þá tuttugu og fimm ára ferð
er fagnað með þessum hjónum.
Aðstoð hér sést, ef vandinn vex
á vegum í lífskjara stríði:
Guð hefir léð þeim sonu sex,
og sérhver er ungmenna prýði.
Að fjölyrða eitthvað um ástaþel
og atorku, hót finst mér vandi;
þekki samt Ásbjörn Eggertsson vel
frá æsku og ferðralandi.
Við munum blíða bernskutíð
og braskið í meðlæti og þrautum,
fjöllin þau háu, með fjárrétt í hlíð
og frjósömum berja lautum.
Torfæran mörg á vegi okkar var,
veik og rýr ferðatækin;
kalt að vaða’ yfir Kaldá þar
og Kolbeinsstaða lækinn.
Ófærur þessar utan við tún,
yfirstíga tókst drengjum;
tvímentu oft á “blinda Brún”
við beizli úr snærum og þvengjum.
Ferðast tilsvona fremur var töf,
framþrá sér til okkar hraðar:
á “dampskipi” vikum því vestur
um hðf,
í Winnipeg námum við staðar.
Ár hafa liðið tuttugu tvenn,
síðan tókum þá ferð burt úr landi.
Við erum á samleið í Winipeg enn,
í vinsæld og mannfélags bandi.
Mætavel líður nú mér og þér,
möglum ei hót eða vílum.
Framvegis getum við ferðast hér
með flugdrekum, eimlest og bílum.
Eg næstum tryði umbótum þeim,
ef einhver mér frá því skýrði:
að færum að ári til feðralands
heim
í flugvél, sem Harald þinn stýrði.
Á samleið hér utan við íslenzk tún,
með allskonar ferðatækin;
Gleymum þó seint honum “blinda
Brún,”
sem bar okkur yfir lækinn.
Guðjón H. Hjaltalín.
GJAFIR
til Jóns Bjarnasonar skóla.
! Mrs. Sigríður Hallgrímsson, Min-
! neota, Minn, (being proceeds of
an ice cream entertainment, held
by her at her home) ....... $50.00
Tryggvi Björnson of New York,
I (proceeds of his lecture recital in
j First Lutheran Church, aug .
j 26th .................... $42.00
| Dr. Richard Beck, Thiel College,
Greenville, Pa............. $10.00
Mrs. H. Johnson, Husavick $1.00
Oscar L. Freeman, Wpg...... $2.00
Arnes Congregation, Arnes $28.00
Mr. og Mrs. Páll Anderson, Geys-
ir Man................... $5.00
Estate of the late Gísli Einarsson,
(Vigfús Einarson Executor) Ros-
seau, Ont.............. $500.00
Innilega þakkað,
S. W. Melsted, gjaldk. skólans.