Lögberg - 12.12.1929, Síða 3

Lögberg - 12.12.1929, Síða 3
LÖGBERG, FIMTUDAGINN 19. DESEMBER 1929. Bls. 3. AKVÆÐASKALDIÐ. 3. Galdravísur. Nú liðu fjögur ár, og ekkert spurðist til Ilauks. Eun var komið sumar og túnasláttur byrjaður, en sá var munurinn, að nú var ekki þoka, heldur glaða .sólskin. Sólin skein frá heiðum himni yfir lög og láð, og þó gat lnm ekki hrakið burt skugga sorgarinnar, er grúfði yfir sýslumannssetrinu, enda var ekki að búast við því. Foreldrar Hanks höfðu aldrei litið glaðan dag síðan hann livarf. Áður liafði sýslumaður verið gleðimaður mikill og hrókur alls fagnað- ar á mannfundum, en nú var hann orðinn svo þungbúinn á svip og þurr á manninn, að fáir vildu yrða á hann að fvrra bragði. Og frúin hafði ekki yndi af neinu öðru en því, að taka rósaleppinn upp vir kistunni og skoða hann. I’að gerði hún á hverjum degi. Hrefna litla tók gleði sína aftur, þegar frá leið. Sorg hennar var eins og héla einnar nætur, sem bráðnar fyr- ir blíðgeislum morgunsólarinnar. Það var farið að líÓa að nóni, og frúin hafði ekki enn haft tíma tii að skoða rósaleppinn, en nií gat hún ekki stilt sig lengur. Hún fór fram á dyraloft og tók rósaleppinn upp úr kistunni. Hún horfði á liann, þangað til henni vöknaði um augu. “Nú væri hjartkæri drengurinn minn sjö ára í dag, ef hann hefði lifað,” sagði hún við sjálfa sig. Höfug tár runnu niður vanga henn- ar, og þerraði hún þau af sér með rósaloppnum. 1 þessum svifum var drepið á dyr. Frúin lét rósaleppinn ofan í kistuna og gekk til dvra. Kom þá aldurhniginn langferðamaður á móti henni og heilsaði henni með handabandi. Frúin tók kveðju hans kurteislega og bað hann að ganga í bæinn, en hann kvaðst þurfa að koma hestinum sínum í haga fyrst. Nú sá frúin, að jarpur kláfahestur stóð á hlaðinu. Bauðst hún til að láta drenginn fara með hann upp fyrir túnið og hefta hann, en komumaður vildi <>kki þiggja það og kvaðst verða að fara með hann sjálfur. “Það er ekki barna með- færi, að fást við Jarp”, sagði hann, því að hann gerir bæði aðbíta og slá.” Teymdi hann nú hestinn upp fyrir bæinn og tók af honum kláf- ana, spretti af honum reiðingnum og fór síðan með hann í haga. Friiin beið eftir komumanni og lét hann ganga inn í baðstofu, en þá stóð svo á, að alt heimafólkið var komið inn til miðdegisverðar, nema Hrefna. Hún var einhvers staðar úti að leika sér. Frúin bað gestinn að fá sér sæti og lét bera honum mat. Sýslumaður sat við .skrifborð sitt frammi í stofu og var í djúpum hugsunum, en nú kom frúin til hans og bað hann að koma snöggvast inn í baðstofu. “Það er kominn einhver langferðamaður,” sagði hiín. “Hann hefir ekki gert uppskátt er- indi sitt, en mér datt í hug, að þér þætti gam an að tala við hann og spyrja hann tíðinda.” SýsJumanni var óljúft að gefa sig á tal við gesti, en þó fór hann að orðum konu sinnar. Hann gekk inn í baðstofu, og komumaður heils- aði honum virðulega. “Hvað heitir maðurinn?” spurði sýslu- maður. “Eg heiti Torfi.” “Það er þó vænti eg ekki Torfi ákvæða- skáld?” “Rétt er þar til getið,” svaraði komumað- ur og gaut hornauga til sýslumanns. Nú varð löng þögn, 0g litu allir í senn til Torfa. Þótti fólkinu á sýslumann&setrinu ekki lítill fengur í því, að fá nú að sjá þennan galdra- mann með eigin augum, því að margar kynja- sögur höfðu 'borist af honum um land alt. Hann var líka svo forneskjulegur og frábrugðinn öll um öðrum mönnum, er þar höfðu sézt í sveit. Hann var mikill vexti, en nokkuð lotinn í herð- um. Hárið var í sneplum á herðar niður, og var eins og héla hefði á það fallið. Skeggið var sítt og þyrlaðist niður um bringuna; var það tilsýndar að sjá sem freyðandi foss. Stór- skorinn var hann í andliti, með kónganef og hátt veðurbarið enni. Undir loknum og þungum augnabrúnum glórði í grá og livöss augu. Torfi hélt áfram að snæða og lét sér vel líka, að liann skyldi vekja svo mikla athvgli. Sýslu- maður gekk þegjandi um gólf með talsverðum embættissvip. Hann var að rifja upp fyrir sér alt það, sem liann hafði heyrt talað um Torfa gamla ákvæðaskáld. Torfi hafði lengi venð að flakka um Suðurland, en þetta vor hafði hann farið fótgangandi norður JKjöl, með klár- hest í taumi, og legið þrjár nætur undir berum himni. Hafði hann nú flakkað víða um sveitir á Norðurlandi og þótti hvergi góður gestur. Stóð flestum stuggur af honum. Lét hann mik- ið yfir sér og tók að kyrja galdravísur, ef bænd- ur synjuðu honurn bónar. iGerðust þá mörg undur og stórmerki. Urðu vanalega þau leiks- lok, að þeir létu undan og voru fegnir að gefa honum ull og smjör, og jafnvel peninga, til þess að losna við hann. Sýslumanni var illa við alla förumenn eftir viðureignina við Finn flakkara. Hann var að hugsa um að taka Torfa fastan, og létta þess- ari landplágu af Norðlendingum. Þóttist hann vita, að hann mundi geta sér almannalof fyrir slíka röggsemi. Nú er að segja frá Torfa. Þegar hann hafði et.ið sig mettan, bjóst hann til brottfarar, en kvaðst fyrst ætla að biðja sýslumann bónar. Sýslumaður tók dræmt undir það, en vildi þá heyra, hvað Torfi hefði í liuga. “Það er að leggja eina spesíu í lógann á Torfa gamla, og vona eg, að engum þvki til mikiLs mælst.” “Sýslumaður brást reiður við og mælti: “Mér þvkja þessir fla>kingar vera orðnir ærið heimtufrekir nú á dögum. Þeir gera sig ekki ánægða með mat og húsaskjól, heldur heimta þeir peninga þar að auki.” Torfi gamli leit íbygginn til sýslumanns og bað hann að tala varlega. “Eg er nú svo gam- all, sem á grönum má sjá,” sagði hann, “og hefir enginn fyr dirfst að svara mér sFcr. Eg er kallaður Torfi ákvæðaskáld, og það ekki að ástæðulausu, því að marga seiðvísuna hefi eg kveðið um dagana. Er það alma>li, að <>g 'sé kjölkunnugur og viti lengra en nef mitt næy' og sjaldan lýgur almannarómur.” \ “Sér er nú hver gorgeirinn í karlinjtm,” sagði einn vinnumaðurinn, og varð þá> skelli- hlátur um alla baðstofuna, en Tps.fi' lét'sér hvergi bregða.” “Það mun fara af ykkur hláturinn, um það er lýkur, ” sagði hann og lét drjúglega. “Ekki hræðist eg liótanir þínar,” sagði sýslumaður, “og muntu aldrei sækja gull í greipar mér. Máttu vera mér þakklátur, ef eg refsa þér ekki fyrir skrumið.” Torfi lét brúnir síga og varð nú allófrýni- legur. Hann stapppaði fætinum í gólfið og mlti: ‘ ‘ Heyri nú mál mitt, allir þeir, sem viðstaddir eru! Nú er glaða sólskin og þlæja- logn, svo að ekki blakti hár á höfði, en hvernig ætli mönnum yrði við, ef eg gæti alt í einu látið koma ofsastorm, með því að kveða eina vísuf” “Jæja, garmurinn!” sagði sýslumaður. “Það mun uú ráð fyrir þig að hafa þig á brott, og nenni eg ekki að eiga orðastað við þig lengur, því að nú fyrst er mér ljóst, að þú ert ekki með öllum mjalla.” Torfi kvaðst ekki fara fet, fyr en liann fengi spesíuna, en sýslumaður sagði að réttast væri að setja hann í gapastokkinn fyrir gikksháttinn og óráðþægnina. Þá spratt Torfi upp úr sæti sínu og mælti: “Nú skal stormurinn koma, og mun eg ekki lengur láta frýja mér hugar.” Torfi leit u]>p í strompinn og kvað vísu þessa með þrumandi raust: Mikin seið ég magna þrátt, máttur fylgir tali. Blási nú af austurátt yfir fjöll og dali! Kom þá svo mikill stormur, að undrum sætti, og tók nú að hvína hótt í strompinum. Allir störðu agndofa á Torfa, og sáu menn glögt, hvernig liárið blakti á höfði hans, því að svo var súgurinn mikill undir strompinum. Nú ])ótti sýslumanni tími til kominn að láta skríða til skarar og taka Torfa fastan. Hann eggjaði menn sína fast og bað þá að binda Torfa og draga belg yfir höfuð honum, svo að hann gæti ekki kveðið fleiri galdravísur. “Ekki metið þið líf ykkar mikils,” sagði Torfi gamli og hló kuldahlátur. ‘ ‘ En vitið þið ekki, að eg er ákvæðaskáld? Eg þarf ekki að kveða nema hálfa vísu, til þess að láta blóðið frjósa í æðum ykkar, og er liverjum þeim manni bráður bani vís, sem snertir Torfa gamla á- ákvæðaskáld!” Heimamenn höfðu staðið upp og voru þess albúnir, að ráðast á Torfa, en nú urðu þeir svo skelkaðir, að þeir hopuðu á liæli og settist hver í sitt sæti. Nú var sýslumannsfrúnni nóg boðið. Hún reyndi að miðla málum og bað mann sinn bless- aðan að fá Torfa spesíuna. “Það er ekki aftur tekið,” sagði hún, “ef stórviðrið svifti þekj- unni af baðstofunni.” “Hann skal aldiæi fá spesíuna,” svaraði sýslumaður. “Og er mér ósárt um, þó aðþekj- an fjúki af þessu greni. Eg liefi livort sem er álnæðið að láta byggja nýja baðstofu í liaust, þar eð ]>essi er orðin svo gömul og hrörleg, og óvistleg í alla staði.” “ Þá skal eg láta koma grenjandi norðan- hríð,” sagði Torfi og sótti í sig veðrið. Hann leit aftur upp í strompinn og kvað: Burt með vorsins blómatíð, bliknuð drjúpi stráin, köld og nöpur norðanliríð næði yfir skjáinn! Kom þá ógurleg haglskúr úr lieiðskíru lofti og buldi á baðstofuglugganum. Það fór kulda- hrollur um fólkið. Karlmennimir tóku trefla sína og vöfðu þeim um hálsinn, en stúlkurnar létu á sig sjölin og fóm að blása í kaun. Frúin bað mann sinn að í öllum bænum að láta nú Torfa fá spesíuna. “Sérðu ekki, hvílílc hætta vofir yfir, ef Torfi lætur þessa norðan- hríð haldast í alt suxnar. Allir verða að hætta hevskap, og það verður jafnvel ekki nokkur snöp fyrir skepnur um hásumarið. Og svo kemur hallæri. JFólkið deyr hrönnum saman úr liungri. — Og Hrefna litla úti í þessu veðri!” Nú var sýslumaður í vanda staddur, og runnu á hann tvær grímur, en þó var hann treg- ur til að láta Torfa fá spesíuna, og kvað sér lít- inn sæmdarauka í því, að láta undan þessum flakkara. “Nei, spesíuna læt eg ekki fyr en í fulla hnefana.” “Þá skal eg láta koma sólmyrkva,” öskraði Torfi. Hann ranghvolfdi augunum og var svo ægilegur á svipinn, að öllum stóð ógn af. Og enn leit hann upp í strampinn og kvað: Töfrastyrk í tungurót Torfa skortir eigi. Verði mvrk og svört sem sót sól á himinvegi! “Hvað er að tamaí” sagði frúin. “Mér dimmir í augum. ” . “Og mér líka,” sagði sýslumaður. “Ykkur mun dimma betur fyrir augum, um það er lýkur, ef eg fæ ekki spesíuna,” sagði » Torfi og glotti við tönn. 1 sama vetfangi datt á ]>reifandi myrkur, og sá ekki nokkur maður handa sinna skil. Alt fólkið stóð á öndinni af ógn og skelfingu, og héldu sumir, að nú væri kominn heimsendir. “Æ, livar ætlar þetta að lenda ?” sagði frú- in angistarfull og varpaði sér í fang manni -sín- um. “Þetta grunaði mig lengi, að síðasta plág- an mundi verða verst. Vertu nú ekki að halda í þessa spesíu lengur. Það er. betra að bogna en bresta. Manstu ekki, hvernig fór fyrir hon- um Faraó ? Þú ættir að láta ógæfu hans þér að varnaði verða.” Nú féll sýslumanni allur ketill í eld, og sá hann þann kost vænstan að láta undan, þó að hann ætti bágt með að brjóta odd af oflæti sínu. “Nóg er komið, Torfi minn,” sagði hann. ■' “Og skaltu nú fá spesíuna, ef þú lóttir af þessu gjörningaveðri og lætur aftur koma logn og sólskin. Iðrar mig sárlega, að eg skuli hafa egnt þig til reiði, og er það ærin dirfska að etja kapp við annað eins ákvæðaskáld og þú ert. Og víst er um það, að ekkert ákvæðaskáld á Is- landi stendur þér á sporði, þar sem þú ert gædd- ur svo miklum kyngikrafti og andagift, að jafn- vel höfuðskepnurnar hlýða þér.” “Fyr hefðir þú mátt svo mæla,” sagði Torfi, “og mun eg nú gera bragarbót. ” Það var niðamvrkur í baðstofunni, og storm- urim^ hvein í strompinum og gegnum stormþvt- inn heyrðist alt í einu þrumandi rödd. Það var Torfi gamli, sem tók nú td að kveða: Blómin sólu brosi mót, burt með veðrahaminn! Aldrei hefir bragarbót betur verið samin! A sömu stundu kom inndælisveður, eins og áð- ur var. Stormurinn datt í dúnalogn, og sólin skein glatt inn um gluggana. (Frh.) Dýravinátta. Nýtt gufuskip, 17 þús. smálesta, “Americano Sud” að nafni, var fyrir skömmu á leið yfir At- lantshafið. Á því var kettlingur. Svo vildi til einn dag, er kisa var að klifra og leika sér, að henni varð fótaskortur og hún féll útbyrðis. — Skipstjóri lét þegar stöðva skipið. Björgunar- báti var þegar komið á flot, og í hann fór fyrsti stýrimaður og nokkurir hásetar, til að bjarga kisu. Stormur var og sjór úfinn. Mátti því eigi tæpara standa, er þeir loks fengu borgið henni. — Þessi frábæra og drengilega björgun, sem lýsir ótvírætt Jijartagæzku og dýravináttu þeirra manna,s em að henni stóðu, hefir hvervetna vak- ið lof og aðdáun góðra manna. — Ægir, 12. ár. JÓLANÖTTIN. Hljóða nótt, heilaga nótt. Blítt og rótt blundar drótt. Ástríkum, ferðlúnum foreldrum hjá fríðasta sveinbarn í jötunui lá dreymandi himneska dýrð. Hljóða nótt, heilaga nótt. Alt er rótt, liægt og hljótt. Vaka í kvrðinni hjörð sinni hjá hirðarnir Betlehemsvöllunum á saknandi sólar og dags. Hljóða nótt, heilaga uótt. Birtir skjótt, fríkkar fljótt: Syngjandi ljósengla himneskan her hjarðmenn á völlunum líta hjá sér. Dýrðlega, dásama stund. Hljjóða nótt, 'heilaga nótt. Engill drótt innir skjótt: ‘ ‘ Óttist ei! Dýrðlegan fögnuð ég flvt. Friðlýst er jörðin við ljósanna glit. Frelsarinn fæddist í nótt.” Hljóða nótt, heilaga nótt. Soninn hljótt signir drótt. DR. B. J. BRANDSON 216-220 Medical Arts Bldg. Cor Graham og Kennedy Sts. PHONE: 21 834 Office tlmar: 2—3 Heimili 776 Victor St. Phone: 27 122 Winnipeg, Manitoba. DR. O. BJORNSON 216-220 Medical Arts Bldg. Cor. Graham og1 Kennedy Sts. PHONE: 21 834 Office tímar: 2—3 Heimili: 764 Victor St., Phone: 27 586 Winnipeg, Manitoba. DR. B. H. OLSON 216-220 Medical Arts Bldg. Cor. Graham og Kennedy Sts. PHONE: 21 834 Office tímar: 3—5 Heimili: 5 ST. JAMES PLACE Winnipeg, Manitoba. DR. J. STEFANSSON 216-220 Medical Arts Bldg. Cor. Graham og Kennedy Sts. PHONE: 21 834 Stundar augna, eyrna nef og kverka sjflkdóma.—Er að hitta kl. 10-12 f. h. og 2-5 e. h. Heimili: 373 River Ave. Tals.: 42 691 DR. A. BLONDAL 202 Medical Arts B!dg. Stundar sérstaklega k v e n n a og barna sjúkdðma. Er a8 hitta frá kl. 10-12 f. h. og 3-5 e. h. Office Phone: 22 296 Heimili: 806 Victor St. Sími: 28 180 Dr. S. J. JOHANNESSON stundar lœkningar og yfirsctur. Til viðtals kl. 11 f. h. til 4 e. h. og frá 6—8 að kveldinu. SHERBURN ST. 532 SÍMI: 30 877 Drs. H. R. & H. W. Tweed Tannlæknar. 406 STANDARD BANK BLDG. Cor. Portage Ave. og Smith St. PHONE: 26 545 WINNIPEG DR. C. H. VROMAN Tannlæknir 505 BOYD BLDG. PHONE: 24 171 WINNIPEG G. W. MAGNUSSON Nuddlæknir. 609 MARYLAND STREET. (priðja hús norðan við Sargent). PHONE: 88 072 Viðtalstími kl. 10-11 f. h. og 3-5 e. h. V A. S. BARDAL 848 SHERBROOK ST. Selur llkkistur og annast um út- farir. Allur fltbúnaður sá bezti Ennfremur selur hann allskonar minnisvarða og legsteina. Skrifstofu talsími: 86 607 Heimilis talsími: 68 302 PJÓÐLEOASTA KAFFI- OO MAT-SÖLUHÚSIÐ sem þessi borg hefir nokkurn tima haft innan vébanda sinna. Fyrirtaks máltiðir, skyr, pönnu- kökur, rúllupylsa og þjóðræknis- kaffi.—Utanbæjarmenn fá sér ávalt fyrst hressingu á WEVELCAFE 692 SARGENT AVE. Simi: 37 464 ROONEY STEVENS, eigandi. RAGNARH. RAGNAR Píanókennari Nemendur, er njóta' vilja pianó- kenslu hjá Ragnari H. Ragnar, geta byrjað nú þegar.—Nemend- ur búnir undir öll próf, bæði byrj- endapróf og A.T.C.M. Allar upplýsingar g e f n a r að kenslustofu 693 Banning St. PHONE: 34 785 H. A. BERGMAN íslenzkur lögfræðingur Skrifstofa: Room 811 McArthur Building, Portage Ave. P. O. Box 1656 PHONES: 26 849 og 26 840 Lindal Buhr & Stefánsson íslenzkir lögfræðingar. 356 MAIN ST. TALS.: 24 963 þeir hafa einnig skrifstofur að Lundar, Riverton, Gimli og Piney, og eru þar að hitta á eftirfylgjandi ttmum: Lundar: Fyrsta miðvikudag, Riverton: Fyrsta fimtudag, Gimli: Fyrsta miðvikudag, Piney: priðja föstudag i hverjum mánuði. J. RAGNAR JOHNSON B.A., LL.B., LL.M. (Harv.) fslenzkur lögmaður. Rosevear, Rutherford, Mclntosh and Johnson. 910-911 Electric Railway Chmbrs, Winnipeg, Canada Simi: 23 082 Heima: 71 753 Cable Address: Roscum JOSEPH T. THORSON Islenzkur lögfræðingur SCARTH, GUILD & THORSON Skrifstofa: 308 Mining Exchange Bldg., Main St. South of Portage PHONE: 22 768 Fléttar með þakklæti kærleikans krans, krýpur í lotning að jötunni lians syngjandi: Drotni sé dýrð! Hljóða nótt, heilaga. nótt. Alt er rótt, lieilagt, liljótt. Helgaðu, blessaðu sérhverja sál, söng vorn og bæmr og lofgjörðarmál. Guð, gef oss gleðileg jól! —Vald V. Snævarr—Helgist þitt nafn.

x

Lögberg

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.