Lögberg - 30.06.1932, Side 5
LÖGBERG. FIMTUDAGIN N 30. JÚNÍ 1932.
Bls. 5.
Því miður verða þeir aldrei marg-
ir af Vestur-íslendingum, sem
heim til íslands munu flytja, hér
eru þeir orðnir of rótgrónir, og
til þess að þjóðflutningar eigi
sér stað í nokkuð stórum stíl,
þarf meira en lítið rót í þjóðlíf-
inu. ísland er afskekt og strjál-
bygt og lífið þar er líf við brjóst
náttúrunnar. A'lt þetta eru kost-
ir, sem eru eftirsóknarverðir. í
mannlífshafi hinna þéttbygðu
landa þróast öll sú spilling bezt,
sem hugsanleg er í mannlegu lífi;
þar eru lagaflækjurnar mestar og
lögbrotin nærri óhjákvæmileg
sumum, þar sem aðrir reka það
sem atvinnugrein. Ef ísland skil-
ur sinn vitjunartíma og vill eða
getur lesið letrið á veggnum, hef-
ir það mör'g skilyrði fyrir því, að
verða með farsælustu löndum
heimsins.
Þá er ritgerð eftir séra Gunn-
ar Benediktsson: “Örfá orð til
Andsvara”, svar hans til séra R.
E. Kvaran, á móti ritgjörð hans í
Morgni: “Nýjar raddir”, sem er
skrifuð um “Jafnaðarstefna og
trúarbrögð” í Straumum, og “Æfi-
saga Jesú frá Nazaret”, eftir
Gunnar Benediktsson. Hðfund
þenna, G. B., kannast allir við,
sem fýlgst hafa með ritmensku
tímarita og nýrra bóka á íslandi í
seinni tíð; hefir hann staðið
framarlega í því að vilja bylta
og breyta til hjá kirkjunni og í
þjóðfélaginu. Bera sö'gur hans,
til dæmis “Við þjóðveginn” og
“Niður hjarnið” vott um það, að
hann finnur til með þeim, sem
minni máttar er og halloka fer í
leik lífsins, og hann sýnist hafa
hina megnustu óbeit á kórónuðu
ranglæti mannfélagsins, og reið-
ir hann öxina hátt að rótum þess
trés, sem fúið er orðið og ekki
getur borið góðan ávöxt. Hefir
hann óefað góða hæfileika, en
spursmál er, hvort hann hefir
það jafnvæ'gi, sem nauðsynlegt er
til þess að verða nægilega áhrifa-
mikill. Skoðanir hans á kirkju-
málunum, þó frjálslyndar séu,
geta ekki fallið í smekk manna,
sem lotningarfulla trúarhneigð
hafa, hvort sem er nú af eldri
eða yngri skóla, enda hefir hann
átt í höggi við menn um þessi efni,
meira frá mönnum sem standa á
svipuðum trúarlegum grundvelli
og hann sjálfur, heldur en þeim,
sem fylgja hinum eldri kenning-
um. Skal ekki lengra farið út í
þessa sálma að sinni. Ritgerð
þessi, sem hér um ræðir, er frem-
ur veigalítil og ekki mikið á
henni að græða.
Lang-merkasta ritgerðin í
þessu hefti Iðunnar; er “Trúar-
brögð og kristindómur” (Til séra
Gunnars Benediktssonar), eftir
séra Jakob Jónsson. Er hann
ungur prestur á íslandi, sem
hugsar djúpt og einlæglega; hef-
ir hann eitthvað komið fram á
sjónarsviðið áður og vakið eftir-
tekt; en óefað á hann eftir að
vinna mikið, ef honum endist
aldur. Ritgjörð þessi er þrung-
in af viti, frjálslyndi og trúar-
lotningu, sem virðist svo vel
samstemma, og þar sem allir
þessir eiginleikar fara saman.
má við miklu búast. Það er nautn
að 'lesa svona ritgjörð og finna
þann anda, sem þar rikir.
(Framh.)
FRA ÍSLANDI.
Reykjavík, 8. júní.
Af veiðum hafa komið: Hannes
ráðherra og Arinbjörn hersir:
báðir með ágætan afla. Þeir
hætta veiðum. Otur fór út í
fyrrinótt og kom inn í gær. Fisk-
ar hann fyrir sænska frystihús-
ið. Hann fiskaði vel hér úti í fló-
anum í fyrrinótt.
Valur, Knattspyrnufélagið, send;
16 knattspyrnumenn úr 2. flokki
í gær til Akureyrar með Gull-
fossi. Kemur flokkurinn til baka
með Goðafossi þ. 20. Ætla Vals-
menn að keppa á ísafirði, Siglu-
firði og Akureyri. Knattspyrnu-
félag Akureyrar bauð Valsmönn-
um norður. Fararstjóri er Axel
Þorbjörnsson. — Mgbl.
Austur á uHvalsbak”
Á SKALLAGRÍMI.
Eftir Bjarna Sæmundsson.
(Niðurl,)
Ef aflinn er svo mikill, að ekki
eru tiltök að innbyrða hann í einu.
verður að skifta honum. En til
þess að fá fiskinn vel þéttan inn
í afturenda pokans, er byrjað með
því að “snörla” á pokann með
“snörlunni”. Það er mjög gildur
kaðalsendi, sem brugðið er með
sjálfhe’du-bragði utan um belg-
inn, utan við borðstokkinn og svo
dreginn á vindunni yfir járnkrók
eða hjól á brúarhorninu, þangað
til bragðið og pokinn eru komin
að króknum, þá er legið o'g staðið
á pokanum af nokkrum mönnum,
meðan verið er að losa ‘snöruna’
og þangað til búið er að ‘snörla’
á ný, og þetta er endurtekið þang-
að til fiskurinn er orðinn vel
þéttur í pokabotninum. Þá er
pokinn nteð skiftistroffunni dreg-
inn upp að skipshliðinni á spott-
anum, með gils og síðan á stroff-
unni, með talíunni upp yfir borð-
stokkinn, jafnframt því, sem
fremra hluta pokans og belgnum
er kastað útbyrðis, til þess að
það af fiskinum, sem eftir varð,
þegar skiftstroffan bútaði skamt-
inn aftan af honum, geti runnið
aftur í vörpubelginn jafnharðan
og pokinn lyitist upp úr sjónum.
Þegar “skamturinn” er kominn
inn fyrir borðstokkinn, er fyrir-
bandið leyst frá pokanum, svo að
fiskurinn steypist niður á dekkið.
iSvo er bundið fyrir pokann aft-
ur, honum kastað fyrir borð, því
næst snörlað á ný, eins og áður,
til þess að fylla hann, nýr skamt-
ur skorinn frá af skiftistroff-
unni, hann innbyrtur o. s. frv.
Þetta er all-umsvifamikið og
seinlegt (hver poki tekur alt að
10 mín.), ekki sízt í úfnum sjó,
erfitt verk, sem verður að endur-
taka 2—3, 10—12 og jafnvel 15
—20 sinnum, eftir því sem aflinn
er mikill (hve ‘margskiftur’ poki),
þangað til allur aflinn er inn-
byrtur.
Þetta alt saman reynir oft æði
mtfkið á þrek og þor háseta. Varp-
an er ekkert barnaleikfang og
liggur ekki ávalt sem þægilegast
athafna, stundum eins og fast-
negld á skipssíðuna; verður þá
vont að koma stroffunni eða snðrl-
unni undir vörpuna og hanga
menn þá oft hálfir eða meira út
fyrir borðstokkinn, en til trygg-
ingar heldur einhver í fætur
þeim, svo að þeir fari ekki á höf-
uðið í sjóinn. Sé úfinn sjór, verð-
ur aðstaðan enn þá verri. Skipið
liggur flatt fyrir bárunni og velt-
ur eins og vitlaust, en pokinn ger-
ir ýmist að rykkja í með heljar
afli, þegar báran ríður undan,
eða að kastast upp að borð-
stokknum, þegar hún ríður undir,
og þegar verst er, getur hún sent
sjói þessa inn yfir hann, gefið
dekkmönnum vel útilátið steypu-
bað og “alt sem á þilfari liggur
laust, lafandi tungum sleikja.”
Yfir öllu þessu verki vakir
skipstjórinn uppi á brúnni, hreyf-
ir skipið fram eða aftur, eftir
því, sem pokinn liggur í sjónum,
gáir að bilunum á vörunetinu o.
fl. o. fl. og léttir ekki fyr en varp-
an er komin í lag aftur, að öllu
leyti, liggjandi á borðstokknum,
of alt til reiðu til þess að kasta
aftur. Þegar því er lokið, getur
hann og dekkmennirnir fyrst
“kastað mæðinni”, áður en að-
gerðin og stjórnarstarfið byrjar
á ný. — En séu vökuskifti, koma
nýir og óþreyttir menn til sög-
unnar. Það er ekki slugsað, það
er háspennu aðgæslustrit á
brúnni og vöðva strit á dekkinu,
og undanfarið gaf þessi mikli afli
mikið í aðra hönd, öllum þeim,
sem hlut áttu að máli, en nú er
eins og enginn vilji eiga vorn
'góðkunna þorsk og hinn mikli afli
er orðinn svo verðlítill, að það
virðist varla ómaksins vert að
vera að ná í hann. En vonandi
rætist úr því aftur, áður en alt
fer um koii, og Spánverjinn sæk-
ir sjálfur allan fiskinn hingað á
miðin.
Nú var kominn lokadagur og
við orðnir saltlausir, bæði sök-
um þess, að aflinn hafði verið
mjög mikill og þess, að minna
hafði verið látið af salti í skip-
ið, en vera átti, sökum misskiln-
ings, en skipið ekki alveg hlaðið.
Var skipstjóri því að hugsa um
að fara til Fáskrúðsfjarðar, sem
næsta staðar, þar sem fá mátti
salt. Það hefði verið 100 sjó-
mílna (10 kls.t.) sigling fram og
aftur, og í það hefði farið alt að
því einn sólarhringur. Og enda
þótt mér hefði ekki þótt nema
gaman, að sjá Austfirði nokkuð
nær en úr 401—45 sjóm. fjarlægð,
fanst mér viturlegra það ráð, sem
skipstjóri tók, að fara ekki, held-
ur bæta við sig eins miklu af
ósöltuðum fiski og frekast mátti
og hraða sér svo heim. Fáskrúðs-
fjarðarsaltið hefði orðið nokkuð
dýrt, að sækja það svo langa leið
og skipið orðið þegar vel fiskað.
Við létum því fyrirberast í
Hallanum og Litla-Djúpi næsta
dag, þenna minnisstæða dag, sem
lyfti mér nokkrar mínútur upp í
skipstjórastöðuna, eins og áður
er sagt. Við öfluðum mikið (2—
5 skift), einkum í Litla-Djúpi og
var fiskurinn þar mest megnis
smáfiskur (stútungur og þyrsk-
lingur). Eitthvað af honum var
látið í lestina, en á framdekkinu
hlóst lika fljótt upp álitlegur
stafli af flöttum, en ósöltuðum
fiski, sem átti að fara í ís, og
“Skalli” fór nú að gerast álútur
og seinn í veltuhreyfingum; það
sýndi að þyngdarpunkturinn var
farinn að færast fram og upp.
Það var haldið áfram að fiska
til miðnættis, og þótti þá skip-
stjóra nóg komið; var því “hank-
að upp”, eins og sagt var á opnu
bátunum í 'gamla daga, þegar
halda skyldi heim, og færin dreg-
in upp í hönk.
Eg var þá víst sofnaður, eða um
það bil og vissi ekki í þenna heim
né annan fyr en komið var út af
Hornafirði um 7-leytið. En eigi
er ávalt lengi að breytast veður
í lofti; Daginn áður hafði lengst
af verið hægur NNA-kaldi og
lygndi um kvöldið, en nú var
komið stórviðri af ANtA, beint á
eftir, og nokkur sjór og mistur
svo mikið í lofti, að hvergi sá til
lands. Út af Ingólfshöfða mætt-
um við enskumi togara; það var
eina skipið, sem sást allan dag-
inn. — Veðrið fór vaxandi, og
upp úr nóninu var það orðið 9—
10 stig og sjór að sama skapi.
Vorum við þá að líkindum komn-
ir í Meðallands-sjóinn, en vissum
ekki nákvæmlega hvar, því að
aldrei sást til lands, en þegar
svona stendur á, er bezt að vera
ekki of nærri Meðallandsfjörun-
um. Var því farið með allri
gætni: Stanzað með klst. milli-
bili og lóðað (og hefði nú kom-
ið sér vel að hafa bergmáls-
djúpmælin!gar)i, því að dýpið, eða
misdýpið (álarnir) á þessum
slóðum gefur góðar bendingar
um stað skipsins og öryggi, en
einu sinni var stoppað í eina
klst. og andæft (“slóvað”)| til þess
að sjá hvort ekki rofaði til lands,
en það varð ekki og var því hald-
ið áfram. Sjór var nú tekinn að
ýfast, allur í löðri og stórir brot-
sjóar á víð og dreif. “Skalli”
hafði þá beint á eftir og ginu þeir
all-ófriðlega yfir afturenda skips-
ins, en varð lítið álgengt; að eins
gusur við og við inn á skipið aft-
an vert, eða þegar verst var foss-
ar yfir báða borðstokka og sjó-
flaumur fram eftir endilöngum
hliðargöngunum, fram á fram-
dekkið, og þaðan út í sjó. Fram
undan skipinu risu sjóirnir langt
til beggja hliða, eins og drif-
hvítir snjóskaflar, 2 m. eða vel
það, upp yfir framstafn skipsins
eða hafsbrún, úr stýrishúsinu séð.
og var en!gu líkara, en skipið
sigldi í snjóbreiðu eða í boðum
við land og var gott að vita, að
það var altaf langt til botns og
ekki um grunnbrot að ræða.
“Skalli” rann á kostum, 10
mílna ferð, með sjóinn beint á
eftir, en var helzt til of fram-
hlaðinn í svona miklum, sjó, sem
j ferð skipsins stakkar að mun I
við báða enda þess, um leið og
hann grefst niður um miðjuna.
í mestu sjóunum stöðvaði því
skipstjóri altaf vélina, til þess að
draga úr ferð skipsins og áhrif-
um sjóanna á það. Það er talið
vandaverk, að stjórna vel skipi
(og her) á undanhaldi, þegar ó-
vinurinn sækir fast á eftir;
mörgum opnum bátum hefir, ekki
sízt við Faxaflóa, orðið hált á
undanhaldinu í vondu. Þetta veit
Guðmundur skipstjóri, sem sjálf-
ur er Inn-nesja maður, og mundi
því ekki þykja það neitt last, ef
sagt væri um hann, að hann væri
“góður á lensinu.”
Á “Skallagrími” var annars alt
rólegt um daginn; stormsins
gætti lítið, því að skipið hélt und-
an honum, og hreyfingar allar
þýðar — nema þegar skipinu
var lagt flötu við veðri og sjó,
áður en lóðað var, þá þótti mér
“Skalli” velta, og alveg var mér
það óskiljanlegt, hvað vel hann
varðist brotsjóunum, sem komu
æðandi að skipshliðinni, eins og
þeir ætluðu alt að gleypa, en urðu
nær alt af að enda undir botnin-
um á “Skalla”, sem velti sér á
þá, er þeir komu að síðunni, en
undan þeim, er þeir ætluðu inn
yfir borðstokkinn, svo að alt löðr-
ið fór undir skipið. Um skipið
mátti alt af fara með lagi og
heilsan var í bezta lagi.
Dagurinn leið, svo að ekkert.
sást til lands, ve'gna moldviðris.
þó að bjart væri uppi yfir og
stundum sólskin. Af lifandi ver-
um sáum við kringum skipið að-
eins tvo hópa af smáfuglum
(þúfutitlingum?) undan Breiða-
merkursandi, einn höfrung, sem
synti um hríð í kapp við skipið.
undan Ingólfshöfða og mergð af
skúmum í lofti og á sjó. Ekkert.
skip síðan um hádegi. — Eg hafði
oftast evrið uppi um daginn, því
að mér var það nýlunda, að vera
á sjó á litlu skipi í vondu veðri
og þótti gaman að sjá alt, sem
fyrir augu bar, og þó að komið
væri miðnætti og orðið dimt, gat
eg ekki fengið mig til að taka á
mig náðir fyr en eg sæi Dyrhóla-
vitann, ef þess væri kostur, því
að í raun og veru vissum við ekki
nákvæmlega hve langt við vorum
komnir, þar sem stönsin, bylgju-
línan yfir sjóina, o'g stormurinn,
sem rak á eftir, gerðu vegamæl-
inguna óvissa. Loksins sást vit-
inn kl. 1 all-skamt fram undan á
stjórnborða og sýndi, að við vor-
um alveg á réttri leið, all-djúpt.
og mátti það heita vel stýrt, þar
sem farið var frá fremur óá-
kveðnum stað og ekkert land
hafði sézt í 13 klst.
Nu var eg ánægður, og fór nið-
ur, sofnaði fljótt og vaknaði ekki
fyr en um 7-leytið vestur í miðj-
um Eyrarbakkasjó; þar vorum
við í landvari og á sléttum sjó,
en um nóttina hafði verið svo
slæmt fyrir austan Eyjar, að skip-
stjóri sagði það hafa verið með
versta sjó, sem hann hefði kom-
ist í þar og eina klukkustund lét
hann “reka á reiðanum”, e: stöðv-
aði vélina og lofaði kuggnum að
renna undan veðri og sjó; þótti
hann of illa hlaðinn til þess að
sigla mikið í þessu.
Þegar eg hafði fengið morgun-
verðinn, fór eg fram á skipið til
þess að mæla og kvarna nokkuð
af fiski, er eg hafði tekið frá, áð-
ur en farið var af stað að austan.
Var nú fyrst næði til þess, þó
ekki lengi, því þegar komið var
vestur í Grindavíkursjó, var veðr-
ið hið sama og daginn áður, og
sjór versnaði eftir því sem nær
kom Reykjanesi . — Þóttu mér
nú sjóirnir rísa all-hátt, frá
dekkinu séð, fyrir aftan skipið.
en það varðist vel, og fékk lítið
sem ekkert inn, og eg hélt áfram
við fiskinn. Loks sé eg hvar helj-
armikill sjór rís á bakborða aftan
við skipið, en bátsmaðurinn kem-
ur á harða spretti fram á skip,
segir mér að hætta þegar í stað
við fiskinn, því að voði sé á freð-
um, og hér sé ekki óhætt að vera.
En það er jafn-snemma að sjór-
inn beljar inn yfir skipið að aft-
an og bátsmaðurinn “býður mér
arminn” og halar mig með sér
aftur eftir dekkinu, samtímis því
að sjórinn skolaðist yfir það, þó
ekki dýpra en í mfiðjan legg. Er-
um við brátt á þurru ’Tandi” á
afturdekkinu, við brúna, og segir
bátsmaður mér nú að gera svo vel
og fara upp á brú og koma ekki
niður dekkið aftur, því að þar
væri háski að vera. Fyl'gdi þess-
ari skipun svo mikill alvöru-
þungi, að mér datt ekki annað í
hug en að hlýða. Skömmu seinna
kom slæmur sjór aftan á og keyrði
skipið svo mikið niður að framan,
að það átti eins og erfitt með að
lyfta sér aftur, en engan usla
gerði hann annars, og óhætt hefði
mér víst verið niðri. Enskur tog-
ari, sem kom þarna á móti okkur,
fékk heldur en ekki að “súpa á
sjó” og hjó gríðarlega.
Við nálguðumst nú Reykjaness-
röst óðum og hefði þessi mikli
austansjór staðið illa í bælið
hennar, c: verið austurfall í
henni, þá hefði hún orðið ófrýni-
leg og varla fær, en þegar að
henni kom á s.n. Eystra-Streng,
sem liggur til hafs undan Skarfa-
setri, reyndist hún að vera “slétt
eins og rjómatrog”. Sigldum' við
nú landvari og smásævi til Garðs-
skaga, og fékk eg nú næði til að
Ijúka við kvarnatökuna; en er kom
fyrir Skagaflösina, fengum við
rokið og krappa báru á móti oss
inn flóann, og töluverða ágjöf,
sem minkaði eftir því sem innar
kom og “Víkur að endingu heil-
um í höfn hepnaðist oss að lenda”
kl. 4, eftir 12 daga, ánægjulega,
hressandi og aflasæla útivist.
Bátsmaðurinn hafði leyst mig úr
banni í Hafnarsjónum — áleit nú
forsvaranlegt, að sleppa “land-
krabbanum” aftur niður á dekk-
ið; var eg því frjáls minna ferða
og hélt sem hraðast heim — eins
og hinir. — Lesb.
ALÞINGI SLITIÐ.
Klukkan sex síðdegis í gær var
fundur settur í sameinuðu þingi
og fóru þar fram þingslit.
Forseti Sþ., Einar Á^nason,
skýrði frá störfum þingsins. Það
hafði setið 113 daga. 99 fundir
voru haldnir í Nd., 98 í Ed., 17
í Sþ., alls 214 fundir.
Alls voru afgreidd 74 lög, þar
af 23 stjórnarfrumvörp. Feld voru
14 frv., fjö'gur afgreidd með rök-
studdri dagskrá, fimm vísað til
stjórnarinnar, en 64 döguðu uppi,
þar af fimm stjórnarfrumvörp.
Fram voru bornar 27 þingsálykt-
unartillögur og voru 9 samþykt-
ar. Ein fyrirspurn var borin fram
í Nd. en var ekki svarað. Alls
fékk þingið 189 mál til meðferð-
ar. —
Þá las forsætisráðherra upp
boðskap konungs, um að Alþingi
væri að þessu sinni slitið. Bað
hann því næst þingmenn að minn-
ast ættjarðarinnar og konungs
mieð ferföldu húrra, og var það
'gert.
Þar með var þessu 113 daga
þingi — lengsta sem háð hefir
verið — slitið. — Mgbl. 7. júní.
FRA ISLANDI.
Byrjað er fyrir nokkru á brúnni
á Þverá við Hemlu, og búist við
að brúarsmíðinni verði lokið í
ágúst. Brúin á Affallið á að verða
fullgerð í september.
Prentunar
þá lítið inn eða skrifið til
The Columbia Press Ltd.
sem mun fullnægja
þörfum yðar