Lögberg - 30.06.1932, Blaðsíða 8
BIs. 8.
LÖGBERG, FIMTUDAGINN 30. JÚNÍ 1932.
Robiir'Hood
FLÓUR
Mjölið malað vísindalega úr hveiti
Vesturlands bóndans í afbragðs
Sléttumyllum
*
+■
_________________________________*•
Úr bœnum og grendinni
-—+
Heklufundur í kvöld, fimtudag.
Sunnudaginn 3. júlí messar séra
Si'g. Ólafsson að Hnausum kl. 11
árd., og í Riverton kl. 2 e. h.
Dr. A. V. Johnson, tannlæknir,
verður í Riverton þriðjudaginn
5. júlí.
Messur í Gimli prestakalli næsta
sunnudag, þ. 3. júlí, eru fyrirhug-
aðar þannig, að morgunmessa
verður í Betel á venjulegum tím!a.
kl. 9.30 f. h., og síðdegismessa í
kirkju Víðinessafnaðar, kl. 2 e.h.
(ensk messa). .Séra Jóhann
Bjarnason prédikar í bæði skift-
in. Mælst er til að fólk fjöl-
menni.
■Mr. og Mrs. K. B. Snæfeld, frá
Hnausa, Man., eru stödd í borg-
inni.
Herberlgi til leigu að 762 Victor
Str., með húsgögnum eða án
þeirra. Sími 24 500.
Gefin saman í hjónaband, hinn
25. þ. m., John Gillis og Grace
Margaret Baker, bæði til heimiL
is í Winnipeg. Hjónavígslan fór
fram í kirkjunni á William Ave.
og Juno Str. Rev. A. H. Argue
gifti.
Beaiity Parlor
643 Portage Ave.
Corner Sherbrooke Str.
Mundy’s Barber Shop
Sími: 37 468 Heimlli: 38 005
Mrs. S. C. Thorsteinson
Laugardaginn 25. júní voru þau
George Hilton Palmer, frá Winni-
peg, og Guðrún Kristín Marteins-
son, 'frá Hnausa,, Man., gefin
saman í hjónaband í kirkju
Breiðuvíkur safnaðar, að Hnausa,
af séra Rúnólfi Marteinssyni,
föðurbróður brúðarinnar. Miss
Anna Marteinsson, systir hennar,
lék á orgel, en Mrs. Schollie, syst-
ir brúðgumans, lék á fiðlu. Við-
statt var allmargt skyldmenna
brúðhjónanna. Að vígslunni lok-
inni var farið heim að Hofi, þar
sem búa foreldrar brúðarinnar,
Bjarni og Hellga Marteinsson, og
bróðir og tengdasystir, Edwin og
Guðný Marteinsson. Þar stóð
rausnarlegt og ánægjulegt sam-
sæti. Að því búnu lagði fólkið,
sem kom frá Winnipeg, á stað
heim. Brúðhjónin fara skemti-
ferð til Clear Lake í Manitoba.
Svo setjast þau að á heimili sínu
í Winnipeg.
ATTUNDA ÞING
Hins Sameinaða Kvenfélags
Hins Ev. Lút. Kirkjufélags Islendinga í Vesturheimi
Haldið í Winnipeg, Man.
Þriðjudaginn 5. Júlí og Miðvikudaginn 6. Júlí
1 KIRKJU FYRSTA LÚT. SAFNAÐAR
FYRSTI FUNDUR, Þriðjudaginn 5. júlí, kl. 2 e. h.
Tekið á móti kjörbréfum, nýjum félögum og meðlimum,
skýrslum embættiskvenna og félaga.
Gömul mál—Ný mál.
ANNAR FUNDUR kl. 8 e. h.
Programme
Piano Solo....................Miss Dora Guttormsson
Vocal Duet—“Greeting” .................Mendelsohn
Mrs. K. Johannesson Mrs. Lincoln Johnson
Erindi—Mrs. E. Fáfnis, Glenboro, Man.
Vocal Solo—“Sönglistin”................S. K. Hall
“Vorvindur” ................S. Kaldalóns
Mrs. K. Johannesson
Erindi—“Áhrif kristinnar konu og móður á mannfélagið”
Mrs A. Buhr, Winnipeg, Man.
Vocal Duet—“Syng þú mér ljúflings lag”.. .B. Guðmundsson
Mrs. Lincoln Johnson Mrs. K. Johannesson
Mrs. F. Fredrickson accompanist
hRIDJI FUNDUR, MiSvikudaginn 6. júlí, kl. 2 e. h.
Piano Duet—“Donny Brook Fair”
Norma Benson Valdin Ingaldson
Erindi—“Börnin og náttúran”—Mrs. S. Guttormsson, Wpeg.
Vocal Solo—Mrs. A. Hope.
FJÓRÐI FUNDUR, kl. 8.15 e. h.
Piano Solo—Miss B. Eyjolfson.
Erindi—Mrs. O. Schultz, Pilot Mound, Man.
Vocal Selection—Miss Margarethe Thorlakson.
Erindi—“Myndir frá Japan.”—Mrs. S. O. Thorlakson.
íslenzk stúlka, þrifin og reglu-
söm, og vön öllum hússtörfum, ósk-
ar eftir atvinnu nú þegar, í bæn-
um, eða út í sveit. Kaupgjald eft-
ir samkomulalgi. Upplýsingar veit-
ir Mrs. G. Erickson, 950 Garfield
St. Sími: 89 527.
Þann 23. þ. m. lézt að Lundar,
Man., Mrs. Lilja Sölvason, ekkja
Lárusar heitins Sölvasonar þar í
bygð. Hin látna kona lætur eftir
sig tvær dætur, þær Mrs. Jane Mac,
að 991 William Ave. hér í borginnb
og Ms. Th. I. Kistjánsson, að Víðir
P.O., Man.—Jarðarför Mrs. Sölva-
son fór fram að Lundar, síðastlið-
inn laugardag. Mr. Bjarni A.
Bjarnason, guðfræðanemi, talaði
yfir moldum hinnar látnu.
Áttunda þing hins Sameinaða
kvenfélags, verður haldið í fund-
arsal Fyrstu lútersku kirkju,
þriðjudaginn og miðvikudaginn í
næstu viku, 5. o!g 6. júlí, eins og
auglýst er á öðrum stað I þessu!
blaði. Á undanförnum árum
hafa fundir þessa félags verið
vel sóttir og hafa þótt uppbyggi- j
legir og skemtile'gir og má óhætt|
gera ráð fyrir, að svo verði enn
ekki síður en áður. Er öllum kon-
um, yngri o!g eldri, giftum og ó-1
giftuml, boðið að sækja fundinn. ■
Erindi verða flutt og skemt verð-
ur með söng og hljóðfæraslættij
bæði kveldin og einnig seinni-
partinn á miðvikudagnn. Þær kon-
ur, sem geta komið því við, ættu
ekki að láta hjá líða, að sækja
þessa fundi.
Fermingar - !guðsþjónusta á
ensku verður haldin að Mountain,
N. Dak., í kirkju Víkursafnaðar,
kl. 11 f. h. næsta sunnudag, 3.
júlí. Fer almenn altarisganga
fram við guðsþjónustuna, og er
fólk hvatt til þess að færa sér
hana í nyt. Þrjú börn trúboðs-
hjónanna, Margrethe, Octavíus
og Erik, verða fermd af afa sín-
um, er einnig prédikar. Séra
Octavíus og frú hans, Carolína,
eru á förum með fjölskyldu sína
aftur til Japan. Verður þetta því
síðasta tækifærið fyrir fólk á
þessum slóðum, til að sjá þau og
kveðja, áður en þau hverfa á
braut til trúboðsstöðva sinna.
Að kvöldi sama da!gs, kl. 8, fer
guðsþjónusta fram á íslenzku í
kirkju Vídalíns safnaðar.
Vonast er eftir að fólk fjöl-
menni við báðar guðsþjónust-
urnar.
H. Sigmar.
EFTIRSPURN.
Bréf hefir undirrituðum borist,
ritað fyrir hönd aldraðs manns,
Jóns ísfjörð, skósmiðs á Siglu-
firði, íslandi, er með fram vegna
væntanlegs arfs, óskar að ná sam-
bandi við son sinn, sé hann á lífi,
Valdimar Johnson, er síðast dvaldi
(hjá systur sinni ónafngreindri)
í Mikley (Big Island, Hecla P.O.),
Manitoba. Þeir sem kynnu að
geta veitt upplýsingar um Mr.
Johnson, eru góðfúslega beðnir að
senda þær undirrituðum.
Friðrik A. Friðriksson.
Box 388, Blaine, Wash.
Brynjólfur Thorláksson
tekur að sér að stilla
PIANOS og ORGANS
Heimili 594 Alverstone St.
Sími 38 345
Kveðjusamsæti
Kveðjusamsæti var þeim séra
O. S. Thorlaksson, frú hans og
börnum, haldið í samkomusal
Fyrstu lútersku kirkju, á þriðju-
dalgskveldið. Stóð trúboðsfélag
safnaðarins fyrir því. Var það
all-fjölment og skemtilegt, þó til-
efnið væri naumast þess eðlis,
því í sjálfu sér er það ekki skemti-
legt, að kveðja vini sína og eiga
þess ekki von að sjá þá aftur í
mörg ár.
Dr. Björn B. Jónsson stýrði
samsætinu og eftir að miáltíðinni
var lokið, var skemt fram eftir
kveldinu með hljóðfæraslætti,
söng og ræðuhöldum. Miss
Fjeldsted Iék á fiðlu og Mrs. B.
H. Olson söng einsöngva, en Mrs.
Hetgason lék á hljóðfærið. Til
máls tóku, auk veizlustjóra, Mr.
J. G4 Jóhannsson, séra Rúnólfur
Marteinsson og Mrs. O. Stephen-
sen. Þau séra Rúnólfur og Mrs.
Stephensen fluttu trúboðshjónun-
um ávörp og færðu þeim nokkr-
ar minningargjafir.
Bæði fluttu trúboðshjónin stutt-
ar tölur og þökkuðu fyrir sam-
sætið, en ekki síður fyrir alla aðra
velvild og ánægju, sem þau höfðu
notið hjá Fyrsta lúterska söfnuði
og öðrum vinum í Winnipeg með-
an þau dvöldu hér í þetta sinn.
Oss langar til að me!ga segja
frú Thorlaksson, ef hún les þess-
ar línur, að ræðan sem hún flutti
við þetta tækifæri, var prýðis-
falleg.
Eftir að samsætinu var lokið,
] kvöddu allir hjónin og börn
þeirra, þökkuðu þeim fyrir dvöl-
ina í Winnipeg og árnuðu þeim
heilla.
Rev. og Mrs. Thorlaksson fóru
á miðvikudaginn til Mountain, N.
Dakota, en koma hingað aftur í
næstu viku, áður en þau leggja
af stað, áleiðis til Japan.
í bi^tingu fermingarbarnanna
frá Upham, N. Dak., í síðasta
blaði, hefir misprentast eitt
nafnið. í blaðinu stendur: Thórð-
ur Magnús Árnason, en á að vera
Thordur Allan Arnason.
| TO LET—Store building at
Foam Lake, Sask., a predominant
Icelandic town and district, suit-
able for general store business.
Living quarters, 5-room suite,
second floor. Available July lst.
Rent only $30 for both store and
suite. Will alter and decorate
| to suit. Apply by letter to Owner,
P.O. Box 104, TREHERNE, Man.
Mr. Hjörtur Bergsteinsson frá
Alameda, Sask., er staddur í borg-
inni. Hann kom hingað á mánu-
daginn og fer heimleiðis á föstu-
daginn. Hann kom í bíl sínum og
er erindi hans aðallega að sækja
dætur sínar tvær, sem hér hafa
stundað nám í vetur. Mr. Berg-
steinsson lætur heldur vel af
uppskeruhorfum í sinni bygð. Út-
lit nú miklu betra, hvað það
snertir, heldur en á undanförn-
um árum. En búskapurinn, seg-
ir Mr. Bergsteinsson, að sé erf-
iður mjög, jafnvel þó uppskera
verði sæmilelga góð, vegna hins
afar lága verðs á öllum búnaðar-
afurðumi. Mr. Bergsteinsson hef-
ir um langt skeið búið stóru búi
í grend við Alameda, en aldrei
segir hann að búskapurinn hafi
verið eins erfiður, eins og nú.
Bréf til Lögbergs.
Bréf það, sem hér fer á eftir,
er frá þjóðkunnum mentamanni
á íslandi og er dagsett í Reykja-
vík hinn 7. þ.m.:
“Beztu þakkir fyrir Lö!gberg,
sem eg hefi fengið reglulega síð-
an um áramót. — Eg dáist að,
hve ykkur tekst lengi að viðhalda
vestra íslenzkri tungu og láta
ykkur umhugað um íslenzk mál-
efni, án þess þó, að meiri sam-
göngur séu milli ykkar og ís-
lands. Eg hefi orðið þess var, að
menn, sem! fæðst hafa vestra af
íslenzkum foreldrum o!g alist þar
upp alla sína æfi, tala íslenzku,
þótt þeir hafi aldrei fyr á æfi
sinni komið til íslands. Eg held
ekki, að börn íslenzkra foreldra
annars staðar, t. d. hér í ná-
grannalöndunum, geri þetta. Eg
efast ekki um, að íslenzku blöðin
ykkar vestra, eiga mikinn þátt í
þessu. Tel eg það vel farið og
óska ykkur allra heilla í því
efni.”
Jón Helgi Sveinsson, 54 ára
gamall, andaðist hér í bænum,
rétt eftir uppskurð, þ. 12. júní s.l.
Foreldrar hans voru Sveinn
Ma!gnússon og Halldóra Guð-
mundsdóttir, er lengi áttu heima
hér í borg, en fluttu síðan til
Gimli og önduðust þar. Þau hjón
voru úr Strandasýslu og munu
hafa flutt til Vesturheims árið
1887. Dætur þeirra hjóna eru:
Mrs. Þuríður Hólm, ekkja, er býr
að Dvergasteini, í grend við
Gimji, og Mrs. Oddbjörg Jóhann-
son, húsfreyja á Bólstað, skamt
fyrir sunnan Gimli . Uppeldiö-
bróðir þeirra systkina, er Þórar-
inn Magnússon á Gimli. Hólfbróðir
Halldóru, móður þessara syst-
kina, er Guðmundur Jónsson,
einnig til heimilis á Giml. — Jón
Svensson var maður vel látinn og
vinsæll. Var listrænn í huga.
Hafði yndi af hljóðfæraslætti og
sön!g. Eins og títt er um Islend-
inga, hafði hann lært þar af sjálf-
um sér og spilaði furðuvel á org-
el og píanó. — Jarðarför Jóns
sál. fór fram fyrst með húskveðju
að Dvergasteini og svo með út-
farar-athöfn, er var fjölmenn, frá
kirkju Gimlisafnaðar, þ. 15. júní.
séra Jóhann Bjarnason jarðsöng.
Jón Bjarnason Academy.
GJAFIR:
Mrs. Rannveig Johnson,
Winnipeg,............... $10.00
Rev. J. A. Sigurðsson...... 10.00
Mrs. Helga Sumarliðason,
Seattle, Wash............ 10.00
(Þessi 'gjöf er borin fram í minn-
ingu um það, að nú eru liðin 100
ár frá fæðing Sumarliða Sumar-
liðasonar, er lézt árið 1926).
Með innilegu þakklæti.
S. W:. Melsted, gjaldk.
FRÁ ÍSLANDI.
Reykjavík, 6. júní 1932.
í morgun brann bærinn Iða
(austurbærinn) í Biskupstung-
um á skömmium tíma til kaldra
kola. Um upptök eldsins er ófrétt.
Einhverju af fatnaði og rúmföt-
um var bjargað. Bærinn var mjög
lágt vátrygður.—Bóndinn í aust-
urbænum heitir Einar Sigfússon.
Reykjavík, 8. júní.
Laxveiði er byrjuð í Elliðanán-
um fyrir nokkrum dögum, en er
treg, sökum þess hve árnar eru
vatnslitlar. Eitthvað af laxi hef-
ir þó komist upp fyrir rafstöðv-
arstíflu.
—Mgbl.
íslenska matsöluhúsíð
Barnaheimilið
Egilsstaðir
í Hveragerði í Ölfusi.
Flestir Reykjavíkurbúar, sem
lásu dagblöðin hér í júlíbyrjun í
fyrra, munu minnast lofsamlegra
ummæla þeirra um Egilsstaði, hið
nýstofnaða barnaheimili Afmæl-
isfélagsins hjá Mjólkurbúi ölves-
inga, og mun nú þeim, sem áhuga
hafa fyrir heilsuvernd barna og
barnauppeldi orðið mál á að heyra
eitthvað um áranlgurinn af þess-
ari dvöl barnanna þar.
í maíblaði læknablaðsins skýrir
læknir heimilisins all ítarlega frá
árangrinum bæði þeim beina ár-
angr, sem sást við lok dvalar-
innar og þeim óbeina árangri, sem
lýsir sér í gagngerðri breytingu
á heilsufari mragra barnanna
síðan, og er hvorttveggja svo
merkilegt, að fáa mun hafa órað
fyrir því.
Á heimilinu dvöldu 38 börn í
tvo mánuði, flest kirtlaveik, aft-
ur úr í þroska og heilsuveil, úr
sólarlitlum íbúðum og af berkla-
heimilunum t. d. voru 8 frá Líkn.
Ekkert barnið hafði þó smitandi
berkla. Samkvæmt töflu sem
skýrslunni fylgir, var heildar-
árangur dvalarinnar sá, að öll
börnin þyngdust saman lagt um
einn hestburð eða um 5 pund að
meðaltali á barn og hækkuðu um
52 sentimetra eða 1.37 sm. á barn
að meðaltali, þyngdin og hæðar-
aldur ukust við það stórum, svo
að þroskaaldur barnanna óx um
sex mánuði að meðaltali á þess-
um tveim mánuðum. Mesta hækk-
un einstaks barns var 3 cm., en
minst 0. Mesta þyngdaraukning
varð 13% pund, en minst 2 pund.
Taflan er reiknuð út eftir töflum
Dr. Schiötz í Osló, en mælingar
gerði forstöðukonan, Þuríður Þor-
valdsdóttir skólahjúkrunarkona
sjálf vikulelga á mælitæki, sem léð
voru úr barnaskólanum og er það
þess vegna tryggilegt að rétt sé
mælt og á góð tæki.
Fleirá er merkilegt í þessu sam-
bandi, t. d. að barn, sem alt af
hafði verið heilsuveilt og legið
tímum saman í eitlahita og lá
mestallan tímann austur frá og
þess vegna oft borið út í sólskinið,
þetta barn bætir við sig 8 mánuð-
um í auknum þroskaaldri, og það,
sem meira er, að því hefir aldrei
síðan orðið misdægurt. Þetta er
ekkert einsdæmi, heldur er regl-
an sú, um öll börnin, sem til hefir
spurst um nú í vor, að þau hafa
aldrei verið eins hraust og í vetur.
Það er sá óbeini árangur, sem
einnig knýr Afmælisfélagið til
starfs í sumar þrátt fyrir þröngan
f járhag og almenna kreppu. Stjórn
Afmlælisfélagsins finnur að þessi
starfsemi má með engu móti legígj-
ast niður, og það hljóta allir góð-
ir menn að finna líka. — Mgbl.
gmrdsson=Tr'horvaldson
Compamiy Limiifced
GENERAL MERCHANTS
Útsölumenn fyrir Imperial Oil Limited
Royalite Coal Oil, Premier Gasoline
Tractor and Lubricating Oils
ARBORG
Phone i
RIVERTON
Ph one i
Manitoba, Canada.
HNAUSA
Phone 51, Ring 14
par Rera tslentllngar I Wlnnipeg og
utanbæjarmenii fá sér máltíðir or
kaffi. Pðnnukökur, skyr, hangikjö
og rúllupylsa á takteinum.
WEVEL CAFE
692 SARGENT AVE.
Slmi: 37 464
RANNVEIG JOHNSTON, elgandl
MOORE’S TAXI LTD.
28 333
Leigið bíla og keyrið sjálfir.
Flytjum pianos, húsgögn, farang-
ur og böggla.
Drögum bíia og geymum. Allar
aðgerðir og ökeypis hemilpröfun.
Jakob F. Bjarnason
TRANSFER
Annast greiðlega um alt, sem að
fiutningum lýtur, smáum eða atör-
um. Hvergi sanngjarnara verð.
Heimili: 762 VICTOR STREET
Simi: 24 500
JOHN GRAW
Fyrsta llokks klæðskeri
Afgreiösla fyrir öllu
Hér njóta peningar yðar sín að
fullu.
Phone 27 073
218 McDERMOT AVE.
Winnipeg, Man.
25 ARA AFMÆLIS
ARB0RG C0-0PERATIVE CREAMERY
ASS0CIATI0N
verður minst 1. júlí næstkomandi að Arborg, Man., með
fjölbreyttri skemtisamkomu. Þar verður saga smjör-
gerðar fyrirtækisins sögð. Ræður verða þar margar.
Einnig söngur og hljóðfærasláttur. Allskonar íþróttir
fara fram allan daginn. Þetta verður bezta almenna
úti og inni samkoma bygðarinnar á þessu ári. Enginn
inngangsej'rir.
Stjórnarnefndin.