Lögberg - 30.11.1933, Page 2

Lögberg - 30.11.1933, Page 2
Bls. 2 LÖGBERG, FIMTUDAGINN 30. NÓVEMBER, 1933. Varðveizla íslenzkra erfða Eftir prófessor Ricliard Reck. (Erindi flutt 20. nóvember 1933, á samkomu félagsskapar þess, sem vinnur að stofnun islenzks bóka- safns og kennarastöðu í islenzkum fræÖum viÖ Manitoba-háskóla). ViÖ samningu þessa erindis hafa mér þráfaldlega hvarflaÖ í hug orð boðorðsins: “Heiðra skaltu föður þinn og móður, svo aö þér vegni vel, og að þú verðir langlífur í landinu.” Eflaust hefir fleirum farið á sömu leið, þegar þeir hafa hugleitt, hvert verða muni framtíðarhlutskifti vort og afkomenda vorra í landi hér. Séð hefi eg þess einnig getið á prenti, að leiðtoginn mikilhæfi, séra Jón Bjarnason, hafi minst á boðorðið það i sambandi við þjóðernislega starfsemi vora í þessari álfu. Ekki er það heldur undravert, þó að þeim, sem láta sér ant um hlutdeild vora ,í hérlendri menningu, finnist boð- orðið um ræktarsemi við foreldr- ana tala til sín beinna og kröftugar en til annara. Vanræksla við ætt og erfðir hefir aldrei til langframa reynst einstaklingum eða þjóðum hamingjuspor. Það hefir alt af hefnt sín grimmilega, að afneita hinu bezta í sjálfum sér, i ætt sinni og arfleifð, og gerast hermikráka annara. Slíkt er einhver greiöasta leiðin niður á jafnsléttu meðal- menskunnar og allar götur niður í djúp gleymskunnar. Skáldið Stephan G. Stephansson hefir fært þessa hugsun í snildar- legan og kjarnmikinn búning Jk kvæðinu ‘‘Gróðabrögð.” Honum skildist fyllilega, að það er ekki ein- hlýtt til varanlegrar auðsöínunar að afla sér fjár; um hitt er ekki minna vert, að menn kunni að gæta fengins fjár, svo sem fornkveðið er. Ligg- ur í augum uppi, að sú meginregla á engu síður við öflun og varðveislu andlegra verðmæta heldur en við auðsöfnun í venjulegri merkingu. Enda þarf enginn að draga í efa, að umhyggjan fyrir andlegum gróða, óttinn við hið menningarlega tap, var efst í huga skáldsins þegar hann orkti þetta ágætis-kvæði sitt. Meðal annars farast honum svo orS: “í tvent skiftast gróðabrögð: gæsl- una og aflann— en geymslan snýst þrátt upp í vandræða-kaf lann eins flókian um menning sem fé. Því byggja oft ættlerar frægustu feðra in fallandi vé. Það leiðir af annara loftunga að vera, en lítið og ekkert úr sínum hlut gera. Það lækkar. Menn hefjast við hitt, að horfast í augu við hátignir allar og hagræða um sitt. Að skreyta sig glingri frá erlendum álfum er örvasans fávit, en týna sér hálf- um . Því tap er hvert góðyrði gleymt. En manndáð sú hagsælir heimili og nágrend, sem hnoss sín fékk geymd.” Með þessa heilnæmu kenning i huga, að menn vaxi af því andlega, að varðveita erfðagull sitt og ger- semar, er það engin tímaeyðsla, að rif ja upp fyrir sér stuttlega í hverju vorar islenzku erfðir eru einkum fólgnar; ekki til þess, að vér fyll- umst hroka, heldur til hins, ef verða mætti, að auka oss skilning á arf- leifð vorri og heilbrigðan metnað vorn. Oss íslendingum hefir löng- um orðið tíðrætt um smæð ættlands vors, um mannfæð þess og fátækt. Að slá á þann strenginn er fjarri mér að þessu sinni. Hitt er mér hag- stæðast, að minna yður á, að vér íslendingar erum stórauðug þjóð, miklu ríkari en margir vor á meðal gera sér fulla grein fyrir. Vér er- um hluthafar í margþættum og glæsilegum menningararfi. Þau verðbréf vor standa í gulls gildi hvað sem líður sveiflunum á stormasöm- um heimsmarkaðinum. Vér eigum sígildar (klassiskar) fornbókmentir, jafn snildarlegar að efnismeðferð, málfæri og mannlýs- ingum. Sannur aðalsbragur er þar tíðum á frásögninni, tíguleiki i efn- isvali og framsetningu. Hið litilmót- lega og sauruga er þar ekki leitt til hásætis, eins og nú gerist mikil bók- mentatíska. í íslendingasögum er heiðríkja og hreinviðri; því er það hugarhressing og göfgun, að eiga samneyti við þá menn og konur, sem-þar klæðast holdi og blóði fyrir sjónum lesandans. Listgildi og lifs- gildi haldast þar löngum dyggilega í hendur. Of mikil áhersla verður ekki lögð á það, að í fornsögurnar hefir þjóð vor sótt næring og þrótt til framsóknar á liðnum öldum; þær hafa einnig verið öðrum þjóðum nægtabrunnur. í því tilliti nægir að minna á, hver orkulind fornsögurn- ar íslenzku reyndust frændum vor- um Norðmönnum í sjálfstæðisbar- áttu þeirra á öldinni, sem leið. Og vel megum vér þá íslendingar hafa það hugfast, að gnægð lífsvatns er enn að finna í brunninum þeim. Prófessor Halvdan Koht, einhver allra fremsti sagnfræðingur Norð- manna, núlifandi, bendir réttilega á það í upphafi hinnar eftirtektar- verðu bókar sinnar um fornsögur vorar (The Old Norse Sagas, 1931) að fæst rit miðaldanna séu við skap nútíðarlesendanna; jafn réttilega bætir hann því við, að það sé ein- mitt hið furðulega um fornsögurn- ar íslenzku, að þær séu þann dag í dag lifaijdi bókmentir, og finni því frjósaman jarðveg hjá lesendum vorrar tíðar engu síður en fyr á öld- um. Sjálfur hefi eg reynt, að þetta er ekki talað út í bláinn; eg hefi farið-yfir Njáls sögu, í enskri þýð- ingu, með nemendum, sem ekki voru af íslenzkum uppruna, né heldur af norrænum ættstofni, og séð þá hríf- ast af mikilleik atburðanna og snild- inni á frásögninni. Má þá ætla, að þeir, sem af íslenzku bergi eru brotn- ir, finni í þeim ritum eitthvað vert aðdáunar, sé hugur þeirra laðaður að snildarverkum fornrita vorra. Ekki er minni andleg nautn að þvi, að setjast við fætur skálda Eddu- kvæðanna og nema af þeim ljóð- speki og lífsspeki. Litauðugar og stórfeldar eru þær myndir, sem brugðið er upp í “Völuspá” af upp- runa og endilokum veraldar og ör- lögum mannanna barna. Mikið mannvit, “hyggindi, sem í hag koma,” geyma “Hávamál.” Björt- um geislum stafa þau inn á sálar- djúp forfeðra vorra; og við bjarm- ann af því ljósi verður oss greiðar, að ráða rúnir vors eigin sálarlifs. Hinu ber eigi að neita, að í forn- kvæðum vorum liggur gullið, jafn- aðarlega, hvergi nærri eins laust fyrir og í fornsögum vorum. Menn þekkjast af vinum sínum, segir talshátturinn. Bókmentirnar þekkjast einnig af sínum aðdáend- um. Eins og oft hefir verið bent á —en það er þess virði að endurtak- ast—hafa það einmitt verið margir hinir ágætustu og fjölmentuðustu menn erlendir, sem ástfóstri hafa tekið við fornbókmentirnar is- lenzku; óneitanlega eru það þeim hin ákjósanlegustu meðmæli. Sem dæmi nefni eg þann manninn, sem af öll- um útlendingum hefir rausnarlegast sýnt í verki ást sína á„íslenzkum fræðum og íslandi — göfugmennið Willard Fiske, en hann var jafn- framt einn hinn fjölhæfasti og lærð- asti sinna samtíðarmanna, amerískra. Eg hefi staðnæmst við fornbók- mentir okkar af því, að þær eru mestu kjörgripirnir í menningarlegri arfleifð vorri, og enn sem komið er nær eina hlutdeild lands vor i heimsbókmentunum. En þó öss verði að vonum starsýnt á þessar klassisku bókmentir vorar, má oss ekki gleymast, að til eru síðari alda bókmentir íslenzkar, og þær hvergi nærri ómerkilegar. Leit er á snild- arlegri eða andríkari trúarljóðum heldur en Passíusálmum Hallgríms Péturssonar, “er svo vel söng, að sólin skein í gegnum dauðans göng.” Og ennþá færa brennheit bænarmál hans svölun þreyttum sálum. Nú- tíðarmaðurinn, jafnvel sá, sem enga samleið á með séra Hallgrími í trú- málum, fær eigi arinað en dáð snild- ina í sálmum hans. Þeir eru ekki rýr þáttur bókmenta-arfleifðar vorr- ar. , Ófyrirgefanlegt væri það einnig, I að ganga orðalaust fram hjá hinum * næsta auðugu og f jölskrúðugu bók- | mentum vorum frá síðustu hundrað j árum. Eðlilega er þar ekki alt j þungt á gullvog gagnrýninnar. En : mikla andans auðlegð og fegurð er að finna i ritum höfuðskálda vorra frá þeirri tíð, hvort heldur er í bundnu máli eða óbundnu. Þörf gerist eigi að þylja nöfn þeirra, þau munu ykkur öllum í fersku minni. Það eitt er víst, að stórt rjóður yrði höggvið í ^kóglendi bókmenta vorra, ef hið bezta, sem þær hafa auðgast að á síðustu hundrað árum, væri brott numið. Arfleifð vor hin ís- lenzka yrði fyrir það stórurn fá- skrúðugri og fátækari. En íslenzk arfleifð vor er ofin fleiri þáttum. Forfeður vorir voru brautryðjendur þjóðfrelsis og lýð- ræðis. í merkilegri ritgerð um stjórnarskipun og lög lýðveldisins íslenzka kemst prófessor Ólafur Lárusson, sem er þeim hnútum manna kunnugastur, svo að orði: “Islendingar hinir fornu hafa reisf sér veglegan minnisvarða einnig þar sem er lögigjöf þeirra.” (Timarit Þjóðræknisfélagsins, 1930). Trúin á manngildið og virðingin fyrir ein- staklingnum, grundvallar-atriði lífsskoðun forfeðra vorra, eru skráð Ijósu letri í löggjöf þeirra. Að stjórnfrelsislegum og félagslegum þroska voru þeir langt á undan sam- tíð sinni. Hér er sannarlega um merkilegan menningararf að ræða En nokkur ábyrgð fylgir því einnig, að vera arftakar þessara *“frum- herja frelsis.” Umhugsunin um það ætti að hvetja oss til drengilegrar og frjósamrar þátttöku í þjóðfélags málum. Ekki er þess að dyljast, að í orðs- ins list hefir islenzk listhneigð nær eingöngu fundið sér framrás og hæf an búning á liðnum öldum. Sér- fræðingar í tónment halda því samt fram, að myndast hafi “sérstæður íslenzkur stíll í alþýðusöng.” (Emil Thoroddsen). Hljómlist, í viðtæL- ari og æðri merkingu þess orðs, hef ir þó fyrst þroskast á íslandi á síð- ustu sextíu árum. Skal hér nefnd- ur brautryðjandi vor í þeirri ment, Sveinbjörn tónskáld Sveinbjörnsson. Skemtilegt er einnig að minnast þess, að margir prýðilega gáfaðir og skapandi tónsmiðir hafa fylgt hon- um í spor. Söngmenn vorir, sem sungið hafa frumsamin lög íslenzk fyrir erlendum áheyrendum, bera þvi einnig vitni, að lögin þau falli jafnan í frjóa jörð hjá tilheyrend- um, þyki ósjaldan bæði sérkennileg og fögur. Tónment vor er ung, en engu að síður eigum vér þar langt frá ómerkilega arfleifð. fslenzk myndlist hefir einnig fyrst fengið byr undir vængi á síðasta mannsaldri. Þó hefir land vort bor- ið gæfu til, að eignast í myndhöggv- aralist, einhvern hinn djúpsæasta og sérstæðasta snilling í þeirri grein á vorri öld—Einar Jónsson. Frum- leiki, háfleygi og fegurð sameinast i meistaraverkum hans. Sagt hefir verið með réttu. að verk hans væru : “óður um baráttu og sigur hins góða.” í málaralist eigum vér og orðið marga menn gædda ríkri list- gáfu, sem hlutgengir myndu teljast meðal stærri þjóða. Menn eins og Ásgrím Jónsson, Jón Stefánsson, Jóhannes Kjarval, og Guðnnind Einarsson, að taldir séu nokkrir hin- ir kunnustu í listmálarahópnum, hafa að vísu þroskast við erlend áhrif, en eru i insta eðli sínu ramm- íslenzkir og hafa, i beztu verkum sinum, brugðið upp fögrum og stór. fenglegum myndum af íslenzku landslagi og þjóðlífi. Ríkharður Jónsson, einn hinn ramm-þjóðleg- asti og f jölhæfasti listamanna vorra, hefir með'frumleik sínum og hug- myndaauðlegð hafið íslenzkan tré- skurð i hærra veldi. Oss má vera það óblandið fagnaðarefni, að merkileg myndlist er áreiðanlega að skapast á íslandi; hún er þegar orð- inn all-glæsilegur þáttur í menning- arlegum arfi vorum. Hefi eg þá dregið athyglina að hinu merkasta í íslenzkum erfðum; og þó aðeins hafi stiklað verið á stærstu steinum, vænti eg, að það sé augljóst orðið, að eg fór ekki ramBuk Er Óviðjafnanlefft fyrir ECZEMA, KÝLI, KULDABÓLGU og kuldapolla, skurði, öll brunasár, HRINGORM, GYLLINI- æð, ígerð og eitursár með öfgar einar eða ímyndun, þegar eg sagði í byrjun máls míns, að vér íslendingar vrerum stórauðug þjóð að andlegum verðmætum. Það er þá einnig sérstaklega af þrem ástæðum, að eg hefi, við þetta tækifæri, dreg- ið huga yðar að auðlegð og fjöl- breytni íslenzkra erfða. í fyrsta lagi vegna þess, að þær ættu að vera oss hin öflugasta eggjan til góðra verka og stórra; í öðru lagi vegna hins mikla menningarlegs gildis þeirra; og í þriðja lagi vegna þess, að þekking á þessum erfðum vorum er oss nauðsynleg til dýpri og sann- ari skilnings á sjálfum oss. Eg skal aðeins dvelja við síðasta atrið- ið :—ættarerfðir vorar og aukinn skilning á skapgerð vorri; og nægir í því sambandi, að benda á þennan mikilvæga og löngu viðurkenda sannleika. í bókmentum og listum þjóðar hverrar klæðist insta eðli hennar hlutrænum búningi. Þar birtast oss hæstu hugsjónir hennar og dýrnstu draumar, sorgir hennar og gleði, sigrar hennar og ósigrar; segja má, áð þar getum vér heyrt hjartslátt hennar og andardrátt. 1 íslenzkum bókmentum og listum, einkum þó í hinum fyrnefndu, er geymd lífsreynsía þjóðar vorrar, sem keypt hefir verið dýru verði í þrautum þúsund ára ; þar er að finna þá lifsspeki, sem hún hefir eignast gegnum aldaraðir. Þjóðarsálin ís lenzka, eins og hún hefir þroskast við eld og ís, í meðlæti og mótbyr, lifir og hrærist í bókmentum vor- um. Auðsætt er þá einnig, hver uppspretta þær geta orðið oss til aukinnar sjálfsþekkinptr. Er þá komið að kjarna máls míns: —varðveislu hinna íslenzku erfða vorra. Vegna þess hve afar mikil- vægar þær eru frá sjónarmiði þjóð- ræktar og menningar, svo sem þeg- ar hefir sýnt verið, er mörgum vor á meðal það hjartfólgið alvörumál, og vinna að því eftir mætti, að vökva og frjóvga líf afkomenda vorra hér í landi. Þeim hinum sömu, sem að þvi marki starfa, er full-ljóst, að mikið menningartjón hlýst af því, ef íslenzkir menn og konur hér í álfu varpa frá sér íslenzkum erfð- um. Þeir, sem það gera, verða þá sem rótlaus tré, því að menn skjóta ekki andlegum rótum á einu dægri; en af slíkum trjám er ekki mikilla. ávaxta að vænta. Nú kemur mér ekki til hugar að halda því fram, að erfiðleika og fyrirhafnarlaust verði varðveittar íslenzkar erfðir hér í Vesturheimi; engu að síður er eg fasttrúaður á það, að hægt sé, í ein- hverri mynd, að varðveita þessa arf- leifð vora hér í landi, ef vér, sem einstaklingar og flokksmenn, stönd- um saman og teljum eigi eftir oss, að leggja dálitið á oss þeim málum til stuðnings. Þá um ræðir varðveislu íslenzkra erfða í landi hér, virðist mér höfuð- atriðið vera þetta:—afstaða hinnar vngri kynslóðar vorrar til þessara mála. Takist oss eigi, að vekja á- huga hennar á þeim og vinna hana til fylgis við oss, getur vart orðið um miklar framhaldandi sigurvinn- ingar að ræða af vorri hálfu. Kem- ur þá til sögunnar spurningin marg- ' umþráttaða: — viðhald íslenzkrar \ tungu í Vesturheími. Eg hefi altaf verið, og er, eindregið þeirrar skoð— unar, að vér eigum, af fremsta megni, að kappkosta að kenna af- komendum vorum mál feðra þeirra, sjálft móðurmál margra okkar hinna eldri. Því að vér verðum að muna, að tungan út af fyrir sig er langt frá ómerkasti þátturinn í íslenzkri arfleifð vorri. Hún er sá töfra- lykill, sem opnar oss hliðin gullnu að fegurstu heimum bókmenta vorra. Þar við bætist, að með gild- um rökum má segja, að hægt sé að lesa í tungu þjóðar hverrar menn- ingarsögu hennar. Matthías misti ekki marksins þegar hann eggjaði Vestur-íslendinga lögeggjan með þessum hreimmiklu og snjöllu ljóð- línum: “Tungan geymir í tímans straumi trú og vonir landsins sona, dauðastunur og dýpstu raunir, Darraðarljóð frá elstu þjóðum; heiftar-eym og ástarbrima, örlagahljóm og refsidóma, land og stund í lifandi myndum ljóði vígðum—geymir í sjóði.” Á hinn bóginn er þess ekki að dyljast, hvort sem oss líkar betur eða ver, að fjölda margir eru þeir í hópi yngri kynslóðar vorrar, sem eigi hafa lært mál feðra sinna, og því miður vex sá hópur hröðuin skrefum. Illa felli eg mig við þá til- hugsun, að þessi hópur niðja vorra komist alls ekki undir göfgandi, menningarleg áhrif íslenzkra erfða. Ættum vér því undir öllum kring- umstæðum að glæða, eftir föngum, áhuga þeirra á bókmentum vorum, sögu og menningu, með því að fræða þá um þessi efni á þvi máli, sem þeir skilja—enskunni. Skal það að vísu játað, að hvað bókmentirnar snertir, fer löngum eitthvað að for- görðum, þegar þær eru fluttar af einu máli á annað. Hitt er þó jafn- satt, að til eru á enskri tungu marg- ar góðar, og ekki all-fáar ýgætar þýðingar úr islenzkum bókmentum, og hreint ekki fátt afbragðsrita um íslenzk fræði. Ekki hefir t. d. bet- ur eða skarplegar verið skrifað um sögur vorar og fornkvæði heldur en í ritum þeirra Sir William Craigie og Dame Bertha Phillpotts. Enginn má þó skilja orð mín svo, að eg sé að verja þá grunnsæju fræðistefnu, sem segir, að menn eigi aðeins að læra eitt tungumál. Slík skammsýni hefnir sin; hún fæðir af sér andlega fátækt. Það, sem fyrir mér vakir, felst í spakmælinu forna: “Betri er hálfur skaði en allur.” Mér finst vér ekki mega við því, að heilir hópar hinnar yngri kynslóðar vorrar snúi bakinu við menningarlegum erfðum vorum, vegna þess, að vér neitum þeim um fræðslu í þeim efnum á þeirri tungu sem þeir skilja. Það er bjafgföst sannfæring mín, að vér eigum, til hins ýtrasta, að kenna tungu vora í hcimahúsum og skólum, og nota hana í kirkjum vorum og öðrum fé- lagsskap eins lengi og hægt er og hagkvæmt. En jafnframt megum vér ekki vanrækja þá af yngri kyn-1 slóð vorri, sem feðratungan er ó-! numið land. Að minsta kosti uni eg því sárilla, að sjá þann hóp ungra Vestur-íslendinga sviftan allri hlut- deild í glæsilegum menningararfi þeirra, og þar með stórum snauðari að sjálfsþekkingu, lífsspeki og and- legri auðlegð. Áður en eg lýk máli mínu, vil eg þá víkja nokkrum orðum að verk- efni því, sem félagsskapur yðar hefir sérstaklega með h.öndum:—stofnun bókasafns og kennara-embættis í norrænum fræðum og ' íslenzkum við Manitoba-háskóla, og einnig að því, hvernig slik stofnun fái styrkt °£ Iry&t varðveislu íslenzkra erfða í Iandi hér. Eg veit, að þér vænið mig ekki um hræsni þegar eg segi, að mér er sú varðveisla arfleifðar vorrar, eigi aðeins áhuga og alvöru- mál, heldur biátt áfram metnaðar- mál. Því mæli eg til yðar, sem gerst hafið forgöngumenn að stofnun slíks bókasafns og embættis. Þér hafið valið yður “hið góða hlutskiftið.” Eg álít þetta mál eitthvert hið allra merkasta, sem íslendingar hér í álfu hafa tekið upp á dagskrá sína, og hvað líklegast til hollra og varan- legra áhrifa. Hér ræðir ekki um, að tjalda til einnar nætur; heldur er hér verið að byggja frá grunni fvrir framtíðina, óbornum kynslóðum í hag. Þá er hér ennfremur ’stefnt að því piarki, sem mér hefir stund- um virst gleymast í þjóðræknisstarfi voru, markinu því, að veita strauin- um norrænnar og íslenzkrar menn- ingar inn í farveg hérlends þjóðlífs. Á þjóðræknisstarfsemi vorri eru tveir fletir; snýr annar inn á við, að sjálfum oss; en hinn út á við, | að öðrum þjóðum. Hvor þáttur þeirrar starfsemi fyrir sig er verð- ugt verkefni góðum Islendingum. ENDURVEKIÐ ÆSKUFJÖRIÐ NUGA-TONE er dásamlegt meCal fyrir sjúkt og lasburða fólk. Eftir vikutima, eða svo, verður batans vart, og við stöðuga notkun fæst góð heilsa. Saga NUGA-TONE er einstæð í sinni röð. Miljónir manna og kvenna hafa fengið af því heilsu þessi 45 ár. sem það hefir verið I notkun. NUGA- TONE fæst I lyfjabúðum. Kaupið að- eins ekta NUGA-TONE, því eftirlíking- ar eru árangurslausar. En vel megum vér í minni bera, að það er glæsilegt hlutverk, og stór- þarft, að gera hin íslenzku menn- ingar-verðmæti vor kunn og arð- berandi í lífi þjóða þeirra, sem vér búum saman við. Af ofagnreindum ástæðum voru ntér það góðar fregnir þegar eg heyrði að Þjóðræknisfélagið hafði tekið mál þetta upp á starfsskrá sina fyrir nokkrum árum; mér hljóp kapp í kinn þegar eg las í fyrra vet- ur hina snjöllu og ítarlegu ræðu dr. Björns B. Jónssonar um þetta efni; og íslendingurinn í mér tók reglu- legan fjörkipp þegar eg frétti, að félagsskapur ykkar hinna yngri, framsæknu landa minna hefði tekið málið upp á sína arma. Hér er hvorki staður né stund til að ræða nánar fyrirkomulag um- rædds bókasafns og embættis, enda gerði dr. Björn það í ræðu sinni. Hann dró einnig athyglina að Fiske- stofnuinni íslenzku í Cornell. Þar sem eg hefi átt því láni að fagna, að sitja við Mímisbrunn islenzka safnsins þar, er mér ljúft að geta sagt: Þar hafið þér fyrirmyndina, og hvergi getur aðra glæsilegri. Frá Fiske-stofnuninni hafa menningar- straumarnir borist víðsvegar um j þessa álfu, og enn víðar, en því lýsti ] eg svo í minningar-grein urn Wil- lard Fiske: “Síðan safnið var stofn- að hafa ýmsir fræðimenn dvalið þar lengri eða skemmri tíma við bók- | mentalegar rannsóknir, nemendur j Cornell-háskóla í Norðurlandantál- urn og bókmentum, en þeir eru all- margir á ári hverju, hafa og að j sjálfsögðu notað safnið, og bækur ! þaðan svo hundruðum skiftir hafa verið lánaðar bókasöfnum og lær- dómsmönnum víðsvegar um Banda- ríki. Má því óhætt segja, að safnið hafi þegar orðið til mikilla nytja. Og það er sá höfuðstólþ.sem heldur á- fram að greiða íslendi ríkulega vexti um komandi ár.” (Eimreiðin, 1931). Hér við bætist svo hið ágæta og víð- tæka fræðimannsstarf Halldórs pró- fessors Hermanssonar, sem hefir um langt skeið verið og er hinn dygg- asti útvörður íslenzkrar menningar. Landar mínir ! Félagsskapur yð- ar hefir með höndum hið merkileg- asta menningarmál, sem allir íslend- ingar hér í álfu ættu að geta sam- einast um og telja sér skylt að styrkja eftir bestu getu. Minnugur er eg þess, að “kreppan” þrengir nú skóinn.að oss öllum, en engu að síð- ur er það mikilsvert, að halda þessu merkismáli vakandi, t. d. með fund- arhöldum svo sem þessu, svo að á- hugi almennings fyrir því verði lif- andi þegar raknar fram úr f járhags og atvinnu-vandkvæðunum. Með því að koma á stofn við Manitoba-háskóla íslenzku bóka- safni og kennarastöðu í íslenzkum fræðum, í líkingu við Fiske-stofn- unina í Cornell, reisið þér eigi að- eins sjálftim yður hinn óbrotgjarn- asta bautastein, heldur gjaldið þér einnig á þann hátt íslandi, fóstur landinu, fyrir andlegt uppeldi, ef ekki líkamlegt. Því að sé vandlega og rétt um hnútana búið, þá ætti þessi fyrirhugaða fræðistofnun við Manitoba-háskóla, að geta orðið, á svipaðan hátt og Fiske-stofnunin, miðstöð íslenzkrar menningar hér í Vesturlandinu og þar með “sá höf- uðstóll, sem heldur áfram að greiða íslandi ríkulega vexti um komandi ár.” ---------------------- Skuldir helztu Evrópurikjanna við Bandaríkin, atik Bretlands, nema svo sem hér segir: Frakklands $3,- 920,oooxx)o, ítalíu $2,000,000,000, Belgíu $400,000,000, Póllands $215,- 000,000. Tékkoslóvakíu $165,000,- 000, Rúmeníu $63,000,000, Austur- ríkis $23,750,000, Eistlands $17»- 200,000, Finnlands $8,000,000, Grikklands $20,000,000, Ungverja- lands $2,000,000, Lettlands $7,000,- 000, Lithaugalands $1,219,000 og Jugoslaviu $61,000,000.

x

Lögberg

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.