Lögberg - 30.11.1933, Page 5
^OGBERG. FIMTUDAGINN 30. NÓVEMBER, 1933.
BIs. 5
ALBERT SIGURSTEINSSON
fyrrum bóndi á SelsstöÖum í GeysisbygS, i Nýja Islandi, fæddur 25. maí 1867, dáinn þ. 9. mai, 1933-
Albert Sigursteinsson var Þingeyingur a'ð ætt, fæddur aÖ
Byrgi í Kelduhverfi, ár og dag sem aÖ oían er sagt.—
Foreldrar hans voru Sigursteinn Halldórsson og Rannveig
Friðfinnsdóttir.
ÁriÖ 1876* flutti Sigursteinn af landi burt, þá meÖ síÖari konu
sinni, er var SigríÖur Jónsdóttir, systir séra Eiríks sál. GarÖ-
prófasts í Kaupmannahöfn. Var hún ágætis kona. Greind, glaÖlynd,
frábærlega dugleg og hjartað fult af góÖvild og kærleika til allra.
Lagði fyrir sig Ijósmóðurstörf. Tók á móti fjölda barna í land-
námstíð Nýja íslands og raunar miklu lengur. árar þar ekki verið
að hugsa um hvort nokkuð kæmi í aðra hönd, heldur eingöngu um
fyrirgreiðslu og hjálp, þeim til handa, er þess þurftu. Fóru ljós-
móðbrstörfin úr hendi hið bezta. Voru enda unnin í þeim anda, að
lán og blessun hlaut að vera jafnan í för meþ þeim.—
Þau hjón, Sigursteinn og Sigríður, voru mjög samhent í að
gera gott þeim er bágt áttu. Munu þau hafa greitt eigi all-lítið
fyrir ýmsum er að heiman komu, eftir að þau sjálf voru komin i
efni og voru orðin sér nokkurs megandi. Sæmdarhjón er lengi
verður minst með kærleika og þakklæti af þeim, er þau þektu.
Albert sál. Sigursteinsson fluttist með föður sínum og stjúpu
vestur um haf hið ofangreinda ár, 1876, þá níu ára gamall. Fluttist
f jölskyldan tafarlaust til Nýja Islands. Var fyrst sezt að á Eyjólfs-
stöðum, í Breiðuvík. En árið eftir, 1877, námu þau Sigursteinn og
Sigríður land rétt fyrir norðan Eyjólfsstaði, og nefndu Nýjabæ.
Lánaðist þeim það landnám mjög vel. Bjuggu þaú þar langa æfi,
mikils metin og virt af öllum. Þar ólst Albert sál. upp til full-
orðinsára og varð hinn mesti myndarmaður og dugnaðar.
Árið 1888, þ. 20 nóv., giftist Albert ungfrú Sigurrósu Guð-
rúnu Jónsdóttur, Árnasonar, sem ættuð er úr Hrútafirði á íslandi.
Kona Jóns Árnasonar, en móðir konu Alberts, var Sigurlaug Jóns-
dóttir, og Sigríðar konu hans, er bjuggu á Fossi í Hrútafirði. Var
Sigríður á Fossi móðir Jóns óðalsbónda Jónssonar, á Melum í
Hrútaíirði, er þar bjó stórbúi i fjöldamörg ár, og andaðist þar
vorið 1900. Voru hálfsystkini hans þau Þorsteinn bóndi í Hrúta-
tungu, Guðrún, ef"um eitt skeið bjó á Fossi og átti mann þann er
Gunnlaugur hét, og Sigurlaug, móðir Sigurrósar Guðrúnar, konu
Alberts Sigursteinssonar.
Þorsteinn Jónsson í Hrútatungu, er var merkisbóndi, átti
fyrir konu Ólöfu Guðmundsdóttur, frá Tannstöðum við Hrúta-
fjörð. Systkini Ólafar voru Jónas bóndi á Húki i Miðfirði, faðir
Sigríðar konu Ásmundar P. Jóhannssonar og Jónasar Jónassonar,
í Winnipeg; Sigríður, kona Péturs bónda á Reykjum í Hrútafirði
og síðar að Fossi þar í sveit, er voru foreldrar Danels Péturssonar
á Gimli, er á fyrir konu Þóru Bergsdóttur; Agnes, kona Þorgeirs
í Hnausakoti, og Guðmundur, þjóðhagasmiður á tré og járn, er
lengi átti heima í Hnappahlíð. Dóttir þeirra Þorgeirs i Hnausa-
koti og Agnesar konu hans var Sesselja, fyrri kona A. S. Bardal,
útfararstjóra í Winnipeg.—
Jón Jónsson á Melum í Hrútafirði, var sonur Jóns kammer-
ráðs Jónssonar á Melum, er um allmörg ár gegndi sýslumanns-
störfum í Strandasýslu. Var hann búhöldur mikill og talinn stór-
auðugur að fé. Höfðu þeir Jónar Jónssynir búið hver fram af
öðrum á Melum, í gegnum marga ættliði, og allir búið þar með
höfðingsskap og rausn. Var af kunnugum talið sjálfsagt, að sú
regla héldist áfram. En Jón Jónsson, móðurbróðir Sigurrósar,
ekkju Alberts sál. Sigursteinssonar, varð hinn síðasti stórbóndi
af þeirri ætt, með því nafni, á Melum, að minsta kosti er svo
komið í bili, að því er séð verður.—Hvort Jónaröðin, með risnu
og búsæld, á fyrir 'hendi að setjast í öndvegi á Melum í annað
sinn, væri fróðlegt að vita. Vel gæti það orðið. Margt ólíklegra
en það er sífelt að koma fyrir.
Jón Jónsson á Melum, móðurbróðir Sigurrósar, konu Alberts,
átti konu þá er Sigurlaug hét. Mesta ágætiskona. Elzti sonur
þeirra var séra Jón prófastur í Bjarnanesi, í Austur-Skaftafells-
sýslu, lengi alþingismaður, gáfumaður mikill og lærður vel, stór-
merkur fræðimaður og skáld gott, yfirleitt talinn með hinum mikil-
hæfustu mönnum íslands á nýliðinni tíð. Nú látinn fyrir nokkrum
árum. Hefði Jón prófastur ekki tekið fyrir að nema kennimanp-
leg fræði, hefði hann mjög sennilega orðið stórbóndi á Melum, og
Jónaröðin því haldið þar þeim mun lengur áfram. Hefði sumum,
ef til vill, þótt það bezt eiga við. En þá hefði lærðra manna stétt-
in á íslandi orðið þeim mun fátækari. —
Önnur börn þeirra Melahjóna, Jóns og Sigurlaugar, eru Ing-
unn, ekkja Björns fyrrum alþingismanns Sigfússonar á Korsá í
Vatnsdal; Guðlaug, ekkja Guðmundar bónda Ólafssonar á Lund-
um í Borgarfirði; Jósef Jónsson, bóndi á Melum, er á fyrir konu
Önnu, hálfsystur dr. Jóns sál. Bjarnasonar, (samíeðra), og Finnur
Johnson, fyrrum ritstjóri Lögbergs, er á fyrir konu Guðrúnu Ás-
geirsdóttir, frá Lundum, í Borgarfirði. Alsystir hennar er Oddný
kona Hinriks bónda Johnson, í bygðinni norður af Sinclair hér í
fylki. Hálfbróðir þeirra systra var Guðmundur bóndi á Lundum,
maður Gauðlaugar frá Melum, en alsystir hans var frá Ragnhildur
í Engey, hin mikilhæfasta kona, er átti Bétur Kristinsson, ágætan
mann, er lézt tiltölulega ungur maður. Eru dætur þeirra hjóna
nú /merkiskonur i höfuðstað íslands.—Hálfsystkini Guðrúnar,
konu Finns, og Oddnýjar, konu Hinriks, börn Ásgeirs frá Llund-
um, af fyrra hjónabandi hans, voru þau séra Þorvaldur Ásgeirs-
son, síðast prestur á Hjaltabakka og Þingeyrum; frú Kristín, kona
Lárusar sýslumanns Blöndal, á Kornsá, og Arndís, kona Böðvars
Þorlákssonar bónda á Hofi í Vatnsdal, er síðar varð sýsluskrifari
á Blönduósi og póstafgreiðslumaður þar, og gegndi enda fleir trún-
aðarstörfum i bæ og héraði. Böðvar var einn hinna mörgu sona
séra Þorláks prests Stefánssonar á Undirfelli, í Vatnsdal, og konu
hans, Sigurbjargar Jónsdóttur, prests Péturssonar frá Steinnesi.
—Böðvar andaðist fyrir skömmu síðan sjötíu og sex ára gamall.—
Enn önnur börn þeirra Melahjóna voru Runólfur búfæð-
ingur Jónsson, bráðvelgefinn maður, er andaðist kornungur, og
Sigríður, sem var gift kona á Vesturlandi, og lézt þar miðaldra eða
tæpt það.—Öll voru þau Melasystkin, frændsystkin Sigurrósar,
ekkju Albert sál. Sigursteinssonar, búin ágætum hæfileikum, enda
eru ættir þeirra báðar skipaðar greindarfólki og gáfna á ýmsa
vegu. I sjón og málrómi svipar Sigurrósu allmikið til frú Ing-
unnar, frænku sinnar. Er frá Ingunn orðin talsvert kunn sem
rithöfundur, af ýmsu sem hún hefir skrifað á undanförnum árum.
Þau foreldrar Sigurrósar, konu Alberts, munu hafa byrjað
búskap sinn í Hrútafirðinum, envflutt æði snemma á tíð suður i
Norðurárdal. Bjuggu á Gestsstöðum um hríð og síðar að Hreða-
vatni. Þaðan fluttu þau að Brúarhrauni, í Kolbeinsstaðahreppi,
og svo þaðan vestur um haf árið 1886. Fluttu þau undir eins til
Nýja íslands. Voru fyrst um sinn á Eyjólfsstöðum, í Breiðuvik,
í nábýli við það Nýjabæjarfólk, Sigurstein, Sigríði og Albert, er
þá var rétt að verða fulltíða dugnaðarmaður.
Vorið 1889, tæpu misseri eftir að þau giftust, reistu þau ungu
•hjón, Albert Sigursteinsson og Sigurrós Guðrún Jónsdóttir kona
hans, bú að Selsstöðum í Geysisbygð. Farnaðist þeim ágætlega.
Kornust fljótt í sæmileg efni. Réði þar sparsemi, iðni, góð bú-
hyggindi, reglusemi og samheldni þeirra hjóna. Blómgaðist bú-
skapur þeirra vel, þrátt fyrir það að barnahópurinn stækkaði. Urðu
börn þeirra átta að tölu og eru öll á lífi,——
Þegar flutt var að Selsstöðum, vorið 1889, fylgdust foreldrar
Sigurrósar með þeim. Voru þau hjá dóttur sinni og tengdasyni
til æfiloka, dóu bæði á Selsstöðum.
Sömuleiðis voru þau Sigursteinn og Sigriður, faðir Alberts
og stjúpa hans, hjá þeim Selsstaðahjónum síðustu árin, eftir að
þau voru orðin of hrum til aö halda áfram búskap. Þau önduðust
bæði í góðri elli á Selsstöðum. .
Þau Albert og Sigurrós bjuggu á Selstöðum í f jörutíu og tvö
ár. Fyrir tæpum tveim árum seldu þau að mestu bú sitt og fluttu
að Nýjabæ, til æskuheimilis Alberts, bygðu þar upp aí nýju, því
jörðin hafði verið að mestu í eyði í allmörg ár. Mun tvent hafa
valdið breytingu þessari, fyrst það, að þarna voru æskustöðvar
Alberts, og í öðru það, aS hægara mun fyrr þreyttan búmann að
búa umfangslitlu búi á Nýjabæ, en á Selsstöðum, meðal annars
allmikið og gott tún á hinni eldri jörð.
Börn þeirra Selsstaðahjóna, Alberts og Sigurrósar, eru sem
hér segir:
(1) Sigursteinn, ógiftur; er heima með móður sinni.
(2) Sigurjóna. Maður hennar er Jón Thórðarson. Þau
hjón búa aS Aðalbóli, vestan við Breiðuvík. Eiga átta börn.
(3) Guðrún Sigríður, gift Jakob Guðjónssyni. Þau eiga
fimm börn. • Eru búsett í Breiðuvík.
(4) Rannveig Jófríður. Maður hennar er Jón Vídalín
Magnússon, sonur þeirra Magnúsar bónda Magnússonar og Ingi-
bjargar konu hans, á Eyjólfsstöðum, í Breiðuvík. Þau hjón búa
allskamt frá foreldrum Jóns. Eiga átta börn.
(5) Kristján, ógiftur; er heima með móður sinni og Sigur-
steini bróður sínum.
(6) Guðlaug. Maður hennar er Hermann Snæfeld. Þau
eiga fimm börn. Eru búsett í Breiðuvík.
(7) Sigrún. Er gift Tryggva Snæfeld. Eiga þrjú börn.
Þau einnig búsett í Breiðuvík.
(8) Emelía Ingibjörg. Maður hennar er Jóhannes Mark-
úrsson. Þau eiga tvö börn. Eru búsett í Árnesbygð,—
Ein hálfsystir Alberts sál. er á lífi, Jónina, sammæðra við
hann, kona Sigmundar bónda Gunnarssonar, á Grund i Geysis-
bygð, sem er næsti bær austan við Selsstaði. Eru þrjú börn þeirra
hjóna á lífi, Gisli kaupmaður •Sigmundsson, giftur Ólöfu Daníels-
dóttur á Hnausum; Rannveig, gift Andrew bónda Finnbogasyni,
sem er uppeldissonur Finnboga Finnbogasonar, frá Útibleiksstöð-
um, og Ágnesar sál. Jónatansdóttur konu hans og Felix, sem
heima er með foreldrum sínum og sér um bú þeirra. Jónína er
ein af þessum afbragðs góðu íslenzku konum, er ekkert aumt mega
sjá og öllum vilja gott gera, og eru sífelt reiðubúnar að rétta líkrj-
andi hönd öllum er bágt eiga.—
Faðir Sigmundar á Grund var Gunnar Gíslason, gáfaður
maður og skákl gott. FÍutti vestur um haf á gamalsaldri. Var
það í frásögur fært, að hann hefði lært að lesa og skrifa ensku um
sjötugsaldur, af Jóhanni Magnúsi skáldi Bjarnasyni, er þá stund-
aði kenslustörf i Nýja íslndi.
Öll eru börn þeirra Alberts Sigursteinssonar og Sigurrósar Guð-
rúnar konu hans gott fólk og myndarlegt. Dæturnar allar vand-
aðar og góðar húsfreyjur. Þeir bræður, Sigursteinn og Kristján,
frábærir dugnaðarmenn, reglumenn mestu og ágætir drengir. Sem
framtaksmenn og athafna eru þeir oft i burtu við störf sín, en sjá
þó með fyrirhyggju og framsýni, um hag móður sinnar hið bezta.
Albert sál. Sigursteinsson var fyllilega meðalmaður á hæð,
rekinn saman utn herðar og vafalaust karlmenni að burðum. Hann
var hægur maður í fasi, stiltur og gætinn. Starfsmaður mikill,
fyrirhyggjusamur og búhöldur ágætur; sá með snild fyrir f-jöl-
skyldu sinni og heimili. Hann var hinn ábyggilegasti maður hvar
sem á reyndi. Liðtækur maður og góður samherji i söfnuði og
héraði. Verður minning hans geymd í heiðri hjá þeim, er þektu
hann vel, og með ævarandi ástríki, lotning og þakklæti hjá konu
hans, börnum hans, systur og ástvinum öllum.
Lengst af æfi var Albert sál. Sigursteinsson við góða heilsu.
Hann var hinn hrausti maður, er gekk sem víkingur að störfum
sínum. En hin síðari ár fór hann að kenna hjartasjúkdóms, er
smátt og smátt ágerðist. Hann andaðist snögglega, aðfaranótt
hins 9. maí, siðastliðið vor, að Nýjabæ, sextán dögum minna en
sextíu og sex ára gamall.—
Jarðarförin fór fram þ. 12. maí frá kirkju Breiðuvíkursafn-
aðar, undir umsjón Bardals. Sóknarpresturinn, séra Sigurður
Ólafsson, jarðsöng. Var lík Alberts lagt til hvildar í vestari graf-
reitnum á Hnausum, við hliðina á legstað föður hans og stjúpu.—
Ekkja Alberts sál., börn hans og aðrir ástvinir, þakka fyrir kær-
leiksríka hluttekning í sorg þeirra, blómagjafir við útförina, og
öllum þeim stóra hóp er heiðruðu minning hans með návist sinni
við kveðju-athafnirnar síðustu, bæði heima og í kirkjunni.—
Með blessunaróskum til ástvina hins burthorfna, væna manns.
Jóhann Bjarnason.
Atvinnuleysið á Bretlandi
minkar óðum
Að júlímánuði einum undantekn-
um hefir atvinnuleysingjum fækkað
á mánuði hverjum, það sem af er
þessu ári. Skýrslur verkamálaráðu-
neytisins fyrir septembermánuð
leiddu í ljós enn þá meiri bata á
þessu sviði en menn höfðu gert sér
vonir um. Atvinnuleysingjum
fækkaði þá um 74,410, en tala hinna
atvinnutrygðu í landinu jókst um
68,000 og var tala þeirra alls 9,943,-
000 í byrjun októbermánaðar. —
Frá því í janúar hefir tala hinna at-
vinnutrygðu aukist um 658,000.
Horfurnar hafa mjög batnað í aðal-
iðngreinunum. Fleiri menn hafa
nú vinnu í járn og stáliðnaðinum,
fleiri menn hafa vinnu í vélaverk-
stæðum og í rafmagnsiðnaðinum og
einnig í skógerðariðnaðinum. Sam-
kvæmt upplýsingum í Times er yfir
helmingur þess fólks í ullariðnaðin-
um, sem atvinnulaust var í janúar,
búið að fá vinnu aftur. I járn og
stáliðnaðinum hefir einn af hverjum
þremur, sem atvinnulaus var í jan-
úar, fengið atvinnu, og í ýmsum
öðrum greinum er sömu sögu að
segja. Fjöldi námamanna hefir
fengið vinnu á ný, en sennilega er
ekki um varanlega atvinnu að ræða
hjá þeim. Eftirspurn eftir kolum
er alt af mikil á þessum tíma árs.
Má því búast við að atvinnulausum
kolanámumönnum fjölgi aftur er
frá líður og eftirspurnin minkar
aftur. Yfirleitt hefir ástand og
horfur mjög batnað.
Frœgur flökkulýður
íslendingar hafa litið af flökku-
mönnum að segja. Hér fyrrum var
það að vísu alsiða að menn legðist
í flakk og ætti hvergi heima, en nú
er þessum mönnum fækkað svo, að
“við landauðn nemur.” Gömlu
flökkukarlarnir, sem allir voru
landskunnir menn og enginn amaðist
við, eru horfnir. Það var gaman
að þeim sumum og flestum hús-
bændum þótti útlátalaust að hýsa þá
og gefa þeim að éta eina nótt eða
orlofsnæturnar. — Þessir menn
voru undantekningar; oftast nær
voru þeir eitthvað brenglaðir á geðs-
munum en meinlausir voru þeir.að
jafnaði, ef þeir voru ekki ertir.
ísland mun vera þa"ð land i ver-
öldinni, sem lausast er við flakk og
betl. Því að fjarlægð landsins hef-
ir varnað því, að hingað kæmist sá
erlendi flökkulýður, sem annarsstað-
ar ferðast land úr landi og myndar
sérstakar stéttir í mannfélaginu.
| Flökkubetlarar á Norðurlöndum eru
| vandræðamenn, sem fólki í afskekt-
| um bygðarlögum stendur stuggur af,
þeir eru uppvöðlusamir, frekir og
þjófóttir og fljótir að gripa til kut-
ans ef þeim líkar ekki. Þeir eru
flestir kallaðir tatarar, en í Noregi
kalla menn þá “fanta.”
Þessir flakkarar eru meira og
minna blandaðir afkomendur fræg-
asta flökkulýðs Evrópu, sigeaun-
anna svonefndu. Erlendis veit hvert
mannsbarn hvernig þessi flökkulýð-
ur lítur út, en hér þekkja menn það
ekki, sem betur fer, því að sígeaun-
ar munu aldrei hafa komið hingað
til lands. Þá sjaldan að erlendir
flakkarar hafa komið hingað til
lands, hafa þeir verið af öðru bergi
brotnir, Lappar. eða jafnvel Samo-
jedar.
sígaununum liggur það í blóði að
flakka. Þeir geta ekki haldið kyrru
fyrir, fest bú og stundað almenna
vinnu og svo rík er þessi tilhneiging
að sígaunarabörn, sem tekin hafa
verið til fósturs af öðru fólki og al-
ist upp eins og önnur börn, strjúka
nær altaf úr fóstrinu þegar þau fara
að stálpast og þetta er líka tilfellið,
þó ekki hafi nema' annað foreldrið
verið sígaunari. Þeir eru fremur
litlir vexti, með langt, hrafnsvart
hár, sem að jafnaði er sítt, augun
eru hvöss og snör. Að jafnaði ganga
þeir illa til fara og eru sóðalegir,
Vísindamennirnir telja víst, að
þeir séu ættaðir frá Vestur-Indlandi
og styðja þá kenningu sina við mál-
ið, sem þeir tala. Er það óskiljan-
legt Evrópumönnum. Talsvert er í
þessu máli af persneskum og arm-
enskum orðum og bendir það á, að
þeir hafi farið yfir þessi lönd, er
þeir fluttust til Evrópu. Sjálfir
kalla þeir sig “rom” eða “manuch,”
sem þýðir manneskja, en sígaunara-
nafnið er grískt og þýðir “katlá-
klastrari,” enda taka þeir að sér að
gera við katla og ílát, þar sem þeir
koma.
Snemma á miðöldum voru þeir
komnir til Balkanlandanna og þegar
kemur fram á 15. öld fara þeir að
breiöast út um Evrópu. Árið 1417
héldu heilir herskarar af þeim vest-
ur um Ungverjaland, voru flokk-
arnir margir og höfðingi fyrir hverj-
um. Hvar sem þeir komu sögðust
þeir vera frá Litla-Egyptalandi og
vera i. pílagrimsför til þess að af-
plána, að forfeður þeirra hefðu út-
hýst Maríu guðsmóður þegar hún
flýði með Jesúbarnið til Egypta-
lands. Trúðu margir þessu og tóku
þessum gestum með alúð og flæddu
þeir yfir löndin næstu ár. Um 1430
eru þeir komnir í flest lönd Evrópu
nema Norðurlönd, en þangað komu
þeir um 50 árum síðar. Hið rétta
eðli þessara “pllagríma” kom brátt í
ljós, þeir reyndust rummungsþjófar
og siðlaus skríll, sem ekki tók nein-
um menningaráhrifum. Það hefir
reynst alveg ómögulegt að gera sið-
aðan mann úr sígaunara. En hins-
vegar er seiglan svo mikil í þeim,
að þrátt fyrir allskonar ofsóknir og
lagaboð hefir ekki tekist að útrýma
þeim þar sem þeir voru einu sinni
komnir.
Hvergi er eins margt um sígaun-
ara og Ungverjalandi. Frans Jósep
keisari gérði írekaðar tilraunir til
þess að afnema flakk þeirra, reyndi
að láta þá taka sér bólfestu og lagði
þeim til hús, akurlendi og bústofn.
En þessi tilraun mistókst algjörlega
og á sama hátt fór lík tilraun í
Þýskalandi. Þjóðverjar ætluðu að
menta þá, kenna fullorðna fólkinu á
sama hátt og börnum er kent, en
það tókst ekki og sígaunarnir flýðu.
I Balkanlöndunum hefir verið reynt
að ala börn þeirra upp á sérstökum
hælum, en þau hafa strokið þaðan
eða foreldrarnir komið og stolið
þeim. Allar tilraúnir til þess að
kenna sígaunurum aga og hlýðni við
borgaraleg lög hafa mistekist. Séu
þeir teknir með valdi og hafðir í
gæslu veslast þeir upp á skömmum
tíma, ef þeim tekst ekki að strjúka.
Það er eins og flakkið sé þeim nauð-
syn, sem þeir geti ekki án lifað.
Það er ekki síst þjófnaðurinn og
óþrifnaðurinn, sem hefir gert sí-
gaunara óvinsæla. Þeir eru taldir
einskonar úrþvætti, sem ekki sé bú-
andi saman við, og þeir eru hataðir.
Er þetta eigi að ástæðulausu, því að
þeir víla ekki fyrir sér að vinna
hermdarverk, t. d. stela börnum. En
fróöir menn segja, að sígaunarinn
sé alt annar maður út á við, gagn-
vart sínum flokki. Hjá flokknum
ræður sátt og samlyndi og ástúð
foreldranna til barna sinna er talin
annálsverð. Þeir eru eins og ó-
þroskuð börn og geta aldrei komist
af þvi stigi, hversu gamlir sem þeir
verða.
Sígaunararnir hafa mótað mjög
þjóðlif sumra þjóðanna, sem þeir
hafa verið fjölmennastir hjá, t. d.
Ungverja. Hinir ungversku dansar,
danslög og vísur, sem kunn eru um
allan heim, eru að miklu leyti sprott-
in frá sígaunurum. Og sjálfir eiga
sígaunarar ágætis hljóðfæraleikara,
einkum fiðlara, og dansfólk. Það er
fjörið og eldurinn, sem einkennir
list þessara framandi náttúrubarna,
sem hvergi eiga samastað.
Annars eru sígaunarar litlir iðju-
menn. Þar sem þeir koma á flakki
sínu bjóðast þeir til að brýna hnífa,
lóða katla og potta og því um líkt
og er sagt að þeir kunni vel til þess-
arar iðju. Oftast nær ferðast ein
fjölskylda saman, en hún verður
oft stór, því að foreldrar ferðast
með uppkomin börn sín og tengda-
börn og börn þeirra allra. Víðast
hvar hafa þeir vagn til ferðalaganna,
einskonar hús á hjólum, og eiga
hesta til að draga húsið, eins og úm-
ferðatrúðar. En hinir fátækari
verða að sætta sig við lélegri aðbún-
að. Verstir þykja sigaunarnir við-
ureignar þegar þeir eru einir sér,
enda eru þessir flökkumenn oft ein-
stakir óknyttaseggir, sem hafa orðið
að skilja við hóp sinn fyrir einhverj-
ar ávirðingar. — Ein atvinna sí-
gaunarkerlinganna er sú, að spá fyr-
ir fólki og er þá að jafnaði spáð i
spil. Hafa kerlingar þessar góðar
tekjur af atvinnu sinni, þegar þær
koma í bæina á markaðsdögum.
Sígaunarar eiga fjöldann allan af
gömlum þjóðsögum og vísum, encla
er það eðlilegt um svona flökku-
menn. Segja þeir það alt æfagam-
alt, komið fram úr forneskju. En
eigi hefir tekist að ráða úr því, hvað
af þessu er gamalt og hvað nýrra.
—Fálkinn.
Bretar vilja takmarka enn meira
ihnflutning á dönsku fleski.
Breska ríkisstjórnin hefir fyrir
nokkru farið fram á það, að Danir
féllist á það, að takmarkaður væri
enn frekara innflutningur til Eng-
lands á dönsku fleski eða um 20%.
Svar Dana við þessari málaleitan
hefir ekki verið birt, en þeir munu
leggja mikla áherslu á, að koma í
veg fyrir, að til þessara takmark-
ana komi, þvi að ef til þess kæmi
að þær næði fram að ganga, mundi
svínarækt Dana biða við það óbæt-
anlegan hnekki. — Danska ríkis-
stjórnin hefir nú sent nefnd manna
til London til þess að ræða þetta mál
við bresku stjórnina.
Mbl.
V
I