Lögberg - 07.06.1934, Qupperneq 3
LÖGBEKG, FIMTUDAGINN 7. JÚNl, 1934
3
SÓLSKIN
Sérstök deild i blaðinu
fyrir börn og unglinga
Gamla hríslan
ÞaÖ var komiÖ haust. Skógurinn,
sem hafði veriÖ svo ljómandi fall-
egur um vorið og sumarið, var nú
orðinn ber og hrörlegur. Fallega
græna laufið hans hafði fölnað í
haustfrostinu og vindurinn hafði
feykt því burt. Hann lék sér nú
að j>ví og þyrlaði því stundum í háa
loft; öðru hvoru slepti hann því og
lét það detta niður. Svo tók hann
það aftur þegar minst varði—og
þetta gekk lengi.
Og það var eins og einhver hrygð-
arsvipur hvíldi yfir skóginum. Það
var eins og honum sárnaði að sjá
vindinn fara svona illa með sumar-
fötin sín fallegu—og sjálfur skalf
hann af kulda.
Það var mikið um dýrðir meðal
barnanna um þetta leyti. Það átti
að halda skemtisamkomu handa öll-
um börnunum i Goodtemplararegl-
unni, og þau fengu leyfi til þess að
bjóða með sér einu barni utanfélags,
hvert um sig.
Gvendur og Sigga í Gerði höfðu
lengi reynt a'ð fá Dóra og Önnu,
leiksystkini sin á Brú til þess að
ganga í félagið, en þau voru treg
til þess. Að mega ekki blóta, ekki
bragða vín og ekki reykja, það þótti
Dóra ekkj aðgengilegt. En Anna
vildi ekki fara nema hann kæmi
líka.
Þeim kom aít af vel saman, því
þau voru góð sytkini; þar sem ann-
að var, þar vildi hitt alt af vera.
Dóri hafði nokkrum sinnum
bragðað vín og þótti það gott. Hann
reykti á hverjum degi, þótt hann
væri ekki nema tólf ára gamall,
stundum úr pípunni hans pabba síns,
en stundum vindla, sem félagar
hans gáfu honum—og hann blótaði
mjög oft. Honum fanst það ómiss-
andi að hafa ýmisleg ljót orð til á-
herzlu, þegar hann talaði—og hann
hélt að það gerði svo sem ekkert til.
Að ganga í barnastúkuna og hætta
öllu þessu, það gat hann ekki lagt á
sig.
Mamma hans og pabbi voru held-
ur ekkert áfram um það. Pabba hans
hafði þótt gott að fá sér í staupinu,
og hann hafði oft verið dauðadrukk-
inn, en hann hataði bindindi — og
mamma hans gerði það lika, þótt
undarlegt væri.
“Nú skulum við bjóða þeim syst-
kinunum, Dóra og Önnu á Birú!”
sagði Gvendur við Siggu. “Skemt-
unin byrjar með því að hann séra
Arni segir sögu; og enginn segir
eins vel sögur og hann séra Árni.
Hver veit nema Dóri fáist til þess
að koma i félagið þegar hann er bú-
inn að hlusta á hann.”
Svo stukku þau heim að Brú og
buðu þeim að koma á laugardags-
kveldið klukkan 8.
Dóra þótti gaman að skemtunum
og varð því glaður við boðið. Þau
hlupu bæði systkinin til pabba og
mömmu, sögðu þeim frá þessu og
báðu þau leyfis að mega fara.
, Þau fengu það; og hún Magga
gamla vinnukonan, sem hafði verið
hjá þeim i tiu ár, var látin fara með
þeim.
Það lá heldur en ekki vel á þeim
á leiðinni. Það var nokkuð langt
þaðan, sem þau áttu heima, til sam-
komustaðarins, og þau vildu helzt
alt af hlaupa. , Þeim þótti verst
hvað hún Magga gamla fór hægt;
hún var orðin lúin og gigtveik,
gamla konan.
Dóri var laglegur og myndarlegur
í nýju fötunum sínum, með nýju
húfuna og í nýju stígvélunum, með
hvíta brjóstið og slifsið með gull-
nálinni, sem hann hafði fengið í af-
mælisgjöf.
Og Anna hljóp og hoppaði í kring
um hana Möggu gömlu. Hún var
alveg eins og snjóhvítur fugl, í hvít-
um kjól og hvítum sokkum.
Svo komu þau á samkomuna. Þar
var f jöldi af börnum, sem þekti þau
og tóku á móti þeim með fögnuði.
Samkoman var í stórum sal; þau
höfðu aldrei komið þangað áður.
Veggirnir voru prýddir með mörg-
um fallegum myndum.
Á þilinu beint á móti dyrunum
hékk mynd af Jóni Sigurðssyni.
Hún var í stórum gyltum ramma og
hallaðist fram. Andlitið var tignar-
legt og góðlegt og það var eins og
hann byði alla gestina velkomna.
Þið vitið náttúrlega öll hvaða
maður Jón Sigurðsson var ? Ef eitt-
hvert ykkar veit það ekki, þá ætti
það að spyrja pabba sinn eða
mömmu sína að því. Allir íslend-
ingar allstaðar og alt af verða að
þekkja Jón Sigurðsson og vita hver
hann var—vita alt um hann.
Öðrum megin á veggnum voru
myndir af konunginum og drotning-
unni, en hinum meginn beint á móti
var stór mynd í svörtum ramma,
sem Dóra og Önnu varð starsýnt á.
Á myndinni sáust tveir menn, sem
voru að bisa við að rétta gamla
hríslu, bogna og kræklótta; þeir
höfðu vafið um hana böndum, rekið
niður staura, vafið böndum líka um
þá og toguðu svo í af alefli. En
skamt frá þeim (á myndinni) stóð
fullorðinn maður og drengur, og það
var auðséð að maðurinn var að
segja drengnum eitthvað um hrísl-
una og mennina.
Myndin var svo glögg og greini-
leg og svo skrítin, að Dóra lá við
að hlæja að þvi hvað heimskir
mennirnir voru að hugsa sér að það
væri mögulegt að rétta hrísluna.
Nú byrjaði samkoman. Ungur
maður, laglegur og fínt klæddur,
steig upp á ræðupallinn, bað sér
hljóðs og bauð alla velkomna,—það
var séra Árni.
“Eg hefi verið beðinn að tala hér
nokkur orð í kvöld,” sagði hann:
“En af því eg veit að börnin lang-
ar til þess að fara sem fyrst að
leika sér, skal eg reyna að vera stutt-
orður. Eg ætla einungis að segja
ykkur hvernig stendur á myndinni
þarna á veggnum, að sunnanverðu
í húsinu. Eg gaf hana fyrir nokkr-
um árum í afmælisgjöf til félagsins
og nú ætla eg að segja sögu henn-
ar þeim, sem kynnu að hafa gleymt
henni, eða þeim, sem ekki hafa heyrt
hana áður.”
Það gall við dynjandi lófaklapp i
öllum salnum. Allir vissu að eng-
inn gat sagt sögu eins vel og skemti-
lega og hann séra Árni; þess vegna
hlökkuðu börnin öll til þess að heyra
hann segja söguna af þessari skrítnu
mynd.
Séra Árni byrjaði sögu sina á
þessa leið:
“Það var i júnímánuði fyrir
mörgum árum,” sagði hann, “að
Láki gamli kom heim á prestssetrið
skömmu fyrir háttatíma og bað um
að lofa sér að vera. Hann var al-
þektur þar í sókninni, hann Láki
gamli. Hann var roskinn maður, á
að gizka um fimtugt. Hann átti
hvergi heima, heldur flakkaði
manna á milli. Fékk hann sums-
staðar allgóðar viðtökur, en margir
höfðu horn í siðu hans og var það
einkum vegna þess hversu oft hann
var drukkinn.
Oft hafði það verið reynt að út-
vega honum vinnu á einhverjum
góðum bæ, þar sem vel gæti farið
um hann, því yfirleitt átti hann við
engin sældarkjör að búa; hann lá
oft úti á milli bæja, sökum þess hve
drukkinn hann var. En Láki gamli
toldi hvergi degi lengur. Hann
hafði alt af átt góðu að mæta hjá
prestshjónunum, og þó þeim þætti
hann leiðiniegur þegar hann var
drukkinn, þá kendu þau í brjósti
um hann.
I þetta skifti var Láki gamli enn
þá drukknari en hann átti að sér.
Hánn gerði sig heimakominn hjá
prestshjónunum og var ekki sem
kurteisastur. Hann fór upp á loft
til vinnufólksins og tafði það við
vinnuna. Það vildi helzt ekki gegna
honum einu einasta orði, en þá varð
hann reiður og ætlaði að setja alt í
uppnám. Fólkið varð því nauðugt
viljugt að gegna allri vitleysu úr
honum til þess að hafa hann góðan.
Presturinn átti tvö börn, pilt og
stúlku; þau hétu Hallgrímur og
Þóra. Hallgrímur var dálítið stríð-
inn. Hann hafði gaman af því þeg-
ar Láki gamli var að slangra á milli
fólksins, að glettast við hann á ýms-
an hátt. Stundum hafði hann spegil
til þess að láta glampa framan í
Láka; stundum léði hann honum
gömju stígvélin hans pabba síns,
stráði síðan vaxspýtum á gólfið og
lét hann ganga ofan á þær, en þá
kviknaði á þeim og brakaði og
snarkaði undir fótunum á Láka, svo
hann varð dauðhræddur. En þá hló
Hallgrímur.
Þetta kvöld hafði honum verið
venju fremur uppsigað við Láka og
loksins komst í svo hart á milli
þeirra að Láki stendur upp og ætlar
að berja Hallgrím, en Hallgrímur
var fljótur á fæti og stökk undan.
Láki eltir hann um alt gólfið, en
nær honum ekki. Loksins verður
fyrir honum stigagatið og Láki velt-
ur niður allan stiga. “Þetta var rétt
handa þér!” hrópaði Hallgrímur og
skellihló.
Láki gamli komst fljótt á fætur
aftur. Hann hafði meitt sig dálítið
á höfðinu og blæddi úr.
Presturinn heyrði þegar Láki féll
niður stigann. Hann kom út úr
skrifstofu sinni og spurði hvað um
væri að vera. Láki gamli sagði
honum alveg eins og var: “En það
var mér að kenna,” bætti hann við.
Presturinn kallaði á Hallgrím og á-
taldi hann fyrir það að láta Láka
ekki i friði.
“Eg held það geri ekki mikið til,”
svaraði Hállgrímur, “þó hann hrekk-
ist ólukku karlinn, og hætti að koma
hingað. Hann er alt af blindfullur,
og J>að er leiðinlegt að hafa hann.”
“Heldurðu að hann batni við það
að fara svona að honum?” spurði
presturinn. “Heldurðu ekki að þú
ættir að hugsá betur um það hvernig
á því stendur að hann er svona?
Heldurðu að það sé ómögulegt að
þú getir orðið svona líka?”
“Eg svona? Eg eins og hann Láki
gamli, alt af blindfullur?” sagði
Hallgrímur, alveg steinhissa.
‘Þú hefir sagt mér svo mikið um
vínið og áhrif þess að mér dettur
aldrei í hug að bragða það.”
“Jæja,” svaraði presturinn. “Eg
ætla ekki að sneypa þig rekar fyrir
þetta í kvöld; en við tölum saman
á morgun.”
Daginn eftir fór presturinn út í
skóg með tvo vinnumenn, og kallaði
með sér Hallgrím og Þóru Hann
bað vinnumennina að hafa með sér
sleggjur og kaðla.
“Hvað ætlarðu að gera við þetta;”
spurði Hallgrímur.
“Þú skalt fá að sjá það, þegar við
komum út í skóginn,” svaraði prest-
ur.
Nú komu þeir út í skóg, þar sem
ein hrísla var langt frá öllum öðrum.
Hún var bogin og kræklótt. Þarna
staðnæmdist presturinn.
“Taktu nú sleggjuna!” sagði hann
við Gísla vinnumann sinn, “og berðu
þetta gamla tré með henni eins og
þú getur.”
Gísli varð steinhissa; en gerði þó
eins og prestur skipaði honum. Hann
hamaðist eins og hann gat. Börk-
urinn hrundi utan af hríslunni í
stórum flyksum, og hún marðist öll
PROFESSIONAL AND BUSINESS CARDS
PHYSICIANS and SURGEONS
DR. B. J. BRANDSON 216-220 Medical Arts Bldg. Cor. Graham og Kennedy Sts. Phone 21 834—Office tlmar 2-3 Heimili 214 WAVERLEY ST. Phone 403 288 Winnipeg, Manitoba DR. J. STEFANSSON 216-220 Medical Arts Bldg. Talsími 26 688 Stundar augna, eyrna, nef og kverka sjúkdóma.—Er aS hitta kl. 2.30 til 5.30 e. h. Heimili: 638 McMILLAN AVE. Talsími 42 691 Dr. P. H. T. Thorlakson 205 Medical Arts Bldg. Cor. Graham og Kennedy Sts. Phonea 21 213—21 144 Res. 114 GRENFELL BLVD. Phone 62 200
DR. B. H. OLSON 1 Dr. S. J. Johannesson DR. L. A. SIGURDSON
216-220 Medical Arts Bldg. 109 Medical Arts Bldg.
Cor. Graham og Kennedy Sts.
Viðtalstími 3—5 e. h. Phone 87 293
Phone 21 834-Office tlmar 4.30-6 Office tímar: 12-1 og 4-6 e.h.
Heimili: 5 ST. JAMES PLACE 218 Sherburn St.~Sími 30877 Heimili: 102 Home St.
Winnipeg, Manitoba Phone 72 409
BARRISTERS, SOLICITORS, ETC.
H. A. BERGMAN, K.C. Islenzkur lögfrœðingur Skrifstofa: Room 811 McArthur Building, Portage Ave. P.O. Box 1656 PHONES 95 052 og 39 043 J. T. THORSON, K.C. tslenzkur lögfrœðingur 801 GREAT WEST PERM. BLD. Phone 92 755 • W. J. LINDAL K.C. og BJORN STEFANSSON Islenzkir lögfrœðingar 325 MAIN ST. (fi. öðru gólfi) PHONE 97 621 Er að hitta að Gimli fyrsta þriðjudag I hverjum mánuði, og að Lundar fyrsta föstudag
G. S. THORVALDSON B.A., LL.B. Islenzkur lögfrœðingur E. G. Baldwinson, LL.B. lslenzkur lögfrœðingur William W. Kennedy, K.C., LL.B. Fred C. Kennedy, B.A., LL.B. Kenneth R. Kennedy, LL.B. Kennedy, Kennedy &
Skrifst. 702 CONFEDERATION LIFE BUILDING Main St., gegnt City Hall Phone 97 024 Phone 24 206 729 SHERBROOKE ST Kennedy Barristers, Solicitors, Etc. Offices: 505 Union Trust Bldg. Phone 93 126 WINNIPEG, CANADA
DRUGGISTS DENTISTS
WINNIPEG DRUG COMPANY, LTD. H. D. CAMPBELL Prescription' Specialists Cor. PORTAGE AVE. and KENNEDY ST. Winnipeg, Man. Telephone 21 621 DR. A. V. JOHNSON tsienzkur Tannlœknir 212 CURRY BLDG, WINNIPEG Gegnt pósthösinu Slmi 96 210 Heimilis 33 328 Drs. H. R. & H. W. TWEED Tannlœknar 406 TORONTO GENERAL TRUSTS BUILDING Cor. Portage Ave. og Smith St. PHONE 26 545 WINNIPEG
Take Your Prescriptlon to BRATHWAITES LTD. PORTAGE & VAUGHAN Opp. “The Bay” Telephone 23 351 We Deliver Dr. A. B. Ingimundson Tar.nlœknir 602 MEDICAL ARTS. BLDG. Slmi 22 296 Heimilis 46 054 DR. T. GREENBERG Dentist Hours 10 a. m. to 9 p.m. PHONES: Office 36 196 Res. 51 455 Ste. 4 Norman Apts. 814 Sargent Ave., Winnipeg
\
OPTOMETRISTS MASSEUR
Harry S. NOWLAN Tel. 28 833 Res. 35 719 G. W. MAGNUSSON
Optometrist Nuddlœknir
804 TORONTO GENERAL 41 FURBY STREET Phone 36 137
trusTs bldg. ( «»«* (ÐUMiNnr wittio1
Portage and Smith 305 KENNEDY BLDG.
Phone 22133 (Opp. Eaton’s) Slmið og semjið um samtalstíma
BUSINESS CARDS
A. S. BARDAL 848 SHERBROOKE ST. Selur llkkistur og annast um út- farir. Allur útbúnaður sá bezti. Ennfremur selur hann allskonar minnisvarða og legsteina. Skrifstofu talslmi: 86 607 Heimilis talslmi: 501 662 HANK’S HAIRDRESSING PARLOR and BARBER SHOP 3 Doors West of St. Charles Hotel Expert Operators We speeialize ln Permanent Waving, Finger Waving, Brush Curllng and Beauty Culture. 251 NOTRE DAME AVE. Phone 25 070 J. J. SWANSON & CO. LIMITED 601 PARIS BLDG., WINNIPEG Fasteignasalar. Leigja hös. Út- vega peningalán og eldsábyrgð af öllu tægi. Phone 94 221
A. C. JOHNSON 907 CONFEDERATION LIFE BUILDING, WINNIPEG Annast um fasteignir manna. Tekur að sér að ávaxta sparifé fólks. Selur eldsábyrgð og bif. reiða ábyrgðir. Skriflegum fyrir- spurnum svarað samstundis. Skrifst.s. 96 7 57—Heimas. 33 328 OPBES T4*, ' LTD. 28 333 LOWEST RATES IN THE CITY Furniture and Piano Moving J. SMITH Guaranteed Shoe Repairing. First Class Leather and workmanship. Our prices always reasonable. Cor. TORONTO and SARGENT Phone 34 137
að utan.
“Þú átt að berja á hlykkina á
henni, svo hún réttist,” sagði prest-
urinn.
Gísli gerði eins og honum var
sagt, en hríslan var jafn bogin og
kræklótt eftir sem áður.
Nú var Gísli orðinn dauðuppgef-
inn og svitinn rann af honum. Börn-
in stóðu og horfðu á. Fyrst hlóu
þau sig alveg máttlaus, en pabbi
]>eirra var alvarlegur; honum stökk
ekki bros. Gísli var orðinn illur i
skapi yfir þessu og tautaði eitthvað
fyrir munni sér við hvert högg—
eg held að það hafi verið eitthvað
ekki fallegt.
“Nú er bezt að hætta, Gísli,” sagði
prestur loksins. Gísli lét ekki þurfa
að segja sér það tvisvar. Hann
fleygði sleggjunni, þurkaði framan
úr sér svitann á treyjuerminni sinni
og sagði: “Skárri er það nú skorp-
(Framh. á bls. 7)
IIÖTEL 1 WINNIPEG
THE MARLBOROUGH SMITH STREET, WINNIPEG "Winnipeg's Dotim Town Hotel’’ 220 Rooms with Bath Banquets, Dances, Conventions, linners and Functions of all kinds Coffee Shoppe F. J. FALL, Manager ST. REGIS HOTEL 285 SMITH ST., WINNIPEG pœgilegur og rólegur bústaður i miðbiki borgarinnar. Herbergi $.2.00 og þar yíir; með baðklefa $3.00 og þar yfir. Ágætar máltlðir 40c—60c Free Parking for Guests HOTEL CORONA 26 Rooms with Bath, Suites with Bath Hot and cotd loater in everg room Monthly and Weekly Rates Upon Request Cor. Main St. and Notre Dame Ave. East. J. F. Barrieau, Manager
THE ' WINDSOR HOTEL HOTEL ST. CHARLES
M c L A R E N HOTEL J. B. GRAY, Mgr. & Prop. In the Heart of Everythlng
Enjoy the Comforts of a First European Plan WINNIPEG
Class Hotel, at Reduced Rates. Rooms $1.00 and up Rooms from $1.00 Up
$1.00 per Day, Up Hot and cold running water Special Rates by Week or Month
Dining Room in Connection Parlor in connection. Excellent Meals from 30c up
197 GARRY ST. Phone 91 037
It Pays to Advertise in the “Lögberg”