Lögberg - 10.01.1935, Page 5
LÖGBTURGr, FIMTUDAGINN 10. JANtrAR 1935
5
Bjarni Thorarensen,
þjóðskáld Islendinga
Eftir Kristján Albertsson.
Eftirfarandi grein er formáli
að úrvalsljóðum Bjarna Thorar-
ensen, .er. Bókaverslun. E.. P.
Briem gefur út, og kemur út í
dag.
Bjarni Thorarensen og Jónas
Hallgrímsson voru báðir af því
skáldakyni, sem vér nefnum þjóÖ-
skáld, af því aS þjóðarhagur og
þjóÖarliðan fá svo sterkt á hug
þeira, aS verk þeirra verSur, vit-
andi og óafvitandi, að boSskap
þeirrar stefnu, sem hugboÖ og eSlis-
far segja þeim að mestu varði fyrir
farnað þjóSarinnar. Á þeirra öld
voru íslendingar á marga lund þjak-
aSir eftir langa örbirgS og áþján.
Bjarni orti af vitund sinni um feg-
urS sorgar og ógæfu, og ofurgnótt
mannlegra krafta til göfugs, ögrandi
viSnáms, sem snýr hörmum í stór-
læti og lífsnautn, og unir sköpum
sínum af vizku og þreki. En Jónas
setti vizku og þreki þjóöar sinnar
annaS mark en aS una sköpum sín-
um; hann vildi, aS þjóSin berÖist
fyrir hamingju sinni, og orti urn-hve
lífiö á íslandi gæti veriS fagurt,
myndi verSa fagurt, þegar betri öld
væri runnin fyrir sigur íslenzks
manndóms. Þess vegna varS hann
andlegur foringi í viSreisnarbaráttu
þjóSar sinnar,—en ekki Bjarni, sem
þó var einn höfSinglegasti, karl-
mannlegasti andi, sem land vort hef-
ir aliÖ, og heittrúaSur á ágæti ís-
lenzks kyns, á lífiS og á guS.
Skáld sem þeir hlutu á slíkum
tímum aS minna þjóSina á alt, sem
helst mátti verSa henni fagnaSar-
efni. Þeir ortu um fegurÖ íslenzkr-
ar náttúru, Jónas um alt, sem þar
er blítt og elskulegt, og seiddi inn í
IjóS sín ilminn af jörÖinni, fugla-
söng, lækjaniS, allan unaS hins ó-
brotna, heilbrigÖa svéitalífs í sumar-
fögrum dölum, luktum “himinháum
hnjúkafjöllum.” En þjóSin býr í
landi elds og íss, og IandiS er veÖra-
viti megniS af árinu. Bjarni horf-
ist í augu viö þessar staSreyndir, og
hann fagnar þeim, glæsir þær, fyrir
honum er ísland “snjómyndin geig-
fagrar glóSar full,” honum hlær
hugur í brjósti þegar “tindafjöll
skjálfa,” og hann ann hinni hvítu
dýrö og hreinviSris-hörkum ís-
lenzkra vetra, öllu í nátúrunni sem
boSar ógn og stælir kraftinn i þióS-
inni. '
BáSir ortu um “feSranna frægS
Jónas dáir stórmensku þeiiya og a
rek, hiS glæsilega þjóSlíf á sögi
öldinni, Alþingi hiS forna og hi
skrautbúnu skip, sem “flutu me
fríSasta liS, færandi varningin
heini,” og lof hans er blandiS treg;
En Bjarni fæst um lítt þótt þjóÖi
væri hamingjuminni en forðun
honum er hugstæSust sjálf hetji
lund feSranna, sem óblíS örlög f
aldrei svift niSjana, ef kjarni kym
>us helst óspiltur, og er jafnfögv
1 nauSúm sem veraldlegu gengi.
BáÖir ortu um ágæta menn
seinni öldum, Jónas um þá, sei
l,nnu afrek, eSa brunnu af vilja t
hess aö verSa þjóS sinni aS liÖ:
Eggert Ólafsson, Bjarna Thorarei
^n, Tómas Sæmundsson, Þorstei
Helgason. Bjarni heldur líka
minningu nýtra manna o
s 'órunga, og yrkir þó ekki bezt ui
® rek þeirra, heldur viljastyrk o
ynrmensku þegar á móti blt
hr'fCÍnn Pálsson). En sterka:
ri a hann örlög skipbrotsmanna o
fTræfumanna, þess ágætis, sem ekl
r varS úr á íslandi (Sáemundt
h'nTni'SS°n Oddur Hjalt;
j " ‘ & auönuleysisöldum þjóSai
meT mest bori^ a s,il<u á?æ
kvæSi TS-;"rCl,ngUm’ °g þv' ver?
en ^rtla Um þessa menn nieii
bdinm " ^n^ - >au veröa a
meta ehlT^n t,! hjóSárinnar ’a
Tem i me"nina W eini
málmi semT;,''0'1'3'5- hel<i“r 1>eil
a]t ’ þe,m var, þrátt fyr
ogTfeernL-e,nkennÍr Bjarna sterkas
s«> skapmikiS þreT,
hneigS er T dU,ræn’ djúPv>sTn
bueigS, sem lætur sér fátt um fim
ast ytra gengi og farnaS. Og hvort-
tveggja rúmaSist í sál hans baráttu-
laust, í fullkomnu jafnvægi.
Öll hans beztu kvæSi eru ort af
heitri og sterkri trú, ekki bljúgri,
auÖmjúkri, skríSandi trú, heldur
lotningarfullum, karlmannlegum
fögnuði yfir fegurS og tign mann-
legrar sálar, vissunni um líf eftir
dauSa holdsins og guSdómlega
stjórn hak viS gleSi og harma heims-
ins. Og af því aS guS er til og aS
verki í öllu, er hvert böl heilagt og
fagurt:
Mundu þaS er guSs hjör,
er viS hjarta þitt kemur,
• og höndin helgasta,
er hrellir þig.
Hann elskar mótlætiS og sorgina,
en ekkert er honum fjær en mein-
læti, lífsafneitun eSa harmkvæli.
“ÞrekmennjÖ glaSa” kallar Jónas
hann í eftirmælum sínum. Munn-
mælin herma þaS sama, og ljóst er
af kvætSum hans, aS hann hafi elsk-
aS jarSnesk gæSi heitt og notiS
þeirra hraustlega. Hann elskaSi
sorgina og dauðann af því aS lund
hans og ímyndun skynjuSu alla feg-
urS sjúkleiks og visnunar, og anoi
hans var alhraustur, gagnvart öllu í
lífínu kendi hann hreystinnar í
brjósti'sér og gáfunnar til aS njóta.
Hann elskaÖi andstreymiS vegna
þess aS hann markaÖi mennina fyrst
og fremst á því, hvernig þeir reynd-
ust þegar á herti, og vegna þess, aS
hann var þrekmenni, sem unni þreki
og vitsmunum framar öllu ööru.
Hans manngildishugsjón var sú
hetjulund, sem lætur andstreymiS
brotna á sér eins og klettur hafiS,
af því aS hún hefir af rammleik
anda sins, frjósemd hans og vizku
þygt sér “hlátraheim,” sem ekkert
fær á unniö né í rústir lagt. Þessi
hugsjón er kjarninn í boÖskap
Bjarna til þjóSar sinnar og kemur
skýrast og fegurst fram í kvæSinu
um Svein Pálsson:
Eins voru blómin sem áSur
í augum þér, frændi,
þá hneit þér hjarta iS næsta
hjörinn forlaga —
brotnuSu boSar mótlætis
á baki þér sjálfir;
og seggir sáu þig standa
hinn sama og áSur.
Frjáls þinn og auSugur andi
sér átti og nýtti
álfaslot hverjum í hamri
og hægindi í skýjum,
búgarS hvers í blómsturs
bikari miSjum,
og hvern til viStals sér valdi
af vitringum liSnum.
Örlaga örvar því náSu
þig aldrei aS fella,
aS undan færi þinn andi
ætíS sér hafSi;
var hann aS leikum meS liönum,
eSa ljósálfum muna,
harmanornir þá heima
hann hugSi aS finna.
Ef til vill hefir Bjarni Thoraren-
sen veriS vantrúaSur á íslenzkar
framfarir. Hann hefir aS minsta
kosti ^kkert viljaS eiga undir ytri
hamingju um þaS, hvort íslending-
um vegnaSi ver eSa betur. Hann
harmar lítt fátækt og ófrelsi þjóS-
arinnar, en vil! um fram alt aS hún
varSveitist “sálarstyrk og hjarta-
hrein,” aS hún skilji fegurS sinna
kjara og sinnar ógæfu, og aS and-
legt líf hennar sé auSugt og heil-
brigt. Ef til vill hefir-honum ekki
veriS skapi fjarri aS óska sér hana
eins og Odd Hjaltalín:
Konungs hafi hann hjarta
meS kotungsefnum.
Vafalaust hefir hann taliS aS mestu
varöaöi aS hún kynni
upprétt aS ganga
mót örlagastraumi.
Ekkert íslenzkt skáld hefir setn
hann kent þjóö sinni aS bera ham-
ingjuleysi' án þess aS bíSa tjón á
sálu sinni, og taka öllu, sem aS
höndum ber, og öllu, sem er eilif-
lega óblítt í íslenzkum kjörum, af
andagift og þreki,—Mbl. i. des.
Silfurbrúðkaup
hjónanna Láru og Bjöms
Sigvaldasonar í Arborg,
Man.
VirSulegt samsæti til heiÖurs Sig-
valdasons hjónunum á tuttugu og
fimm ára giftingar afmæli þeirra var
haldiS hátíÖlegt í Árborg, aS aftni
þess 7. nóv. s. 1. Efnt hafSi veriÖ
til samsætisins af ástvinum velunn-
urum og vinum og nágrönnum
þeirra. Samkomuhús GóÖtemplara
var fagurlega skreytt, og fjöldi
inanns þar samansafnaSur. Gift-
ingar-“march” spilaði Mrs. Magnea
SigurSsson, organisti í kirkju Ár-
dalssafnaSar í Árborg. Voru svo
heiÖursgestirnir leiddir til sætis hjá
mannvænlegum hópi barna sinna.
Giftingarsálmur var þá sunginn af
fólksfjöldanum, undir forustu lút-
erska söngflokksins. BauS sóknar-
prestur svo gesti velkomna og mælti
ávarpsorSum til heiSursgestanna og
voru góSar gjafir þeim afhentar.
Hófust svo ræöuhöld og töluSu ýms-
ir. Fyrir minni Mrs. Sigvaldason tal-
aSi Hr. Magnús SigurÖsson á Hofi.
Hr. Snæbjörn S. Johnson mælti fvr-
ir minni silfurbrúSgumans. Hr.
Bergur J. HornfjörS flutti heiS-
ursgestunum vinsamlegt kvæSi. Mr.
Johnstone bankastjóri mælti nokk-
ur orS. Þá talaði hr. Thor Lif-
mann, oddviti Bifrastar-sveitar, ná-
granni heiSursgestanna og eftir-
maÖur silfurbrúSgumans í oddvita-
stöSu. Hr. Gísli Einarsson frá
Riverton talaöi einnig. Milli r.æSu-
haldanna song fólkiS undir forustu
söngflokksins. S'amsætiS fór hiS
bezta fram; naut fólk sín eSlilega
og vel. Hinar ýmsu ræSur og minni
fluttu mikla viSurkenningu á því, aS
þessi heiÖurshjón höfSu fyrir ágæta
hæfileika sína, og svo atbeina barna
sinna, er þau komust á legg, getað
farsællega framfleytt sínum stóra og
efnilega barnahóp. Heimili þeirra
er aS mörgu leyti sannkalIaS fyrjr-
myndarheimili, ríkir þar fágæt iSni
og stök reglusemi. Hjónin hafa átt
þátttöku í ýmsum félagsskap; Mr.
Sigvaldason er héraSskunnur hæfi-
leikamaSur og vel gefinn.; hin forna
lýsing: “þéttur á velli og þéttu i
lund,” mun eiga vel heima um hann ;
er hann enginn já-bróöir eSa fylgir
meirihluta í neinu máli af þægS eSa
vana einum saman. Hann heldur
fast á hverju máli, sem hann gefur
sig viS, og er allmjög tengdur sögu
héraösins. Um nokkur ár var hann
oddviti Bifrastar-sveitar. ViS skóla-
mál var hann starfandi um allmörg
ár, ber hann gott skyn á þau sem
mörg önnur mál, og ber þau fyrir
brjósti. — Fágætt mun þaS, aS liinn
stóri barnahópur þeirra, börnin eru
sextán aS tölu, eru öll á lífi, mann-
vænleg og fyrirmynd að afstöSu
gagnvart hag heimilis síns og for-
eldra sinna,—-
í lok samsætisins mælti heiSurs-
gesturinn þakklætisorSum fyrir
hönd sína og sinna; getur sá, er
þetta ritar ekki varist þess aS minn-
ast á eitt atriSi í skipulégri ræSu
hans, en þaS var: aS af allri at-
vinnu virtist honum aS bændastaS-
an væri virSingarverSust, og sér
kærust og hann óskaSi þess aS hörn
sín IegSu rækt viS landiS. — Sig-
valdasons hjónin eru enn á ágætum
aldri, og er Lára enn blómleg að
útliti, þótt hópurinn sé þetta stór og
dagsverkiö óvenjulega umfangsmik-
iS.
SamsætiÖ var ánægjuleg stund, á-
nægjulegur áningarstaSur, sem góS-
ar minningar eru viS tengdar. Á-
gætar veitingar voru um hönd hafS-
ar. Ef til vill tóku fleiri til máls, en
nafngreindir hafa veriS. AS sam-
sætinu enduSu nutu menn sín viS
samræSur um hríS, og héldu síSan
heimleiSis, ánægSir yfir ljúfri kvöld.
stund, er þeir höfðu sameiginlega
notiS.
5-. Ó.
♦ Borgið LÖGBERG!
Silfurbrúðkaup í
Selkirk
SiSir og háttalag manna er sí-
feldum breytingum undirorpiÖ, svo
hefir þaS veriS frá ómunatíS, rétt
eins og veSriS í loftinu. ÁSur fyr
kostuÖu þeir, sem næstir stóSu,
brúÖkaup sín sjálfir og lentu þar
stundum í stórskuldir, sem erfitt.
var aS losna viS. Á þessu eru nú
oröin algerÖ hausavíxl; hver kepp-
ir nú fram meS sinn skerf, aS gera
þessar brúSkaupsveizlur þannig úr
garSi aS allir, sem hlut eiga þar aS
máli, geti aS þeim loknum fariS sem
ánægSastir til heimkynna sinna; þar
miölar margur af smáum efnum, en
sýnir um leiS aS virSing er borin
fyrir ástinni og hjónabandinu. ÞaS
er vel aS svo er, því án efa eru þar
þó til brestir í keri. Eitt þetta silf-
urbrúSkaup fór fram hér í Selkirk,
eins og sést af því, sem eftir fvlgir.
ÞórSur Bjarnason og Jón Ingjalds-
son fluttu sína ræSuna hvor, en sá,
sem þetta ritar var málshefjandi.
Séra Theodore stýrSi samkomunni
meS snild.
HeiSruSu tilheyrendur:
Allir þekkja eldinn þann,
aS sem huga renni;
honum ekkert eSli kann
aftra þess liann brenni.
Sigurður Breiðfjörð.
Nú er 2. nóvember, 1034. í þessu
húsi er samankominn vænlegur hóp-
ur manna og kvenna. Þessi staöur
og stund eru helguÖ heilögu hjóra-
bandi þeirra Inga Dalman og Stef-
aníu konu hans. Eftir 25 ára sam-
búÖ hefst nú þeirra siIfurbrúSkaup.
Eg þykist vita aS ljós friSar og á-
nægju skini í hjörtum ýSar allra,
sem hér eru á þessari stund, sem
vermíst og glæSist af nálægS frels-
ara vors Jesú Krists, því hann
sagSi: hvar sem tveir eSa þrír eru
samankomnir í mínu nafni, þar vil
eg vera mitt á meSal þeirra, og þaS
sama gildir þó hópurinn sé stór.
ÞaS fyrsta heilagt hjónaband, sem
sögur nefna var þaS er þau Adam
og Eva voru gefin saman í Eden
forSum. í þeirri heilögu skrift
standa þessi orS: GuS blessaSi þau.
Sú fyrsta skipun, sem þeim var
gefin var þessi: aukist og margfald-
ist og uppfylliS jörSina. Þeirri
skipun hefir aS miklu leyti veriS
dyggilega hlýtt, sem betur fór, þvi
á ýmsu hefir oltiS um 7000 ár (eSa
hvaS þaS nú er, sem liSiS er síSan)
, til aS höggva skörS í hópinn, svo
illa hefSi dugaS aS óhlýönast skip-
uninni.
Ekki skal eg reyna aS draga stryk
yfir þaS aS þrautir og erfiSleikar
falla oft á leiS hjónabandsins; svo
getur þaS líka veriS hvaSa stöSu
sem gegnir, því hvaS vel sem menn
hafa viljaS og þykjast vilja, þá hefir
ekki tekist, og mun seint takast, aS
breyta því aS þessi heimur okkar
meS allri sinni fegurS og gæSum er
þó á'aÖra hliS orustuvöllur milli lífs
og dauSa. “A hólmi þar skilmast
hel og líf,” sagSi Hjálmar í Bólu.
Eg vik aftur aS því aS GuÖ
blessaSi þau Adam og Evu : þaS sýn-
ir aS hér var um mikilvæga stöSu
aS ræSa, og þessi blessun rann fram
og rennur gegnum aldirnar frá kyni
til kyns, til heimsslita, sem ýmsir
telja nú mjög nálæg, þó enginn sjái
út úr reyknum og þokunni.
ÞaS átti ekki aS sýna stöSunni
(hjónabandinu) óvirÖingu; samt
kom þaS fyrir á MiSöldunum aS
hjónabandinu var sýnd óvirSing, og
svo langt gekk heimskan, aS reynt
var aS gera konuna manninum ó-
æSri. Hverjir gerSu þaS? Kirkju-
sagan getur um þetta.
Páfar kardínálar, biskupar, prest-
ar og munkar urSu víst nokkurn
veginn sammála um þaS, aS synd
væri drýgS sem gengi glæpi næst,
ef nokkur andlegrar stéttar maSur
festi sér konu. Þetta og þar kring
um liggjandi háttalag andlegu leiÖ-
toganna rambaSi um nokkur hundr-
uS ár alveg eins og stórskip meS
brotnum áhöldum og biluSu stýri í
sjávarháska. ÞaS er sagt og vist
ekki með öllu logiS aS þá vill geiga
frá réttu horfi þegar stýriS er bil-
aS. Á dögum Lúters og siöbótar-
manna var þessu breytt, og þá komst
helgidómurinn þar í samt lag.
Nú vil eg snúa orSum mínum aS
því aS segja nokkur orS um heim-
iliS, og er þaS á þessa leiS:
Þannig falla atvik aS maSur og
kona kynnast hvort öSru: þar lifn-
ar stundum eldur, sem ekki verÖur
varnaS aS brenni. Þau stofnsetja
heimili, sem er grundvallaS á ást og
kærleika; þegar þar svo ríkir friS-
ur og eindrægni, þá er vafalaust aS
farsældin á þar heima. hæSi inrtan
húsveggja og utan; þau eru þar sem
kóngur og drotning í ríki sínu, þó
ekki sé yfir stórum löndum aS ráSa,
þá hafa heimilin veriS, eru og verSa
gróSrarstöS og vermireitur barn-
anna, kvnslóS eftir kynslóS., ÞaS
sem börnin læra gott og göfugt hjá
föSur og móSur, flytja þau meS sér
út af heimilinu og hafa meS því bæt-
andi áhrif á þá, sem þau umgang-
ast síöar. Ef svo má aS orSi kveSa.
þá drekkur barniS í sig dygSina og
kærleikann í brjóstamjólk ástríkr-
ar móSur.
Margir hafa þeir menn veriS uppi,
sem komist hafa til vegs ög virSing-
ar, en hiklaust játa aS sínar bezlu
leiSbeiningar og áminningar hafi
þeir öSlast viS handleiSslu móSur
sinnar og föSur.
Eg hefi nú meS ófullkomnum
orSum lýst þeim heimilum, sem eg
álít aS tilheyri heilögu hjónabandi
og tileinka þeim hjónum, sem eg
nefndi í upphafi þessa máls og eru
heiSursgestir hér í kvöld.
Mér og öSrum er þaS kunnugt aS
þessi hjón eru ráSvönd og heiSvirS,
og hafa meS sæmd aliS önn fvrir
sér og skylduliSi sinu (sem er stór
hópur barna) og þar aS auki rétt
ýmsum þurfandi hjálparhönd, án
endurgjalds.
Silfur. og gull-brúSkaup eru nú á
dögum í miklum uppgangi, sem
bendir til þtss aS viröing fyrir
hjónaböndum sé alls ekki í aftur-
för. ÞaS er sagt aS hreint gull og
silfur séu ósviknir og dýrir málmar;
á líkan hátt má segja aS 25 ára, eSa
hvaS löng, sem er heiÖvirS og góS
sambúS sé ósvikinn og dýr tími.
Svo enda eg þetta tal og biS af-
sökunar á því hvaS þaS er ófull-
komiS. Eg óska ykkur, brúShjón.
og ,öllum, sem hér eru staddir
sannrar farsældar héSan frá og til
æfiloka.
Svcinn A. Skaftfeld.
Selkirk 5. janúar 1935.
Áœtlun
H.f. Eimskipafélags Islands
fyrir 1935.
Skipin haga ferSum þannig: Gull-
foss verSur í förum milli Kaupm,-
hafnar, Leith, Reykjavikur og Ak-
ureyrar. Brúarfoss verSur í förum
milli Kaupmannahafnar, Leith,
Re-ykjavikur og \ estf jarSa. Lagar-
foss veröur í förum frá Kaupm.-
höfn og Leith til Austur- og NorS-
urlands. GoSafoss verÖur í ‘förum
frá Ilamborg og Hull til Reykja-
víkur og Akureyrar eins og aS und-
anförnu. Dettifoss verSur einnig í
förum frá Hamborg og Hull til
Reykjavíkur og Akureyrar. Sel-
foss veröur í förum frá Antwerpen
og London til Reykjavikur.
Burtfarardagar skipanna eru
mestan hluta árs, sem hér segir:
Frá Kaupmannahöfn annan hvern
laugardag, frá Leith annan hvern
þriSjudag, frá Hamborg annan
hvern laugardag, frá Hull annan
hvern þriSjudag, frá Reykjavík til
útlanda vikulega, ýmist þriöjudaga
eSa miSvikudaga og frá Reykjavík
til Akureyrar þrisvar í mánuÖi, ým-
ist þriSjudaga eSa miÖvikudaga.
Eins og sjá má af ofangreindu
eru skipin svo aS segja í sömu ferS-
um og aS undanförnu, aS öSru leyti
en því, aS hraSferSir Gullfoss milli
Kaupmannahafnar og Reykjavikur
yfir sumarmánuSina falla niöur, en
skipiS kemur í þess staS viS í Leith.
Er þessi breyting aSallega gerS
vegna mikiÖ aukinna farþegaflutn-
inga frá Englandi um sumarmánuS-
ina. — Sérstök athygli skal vakin á
því aS London er nú gerS aS fastri
áætlunarhöfn, og verSa ferSir þaSan
á næsta ári einu sinni í mánuSi meS
e.s. Selfoss.
FerSir frá Kaupm.höfn verSa
samtals 31, þar af beint til Reykja-
víkur 2, til Reykjavíkur meS viS-
komu í Leith 21, og til Austur- og
NorSurlands 8. — FerÖir frá Ham-
borg til Reykjavíkur meS viSkomu
í Hull verSa samtals 23.—FerSir
frá Antwerpen vérSa samtals 11,
þar af meS viökomu í London 10
og meS viökomu i Kaupmannahöfn
1.—FerÖir frá London meS viS-
komu í Leith 1. — FerSir frá
Reykjavik til Kaupm.hafnar verSa
samtals 24, þar af beint 4, meS viS-
komu í Leith 17, meS viÖkomu í
Antwerpen 1 og meS viökomu á
Austf jörSum 2.—FerSir frá Reykja-
vík til Hamborgar verSa samtals 22,
þar af beint 1, meS viSkomu í Hull
20 og vestur og norSur um land 1.
—FerSir frá Reykjavík til Ant-
werpen verSa samtals 10. — HraS-
ferSir frá Reykjavík til Akureyrar
og til baka verSa 31. — FerÖir frá
Reykjavík til Vestfj. og BreiSa-
fjarÖar verSa 12. — FerSir frá út-
löndum verSa því samtals 65 og
ferSir til útlanda 62.
Vísir, 8. des.
1 THOSE WHOM WE SERVE 1
IN THE FIELD OF COMMERCIAL PRINTING
AND PUBLISHING BECOME LASTING FRIENDS
BECALSh-
OVER THIRTY YEARS EXPERIENCE IN ENGRAV-
ING, PRINTING AND PUBLISHING IS PART OF
THE SERVICE WE SELL WITH EVERY ORDER
WE DELIVER.
COLUMBIA PRESS LIMITED
G95 SARGENT AVENUE - WINNIPEG - PHONE 86 327
'^1IIIIIUlllllllllllll!llIUlltUlllIlllHlllUlllllll!!llllllllllUUlUUUllllUlUlllUUUUlllllUllUllllUJ!liUlllllllllllllllllllllUlllllllUUlillUllUUIUllUlllllllllUIIIII l!llllll!i;!i"lll!lllllll!ll!lll!lllllll!!llll!!:!lllllll!>>!llllllllllllllllllllllllllllllllll!l!lllll!ll!ll!IIIIUIIIlllllllllllllllllllllllllll!illll!!ll!ll!IUli;il!l!lllli;ill!l!l r"