Lögberg - 14.02.1935, Síða 1

Lögberg - 14.02.1935, Síða 1
48. ARGANGUR jj WINNIPEXi, MAN., FIMíTUDAGINN 14. FEBRÚAR 1935 J NÚMER 7 Merkur Islendingur látinn ’ I 1 ; MAGNUS PETERSON, skrifstofustjóri Winnipegborgar. SíÖastli'fiinn mánudag lézt í borginni Los Angeles í Cali- forníu ríki, Mr. Magnus Peterson, skrifari Winnipegborgar, eftir langvarandi heilsubilun, þó áhugi hans og skyldurækni héldu honum við starf fram til tiltölulega skamms tíma, er hann, samkvæmt áeggjan bæjarstjórnar, tók sér hvíld, ef vera mætti að honum auðnaðist að ná aftur heilsu sinni. Magnus Peterson var fæddur í Wlinnipeg þann II. dag júlimánaðar árið 1883. Voru foreldrar hans þau Pétur Magn- ússrríi og kona hans,' ættuð af ísafiröi, er þá voru svo að segja nýkomin að heiman. Móður sína misti Magnús er hann var barn að aldri, en ólst upp hjá föður.sínum og stjúpu, ^ar til faðir hans Iézt 1894. Frá ellefu ára aldri spilaði Magnús jafn- an upp á eigin- spýtur og komst snemma til mannvirðinga. Hann átti ungur þvi láni að fagna, að komast í kynni við ágætan mann, þáverandi borgarskrifara, Mr. Brown, er tók við hann miklu ást- fdstri og kom honum að sem vikadreng á skrifstofu sinni. Upp frá því hækkaði þessi hógværi, dagfarsgóði maður jafnt og þétt í mannvirðingarstiganum, unz þar kom, að við lát Mr. ' Browns 1926, var honum veitt borgarskrifara-sýslan; þótti hann sjálfkjörinn í þá stöðu, sakir frábærrar árvekni og sam- vizkusemi í því öllu, er að skrifstofustjórn bæjarmála laut. Aðstaðan í lifinu haþaði því þannig til, að Magnus gat ekki tekið mikinn almennan þátt í félagsmálum fslendinga. En hann var íslendingur í hjartanu eigi að siður. Magnus Peterson var drengilegur maður í fasi og sór sig mjög í ætt við hinn norræna stofn; út frá honum stafaði hrein. skilni drenglundaðs manns. Það er holt hverju þjóðfélagi, að eiga slíka menn sem Magnus Peterson var, og taka þá sér til fyrirmyndar. Magnus Peterson lætur eftir sig konu og fimm börn. Hinn látni skrifstofustjóri hafði mikið yndi af íþróttum, einkum “curling,” og rétt áður en hann dó var hann gerður að heiðurs- félaga í Manitoba Curling Association. VOLDUGT LOFTFAR SEKKTJR Þann 12. þessa mánaðar sökk, skamt undan ströndum Californíu, amerískt loftfar, g^ysistórt, úr 2,500 feta hæð. Áttatíu og þrír menn voru á þessum mikla loftdreka og björg- uðust þeir allir að undanteknum tveimur. Loftdreki þessi var met- inn á f jórar miljónir dala. dregur sig sennilega IHLÉ Samkvæmt símfregnum frá Ot- tawa þann 12. þ. m., mun mega telja nokkurn veginn víst, að Mr. J. H. Stitt, núverandi þingmaður Selkirk kjördæmis, dragi sig út úr stjórn- málunum og leiti ekki endurkosn- ingar til Sambandsþings. Er þetta bygt á því að í ræðu, sem Mr. Stitt flutti í þinginu síðastliðið mánu- dagskveld, komst hann meðal ann- ars þannig að orði: “Þetta getur orðið síðasta ræðan, sem eg flyt á Hngi.” Fullyrt er að Mr. Stitt hafi þegar fengið loforð fyrir fastri stöðu í þjónustu Sambandsstjórnar. hatollastefnan FORDÆMD I tanríkisráðgjafi Bandaríkj anna, Cordell Hull, hefir nýverið komið fram með þá uppástungu, að kvatt verði til alþjóða fjárhagsfundar í Washimgton á næstunni, með það fyrir augum, að reyna að ryðja úr vegi að einhverju leyti þeim höml- um, er standi alþjóða viðskiftum um þessar mundir einna tilfinnan- legast fyrir þrifum; vék hann í þessu sambandi all-óvægilega að tollmúrum hinna ýmsu þjóða, bæði sinnar og annara, er yrði þegar öllu væri á botninn hvolft öllum aðilj- um til ógagns og ætti rót sína að rekja til þjóðernislegs þröngsýnis. FRJÁLSLYNDIR KJÓSEND- UR IIALDA FUND Á miðvikudagskveldið þann 7. þ. m., héldu fylgismenn frjálslynda flokksins í Norður-Winnipeg fjöl- sóttan fund i Harrison Hall. Meðal þeirra, sem fluttu ræður, voru J. T. ThorSon, K.C., þingmannsefni frjálslynda flokksins í Selkirk kjör- dæminu, og Mrs. W. J, Lindal. f ræðu sinni komst Mr. Thorsön meðal annars þannig að orði: “Það, sem konunglega rannsókn- arnefndin í Ottawa hefir dregið fram í dagsljósið, ber núverandi tollverndarkerfi þjóðarinnar ófagr- an vitnisburð. ÞINGSETNING Síðastliðinn þriðjudag var fylk- isþingið í Manitoba sett með veg- legri viðhöfn af hinum nýja fylkis- stjóra, Hon. W. J. Tupper, að við- stöddu miklu f jölmenni. Löggjafar nýmæli þau, sem vikið er að í stjórnarboðskapnum, eru sjö tals- ins. 1. Stjórnarheimild urn að setja á laggir nauðsynlega framkvæmdar- nefnd með með framræslu, í því falli að hinu fyrirhugaða framræslu stórvirki Winnipegborgar verði hrundið í framkvæmd, og samræma það við önnur slík fyrirtæki í fylk- inu. 2. Breyting á lögum um þjóðvegi, ípeð það fyrir augum að útiloka bilaárekstur og slys að svo miklu leyti, sem framast má verða. 3. Heimild til laga, ef Jmrfa þyk- ir, í sambandi við hina fyrirhuguðu löggjöf sambandsþings um atvinnu- leysisstyrk, ellistyrk og ákvæðis- bundinn vinnutíma, í því falli að sú löggjöf nái fram að ganga. 4. Framhaldsstarf við endurskoð. un og samræming fylkislaga, þann- ig, að innifalin verði lög um fram- leiðslu mjólkur, lög um barnavernd og lög um lögsóknara krúnunnar. 5. Frumvarp til laga um breyting á launalögum (Fair Wage Act), sveitarst j ójnarlögum, ábyrgðarlög- um, skólalögum og lögum um vernd almennings gegn ófyrirleitni 'og brögðum tryggingum viðvíkjandi. 6. Breyting á skuldheimtu og skuldajöfnunar löggjöf fylkisins. 7. Frumvarp til laga til þess að koma á fullum jöfnuði í framræslu- umdæmum fylkisins. TEKST A IIENDUR NÝJA ÁBYRGÐARSTÖÐU Mr. Oliver G. Björnson. Mr. Oliver G. Björnson, sá, er í síðastliðin tuttugu og þrjú ár, hefir gegnt vándasamri trúnaðarstöðu á skrifstofu Royal Bank of Canada hér i borginni, hefir nýlega sagt sýslan sinni þar lausri, en tekist í þess stað á hendur skrifstofustjóra starf í Winnipeg hjá Nesbitt-Thom. son fésýslufél. víðkunna, er skrif- stofur hefir i flestum megin borg- um þessa lands og gefur sig einkum og sér í lagi að kaupum og sölum veðbréfa, sem og sölu hlutabréfa í hinum ýmsu fyrirtækjum. Nýtur félag þetta í hvívetna álits og trausts. Þessi fregn er hinum mörgu vin- nm Mr. Björnsons óblandið fagn- aðarefni; hann er dengur hinn bezti, og ábyggilegur í öllum efnum, og hefir tekið rnikinn og góðan þátt í íslenzkum mannfélagsmálum. KIRKJAN C^) FYRSTA LOTEJRSKA KIRKJA Sunnudaginn 17. febrúar. 1. Hádegismessa, ensk, kl. 11.—Ræðuefni: Lessons f rom the Life of an Immigrant Boy (Suggested iby tlie 65th annivers- ary ef the birth of the late Hon. Thomas H. Johnson). 2. Kvöldmessa, íslenzk, kl. 7.—Séra Jóhann Friðriksson verður staddur í borginni og prédikar við guðsþjónustuna þetta kvöld. Frá Islandi Húsið við þjóðveginn (Þýtt úr enksu) / Það sumum er ljúft að lifa sér —það líf er þeim sjálfsnægð ein— sem stjarna vilja’ aðrir skína skær, þars skín ekki önnur nein. Um firnindi sumir brjóta braut, þar brautir voru’ engar fyr. • En eg vil hjá veginum byggja bæ og bjóða þar opnar dyr. Frá Iiúsinu vil eg horfa’ á fólk, sem hrekst yfir lífsins veg; eg veit það er bæði vont og gott —já, vont og gott, eins og eg.— Bn eg skal ei lirópa hæðnisorð, sem hann, er með dómsrödd spyr. • Nei, eg \dl hjá brautinni byggja hús og bjóða þar opnar dyr. Frá húsinu mínu veginn við —sá vegur er lífsins braut— eg keppa sé fólk með fjör og von— og fólk, sem af þreytu laut. Eg skil þeirra beggja bros og tár —um breytni eg engan spyr.— En eg vil 'hjá 'brautinni byggja hús og bjóða þar opnar dyr. Eg skil það að framtíð skapar lönd, þar skiftist á grýtt og frjótt.; og draumsjónir töfra livert dauðlegt barn um dagleið — þá tekur við nótt.— Eg gleðst ef eg ferðamann glaðan lít, eg græt yfir þrautum hans. Eg bý ekki einmana veginn við: á vinfylgju sérhvers manns. Frá húsinu vil eg horfa á fólk, sem lirekst yfir lífsins veg, er viturt og 'heimskt, er vont og gott, er veiklað og hraust—'eins og eg. > Því hrópa eg aldrei hæðnisorð og hvergi um sakir spyr. en eg vil hjá brautinni byggja hús og bjóða þar opnar dyr. Sig. Júl. Jóliannesson. Giftingaraldurinn. Á - árurmm 1926—30' hefir meðalaldur brúð- guma við giftingu verið 30.0 ár og brúða 26.4 ár hér á landi. Dánardaegur. Nýlátinn er Þórður Þórðarson bóndi að Fossi i Vopna- firði, á sjötugsaldri. — 1. þ. m. lézt Stefán Stefánsson bóndi og útgerð- armaður, Miðgörðum í Grenivík á sjúkrahúsi á Akureyfi, að loknum uppskurði. Sigurður Sigurðsson hefir sagt búnaðarmálastjórastarfinu lausu frá áramótum. Seinasta Alþingi sam- þykti að veita honum 4,500 kr. eftir- laun, ef hann léti af störfum. Flcirburafœðingar. Árin 1926— 30 voru hér á landi 215 tvíburafæð- ingar og 1 þríburafæðing. Næstu fimm árin á undan (1921—25) voru tvíburafæðingarnar 181 og þríbura- fæðingarnar 4. Tíminn 7. janúar. f Gjaldeyris og innflutningsnefnd, samkv. hinum nýju lögum, var skip- uð af fjármálaráðherra n.’þ. m. Skúli Guðmundsson kaupfélags- stjóri er formaður og framkvæmda- stjóri nefndarinnar, en auk hans eru útnefndir af ráðherra Kjartan Ól- afsson bæjarfulltrúi í Hafnarfirði og Björn Ólafsson stórkaupmaður. Landsbankinn hefir tilnefnt L. Kaaber bankastjóra og Útvegsbank- inn Jón Baldvinsson bankastjóra,—*- Reglugerð smakv. hinum nýju lög- um hefir einnig verið gefin út af f j ár málaráðherra. Iþróttafélag Reykjavikur hefir ráðist í þa§ að gefa út bók til leið- beiningar í úti-íþróttum, og er hún þegar komin á bókamarkaðinn. Bókin er þýðing á bók eftir tvo þekta íþróttamenn—þjálfara—Carl Silverstrand og Moritz Rasmusen, og hefir um nokkur undanfarin ár verið mjög mikið notuð sem kenslu- bók í úti-íþróttum, bæði af íþrótta- félögum, skólum og einstaklingum um öll Norðurlönd. Auk þess hefir hún verið þýdd á þýzku og ensku, og er í ráði að gefa hana út að nýju á ensku. Má, sem dæmi um það, hversu mikils álits hún nýtur, nefna, að i síðasta blaði (des.) af Super- man, sem er málgagn brezka íþrótta- sambandsins (A.A.A.) er bent á bók þessa sérstaklega, um leið og stjórn íþróttasambandsins hvetur alla í- þróttamenn til þess að æfa sig af kappi undir næsta ár og næstu Olympiuleiki 1936. I bókinni er nákvæmlega lýst beztu þjálfunar- aðferðum í hlaupum, stökkum og köstum og fylgja um 120 myndir til skýringar, svo að öllum verður mjög létt að sjá, hvað varast ber og að hverju beri að keppa. — Verð bók- arinnar, sem er 232 bls. að stærð, innbundin í sterkt og gott band, er aðeins kr. 4.50. Ársrit hins ísl. garðyrkjufélags 1934, er nýlega komið út. Flytur það m. a. greiú um trjárækt eftir Einar Helgason garðyrkjustjóra og grein um garðrækt og áburð eftir Árna G. Eylands ráðunaut. Úrkoman í nóvembermánuði s.l. var í meira lagi, eða 29% umfram meðallag á öllu landinu. Mest mánaðarúrkoma 367.1 mm., mældist í Vík í Mýrdal og þar mældist líka mest sólarhringsúrkoma 13. dag mánaðarins, eða 79.0 mm. t Sólskin í nóvember. 1 Reykjavík var sólskin í 22.5 klst. eða 13.2% af þeim tíma, sem sól er á lofti. Meðaltal 11 undanfarinna ára er 32.6 klst. A Akureyri var sólskin- ið 9.2 klst. eða 5.1% af þeim tíma, sem sól er á lofti. Kaupfélag er nýstofnað á Eski- firði i stað hins sem var þar fyrir en hætt er störfum. Stofnendur eru 21. — Nýja kaupfélagið hefir keypt verzlunarhús og vörubirgðir M. Jensens, aðalkaupmannsins á staðn- um og ráðið Jensen framkvæmda- stjóra. Stjórn félagsins skipa: Hall- dór Jónsson bóndi að Innstekk, Gunnar Grímsson, bankar. og sr. Stefán Björnsson. Úr Loðmundarfirði. í bréfi dags. 27. des. s. 1. úr Loðmundarfirði seg- ir m. a. sem dæmi um veðurblíðuna þ^f: “í blómagarðinum lifna bel- lisar, kongaljós, gullfíflar og sól- eyjar. Ein sóley hefir sprungið út Jiar og önnur í túninu.” N. dagbl. 23. jan. Frá Laugavatni. Á Laugavatni hefir tjald verið notað til gufubaða þangað til í haust, að reistur var timburskúr yfir hverinn og hefir það reynst til mikilla bóta. Hafa nemendur að jafnaði i vetur fengið sér gufubað eftir leikfimisæfingar. Líkar þeim það svo vel, að þeir myndu fyrir enga muni vilja missa af þeim þægindum. Má geta þess í sambandi við þetta, að Ásgeir Ás- geirsson fræðslumálastjóri fékk þvi komið til leiðar á seinasta þingi, að nokkur f járhæð var veitt á þessa árs fjárlög til að koma upp gufubað- stofu í finnskum stil við alþýðuskól- ann á Núpi. Bendir reynslan af gufubaðinu á Laugarvatni til þess, að góðs árangurs megi vænta af þeirri framkvæmd. N. dagbl. 23. jan. Embœttisstörf presta 1934. Sam- kvæmt nýkomnu Kirkjuriti voru |haldnar um 4 þús. messur hér á landi | á síðastliðnu ári, eða að meðaTtali tæpl. 40 á hvernr prest. Fermd hafa verið 1800 — 1900 ungmenni, skírð meira en hálft þriðja þúsund börn, gift um 600 pör og jarðsungn- ir um 1200 manns. — N. dagbl. MEISNER FUNDINN SEKUR Maður sá, er tekinn var fastur snemma í vetur, Meisner að nafni, og sakaður um ránið á ölkónginum í Torontoborg, John Labatt, hefir verið fundinn sekur og dæmdur í fimtán ára fangelsi. Réttarhaldið stóð ekki yfir nema örstuttan tíma.

x

Lögberg

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.