Lögberg - 14.02.1935, Qupperneq 3
LÖGBBRG, FIMTUDAGINN II. FRBRÚAR, 1935.
3
För í Húnaþing
Eftir Signrð Guðmundsson
skólameistara.
(Framh.)
í langferðum og leiÖangri í fjöll
upp geta kennarar kynst némendum
á fleira en b-landa geði viS j>á.
Hvergi veitist kennurum betra færi
á aÖ taka eftir framkomu nemenda
hvers viÖ annán, greiövikni þeirra,
kurteisi, hugsunarhætti, orÖbragÖi,
tápi þeirra og fjöri, hverir skemta
fegurst og bezt. En til slíks verÖa
ferÖirnar aÖ vera nokkuÖ langar eÖa
viðburðaríkar, því aÖ varasamt er að
leiða ályktanir um skaphöfn nem-
enda af einstöku viðviki eður ein-
stökum verknaöi. Sést þá stundum,
að þeir, sem eru síðastir inni, verÖa
fyrstir úti, að vaskleik og f jöri, for-
Ustu og úrræÖum. En kunnugleik-
ur á nemendum er eitt frumskilyrði
þess, aö skólastjórn fái heillavæn-
lega ork^iÖ á þá.
Haustið 1932 datt mér i hug, að
gaman væri að sýna 6.-þekkingum
merka sögustaði og rif ja upp á sjálf-
um stöðunum þá atburði, sem þar
hefðu gerzt. Slíkt er þeim mun
hægara hér, er vestan viö öxna-
dalsheiði er eitt hið sögulegasta
hérað landsins, Skagafjörður. 'At-
burðir sögunnar, kappar hennar og
leikendur færast oss nær, verða
fremur en annarst^ðar lifandi fyrir
hugskotssjónum vorum, þá er vér
rifjum upp fyrir oss frásagnirnar á
sjálfum stöðunum, er tíðindin gerð-
ust á. Menn og viðburðir verða þá
meir en nöfnin tóm, festast oss
rækilegar i minni. Það þykir nú
í sögukenslu nauðsynlegt, að sýna
nemöndum sögulega landsuppdráttu.
En hyað er uppdráttur af sögustöð-
um og söguleiðum á við skoðun á
sjálfum sögustöðunum ? Þar veitir
oss léttast að skoða, hvernig atvik
og orrustur gerðust. Slík skoðun
er eins konar “bíó”-sýning, þar sem
nemendur og kennendur verða sjálf-
ir að gera þær kvikmyndir, er þeir
líta hugarsjónum. Slík hugarsjón
er venjulegum kenslustundum og
kenslubókum ríkari. Hún er og að
þvi leyti andlega frjórri, að hún
reynir á ímyndunarafl og sjónskerpu
stælir slíkt og styrkir. Vera má,
að suma nemendur skorti að mestu
slíkt hugarafl, og það verði lítið
örvað eða glætt i þeim, ferðirnar
missi að því leyti marks. En ef
vel gengur, græða nemendur allir
eitthvað á slíkum ferðalögum. Sum-
ir sjá og alt af nokkuð í huga sér af
sögnum frá liðnum tímum, er þeir
eru þannig örvaðir til slíks. Og
“mjór er mikils vísir.” Vér skóla-
menn verðum að vera bjartsýnir,
þótt örðugt sé. Má sér til gamans
ekki vona, að þessi sögulega kvik-
niyndagerð hugkvæmdar-afls vors
geti orðið stöku nemanda að byrjun
a víðtækari hugarskoðun á liðnum
b'mum og tíðindum? Skólakenslan
'mtar alt í sundur, grópar í minni og
Þjálfar ýmsa hæfileika. En hún fer
sJaldan með okkur upp á þá Súlu-
bnda, þaðan sem útsjón er yfir lið-
ið líf mannkynsins og sögulega þró-
un- Ff til vill má vona, að af hug-
arskoðun á einstökum sögu-viðburði
geti emuni og einum nemanda vaxið
hugarsjón á þróun lífsins frá frum-
öyrjun þess, unz maðurinn er orð-
inn sem hann er nú, með skapandi
anda sinn, spurningar og efasemdir,
Tiiliniannseðli og mannúð. í slíkum
keildarsýnum getur einstaklingur-
inn séð, að sjálfs hans líf er ómæl-
issmæðar-brot úr al-lífinu, glöggv-
að sig á hlutfalli sínu við gervalla
ífsheildina, hve mikið eða lítið í
senn veltur á honum og lifi hans,
eftir því vis hvað miðað er.
' En nú er snjallast að hverfa frá
s íkum draumórum og byrja á sjálfri
ferðasögunni.
^ ér lögðum af stað í kalsaveðri
augardaginn 7. 0kt. og fórum í
veimur kassahílum. En Jón Eyþórs-
son afði í símtali spáð góðu veðri
taIið ferðina ráðlega. Var því
jarkurmn ódeigur og skapið gott.
u 15 dimittenda” voru í ferðinrii
mna rnin, n^ttúrufræðikennarinn,
P "’teinóórsson, Björgvin
U munósson, söngkennari, ráðs-
maður heimavistar, Stefán Gunn-
björn Egilsson og skólastjóri Sig-
fús Halldórs frá Höfnum, sem
jafnan er hrókur hins prýðilegasta
fagnaðar, þar sem hann er í gleðiför
eða gleðisveit.
Vegurinn út Kræklingahlíð, fram
Þelamörk og dalina, Öxnadal og
Hörgárdal, var f jölfarinn til hernað-
ar og hryðjuverka á Sturlungaöld.
Hefir vegurinn þá legið nokkru neð-
ar en nú, að líkindum. Þessa leið
hefir Sighvatur Sturluson farið, er
hann hélt með fjögur hundruð
manns til liðs við Sturlu, son sinn,
fyrir Örlygsstaðabardaga. Þess er
beinlínis getið, að Hórður kakali
hafi farið frá Grund og út í Hörg-
árdal, og legið úti á vellinum á
Silfrastöðum, er hann með fimtn
hundruð manns fór á Haugsness’-
fund. Eyjólfur ofsi fór frá Möðru-
völlum fram Öxnadal, er hann fór
til Flugumýrarbrennu. Eftir Flugu-
mýrarbrennu fór þessa leið Gissur
Þorvaldsson eitt sinn með sex
hundruð manns til hefndar á
brennumönnum. Um Hörgárdal og
Kræklingahlíð fóru þeir Þorvarður
Þórarinsson og Þorgils skarði að
Eyjólfi ofsa, er þeir feldu hann á
Þverárfundi. Hefir mátt sjá mikla
mannaferð um þessar sveitir á þeirri
öld. Hafa slíkir leiðangrar verið
þungar búsifjar á bændum og búa-
lýð. Er óskiljanlegt, hve hlýðnir
þeir voru höfðingjum sínum og
hversu þeir stóðust slíkt.
Það er lagt af stað frá skólanum.
Sungið er skólaljóð Davíðs Stefáns-
sonar (með lagi Páls ísólfssonar) :
“Undir skólans mentamerki
mætast vinir enn i dag.” o. s. frv.
Og síðan er sungið:
“Gaudeamus igitur
juvenes dum sumus“ o. s. frv.
og þá hvert lagið á fætur öðru.
Ferðin sækist skjótt. Nú fara
hvorki Sturlungar né Gissur jarl,
Þorvarður Þórarinsson né Eyjólfur
ofsi með ófriði um þessar friðsælu
sveitir. Hundruð manns með mann-
drápstækjum og manndrápshug ríða
nú ekki um Hörgárdal né Öxnadal.
En enn standa víðast hvar tún og
bæir á sömu stöðtim sem á söguöld
vorri og Sturlungaöld.
Þá er kemur vestur fyrir Mold-
haugaháls, blasa við “svipir úr sögT
um.” Við sjáum yfir að Möðru-
völlum, förum fyrir ofan garð á
Laugalandi, þar er Þórir Helgason
bjó. Eru Hörgáj"dalur og Þelamörk
einhver hin sveitalegasta sveit, held-
ur þröng að vísu, en há fjöll að
austan verpa á hana tignar- og karl-
menskusvip. Hið neðra er bygðin
gagnþrungin fríðleik og djúpum
friði. En lítt gætir sveitasælunnar
nú, er jörð öll er hrími skotin neðan
frá engjum og upp á brúnir. Við
sjáum yfir að Skriðu í Hörgárdal,
þar sem brúðkaupsveizla Brynjólfs
biskupe Sveinssonar var setin, og
þar sem merkisbóndinn mikli, Þor-
lákur Hallgrímsson, bjó síðar og
gróðursetti reynitrén, er þar rísa
enn og sjást af þjóðveginum. Var
Þorlákur afabróðir Tryggva Gunn-
arssonar, er rótsetti reynitréð í
Laufásgarði og er stofnandi og
fóstri þinghússgarðsins. Við sjá-
um að Lönguhlíð, sem kunn er af
brennunni miklu 1197, þá er Guð-
mundur dýri brendi önund inni og I
sagði áður, að nú væri komin ærin
kollótta, “gengin úr dal ofan, ok þó
af ullin harðla mjök” . . . og annað-
hvort skyldi hún nú láta af sér alt
reyfið, eðr ganga með fullu reyfi
heim.” Síðar varð Langahlíð lög-
mannssetur. Þar fórst Hrafn lög-
maður Bótólfsson, ásamt konu sinni
og tveim börnum sínum og flestöllu
heimafólki, í skriðufalli 17. nóv.
1390- Snöggvast er staðnæmst
fyrir neðan Bægisá, þar sem séra
Jón Þorláksson, með þunga fátækt-
ar og óorðs á bognu baki, vann bók-
mentaleg afrek, er lengi verður
minst. Var nemendum sýnt djúpt
gil og skuggalegt, þar sem sagt er,
að hann hafi setið oft. Hér bjó
lengi stórbúi faðir og frumherji
Möðruvallaskóla, Arnljótur Ólafs-
son, og var dálítið sagt frá honum.
Þá er og sýndur Bakki í Öxnadal,
þar sem Guðmundur dýri bjó.
“Þar sem háir hólar,
hálfan dalin fylla,”
er stigið úr vögnunurrt og horft
heim að Hrauni í Öxnadal, fæðing-
arstað Jónasar Hallgrímssonar.
Blasti það við okkur, beint í mót,
hingum megin við Öxnadalsá. I
grein um för vora (eftir Karl
Strand), í áðurnefndu skólablaði, er
þeirri viðdvöl þannig lýst: “Það
var örlítill þokuslæðingur við efstu
fjallabrúnir. En snögglega hreif
léttur háf jallablær huluna brott sem
tjald frá leiksviði. Móti okkur
gnæfði Hraundrangi við himin. —
------Við sungum “Þar sem háir
hólar.” í einum svip var sem há-
tíðablær kæmi yfir þennan fríða
æskumannahóp, sem var þó svo
spriklandi af fjöri og gáska. Eng-
inn unnandi ljóða né náttúru getur
staðið án lotningar frammi fyrir
hamra-kapellu Jónasar Hallgríms-
sonar.”
Þarna úr hólunum voru hópnum
sýndir Steinsstaðir, þar sem Rann-
Veig, systir Jónasar, bjó lengi, og
Jónas að nokkru leyti ólst upp. Þar
átti og heima móðir skáldsins lang-
an aldur og lézt þar. Segir mér
gagnkunnugur maður og skilrikur,
Bernharð Stefánsson, alþm., að
landslagslýsing Jónasar í hinum
unaðslegu “Dalvisum” hans (“Fífil-
brekka, gróin grund”), geti að öllu
átt við Steinsstaði. “Fífusund,”
“fífilbrekka,” “smáragrund,” “bunu-
lækur, blár og tær” o. s. frv.—alt
megi finna í Steinsstaðalandi.
Ferðamenn geta sjálfir séð þar
“hnjúkafjöllin,” “ham'ragarða” og
“hvíta tinda.” Enn segir Bernharð
mér, að “Grasaferð” Jónasar eigi
uppruna að rekja til grasaferðar, er
hann fór ungur með systur sinni
langt upp í Steinsstaðafjall. Hefir
hann það eftir móður sinni, sem ólst
upp á Steinsstöðum hjá systur Jón-
asar og sagði henni frá þessu. Sann-
ast hér, að skáldunum er tamt að
lýsa æskustöðvum sínum og æsku-
minningum og gera myndir sínar
eftir þeim.
/
Þá er komið var yfir Öxnadals-
heiði, voru sýndar Hálfdanartung-
ur, þaðan sem Rindill, flugumaður
Guðmundar ríka, þóttist vera, er
hann heimsótti Þorkel hák.
Á Ytri-Kotum voru teknir upp
malpokar og snætt. Er gizkað á,
að þau séu þar, sem Þorbrandsstað-
ir voru áður, og Þorbrandur örrek
bygði fyrstur. Þar lét hann gera
eldhúsið mikla og fornfræga, er
allir, er “þeim megin fóru, skyldu
þar bera klyfjar í gegnum, ok vera
öllum matr heimill.” Var sungið
hátt og dátt á þessu forna rausnar-
setri, sem aldirnar hafa breytt í
heldur auðnarlegt harðbalakot.
“Brátt víkkaði um sýn,” ritar
Karl Strand í ferðasögu sinni. Og
hann heldur áfram: “Skagafjörður
kom í ljós, “skrautbúinn, fagur-
gjörður.” “Bygðin teygði sig upp
í loftið í heillandi haustmóðu.”
“Svo sáum við hvar Bóla er bygð
á Mel. Það er satt, að “bjarma sólar
nýtur vel.” þar. Hamrarnir í Bólu-
gili hitna áreiðanlega mjög—þegar
sólin skín. En í hretviðrum hausts-
ins eru þeir dökkir og kaldir—eins
og ljóðin, sem Hjálmar orti—þegar
næddi um hann.”
Og nú er stanzað hjá Örlygsstöð-
um og gengið upp að gerðisbrotun-
um þar.
Það líður um mig sérstakur hug-
blær í hvert skifti, sem eg kem á þá
heljarslóð og minnist þar hinna
hryllilegu tíðinda, sem þar gerðust á
löngu liðinni skelfingar- og brjál-
æðisöld. Þarna fyrir vestan Vötn-
in blasir hún við, Tungan, sem þeir
komu vestan yfir frændurnir, Kol-
beinn ungi og^Gissur Þorvaldsson,
með “nær” þrettán hundruð manna
her. (Þar er sennilega átt við stórt
hundrað (=120 manns), svo að alls
hefir verið með þeim nálægt 1600
manns.). Hefir það verið mikil-
fengleg sýn og uggvænleg þeim
Sturlungum austan Vatna, er slikir
herskarar stefndu til Blönduhlíðar.
Og héðan má sjá þau “vaga” áfram,
Vötnin, sem heljarherinn reið. Að
austan rísa stöllótt f jöllin, sem þeir
stefndu í áttina til. Þeir sáu þessi
sömu f jöll, sem vér lítum nú, og yfir
þeim sém oss var hér hin sama him-
PROFESSIONAL AND BUSINESS CARDS
PHYSICIANS cmd SURGEONS ■
DR. B. J. BRANDSON 216-220 Medical Arts Bldg. Cor. Graham og Kennedy Sts. Phone 21 834—Office ttmar 2-3 Heímili 214 WAVERLEY ST. Phonc 403 288 Winnipeg, Manitoba DR. J. STEFANSSON 216-220 Medical Arts Bldg. Talsfmi 26 688 Stundar augna, eyrna, nef og kverka sjúkdöma.—Er að hitta kl. 2.30 til 5.30 e. h. Heimili: 638 McMILLAN AVE. Talsfmi 42 691 j Dr. P. H. T. Thorlakson 206 Medic&l Arts Bldg. Cor. Gr&ham og Kennedy Sts. Phones 21 211—21 144 Res. 114 GRENFELL BLVD. Phone 62 200 1
DR. B. H. OLSON Dr. S. J. Johannesson • • C. W. MAGNUSSON
216-220 Medlcal Arts Bldg. Cor. Graham og Kennedy Sts. Phone 21 834-Office tímar 4.30-6 Viðtalstfmi 3—5 e. h. Nuddlœknir 41 FURBY STREET Phone 36 137
Heimili: 6 ST. JAMES PLACE Winnipeg, Manitoba 218 Sherburn St.~Sími 30877 Sfmið og semjið um samtalstfma
BARRISTERS, SOLICITORS, ETC.
H. A. BERGMAN, K.C. tslenzlcur lögfrœSingur Skrifstofa: Room 811 McArthur Building, Portage Ave. P.O. Box 1656 PHONES 95 052 og 39 043 J. T. THORSON, K.C. tslenzkur lögfrœOingur 801 GREAT WEST PERM. BLD. Phone 92 755 W. J. LINDAL K.C. og BJORN STEFANSSON tslenzkir lögfrœSingar 325 MAIN ST. (á öðru gölfi) PHONE 97 621 Er að hitta að Gimli fyrsta miðvikud. f hverjum mánuði, og að Lundar fyrsta föstudag
G. S. THORVALDSON B.A., LL.B. tslenzkur lögfrœSíngur E. G. Baldwinson, LL.B. tslenzkur lögfrœSingur
Skrifst. 702 CONFEDERATION LIFE BUILDING Main St., gegnt City Hall Phone 97 024 Phone 98 013 504 McINTYRE BLK.
DRUGGISTS DENTISTS
Medical Arts Drug Store R. A. McMillan PRESCRIPTIONS Surgical and Sick Room Supplies Phone 23 325 Medical Arts Bldg. Winnipeg, Man. DR. A. V. JOHNSON tsienzkur Tannlœknir 212 CURRY BLDG, WINNIPEG Gegnt pósthúsinu Sími 96 210 Heimilis 33 328 Drs. H. R. & H. W. TWEED Tannlœknar 406 TORONTO GENERAL TRUSTS BUILDING Cor. Portage Ave. og Smith St. PHONE 26 545 WINNIPEG
Pliono Your Orders Roberts Drug Stores Limited Dependable Druggists Prompt Dellvery. Nine Stores Dr. Cecil D. McLeod Dentist Royal Bank Building Sargent and Sherbrooke Sts. Phones 3-6994. Res. 4034-72 Winnipag, Man. DR. T. GREENBERG Dentist Hours 10 a. m. to 9 p.m. PHONES: Offlce 36 196 Res. 51 455 Ste. 4 Norman Apts. 814 Sargent Ave., Winnipeg
BUSINESS CARDS
A. S. BARDAL 848 SHERBROOKE ST. Selur lfkkistur og annast um út- farir. Allur útbúnaCur sá beztl. Ennfremur selur hann allskonar minnisvarSa og legsteina. Skrifstofu talsimi: 86 607 Heimilis talsími: 601 662 HANK’S HAIRDRESSING PARLOR and BARBER SHOP 3 Doors West of St. Charles Hotel Expert Operators We speclallze ln Permanent Wavlng, Finger Waving, Brush Curling and Beauty Culture. 251 NOTRE DAME AVE. Phone 25 070 J. J. SWANSON & CO. LIMITED 601 PARIS BLDG., WINNIPEG Fasteignasalar. Leigja hús. Ot- vega peningalán og eldsábyrgð af öllu tægi. Phone 94 2 21
A. C. JOHNSON 907 CONFEDERATION LIFE BUILDING, WINNIPEG Annast um fasteignir manna. Tekur aB sér a6 ávaxta sparifé fólks. Selur eldsábyfgð og bif. reiða ábyrgðlr. Skriflegum fyrir- spurnum svaraC samstundis. 0ORE’S TAJc * LTD. 28 333 LOWEST RATES IN THE CITY C. E. SIMONITE TLD. DEPENDABLE INSURANCE SERVICE Rcal Estate — Rentals Phone Office 95 411 806 McArthur Bldg.
Skrifst.s. 96 767—Heimas. 33 328 Furniture and Piano Moving
HÓTEL 1 WINNIPEG
THE MARLBOROUGH SMITH STREET, WINNIPEG "Winnipeg’s Down Town HoteV 220 Rooms with Bath Banquets, Dances, Conventions, Jinners and Functions of all kinds Coffee Shoppe F. J. FALD, Manager ST. REGIS HOTEL 285 SMITH ST„ WINNIPEG pœgilegur og rólegur hústaSur i miSbiki borgarinnar. Herbergi $.2.00 og þar yfir; með baðklefa $3.00 og þar yfir. Ágætar máltíðir ,40c—60c Free Parking for Guesta SEYMOUR HOTEL 100 Rooms with and without bath RATES ^tEASONABLE Phone 28 411 277 Market St, C. G. Hutchison, Prop. PHONE 28 411
CorntoaU ítotel
Sérstakt verð á viku fyrir námu- og fiskimenn. Komið eins og þér eruð klæddir.
J. F. MAHONEY, f ramkvæmdarstj. MAIN & RUPERT WINNIPEG
>r w v -w w w w w-w-m w w y w <r w* t t ’ri It Pavs to A t Ivertise in tí íe “Lögberg”
inhvelfing, há og eilíflega þolinmóð
við oss mannanna börn. Það væri
fróðlegt, ef þau Blönduhlíðarfjöll
væru gædd máli, minni og mannviti.
Það er einkennilegt, að undir hlíð-
um þeirra, og tiltölulega skamt hvert
frá öðru, hafa gerst einhver hin
stórkostlegustu hroða-tíðindi á voru
landi: 1 örlygstaðaorrusta, Haugs-
nessfundur og Flugumýrarbrenna.
En á þessum stöðum sjást engin
merki þessara ægilegu atburða. Ör-
lygsstaðir hvíla jafn-kyrrir og kald-
ir og landið umhverfis. Þjóðsögur
og þjóðtrú geta þess jafnvel ekki,
að því er eg veit, að þar séu meiri
reimleikar en annarsstaðar. Voru
slikir viðburðir þjóðtrú og ímynd-
unarafli ofvaxnir? Væri þó ekki
að kynja—eftir hugsunarhætti hjá-
trúaðra — þótt “margur óhreinn
andinn” væri á reiki um Blöndu-
hlíð.
Framh.