Lögberg - 28.02.1935, Side 4
4
LöGBBRG, FIMTUDAGINN 28. FBBRÚAR, 1935.
Hógberg
0«fl8 út hvern fimtudag af
I B e O O L. O U B 1 A P R E 8 S L I M I T M D
895 Sargent Avenue
Winnipeg, Majiitoba.
Utanáskrift ritstjórans.
BDITOR LÖGBERG, 69 5 SARGENT AVE.
WINNIPEG, MAN.
YerB SS.00 um árið—Borgist fyrirýram ,
The "Liögberg” is printed and published by The Colum-
bia Press, Limited, 69 5 Sargent Ave., Wnnipeg, Manitoba
PHONE 86 S27
Myrkur yfir djúpinu
Það er lakur kaupmaður, sem lastar sína
vöru, segir gamla máltækið.
Um kosningaleytið 1930 gekk Mr. Ben-
nett greiðleg’a að losast við varning sinn.
Ekki stafaði það þó af því, að hann hefði á
boðstólum hetri vöru en aðrir, eða líklegri til
þjóðþrifa; því var vitanlega ekki að heilsa.
Þær voru ekki margar, vörutegundirnar,
er Mr. Bennett hafði til framboðs 1930; hann
hafði í rauninni ekki nema eina vörutegund
að selja, þó skifta mætti henni í flokka; hann
hélt að almenningi fögrum fvrirheitum um
gull og græna skóga; frelsun frá atvinnuleysi
og áþ ján; ekki á morgun, heldur undir eins í
dag; haliir hans voru háar; þó voru þær
stoppaðar óþrjótandi loforðabirgðum upp í
rjáfur.
Að þjóðin sé búin að gleyma þessu öllu
.saman og minnist einkis af því við kosning-
ar þær, er senn fara í hönd, kemur vitanlega
ekki til nokkurra mála.
Bólu-Hjálmar kom einhverju sinni úr
kaupstað með berklakkaða bykkju; honum
hafði verið synjað um vörur í kaupstaðnum.
Á leiðinni heim rekst Hjálmar á mann, er á-
varpar hann eitthvað á þessa leið: “Það er
ekki þungt á klárnum þínum í dag, Hjálmar
minn.” Skáldið svaraði þannig: “Það eru
drápsklyfjar. Loforð öðru megin, en .svik
hinum megin.,’
Mr. Bennett var ekki alls fyrir löngu í
New York og flutti þar ræðu í félagi cana-
diskra manna. Fréttasambandið Canadian
Press, hefir það eftir honum þar, að svo væri
hagur canadisku þjóðarinnar breyttur til hins
betra, að stjórnin væri í þann veginn að kistu-
leggja flestar þær bráðabirgðareglur og ráð-
stafanir, er settar hefðu verið kreppunnar
vegna, og gefa sig nú af kappi við nýjum um-
bótum á skipulagi þjóðfélagsins. Með þessu
er engu líkara en hef ja eigi á ný þann -skrípa-
leik, að draga athygli fólks frá málskjarnan-
um sjálfum, eða ástandinu, eins og það í raun-
inni er, fá það til þess að gleyma því, sem á
dagana hefir drifið síðustu fimm árin, og
steypa svo yfir það Nóaflóði nýrra loforða.
Trúaðir mega þeir vera umfram þáð, sem
alment gerist, er trúa því að kreppan sé að
mestu leyti um garð gengin. Það er óþarft
að leita langt til þess að ganga úr skugga um
að svo sé ekki, hversu heitt sem menn hefðu
þráð það gagnstæða.
Tala þess fólks, er enn nýtur atvinnu-
leysisstyrks hér í landi, og getur undir eng-
um kringumstæðum án hans verið, nemur alt
að miljón; viðskiftum þjóðarinnar út á við
hefir hrakað til stórra vandræða, auk þess
sem jámbrautafélög og aðrar innanlands
stofnanir berjast í bökkum. Borgir Vestur-
landsins, flestar hverjar, sjá ekki út úr því
hvernig mætt skuli auknum útgjöldum, er frá
atvinnuleysi stafa. Exi, hamar og sög eru
að verða svo sjaldséðir hlutir, að nærri ligg-
ur að nöfn þeirra séu fallin í gleymsku. Ætli
trésmiðirnir greiði samt sem áður atkvæði
með Mr. Bennett við næstu kosningar?
Æskumenn þessarar þjóðar, ekki í hundr.
aða tali, heldur svo tugum þúsunda skiftir,
er komist hafa á manndómsaldur síðustu
fimm árin, vita ekki einu sinni hvað ærlegt
dagsverk er, sökum þess að atvinnuskilvrðin
voru ekki við hendina. Hvað verður um
þessa menn, er lengra sækir fram í lífið? Ein-
hverjir hljóta að bera á því þunga ábyrgð, ef
þeir daga uppi á miðjum aldri.
Að stjórn Mr. Bennetts væri fyrir löngu
dauðadæmd, hefir víst fáum heilskvgnum
mönnum blandast hugur um; að hún hafi með
öllu fyrirgert trausti sínu hjá þjóðinni, er
auðsætt af öllum eyktamörkum; nægir í því
efni að vitna til útreiðar þeirrar, sem hún
hefir fengið í aukakosningum til sambands-
|)ings hvar sem niður hefir verið borið. Hún
hitti því óneitanlega naglann á höfuðið lýs-
ingin, er Mr. Mackenzie frá Vancouver ekki
alls fyrir löngu hafði við, er hann lét svo um
mælt, að Mr. Bennett og umbótafálm hans
upp á síðkastið, minti átakanlega á iðrandi
syndara á banasænginni.
Ránshrammar kreppunnar þjaka enn
þúsundum og tungum þúsunda manna og
kvenna í þessu landi, þrátt fyrir staðhæfing-
ar Mr. Bennetts um hið gagnstæða, og enn
hvílir, því miður, myrkur yfir framtíðardjúpi
þessarar ungu þjóðar, þó Mr. Bennett stað-
liæfi að dagbjart sé orðið um alt loft.
Glæsileg framtíð fyrir ísland
(Eftirfarandi grein birtist í tímaritinu
“Magazine Digest” fyrir febrúarmánuð; er
það niðursoðin eða stytt ritgerð, sem kom út
í þýzku riti 19. nóvember 1934. Það rit heit-
ir “Die Koralle” og er gefið út í Berlín.).
—Þýðamdinn.
Þegar maður hefir verið nokkurn tíma á
eyjunni Island, þá gerir maður sér smátt og
smátt grein fyrir því að yfirstandandi tími
hefir þar mjög litla þýðingu út af fyrir sig.
Island er land hinnar miklu fortíðar og
eftir öllurn líkum að dæma land hinnar miklu
framtíðar.
Auðæfi Islands eru ekki á yfirboði jarð-
arinnar. Þau eru undir jörðinni, í sjónum og
loftinu. Þar eru heitar uppsprettur, sem orð-
ið geta tii óútreiknanlegra hagsmuna; þar
eru biljónir fiska og síðast en ekki sízt, beinar
ioftferðir milli Evrópu og Vesturheims.
Hin mikla framtíð Islands er í loftinu.
Það er loftið, sem gerir landið svo aðlaðandi
fyrir Hvrópu þjóðirnar —- sérstaklega Bng-
lendinga.
Island er í persónusambandi við Dana-
konung, en þeir samningar vara aðeins þang-
að til 1942, og það er vafasamt hvort þeir
verða endurnýjaðir; því algert sjálfstæði er
iiugsjón allra Islendinga. 1 raun réttri er Is-
land algerlega sjálfu sér ráðandi í öllu því,
sem að innanlands málum lýtur; en Danmörk
fer með utanríkismál þess, sem eru margvafin
hinum flóknu fjármálum þess.
Ilvort Islandi er hægt að vera með öllu
fjárhagslega óháð, er vafasamt. Fjármálin
geta enn orðið þyngri á voginni en liin sögu-
legu og andlegu málin.
Um nokkurn tíma að undanförnu hefir
England veitt Islandi óvenjulega mikla at-
hygli. Englendingar eru líklegri en nokkur
önnur þjóð til þess að leita samninga við Is-
land þegar samningunum milli Islendinga og
Dana er lokið.
Athygli Englendinga á Islandi stjórnast
aðallega af hagnaðarvon skozkra fiskifélaga,
og það er víst að Islendingar mundu finna
meira til yfirráða Englendinga en Dana; því
Danir láta þá að mestu afskiftalausa.
ísland er svo strjálbygt, að þjóðin má
ekki við því að skiftast í stéttir, sem mikill
mismunur sé á og standi í vegi fyrir sátt og
samvinnu. Þar er þörf á miklu fleira fólki,
því nú sem §tendur eru þar aðeins tveir íbúar
um hverja ferhyrningsmílu.
Af þessum ástæðum er þar mjög lítið
um persónulega sundrung eða baráttu; félags-
lífið er svo að segja hið sama, hver sem í hlut
á.
Allir Islendingar mynda sameiginlegan
lýðstjórnaraðal, og þeir eru allir sérlega
“stoltir af forfeðrum sínum og fortíðarsögu
sinni.
Ef til vill er engin þjóð til á bygðu bóli,
sem rakið geti eins nákvæmlega ættir sínar,
lið fyrir lið, án þess að nokkursstaðar geti á
tvennu leikið. Þjóðin er blöndun af ger-
mönskum, norskum og írskum ættum. Islend-
ingar tala enn mál forfeðra sinna, eins og það
var fyrir meira en þúsund árum og börn
þeirra læra stafrofið í myndabókum, sem
skýra fornsögur þeirra. Þannig verða börn-
in aðnjótandi þeirrar þekkingar, sem heldur
við í minni þjóðarinnar hinum fornu, sögu-
legu sannindum.—Þessi kensla byrjar þegar
bömin eru á unga aldri.
Islenzk þjóðrækni er svo róttæk að hún
gengur næst ofsa dýrkun.
Islenzkur vísindamaður, sem vann við
Þjóðbandalagið í Geneva var spurður þegar
hann kom heim hvernig honum líkaði Sviss-
land: “Það er ljómandi fallegt land,” svar-
aði hann: “en þar er svo mikið af trjám, að
þau óprýða.”
Þeir, sem þekkja Island; þeir, sem hafa
séð hina dýrðlegu litbreytingu á hinum gróð-
urlausu eldfjöllum; þeir, sem hafa íhugað
hina frumlegu fegurð þess, þeir skilja þetta
svar íslendingsins.
Þetta skóglausa eyland, með öllum sín-
um dásamlegu litbreytingum; með öllum sín-
um hverum og jöklum og hinum víðáttumiklu
hraunum, — já, þetta einkennilega eyland
heldur huga manns föstum með tökum undr-
unar og aðdáunar.
Hinar einkennilegu mótsagnir í eðli
landsins endurspeglast í lyndiseinkunnum
þjóðarinnar sjálfrar. íslendingurinn er sam-
tímis glaðlyndur og þunglyndur; opinskár og
dulur—já, alt þetta í senn.
1 melr en þriCjun? aldar hafa Dodd's
Kidney Pills veriC viðurkendar rétta
meðalið við bakverk, gigt, þvagteppu
og mörgum öðrum sjúkdómum. Fást hjá
öllum lyfsölum, fyrir 50c askjan, eða
sex öskjur fyrir $2.50, eða beint frá The
Dodd’s Medicine Co., Ltd., Toronto, ef
borgun fylgir.
Fólkið er vant einvefunni; því
bæir, þorp og bændabýli eru í mik-
illi fjarlægð hvert frá öðru. Maður
getur ferðast svo klukkustundum
: skifti án þess að mæta nokkurri lif-
! andi sál—manni eða skepnu. .
F.yrað heyrir ekkert; engar bý-
! flugur, engin fiðrildi. Loftið er
þunt og hreint og styrkir taugamar,
! eins og fjallaloftið gerir.
Allir íslendingar trúa að til séu
I svipir og andar—alls konar andar.
' Þessi trú er ekki hjátrú; hún er í
| raun réttri einhvern veginn eðlileg
á þessu dularfulla eylendi, þar sem
I fólkið er svo einkennilega nátengt
j landinu sjálfu.
Steinar, hraundrangar, eldgígar—
alt virðist vafið einhverjum dular-
1 og dáleiðslublæ; ekkert virðist vera
| fullkomlega raunverulegt í því ein-
kennilega loftslagi.
Maður hlýtur að sjá þar svipi og
anda jafnvel um hábjartan daginn.
Höfuðbærinn Reykjavík er mið-
depill allra fjármála og andlegrar
menningar.
Þegar maður sér þennan bæ í
fyrsta skifti verður manni það að
veita honum fremur lauslega at-
hygli.
Þar er hvorttveggja samblandað,
amerískt og mið-evrópiskt snið og
áhrif. Það er eins og stór húsa-
þyrping á bersvæði og skógleysi.
Mikið er aðhafst einmitt nú til
þess að skapa upp úr Reykjavík ný-
tízku alþjóðlegan höfuðstað. Þarf-
ir, sem þjóðin hefir aldrei áður
fundið til, eru vaktar upp og gerð- J
ar tilfinnanlegar.
Örskamt er síðan að í Reykjavík
voru ekki nema tvö kvikmyndahús.
Nú er verið að reisa þar stórt og
vandað leikhús að öllu leyti full-
komið.
Landsbókasafnið er ágætt; eru |
þar margar fágætar bækur Sérstak-
lega er þar rnikið dáðst að “tafl-
bókasafni” með 1800 bókum, sem
Ameríkumaður gaf íslandi.
AlþingishúsiS er gullfalleg ný-
tízkubygging, eru þar vönduð mál-
verk og myndastyttur eftir lista-
menn þjóðarinnarsjálfrar. Mál-
verkalistin á Islandi er mjög ung;
en hvernig sú list er dýrkuð og
hvernig henni er gefinn byr undir
báða vængi, er i raun og Sannleika
aðdáunarvert; sérstaklega þegar til-
lit er tekið til þess hversu þjóðin er
fámenn—aðeins 120,000 manns.
Langfremsti myndhöggvari ís-
lands er Einar Jónsson; hann er
launaður æfilangt af þjóðinni og
þjóðin á öll verk hans.
Ljómandi fallegt safnhús hefir
verið bygt fyrir listaverk hans og
bústaSur handa sjálfum honum.
Skólar, barnaheimili, spítalar,
sjúkrahæli, o. s. frv. eru góð, bygð
með fullkomnasta nýtízku sniði og
þeim er ágætlega stjórnað.
Elliheimili er í Reykjavík handa
fátæku, gömlu fólki, svo vandað,
að höfuðborgir stórþjóðanna mættu
vera stoltar af. Það kostaði 300,-
000 dali (1,200,000 kr.) og var öllu
því fé safnað í frjálsum framlögum
og kostnaðurinn er lagður fram á
sama hátt —1 er þaS annað atriði
stórmerkilegt hjá svo fámennri
þjóð.
1 Reykjavík er háskóli kostaður
með því fá, sem kemur inn fyrir
happadrætti þjóðarinnar.
Ileitar laugar, sem mikið er af í
útjaðri borgarinnar eru hagnýttar á
ýmsan hátt; þar á meðal eru hítuð
með þeim hús og verksmiðjur. Von.
ast menn eftir að innan fárra ára
verði bærinn allur hitaður á þann
hátt og þarf þar þá framar engan
eldivið um aldur og æfi í höfuð-
staðnum.
Nálægt Reykjavík er stóreflis
sundlaug af náttúrunni gerð; synd-
ir fólk þar allar ársins tíðir. Elest
kvenfólk þvær einnig þvotta sína í
laugunum og það er ekki óvanalegt
að sjá þær baka brauð í logandi
heitum laugaveggjunum.
Hinn óþrjótandi auður íslands er
fiskurinn. Út úr landinu er flutt
hér um bil 24 miljónir dala (100,-
000,000 kr.) virði á ári hverju, og
af því eru um 20 miljón dala (800,-
000,000 kr.) virði úr sjónum.
Akuryrkjuafurðir eru miklu
minna virði en fiskurinn; þess vegna
er það hversu mjög fólkið sækir af
landinu inn í bæina og sjávarþorpin.
England er bezta viðskiftaland
íslands, að því er frosinn fisk
snertir. En einnig er talsvert flutt
út af söltuðum og hertum fiski.
íslendingar hafa komið sér upp
afarmiklum íshúsum, þar sem fisk-
I inn má geyma án þess að hann
1 skemmist.
í kringum 6,300 bændabýli eru
alls á íslandi. Eru sum þeirra full-
komin nýtízkubú. Stærsta bújörðin
heitir Korpólfsstaðir. Er það einn
hinna merkari staða landsins og á
sér eftirtektarverða sögu. Maður-
inn, sem þar bygði fyrst bókstaflega
reif í burt hvern urmul af grasrót
og mold af kfettunum. Með hand-
afli einu saman hreinsaði hann
hrauniS og grjótið og breytti eyði-
bljetti í blómlegasta og stærsta býlið,
sem landið á. Síðar hætti hann að
búa og fékk jörðina í hendur syni
sínum, en gerðist sjálfur fiskiút-
gerðarmaður.
Islendingar eiga ágæta hesta. En
hestasala hefir minkað tilfinnanlega
síðan farið var að nota bifreiðarnar.
Áður en þær komu voru hinir litlu
en þrautseigu hestar einu samgöngíi-
færin í landinu. Nú úir og grúir
um land alt af bifreiöum—smærri
og stærri.
| Hið einkennilega aðdráttarafl og
yndi íslands stafar af því hvernig
þar blandast saman fornaldar sögu-
frægð og nútíðar menning. Fólkið
Elliheimilið Betel var stofnað 1.
marz 1915, og er því að verða tutt-
ugu ára. í öll þessi ár hefir Kven-
félag Fyrsta lúterska safnaðar í
Winnipeg, minst ársafmælis stofn-
unarinnar, með almennri samkomu
í kirkjunni. Verður þetta enn gert
og samkoma haldin í Fyrstu lút-
ersku kirkju föstudagskveldið hinn
1. marz n. k. og hefst kl. 8.15.
Þessar árlegu afmælissamkomur
j hafa ávalt verið vel sóttar. En hér
I er um nokkuð meira að gera heldur
en vanalega, þar sem elliheimilið
hefir nú starfað í fulla tvo áratugi.
Til samkomu þessarar hefir því
verið sérstaklega vel vandað og það
er búist við, að hún verði afar f jöl-
menn. Inngangur verður ekki seld-
ur, en samskota verður leitað og
treystir kvenfélagið þar á örlæti Is-
lendin^a í Winnipeg, eins og það
hefir svo oft áður gert, og aldrei
brugðist. Öllu, sem hm kemur
verður varið elliheimilinu til gagns. '
Betel er algerlega vestur-lslenzk
stofnun. Hvergi hefir þjóðrækni
Vestur-íslendinga komið skýrar
fram eða eins skýrt, eins og þar sem
Betel er og heldur ekki örlæti þeirra
né-liknarlund. Elliheimilið Betel er
til þess stofnað, og til þess er því
haldið við, að þar geti gamlir og fá-
tækir Vestur-íslendingar átt griða-
stað síðustu æfiárin, þar sem vel
fer um þá og þeir geti lifað áhyggju-
Trúið því
eða ekki
MIKIÐ af vinnu og mikið af í-
hugun þarf til þess að búa
út verðskrá—og þó þú hafir ekki
hu^leitt það, mikið af efni líka.
Fyrir tveimur árum eða svo tók
sig til maður í félagi voru, er á-
huga hafði á hagfræði, og fór að
rannsaka þessi atriði, og eru hér
nokkur, er komu upp á yfirborðið.
Til dæmis voru meira en 900,-
000 pund af pappír, eða 22 vagn-
hlöss af 40,000' punda þunga
hvert, er breytt var í bækur, og
mundi slíkt þekja meira en 10V6
ekru. Yfir 30,000 pund af prent-
svertu var notað til þess að segja
sögu verðskrárinnar og yfir 13,-
000 yards af bindingardúk til þess
að fullkomna verkið. Frá enda
til enda mundi verðskráin ná yfir
90 mílna vegalengd, en með því
að leggja hverja ofan á aðra
næmi þyktin 4 mílum. Leggið
hvern blaðsíðu-enda við annan
og mundi það mynda 10 þuml-
unga borða er næði einu sinni og
einum þriðja sinnum umhverfis
jörðina. Leggið þá flata á jörð-
ina, rönd við rönd, og mundu þeir
þekja meira en 23 sections fjórð-
unga.
Engin furða þó Eaton’s verð-
skrá sé “þung í vigtinni” vestan-
lands. Hafið þér ekki fengið ein-
tak þá skrifið eftir vor-verð-
skránni nú þegar.
<*T. EATON Cfc*.
WINNIPEQ CANADA
EATO NS
lifir í anda með forfeÖrum sinum
og formæðrum þrjátiu og fjörutíu
kynslóðir aftur í liðna tímann; en í
hinu verulega starfslífi tileinkar
það sér alt hið allra nýjasta og full-
komnasta.
Unga kvenfólkið á íslandi klipp-
ir hár sitt og fylgist eins vel með
timanum í klæðaburði og leikkon-
urnar i Hollywood.
I stuttu máli er ísland land for-
tíðarinnar og land framtíðarinnar,
þar sem þjóðin lifir milli Eddu tím-
anna og fullkomleika hugsjónanna.
lausu lífi. Þeir, sem þessa hafa
notið, á þessum síðastliðnu 20 árum,
eru orðnir margir, líklega fleiri en
flesta mun gruna. Síðan heimilið
var stækkað, eru þar að staðaldri
yfir 50 gamalmenni. Æði mörg af
þeim hafa engan ellistyrk og engar
tekjur, geta því ekkert borgað með
sér. Þeir eru æfinlega látnir ganga
fyrir að komast á heimilið, þegar
pláss losnar þar.
Siðustu árin hafa almennar gjaf-
ir til Betel verið litlar í samanburði
við þaðj sem áður var. Eru þær
orsakir til þess, að þörfin hefir ekki
verið eins brýn eins og áður, en pen.
ingaráð almennings minni. Hitt er
ekki, að vinsældir stofnunarinnar
séu ekki eins miklar eins og áður,
né örlæti Vestur-íslendinga. Kven-
félag Fyrsta lúterska safnaðar hef-
ir frá því fyrsta styrkt Betel eftir
föngum og það ætlar að halda á-
fram að gera það. En til þess þarf
það á góðvild og gjafmildi íslend-
inga í Winnipeg að halda. Með
samkomu þeirri, sem hér er um að
ræða, gefst þeim ágætt tækifæri til
að sýna velvild sína til þessarar
þjóðlegu og þörfu líknarstofnunar.
Samkoman verður alveg sérstak-
lega vel vönduð, bæði hvað skemt-
un og veitingar snertir. Kvenfé-
lagið vonast eftir að samkomusalur
kirkjunnar verði fullur af fólki
þetta kvöld—og það veit að það
bregst ekki.
Sig. Jút. Jóhannesson þýddi.
Betel tuttugu ára