Lögberg - 28.02.1935, Blaðsíða 6

Lögberg - 28.02.1935, Blaðsíða 6
6 LÖGBERU, FIMTUDAGINN 28. FBBRÚAR, 1935. Heimkomni hermaðurinn Eg er ekki í neinum vafa um að foreldrar mínir hefðu komið með mér og veitt mér að- stoð við það, sem gera þurfti; þeim hefði orðið það til ósegjanlegrar ánægju. Grayson læknir var fullvel kunnugt um ufstöðu mína til bvflugnameistarans. E|g held eg taki hann rækilega til bæna fyrir að láta annað eins og þetta viðgangast, án vitundar minnar. Eg hefi þó alveg áreiðanlega ekki talið eftir mér sporin, ef hann þarfnaðist einhvers, hvort lieldur það var nú að fá hoitt vatn eða eitthvað annað, er liann þurfti með í þann og þann .svipinn. Honum hlaut að hafa verið full- kunnugt um það, að býflugnameistaranum hefði ekki verið annara um að nokkur annar en eg \reitti sér nábjargirnar og hagræddi um sig í síðasta sinn. Þetta er ranglátt; óverj- andi og öldungis ósamboðið manni eins og Grayson lækni. Nú féll litla skátanum allur ketill í eld og fékk ekki komið upp orði fvrir þungum grátekka. Jamie vafði 'hið sorgbitna barn að faðmi sér og huggaði það eftir mætti. Innan skamms sátu tvímenningarnir á bekk, hlið við hlið og þerruðu af sér tárin á sama vasa- klútnum. Skifti býflugnameistarinn eigum sínum að þínu skapi,” spurði litli skátinn, eftir dá- litla stund. “Eg er hæst ánægður með minn hlut,” svaraði Jamie. “Hlutirnir eru jafnir, að raunverulegu gildi, að því er frekast verð. ur séð. ‘‘Ef eg hefði mátt ráða,” sagði litli skát- inn, “myndi eg hafa valið á annan veg; eg hefði valið mér evstri helminginn. ‘ ‘ Eg fæ ekki séð að það skifti miklu máli hvor landshlutinn er,” svaraði Jamie; “eg hefi það fyrir satt, að býkúpurnar séu álíka margar á hvorum helmingnum um sig; en í því falli að svo væri ekki, yrði okkur ekki skotaskuld úr því að jafna þessu að öllu bróð- urlega niður. Eg væri meira að segja engan veginn því mótfallinn að flytja “svrötu Þýzk- arana” yfir á þinn part og láta þig fá þá í ofan á lag. Eða munaði þig ekki í þá?” “ Nei, ” svagði smávaxna persónan. ‘ ‘ Það er síður en svo að eg sækist oftir “svörtu Þýzkurunum”; það eru madonna liljurnar, sem mér er meira umhugað um; betra hunang en það, sem þær framleiða get eg ekki hugs- að mér. Þú ættir að vita að eg sætti mig aldrei við neitt annað en það bezta. Svo kemur líka skilrúmið eða girðingin til greina; eg held að það, sem á þínum parti er sé betra, auk þess sem það er fallegra útlits.” “Finst þér ekki að girðingin að vestan sé í rauninni alveg eins nothæf og góð,” spurði Jamie vingjarnlega en þó með talsverðan al- vörublæ í rómnum? Vera má að svo sé,” svaraði smávaxna persónan. Þó kemur hitt jafnframt til greina, að eg hefi vanist eystri partinum betur og slíkt hið sama er um óla feita að segja, Góða barnið og Engilandlit. Vera má þó, þegar alt kemur til alls, að vest- ur hlutinn sé engu síðri.” Nú varð litlu persónunni litið all-forvitn- islega á Jamie. “Þú Veldur mér vonbrigða annað veifið.” Jamie hreyfði sig ekki úr stað. “Það væri ekki ófróðlegt að fá vitneskju um hvað eg hefði unnið til saka, eða gert af mér.” “Eg ásaka þig ekki fvrir neitt það, sem þú hefir gert, heldur miklu fremur fyrir það, sem þú hefir ógert látið. Þú bauðst mér til dæmis ekki að skifta við mig á landshlutan- um, er þú fékst vitneskju um að mér félli út- hlutunin ekki sem bezt í geð. Ef til vill hefði eg ekki gengið að skiftunum til þess að brjóta að engu í bága við yfirlýstan vilja býflugna- meistarans. Þú gazt þó auðvldlega boðið skiftin svona til málamynda, eins og sönnum riddara og heimkomnum hermanni sæmdi.” “Eg bið auðmjúklega velvirðingar á yfirsjón minni, ” svaraði Jamie; “það er víst ekki í fyrsta skiftið sem mér hefir yfirsézt. Eg er nú samt sem áður nokkru eldri í hett- unni en þú, og þessvegna tók eg það með í reikninginn að til skifta með okkur myndi ekki koma nema þá með því að leita til lögmanns og útkljá málið formlega í rétti; að slíkt hlyti óhjákvæmilega að hafa nokkurn kostnað í för með sér, duldist mér ekki; meðfram með þetta fyrir augum, láðist mér sennilega að bjóða þér skiftin, auk þess sem mér fanst þau eng- an veginn nauðsvnleg, og jafnvel þó þú liefðir fengið landeignina alla myndi það ekki hafa valdið mér nokkurrar minstu áhyggju.” “Eg hefði aldrei gengið inn á að veita allri eigninni viðtöku,” sagði litl skátnn, “jafnvel þó býflugnamestarinn hefði viljað að svo væri; helminginn befði eg að sjálf- sögðu iátið mér nægja; að taka meira en það, hefði verið lirein og bein ósvífni, eftir að eg var búinn að fá þig til þess að dvelja á heim- ilinu og gerði alt, sem í valdi mínu stóð, til þess að heimilið mætti verða starfskrafta þinna aðnjótandi.” “Hvað er um þá peninga, sem í bankan- um eru?” spurði litli skátinn. “Að því er eg bezt veit, og að því er erfðaskráin mælir fyrir,” svaraði Jamie, “þá mun pabbi þinn skýra fyrir þér þau atriði, er þar að lúta. Mið grunar samt að þau séu eittvað á þá leið, að eftir að útfararkostnaður sé greiddur og aðrar lögmætar skuldir, þá skuli vrarpað hlutkesti um það á hvorum hluta landsins húsið, sem þar nú er, skuli standa; gerðar eru og ráðstafanir til þess að byggja megi annað hús, er svari til hins að verði. Sé þá enn eitthvað afgangs af peningum, skal þeim skift verða jafnt á milli okkar. ” “Já, einmitt það,” sagði smávaxna per- sónan. “Svo þú heldur að býflugnameist- arinn hafi látið mér eitthvað eftir af skild- ingum í viðbót við blómin, landið og býkúp- urnar?” “E'g veit hann gerði það,” sagði Jamie, “verði erfðaskráin talin gild. En svo veit maður aldrei nema einhverjir ættingjar, jafn- vel þó ekki séu nánir, kunni að komá í leitirn- ar, og gera tilkall til eignanna. Sem stendur skaltu sætta þig við það, að býflugnameistar- anum hafi verið full alvara og hann hafi vel vitað hvað hann var að gera, er hann ánafn- aði þér helming eigna sinna.” Það er enginn vafi á því, að svo sé, þó eg á hinn bóginn efist um að þú myndir fá pen- ingana fyr en þú hefðir náð lögaldri. Eg geri ráð fyrir að föður þínum vrði falin fjár- ráð þín í þessu tilfelli sem öðrum, til þess tíma er aldur þinn leyfði að þú tæki» við fénu í þínar hendur.” “Já, þarna kemur það einu sinni enn,” sagði smávaxna persónan; “ávalt einhver dráttur; ávalt einhverjar vífilengjur; ávalt einhver vonbrigði!” Hvað er það í rauninni er þig helzt van- hagar um, og hvað á öll þessi afskapa ákefð að þýða,” spurði Jamie hæglátlega. “Hvað er unnið við að láta þrár sínar og eftirlang- anir í Ijós, ef sýnt er að ekki er viðlit að fá þeim fullnægt? Og samt spyrðu mig að því hvað’ það helzt sé, er hugur minn krefjist! Ekki nema það þó. Til hvers væri að segja þér frá því ? Þú mundir víst ekki skilja það, eða að minsta kosti láta sem þú skildir það ekki.” “Ætti eg að geta til um það hvers þú helzt myndir óska þér,” svaraði Jamie, “þá myndi eg ekki hika við að staðhæfa að þig langaði frekast af öllu til þess að eignast hest. ” “Þú átt kollgátuna,” sagði litli skátinn og hoppaði upp í loftið. “Þetta er einmitt það sem hugur minn snýst aðallega um; ekki að fá lánaðan hest, heldur að eiga hest, og mega ráða yfir honum að fullu og öllu leyti. Bæði Queen og Hans eru ágætis hross; þó er það alt öðru máli að gegna með þau, en að eiga hest sjálfur, sem maður getur klappað og gælt við nær sem vera vill. Eg vil að hest- urinn blátt áfram elti mig, eins og hundurinn lians pabba; hann verður að koma þegar eg kalla á hann; hann verður að þekkja mjg út og inij; hann verður að gerþekkja mína vegi engu síður en það er siðferðisleg skylda mín að þekkja hans vegi. Eg vil ekki að nokkur önnur manneskja komi honum á bak; ekki einu sinni Nannette eða hann litli bróðir minn; eg þarf að eiga hann alveg sjálfur út af fyrir mig, án íhlutunar frá nokkurri annari lifandi manneskju.” “ Já, svo er nú það,” sagði Jamie. “Eg hefir að vísu enn ekki persónulega hitt for- eldra þína; eg hefi hlustað á móður þína í símann, og . . . . ” “Rödd móður minnar hljómar fallega í símann,” sagði litli skátinn; eg sit mig aldrei úr færi með að heyra hana síma til þess að geta notið að fullu þess unaðar, er í málblæ hennar felst.” “Yiðvíkjandi föður þínum,” greip Jamie fram í, “þá skilst mér, að í því falli að þú fáir í þinn hlut landið og eitthvað af skild- ingum, að hann ætti að . . .” “Geta má nú nærri,” hrópaði litli skát- inn í ákafri geðshræringu. “Það kemur víst öllurn saman um það, að eg ætti að fá hest fvrir þessa peninga. Ætli við gætum ekki haft hann hérna?” Eg er ekki alls kostar fróður um regl- urnar því viðvíkjandi, ” svaraði Jamie. “En það hlýtur samt sem áður að vera tiltölulega auðvelt að ganga úr skugga um hvernig til hagi í því efni. Fyrst um sinn skulum við halda þessu leyndu og sjá svo hverju fram vindur.” “Við látum þá við svo búið standa í bráðina,” sagði litli skátinn. “Eg segi ekki eitt einasta orð um þetta frekar, enda fer nú víst að verða kominn tími til þess að eg fari að hypja mig heim á leið. Hver veit nema Grayson læknir hafi hringt til pabba og bíði nú ef til vill eftir honum á þessu augnahlikinu ? Og svo er mömmu ekki ósenni- lega farið að leiðast eftir mér. Hver veit nema þeir séu enn ekki farnir með lík hins látna vinar okkar?” “Mér þykir sárt að þurfa að viðurkenna, að nokkuð sé síðan líkið var sent af stað,” svaraði Jamie í viðkvæmum og klökkuð róm. “Þú verður að taka þessu eins og það er; þeir eru farnir fyrir góðri stundu....” “Eg er að vona,” sagði litli skátinn, “að býflugnameistarinn hafi ekki látið eftir sig mikið af peningum,” sagði smávaxna persón- an. “Og vegna hvers,” spurði Jamie með nokkurri áherzlu. ‘ ‘ Mér er ekki unt að koma auga á nokkra gilda ástæðu fyrir því að fólk eigi að vaða í peningum,” svaraði litli skátinn ákveðið ög einlæglega. ‘ ‘ Eg fæ ekk betur séð en að slíkt verði flestum til ógæfu og ama; eg hefi veitt því athygli undanfarin ár, að málaferli og mörg önnur vandræði, sem fólk þráfaldlega kemst í, eigi all-oftast að einhverju leyti rót sína að rekja til peninga eða peningagræðgi. Því getur fólk ekki verið ánægt með minna en það mesta, ef það á annað borð hefir sæmi- lega mikið til þess að spila úr?” Jamie fann til ánægju yfir því að breytt var um stund umtalsefninu. “Hvað er það, sem þú kallar sæmilega mikið af peningum, eða hvað áttu við með því?” sagði hann. “Eg mundi ætla að það væri hverri mann- eskju fullnægjandi að eiga aðra ekruna af landi býflugnameistarans, hvort heldur það væri sú eystri eða vestri, með öllum býkúp- unum, sem á þeim eru; blóma- og matjurta- garðinum og nökkrum vasapeningum til þess að kaupa sér fyrir brauð, smjör og “heita hunda”; það sýnist engin heilbrigð ástæða mæla með því að krefjast annars meira; eg gleymdi nú reyndar fatnaðinum; jú; auðvitað verður fólk að klæðast, þó nokkur munur sé,á kröfum í því sambandi.” “Nú gleymdirðu víst öllu í sambandi við hestinn,” greip Jamie fram í. “Ekki vil eg nú segja það. Hesturinn var vitaskuld efst í huga mínum, en næst kom staðurinn, þar sem hann ætti að vera geymd- ur. Það getur enginn átt hest sér til fullrar ánægju, nema því aðeins að honum verði séð fyrir viðeigandi og hentugum stað. Eg hefi ávalt verið í vandræðum með slíkan stað, jafnvel árum saman; að öðrum kosti myndi eg hafa haft hest fyrir langa löngu. Um hest- hús var ekki að ræða, og þaðan af síður hafra eða almennilegt hey. Hestur! Hestur! Það er einmitt hestur, sem eg verð að fá. ’ ’ “En hvað er um bát?’’ spurði Jamie. “Hvernig er hægt að hagnýta sér hafið án báts?” “Litli skátinn þagnaði stundarkorn, eins og ti'l þess að sækja í sig veðrið. “ Já, hafið, svona. rétt að húsabaki! Að hugsa sér annað eins og það að hafa ekki einu sinni bát; það tók nú út yfir alt.” “ Býflugnameistarinn sagði mér ein- hverju sinni frá því vegna hvers hann setti girðinguna þar sem hún var; hann sagði mér ennfremur að hann ætti þessa landræmu alla leið niður að ströndinni. Einu sinni hafði maður nokkur farið þess á leit við býflugna- meistarann að fá keypta svolitla ræmu rétt niður við ströndina, með það fyrir augum að koma þar upp dálitlum skála, er verzla mætti með “heita 'hunda.” En hann fékk það ekki með því að það hefði þröngvað um of kosti mannsins, sem leyfi fékk til slíkrar sölu skamt frá bústað býflugnameistarans. ” Einhverju sinni sagði býflugnameistar- inn mér frá mannij er William Blackstone hét; hann lét mig hvað ofan í annað hafa eftir sér ummæli hans um þá staði, sem verzluðu með “heita hunda”; Mr. Blackstone hafði verið alveg óviðjafnanlegur dánumaður og prúð- menni, að því er býflugnameistaranum sagð- ist frá. Mr. Blackstone skildi afstöðu sína til samferðamannanna flestum betur -og var vanur að komast að orði á þessa leið: “Það sem þér viljið að mennirnir geri yður, það skuluð þér og þeim gera. Látið nágranna yð- ar í friði og troðið þeim ekki um tær, sem sömu atvinnu stunda og þér sjálfir.” “Það var engin nýlunda að býflugna- meistarinn gengi niður til strandar og bakaði sig í sandinum langtímum saman; lionum var ósegjanleg huggun í söng og hvísli Ránar- dætra; hann var ávalt eins og nýr maður í hvert sinn og hann kom þaðan. ” Nú vafði litli skátinn handleggjunum svo 'þétt um hálsinn á Jamie, að honum beinlínis lá við köfnun; og nú fékk býflugnavörðurinn í annað sinn á æfinn brennheitan koss hjá smávöxu persónunni. “Þegar alt kemur til alls,” sagði litli skátinn, “þá er mér það óumræðilegt fagnað- arefni að þú hefir madonna liljurnar og orustuvöllinn á þínum hluta landsins og helming búflugnabúsins. Viljir þú síður “svörtu Þýzkarana,” þá er velkomið að eg taki þá. Eg fagna yfir brottför býflugna- meistarans úr því að hann var ferðbúinn; þó fagna eg því enn meira, að þú skulir verða hér kyr áfram og annast um býflugnabúið. ” 14. KAPÍTULI. Það krafðist ekki mikils umstangs að gera út um erfðamál býflugnameistarans; eigur lians voru voru aðeins landspildan með áhöfn, auk peninga þeirra, sem áður hefir verið getið að liann ætti inni á Citizen’s Bank. Sökum þess, hve Grayson læknir var kunnugur öllum hnútum viðvíkj- andi síðustu óskum býflugnameistarans, var hann kjörinn til skiftaráðanda í einu hljóði. Samkvæmt anda erfðaskrárinnar og óskum býflugnameistarans féll liúsið,, eftir að það hafði verið grandgæfilega endurvirt í hlut Jamie. A því hvíldi engin veðskuld, fremur en öðrum þeim eignum, er býflugnameistar- inn lét eftir sig; en vexti af sannvirði þess átti að reikna út árlega og gevma helming þeirra unz litli skátinn næði lögaldri; liúsið átti að standa þar sem það var unz þar kæmi að Jamie teldi rétt að það yrði flutt; var viss ])eningaupphæð ákveðin, er nægileg þætti við kostnað í því sambandi. Friður á jörðu Saga eftir Selmu Lagerlöf. (Þýtt hefir séra Sigurjón Guðjónsson) Bróðir Urðar, sem var aÖeins 5 ára, er henni var rænt, og man naumast eftir henni, gnístir tönn- um án þess að honum sé það ljóst, og maðurinn, sem ætlaði að kvænast Urði, hefði hún ekki týnst, er ná- fölur og dregur andann svo þungt, að andardráttur- inn verður hryglukendur. Þeim létti báðum við orð gamla mannsins. Að fara móti ræningjunum, hve margir sem þeir eru. og brytja þá niður fyrir hund og hrafn, er það eina, s'ern slökt getur hefndarþorsta þeirra. Þegar Magnhildur sér að maðurinn hennar vill fylgja föður hennar hættir hún að gráta og lítur upp. —Vegna Urðar er eg glöð yfir því að eg er gift þér—segir hún. —Ef þú værir ekki maðurinn minn, þá hefðirðu ekki verið hér í kvöld og pabbi hefði ekki haft hetju á borð við þig við hlið sér. Hún hættir öllum kveinstöfum, en undirbýr burtför karlmannanna. Hún tekur fram föt þeirra, skó, sokka, belti, hnappa og bönd og gætir vandlega að öllu, til að fullvissa sig um að það sé í lagi. Því í þessa för má ekkert varfta. Faðirinn fer til nágrannanna til að biðja þá um liðveislu. Á meðan bíða tengdasonur hans og sonur heima og taka fram byssur og skotfæri og leggja á hnífana. Að lokum eru þeir tilbúnir, og þá skipar Magn- hildur þeim öllum í háttinn. Hún er sjálf neydd til að vera á fótum nokkurn tíma enn, segir hún, til að búa út nesti þeirra. Þessi vesalingur, sem að garði bar, hefir hreiðr- að um sig í hálminum og er sofnaður. Það var ó- mögulegt að koma honum til að hátta í rúmi. Það er dauðakyrt i kringum Magnhildi, og í kyrðinni hverfur hugur hennar til þeirrar stundar fyrir tveim tímum eða svo, þega allir sátu saman í friði og hæði og heyrðu ávarp englanna til hins mikla friðarhöfðingja. Hún minnist þess að hún setti bibliuna til hliðar, eins og hún héldi að það, sem þau ætluðu sér að gera, væri móti kenningu hennar. Þegar hún er nú að ganga um stofuna og undir- búa förina, getur hún ekki skilið, að það sé þannig. Það getur ekki veri að fyrirgefa eigi þeim, sem stela og myrða ? * Hún vissi að Jesús fyrirgaf óvinum sínum, en það var alt annað: Hann sagði um þá, að þeir vissu ekki hvað þeir gerðu. En þeir, sem fara þannig með saklausa konu, að hún er eins og villidýr, þegar hún kemur aftur heim —ber ekki að hegna þeim? Guð getur ekki slept þeim við refsingu. Meðan hún er í þessum hugleiðingum, heyrir hún létt skrjáfur. En það er svo óljóst, að það verð- ur varla greint. Það er eins og flökthljóð fiðrilda- vængja. Hún gengur til dyra og opnar þær. Úti heyrir hún flöktið nokkru greinilegar, og þegar hún teygir út hendina, falla kaldar og votar flyksur á liana. Það snjóar. Og einmitt í kvöld. Og þegar bvrjað er að snjóa, má búast við að því haldi áfram, þangað til hálfur bærinn fer í kaf. Magnihldur stendur grafkyr og hugsi. —Er þetta svar til min? spyr hún. Það er fallinn nógu mikill snjór til þess, að ert- urnar og grjónin, sem Urður stráði á leiðinni, sjást ekki framar og Urður getur ekki vísað þeim veginn. Þó að hún hrestist og fengi meira vit, gat hún eiðs síns vegna ekki sagt meira en hún hafði þegar sagt í dag. Það leit út fyrir, að ræningjarnir mundu sleppa. Það var ekki um neina ferð að tala daginn eftir til ræningjabælisins. Magnhildur beit á vör og hlustaði á snjóflyks- urnar falla. Ekkert er eins hljótt og sefandi, ekkert sem kyrrir skapið betur. Það er flökt hinna minstu vængja. Friðarkveðja frá himni jólanna. Hún gengur inn í stofuna og lokar hægt á eftir sér. Svo tekur hún bibliuna ofan af hyllunni' og blaðar dálítið í henni. —Ekki svo mikið sem þetta vildir þú leyfa, seg- ir hún.—Ekki einu sinni þetta.— (Lesbók Morgunblaðsins).

x

Lögberg

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.