Lögberg - 18.04.1935, Qupperneq 1
48. ARGANGUR
WINNIPEG, MAN„ FIMTUDAGINN 18. APRÍL 1935
NÚMER 16
/ KIRKJU
(E(ftir óþektan höfund)
Eg kom inn með heift í huga,
um hefndir bað:
með helvíti’ í hjartastað.
Eg' fór út með lirygð í huga,
um huggun bað:
með himininn í hjartastað.
Sig. Júl. Jóhannesson.
STAKA
(Eftir Björnstjerne Björnson)
Það sannar engan hetjuhug
þó hvergi þrjóti kraftur;
en hitt ber vott um dáð og dug
að detta’ og standa’ upp aftur.
Sig. Júl. Jóhannesson.
Fyráta lúterska kirkja
ÍI. í TÍÐA-SAMKOMUR
1. Skírdagskv'öld: Altarisgöngu-guðsþjón-
usta, íslenzk, kl. 8 e. li.
2. Föstudaginn langa: Guðsþjónustugjörð
og Helgisöngvar, söngstjóri hv. Páll
Bardai, kl. 7 e. h.
3. Páskadagur:—
a) Ensk hátíðarmessa (B. B. J.) Kór-
söngvar yngra. söngflokksins, kl. 11 f. h.
b) Sunnudagsskólinn, kl. 12:30 e. h.
c) 'lslenzk hátíðarmessa (R. M.), Ivór-
söngur eldra söngflokksins, kl. 7 e. li.
4. Annan í páskum: Helgisöngvar — Can-
tata—undir umsjón Unginennafélags-
ins; söugstjóri frú Björg V. Isfeld,
kl. 8 e. h.
Kirkjan býður alla velkomna.
ALMENNINGI GLEYMT
FRA MANITORA ÞINGINU
. Eins og vikið var stuttlega að í
síðasta blaði, var fylkisþinginu í
Manitoba slitið á laugardaginn þann
6. þ. m. Var þingstörfum flýtt sein-
ustu dagana sem frekast mátti verða,
með það fyrir augum, að bændum,
er á þingi sátu, v^ittist kostur á að
komast heim áður en sáning bvrj-
aði.
Þing þetta afgreiddi í alt 105 laga-
frumvörp. Fjárlögin, eins og þau
að lokum voru afgreidd, heimila
stjórninni $14,083,000 til starf-
rækslu hins opinbera á hinum ýmsu
sviðum yfir fjárhagsárið. Meðal
nýrra útgjalda má telja áætlaða f jár-
veitingu til rafleiðslu um hin ýmsu
héröð, er þess hafa sérstaklega farið
á mis, sem og fjárveitingu til líf-
eyris handa blindu fólki. Er Mani-
toba fyrsta fylkið í Canada, er færst
hefir slíka nýjung í hendur. Að-
eins 8 frumvörp, er lögð voru fyrir
þing, dagaði uppi.
Allir ráðgjafarnir voru við þing-
slitin að undanteknum fylkisritar-
anum, Hon. D. L. McLeod, er sök-
um sjúkdómsforfalla var fjarver-
andi.
ÞINGMENSKU FRAMBOÐ
Mr. R. J. Deachman, nafnkunnur
blaðamaður og fjárhagsfræðingur,
hefir verið útnefndur sem merkis-
beri frjálslynda flokksins við næst-
komandi sambandskosningar í North
Huron kjördæminu í Ontario.
í ræðu sinrii á framboðsfundinum
staðhæfði Mr. Deachman, að síðan
1930 hefðu tekjur af landbúnaði
þorrið um $400,000,000; tekjur
járnbrauta lækkað um $130,000,000
og ágóðinn af starfrækslu iðnaðar-
ins rýrnað um $220,000,000. Sem
sýnishorn af því hvernig hag bænda
vestanlands væri komið, dró Mr.
Deachman upp úr pússi sínum ein-
hverja fótaskýlu ómynd, ofna eða
fléttaða úr tvinna, er tákna skyldi
skó.
KREFST VAXTALÆKK-
UNAR
Mr. George Coote, C.C.F. sam-
bandsþingmaður fyrir MacLeod
kjördæmið í Alberta, hefir borið
fram á þingi frumvarp til laga um
það, að hámark vaxta af bændalán-
um skuli vera 5 af hundraði. All-
margir af þingmönnum frjálslynda
flokksins eru líklegir til þess að
veita Mr. Coote að málum eða hafa
beitið frumvarpi hans stuðningi. í-
haldsmenn eru frumvarpinu and-
vígir, að undanteknum Hon. H. H.
Stevens, er lýst hefir við það fylgi
sínu.
HLEYPUR AF SÉR IIORNIN
Eftir fregnum af sambandsþingi
að dæma á föstudaginn var, hefir
Mr. Stevens fyrverandi verzlunar-
ráðgjafi Bennett-stjórnarinnar, enn
á ný hlaupið af sér hornin, eins og
komist er stundum að orði, í sam-
bandi við það, að vera valdur að
birtingu megin dráttanna í nefndar-
áliti þeirrar konunglegu rannsókn-
arnefndar, er að því hefir unnið á
annað ár, að rannsaka verzlunar-
háttu hinnar canadisku þjóðar.
Gerðist þetta með þeim hætti, að
ýms blöð birtu aðaltillögur nefndar-
innar áður en stjórninni hafði veizt
kostur á að kynna sér nefndarálitið
í heild og leggja það formlega fyrir
þing. Þessu gerræði mótmælti leið-
togi frjálslynda flokksins stranglega
og krafðist þess að þingnefnd yrði
sett í málið, með það fyrir augum,
að leiða sannleikann í ljós. Mr.
Kennedy, sá, er skipað hefir for-
sæti í rannsóknarnefndinni frá því
er Mr. Stevens vék úr ráðuneytinu,
tók í sama streng, og lét í ljós megna
óánægju yfir þvi hvernig tekist
hef^i til. Er hér var komið sögunni,
reis Mr. Stevens úr sæti sínu og
lýsti yfir því, að hann bæri að minsta
kosti að nokkru leyti ábyrgð á því,
að nokkur blöð hefði fengið megin
niðurstöður nefndarinnar til birt-
ingar, en þverneitaði þó að biðja af-
sökunar á nokkrum sköpuðum hlut.
NÝR IIASKÓLA FORSETl
Prófessor Arthur Eustace Mor-
gan frá University College í Hull á
Englandi, hefir verið skipaður for-
seti McGill háskólans sem eftir-
maður Sir Arthurs Curry. Hinn nýi
háskólaforseti er talinn að vera
fræðimaður hinn mesti á sviði
enskrar tungu og enskra bókmenta.
Tekur hann við embætti sínu þann
l. september næstkomandi. Mr.
Morgan stendur rétt á fimtugu.
SYKUR VERKSMIÐJA í
WINNIPEG
Náttúrufríðinda ráðgjafi fylkis-
stjórnarinnar í Manitoba, Hon. J.
S. McDiarmid, telur það nokkurn
veginn vist, að nýtízku sykurverk-
smiðja verði komin á fót í Winnipeg
um haustið 1936. Er það Banda-
rikjafélag, The American Crystal
Sugar Company, sem ráðgerir að
koma verksmiðju þessari upp. Á-
ætlað er að verksmiðja þessi fram-
leiði á ári 42,750.000 pund sykurs.
FARAST I SNJÓFLÓÐI
Fréttir frá Vancouver þann 8. þ.
m. , láta þess getið, að átta námu-
menn hafi týnt lífi í snjóflóði við
Taseko Lake um fjörutíu mílur
norðvestur af Bridge River í British
Columbia fylkinu.
Ungmennaþing í
Winnipeg
Það er ekki eins langt í burtu eins
og sumir halda. Tíminn líður! Enn-
þá er nógur tími samt til þess að
stofna unglingafélög í hinum ýmsu
söfnuðum og gefa þannig æskulýðn-
um tækifæri að leggja fram krafta
sína til styrktar velferðarmálum
okkar.
LTngmennaþingið er aðeins byrjun
til vakningar og heilhuga samstarfs.
Þar öðlumst við nýjar hugsjónir,
sem við gerum svo að framkvæmd-
um í okkar heimahéraði; þar öðl-
umst við tilfinning um að fjöldi
starfar að sömu hugsjónum og við;
það eykur hugrekki okkar; þar
skiftumst við á vandamálum og
gagnrýnum erfiðleika á ýmsum svið-
um, sem verður til þess að við lær-
um að yfirstíga þá. Tvent vil eg
geta um hér og biðja hlutaðeigend-
ur að veita athygli: Fyrst—Vér vit-
um ekki i öllum tilfellum áritun fé-
laga eða safnaða, sem kynnu að
vilja láta unglinga taka þátt i þing-
I inu; hjálpið okkur því að finna
| ykkur, með því - að senda Ásgeir
Bardal 894 Sherbrook St., Winni-
peg, utanáskrift ykkar. Hitt ann-
að er, að hvert félag hefir rétt til
að senda einn erindreka fyrir hverja
25 gilda meðlimi eða brot af 25, en
ekkert félag færri en 2 erindreka.
Skrásetning erindreka fer fram á
föstudaginn 24. maí, rétt eftir há-
degi.
Sjáumst í Winnipeg Victoríu-
daginn!
E. H. Fáfnis.
IIREINN AGÓÐI EYKST
Ársskýrsla Hundson’s Bay verzl-
unarinnar, er lögð var fram á aðal-
fundi félagsins í Lundúnum þann
31. janúar síðastliðinn, bar með sér,
að hreinn ágóði af starfrækslu fé-
lagsins á síðastliðnu ári nam 40,981
sterlingspundum; er það 12,228
pundum meira en árið þar á yndan.
í öllum deildum, að undanskilinni
grávörudeildinni einni, hafði félag-
ið fært út kvíarnar á árinu.
Byrd aðrníráll á heimleið
Við komu sína að Balboa skurði,
steig aðmíráll Byrd í fyrsta sinni
fæti á ameriska grund eftir að hann
fyrst hóf rannsóknir sinar í norður-
höfum.
Or borg og bygð
Látið ekki hjá líða að f jölmenna á
sumarfagnað þann, er Kvenfélag
Fyrsta lúterska safnaðar efnir til í
kirkjunni á sumardagskvöldið
fyrsta.
'Séra Jóhann Bjarnason prestur á
Gimli er staddur í borginni um þess-
ar mundir, ásamt frú sinni.
Mrs. Gísli Johnson að 906 Ban-
ning Street, kom heim á föstudag-
inn var, eftir tiu vikna dvöl í To-
ronto hjá dóttur sinni Bergþóru,
Mrs. Hugh Robson.
Mr. Ásmundut; Johnson frá Sin- |
clair, Man., sem dvalið hefir hér í
borginni í vetur, fór heim til sin
um miðja fyrri viku.
Þeir Dr. Sveinn E. Björnsson og
G. O. Einarsson frá Árborg, komu
hingað á aðfaranótt siðastliðins
sunnudags með Mr. Jón Sigurðsson, |
fyrrum sveitaroddvita í Bifröst, til
lækninga. Er hann nú hér á Al-
menna sjúkrahúsinu.
Mr. Einar Thompson frá West-
bourne, Man., er staddur í borginni
um þessar mundir.
Mr. J. J. Thorvarðsson, fyrrum
kaupmaður, sem dvalið hefir á
Akra, N. Dak., í vetur, er nýkominn
til borgarinnar.
Mr. Gunnlaugur Thorvardsson
veizlunarmaður frá Akra. N. Dak.,
var staddur í borginni fyrir síðustu
helgi.
Mr. Ragnar Eyjólfsson, er stund-
að hefir fiskiveiðar við Steep Rock
í vetur, kom til borgarinnar um
‘miðja fyrri viku.
Mr. Ásmundur Freeman frá
Siglunes P. O., var staddur i borg-
inni í vikunni sem leið.
Mr. Guðmundur Christie leikhús-
stjóri, skrapp suður til St. Paul,
Minn., snöggva ferð í vikunni sem
leið, ásamt frú sinni.
Mr. Sigfús Pálsson fór norður til
Reykjaví P. O. í vikunni sem leið,
og dvelur þar um hríð hjá Árna
bróður sínum.
Dr. B. H. Olson lagði af stað
síðastliðið mánudagskvöld austur til
Toronto, Ottawa og Montreal og
Chicago. Þaðan fer Dr. Olson til
Missouri þar sem hann situr fjöl-
ment læknaþing. Dr. Olson ráð-
gerði að verða að heiman um hálfs-
mánaðar tíma.
Mr. Halldór Erlendson frá Ár-
borg, Man., var staddur i borginni
á mánudaginn.
Dr. Tweed verður i Árborg á
fimtudaginn þann 25. þ. m.
Mr. John Laxdal, kennari frá Ár-
borg, er staddur í bænum þessa dag-
ana, ásamt frú sinni.
EFNILEGUR NAMSMAÐUR
lílaðið Cavalier Chroincle flutti
þann 12. þ. m., mynd af efnilegum,
íslenzkum námsmanni, er nám
stundar við landbúnaðarháskólann í
Fargo, N. Dak. Maður þessi er
Thorvarður Thorvardsson, sonur B.
S. Thorvarðssonar kaupmanns á
Akra. Útskrifast hann úr lærdóms-
deild téðs skóla í vor. Thorvarður
er ágætur námsmaður og ljúfmenni
i framgöngu. Nýtur hann alveg
sérstaks álits í skóla sínum, og hefir
á hendi formensku i ýmsum helztu
stúdentafélögum.
Fréttapistill
(Prá Vogar )
Nú er veturinn farinn að telja af
sér, eins og menn sögðu heima á
gamla landinu, þegar komið var á
síðasta mánuðinn. Misjöfn hefir
tíðin verið, en þó má kalla að þessi
vetur hafi verið í betra lagi yfirleitt.
En miklu skiftir hvernig vorið verð-
ur. Heybirgðir margra eru af
skornum skamti, ef illa vorar. því
hey hafa reynst létt og ódrjúg. En
ekki er að treysta á útbeit fyr en
gróður kemur, þvi gras var orðið
ónýtt þegar snjóaði síðastl. haust.
Þó er vonandi að gripir komist
sæmilega fram, því nokkrir bændur
eru svo byrgir að þeir geta miðlað
þeim, sem ver eru staddir með fóð-
ur.
Gripakaupmenn hafa verið hér á
ferðinni, og hafa keypt talsvert af
ungum geldgripum. Verðlag á þeim
hefir verið talsvert betra en siðastl.
haust, en vantar þó mikið á að vel
sé. Bændur þurfa að fá hærra verð
fyrir gripi sína en sem svarar þvi
sem þeir eru búnir að kosta til
þeirra í fóðri og hirðingu, þvi á ein-
hverju verða bændur að framfleyta
búum sínum.
Fiskiveiðum er nú lokið þennan
vetur. Enginn hefir orðið ríkur
af þeim hér við Manitoba-vatn, en
sumir fátækari en þegar þeir byrj-
uðu. Veldur því lítil veiði og lágt
verð. Það lítur svo út sem sá bjarg-
ræðisvegur sé að verða að engu, því
veiðin fer minkandi með ári hverju.
Sumar tegundir fiskjar virðast vera
alveg horfnar, og allur fiskur stór-
um minni en áður. Hvítfiskur sézt
nú varla og Pikkur veiðist mjög
lítið nema í smáriðaðri net en leyfi-
legt er að nota. Bendir það til þess
að fullvaxinn fiskur sé því sem nær
gjöreyddur úr vatninu. Netjafjöld-
inn hefir verið svo hóflaus í vatn-
inu á seinni árum að svo hlýtur 'að
fara að lokum, að fiskurinn gangi
til þurðar. Verður það illur hnekk-
ir fyrir þá, sem við vatnið búa, því
margir þeirra hafa haft mest bjarg-
ræði af fiskiveiðum.
Fiskimenn flestir farnir burtu
héðan, sem voru hér sem farfuglar.
Aðrir sem hér eru heima-aldir hafa
nóg að starfa við heimaverk, og
allmargir við skógarhögg fyrir sög-
unarmyllu Ásmundar Freemans.
Hér er því enginn atvinnuskortur.
Almenn heilbrigði hér í bygðum.
Engar slysfarir.
Gtiðm. Jónsson.
frá Húsey.
Mr. Voung, liberal sambandsþing-
maður frá Weyburn, Sask., einn
þeirra manna, er sæti átti í hinni
svonefndu Stevens-Kennedy rann-
sóknarnefnd, hefir lagt fram sér-
stakt minnihluta nefndarálit. Tjá-
ist hann mótfallinn ýmsum þeim
hömlum, er meirihluti nefndarinn-
ar leggur til að lagður verði á verzl-
un og viðskifti, og kveðst ekki bet-
ur sjá, en að neytendum sé því nær
alveg gleymt, eða hagsmunum
þeirra, með því að alt snúist um
það, að hækka söluverð án tillits til
kaupgetu.
Á LEIÐ TIL LUNDÚNA
Rt. Hon. R. B. Bennett, forsæt-
isráðgjafi siglir frá New York á
laugardaginn kemur áleiðis til Lund-
úna, til þess pð taka þátt í hátíðar-
höldunum, sem þar fara fram í önd-
verðum næsta mánuði í tilefni af
fjórðungsaldar ríkisstjórnar afmæli
konungs.
Mr. Bennett er sagður að vera
kominn á góðan rekspöl með að ná
að fullu heilsu sinni. En hann hefir
sem kunnugt er, verið all lasinn frá
því þann 24. febrúar síðastliðinn.—
Sambandsþing kemur saman aftur
þann 20. maí.
FRÁ ÍSLANDI.
Sigurgeir á Orrastöðum fellur í vök
á Laxárvatni. 13 ára stúlka hjálpar
honum.
Síðastliðinn sunnudag var Sigur-
geir bóndi á Orrastöðum á Ásum á
ferð ríðandi á Laxárvatni, ásamt 13
ára stúlku, Torfhildi Hannesdótt-
ur. Sprakk þá ísinn snögglega und-
an hestunum, en um leið kastaðist
Torfhildur fram af sinum hesti og
út á skörina, en Sigurgeir fór næst-
um í kaf.
Torfhildur náði þó til hans með
hendinni og hjálpaði honum upp úr
vökinni. # Eór hún því næst til bæja
til þess að fá hjálp, en Sigurgeir
hélt í tauma beggja hestanna, er
brutust um á sundi í vökinni. Misti
hann af öðrum hestinum út undir
ísinn áður en honum kom hjálp, en
hinum var bjargað lifandi. — Mbl.
16. marz.
Frú Jóhanna Proppé, kona Carls
Proppé kaupmanns adaðjst hér í
bænum aðfaranótt sunnudags, eftir
langa og þunga sjúkdómslegu.
Ólafur Ólafsson fyrrum prófast-
ur í Hjaíðarholti andaðist í gær að
heimili sínu hér í bænum, Bjargar-
stíg 5-
Mbl. 14. marz.