Lögberg - 16.05.1935, Qupperneq 7
LÖGBEiíG, FIMTUDAGTNK 16. MAI, i935.
7
ENDURVEKIÐ ÆSKUFJÖRIÐ
NUGA-TONB er dásamlegt meöal
fyrir sjúkt og lasburða fólk. Eftir
vikutíma, eða svo, verður batans vart,
og við stöðuga notkun fæst góð heilsa.
Saga NUGA-TONB er einstæð I sinni
röð. Miljónir manna og kvenna hafa
fengið af þvi heilsu þessi 45 ár. sem
J>a ð hefir verið í notkun. NUGA-
TONB fæst í lyfjabúðum. Kaupið að-
eins ekta NUGA-TONE, þvi eftirliking-
ar eru árangurslausar.
Við hægðaleysi notið UGA-SOL —
bezta lyfið, 50c.
Sólarlagið þetta kveld var eitt-
hvert það yndislegasta og tilkomu-
mesta, er íbúar á Opeki-eyjunni
höfÖu augum litið. Um sama leyti
og sólin roðaÖi sjávarflötinn komu
í augsýn sex herskip yzt við sjón-
deildarhringinn, másandi og blás-
andi á hraÖaspretti. Frá suÖri kom
þrí-dekkað skip, eins stórt og heil
stál eyja, með rautt flagg flaksandi
í kveldgolunni; suÖur af því sást
langt og látt frakkneskt tundur-
skip, veifandi sínu þrílita þjóðar-
merki, og enn lengra burt sást til
beitiskiþa og kafbáta, sem öll kept-
ust við að komast sem fyrst að
hráð sinni. Hefnd var rituð á hverja
linu, hrukku og rák á skipum þess-
um, engu síður en á hina ginandi
fallbyssukjafta.
En frá landi stefndi svolítill og
ljótur fiskibátur, sem hoppaði og
skoppaði á öldutoppunum, en þess
á milli fór alveg í hvarf í dældun-
um. Tveir kolsvartir sjómenn sátu
í framstefni bátsins en tveir hvítir
unglingsmenn í skutnum, er snéru
baki að Opeki fyrir fult og alt.
Andlit þeirra voru eins rauð og
kveldsólin, en sarot fór hrollur um
þá alla í hvert sinn er þeim varð
litið til herskipanna og hinna gljá-
andi byssukjafta.
“Stedman,” sagði sá eldri, og var
eins og hann hefði munninn full-
an af þurrum kartöflum, hendandi
á herskipin, “við höfum ekki kom-
ið til einskis í þennan heim.”
ENDIR.
Afmœlissjóður
A næsta kirkjuþingi verður minst
fimtíu ára afmælis Hins. ev. lút.
kirkjufélags Islendinga í Vestur-
heimi. Aðal hlutverk kirkjufélags-
ins er viðhald og efling kristnihalds
i hygðum vorum. Það er vort heima-
trúboð. Að borin sé fram frjáls
afmælisgjöf til þess, auk hinna
venjulegu árlegu tillaga tii starf-
seminnar, á að vera einn þáttur í há-
tíðahaldinu í ár. Engin gjöf
í sjóðinn má fara fram úr einum
dollar frá hverjum einstaklingi, þó
állar minni gjafir séu vel þegnar.
Þar sem ástæður leyfa gætu margir
eða allir meðlimir í f jölskyldu tekið
þátt og væri það æskilegast. Senda
má tillög til féhirðis, hr. S. O. Bjer-
r*n&> 55° Banning St., Winnipeg,
eða afhenda þau mönnum er taka
að sér söfnun i þessu augnamiði,
víðsvegar í bygðum. Allir vinir
kristindómsmála vorra eru beðnir
að greiða fyrir þessu. Nöfn gefenda
verða birt jafnóðum. Ætti að verða
merkilegt fólkstal safnaða vorra og
kristindómsvina.
Áður auglýst ......$401.45
Safnað af Mr. O. K. Olafson,
Edinburg, N.D.
Mrs. Guðrún Eyolfson,
Edinburg, N. D............ 1.00
Miss Cecelia Eyolfson,
Edinburg, N.D............ 1.00
Mr. S. S. Laxdal, Gardar . . 1.00
Mr. og Mrs. John Matthiasson,
Gardar, N.D............... 1.00
Mr. og Mrs. H. S. Walter,
Edinburg, N.D. ........... 0.50
Mr. E. A. Melsted, Edinburg 0.50
Mr. Willie Melsted. Edinb. 025
Mr. Albert Melsted, Edinb... 0.25
Margaret Guðmundson,
Edinburg ............. ... 0.25
Mr. og Mrs. Hans Einarson,
Gardar, N.D............... 2.00
Mr. og Mrs. S. M. Breiðfjörð,
Gardar, N.D............... 1.00
Mr. Jónas Bergmann, Gardar 1.00
Mr. og Mrs. F. G. Johnson,
Edinburg, N.D............. 1.00
Mr. og Mrs. J. H. Johnson,
Edinburg, N.D............. 0.50
Mr. og Mrs. Carl Magnússon,
Edinburg, N.D............. 0.25
Mr. og Mrs. S. T. Gíslason,
Gardar, N.D............... 0.25
Mr. K. T. Kristjánsson,
Gardar, N.D............... 0.25
Mr. og Mrs. Joe Gestsson,
Gardar, N.D............... 0.50
Mr. og Mrs. Jóhann Gestsson,
Gardar, N.D............... 0.50
Mr. og Mrs. M. S. Guð-
mundsson, Gardar, N.D... 0.25
Mr. og Mrs. Stgr. ísfeld,
Gardar, N.D. ............. 0.25
Alls ................$13-50
Safnað af Mr. J. G. Stephanson,
Kandahar, Sask.
Mr. og Mrs. J. G. Stephanson. .2.00
Mr. E. S. Stephanson .........0.50
Miss V. Erickson .............0.50
Mr. og Mrs. E. Helgason . . . .1.00
Mr. og Mrs. Herman Johnson 1.00
Mr. J. B. Josephson ..........1.00
Mr. og Mrs. J. B„ Jónsson.... 1.00
Mr. og Mrs. S. Indriðason ..1.00
Mrs. Sv. Sölvason ............1.00
Mr. og Mrs. F. H. Einarson . .0.50
Alls ................ $9.50
Miss J. T. Olafson, Wpg.......1.00
Mrs. S. H. Hnapdal ...........0.50
Mrs. Guðbjörg Suðfjörð,
Calder, Sask..............1.00
Mr. og Mrs. Steini Suðfjörð,
Calder, Sask..............1.00
Mr. og Mrs. J. Einarsson,
Calder, Sask..............1.00
Hannes Egilsson, Calder . . . .$1.00
Tillög frá ýrnsurn í Blaine,
Wash. ....................$8.00
Tillög frá ýmsum á Point
Roherts, Wash..............4.31
Mrs. Helgi Sumarliðason,
Seattle ...................1.00
Mr. og Mrs. A. A. Hallson,
Seattle ...................1.00
Mr. og Mrs. Phillip Johnson,
Eundar ....................1.00
Mrs. S. J. Erickson, Lundar..i.oo
Oddný Magnússon, Lundar . .1.00
Mr. og Mrs. R.Eiríksson,
Stony Hill.................1.00
Rakel Eiríksson Stony Hill. .. .0.25
Steina Eiríksson, Stony Hill . .0.25
Guðm. Erlindsson, Gimli . ...1.00
Mr. og Mrs. B. Gilbert, Wpg.. .1.00
$20.81
Saf nað af Jóni Ingjaldssyni, Selkirk
Mr. Friðfinnur Austdal.........1.00
Mrs. Elizabet Austdal .........1.00
Mr. og Mrs. Jón Ingjaldson.. 1.00
$3.00
Safnað af Tryggva Ingjaldssyni,
Árborg.
Mr. og Mrs. Gestur Oddleifs-
son.......................1.00
Mrs. Guðrún Guðmundsson.. 1.00
Mr. og Mrs. Th. Gíslason .... 1.00
Margaret Hanson .............0.25
Mr. og Mrs. B. Goodman
og börn .....................1.00
Valdi Borgfjörð .............0.50
Árni Borgfjörð ..............0.50
Ilerdís Johnson .............0.50
Jónas H. Johnson ........... 0.50
Lilja Johnson ...............0.50
Sigurjón M. Johnson..........0.50
Snæbjörn Johnson ............0.50
$7-75
Safnað af Miss Guðrúnu A.
Jóhannsson, ISaskatoon.
Margaret Thorvaldson, ,
Saskatoon.................1.00
Elizabeth Sigurjónsson,
Saskatoon.................1.00
F. E. Jóhannesson,
Saskatoon.................1.00
Dr. V. A. Vigfússon,
Saskatoon.................1.00
Dr. T. J. Arnason, Saskatoon 0.75
Mr. A. P. Arnason, Saskatoon 0.7J
Mrs. E. Johnson,
Warman, Sask..............0.50
Mrs, Anna Matthieson,
Saskatoon ................0.50
Mrs. Sigríður Johnson, Wpg.. .1.00
Gunnl. Jóhannsson, Wpg.......1.00
Mrs. Gunnl. Jóhannsson, Wpg. 1.00
Guðrún A. Jóhansson, Wpg...1.00
$10.50
Samtals .............$469.01
11. maí, 1935.
Með þökkum,
N. O. Bjcrring, féh.
pessi mynd v^r tekin í Westminster dómkirkjunni í London, þegar Dr. Hinsley var
gerður að erkibiskup í rómversk-kaþólsku kirkjunni.
Spengler
og ár örlaganna og byltinganna.
Margir spreyta sig á því að reyna
að skýra og skilja þá undarlegu og
ömurlegu krepputíma, sem gengið
hafa yfir heiminn undanfarið.
Menn hafa reynt að skýra þetta út
frá mörgum sjónarmiðum, einn
leggur áherslu á fjármál og at-
vinnumál, annar á hermál o. s. frv.
Meðal þeirra mörgu, sem um þetta
hafa skrifað, er Oswald Spengler,
hinn heimsfrægi hölfundur ritsins
um Hrun Vesturlanda. Síðasta
bók hans heitir “Jahre der Entsceid-
ung,” ár örlaganna, eða þau ár, sem
á veltur og reynir Spengler þar að
gera sögulega og menningarlega
grein fyrir ástandinu, eins og það
er nú og horfunum, á grundvelli
þeirrar söguskoðunar, sem hann
hefir áður lýst. Þessi nýja bók hans
er þó ekki sögurit í sama skilningi
og fyrnefnda ritið, hún er öllu
fremur baráttu og hvatningarit um
samtíma mál. Hún kom ekki út fyr
en Hitlersbykingin var um garð
gengin en mikill hluti hennar var
saminn áður.s Spengler segist að
vísu hafa þráð þessháttar þjóð-
ernisbyltingu, sem orðið hafi, og
honum hefir ávalt þótt lítið koma til
jafnaðarmanna og frjálslyndra, en
samt hefir hann sitthvað út á þjóð-
ernisjafnaðarmenn Hitlers að setja,
einkum þykir honum að þeir séu
hávaðamenn um hóf fram og hafi
enn sem kornið er, þegar bókin er
skrifuð, of litlum framkvæmdum af
að státa, sem séu nokkurs verulegs
virði, en þær framkvæmdir einar
þykja honum verulegar, sem koma
fram í utanríkismálum i auknum
löndum og efldum heimsáhrifum
Þjóðverja.
Ástandinu, eins og það er nú í
heiminum, lýsir Spengler svo, að
við lifum nú eldsumbrot, sem engin
dæmi séu til áður. Nóttin er komin
jörðin skelfur og hraunstraumarnir
veltast yfir heilar þjóðir—og svo
kalla menn á brunaliðið. Þessi sið-
asta athugasemd Spenglers um á-
köllun brunaliðsins til þess að
slökkva eldgosið er ein af mörgum
háðulegum athugasemdum hans um
vanmátt og hégómleika þeirra úr-
lausnarráðstafana, sem algengastar
séu í opinberu lífi nútímans, sem
honum þykir fylt af öfugstreymi,
lítilmensku og lágum hvötum. Nú-
tíminn er að hans áliti sá tími, sem
hefst um 1750 og verður lokið 1950.
Það, sem einkennir þennan tíma er
lýðræði og kvenréttindi, jafnaðar-
menska og auðmenska, þróun stór-
borganna, náttúruvísindin og tækn-
in. Og þetta er alt nokkurnvegin
jafn fánýtt, fyrirlitlegt og forgengi-
legt að áliti Spenglers og það má
farast og mun farast. Það ferst í
nýrri stórstyrjöld, sem er í aðsigi
og mun spretta upp úr þeirri við-
skiftastyrjöld, sem nú hefir um það
hil náð hámarki sínu.
Alvarlegasta viðfangsefni nútíni-
ans er það, að vera búinn undir
Mrs. Th. Jónasson
Að heiman ]>ú fórst yfir hafið blátt,
þig heillaði víðfeðma, ókunna ströndin,
ög sál þín hneig óskift i sólarátt,
þú sázt alt af framundan heiðrikju-löndin
og þess vegna kvaddir þú feðranna fold,
að framast og nema, að reisa og vinna,
.þú valdir þér akur, þar auðug var mold,
til uppfósturs hjartkæru blómanna þinna.
Þótt snemrna ]iú færir að heiman og heim,
og heimili bygðir þér ættjörðu f jærri,
þá dvaldi þinn hugur í heimsálfum tveim,
því heiminum öllum var eyjan þín stærri,
sem minti á bernskunnar hlíðasta vor,
á bænirnar fögru, sem mamma ])ér kendi,
á æskulífs drauma og elskunnar þor,
og útþrá, sem rétti þér gjöfula hendi.
Það vitna mun lengi þitt vel unna starf,
að veglegu hlutskifti aklrei ])á gleymdir,
að vaxta þinnn dýra og inndæla arf,—
hinn íslenzka fjársjóð, er sálin þín geymdi:
þitt hjartalag, blitt eins og hásumarnótt
* og hreint eins og drifhvíta íslenzka mjöllin,
sem rikti i skjóli við skerpu og þrótt,
og skapgerð, er minti á voldugu fjöllin.
Þú hygðir og elskaðir blómanna heim,
að blómunum reyndir þú ávalt að hlúa;
hin Ijóðelska sál þin var samgróin þeim,
þú sázt þar, hve gott er á lífið að trúa.
Þó blómanna veröld ei hreyki sér hátt,
og hljóðlega birti sitt dýrðlega veldi,
hún vitnar um eilífan upprisumátt,
að örfa hinn þreytta, er líður að kveldi.
Sá lifir i Guði, sem lifinu ann.
Þú last um hans elsku í blóminu smáa.
Hinn heilagi eldur í hjarta ])ér brann
við heimilis friðlýsta arinn þinn lága.
Hjá altari kirkjunnar kaust þú þér ung,
að krjúpa við Meistarans fótskör og biðja,
og aldrei varð hyrðin svo erfið né þung,
að ekki þú megnaðir veikan að styðja.
Og nú ertu farin að heiman og heim,
frá hjartkærum vinum til ástvina þinna.
Þú vissir, þú áttir í veröldum tveim,
þá vini, sem gott yrði aftur að finna.
Nú huggun er syrgjendum hamingjan þin,
þvi heimkoman verður þér dýrðlegur fengur.
Á eilifðar himni þér árroði skín,
og ekkert þar skyggir á sól þina lengur.
Þegar eg bjó í Selkirk árin 1923 og '24, þá kyntist eg Mrs.
Th. Jónasson og heimili hennar. Það var vinningur að kynnast
þessari góðu konu, þvi hún var ein af þeim vinum, sem gat látið
vináttuna endast. Bréfin, sem hún skrifaði mér, í hárri elli, eftir
að eg fór heirn til Islands, báru öll vott um heilbrigða sál, bjart-
sýni og óbilandi trú á sigur hins góða. Það var hugarhressandi
að lesa hennar góðu bréf, sem komu til manns eins og hlý vinar-
hönd alla leið yfir hafið mikla.
Mrs. Th. Jónasson mun hafa vænst þess, að eg mintist hennar
eitthvað, er hún hefði bústaðaskifti í síðasta sinn, og þetta hefir
stöðugt verið í huga mínum, en endalaus ferðalög og áhyggjur í
sambandi við þau hafa orsakað það, að mér hefir aldrei fundist
eg geta helgað huga minn þessu eins og eg hefði viljað. Og nú
verð eg að biðja anda hinnar látnu góðu konti fyrirgefningar á
drættinum og fátæklegri kveðju.
Blessuð veri minning hennar.
Akureyri, 17. marz, 1935.
Pctur Sigurðsson.
þessa miklu orrahríð úrslitanna. Sá
undirbúningur er í mörgu fólginn,
fyrst og fremst i því, að f jölga fólk-
inu. Hið rétta hugarfar í þessum
efnum er það, sem kemur fram í
orðum rússnesks bolsjevíka, sem
Spengler vitnar í: “Þær miljónir
manna, sem við höfum fórnað í
byltingunni gefur rússneska konan
okkur aftur á 10 árum.” Þær þjóð-
ir, sein svona hugsa, eru ósigrandi.
segir Spengler, og alvarlegasta
hættan, sem nú vofir yfir vestræn-
um þjóðum er sú, að þetta þrótt-
mikla hugarfar heilbrigðrar menn-
ingar er þorrið. Mannfækkunin er
meginmein Evrópu og veikleiki,
þegar þess er gætt, að hinar lituðu
andstöðuþjóðir Evrópu hafa mann-
fjölgunina mjög í heiðri og þeim
fjölgar mjög ört og hefir oft verið
á þetta bent. íbúunum i Indlandi
hefir fjölgað um 34 miljónir á ára-
tugnum 1921—1931 og mannfjölg-
un i Japan er 2 miljónir á ári og i
Rússlandi 4 miljónir, en Spengler
telur Rússa að mestu með Asíu,
þrátt fyrir allar viðsjár með Rúss-
um og Japönum. En átökin verða
milli vestrænna og austrænna afla
])egar til úrslitanna kemur.
Það er ýmislegt fleira en fólks-
fækkunin, sem bendir á þverrandi
vald og vilja vestrænna þjóða. Alt
hjalið um samúðina, alþjóðasam-
vinnuna og friðinn er að áliti
Spenglers vottur þess, að þjóðirnar
eru hættar að finna til sjálfra sín
sem drotnandi, sterkra yfirþjóða.
Það er vottur vanmættis þeirra til
þess að ráða og jafnvel til þess að
verjast. Þetta finna austrænu
þjóðirnar. Og það styrkir þér i
andstöðunni og styrkir þær í trúnni
á sigurinn yfir hinum fornu drotn-
urum sinum, ekki sízt }>egar þær,
eins og Japanar, hafa lært hernaðar-
tækni þeirra og önnur vísindi.
Heimurinn skelfur ekki aðeins af
rauðri byltingu eða hvítri, heldur
einnig af gulri eða svartri, því að
svarta hættan færist æ lengra inn í
lönd Evrópu, einkum í Frakklandi.
Ekki hefir Spengler heldur neina
trú á því, að lausn hinna svonefndu
þjóðfélagsmála geti bætt úr vand-
ræðunum og á jafnaðarstefnunni
hefir hann enga trú. Hún er að
hans áliti úrelt, eins og auðvalds-
stefnan, þær eru báðar sprottnar úr
sama sjónarmiðinu, báðar undir oki
sömu tilhneigingar. Jafnaðarmensk.
an er ekki annað en auðmenska lág-
stéittanna. Fjármálajafnaðarmenn
og hringahöfðingjar eins og Morgan
og Kreuger svara nákvæmlega til
múgleiðtoga verkalýðsflokkanna og
alþýðufulltrúa Rússlands — alt
kramarasálir með uppskafnings-
smekk.
Ein von er þó um það, að komast
út úr þessum ógöngum, segir Speng.
ler, hún er sú, að Þjóðverjar geti
stemt stigu fyrir hruninu og leitt
til sigurs nýja menningu. Þessi ár
eru örlagaár og úrslitastundir fyrir
Þjóðverja að því leyti, að nú eiga
þeir að gera út um það hver verður
hlutur þeirra í hinni nýju öld Cæs-
aranna. Það skiftir að vísu ekki
máli hver þjóðin er, sem leiðirlieim-
inn út úr hruninu og óskapnaði
styrjaldarinnar inn í þá friðarins
öld, sem á eftir kemur. Og hún
kemur vissulega.
—Lögrétta.
Ungmennaþingið í
Winnipeg
Næstu viku er ungmennaþingið,
og er það áskorun okkar allra að
hinir ungu noti sér tækifærið og
mæti okkur í Winnipeg 24. maí, n.k.
Eg vil endurtaka nokkuð af því
nauðsynlegasta viðvíkjandi þinginu
svo fulltrúar og félög láti ekki undir
höfuð leggjast að hjálpa og njóta.
Þingið hefst með skrásetning
fulltrúþ kl. 1 á föstudaginn 24.
maí. Fulltrúar ættu að vera minst
tveir frá hverjum félagsskap eða
einn fyrir hverja 25 meðlimi.
Y.P.S. Fyrstu lútersku kirkju í
Winnipeg býður þinginu og annast
um gesti þess meðan þeir sitja þing.
ið. Látið Ásgeir Bardal, 894 Sher-
brook St., Winnipeg, því vita sem
fyrst nöfn ykkar.
Þingið er mentandi mót, sem leit-
ast við að upplýsa og fræða, auk
þess að veita mönnum hugljúfar
samverustundir; og á því ætlum við
að ræða um að taka höndum sam-
an og starfa að hvers annars heill í
framtíðinni.
Eg veit að söfnuðir sem ekki hafa
Y.P.S. senda einnig fulltrúa svo að
hópurinn sé sem stærstur og gagn
þingsins mest.
Við skulum kynnast Victoriu-
daginn!
E. H. Páfnis.
Erá Vestmannaeyjum — í gær
var alment róið í Vestniannaeyjum
og afli ágætur á þá báta, sem komn-
ir voru að um kl. 16. Barnaskólinn
i Vestmannaeyjuni, sem hefir ekki
starfað um tima vegna inflúensu,
tók til starfa í fyrradag. Veikin
virðist heldur í rénun. — Mbl. 25.
april.