Lögberg - 02.08.1935, Síða 1

Lögberg - 02.08.1935, Síða 1
Útvarpið frá Islandi Eftirfarandi símskeyti barst Lög- bergi frá fitvarpsráði íslands si'ðast- liðinn laugardag: “Columbia Press, Sargent Ave., Winnipeg, Man. National Broad- casting endurvarpar íslands pró- gram Bandaríki Kanada fyrsta september 1501 New York tími.”— Samkvæmt þessu skeyti ætti skemtiskráin að heyrast kl. 2 sið- degis á sunnudaginn þann 1. sept- ember, og mun hún standa yfir í hálftíma, eins og getið hefir verið. Samkvæmt bréfi frá Valdimar ritstjóra Björnssyni meðteknu á þriðjudaginn, verður- þessari ís- lenzku skemtiskrá endurvarpað frá KSTP útvarpsstöSinni í St. Paul, Minn., á hinum tiltekna tíma. Þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir af hálfu Þjóðræknisfélagsins í þá átt, og einstakra manna, að fá Canadian Radio Commission til þess að annast um endurvarp þessarar skemtiskrár i Vestur-Canada, horfist enn dauf- Iega á um árangur. Æskilegt væri að almenningur athugaði vandlega radio-skemtiskrárnar í ensku blöðun- um í lok vikunnar, ef vera kynni að frekari upplýsingar þessu viðvíkj- andi yrði þar að finna. Auk þess ætti fólk að veita nána athygli aug- lýsingum þeim um skemtiskrár yfir leitt, er útvarpið flytur frá degi til dags. Þegar byrjað var að prenta blaðið, barst Þjóðræknisfélag- inu eftirfarandi símskeyti: “Arrangement not yet com- plete. Will wire when informa- tion definite.’’— Canadian Radio Commission. Fólk er ámint um að veita þessu athygli. Munu Itkur til að ýtvarpsnefndin beiti sér fyrir endurvarpið. R. W. EMMOND LATINN Síðastliðinn mánudag lézt að heimili sínu við Benito hér í fylk- inu, R. W. Emmond, fyrrum fylk- isþingmaður fyrir Swan River kjör. dæmið. Fylgdi hann Bracken-stjórn- inni að málum og stóð að jafnaði framarlega í félagsskap hinna sam- einuðu bænda í Manitoba. Mr. Em- mond var fæddur í Bruce héraði í Ohtario fylki, en fluttist hingað vestur með foreldrum sínum fyrir fimtiu og átta árum. FER HÖRÐUM ORÐUM UM BENNETT Blaðið Ottawa Journal, sem jafn. aðarlegast hefir fylgt afturhalds- flokknum skilyrðislaust að málum, veitist allmjög að Bennett forsætis- ráðgjafa fyrir að hafa veitt tveimur fyrverandi þingmönnum æðstu full- trúastöðu í stjórnarráðinu og geng- ið fram hjá þaulreyndum ágætis- mönnum, er beint tilkall hefðu átt til embættanna, sakir langrar og dyggilegrar þjónustu. SIÐUSTU FRÉTTIR Farþegaskipið “Keenora,” sem flytur fólk milli hafna á Winnipeg- vatni, tók niðri á þriðjudagsmorg- uninn á grynningum skamt frá Hnausa. Brátt bar flutningaskipið Montgomery þar að, og auðnaðist að koma “Keenora” aftur á flot, eftir f jóra klukkutíma eða svo. Um hádegisbil síðastliðinn þriðju- dag brann til kaldra kola Empress hótelið á Winnipeg Beach. Einn gestanna, Morris Abramovitch, sætti nokkrum meiðslum. Erindi fjallkonunnar (Miss Margrétar Olson) flutt á afmælishátíð Lötfbergs og Þingvalla bygða 26. júlí, 1935. Heiðraða samkoma, konur og menn, eldri sem yngri, af íslenzkum ættstofni, sem hér eru stödd í dag. Eg var fyrir fáum dögum beðin að koma fram hér sem fjallkona þessa dags og þakka eg þeim, sem sýndu mér þann heiður. En þegar eg fór að athuga hvað eg ætti að segja, fann eg að eg var óhæfileg til að leysa það verk af hendi, sérstaklega í þeim stíl, sem vanalegt er, nefni- lega sem persóna send frá íslandi sem heillavættur, með ávarp til íslands barn hér vestra. ímyndun- arafl mitt er ekki svo sterkt að mér sé þetta mögulegt eins ófullkomin og eg er í íslenzku máli og þekkingu. Eins og ykkur er flestum kunn- ugt hefi eg ekki ísland séð, en þar sem foreldrar mínir eru af íslenzk- um ættstofni (þó fædd séu í Can- ada) og eg hefi dvalið ýmist hjá þeim eða íslenzkum frumbyggjum mestan hluta æfinnar, hefi eg haft tækifæri og að nokkru kynst ís- lenzkum Háttum og hugsun. Það lítið, sem eg hefi heyrt eða lesið um minningarmót lík því sem hér fer fram í dag er þungamiðja umræð- anna um erfiðleika landnámsins og sigur á þrautunum. Lítið hefi eg heyrt talað um það i þessari bygð, enda má vera að fólk í öðrum bygð- um hafi mætt meiri erfiðleikum en hér. En það segir sig sjálft að fólk sem kann hvorki mál eða vinnuað- ferð, verður að beita einstakri at- orku til brautargengis í nýju landi. Því er haldið fram að landnáms- baráttan framleiði þann sterkasta á. huga, sem til er. Það er því min heitasta ósk á þessari stundu og æfinlega, að þessi landnámsáhugi haldi áfram og eflist i islenzkum kynstofni hér og að við eigum það enn framundan að vera taldir af þeim nýtasta þjóðflokki, andlega og verklega, sem hingað hefir flutt. 1 sambandi við þessa ósk mína vildi eg áminna unglinga á álíka aldri og undir álíka kringumstæðum sem eg er, að einn bezti vegurinn til að beita áhuga og atorku-arfi landnemanna, er í því að nota hvert tækifæri til að lcynna sér íslenzka tungu og fræði, svo að ef ykícur einu sinni á æfinni (eða einu sinni á 50 árum) gefst tækifæri til að koma fram fyrir ís- lendinga, að þig getið það óhikandi og aðstoðarlaust. Eins og eg gat um áður er eg ekki kunnug á íslandi, en eg veit að mér er óhætt að taka það upp á mig að flytja ykkur innilegar hamingju- óskir þaðan á þessum merkisdegi. Hinu er eg kunnug að héðan streym- ir stöðugt hlýtt hugarþel, sem sam- hryggist og gleðst með þeim í öllu. Ættu því bræðraböndin, sem hingað til hafa haldist við, ekki að mást, heldur miklu fremur að styrkjast. Margaret Olson. FUNDUR ÞJÓÐBANDA- LAGSINS. Þann 4. september næstkomandi heldur Þjóðbandal|gið fund í Geneva til þess að ráðgast um deilu- málin milli ítala og Ethiopiumanna. Horfist fremur þunglega á um sam. komulag. Síðustu fregnir láta þess getið, að Mussolini hafi lýst yfir því, að í því falli að Italir slaki til viðvíkjandi hernámi Ethiopiu, verði þeir knúðir til að fá sér nýlendur annarsstaðar. Ur borg og bygð Mr. Guðmundur Jónsson frá Húsey og frú hans komu norðan frá Flin Flon á þriðjudaginn þar sem þau hafa dvalið síðan í byrjun júní hjá tengdasyni sinum og dótt- ur, Mr. og Mrs. Stefán Hólm. Þau héldu af stað til heimilis síns við Vogar á miðvikudagsmorguninn. Frú Ingibjörg Johnson frá Húsa- wick, Man., er dvalið hefir hér í borginni um hríð, fór heim á sunnu. daginn ásamt börnum sínum tveim- ur. Með henni skruppu norður systur hennar þær frú Anna Olson og frú Ólöf Hermannson. Mr. John Reykjalín frá Selkirk, var staddur í borginni fyrri part yfirstandandi viku. Dr. Ó. Björnsson, Margrét dóttir hans og systir hans Mrs. P. S. Bar- dal, fóru suður til Grand Forks og íslenzku bygðanna í Pembinahéraði um síðustu helgi. Mr. og Mrs. Friðjón Gunnlaugs- son, ær heima eiga í grend við Van- couver, B. C., komu til borgarinnar á mánudaginn í heimsókn til móður og tengdamóður, Mrs. Agnesar Gunnlaugsson. Ráðgerðu þau að bregða sér öll til Brandon og ef til vill eitthvað víðar. Þau Gunnlaugs- son hjón verða um hálfsmánaðar- tima í ferðalaginu. Séra Egill H. Fáfnis frá Glen- boro, kom til borgarinnar síðastlið- ið sunnudagskvöld, ásamt frú sinni og tveimur sonum. Þess var getið i seinasta blaði, að séra Rúnólfur Marteinsson hefði brugðið sér í skemtiferð norður til Churchill. Ferð sú stóð yfir í 6 sól- arhringa, eða frá 16. til 22. þ. m. Veður var hið yndislegasta allan tímann, að þvi er séra Rúnólfi sagð- ist Jrá, og ferðin að öllu leyti óvið- jafnanlega hressandi og endurvekj- andi. Mrs. Halldór Thorolfsson, 728 Beverley St. hér í borginni fór vest- ur til Moose Jaw, Sask., á sunnu- daginn í heimsókn til systur sinnar, er þar á heima. FRED H. DAVIDSON fyrrum borgarstjóri og bæjarráðs- maður í Winnipeg, lézt á Almenna sjúkrahúsinu hér í borginni, síðast- liðinn þriðjudag, eftir stutta legu. í síðustu bæjarstjórnarkosningum hlaut hann kosningu sem fulltrúi í 2. kjördeild. Hann var fyrst kos- I inn í bæjarstjórn árið 1912. Enginn j sérlegur atkvæðamaður þótti hann í bæjarstjórn, en vinsæll var hann af almenningi. Viðbót við nýútkomnar Betel- fréttir. Heimsóknir heldi manna að Betel eru þessar: Séra Valdimar J. Eylands, sem heilsaði upp á heimili og vistfólk þ. 27. júní s. 1. Séra G. Guttormsson, frú hans og sumt af börnum þeirra, heimsóttu oss þ. 6. ágúst síðastliðinn. Þann 8. ágúst komu þau dr. Ófeigsson og frú hans. Hafði lækn_ irinn verið einn af ræðumönnum Is- lertdingadagsins á Hnausum þá sköriimu áður, og las hann fyrir gamla fólkið talsverðan slurk af ræðunni, auk þess sem hann hafði yfir f lokk af íslenzkum þulum. Þótti það hvorttveggja góð skemtan. Nú á sunnudaginn var, þ. 25. j ágúst, kom séra Carl J. Olson, fyrrum prestur á Gimli, og áður í stjórnarnefnd Betel. Prédikaði hann bæði að Betel og í kirkjunni, auk þess sem hann heilsaði upp á marga forna vini hér á heimilinu og eftir messuna í kirkjunni. (Fréttaritari Lögb.) Mr. Ragnar H. Ragnar, piano- kennari, sem dvalið hefir í Árborg í sumar, kom til bprgarinnar á mið- vikudaginn og byrjar kenslu á ný utn mánaðamótin. Mr. og Mrs. Sigurbjörn Sigur. jónsson komu til borgarinnar á mið- vikudagsmorguninn frá Brandon, þar sem þau hafa átt heima undan- farandi. Hafa þau ákveðið að setj- ast að í Winnipeg á ný. Staddir voru í borginni í lok fyrri viku, þeir F. O. Lyngdal kaupmað- ur á Gimli, John Thorsteinsson hótelstjóri og Thor Ellison fiski- veiðastjóri hjá Armstrong-Gimli Fisheries. Úrslit fylkiskosninganna í Alberta Hinn nýi Social Credit flokkur undir forustu Williams Aberharts, vinnur glæsilegan sigur. Við hinar almennu fylkiskosning. ar í Alberta, sem fram fóru þann 22. þ. m., urðu úrslitin þau, að hinn nýi Social Credit flokkur, er William Aberhart skólakennari í Calgary stofnaði fyrir nokkru, vann glæsi- legan sigur. Sextíu og þrir þing- menn eiga íæti á fylkisþingi. Af þeim fylgja 56 Mr. Aberhart að málum. Fimm liberalar, undir for. ustu Mr. Hawson náðu kosningu, og tveir íhaldsmenn. Hver einasti og einn frambjóðandi U. F. A. flokksins tapaði kosningu. Reid forsætisráðgjafi hefir beiðst lausn- ar fyrir ráðuneyti sitt, og hin nýja Aberhart-stjórn tekur við völdum þann 3. september næstkomandi. Tryggvi Þórhallsson látmn Hann andaðist kl. g/2 í gærmorgun. Nokkur siðustu ár æfi’sinnar, eða síðan 1927, hafði hann veriÖ haldinn af hættulegum innvortis sjúkleika, er öðru hverju magnaðist svo, að hann þá var rúmfastur um lengri eða skemri tíma. I siðustu viku hafði hann tekið sér ferð á hendur austur í Árness- og Rangárvallasýslur í erindum Búnaðarfélags Islands. I þeirri för kendi hann óvenjumikillar þreytu. Hann kom heim úr förinni á fimtu- dagsnótt. Næstu daga var hann á fótum og sinti störfum. En um kl. 4 síðdegis á sunnudag ágerðist lasleiki hans og fór hann þá í rúmið. Á mánudag var hann rúmfastur en leið eftir atvikum vel. En síðari hluta þriðjudags versnaði honum mjög. Bjarni Bjarnason læknir, sem áður hafði stundað hann í þessari legu, var skyndilega tilkvaddur, en hann lét þegar senda boð eftir Halldóri Hansen lækni. Var Tryggvi síðan um kvöldið fluttur á sjúkrahús Hvítabandsins við Skólavörðustíg. Um nóttina var gerð tilraun til að bjarga lífi hans með uppskurði. Auk hinna áðurtöldu lækna, voru læknarnir Guðmundur Gislason og Þórður Þórðarson viðstaddir. Læknisaðgerðinni var lokið kl. 4 um nóttina. Leiddi hún í ljós, að sjúkdómurinn hafði aukist meir en ætlað hafði verið. Tryggvi vaknaði eftir læknisaðgerðina og þá við bærilega liðan. En þegar kom fram á morguninn, tók að draga af honum og. mun hjartabilun hafa orsakað andlátið. Hann hafði fulla rænu til síðustu stundar. . Tryggvi Þórhallsson var fæddur í Reykjavík 9. iebrúar 1888. — Foreldrar hans voru, svo sem kunn. ugt er, frú Valgerður Jónsdóttir bónda Halldórssonar á Bjarnastöðr um í Bárðardal, fósturdóttir Tryggva Gunnarssonar, og Þórhall- ur Bjarnarson biskup. Tryggvi lauk stúdentsprófi tví- tugur að aldri vorið 1908, heim- spekisprófi við Hafnarháskóla 1909 og embættisprófi í guðfræði í Reykjavík vorið 1912 á fyrsta starfsári hins íslenzka háskóla. Árið eftir fluttist hann að Hesti i Borgarfirði og var prestur þar til 1917. Var hann þá um hrið settur kennari í guðfræði við háskólann. Haustið 1917 tók hann við rit- stjórn Tímans og var ritstjóri i 10 ár samfleytt eða fram í ágústmánuð 1927. I stjórn Búnaðarfélags Is- lands var hann kosinn árið 1924, en varð formaður félagsins 1925 og jafnan síðan. Árið 1923 var hann kosinn á þing-í Strandasýslu og endurkosinn þrisvar sinnum. Alls sat hann 10 ár á þingi. Þegar fyrstu þingár sín og raunar fyr var hann kosinn til margra ábyrgðarmikilla starfa. Var t. d. í milliþinganefndinni í kæli- skipsmálinu, gengisnefnd, endur. skoðandi Landsbankans o. fl. I fimm ár samfleytt var hann for- sætisráðherra íslands, eða frá þvi í ágústmánuði 1927 og þangað til í júnímánuði 1932. Var hann lengst af jafnframt atvinnumálaráðherra. Þó var hann einnig við fráfall Magnúsar Kristjánssonar síðara hluta árs 1928 um hríð settur fjár- málaráðherra og gegndi því starfi fram á þingtímann næsta ár, er Einar Árnason tók við. Vorið 1931, er breyting varð á ráðuneyti hans, var hann um skeið dóms- kirkju- og f jármálaráðherra en Sigurður Krist- insson var þá atvinnumálaráðherra. Þegar Tr. Þ., vorið 1932, lét af starfi sem forsætisráðherra, var hann skipaður aðalbankastjóri við Búnaðarbankann, og því starfi gegndi hann til dauðadags. Tvö síð- ustu árin var hann einnig formaður nefndar þeirrar, er annaðist kreppu- lánaveitingar til bænda. . Hann kvæntist árið 1913 Önnu Klemenzdóttur Jónssonar landritara, sem nú lifir hann ásamt sjö börn- um þeirra. Elzti sonurinn, Klem- enz, stundar nú hagfræðinám við Kaupmannahafnarháskóla, og í Kaupmannahöfn er nú einnig yngsti sonurinn, Björn. Hin fimm, Val- gerður, Þórhallur, Agnar, Þorbjörg og Anna Guðrún dvelja á heimili foreldra sinna. Um Tryggva Þórhallsson mun ekki verða ritað langt mál hér, og eru þó rík tilefni til, því að flestir þeirra manna', er að þessu blaði standa, höfðu af honum alveg sér- staka persónulega kynningu í löngu samstarfi að opinberum málum. En Tíminn, elzta blað Framsóknarfl., blaðið, sem naut starfskrafta hans í heilan áratug, mun innan skamms minnast hans itarlega. En ekki mun það ofmælt, að nafn Tr. Þ. sé nú í dag, eftir fráfall hans, á hvers manns vörum í landinu. Hann varð þjóðkunnur maður þegar af ritstjórn sinni. Og víða heyrð- ist þess vottur um bygðir landsins, hversu mælska hins unga flokks- foringja hefir hrifið hugi manna á fundum. Glæsilegt yfirbragð hans, rödd hans mikil og djarfmannleg, viðmót hans alúðlegt og hlýtt, vann honum hvarvetna aðdáendur. Mynd hans frá Þingvöllum 1930, er hann sem æðsti maður þjóðarinnar á- varpaði fyrstur þann stærsta mann- söfnuð, sem sézt hefir á íslandi, mun mörgum lengi minnisstæð. Tr. Þ. hafði góða hæfileika til fræðimensku. Hann fékkst mikið við ættvísi, er honum vanst tími til. Hann unni sögu þjóðarinnar og máli. Sem skólamaður og vísinda- maður myndi hann vafalaust hafa skipað sess eigi síður en í stjórn- málunum. En lífið skar svo úr, að þau urðu höfuðviðfangsefni hans. Og af vandalausu fólki eru það vafalaust samstarfsmenn hans að þeim viðfangsefnum, sem eiga um hann gleggstar og kærastar minn- ingar. Um hríð hafði að vísu nokk urn skugga á það samstarf dregið. Slíkt tjáir eigi að harma fremur en annað það, er verða skal. En öll- um þeim, sem með honum unnu, finst nú tómlegt eftir hann látinn. —N. dagbl. 1 ágúst. LÖGFRÆÐIN GAÞING I gær hófst hér í borginni árs- þing hins canadiska lögfræðingafé- lags við mikla aðsókn. Var þar saman komið margt víðfrægra lög- fræðinga úr öllum fylkjum þessa lands, sem og fulltrúar lögfræðinga. félags Bandaríkjanna. Forseti hins canadiska lögfræðingafélags er Isaac Pitblado, K.C. Ilon. MITCHELL HEPBURN KEMUR TIL WINNIPEG Hinn barðsnúni og framtakssami forsætisráðgjafi Ontariofylkis, Hon. Mitchell Hepburn, kemur hingað til borgarinnar um mánaðamótin og flytur ræðu í samkomuhöllinni, Winnipeg Auditorium, á þriðju- dagskvöldið þann 3. september næst. komandi kl. 8. Mr. Hepburn er einn af allra áhrifamestu forustumönn- um frjálslyndaflokksins, og um þess- ar mundir stendur um hann meiri styr en jafnvel nokkurn annan nú- lifandi stjórnmálamann í landinu. Mr. Hepburn er einungis 38 ára að aldri.

x

Lögberg

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.