Lögberg


Lögberg - 19.09.1935, Qupperneq 1

Lögberg - 19.09.1935, Qupperneq 1
PHONE 86 311 Scven Lines \oif a V,\\ Ví*5' c}ío'V°S For Better Dry Cleaning and Laundry 48. ÁRGANGUR WINNIPEG, MAN., FIMTUDAGINN 19. SMPTEMBER, 1935 NÚMER 38 Frú Sigríður Thorson látin Á fimtudaginn þann 12. yfirstandandi mánaðar, lézt hér í borginni frú Sigríður Thorson, ekkja merkismannsins Stefáns Thorson, sem látinn er fyrir skömmu. Frú SigríSur Þórarinsdóttir Thorson, var fædd í Ásakoti í ilræðratu ngusókn í Biskupstungum í Árnessýslu þann 29. dag aprilmánaðar árið 1852. Þeim hjónum, Stefáni og Sigríði varð sjö barna auðið; þrjú þeirra dóu á íslandi, einn sonur og tvær dætur. Sonur þeirra, Stefán Helgi, féll í heimsstyrjöldinni miklu, en þrir synir eru á lífi, þeir Jón, Joseph og Charles. Eru hinir tveir fyrnefndu búsettir i Winnipeg, en sá síðast- nefndi að Hollywood í Californíuriki. Þau Thorsons-hjón komu hingað til lands árið 1887 og dvöldu ýmist á Gimli, Blaine, Wash., eða í Winnipeg. Allir eru synir þeirra þjóð- kunnir hæfileikamenn. Frú Sigríður Thorson var hin mesta atgerfiskona og bar sinn háa aldur eins og hetja fram til þess síðasta; hún átti yfir að ráða heilsteyptum persónuleik, er vitnaði um þreklund og viljafestu; hún var djúpgáfuð kona með næma fegurðar- tilfinningu, og naut ósegjanlegs yndis af ljóðurn. Jarðarför frú Sigriðar fór fram frá kirkju lúterska safn- aðarins í Selkirk á laugardaginn var að viðstöddu miklu fjöl- menni ýmsra þjóðflokka. Séra Theodore B. Sigurðsson jarð- söng. Var kveðjuathöfnin að öllu hin virðulegasta og í fullu samræmi við litbrigðaríkan æfiferil hinnar látnu ágætiskonu. Ur borg og bygð TUTTUGU OG FIMM ÁRA AFMÆLI Síðastliðinn laugardag voru liðin tuttugu og fimm ár frá stofnun berklaveikishælisins að Ninette hér í fylkinu. Var þessa merka atburð- ar minst með virðulegu hátíðarhaldi um daginn, er fjöldi manns tók þátt í, þar á meðal Bracken forsætisráð- gjafi. Þó saga þessarar stofnunar sé ekki löng, er hún engu að síður óslitin þroska og sigurvinninga saga í baráttunnj gegn “hvita dauða.” Fyrir tuttugu og fimm árum nam tala þess fólks í Manitobafylki, er úr berklaveiki lézt, nálægt þúsundi á ári; nú er svo komið, að eigi deyja hér árlega af völdum þessa ægilega sjúkdóms yfir tvö hundrttð manns. Ibúar þessa fylkis atanda i djúpri þakkarskuld við þá, er að stofnun þessari standa og fórnað hafa henni lífi sínu og kröftum. Ber þar fyrst- atr og fremstan að telja yfirlækni stofnunarinnar, Dr. D. A. Stewart, er vakað hefir yfir velferð hennar eins og sendiboði mannúðarinnar allan þennan tíma. A FERÐ VESTANLANDS Rt. Hon. R. B. Bennett, forsætis. ráðgjafi, kom til borgarinnar á mánudagsmorguninn til þess að hefja kosningaleiðangur sinn urn Vesturlandið. Stóð hann hér við aðeins stutta stund. Allstór hópur af stuðningsmönnum forsætisráð- gjafans tók á móti honum á járn- brautarstöðinni. Mr. Bennett flutti sína fyrstu kosningaræðu vestan- lands i yfirstandandi kosningahríð í Regina sama kvöldið. ATHYGLISVERÐ UMMÆLI í háskólaritinu “Canadian Eco- nomic Service,” er MacMaster há- skólinn gefur út, birtist nýverið rit- gerð eftir prófessor H. Michel, hag_ fræðing; er þar meðal annars kom- ist þannig að orði: “Til þess að verða þess megnug- ir, að borga fyrir hinar fyrirhuguðu eða umræddu breytingar Mr. Ben- netts á hinu kapítalistiska fyrir- komulagi, þá ber okkur brýn nauð- syn til þess að auka tekjurnar; slíkt má þó því aðeins verða, að innan- lands og utanlands viðskiftin aukist til muna, þó fátt bendi í þá átt sem stendur. Slík endurvakning á sviði alþjóða viðskiftanna er óhugsanleg fyr en jafnaðir hafa verið við jörðu þeir tollmúrar, sem slíkt útiloka. Engin þjóð, að Bandaríkjunum undanteknum, hefir verið sárara leikin en canadiska þjóðin í þessu til. liti; þarafleiðandi ætti hún að ganga á undan í því að ryðja öllum við- skiftahömlum úr vegi. Kostir frjálsrar verzlunar eða tollverndar, koma á þessu stigi málsins ekki til greina, heldur snýst alt um það, að liðka tafarlaust svo til, að vér fáum endurheimt það, sem vér þegar höf. um tapað á sviði innanlands og er- lendra viðskifta. Mr. Bennett tal- ar um þessar mundir margt og mik. ið um nýja markaði, eða ný sölu- sambönd fyrir afurðir vorar. Toll- stefnu hans verður um kent, að vér nokkru sinni töpuðum haldi á utan- lands markaði vorum eða sölusam- böndum.” KREFST ÞJÓÐNÝTINGAR A RÖNKUM Ársþing Trades and Labor Coun- cil, var sett í Halifax þann 16. þ. m.; meðal margra mála, er á dag- skrá voru, komu bankamálin þar öðrum fremur til ítarlegrar umræðu. Afgreiddi þingið að lokum í einu hljóði ályktan þess efnis, að undinn skuli að því bráður bugur, að allir bankar hér í landi verði þjóðnýttir. ÞINGMENSKU FRAMBOÐ Á fundi, sem haldinn var á Marl- borough hótelinu hér i borginni síð- astliðið þriðjudagskvöld, var W. W. Kennedy, K. C., útnefndur á ný sem þingmannsefni afturhaldsflokksins í Mið-Winnipeg kjördæminu hinu syðra. GULLBRÚÐKAUP Þau Mr. og Mrs. J. H. Paulson frá Rivers, Man., hafa dvalið um hríð í Flin Flon í heimsókn til dótt- ur sinnar, Mrs. Jack Johnson, að 78 Hill Street þar í bænum. Þann 10. þ. m., áttu þau Mr. og Mrs. Paul- son gullbrúðkaup, og var þess minst með samsæti á heimili áðurgreindr- ar dóttur þeirra. Meðal gesta voru Mn. og Mrs. Len Barnes, Mr. og Mrs. B. Grimmelt og Mr. og Mrs. O. Smith. Voru gullbrúðhjónin sæmd peninga og blómagjöfum frá börnum þeirra. Mr. og Mrs. J' H. Paulson voru gefin saman í hjónaband í Winni- peg þann 10. séptember árið 1885 af dr. Jóni Bjarnasyni. Mr. Paul- son kom til þessa lands 1874, en kona hans tveimur árum síðar. Þau Mr. og Mrs. Paulson áttu heima í W innipeg fram að árinu 1914, er þau fluttust til Lampman, Sask. Síðan hafa þau dvalið hjá dóttur sinni að Rivers, Man. Starfaði Mr. Paulson um langt áraskeið hjá C.N.R. járnbrautarfélaginu. Börn þeirra Paulson hjóna eru W. J. Paulson að Moosehorn, S. S. Paul- son í Calgary, Mrs. P. J. Sproule að Rivers og Mrs. Jack Johnson í Flin Flon. Barnabörn þeirra eru tíu að tölu. FRA' ÞJÓÐBANDALAGINU Símað er frá Geneva þann 17. þ. m., að fimm stórveldi séu þvi með- mælt, að Þjóðbandalagið beiti sér fyrir það að halda uppi fullkom- inni löggæzlu í Ethiopíu, með það fyrir augum, að tryggja í orði og anda framkvæmd núgildandi sátt- rnála og samninga þjóðarinnar við önnur riki. Hefir nefnd manna komist að þeirri niðurstöðu, að stjórn Ethiopíu sé í ýmsum atriðum brotleg um rof samninga og hafi ekki fullnægt öllum sínum skyldum í bandalaginu. Ekki eru þó brot þessi talin það stórvægileg, að þau geti á nokkurn hátt réttlætt stríð. í því falli að Mussolini þverskallist við sáttatilraunum Þjóðbandalagsins, er fullyrt, að þeim ákvæðum sáttmála þess, er heimilar viðskiftabann, verði tafarlaust beitt. FRIÐARHUGSJÓN Eftir frú Kristínu fl. Johnson, Blaine, Wash. Guð, vor Guð, vér biðjum : Gef oss miskunn þína, Lát þú lifs í húmi Ljós þitt öllum skína, Fagran snert að fáum Faldinn klæða þinna, Syndar eðli að sigra, Sundrung yfir vinna. Guð, vor Guð, vér biðjum: Gef oss friðaranda, Lát þú aldna og unga Orð og hugsun vanda; Lát þú ódygð alla Eyðilegging hljóta; Leið þú lýð og þjóðir Lífs til yfirbóta. Lát þú ávöxt andans 1 allra sálum dafna, Friðarhugsjón fagra Friðarrofi hafna; Hreinu lífi að lifa Lýðir iðka megi, Þinni forsjá fylgja Framtíðar á vegi. Lát þú ljós þíns anda Lýsa og fræða alla, Einn að annan styðji Enginn þurfi að falla; Lát þú kærleikskraftinn Konungdóm hér vinna; Allir minni máttar Megi viðreisn finna. Ríki þins friðar fái Ful^komin stjórnarvöld, Áhrif þess að svo nái . Út yfir tíinans kvöld. Réttlætið vernd hér vinni, Vísdóms og kærleikssól, Allir menn að svo finni í hennar geislum skjól. MR. KING HEFIR ORÐIÐ Síðastliðið þriðjudagskvöld flutti Rt. Hon. W. L. Mackenzie King útvarpsræðu, sem vakið hefir mikla athygli; var hún þrungin af eldmóði og hetjublæ. Kvað Mr. King síð- ustu aðfarir Mr. Bennetts bera á sér öll rherki ósigurs og örvænting- ar; vígamóðurinn væri farinn að renna af honum; nú héldi hann því ekki lengur fram að núverandi kröggur væri aðeins stundar truflun á viðskiftasviðinu, heldur væri alt að lenda i grænan sjó, og það til frambúðar; í stað þess að binda enda á atvinnuleysið, eins og hann hátíðlega hefði lofað að gera, virt- ist hann nú ætla að binda enda á vinnuna. Lagði Mr. King ítrekaða áherzlu á það, að hin hagsmunatega innilokunarstefna Mr. Bennetts, hefði komið hundruðum þúsunda kanadiskra borgara á vonarvöl, og myndi fleiri á eftir fara nema því aðeins, að kjósendur tæki alvarlega í taumana þann 14. október og sýndn afturhaldinu í tvo heimana. FRA FUNDUM MR. THORSONS Á miðvikudaginn þann 11. þ. m., hélt Joseph T. Thorson, K.C., fram- bjóðandi frjálslynda flokksins í Sel. kirk kjördæminu, stjórnmálafund að Lundar, við ágæta aðsókn, að því er blaðinu Winnipeg Free Press segist frá. Rakti Mr. Thorson all- ítarlega gang þeirra megin mála, er einkum og sérílagi yrði barist um í kosningunum, og leiddi að því gild rök, hver nauðsyn bæri til, vegna velferðar hinnar canadisku þjóðar, að kjósendur skipuðu sér undir merki frjálslynda flokksins. Þjóðin væri fyrir löngu orðin sárþreytt á innantómum loforðum, en krefðist í þeirra stað athafna, sem leitt gæti til úrlausnar á hinum helztu vanda- málum. Kjósendum stæði vafa- laust i fersku minni hvað orðið hefði um efndirnar á loforðum Mr. Bennetts viðvikjandi því, að binda enda á atvinnuleysið og þar fram eftir götunum; itrekuð loforð hans í sömu átt, yrði undir engum kring. umstæðum tekin alvarlega, og hið sama mætti yfirleitt um allar hans j umbótaprédikanir segja. Stevens | væri aðeins grímuklæddur aftur- haldsmaður, er fram til skamms tima hefði ávalt dansað eftir pipu Mr. Bennetts. Auk Mr. Thorsons tók til máls á fundi þessum Mr. Harry Leader, frambjóðandi frjálslynda flokksins í Portage kjördæminu. Mr. Skúli Sigfússon, þingmaður St. George kjördæmis i fylkisþing- inu, hafði fundarstjórn með hönd- um. Síðastliðið laugardagskvöld, var samkvæmt fundarboði, haldinn stjórnmálafundur í íslenzka sam- komuhúsinu í Selkirk. Voru þeir auglýstir sem ræðumenn, frambjóð- andi frjálslynda flokksins í Selkirk kjördæmi, J. T. Thorson, K.C., og Dr. Sig. Júl. Jóhannesson. Fundur þessi var'eingöngu ætlaður fyrir fs. lendinga og var vel sóttur. Stjórn fundarins hafði með höndum, Kristján S. Pálsson skáld. Skýrði forseti frá forföllum Mr. Thorsons, er stöfuðu frá því, að hann væri ný- búinn að missa móður sína, og að útför hennar hefði farið fram þá um daginn. Dr. Jóhannesson flutti eitthvað um hálftíma ræðu.v er fundarmenn virtust hafa hina mestu ánægju af. Dr. Jóhannesson er sjaldan myrkur í máli, og það var hann heldur ekki í þetta sinn; fletti hann óþyrmilega ofan af Mr. Bennett og fylgifisk- um hans, og spáði frjálslynda flokknum eftirminnilegum sigri frá hafi til hafs. Ritstjóri þessa blaðs var mættur á fundi þessum, og las upp erindi það um stjórnmál, sem prentað er á ötSrum stað hér í blaðinu, en Mr. Thorson hafði sjátfur upprunalega ætlað sér að flytja við þetta tæki- færi. t fundarlok ávarpaði Hillhouse lögmaður, sem jafnframt er forseti félagsskapar frjálslyndra manna í kjördæminu, fundarmenn nokkrum velvöldum orðúm, og brýndi fyrir þeim nauðsynina á því, að fylkja .sér sem einn maður um Mr. Thor sön í kosningunum. FRAMROÐ TIL IIERÞJÓNUSTU Símað er frá Addis Ababa þann 16. þ. m., að yfir 8,000 manns hafi boðið sig fram til herþjónustu á hlið Ethiópíumanna. Að framboði þessu eru sagðir að standa 5,000 trar og 3,000 Frakkar, auk nokk- urra Breta, þjóðverja, Brazilíu- manna og Rússa. Þeir séra E. H. Fáfnis og Mr. G. J. Oleson frá Glenboro, voru staddir í borginni á fimtudaginn í fyrri viku. Nýkomnir eru úr íslandsför þeir bræður, séra Albert E. Kristjáns- son og Hannes kaupmaður Krist- jánsson. Mrs. A. Brydges frá Selkirk var stödd í borginni á mánudaginn. Junior Ladies Aid Fyrsta lúterska safnaðar, heldur spiþifund (bridge) í Goodtemplarahúsinu á miðviku- dagskvöldið þann 2. október næst- komandi. Mrs. Ovida Swainson og dóttir hennar, Miss Ida Swainson, eru ný. komnar til borgarinnar vestan frá Calgary, þar sem þær hafa átt heima um hríð. Starfaði Miss Swainson þar vestra hjá Hudsons Bay verzl- unarfélaginu; hefir hún verið all- lengi í þjónustu4>ess félags, en sezt nú að hér í borg á ný samkvæmt ráðstöfunum þess. Eru þær mæðg- ur vinsælar, og fagna þessvegna margir komu þeirra hingað. I Mr. og Mrs. Fred Bjarnason komu heim seinni part fyrri viku úr hálfsmánaðar ferðalagi vestur til Jasper og annara skemtistaða. Mrs. Laura Goodman-Salverson, skáldkona, dvelur í borginni um þessar mundir. Mr. Eiríkur Halldórsson frá Dauphin og Mr. Erlendur Johnson frá Bay End, komu til borgarinnar í byrjun vikunnar. Mr. Johnson hef. ir unnið að plastringu í Dauphin í sumar. Young People’s Club Fyrsta lút- erska safnaðar, heldur fund á föstu. dagskvöldið kemur, kl. 8.15. Frá Jóns Bjarnasonar skóla Skrásetning nemenda fór fram í Jóns Bjarnasonar skóla á mánudag. inn i þessari viku, en skólinn var settur á þriðjudagsmorgun. Byrjað var með stuttri guðsþjónustu, sem skólastjóri, séra Rúnólfur Marleins- son, stýrði. Svo kynti hann hinum nýju nemendum kennarana. Einn kennarinn er nýr, Mr. Roy H. Ruth frá Cypress River. Er hann fyr- verandi nemandi skólans, en hefir siðan útskrifast bæði af Manitoba- háskóla og kennaraskóla fylkisins. Ræður fluttu séra Philip Pétursson, Arinbjörn Bardal, Dr. Jón Stefáns- son og Mrs. Marteinsson. Aðsókn er með allra bezta móti í 12. bekk, en ^kki eins góð í hinum bekkjun- um. Alls hafa nú innritast 60 nem- cndur. Þann 22. júlí s.l. var þeim sæmd- arhjónum, capt. Ásvalda Sigurðssyni og Önnu Friðbjörnsdóttur, haldið veglegt samsæti í tilefni af gullbrúð. kaupi þeirra, að Warrenton í Oregon-ríki. Var þar um mikinn mannfagnað að ræða, er bar marg- þættan vott um virðing þá .og vin- sældir, er þessi öldnu og ágætu hjón hvarvetna njóta. Bárust þeim árn- aðarskeyti víðsvegar að. Voru þau hjón í frumbyggjahópi íslenzku ný- lendunnar i North Dakota, og voru með þeim fyrstu, er gefin voru saman í hjónaband í kirkju Víkur- safnaðar. Frú Margrét Sveinsson frá Gitnli var skorin upp á Almenna sjúkra- húsinu hér í borginni síðastliðinn laugardag. Dóttir hennjir, Sigríður, kom með henni upp eftir. Mr. Sigurður Björnsson, skrif- stofumaður í þjónustu Winnipeg- borgar, kom á miðvikudaginn var vestan frá Moose Jaw, Sask., þar sem hann hafði dvalið á aðra viku í gistivináttu sonar síns og tengda- dóttur, Mr. og Mrs. B. A. Björn- son. Mr. Arni G. Eggertson lögmaður frá Wynyard, Sask., var staddur í borginni í fyrri viku. Heimilisfang séra Carls J. Olson er að 246 Arlington Street. Sími 27 327. Dr. A. B. Ingimundson tannlækn- ir, verður staddur í Riverton þriðju- daginn þann 24. þ. m. Séra Jóhann Fredericksson frá Lundar, kom til borgarinnar á mánudaginn á leið til Upham, N.D. Séra Bjarni A. Bjarnason fermdi eftirfylgjandi ungmenni þ. 8 sept. s.l., í kirkju Melanktons safnaðar, Upham, N. Dak.— Kristinn Allan Ólafsson, Law- rence Sigþór Ólafsson, Anna Guð- ríður Swearson, Gunnar Howard Swearson, William Clarence Swear. son, Frederick Westford, Gordon Francis Westford, Jón Arason Westford. Dr. Tweed verður í Árborg á fimtudaginn þann 26. þ. m. Lárus Árnason, blindur vistmað- ur á elliheimilinu Betel, átti 80 ára afmæli sunnudaginn þann 15. þ. m. Blaðið Winnipeg Free Press flutti mynd af Lárusi daginn áður, í til- efni af afmæli hans. Lárus er mesti skýrleiksmaður og nýtur enn beztu heilsu. Mr. Árni Brandson frá Hnausa, Man., kom til borgarinnar á mánu- daginn með konu sina til lækninga. Miss Stefanía Björnson, dóttir Mr. og Mrs. Gunnar B. Björnson, Minneapolis, Minn., dvelur í borg- inni um þessar mundir í heimsókn til ættingja og vina. Er hún nem- andi við háskóla Minnesotaríkis. Heimkomuhátíð sú, sem kvenfé- lög fyrsta lúterska safnaðar efndu til í kirkjunni á þriðjudagskvöldið, var ágætlega sótt. Dr. B. J. Brand- son stýrði samkomunni. Þau Páll bæjarfulltrýi Bardal og frú Sigríður Olson, stjórnuðu söng og hljóðfæra. slætti, en einu ræðuna, sem haldin var, flutti-prestur safnaðarins, Dr. B. B. Jónsson. Veitingar voru hin- ar beztu og skemti fólk sér við rabb meðan þeirra var neytt. GJAFIR TIL BETEL Soffonias Thorkelson, Winnipeg, “Wood-Wool” (efni í fóður undir þak hússins) virt á $225.00. Fyrir þessa höfðinglegu gjöf þakkar stjórnarnefndin hjartanlega. /. /. Swanson, féhirðir. Mr. Gunnlaugur Thorvarðson, verzlunarmaður frá Akra, N. Dak., kom til borgarinnar á sunnudaginn, og dvaldi hér fram á mánudag. Með honutn fór suður til vetrar- dvalar föðurbróðir hans, Mr. J. J. Thorvarðson. Mr. B. J. Lifman, sveitaroddviti i Bifröst, leit inn á skrifstofu blaðs- ins á mánudaginn. Varðist h'ann allra tiðinda að öðru leyti en því, að svo miklar rigningar liefðu dunið yfir Árborgarhérað um siðustu helgi, að bilvegir væri illfærir.

x

Lögberg

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.