Lögberg - 17.10.1935, Síða 1
PHONE 86 311
Seven Lines
U'«"
fo'
For
Better
Dry Cleaning
and Laundry
48. ARGANGUR
WINNIPEG, MAN., FIMTUDAGINN 17. OKTÓBER, 1935.
NÚMER 42
CANADA HEFIR HRIST AF SÉR FIMM ARA KÚGUNAR HLEKKI
Orslit kosninga í
Manitoba
Brandon— D. W. Bteaubier, íhalds.
maður, endurkosinn
Churchill—Hon. I. A. Crerar, lib.
Dauphin—W. J. Ward, liberal
Lisgar—Howard Winkler, liberal
Macdonald—W. G. Weir, liberal
Marquette—J. Allison Glen, liberal
Neeþawa—T. D. McKenzie, liberal
Portage—Harry Leader, liberal
Provencher—A. L. Beaubien, liberal
St. Boniface—Dr. J. P. Howden,
liberal
Selkirk—J. T. Thorson, liberal
Souris—Errick W. Wilis, íhalds-
mac5ur«(me8 eins atkvæðis meiri
hluta)
Springfield—John M. Turner, lib.
Winnipeg South—Leslie A. Mutch,
liberal
Winnipeg South Centre — Ralph
Maybank, liberal
Winnipeg North Centre—J. S.
Woodsworth, C.C.F.
Winnipeg North—A. A. Heaps,
C.C.F.
SASKATCHEWAN
sendir 15 liberal Un?menn tú Ot-
tawa; þar á meÖal Rt. Hon. W. L.
Mackenzie King, Mr. Motherwell í
Melville, Dr. Fleming í Humboldt
og McMillan í Mackenzie kjördæmi.
FRA ALBERTA
Úrslit kosninga í Alberta fylki
urSu þau, aS Social Credit vann öll
þingsætin að undanteknum tveim-
ur, Calgary West og West Edmon-
ton.
STRANDFYLKIN
EINHUGA
Nova Scotia og Prince Edward
Island senda einungis liberala á
þing og New Brunswick alla nema
einn. .
C.C.F. FLOKKURINN
vinnur 8 þingsæti í nýafstöðnum
kosningum til sambandsþings.
FRÁ BRITISH COLUMBIA
Kosningaúrslit í British Colum-
bia fylki urÖu þau aÖ frjálslyndi
flokkurinn vann 4 þingsæti, íhalds-
flokkurinn 5, C.C.F. 4 og Mr.
Stevens 1, eÖa meÖ öörum orðum
sjálfan sig.
FRÁ-ONTARIO OG QUEBEC
í Quebec fylki vann frjálslyndi
flokkurinn 60 þingsæti og 55 í
Ontario. Þau tíðindi gerðust í
Quebec. aÖ Henri Bourassa, stjórn.
málamaðurinn og rithöfundurinn
nafnkunni, er setiÖ hefir á sam-
bandsþingi síðan 1895, tapaði kosn-
ingu.
LESLIE A. MUTCH,
þingmaður fyrir Suður-Winnipeg.
J. T. THORSON, K.C.
þingmaður Selkirk-kjördæmis.
RALPH MAYBANK,
þingmaður Mið-Winnipeg kjör-
dæmisins syðra.
Rt. Hon. W. L. MACKENZIE KING,
leiðtogi frjálslynda flokksins og næstii forsætisráðgjaf.i
NOREGUR ÆTLAR AÐ GEFA
ISLANDI
minnisinerki af Snorra Sturlusyni.
Snorranefndin svonefnda í Nor-
egi hefir ákveðið að hefja fjársöfn-
un um allan Noreg í því skyni að
gefa íslandi minnismerki um Snorra
Sturluson.
Minnismerkið á að vera þakk-
lætisvottur hinnar norsku þjóðar
fyrir þann skerf, sem Snorri lagði
til norrænnar söguritunar.
Nefndin hefir ákveðið að bjóða
út til samkepni meðal myndhöggv-
ara um smíði þessa minnismerkis.
Nefndin gerir sér von um að unt
verði að reisa minnismerkið í Reyk.
holti 23. sept. 1941.
—Mbl. 24. sept.
W. G. WEIR,
þingmaður Macdonald kjördænús.
HOWARD WINKLER,
þingmaður Lisgar kjördæmisins.
A. L. BEAUBIEN,
þingmaður Provencher kjördæmis.
McKenzie King hefir leitt
þjóðina út úr eyðimörkinni
Sigurför fr.jálslyndu stefnunnar! Frjálslyndi flokkurinn
vinnur 170 þingsæti, auk fjögra óháðra liberala og tveggja
Liberal-Progressives. Tólf ráðgjafar Mr. Bennetts falía
í val, þó sjálfur sé hann kosinn í Calgary West. Prince
Albert kýs Mackenzie King með miklu afli atkvæða.
Tborson vinnur svo eftirminnilegan sigur í Selkirk, að
allir keppinautar hans tapa tryggingarfé sínu. Hin nýja
stjórn Mackenzie King tekur sennilega við völdum innan
tíu daga. Foringi Stevens-flokksins fær aðeins komið
sjálfum sér á þing.
Jakobína Johnson
skáldkona.
Upplestur og kveðjusamsæti.
Frú Jakobína Johnson las upp í
Iðnó s.l. fimtudag. Húsið var troð-
fult áheyrenda og var skáldkonunni
tekið með miklum fögnuði.
Á laugardaginn var skáldkonunni
haldið fjölment kveðjusamsæti í
Oddfellow-húsinu.
Vilhjálmur Þ. Gíslason skólastjóri
stýrði hófinu og bauð gesti vel-
komna.
Aðalræðuna flutti Guðmundur
Finnbogason landsbókavörður. Auk
hans töluðu Benedikt Sveinsson,
Indriði Einarsson, séra Friðrik
Friðriksson, Húsavík, frú Ragn-
hildr Pétursdóttir, frú Briet Bjarn-
héðinsdóttir, frú Laufey Vilhjálms-
dóttir, Pétur Halldórsson borgar-
stjóri o. fl.
Jón Magnússon flutti kvæði Matt-
híasar Jochumssonar til Vestur-ls-
lendinga, er hann orti í Ameríkuför-
inni 1895. Ennfremur flutti Kjart-
an Ólafsson kvæði er hann hafði ort
til skáldkonunnar.
Klukkan 12:30 risu menn frá
borðum og skemtu sér síðan við
dans. Hófið fór hið bezta fram.
í kvöld heldur félag Vestur-ís-
lendinga kveðju fyrir skáldkonuna í
Stúdentagarðinum. — Mbl. 24. sept.
TVÆR KONUR KOSNAR A
SAMBANDSÞING
I nýafstöðnum kosningum til
sambandsþings gengu tvær konur
sigrandi af hólmi. Miss Agnes Mac.
Phail var endurkosin í South East
Gray kjördæminu, en Mrs. George
Black, kona Black, fyrverandi for-
seta neðri málstofunnar, náði kosn-
ingu í Yukon af hálfu íhaldsflokks-
ins.
AFRIKUSTRIÐIÐ
Styrjöldin milli ítala og Ethiópíu-
manna færist í aukana með hverjum
deginum sem liður, með miklu
mannfalli á báðar hliðar. Sam-
kvæmt síðustu fregnum hafa Italir
náð hinni helgu borg, Askum á vald
sitt, eftir harða og mannskæða
orustu. Hefir konungur Ethiópíu
lýst yfir því, að þjóð s>n eigi í heil-
ögu stríði, og skorar jafnframt á
þjóðina, að ganga eigi til hvíldar fyr
en hin helgu vé hafi verið endur-
numin.
Mussolini býður öllum byrginn,
og tjáist hvorki munu blikna né
blána þó til allsherjar stríðs kæmi í
Evrópu. Kveðst hann hafa slíkan
málstað að verja, að ósigur komi
ekki til mála.
Þjóðbandalagið situr sýknt og
heilagt á rökstólupi, og nú hafa 50
þjóðir fallist á að slíta öllum verzl-
unar og fjármálasamböndum við
Italiu.
Frá Islandi
Stldveiðar Lettlendinga við ísland.
Samkvæmt símskeyti frá Riga,
sem birt er i Morning Post London,
hafa síldveiðar Lettlendinga við ís-
land gersamlega brugðist í sumar.
Segir, að þeir hafi aflað aðeins 99
tn., en síldarafli þeirra við Island
undanfarin ár hafi numið 4,000 tn.
á ári. I skeytinu, sem er dags. 9.
sept., segir ennfremur: “Lettlenskir
fiskimenn segja, að sænskir eist-
lenzkir og finskir síldveiðimenn hafi
af svipuðum árangri að segja, og
segja að óhagstæðir straumar og ná-
lægð hafíss hafi bakað þeim erfið-
leika. Eistlendingar höfðu 8 skip
og nam afli þeirra aðeins 8,000 tn.,
en þeir höíím ráðgert að fá að
minsta kosti 15,000. — Af þessum
8,000 tn. hafa 2,000 þegar verið
seldar í Svíþjóð. Af þessu mun
leiða, að horfurnar batna fyrir Yar-
mouthsíld og skozka síld í Eystra-
saltshöfnum. Síldarinnflytjendur í
Riga segja að Lettlendingar geti án
efa tekið við 63,000 tn. af skozkri
síld í ár, og mun lettlenska stjómin
veita innflutningsleyfi til þess.
Mbl. 25. sept.
Góð síldveiði í Keflavík.
Eftir langa óveðurstíð lögðu
margir reknetabátar af stað á veið-
ar í gærkvöldi.ó Þessir bátar hafa
i dg komið með síld til Keflavíkur:
Bragi með 53 tunnur, Öðlingur með
43, Kári með 22, Huginn fyrsti með
73, Huginn annar með 62, Stakkur
með 38, Fylkir með 68, Fram með
14, Arinbjörn með 51, Bjarni Ól-
afsson með 56, Freyja með 72, og
Jón Þorláksson með 74 tunnur.
Þegar fréttaritari talaði við Frétta-
stofuna kl. 17.00 var vélbáturinn
Árni Árnason að koma að hafskipa.
öry&gfj111111! með 220 tunnur síldar.
Skipstjórinn Kristinn Árnason segir
svo fár að hann hafi lagt net sín í
gærkvöldi, 20 sjómílur í vestur af
Sandgerði og hafi verið þar mikil
síldaráta og mikið af fugli, og sú
mikla smokkganga, sem verið hafi
fyrir nokkrum dögum muni vera
gengin hjá. I dag er bezta veður og
allmargir reknetabátar farnir út til
veiða. —Mbl. 22. sept.
Frá Akranesi. I gær komu þessir
bátar með síld til Akraness: Vík-
ingur með 60 tn., Ver með 36 tn.,
Valur með 48 tn., Egill með 20 tn.,
Skímir með 12 tn., Höfrungur með
9 tn., Ármann með 14 tn„ Hrefna
með 35 tn., Rjúpa með 30 tn. og
Alda með 48 tn.—Kl. 18.30 var ver.
ið að losa línuveiðarann Jarlinn frá
Akureyri. Áætlað var að aflinn væri
180—200 tunnur. — N. dagbl. 26.
sept.