Lögberg - 24.10.1935, Blaðsíða 8
8
LÖGBERG, FIMTUDAGINN 24. OKTÓBER, 1935.
Ur borg og bygð
Heklufundur í kvöld (fimtudag).
Mr. B. S. Thorvarðsson, kaup_ I
maður aÖ Akra, N. Dak., kom til I
borgarinnar á mánudaginn og hélt
heimleiðis daginn eftir.
Mr. Hjörtur Hjaltalín frá Moun_
tain, N. Dak., kom til borgarinnar á
mánudaginn.
Frú Soffía Bíldfell kom til borg-
arinnar siðastliÖinn laugardag eftir
alllanga dvöl hjá syni sinum Dr. J.
A. Bíldfell aÖ Borden, Sask.
Mr. Th. Thorsteinsson bæjarfull-
trúj frá Selkirk var staddur í borg-
inni siÖastliðinn laugardag.
Frú Anna Vatnsdal frá Portland,
Oregon, sem verið hefir á ferðalagi
um hríð meðal íslendinga í North
Dakota og i Vatnabygðunum i Sas-
katchewan, lagði af stað heimleiðis
héðan úr borginni á þriðjudaginn.
Mrs. Björn A. Björnson frá
Moose Jaw, Sask., kom til borgar-
innar í lok fyrri viku i heimsókn til
tengdaforeldra sinna, Mr. og Mrs.
Sig. Björnsson að 679 Beverley St.
Mr. Thorleifur Kjartanson og
Mrs. B. G. Kjartanson frá Ama-
ranth, Man., voru stödd í borginni
seinni part vikúnnar sem leið.
Miss Margrét Sigurðsson, kenslu.
kona frá Árborg, var stödd í borg-
inni seinni part fyrri viku.
Mr. Stefán Anderson frá Leslie,
Sask., bróðir Péturs kornkaupmanns
Andersonar og þeirra systkina,
dvaldi í borginni nokkra daga í
fyrri viku. í
Miss Líney Björnson, dóttir Mr.
og Mrs. Guðmundur Björnson í
Selkirk, hefir hlotið Governor-Gen-
eral medalíu fyrir frábæra náms-
hæfileika og ástundun, við Devon-
shire Collegiate í Selkirk.
Miss Olson, kenslukona frá Gimli,
kom til borgarinnar seinni part vik-
unnar sem leið, ásamt ömmu sinni,
Mrs. J. Gislason.
Athygli skal hér með leidd að
auglýsingunni frá Regal Valet Ser-
vice, sem nú birtist hér í blaðinu.
Félag þetta tekur að sér fatahreins-
un og aðgerðir á allskonar loðfatn-
aði. Annar eigandi þessa fyrirtækis,
Mr. Roy Shefley, er íslenzkur í
móðurætt. Hefir móðir hans, Mrs.
Shefley, lengi rekið bókaverzlun á
Ellice Avenue, er nefnist “Better
Ole.” Mr. Roy Shefley, hefir und-
anfarið verið í þjónustu Scott-
Matthew fatahreinsunar félagsins
og getið sér hinn bezta orðstir. Er
þess að vænta að íslendingar láti
hann njóta viðskifta sinna.
Junior Ladies’ Aid Kvenfélags
Fyrsta lúterska safnaðar, efnir til
Thanksgiving Concert i kirkjunni á
fimtudagskveldið þann 24. þ. m.,
eins og getið hefir áður verið um
liér í blaðinu.
Það mun ekki ofmælt, að til sam_
komu þessarar hafi vandað verið
hið bezta, sem glegst má af því
marka, að á skemtiskránni birtast
nöfn þeirra listamanna og kvenna,
er hæzt standa á sviði andlegrar
menningar innan vébanda Winni-
pegborgar. Má þar tilnefna Floru
Mattison-Goulden, Gertrude New-
ton, soprano, W. Davidson-Thomp-
son, baritone, Rev. P. T. Pilkey,
prest St. Paul Sameinuðu kirkjunn-
ar og Snjólaugu Sigurðson, pianista,
og meðspilara.
Það er ekki oft að íslendingum
veitist þess kostur, að hlusta á ann-
að eins úrvalsfólk sama kvöldið.
Þess vegna ætti í raun og veru að
vera óþarft að brýna fyrir þeim að
fjölmenna á samkomuna.
Frú Sigríður Olson, söngkonan
váðkunna, hefir annast um allan
undirbúning þessarar samkomu, og
ber þar raun vitni um, hverni^ henni
hefir tekist.
ANNOUNCING THE OPENING OF THE
REGAL VALET SERVICE
Cleaning - Pressing - Tailoring
Dyeing - Furriers
Proprietors: JAS. HEMENWAY ROY SHEFLEY
627 SARGENT AVE., WINNIPEG
PHONE 22 166
“SUCCESS TRfllMNG”
Has a Market Value
University and matriculation students are securing definite
employment results through taking a “Success Course”, as
evidenced by our long list of young men and women placed in
Winnipeg offices in 1935.
SELECTIVE COURSES
Shorthand, Stenographic, Secretarial,
Accounting, Complete Office Training,
l or Comptometer.
SELECTIVE SUBJECTS
Shorthand, Typewriting, Accounting,
Business Correspondence, Commercial
Law, Penmanship, Arithmetic, Spelling,
Economies, Business Organization,
M o n e y and Banking, Secretarial
Science, Library Science, Comptometer,
Elliott-Fisher, Burroughs.
CALL FOR AN INTERVIEW, WRITE US, OR
PIIONE 25 843
*-----------------*-=»
BUSINESS COLLEGE
Portage Ave. at Edmonton St.,
W I N N I P E G
(Inquire about our Courses by Mail)
Messuboð
FIRST LUTHERAN CHURCH
Series of sermons sunday mornings
at 11 o’clock
Thc Social Crisis ,
Sunday, Oct. 27—Christ and Co-
operation.
Sunday, Nov. 3—Christ and Christ.
ianity.
For this cause came I into the world
John 18:37.
íslenzk messa að kveldi, kl. 7.
MessUr áætlaðar í Gimli presta-
kalli næstkomandi sunnudag þ. 27.
okt., eru þannig, að morgunmessa
verður í Betel á venjulegum tíma,
en kvöldmessa kl. 7 í kirkju Gimli-
safnaðar. — Fyrirlestur, til ágóða
fyrir heimatrúboð, er búist við að
séra K. K. Ólafsson flytji í kirkju
Gimlisafnaðar að kvöldi þess x.
nóv., föstudagskvöld í næstu viku.
Þetta nú þegar auglýst á Gimli og
þar í grend. Má búast við snjöllu
erindi. Inngangur ekki seldur, en
frjáls samskot tekin.
Séra K. K. Ólafson flytur guðs-
þjónustur í Vatnabygðunum í Sas-
katchewan sunnudaginn 27. okt. sem
i fylgir
í Wynyrd kl. 11 f. h.
í Elfros kl. 2 e. h.
1 Mozart kl. 4 e. h.
í Kandahar kl. 7.30 e. h.
í Wynyard og Mozart verða guðs-
! þjónusturnar á íslenzku, í Elfros og
Kandahar á ensku.
j Sunnudaginn þann 27. október
j messar séra Guðm. P. Johnson, í
1 Bertdale skóla kl. 11 f. h. (ensk 1
! messa) ; í Hallgrímssafnaðar húsinu
kl. 1 e. h. (Standard time). Altaris.
göngu messan, sem auglýst var í
Lögbergi síðastliðna viku, var frest_
að til næsta sunnudags kl. 4 e. h., í
, Leslie kirkjunni. Einnig verður
I ungmennafélagsfundur í Westside
skóla kl. 8 að kvöldinu Góð skemti-
skrá. A1lir velkomnir.
Séra N. S. Thorláksson messar í
Vídalínskirkju á sunnudaginn 27.
j okt., kl. 11 f. h. og sama dag í Ey-
ford kirkju kl. 2 e. h.—Séra H. Sig-
: mar messar í Brown, Man,, sunnu-
daginn 27. okt., kl. 2 e. h. Altaris-
ganga.
Hjónavígslur
Laugardaginn 19. þ. m. voru þau
Uohn James Edkins og Margaret
Augusta Brandson, bæði frá Swan
River, Man., gefin saman í hjóna-
band, af séra Rúnólfi Marteinssyni,
að 493 Lipton St. Heimili þeirra
verður að Clearwater, Man.
Hinn 18. oþt. s.l. voru gefin sam,
an i hjónaband þau William Guðna-
son frá Iialdur, Man., og Lily Sig-
urlaug Vogen frá Sélkirk, Man.
Brúðguminn er sonur Þorláks
Guðnasonar bónda í Argyle nú fyrir
nokkru látinn og konu hans Ingu
Guðrúnar Hrólfsdóttur frá Drafla-
stöðum í Fnjóskadal, S. Þing.s.; en
brúðurin er dóttir Árna J. Vogen -Og
konu hans Sigurlaugar Sæmundson,
bæði til heimilis við Selkirk, Man.
Eftir vígsluna tóku brúðhjónin sér
skemtiferð til Winnipeg og annara
staða. Framtíðarheimili þeirra
verður á ættaróðali Guðnasons ætt-
arinnar í Argyle. Séra E. H. Fáfnis
framkvæmdiTijónavígsluna að heim-
ili sinu í Glenboro.
Mannalát
Samkvæmt bréfi til ritstjóra þessa
blaðs, meðteknu þann 22. þ. m., frá
Boston, Mass., féll útbyrðis af tog-
aranum Trimont, er gerður var út í
Boston, íslenzkur maður, Gisli
Scheving að nafni, þann 21. septem.
ber síðastliðinn og druknaði. Getið
er þess til í bréfinu, að Gísli heitinn I
muni hafa átt einhver ættmenni í |
Canada.
Mánudaginn 14. okt., andaðist að
heimili sínu í grend við Árnes,
Man., Mrs. Kristjana Magnúsdóttir
á öðru ári yfir áttrætt. Hún hafði j
verið veik síðan i janúar á þessu ári. |
Hana lifir eiginmaður hennar, Jón
Thorkelsson. Ef hún hefði lifað til
11. des., hefðu þau hjónin átt gull-
brúðkaup. Hana lifa ennfremur
börn hennar, Gurún og Sigurður.
Hann er kvæntur Jóhönnu Sumar-
liðadóttur og eiga þau sjö börn. Þau
eru öll á gamla heimilinu, Fagra-
nesi í Árnes-bygð.
Kristjana var ættuð úr Borgar-
fjarðarsýslu á íslandi, ein af 15
börnum þeirra hjónanna Magnúsar
Gíslasonar og Sigríðar Bjarnadótt-
ur, er lengi bjuggu í Neðrahreppi í
Skorradal. Hún stundaði sauma 9
ár í Reykjavik, en árið 1885 giftist
hún Jóni Jónssyni Thorkelson.
Næsta ár fluttu þau vestur um haf
og áttu síðan heima í Nýja íslandi,
lengst af í Fagranesi.
Kristjana var tápmikil kona, dug-
leg og hyggin, örlát og ósérhlííin,
hafði unun af ljóðum og söng, hafði
mætur á Guðs orði, lifði og dó í
öruggu trausti á frelsara sínum Jesú
Kristi.
Hún var jarðsungin af séra Rún-
ólfi Marteinssyni, í fjarveru sókn-
arprestsins, laugardaginn 19. þ. m.
Kveðjuathöfnin fór fram á heimil-
inu og i grafreit Árnesbygðar. Mrs.
W. Dalman frá Winnipeg var organ-
isti. Stór hópur ngranna og annara
vina var viðstaddur.
Reykjavíkurblöðin eru beðin að
minnast á þessa dánarfregn.
íslendingar, veitið
athygli!
Til samkomu verður efnt í Fyrstu lútersku kirkju á Victor
Street, á þriðjudagskvöldið næstkomandi þans 29. þ. m., kl.
8.15, þar sem frú Jakobína Johnson, skáldkona, nýkomin úr
íslandsför, flytur ágrip af ferðasögu sinni og les upp ýms af
ljóðum sínum, þar á meðal sum, er orðið hafa til á ferðalaginu.
Aðgangur kostar 25 cents
KAUPIÐ ÁVALT
LUMBER
hjá
THE EMPIRE SASH & DOOR CO., LTD.
HENRY AVENUE AND ARGYLE STREET
WINNIPEG, MAN. PHONE 95 551
að skifta.
Þeir, sem bréfaskifti eða einhver
viðskifti æsktu að eiga við hann,
geta skrifað eða fundið hann að máli
hjá New York Life Insurance Co.,
218 Curry Bldg., Winnipeg. (Heim*.
ilissími 86 828).
HAROLD EGGERTSON
AUGNASKOÐUN
og gleraugu löguð við hæfi
J. F. HISCOX
Optometrist
Hinn 12. okt. s.l. andaðist á Gen-
eral Hospital í Winnipeg, ungfrú
Guðbjörg Goodman, eftir alllanga
legu. Hún var dóttir Jóns Goodman
bónda i Argylebygð, sem var einn af
fyrstu bændum í Argylebygð. Guð-
björg var hvers manns hugljúfi fyr-
ir framúrskarandi samúð og hlut-
tekning í kjörum þeirra er liðu á
einhvern hátt; auk þess að vera á-
hugasöm um öll félagsstörf heima i
söfnuði og bygð. Jarðarför hennar
fór fram 15. okt. frá heimilinu og
kirkju Frelsissafnaðar að viðstödd-
um ættingjum og vinum, ásamt
miklum hluta bygðarfólks, íslenzkra
og enskra. Séra E. H. Fáfnis jarð-
söng. Hennar verður nánar minst
síðar.
19. október lézt að heimili tengda.
sonar síns, Harry Anderson, nálægt
Glenboro, Guðrún V. Heidman,
kona Björns Heidman, er lengi bjó
í Glenboro og nágrenni. Guðrún
hafði þjáðst af lasleika þeim, er
leiddi hana til dauða, um langt skeið,
og var henni því hvildin ljúf. Hún
lætur eftir sig aldraðan eiginmann
og fjögur börn og 2 stjúpbörn, öll
uppkomin.
Jararför hennar fór fram frá
heimili dóttur hennar í Glenboro og
kirkju Glenborosafnaðar þann 'g\.
október, að viðstöddum ástvinum og
vinum og samferðafólki á lífsleið-
inni. Séra E. H. Fáfnis jarðsöng.
Insurance Counselor
NEW YORK LTFE INSURANCE
COMPANY
Room 218 Curry Bldg.
233 Porta^e Ave., Winnipeg
Office Phone 93 101
Res. Phone 86 82 8
J. Walter Johannson
UmboSsmaBur
NEW YORK UFE INSURANCE
COMPANY
219 Curry Bldg. Winnipeg
Formerly of Hudson’s Bay Co.
Successor to Maitland Tinlin
209 Curry Bldg. Ph. 93 960
Opposite Post Office
Sendið áskriftargjald yðar
fyrir “The New World,” mán-
aðarrit til eflingar stefnu
Co-operative Commonwealth
Federation í Canada.
Aðeins EINN dollar á árí
sent póstfrítt
Útgefendur
The New World
Úr, klukkur, gimsteinar og aBrir
skrautmunir.
Qiftingaleyfis bréf
447 PORTAGE AVE.
Slml 26 224
1452 ROSS AVE.
Winipeg, Manitoba
Jakob F. Bjarnason
TRANSFER
Annaat greiðlega um alt, Mtn af
flutnlngum lýtur, imtuin eta etöv
um. Hvergri eanngjamara ver«
Heimili: 591 SHERBURN ST.
Slmi: 35 909
Minniát BETEL
✓
1
erfðaskrám yðar!
The Watch Shop
Diamonds - Watches - Jewelry
Agents for Bulova Watches
Marriage Licenses Issued
THORLAKSON & BALDWIN
Watchmakers & Jewellers
699 SARGENT AVE, WPG.
HAROLD EGGBRTSON
Harold Eggertson heitir ungur,
einkar efnilegur íslendingur, sem
nýlega hcfir tekist umboðsstörf á
hendur fyrir New York Insurance
félagið. Hann er sonur Ásbjörns
Eggertsonar, 614 Toronto St., Win-
nipeg, í þessum bæ fæddur og upp-
alinn. Hefir hann verið i Banda-
ríkjunum s.l. 5 eða 6 ár og unnið
nærri þrjú ár hjá þessu áminsta og
velþekta vátryggingarfélagi í Chi-
cago. Sótti hann starf sitt svo kná_
lega, að hann var ekki aðeins jafn-
oki allra jafnaldra sinna í starfinu,
heldur nokkuð meira, og vátrygði
fleiri en nokkur þeirra.Þótti félag-
inu eigi lítils vert um þann rösk-
leik, ekki sízt þegar þess var og gætt,
að hann var ókunnugur í bænum
sem hann starfaði í. Hefir það því
nú falið honum umboðsstarf fyrir
sína hönd í Winnipeg. Er hann riú
í þeim erindum hingað kominn, og
ef að líkum lætur, mun honum hér
eigi siður en annarstaðar verða vel
ágengt.
Mr. Eggertson mún hafa í hyggju
að heimsækja íslendinga sem aðra,
bæði innan þessa bæjar og utan, i
vátryggingar erindum, mjög bráð-
lega. Munu þeir þá komast að raun
um að við góðan dreng og gegnan er
STUDY BUSINESS
At Western Canada’s Largest and Most
Modern Commercial School
For a thorough training, enroll DAY SCHOOL
For added business qualifications, enroll NIGHT SCHOOL
The Dominion Business College offers individual
instruction in—
SECRETARYSHIP
STENOGRAPHY
CLERICAL EFFICIENCY
MERCHANDISING
ACCOUNTANCY
BOOKKEEPING
COMPTOMETRY
—and many other profitable lines of work.
EMPLOYMENT DEPARTMENT
places graduates regularly.
DOMINION
BUSINESS COLLEGE
On The Mall and at Elmwood, St. James,
and St. John’s