Lögberg - 26.12.1935, Blaðsíða 8

Lögberg - 26.12.1935, Blaðsíða 8
8 LÖGBERG, FIMTUDAGINN 26. DESEMBER, 1935. Ur borg og bygð Skuldar-fundur í kvöld (fimtu dag) St. Skuld, Nr. 34, heldur Whist Drive og grímudans í Goodtempl- arahúsinu á gamlárskvöld þriÖju- daginn 31. des. 1935. VerÖlaun verða gefin fyrir hæztu vinninga fyrir Whist og einnig fyrir beztu og skringilegustu búninga. Inn- gangur 250; byrjar kl. 8.30. The Young People’s Club of the First Lutheran Church will meet on Dec. 2Óth (instead of the 2761, as previously announced), at the Mall Plaza. í æfiminning Sigurveigar Björns. son er fæðingarár hennar talið um 1870, en á að vera 1880. G. T. stúkurnar Hekla og Skuld halda sina árlegu afmælishátíð fimtudagskvöldið 2. jan. n.k. kl. 8. Fólkinu skemta tveir ágætir ræðu- menn séra Carl J. Olson og Dr. £ig. Júl Jóhannesson. Miss Lóa David- son syngur einsöng og fleira verður til skemtunar og fróðleiks. Al'ir goodtemplarar ámintir að sækja þetta gleðimót. Bjart og rúmgott herbergi, ásamt ágætu fæði fæst nú þegar á ákjósan. legum stað í vesturbænum. Upp'ýs ingar á skrifstofu Lögbergs. Miss Guðrún Jóhannsson hjúkr- unarkona frá Saskatoon, er nýkom- in til borgarinnar til þess að súja jólin hjá föður sínum, Gunnlaugi kaupmanni Jóhannssyni. Messuboð Hátíðahöld í Fyrstu lútersku kirkju Aðfangadagskvöld, 24. des. kl. 7.30 h. — barnaguðsþjón- usta með jólatré. Jóladag, 25. des. kl. 11 f. h. — íslenzk jólamessa með hátíð- arsöng eldra söngflokksins. Sunnudag, 29. des. kl. 11 f. h.— ensk áramóta-gáiðsþjónusta. Kl. 7 e. h. ársloka samkoma sunnudagsskólans. Nýársdag, kl. 11 f. h.—íslenzk áramóta-guðsþjónusta.- Messur í Gimli prestakalli á jóla- daginn eru áætlaðar þannig, að morgunmessa verður í Betel á venjulegum tíma, síðdegismessa kl. 3 í kirkju Gimlisafnaðar, og kvöld messa kl. 8 í kirkju Víðinessafnað- ar. Aðfaranótt síðastliðins föstudags lézt að heimili sínu við Riverton, Halli Björnsson, bóndi og útgerðar- maður, 58 ára að aldri. Halli heit- inn var hinn mesti atorkumaður og vel gefinn á margan hátt; hann var fæddur í Ilróarstungu i Norður- Múlasýslu. Lætur eftir sig ekkju ásamt f jölmennum hópi uppkominna barna. Mrs. Jóhanna Elíasson frá Leslie, Sask., komu til borgarinnar seinni part vikimnar sem leið, og fór norð. ur til Gimli í heimsókn til ættingja og vina. Hjónavígslur Gefin voru saman i hjónaband þ. 19. des. s. 1. Þau Mr. Charles Wilson Munro og Miss Guðrún Ása Jó- hannesson, bæði til heimilis hér í borg. Séra Jóhann Bjarnason gifti og fór hjónavígslan fram að heimili foreldra brúðarinnar, þeirra Mr. og Mrs. G. Jóhannessonar, að 920 Sherburn St. Á eftir hjónavígsiunni var mjög ánægjulegt samsæti þar á beimilinu, þar sem viðstaddir voru nánustu ættingjar brúðhjóna. Mrs. H. F. Daníelson skemti með ágæt- um söng. Heimili ungu hjónanna verður hér í borginni, þar sem Mr. Munro hefir góða stöðu, sem hann hefir haft um nokkur undanfarin ár. Þann 20. þ. m., voru gefin saman í hjónaband þau John Harald Palmason og Jean Ann Murdock. Dr. Björn B. Jónsson framkvæmdi hjónavígsluna, og fór hún fram að heimili hans 774 Victor Street. Islenzkur tilbúinn á- burður Stórvægilegt Framtíðarmál Fyrir tslenzkan Landbúnað Nákvæm áætiun um ísl. áburð- arverksmiðju sýnir, að hægt er að framleiða hér á landi köfnunar- efnisáburð úr íslenzkum hráefn- um fyrir mun ádýrara verð, en við getum nú keypt hann fyrir frá útlöndum. Eins og skýrt var frá hér i blaðinu í sumar, hefir landbún- aðarráðherra látið framkvæma ýmsar rannsóknir um möguleika á framleiðslu á tilbúnum áburði hér á landi. Var þegar í byrjun hugsað að nota afgangs raforku vir Sogsstöðinni og íslenzkan kalksand, sem bindiefni. Erlendur verkfræðingur var fenginn tii þess að fuligera áætl- unina og dvaldi hann hér í sept- embermánuði síðastl. og hefir þessari áætlun nú verið lokið. Nýja Dagblaðið hefir snúið sér til Sigurðar Jónassonar forstjóra, sem hefir haft undirbúning þessa máls með höndum og skýrir hann svo frá: Áætlun hefir nú verið gerð um byggingu verksmiðju til þess að framleiða það magn af köfnun- arefnisáburði, er vér notum nú í dag og væntanlega notum á næstu árum, þó nokkur aukning verði. Verksmiðju þessari er ætlað að stáhda í Reykjavik og hefir ver- ið hugsað sér að reisa hana á Ið- unnarlóðinni og nota að nokkru leyti gamla verksmiðjuhúsið. Vmsir aðrir staðir í Reykjavík og grend hafa einnig verið at- hugaðir og virðist þessi heppileg- astur, enda þótt um fleiri staði sé að velja hér, sem vel mætti reisa slíka verksmiðju á. Meðan Westad verkfræðingur, sá er áætlunina gerði, dvaldi hér í sumar, aflaði hann sér ná- kvæmra upplýsinga um notkun tilbúins áburðar hér á iandi og ýmsa möguleika um notkun hans í framtiðinni. Byggir hann aðal- lega á upplýsingum hr. Árna G. Eylands ráðunauts, og ennfrem- ur Bjarna Ásgeirssonar alþm. og Steingríms Steinþórssonar bún- aðarmálastjóra og segir í áætlun- inni um notkun íslands á tilbvin- um áburði; Notkun íslands á tilbúnum á- burði má í stórum dráttum telja 16,000 poka af saltpétri, aðallega kalksaltpétri ineð 15.5% köfn- unarefni og kalk-ammonsaltpétri með 20.5% köfnunarefni. Enn- fremur 7—8,000 pokar nitro- phoska, aðallega nitrophoska sem inniheldur 16x/2% köfnunarefni, 16%% fosforsýru og 21%% kali. Af superfosfati og kalki er mjög lítið flutt inn og varla neitt af brennisteinssúru amoniaki. Verð á kalksaltpétri með 15.5% köfnunarefnisinnihaldi er nii ca. kr. 18.00 pokinn, frítt á íslenzkri höfn, en ríkisstyrkurinn til á- burðarkaupa nemur kr. 2.00 á poka og er það raunverulega verð því nú kr. 20.00 pokinn, sem svarar þvi, að 1 kg. af köfnunar- efni kosti kr. 1.29. Kalkammonsaltpétur myndi á sama hátt kosta kr. 22.70 pokinn og myndi köfnunarefnið þannig með 20.5% innihaldi, eiga að kosta kr. 1.10 pr. kg. Rannsóknir hafa leitt í ljós, að kalkammonsaltpétur er jaf n heppilegur til grasræktar og kalk- saltpétur og virðist því margt benda til þess, einkum vegna þess hve miklu munar á flutnings- kostnaði, að kalkammonsaltpét- ur, sem er “konsentreraðri” á- burður, verði valinn. Það magn af köfnunarefni, sem er flutt inn í nitrophoska sam- svarar nokkurnveginn s ö m u pokatölu af kalksaltpétri eða kalkammonsaltpétri, þannig, að það má ganga út frá því að nú- verandi notkun íslands af köfn- unarefnisáburði sé ca. 25,000 pokar á ári. Þessi notkun hefir áður verið alt að 50% meiri og það virðist vera ástæða til að ætla, að notkunin geti smámsam- an vaxið um ca. 50% eða upp í 35 —40,000 poka á ári, ef hægt verð- ur að framleiða köfnunaráburð- inn á fslandi fyrir nokkru lægra verð en nú er hægt að flytja hann inn fyrir. Ræktað land á íslandi er rúm- lega 28,000 hektarar og er hey- fengur af því ca. 100,000 tonn og er það að meðaltali 3.8 tonn af hektara. Rannsóknir hafa sýnt að hægt er að tvöfalda töðufallið með þvi að bera meira á af köfn- unarefnisáburði og i öllu tilfelli er hægt að auka það um 50% án verulegrar fyrirhafnar. útheyskapurinn nemur ca. 80,- 000 tonnum á ári, sem að gæðum mun mega jafna við 40—50,000 tonn af heyi af ræktuðu landi. Það myndi því hafa mjög mikla fjárhagslega þýðingu fyrir is- lenzkan landbiinað, ef aukinn heyfengur af því landi, sem nú þegar hefir verið ræktað, gæti komið í stað hins dýra og erfiða útheyskapar. , Nú er notað til jafnaðar einn poki af kalksaltpétri á hektara af landi og sýna tilraunir að það er of Htil áburðarnotkun. Það er lítill vafi á því að tvöföld notkun myndi vera miklu nær réttu lagi til þess að fá sem bezta fjárhags- lega útkomu af ræktuninni, þótt það verði að sjálfsögðu erfitt fyr- ir islenzkan landbúnað að kaupa svo mikið á allra næstu árum. Auk þess, sem a framan hefir verið sagt um grasrækt, má geta þess, að vel er mögulegt að rækta hér á landi alt sem ísland þarf af kartöflum, en það hefir vita- skuld i för með sér aukna notkun á köfnunarefnisáburði. Danir flytja inn köfnunarefnis- áburð sem svarar til 10 kg. á í- búa, em fslendingar flytja inn 4—500 tonn af köfnunarefni, sem svarar ca. 4 kg. á íbúa. Virðist einnig frá því sjónarmiði mega álíta að notkun fslendinga á köfnunarefnisáburði geti tvöfald- ast. Áætlunin bm hina fyrirhug- uðu verksmiðju gerir hinsvegar aðeins ráð fvrir því, að framleiða í byrjun 25 þúsund poka af kalk- ammonsaltpétri, sem svarar til notkunar á 500 tonnum af köfn- unarefni á ári. Verksmiðjan er áætluð þannig, að hún geti fram- leitt þetta magn 8—9 mánuði af árinu með þriskiftum vinnu- tíma á sólarhring. Ef verksmiðj- an er rekin alt árið yrði auðveld- lega hægt að auka framleiðsluna á kalkainmonsaltpétri um 50% eða framleiða ca. 37—38 þúsund poka af honum. Ef verksmiðjan væri notuð til framleiðslu kalk- ammonsaltpéturs og nitrophoska, inyndi með mesta álagi vera hægt að framleiða ca. 35 þúsund poka af kalkammonsaltpétri og 15 þús- und poka af nitrophoska eða með öðrum orðum tvisvar sinnum meira en notað er a fslandi nu af tilbúnum áburði. Þá segir í áætluninni, að verk- smiðja sú, sem gert er ráð fyrir að reisa og sem á að nota allra nýjustu aðferðir (Electrolyse) um tilbúning á áburði, myndi kosta ca. 1% miljon krona full- gerð. Gert er ráð fyrir að tak- ast megi að byggja slíka verk- smiðju á 14—16 mánuðum og ætti því að vera unt að hafa lok- ið byggingu hennar á sumrinu 1937, ef nú þegar er hafist handa með að koma málinu í fram- kvæmd. Gert er ráð fyrir að Sogsstöðin verði tilbúin í ágúst 1937 og ætti því að vera hægt aö framleiða í tæka tíð allan jiann köfnunarefnisáburð er vér þurf- um á árinu 1938, ef áburðarverk- smiðjan verður tilbúin nægilega snemma á árinu 1937. Eg tel því mjög æskilegt að nú þegar verði samþykt lög, er heimili ríkis- stjórninni að láta reisa' slíka verksmiðju. Ilm framleiðsluna og fram- leiðslukostnaðinn segir i áætlun- inni: Eins og áður er sagt, kostar kalkammonsaltpétur með 20.5% köfnunarefni nú ca. kr. 20.70 pokinn, sem svarar til kr. 1.10 pr. kg. af köfnunarefni. Ef fram- leiddir eru 25,000 pokar af þess-, um kalkammonsaltpétri á ári, sýnir rekstraráætlun verksmiðj- unnar, að hægt er að framleiða pokan fyrir kr. 19.70 og verður verðið af köfnunarefni þannig 96 aurar.. Það sem með þessu móti spar- ast kr. 3.00 á poka, miðað við núverandi innflutningsverð, græðist á verksmiðjunni umfram fyrningu o. s. frv. ca. kr. 75,000.00 á ári. Séu í þessari verksmiðju fram- leiddir 35,000 pokar af sama kalkammonsaltpétri, fellur verð- ið fyrir pokann niður í kr. 15.30 og verð pr. kg. af köfnunarefni niður i 75 aura. Miðað við þá framleiðslu græðist á rekstrinum umfram fyrningu o. s. frv. kr. 259,000.00 á ári. Ef maður hugs- ar sér, í stað einhliða framleiðslu á kalkammonsaltpétri, að verk- smiðjan verði látin framleiða t. d. 25,000 poka af kalkammon- saltpétri og 10,000 poka af nitro- phoska, en þetta magn er auðvelt að framleiða í hinni áætluðu verksmiðju, sést af rekstraryfir- litinu, að hægt er að búa til nitro- phoska fyrir kr. 25.24 pokann, en niiverandi kostnaðarverð þess er kr. 34.00 pokinn. Af áætlunum þeim um reksts- urskostnað, sem að framan getur, sézt að það er framúrskarandi heilbrigður og fjárhagslega trygg- ur grundvöllur fyrir byggingu köfnunarefnisverksmiðju á ís- landi. Framleiðsluaðferð sú, er á að nota, er margreynd og notuð í fjölda verksmiðja. Áætlunin er bygð á nákvæmum tilboðum frá verksmiðjum, er framleiða vélar og efni til þessháttar verksmiðja. Yfirleitt er áætlunin gerð varlega og er nokkur ástæða til að ætla að kostnaður við byggingu verk- smiðjunnar geti orðið eitthvað ó- WILDFIRE COAL (Drumheller) “Trade Marked” LOOK FOR THE RED DOTS AND DISPEL YOUR DOURTS I.UMP ................................................$11.35 per ton EGG .................................................. 10-25 ” ” SEMET-SOLVAY COKE...................$14.50 per ton MICIIEL COKE ....................... 13.50 ” ” DOMINION COAL (Sask. Lignite) COBBLE ...................... $6.65 per ton STOVE ....................... 6.25 ” ” BIGHORN COAL (Saunder’s Creek) LUMP............................$13.25 per ton FOOTHILLS COAL (Coal Spur) LUMP ..................$12.75 per ton STOVE ..................................... 12.25 ” ” Fuel License No. 62 PHONE 94 309 McCurdy Supply Co. Ltd. 49 NOTRE DAME AVE. E. dýrari en áætlað er. Til viðbótar við það, sem tekið er upp úr áætluninni hér að fram- an, ber sérstaklega að leggja á- herzlu á eftirfarandi atriði: 1. Að áburðurinn er unninn eingöngu úr íslenzkum hráefn- um, sem sé vatni, lofti og kalk- sandi og að rafmagnsorka úr Sogsstöðinni verður notuð í stað orku úr erlendum hráefnum. Á- ætlunin byggir á raforkuverði úr Sogsstöð, sem Rafmagnsveita Reykjavíkur telur sig geta selt fyrir til þessa fyrirtækis. 2. Áætlun yfir reksturskostnað verksmiðjunnar sýnir, að ca. heliningur af reksturskostnaðin- um verður eftir í landinu. Af þeirri upphæð er kr. 130—140,- 000.00 árlega, sem fara í vinnu- laun og verður það föst atvinna fyrir ca. 30 manns. 3. Þess ber vel að gæta, að köfnunarefni hefir oft áður verið mikið dýrara, t. d. sýna verzlun- arskýrslurnar, að innkaupsverðið 1930 hefir verið rúmlega 20% dýrara en það var árið 1933. M e ð innlendri áburðarverk- smiðju höfum við tryggingu fyrir því, að köfnunarefnisáburður sá, sem vér framleiðum, þarf ekki að hækka í verði, enda þótt hann hækki í verði á heimsmarkaðin- m. Eg tel sjálfsagt að ríkið, sem ú þegar hefir með höndum alla erzlun með tilbúinn áburð,, eisi sjálft verksmiðu til þess að ramleiða tilbúinn áburð. Þar em nú virðist vera fundinn fiár- agslega ti-yggur grundvöllur fyr- • rekstri slíkrar verksmiðju, sýn- st heldur ekki vera eftir neinu ð bíða með að hefja fram- væmdirnar uin byggingu henn- r. Það virðist eigi vera hægt að aæla á móti því með rökum, að ekið verði lán erlendis til bygg- ngar slíkri verksmiðju, þar sem Ilverulegur hluti af þeim gjald- yri, sem vér árlega greiðum út ir landinu fyrir tilbúinn áburð, parast við byggingu hennar. Það er stórkostlegt velferðar- iál fyrir íslenzkan landbúnað, að iú þegar verði hafist handa um ð ríkið byggi verksmiðju til rainleiðslu tilbúins áburðar. —N. Dagbl. 27. nóv. Jakob F. Bjarnason TRÁNSFF.R AnnaM gxelClega um ftlt, flutningum lýtur, rnniua eSa. atðr- um. Hvergi ea.nngjamftra. vert> Heimili: 591 SHBRBURN ST. Slmi: 35 909 Sendið áskriftargjald yðar fyrir “The New World,” mán- aðarrit til eflingar stefnu Co-operative Commonwealth Federation í Canada. Aðcins EINN dollar á ári sent póstfrítt Útgefendur The New World 1452 ROSS AVE. Winipeg, Manitoba Minniát BETEL * 1 erfðaskrám yðar ! Élðs™ jeWellers Úr, Tclukkur, gimsteinar og aðrir skrau tmunir. Giftingaleyfisbréf 447 PORTAGE AVE. Slmi 26 224 The Watch Shop Diamonds - Watches - Jewelry Agents for Fulova Watches Marriage Licenses Issued THORLAKSON & BALDWIN Watchmakers & Jewellers 699 SARGENT AVE., WPG. J. Walter Johannson UmboCsmaður NEW YORK LIFE INSURANCE COMPANY 219 Currji Bldg. Winnipeg HAROLD EGGERTSON Insurance Counselor NEW YORK LIFE INSURANCE COMPANY Room 218 Curry Bldg. 233 Portage Ave., Winnipeg Office Phone 93 101 Res. Phone 86 82 8 V * KAUPIÐ AVALT LUMBER THE EMPIRE SASH HENRY AVENUE AND A1 WINNIP^i, MANáv R OR CCT.Í STREE*' 4

x

Lögberg

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.