Lögberg - 02.04.1936, Blaðsíða 1

Lögberg - 02.04.1936, Blaðsíða 1
49. ARG-ANGUR II WINNIPEG, MAN., FIMTUDAGINN 2. APRIL, 1936 NÚMER 14 Sambandsþingið Vikuna sem leiÖ gerðist þaÖ mark- verðast á sambandsþingi, aÖ verka- málaráðherrann, Mr. Rogers, lagð’ fram frumvrp til laga i níu megin- liðum, er kveður á um fyrirætlamr stjórnarinnar viðvíkjandi úr’ausn atvinnuleysisins, og veitir henni heimild til samvinnu við fylki og einkastofnanir, með það fyrir aug- um að bæta úr hinum brýnustu þörf um. 1. Gert er ráð fyrir fastbundimi upphæð á f járaukalögum til styrktar atvinnulausu fólki, í stað þess að stjórnin hafi þar með öllu óbundnar hendur eins og viðgekst í tíð Mr Bennetts. Með öðrum orðum, þá fær þingið á ný sitt fyrra fullveldi i þessu máli sem öðrum. 2. Skipun alþj óðarnefndar, er bafa skuli í samráði við stjórnina, yfirumsjón með úthlutun atvinnu- leysisstyrks, þannig að fyllra sam- ræmi náist á þessu sviði en áður var. 3. Ákveðnar ráðstafanir í þá átt. að koma sem allra flestu fólki fyrir við sveitabúskap í stað þess að láta það veslast upp ár frá ári á mölinni í borgum og bæjum. 4. Heimild til stjórnarinnar tií þess að semja um bein fjárframlög fylkjunum til handa, sem og um endurnýjun þess mánaðar tillags, sem nú er í gildi. 5- Heimild til vegagerða og ann- ara mannvirkja með það fyrir aug- um, að skapa atvinnu. 6. Heimild til samningsgerða við félög og einstaklinga i þeim tilgangi, að koma atvinnuleysingjunum að at- vinnu. 7. Heimild til'þess að lána fylkj- unum þær fjárhæðir, er þurfa þykir í þann og þann svipinn. 8. Samningar við einkafélög verða að öðlast samþykki þings. 9. Lögin um atvinnuleysisstyrk (Relief Act), nemast úr gildi þann 31. marz 1937- Mr. Rogers lét þess getið, að við lok síðastliðins febrúarmánaðar, hefði tala þeirra, er nutu atvinnu- leysisstyrks, numið 1,310,423. Er það um níutíu þúsundum færra en á tilsvarandi tímabili árið sem leið. Á miðvikudaginn var sló í brýnu milli þeirra Mr. Bennetts og Mr. Gardiners landbúnaðarráðgjafa. Reis þetta út af því, að Mr. Gar- diner var ekki sem ánægðastur yfir stjórnarráðssamþykt Mr. Bennetts með tilliti til uppbótargreiðslu þeirr. ar til hveitisamlagsbænda, er hann lofaði fyrir siðustu sambandskosn- ingar; hélt landbúnaðarráðgjafinn því fram, að jafn viðkvæmt mál sem þetta hefði átt að hafa verið lagt fyrir þing til endilegra úrslita; fauk nokkuð í Mr. Bennett í tilefni af þessu; kvaðst hann ekki taka því með þegjandi þögninni að vera lítils- virtur hvað ofan í annað í þingsa’n- um; þessu jafnframt vijdi hann vekja athygli á þvi, að Mr. Gardiner væri ekki að þessu sinni að prédika yfir hausamótunum á bændavesling- um (poor rural rustic) í Saskatche- wan; gerðist nú illur kur í herbúðum Saskatchewan þingmanna sem vænta Ir-átti, sem og skoðanabræðra þeirra ými'ssa. Mr. Arthur Slaght, liberal (Parry Sound), kvaðst hafa veitt l)Ví nákvæma athygli og skrifað það niður hjá sér, að í tiu minútna ræðu hefði Mr. Bennett notað áttatíu og þrisvar sinnum þetta stutta en eftir- minnilega orð: “Eg.” Mr. Ben- nett fyrirliti fátækt og æpti að þeim fátæku. Næst veittist Mr. Bennett að Mr. Ross (Moose Jaw), og bar honum það á brýn að hann hefði viðhaft stórmóðgandi ummæli i sinn garð. Þér dróguð dár að sveita- fólkinu í Saskatchewan,” sagði Mr. R°ss. “Störf þingsins gengi þó al- veg vafalaust greiðara ef fleira væri þar af bændum frá Saskatchewan en lögmönnum, er léki sér við það einkum og sérílagi að kljúfa hár.” Lauk svo þessari viðureign með þvi, að vegur Mr. Bennetts þótti lítt vax- ið hafa. Alls eru það $6,000,000, sem stjórnin leggur til að greiddar verði samlagsbændum til uppbótar því verði, er þeir fengu fyrir uppskeru sina 1930. Járnbrautarmálaráðherrann, Mr. Howe, bar fram í þinginu á finrtu- daginn var, frumvarp til laga, er gerir ráð fyrir þeirri breytingu á ráðsmensku þjóðeignabrautanna, Canadian National Railways, að í stað núverandi fyrirkomulags (Trustee System), komi sjö manna framkvæmdarráð (Board of Di- rectors), er formlega velji for- seta í samráði við stjórnina. Full- yrt er að J. S. Hungerford verði endurlcosinn til forseta. Samkvæmt yfirlýsingu frá Mr. Dunning, f jármálaráðherra, hefir sambandsstjórnin fallist á að lána fylkisstjórninni í Saskatchewan $4,- 000,000 til útsæðiskaupa. AUKNAR ATHAFNIR 1 VÆNDUM í fyrri viku áttu þeir fund með sér i Ottawa, Hon. J. S. McDiar- mid, náttúrufríðindaráðgjafi Brack. en-stjórnarinnar í Manitoba og Hon. T. A. Crerar, innanríkisráðgjafi sambandsstjórnarinnar. Laut sam- talið einkurn og sérílagi að væntan- legum vegabótum innan vébar.da fylkisins og fjárhagslegum stuðn- ingi af hálfu sambandsstjórnar í þá átt. Lætur Mr. McDiarmid hið bezta af undirtektunum. Munu nú góðar horfur á að lagðir verði á næstunni bílvegir inn í Rice og Herb Lake námuhéruðin. Ennfremur^má gera sér góðar vonir um lagningu vegar milli Mafeking og The Pas. GEN. R. W. PATERSON LÁTINN Siðastliðinn fimtudag lézt á Deer Lodge sjúkrahúsinu hér í borginni General Robert Walter Paterson, sextugur að aldri. Hafði hann á hendi hersveitarforustu í styrjöld- inni miklu frá 1914. Mr. Paterson tók mikinn og margvíslegan þátt í verzlunar og athafnalífi þessarar borgar. Var hann um eitt skeið framkvæmdarstjóri Winnipeg Paint & Glass verzlunarfélagsins og einn af stofnendum og meðráðamönnum Northern Paint og Northern Soap' verksmiðju fyrirtækjanna. T.TÁST KNÚÐIR TIL SAMNINGSROFA Stjórn Tyrkja hefir sent fram- kvæmdarnefnd Þjóðabandalagsins erindisbréf þess efnis, að þjóðin, að- stöðu sinnar vegna eins og nú horf- ist á, telji sig knúða til þess að koma upp viggirðingum við Dardanella- sund, Bosphorus og Marmarahaf. Tyrkir eru meðlimir Þjóðabanda- lagsins og gerast því sekir um samn- ingsrof, hrindi þeir þessum fyrirætl- unum sinum í framkvæmd. EINHUGA ÞJÓÐ Síðastliðinn sunnudag fóru fram almennar kosningar til þýzka ríkis- þingsins; lauk þeim með svo mikl- um sigri fyrir Hitler og stefnu hans Rinarhéruðunum viðvíkjandi, að nærri lét að atkvæði þjóðarinnar félli alveg á einn veg. Tala kjós- enda á kjörskrá var 45,428,641, en atkvæði greiddu 44,952,476 — 98.79 af hundraði greiddra atkvæða, féllu Hitler í vil. Láta símfregnir þess getið, að ekki sé dæmi til að nokkr- um stjórnmálaleiðtoga eða þjóð- höfðingja hafi áður veitt verið slík traustsyfirlýsing. Frá Islandi 34,312 íbúar í Reykjavík Ibúar Reykjavíkurborgar voru við manntal, sem fór fram 20—30. nóvember s.l., samkvæmt talninfu sem næst 34,312. Á sama tíma í fyrra var íbúa- talan 33,974. — Mbl. 12. marz. 60 klukkustundir í stórliríð og grimdarfrosti Kópasker, 5. marz. Stefán bóndi Jónsson í Möðrudal á Fjöllum lenti i hrakningum mikl- um dagana 16. til 18. f. m. i stór- hríðarbyl á Öræfum, austan Möðru- dals. Sunnudaginn 16. lagði Stefán af stað heimleiðis frá Heiðarseli á Jökuldalsheiði með 5 kindur. Kom hann við í Sænautaseli og hélt síðan áfram. Skall þá á blind- hríð með 17 stiga frosti. Um nótt- ina gerði hann grjótbyrgi fyrir kind. urnar, en hélt á sér hita með að ganga um og berja sér. Á mánudagsmorgun hélt hann á- fram, en týndi kindunum um kvöld- ið. Var hann þá á réttri leið en vörður voru flestar fentar í kaf, og fór hann þá villur vegar og gróf sig loks í fönn og lét þar fyrir ber- ast um nóttina. Á þriðjudagsmorgun reyndi hann að halda í veðrið og hugði það rétta stefnu heim. Þekti sig loks í svo- nefndum Arnardal, en þaðan eru 25 til 30 kólímetrar að Möðrudal. Náði hann um kvöldið beitarhús- um frá Möðrudal og hitti þar bróð- ur sinn er studdi hann heim. Var hann all þrekaður en ókalinn. Sextíu klukkustundir var hann á ferðinni og hafði ekki annað nesti en hálfa flatbrausköku. —Morgunbl. Óglœsilegar tolur Fiskaflinn hér á landi fyrstu tvo mánuði ársins er meira en helmingi minni en hann var á sama tima í fyrra. Fiskaflinn á öllu landinu var oið. inn 1. þ. m. 1917 tonn, miðað við fullverkaðan fisk, en var á sama tíma i fyrra 4718 tonn. Mestur mismunur þegar verstöðv- arnar eru bornar saman nú og í fyrra, og í Vestmannaeyjum. Þar var aflinn á þessum tíma í fyrra orðinn 1126 tonn, en er nú e’.ki nema 244 tonn. Hér í 'bænum voru komin á land í fyrra 628 tonn, en nú 193 tonn. Á Vestfjörðum er aflinn ekki þriðjungur af því, sem hann var í fyrra. Hann var f fyrra 654 tonn, en er nú 161 tonn. Yfirleitt er aflinn mun minni í öllum verstöðvunum heldur en hann var í fyrra. Fiskafli Norðmanna er mun meiri nú en í fyrra. Fiskafli Norðmanna er aftur á móti talsvert miklu meiri nú en hann var í fyrra. Hann var orðinn um seinustu mánaðamót 26,250 tonn miðað við hausaðan og stægðan fisk, en var í fyrra ekki nema 17,631 tonn. íslendingar reikna afla sinn í full- verkuðum fiski, en Norðmenn í hausuðum og slægðum fiski. Eru hlutföllin þar á milli 1:2j4. Af þessum afla hafa Norðmenn hert 5,093 tonn (2,616) og saltað 14,844 tonn (10,567). Tilsvarandi tölur frá í fyrra eru innan sviga. —Nýja dagbl. 5. marz. Bergenska eimskipafélagið ætlar að smiða hraðferðaskip til strand- ferða. Það verður um 2,000 smá- lestir og stærsta farþegaskip i strandferðum við Noreg. Ráðgert er að smíði þess verði lokið sumarið 1937- HON. E. A. McPHERSON, f j ármálaráðg jaf i Bracken-st j órnar. Fylkisþingið hefir nú afgreitt fjár- lögin að heita má í þvi formi, sem Mr. McPherson lagði þau fyrst fram. NÝ HERMDARVERK 1 ETHIÓPIU Símað er frá Addis Ababa þann 30. f. m., að hinn ítalski árásarher liafi því nær gereytt með sprengjum borginni Harar, sem var önnur stærsta borgin i Ethiópíu. Sagt er að meginþorri borgarbúa hafi flúið um þær mundir, er hin fyrstu eitur- flugbákn komu í augsýn. FRÁ MANITOBAÞINGINU Fylkisþingið hefir nú afgreitt fjárlögin ásamt flestum þeim megin málum, er það hafði til meðferðar. Þykir líklegt að ekki verði langt að biða þingslita úr þessu. Þingstört hafa yfir höfuð gengið greiðlega og samvinna flokkanna verið hin bezta. Þegar fylkisþingsins er minst, eru margir farnir að kalla það “friðar- þingið” i Manitoba. NORÐURÁLFUMÁLIN Á þeim vettvangi hefir fátt til tíð- inda borið frá því siðasta blað kom út; er helzt svo að sjá sem þar hvíli sama vafa og tortryggnis þokan yfir öllu, þó fremur megi ef til vill vænta að eitthvað fari samt að rofa til. Síðustu fregnir hníga í þá átt, að Hitler sé með nýtt öryggistilboð á ferðinni, og láti erindreka sinn, Joachim von Rippentroff skila þvi til Lundúna á næstunni. -VK VESTURVEGI” Kæri hr. ritstj. Lögbergs, Einar P. Jónson! Það eru nú ekki lengur fréttir, þó eg segi þér að veturinn hér í Vatna_ bygðum hafi verið bæði harður og langur. Eddu-fróðir menn voru farnir að spá Fimbulvetri, sumir lögðu trúnað á, og ekki útséð enn hvernig fer. En skömmu fyrir mán- aðamót febrúar og marz var vísan sú arna kveðin: Enn er hann að fenna og feykja Fönnum saman! Helju blökkum, hriða-letur Hristir af klökkum þessi vetur. Brá nú til hlýinda með byrjun marz, og leit vorlega út fram um miðjan mánuðinn. Var þá búið að stinga þessari vísu í salt; en þá sló í kulda um hríð og um s.l. helgi í uppihaldslausa ofanhríð og skaf- renning. Haldist nú þetta tíðarfar enn um hríð, væri gott að þú léðir þessu húsaskjól í Lögbergi, annars getur þú stungið því undir stól til næsta Fimbulvetrar! Með vinsemd, Jak. J. Norman. Ur borg og bygð Mr. J. B. Johnson frá Gimli var staddur í borginni um miðja viku á heimleið norðan frá Dauphin River þar sem hann stundaði fiskikaup í vetur. Mr. Thor Ellison frá Gimli, fram- kvæmdarstjóri Armstrong-Gimli útgerðarfélagsins, kom til borgar- innar í vikunni sem leið. The Junior Ladies’ Aid of the First Lutheran Church, Victor St., will hold an “Easter Tea” on Wednesday afternoon and evening, from 3 p.m. to 10 p.m., April 1561, in the church parlors. Details to be announced later. Mr. og Mrs. S. Indriðason og Mrs. Ingibjörg Thorson vilja þakka öllum sem á einn eða annan hátt ^sýndu samúð og hluttekning við frá. fall Súsönnu Indriðason. Sérstak- lega vilja þau þó þakka Dr. B. J. Brandson og Mr. og Mrs. Victor Jónasson, sem reyndust henni s’-o vel. Mr. G. J. Oleson lögregludómari frá Glenboro, kom til borgarinnar á laugardaginn var og dvaldi hér fram um miðja vikuna. Mr. Andrés Gíslason frá Hayland var staddur i borginni í vikunni sem leið. Mr. Jóhannes Baldvinsson frá Glenboro kom til borgarinnar um síðustu helgi. Mr. óg Mrs. Benedikt Heiðmann og Mr. Aðalgrímur Heiðmann frá Glenboro, voru stödd i borginni um síðustu helgi. Stórstúku embættismenn og stúk- an Hekla verða í heimboði hjá “Skuld” í kvöld. Búist er við mikl- um mannfagnaði.—G. J. Július Hansen Johnson, sonur Bjarna Johnsons á Lundar, dó þ. 18. marz, að heimili sínu á Lundar, 45 ára gamall. Hann var jarðsttng- inn af séra Jóhanni Fredriksson þ 22. marz frá lútersku kirkjunni að Lundar. Júlíusar heitins verður getið seinna. Mrs. Gróa Goodman varð bráð- kvödd að heimili sínu að Lundar, Man., mánudagskveldið þ. 23. f. m. Bróa h. var fædd að Hnausi í Flóa í Árnessýslu, árið 1854. Hún verðui- jörðuð frá lútersku kirkjunni að Lundar föstudaginn þ. 3. april kl. 1 e. h. Mr. H. B. Skaptason kaupmaðut frá Ashern, Man., var staddur i borginni á þriðjudaginn. Mr. Joseph Björn Skaptason, M.Sc., sonur þeirra Mr. og Mrs. H. B. Skaptason að Ashern, Man., leggur af stað suður til Cornell há- skólans í New York núna í viku- lokin, ásamt frú sinni. Þessi ungi mentamaður hóf nám sitt við Mani- tobaháskólann, en lauk námi við há- skólann í Alberta, B.Sc. og M.Sc. prófi í landbúnaðarfræði með hin- um ágætasta vitnisburði. Nú hefir hann fengið prófessorsstöðu við Cornell háskólann (Research De- partment) og gerir ráð fyrir að taka þar doktorsgráðuna i náinni fram- tíð. Alúðaróskir fjölda vina fylgja þessum ungu hjónum til hins nýja heimkynnis þeirra. Mr. Paul Bardal bæjarfulltrúi, kont heim siðastliðinn laugardag austan frá Montreal, þar sem hann hafði dvalið um hríð i erindum bæj- arstjórnarinnar. Mr. F. Stephenson framkvæmdar- stjóri Columbia Press Ltd., kom beitn úr tveggja mánaða ferðalagi ásamt frú sinni, á þriðjudagsmorg- uninn. Fóru þau fyrst vestur á Kyrrahafsströnd, þaðan til Mexic 1 City og suður um Panama. Nokkra claga dvöldu þau í New York, er úr siglingunni kom, en staðnæmdust svo um hríð í Toronto hjá dóttur sinni og tengdasyni, Mr. og Mrs. John David Eaton. Ferðin liafði að öllu leyti verið hin ánægjulegasta. Þau Stephenson hjón biðja Lögberg að flytja öllum þeim íslenzku vinum, er þau heimsóttu á ferðalaginu, inni- legt hjartans þakklæti fyrir ástúð- legar viðtökur. Jón Sigurðsonar félagið, I.O.D.E. heldur nsésta fund sinn á heimili Mrs. L. E. Summers, 204 Queens- ton St., River Hights á þriðjudags- kvöldið þann 7. apríl kl. 8. Mr. Ingvar Magnússon frá Wyn. yard, sem dvalið hefir í Caliento, Man., í vetur, lagt?i af stað vestur á miðvikudagskvöldið. Mr. Helgi Vigfússon frá TantaL lon, Sask., hefir dvalið i borginni nokkra undanfarna daga. Skemtifundur þjóðræknisdeildar- innar Frón, sem haldinn var í Good- templarahúsinu síðastliðið þriðju- dagskvöld var ágætlega sóttur, og skemtiskrá fjölbreytt og ánægjuleg. Séra Rúnólfur Marteinsson fór norður til Mikleyjar á laugardaginn var, til þess að jarðsyngja Mrs. Helgu Pálsson, er lézt á sunnudag- inn þann 22. marz síðastliðinn. Séra Rúnólfur kom heim aftur á mánu- daginn. SKUGGA-SVEINN Leikfélag Sambandssafnaðar í Winnipeg er nú að undirbúa hinn velþekta leik Matthiasar Jochums- sonar, Skugga-Svein. Þetta er eitt af hinum vinsælustu verkum skálds. ins, og hefir ávalt verið vel tekið, þó hann hafi verið sýndur oftar en nokkur annar leikur meðal íslend- inga hér. í tilefni af aldarafmæli Matthías- ar hefir leikfélagið tekið Skugga- Svein til meðferðar á þessum vetri, og er það vel viðeigandi. Til minn. ingar um skáldið var Skugga-Sveinn leikinn í margar vikur í vetur i Reykjavík, og alt af fyrir fullu húsi. Það eru nú nokkuð mörg ár síðan hann hefir verið sýndur hér í Win- nipeg, og má þvi búast við að ís- lendingar sitji sig ekki úr færi að njóta ánægjulegrar kvöldstundar með því að rif ja upp enn einu sinni söngvana og æfintýri útilegumann- anna, og ekki sizt, með leikfélaginu að minnast hundrað ára afmælis höfundarins. Skugga-Sveinn er æfintýra og söng leikur. Eru söngvarnir undir fögrum lögum og þeir út af fyrir sig eiga hlýjan reit í hjörtum íslend- inga. Ákveðið hefir verið að sýna leik- inn tvö kvöld, miðvikudags- og fimtudagskvöld þann 15. og 16. apríl. Nánar verður auglýst um leik- inn í næstu blöðum. B. E. J. Séra Jóhann Fredriksson frá Lundar, var staddur í borginni á þriðjudaginn. Kom hann norðan frá Langruth, þar sem hann flutti guðs. þjónustu á sunnudaginn var.

x

Lögberg

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.