Lögberg - 14.05.1936, Side 1
49. ÁBGrANGUR
WINNIPRG, MAN., FIMTUDAGINN 14. MAÍ, 1936
NÚMBR 20
+...
Kirkjuþing 1936
Hið fimtugasta og annað ársþing Hins evangeliska
lúterska kirkjufélags Islendinga í Vesturheimi verður
sett fimtudaginn 18. júní, 1936, í kirkju Ardalssafnaðar
í Árborg, Manitoba. Þingsetningarguðsþjónusta með
altarisgóngu liefst kl. 8 e. h. Búist er við að þingið
standi yfir þar til á þriðjudag 23. júní.
Söfnuðir kirkjufélagsins eru beðnir að senda erind-
reka á þingið eftir því sem ]>eim er heimilt að lögum.
Embættismenn og fastanefndir minnist þess að skýrsl-
ur ber að leggja fram Á fyrsta þingdegi.
Dagsett í Seattle, Wasli.,
8. maí, 1936
Kristinn K. Ölafsson,
forseti Kirkjufélagsins.
Frá Islandi
MAÐUR DRUKNAR
tÞVERA
Aðfaranótt 14. þ. m. vildi það slýs
til að Eyvindur Albertsson, ókvænt-
ur bóndi í Teigi í Fljótshlið, drukn-
aði í Þverá, skamt neðan við Mið-
kot.
Eyvindur var á heimleið 'sunnan
yfir ána, og er talið að hann muni
hafa farði af réttri leið vegna
dimmu, og lent í sandbleytu.
Hestur hans var kominn beislis-
laus heim að Teigi um morguninn
og var þá þegar farið að leita Ey-
vindar.
Fanst lík hans á eyri í ánni, fyrir
framan Miðkot, og reyndust lífgun-
artilraunir árangurslausar.
Evvindur heitinn bjó með full-
orðinni móður sinni, Salvöru Tóm-
asdóttur, á einum þriðja hluta af
Teigi.
Hann var 28 ára gamall.—Mbl.
16. apríl.
# # #
I.ÍK MANNS FUNDIÐ
UPP í FJALLSHLIÐ
Akureyri.
Lík Halls Steingrímssonar, sem
haldið var að druknað hefði í mann-
skaðaveðrinu 14. des. í vetur, fanst
í gær um 400 faðma upp af Knarr-
arnesi. Hefir Hallur sál. komist úr
bátnum og orðið úti.
Hallur heitinn fór með föður sín-
um frá Látrum á trillubát og lentu
þeir í fárviðrinu, sem geysaði um alt
land 14. desember.
Daginn eftir ofviðrið fanst bátur_
inn rekinn á svonefndu Knarrarnesi
og var lik Steingríms Hallgrímsson-
ar, föður Jlalls, í bátnum, en Hallur
fanst hvergi, og var hans þó leitað
lengi á eftir.
Likið fanst nú i dæld fyrir ofan
Knarrarnes og fyrir ofan veginn,
um 1 kílómetra frá sjó.
Lág það á grúfu og vissi höfuðið
undan brekkunni. Giska menn þvi
á að Hallur sál. hafi verið á leið
ofan hlíðina, er hann örmagnaðist.
Engin stígvél voru á líkinu, en i
klæðum þess fanst úr og var ^lasið
brotið. Vísirarnir á úrinu sýndu að
það hefði stöðvast kl. 6.
Líkið var flutt í Svalbarðskirkju.
—Mbl. 15. april.
# # #
C.OTT TIÐARPAR
Ágætt tíðarfar hefir verið á harð-
indasvæðinu austan lands og norðan
síðustu daga. Viða er komin upp
jörð og nokkur beit.
Víðast hvar eiga bændur enn eftir
nokkurn heyforða og eru menn
órðnir vongóðir um horfur, þrátt
fyrir öll harðindin í vetur.
FÚ. birtir eftirfarandi:
Fréttaritarinn að Ystafelli skýrir
frá því, að í Suður-Þingeyjarsýslu
hafi verið isólskin og blíðviðri und-
anfarna daga, en lítil leysing. Viða
er komin upp beitarsnöp, en víða er
enn jarðlaust. Bændur hafa von
um að komast af með hey, ef þessu
fer fram. Skepnuhöld eru góð.
Snjóbíllinn hefir undanfarið flutt
fóðurbætir í Bárðardal. — Hefir
hann farið nokkrar ferðir og flutt
20 vættir í hverri ferð.
Símastöðin að Víkingavatni í Ax-
arfjarðarhéraði sagði góða tíð hafa
verið í héraðinu undanfarna daga
og haga kominn upp. Stöðin sagði
bændur eiga nokkurn heyforða og
útlitið sæmilegt.—Mbl. 15. apríl.
# # #
BARN DRUKNAR
íSUNDLAUG
Það sorglega slys vildi til á ^nnan
í páskutn, að tveggja ára gamall
drengur, Bjarni sonur Sigurðar
Greipssonar íþróttaskólastjóra hjá
Geysi, druknaði í sundlauginni þar.
Drengurinn hafði farið út laust
fyrir hádegi og misti heimafólk
sjónar af honum um stund. Var þá
farið að leita að honum og fanst
hann örendur í sundlauginni, sem er
rétt hjá húsinu.
Faðir hans var ekki heima, hafði
skoppið út að Múla. Var nú símað
til hans undir eins og brá hann þeg-
ar við og var kominn heim eftir
stutta stund. Gerði hann allar þær
lífgunartilraunir á barninu, sem
hugsast gátu, en þær urðu árangurs.
lauisar.
En jafnframt því að símað var til
Sigurðar var símað að Mosfelli í
veg fyrir bil, sem var á suðurleið, og
hann beðinn að fara að Laugarási að
sækja lækni. Það gerði bílstjórinn,
en komst ekki lengra en að Múla
með lækninn, vegna þess að vegur-
inn þaðan að Geysi er ófær bílum.
Læknirinn hélt hiklaust áfram, en
þegar hann kom að Geysi var svo
langt um liðið frá því barnið ýatt í
laugina, að allar lífgunartilraunir
hans reyndust árangurslausar. —
Mbl. 15. apríl.
# # #
/
BARN ASKÓLAHÚS
BRENNUR
Keflavík.
Barnaskólahúsið í Hafnarhreppi
brann til kaldrd kola <s.l. nótt.
Eldsins varð vart um miðnætti.
Tvær konur, er voru að koma sunn-
an frá Kalmannstjörn, sáu eldinn
og er þær urðu hans varar, flýttu
þær sér til næstu bæja og vöktu upp
menn.
Þegar þeir komu á brunastaðinn,
kl. á fyrsta tímanum, var eldurinn
orðinn það magnaður, að ekki var
viðlit að slökkva, enda engin slökkvi
tæki til á staðnum og langt i vatns-
ból.
Aðkomumenn brutu rúður á skóla-
húsinu, til þess að reyna að bjarga
kensluáhöldum, en litlu einu varð
bjargað.
Ókunnugt er um upptök eldsins.
Á annan í páskum var haldið barna-
skólaprÖf í húsinu og fór skólastjóri
seinastur út, eða um kl. 9 um kvöld-
ið, en varð þá einskis var. Engin
íbúð var í húsinu.
Húsið, sem var einlyft timburhús,
4.-..—...—...—..—..—..—.»—...—-—...—...—»—...—»—-—"■—"■—"■—■■—■■—"■—-—■■—■■—“—H >
- ÚTVARP -
Almenningi í íslenzkmn bygðum er tilkynt, að
íslenzkri guðsþjónustu verður útvarpað frá
Fyrstu lútersku kirkju í Winnipeg sunnudag
inn 17. maí, kl. 7 e. h. k
var vátrygt hjá Brunabótafélagi
íslands. Það var 20—3o-ára gam-
alt, og eign hreppsins.
Kensluáhöld skólans voru vátrygð
að mestu, en bækur og áhöld skóla-
stjóra var óvátrygt.
Próf voru haldin í dag út af brun-
anum.—Mbl. 15. apríl.
# # #
70 MILJÓNA SKULDIR
OG ABYRGÐIR
Landsreikningurinn fyrir árið
1934 er nýkominn út. Eins og venja
er til, fylgir reikningnum skýrsla
um skuldir og ábyrgðir ríkisins, eins
og þær voru í árslok 1934.
Skuldir rikisins námu í árslok
1934 kr. 41,937,920.53.
Ag skuldum þessum verður rikið
sjálft að standa straum af kr. 28,-
482,078.80. En skuldir, sem ríkið
hefir tekið, en einstakar stofnanir
'ítanda straum af, nema alls kr. 13,-
455,841.73.
Ábyrgðir rikisins námu í árslok
1934 kr. 27,884,742.44.
Skuldir og ábyrgðir ríkisins námu
þannig til samans í árslok 1934 kr.
69,822,662.97, eða um 70 miljónum
króna.—Mbl. 12. apríl.
# # #
Nýlega er látin í Reykjavík, frú
Kirstín Blöndal, ekkja Ásgeirs heit.
Blöndals sem um eitt skeið var
læknir á Húsavík i Þingeyjarsýslu,
og síðar á Eyrarbakka.
ÁVABP TIL
FRÚ SIGRÍÐAR IIALL
(Við kveðjuathöfn í Winnipeg)
IIví ert þú á förum mín söngva
gyðjan góða
Hvert getur þú ei lengur snortið
hjarta strengi?
Hve fegin eg vildi lífmagn til þín
ljóða,
Sem lyft þér gæti yfir kaldlynt
jarðar mengi.
En þökk fyrir samúð, eg sakna
þinna hljóma,
Söngvar þinir til mín úr fjarlægð-
inni óma.
Svo marg-oft þú hefir sálir seitt úr
dvala
Og sungið þig inn að vina þinna
hjörtum;
Þig unga fyrst við litum á iðagræn,
um bala,
Þú áttir hugarrós, sem stráði geisl-
um björtum;
Ein var eg sem tilbað töfrahljóma
þína,
Þeir tóku strax til fósturs unga
vorþrá mína.
Ef mætti eg eitt laufblað leggja í
sigurkranzinn,
í lýrik mundi eg flétta rós á sumar.
degi,
Hvar ljósálfar smáir léttan stíga
dansinn
Og lifsblóm þín glansa yfir förnum
vegi,
Eg hvísla: Far þú vel, með vor-tón
þinna hljóma,
Til vina þinna söngvar úr f jarlægð-
inni óma.
Indo.
FL.IÖT FERÐ
Flugskipið þýzka, Hindenburg,
hefir flogið á milli Þýzkalands og
New York á sextíu og tveimur
klukkustundum. Hefir þetta afrek
sett nýtt met í flugsögu veraldar-
innar.
REFSISAMTÖK HALDAST
A fundi i framkvæmdarstjórn
Þjóðbandalagsins, höldnum í Gen-
eva síðastliðinn májnudag, var á-
kveðið að halda áfram refsisamtök.
unum eða viðskiftabanninu við
ítalíu vegna Ethiópíumálanna.
LÆTUR VEL AF FÖR
SINNI
Hon. John Bracken, forsætisráð-
herra Manitobafylkis, er nýkominn
austan frá Ottawa, þar sem hann saf
á ráðstefnu við smabandsstjórnina
viðvíkjandi atvinnubótum og at-
vinnuleysistyrk. Fékk erindi hans
hinar beztu undirtektir, sem ráða
má af þyí, að Sambandsstjórn hét
Manitoba $4,000,000 í fyrgreindu
augnamiði. Allmiklu af þessu fé
verður varið til vegabóta.
SÆMDUR DOKTORS
NAFNBÖT
Mr. Sanford Evans, fylkisþing-
maður og fyrrum borgarstjóri i
Winnipeg hefir veríð gerður að
heiðursdoktor í lögum af Manitoba-
háskólanum. Mælist þetta vafalaust
vel fyrir, þar sem Mr. Evans er
þjóðkunnur alhafna- og merkismað.
ur. . i
SAMBANDSÞINGIÐ
Umræðum utn fjárlagafrumvarpið
í Sambandsþinginu lauk á þriðju-
dagskveldið. Breytingartillögur bæði
frá Social Credit og C.C.F. flokk-
unutn voru feldar með öllum greidd-
um atkvæðum gömlu flokkanna,
liberala og conservatíva. Tillaga
C.C.F. manna, er í sér fól vantraust
á stjórninni, var feld með 210 at-
kvæðum gegn 8. Á móti henni
greiddu atkvæði liberal og Con-
servative þingmennirnir, svo og
Sociai Credit þingmennrinir allir.
Mr. E. A. Weir, fyrrum meðlirn-
Ur útvarpsráðs Canada-stjórnar,
hefir stungið upp á því við þing-
nefndina, sem um útvarpsmálin
f jallar, að breytt verði þannig til, að
settur verði einn útvarpsstjóri í stað
þess fimm manna útvarpsráðs, sem
nú er að verki.
Þingstörf hafa yfirhöfuð gengið
greitt, og samvinna mátt teljast hin
bezta.
MUSSOLINIINNLIMAR
ETHIÖPIU
Síða’Stliðinn laugardag gaf Mus-
solini út tilskipan þess efnis, að héð_
an í frá skuli Ethiópía vera óaðskilj-
anlegur hluti hins ítalska veldis.
Samtimis gerði hann heyrinkunnugt
að titill konungs skyldi þattnig breyt-
ast, að hann yrði konungur ítalíu og
keisari Ethiópíu. Ýfirlýsing þessi
vakti óhemju fögnuð um gervalla
ftalíu að því er símfregnir herma.
FLUGKÖPPUM FAGNAfí
Um síðustu helgi komu hingað til
borgarinnar canadisku flugkapparn-
ir úr leiðangri Lincolns Ellsworth,
þeir Keneyon, Lymburner og How-
ard. Var þeim fagnað af hálfu
fylkis. og bæjarstjórnar. Á þriðju-
dagskveldið hélt blaðamannafélag
Winnipegborgar þeim samsæti á
Royal Alexandra hótelinu, og gerði
þá að heiðursmeðlimum félagsins.
FORNMENJAF UN DUR
1NOREGI
Merkar menjar frá fornöld fund-
ust þann 15. apríl síðastliðinn mán-
uð á búgarðinum Austreim í
Skaare, eigi alllangt frá svonefndri
Haraldsstyttu. Fanst þar neðan-
jarðargrafreitur eða haugur, er ver.
ið var að plægja. í byrginu fanst
meðal annars öskuker með ýmis-
konar skrauti. Kerið var heilt og
hefir varðveizt vel. Nákvæm rann-
sókn viðvíkjandi aldri þess hefir enn
eigi farið fram.
REKNIR ÚR FLOKKI
Sex menn, þar á meðal einn
prestur, Ben Spence að nafni, hafa
verið reknir úr C.C.F. flokknum í
Toronto, fyrir það að taka ’þátt i
kröfugörigu, sent þar fór fram þann
I. þ. m.
Gr borg og bygð
Mrs. B. Johnson frá Glenboro
hefir dvalið í borginni undanfarið
ásamt tveim dætrum isínum, Ellen
og Margréti.
Mrs. Tryggvi Arason Urá Glen-
boro kom til borgarinnar um helg-
ina sem var.
Mr. og Mrs. Jónas Anderson frá
Cypress River, komu til borgarinnar
seinni part vikunnar sem leið.
Mr. J. Ragnar Johnson, lögfræð-
ingur frá Toronto, kom til borgar-
innar í vikulokin síðustu ásamt frú
sinni í heimsókn til foreldra sinna,
Mr. og Mrs. Finnur Johnson.
Mr. J. Walter Jóhannsson, um-
boðsntaður New York Life In-
surance félagsins fór suður til De-
troit Lakes síðastliðinn föstudag á-
samt frú sinni, til þess að sitja þar
fund, er umboðsmenn félagsins
víðsvegar að áttu með sér. Þau Mr.
og Mrs. Jóhannsson komu heim aft-
ur á sunnudagskvöldið.
Frú Anna Ottenson er nýlega
komin heitri eftir því nær ársdvöl
hjá börnum sínum í Californíu.
Þær systurnar Mrs. Guðmundur
Christie og Mrs. Halldór Jóhanns-
son lögðu af stað í skemtiferð til
Islands á mánudaginn og munu
dvelja heima fram undir haustið.
Til borgarinnar kom í öndverðri
fyrri viku hr. Vilhjálmur Þór, for-
stjóri Kaupfélags Eyfirðinga. Kom
hann til Vesturheims, eins og þegar
hefir verið getið um, í erindum fyr-
ir Síldareinkasölu hins islenzka rík-
is. Vilhjálmur lagði af stað héðan
áleiðis til New York á sunnudags-
kveldið.
Eins og auglýst er hér í blaðinu
verður Hátíðar-kantata Jóns Frið-
finnssonar endursungin í Fyrstu
lútersku kirkju á miðvikudagskveld-
ið þann 20. þ. m. Má óhætt gera
ráð' fyrir mikilli aðsókn, því það er
ekki á hverjum degi, sem Islending-
um veitist kostur á að verða jafn
.ttppbyggilegrar skemtunar aðnjót-
andi.
Mr. Thor. Ellison, framkvæmdar-
stjóri við Armstrong-Gimli Fish-
eries, var staddur í borginni á
ntánudaginn.
Mr. Vilhjálmur Árnason frá
Gimli kom til borgarinnar snöggva
ferð á mánudaginn.
Mr. Sigurður Torfason frá Gimli,
kom til borgarinnar síðastliðinn
laugardag.
Fermingarguðsþjónttsta Vikur-
safnaðar í Mountain, N. Dak., fór
fram í kirkju safnaðarins mæðra-
daginn 10. maí kl. 2.30 e. h. Við
Guðsþjónustu þessa var afarmikið
f jölmenni. Fór hún hið bezta fram.
Söngur var ágætur, meðal annars
sungu f jórir ungir menn á Mountain
fjórsöng til hátíðabrigðis. Tuttugu
og þrjú ungmenni voru fermd við
guðsþjónustu þessa. Altarisgöngu
---+
safnaðarins, sem höfð var eftir
ferminguna, sóttu nokkuð á annað
hundrað manns.
1 fyrri viku komu til borgarinn-
ar séra N. Stgr. Thorláksson og frú,
séra Haraldur Sigmar, frú hans og
sonur, Mrs. Eirikka Eastvold og
Miss Anna Holck frá Oslo, systur-
dóttir frú Thorlaksson, er vestur
kom í mánaðar-heimsókn til móður-
systur sinnar og annara frænda.—
Mr. og Mrs. G. J. Oleson frá
Glenboro komu til borgarinnar á
þriðjudagskvöldið.
MANNÚDARMAL
Aldurhniginn Islendingur, Teitur
Sigurðsson að nafni, búsettur i
Wynyard, Sask., áður til heimilis í
Winnipeg, og í Selkirk, Man., hefir
snúið sér til Jóns Sigurðssonar fé-
lagsins, í sambandi við fjárhagsleg-
an stuðning til þess að útvega dótt-
ursyni sínum, Allan Leask, er misti
hægri hendi af slysi síðastliðið
haust, gerfihendi. Piltur sá, er hér
á hlut að máli, er rúmlega tvítugur
að aldri. Faðir hans tók þátt í
heimsstyrjöldinni miklu og stendur
pilturinn nú uppi föður og móður-
laus. Vinir Mr. Sigurðssonar hafa
þegar skotið saman $50.00, til þess
að létta undir með honum við að fá
gerfihendi, en kostnaðurinn allur
mun nema um $200.00. Vitandi hve
Islendingar eru fljótir til og hjálp-
fúsir, þegar landar þeirra þurfa ein-
hvers við, leyfum við okkur að leita
til þeirra um hjálp handa þessum
unga manni.
Við undirritaðar veitum tillögum
þessu viðvíkjandi móttöku,, og
kvittum fyrir í islenzku blöðunum
Fyrir hönd Jóns Sigurðssonar fé-
lagsins, I.O.D.E.:
Mrs. J. B. Skaptason,
378 Maryland St.
Mrs. B. S. Benson,
695 Sargent Ave.
A sunnudagsmorguninn keyrðu
þau Mr. og Mrs. L. H. Thorlakson,
Sigrún og George Sigmar og Mrs.
Lára Burns frá Winnipeg til Moun-
tain, til að vera við fermingu frænda
síns Eric Halfdan Sigmar. Stönz-
uðu þau stundarkorn á prestssetrinu
á Mountain, bæði fyrír og eftir
messuna, en hurfu svo heim aftur
santdægurs.
Athygli er hér með dregin að aug-
lýsingu um hinn vinsæla sjónleik
“.Efintýri á gönguför” er verður
sýndur í Nýja íslandi í hinum næstu
vikum. Vandað hefir verið til æf-
inga og alls útbúnaðar. Leikurinn
verður leikinn af hinum vinsæla
leikflokki frá Árborg. Búast má
við miklu fjölmenni.
MERKUR BLAÐAMAfíUR
LATINN.
Þann 12. þ. m., varð bráðkvadd-
ur í Victoria, B.C., Robert J. Cro-
mie, eigandi blaðsins Vancouver
Sun, einn af áhrifamestu blaða-
mönnum hinnar canadisku þjóðar,
tæplega fimtugur að aldri. Mr.
Croniie var maður víðförull og þótti
'að sama skapi viðfróður i heims-
pólitik.