Lögberg - 14.05.1936, Blaðsíða 1

Lögberg - 14.05.1936, Blaðsíða 1
49. ÁBGrANGUR WINNIPRG, MAN., FIMTUDAGINN 14. MAÍ, 1936 NÚMBR 20 +... Kirkjuþing 1936 Hið fimtugasta og annað ársþing Hins evangeliska lúterska kirkjufélags Islendinga í Vesturheimi verður sett fimtudaginn 18. júní, 1936, í kirkju Ardalssafnaðar í Árborg, Manitoba. Þingsetningarguðsþjónusta með altarisgóngu liefst kl. 8 e. h. Búist er við að þingið standi yfir þar til á þriðjudag 23. júní. Söfnuðir kirkjufélagsins eru beðnir að senda erind- reka á þingið eftir því sem ]>eim er heimilt að lögum. Embættismenn og fastanefndir minnist þess að skýrsl- ur ber að leggja fram Á fyrsta þingdegi. Dagsett í Seattle, Wasli., 8. maí, 1936 Kristinn K. Ölafsson, forseti Kirkjufélagsins. Frá Islandi MAÐUR DRUKNAR tÞVERA Aðfaranótt 14. þ. m. vildi það slýs til að Eyvindur Albertsson, ókvænt- ur bóndi í Teigi í Fljótshlið, drukn- aði í Þverá, skamt neðan við Mið- kot. Eyvindur var á heimleið 'sunnan yfir ána, og er talið að hann muni hafa farði af réttri leið vegna dimmu, og lent í sandbleytu. Hestur hans var kominn beislis- laus heim að Teigi um morguninn og var þá þegar farið að leita Ey- vindar. Fanst lík hans á eyri í ánni, fyrir framan Miðkot, og reyndust lífgun- artilraunir árangurslausar. Evvindur heitinn bjó með full- orðinni móður sinni, Salvöru Tóm- asdóttur, á einum þriðja hluta af Teigi. Hann var 28 ára gamall.—Mbl. 16. apríl. # # # I.ÍK MANNS FUNDIÐ UPP í FJALLSHLIÐ Akureyri. Lík Halls Steingrímssonar, sem haldið var að druknað hefði í mann- skaðaveðrinu 14. des. í vetur, fanst í gær um 400 faðma upp af Knarr- arnesi. Hefir Hallur sál. komist úr bátnum og orðið úti. Hallur heitinn fór með föður sín- um frá Látrum á trillubát og lentu þeir í fárviðrinu, sem geysaði um alt land 14. desember. Daginn eftir ofviðrið fanst bátur_ inn rekinn á svonefndu Knarrarnesi og var lik Steingríms Hallgrímsson- ar, föður Jlalls, í bátnum, en Hallur fanst hvergi, og var hans þó leitað lengi á eftir. Likið fanst nú i dæld fyrir ofan Knarrarnes og fyrir ofan veginn, um 1 kílómetra frá sjó. Lág það á grúfu og vissi höfuðið undan brekkunni. Giska menn þvi á að Hallur sál. hafi verið á leið ofan hlíðina, er hann örmagnaðist. Engin stígvél voru á líkinu, en i klæðum þess fanst úr og var ^lasið brotið. Vísirarnir á úrinu sýndu að það hefði stöðvast kl. 6. Líkið var flutt í Svalbarðskirkju. —Mbl. 15. april. # # # C.OTT TIÐARPAR Ágætt tíðarfar hefir verið á harð- indasvæðinu austan lands og norðan síðustu daga. Viða er komin upp jörð og nokkur beit. Víðast hvar eiga bændur enn eftir nokkurn heyforða og eru menn órðnir vongóðir um horfur, þrátt fyrir öll harðindin í vetur. FÚ. birtir eftirfarandi: Fréttaritarinn að Ystafelli skýrir frá því, að í Suður-Þingeyjarsýslu hafi verið isólskin og blíðviðri und- anfarna daga, en lítil leysing. Viða er komin upp beitarsnöp, en víða er enn jarðlaust. Bændur hafa von um að komast af með hey, ef þessu fer fram. Skepnuhöld eru góð. Snjóbíllinn hefir undanfarið flutt fóðurbætir í Bárðardal. — Hefir hann farið nokkrar ferðir og flutt 20 vættir í hverri ferð. Símastöðin að Víkingavatni í Ax- arfjarðarhéraði sagði góða tíð hafa verið í héraðinu undanfarna daga og haga kominn upp. Stöðin sagði bændur eiga nokkurn heyforða og útlitið sæmilegt.—Mbl. 15. apríl. # # # BARN DRUKNAR íSUNDLAUG Það sorglega slys vildi til á ^nnan í páskutn, að tveggja ára gamall drengur, Bjarni sonur Sigurðar Greipssonar íþróttaskólastjóra hjá Geysi, druknaði í sundlauginni þar. Drengurinn hafði farið út laust fyrir hádegi og misti heimafólk sjónar af honum um stund. Var þá farið að leita að honum og fanst hann örendur í sundlauginni, sem er rétt hjá húsinu. Faðir hans var ekki heima, hafði skoppið út að Múla. Var nú símað til hans undir eins og brá hann þeg- ar við og var kominn heim eftir stutta stund. Gerði hann allar þær lífgunartilraunir á barninu, sem hugsast gátu, en þær urðu árangurs. lauisar. En jafnframt því að símað var til Sigurðar var símað að Mosfelli í veg fyrir bil, sem var á suðurleið, og hann beðinn að fara að Laugarási að sækja lækni. Það gerði bílstjórinn, en komst ekki lengra en að Múla með lækninn, vegna þess að vegur- inn þaðan að Geysi er ófær bílum. Læknirinn hélt hiklaust áfram, en þegar hann kom að Geysi var svo langt um liðið frá því barnið ýatt í laugina, að allar lífgunartilraunir hans reyndust árangurslausar. — Mbl. 15. apríl. # # # / BARN ASKÓLAHÚS BRENNUR Keflavík. Barnaskólahúsið í Hafnarhreppi brann til kaldrd kola <s.l. nótt. Eldsins varð vart um miðnætti. Tvær konur, er voru að koma sunn- an frá Kalmannstjörn, sáu eldinn og er þær urðu hans varar, flýttu þær sér til næstu bæja og vöktu upp menn. Þegar þeir komu á brunastaðinn, kl. á fyrsta tímanum, var eldurinn orðinn það magnaður, að ekki var viðlit að slökkva, enda engin slökkvi tæki til á staðnum og langt i vatns- ból. Aðkomumenn brutu rúður á skóla- húsinu, til þess að reyna að bjarga kensluáhöldum, en litlu einu varð bjargað. Ókunnugt er um upptök eldsins. Á annan í páskum var haldið barna- skólaprÖf í húsinu og fór skólastjóri seinastur út, eða um kl. 9 um kvöld- ið, en varð þá einskis var. Engin íbúð var í húsinu. Húsið, sem var einlyft timburhús, 4.-..—...—...—..—..—..—.»—...—-—...—...—»—...—»—-—"■—"■—"■—■■—■■—"■—-—■■—■■—“—H > - ÚTVARP - Almenningi í íslenzkmn bygðum er tilkynt, að íslenzkri guðsþjónustu verður útvarpað frá Fyrstu lútersku kirkju í Winnipeg sunnudag inn 17. maí, kl. 7 e. h. k var vátrygt hjá Brunabótafélagi íslands. Það var 20—3o-ára gam- alt, og eign hreppsins. Kensluáhöld skólans voru vátrygð að mestu, en bækur og áhöld skóla- stjóra var óvátrygt. Próf voru haldin í dag út af brun- anum.—Mbl. 15. apríl. # # # 70 MILJÓNA SKULDIR OG ABYRGÐIR Landsreikningurinn fyrir árið 1934 er nýkominn út. Eins og venja er til, fylgir reikningnum skýrsla um skuldir og ábyrgðir ríkisins, eins og þær voru í árslok 1934. Skuldir rikisins námu í árslok 1934 kr. 41,937,920.53. Ag skuldum þessum verður rikið sjálft að standa straum af kr. 28,- 482,078.80. En skuldir, sem ríkið hefir tekið, en einstakar stofnanir 'ítanda straum af, nema alls kr. 13,- 455,841.73. Ábyrgðir rikisins námu í árslok 1934 kr. 27,884,742.44. Skuldir og ábyrgðir ríkisins námu þannig til samans í árslok 1934 kr. 69,822,662.97, eða um 70 miljónum króna.—Mbl. 12. apríl. # # # Nýlega er látin í Reykjavík, frú Kirstín Blöndal, ekkja Ásgeirs heit. Blöndals sem um eitt skeið var læknir á Húsavík i Þingeyjarsýslu, og síðar á Eyrarbakka. ÁVABP TIL FRÚ SIGRÍÐAR IIALL (Við kveðjuathöfn í Winnipeg) IIví ert þú á förum mín söngva gyðjan góða Hvert getur þú ei lengur snortið hjarta strengi? Hve fegin eg vildi lífmagn til þín ljóða, Sem lyft þér gæti yfir kaldlynt jarðar mengi. En þökk fyrir samúð, eg sakna þinna hljóma, Söngvar þinir til mín úr fjarlægð- inni óma. Svo marg-oft þú hefir sálir seitt úr dvala Og sungið þig inn að vina þinna hjörtum; Þig unga fyrst við litum á iðagræn, um bala, Þú áttir hugarrós, sem stráði geisl- um björtum; Ein var eg sem tilbað töfrahljóma þína, Þeir tóku strax til fósturs unga vorþrá mína. Ef mætti eg eitt laufblað leggja í sigurkranzinn, í lýrik mundi eg flétta rós á sumar. degi, Hvar ljósálfar smáir léttan stíga dansinn Og lifsblóm þín glansa yfir förnum vegi, Eg hvísla: Far þú vel, með vor-tón þinna hljóma, Til vina þinna söngvar úr f jarlægð- inni óma. Indo. FL.IÖT FERÐ Flugskipið þýzka, Hindenburg, hefir flogið á milli Þýzkalands og New York á sextíu og tveimur klukkustundum. Hefir þetta afrek sett nýtt met í flugsögu veraldar- innar. REFSISAMTÖK HALDAST A fundi i framkvæmdarstjórn Þjóðbandalagsins, höldnum í Gen- eva síðastliðinn májnudag, var á- kveðið að halda áfram refsisamtök. unum eða viðskiftabanninu við ítalíu vegna Ethiópíumálanna. LÆTUR VEL AF FÖR SINNI Hon. John Bracken, forsætisráð- herra Manitobafylkis, er nýkominn austan frá Ottawa, þar sem hann saf á ráðstefnu við smabandsstjórnina viðvíkjandi atvinnubótum og at- vinnuleysistyrk. Fékk erindi hans hinar beztu undirtektir, sem ráða má af þyí, að Sambandsstjórn hét Manitoba $4,000,000 í fyrgreindu augnamiði. Allmiklu af þessu fé verður varið til vegabóta. SÆMDUR DOKTORS NAFNBÖT Mr. Sanford Evans, fylkisþing- maður og fyrrum borgarstjóri i Winnipeg hefir veríð gerður að heiðursdoktor í lögum af Manitoba- háskólanum. Mælist þetta vafalaust vel fyrir, þar sem Mr. Evans er þjóðkunnur alhafna- og merkismað. ur. . i SAMBANDSÞINGIÐ Umræðum utn fjárlagafrumvarpið í Sambandsþinginu lauk á þriðju- dagskveldið. Breytingartillögur bæði frá Social Credit og C.C.F. flokk- unutn voru feldar með öllum greidd- um atkvæðum gömlu flokkanna, liberala og conservatíva. Tillaga C.C.F. manna, er í sér fól vantraust á stjórninni, var feld með 210 at- kvæðum gegn 8. Á móti henni greiddu atkvæði liberal og Con- servative þingmennirnir, svo og Sociai Credit þingmennrinir allir. Mr. E. A. Weir, fyrrum meðlirn- Ur útvarpsráðs Canada-stjórnar, hefir stungið upp á því við þing- nefndina, sem um útvarpsmálin f jallar, að breytt verði þannig til, að settur verði einn útvarpsstjóri í stað þess fimm manna útvarpsráðs, sem nú er að verki. Þingstörf hafa yfirhöfuð gengið greitt, og samvinna mátt teljast hin bezta. MUSSOLINIINNLIMAR ETHIÖPIU Síða’Stliðinn laugardag gaf Mus- solini út tilskipan þess efnis, að héð_ an í frá skuli Ethiópía vera óaðskilj- anlegur hluti hins ítalska veldis. Samtimis gerði hann heyrinkunnugt að titill konungs skyldi þattnig breyt- ast, að hann yrði konungur ítalíu og keisari Ethiópíu. Ýfirlýsing þessi vakti óhemju fögnuð um gervalla ftalíu að því er símfregnir herma. FLUGKÖPPUM FAGNAfí Um síðustu helgi komu hingað til borgarinnar canadisku flugkapparn- ir úr leiðangri Lincolns Ellsworth, þeir Keneyon, Lymburner og How- ard. Var þeim fagnað af hálfu fylkis. og bæjarstjórnar. Á þriðju- dagskveldið hélt blaðamannafélag Winnipegborgar þeim samsæti á Royal Alexandra hótelinu, og gerði þá að heiðursmeðlimum félagsins. FORNMENJAF UN DUR 1NOREGI Merkar menjar frá fornöld fund- ust þann 15. apríl síðastliðinn mán- uð á búgarðinum Austreim í Skaare, eigi alllangt frá svonefndri Haraldsstyttu. Fanst þar neðan- jarðargrafreitur eða haugur, er ver. ið var að plægja. í byrginu fanst meðal annars öskuker með ýmis- konar skrauti. Kerið var heilt og hefir varðveizt vel. Nákvæm rann- sókn viðvíkjandi aldri þess hefir enn eigi farið fram. REKNIR ÚR FLOKKI Sex menn, þar á meðal einn prestur, Ben Spence að nafni, hafa verið reknir úr C.C.F. flokknum í Toronto, fyrir það að taka ’þátt i kröfugörigu, sent þar fór fram þann I. þ. m. Gr borg og bygð Mrs. B. Johnson frá Glenboro hefir dvalið í borginni undanfarið ásamt tveim dætrum isínum, Ellen og Margréti. Mrs. Tryggvi Arason Urá Glen- boro kom til borgarinnar um helg- ina sem var. Mr. og Mrs. Jónas Anderson frá Cypress River, komu til borgarinnar seinni part vikunnar sem leið. Mr. J. Ragnar Johnson, lögfræð- ingur frá Toronto, kom til borgar- innar í vikulokin síðustu ásamt frú sinni í heimsókn til foreldra sinna, Mr. og Mrs. Finnur Johnson. Mr. J. Walter Jóhannsson, um- boðsntaður New York Life In- surance félagsins fór suður til De- troit Lakes síðastliðinn föstudag á- samt frú sinni, til þess að sitja þar fund, er umboðsmenn félagsins víðsvegar að áttu með sér. Þau Mr. og Mrs. Jóhannsson komu heim aft- ur á sunnudagskvöldið. Frú Anna Ottenson er nýlega komin heitri eftir því nær ársdvöl hjá börnum sínum í Californíu. Þær systurnar Mrs. Guðmundur Christie og Mrs. Halldór Jóhanns- son lögðu af stað í skemtiferð til Islands á mánudaginn og munu dvelja heima fram undir haustið. Til borgarinnar kom í öndverðri fyrri viku hr. Vilhjálmur Þór, for- stjóri Kaupfélags Eyfirðinga. Kom hann til Vesturheims, eins og þegar hefir verið getið um, í erindum fyr- ir Síldareinkasölu hins islenzka rík- is. Vilhjálmur lagði af stað héðan áleiðis til New York á sunnudags- kveldið. Eins og auglýst er hér í blaðinu verður Hátíðar-kantata Jóns Frið- finnssonar endursungin í Fyrstu lútersku kirkju á miðvikudagskveld- ið þann 20. þ. m. Má óhætt gera ráð' fyrir mikilli aðsókn, því það er ekki á hverjum degi, sem Islending- um veitist kostur á að verða jafn .ttppbyggilegrar skemtunar aðnjót- andi. Mr. Thor. Ellison, framkvæmdar- stjóri við Armstrong-Gimli Fish- eries, var staddur í borginni á ntánudaginn. Mr. Vilhjálmur Árnason frá Gimli kom til borgarinnar snöggva ferð á mánudaginn. Mr. Sigurður Torfason frá Gimli, kom til borgarinnar síðastliðinn laugardag. Fermingarguðsþjónttsta Vikur- safnaðar í Mountain, N. Dak., fór fram í kirkju safnaðarins mæðra- daginn 10. maí kl. 2.30 e. h. Við Guðsþjónustu þessa var afarmikið f jölmenni. Fór hún hið bezta fram. Söngur var ágætur, meðal annars sungu f jórir ungir menn á Mountain fjórsöng til hátíðabrigðis. Tuttugu og þrjú ungmenni voru fermd við guðsþjónustu þessa. Altarisgöngu ---+ safnaðarins, sem höfð var eftir ferminguna, sóttu nokkuð á annað hundrað manns. 1 fyrri viku komu til borgarinn- ar séra N. Stgr. Thorláksson og frú, séra Haraldur Sigmar, frú hans og sonur, Mrs. Eirikka Eastvold og Miss Anna Holck frá Oslo, systur- dóttir frú Thorlaksson, er vestur kom í mánaðar-heimsókn til móður- systur sinnar og annara frænda.— Mr. og Mrs. G. J. Oleson frá Glenboro komu til borgarinnar á þriðjudagskvöldið. MANNÚDARMAL Aldurhniginn Islendingur, Teitur Sigurðsson að nafni, búsettur i Wynyard, Sask., áður til heimilis í Winnipeg, og í Selkirk, Man., hefir snúið sér til Jóns Sigurðssonar fé- lagsins, í sambandi við fjárhagsleg- an stuðning til þess að útvega dótt- ursyni sínum, Allan Leask, er misti hægri hendi af slysi síðastliðið haust, gerfihendi. Piltur sá, er hér á hlut að máli, er rúmlega tvítugur að aldri. Faðir hans tók þátt í heimsstyrjöldinni miklu og stendur pilturinn nú uppi föður og móður- laus. Vinir Mr. Sigurðssonar hafa þegar skotið saman $50.00, til þess að létta undir með honum við að fá gerfihendi, en kostnaðurinn allur mun nema um $200.00. Vitandi hve Islendingar eru fljótir til og hjálp- fúsir, þegar landar þeirra þurfa ein- hvers við, leyfum við okkur að leita til þeirra um hjálp handa þessum unga manni. Við undirritaðar veitum tillögum þessu viðvíkjandi móttöku,, og kvittum fyrir í islenzku blöðunum Fyrir hönd Jóns Sigurðssonar fé- lagsins, I.O.D.E.: Mrs. J. B. Skaptason, 378 Maryland St. Mrs. B. S. Benson, 695 Sargent Ave. A sunnudagsmorguninn keyrðu þau Mr. og Mrs. L. H. Thorlakson, Sigrún og George Sigmar og Mrs. Lára Burns frá Winnipeg til Moun- tain, til að vera við fermingu frænda síns Eric Halfdan Sigmar. Stönz- uðu þau stundarkorn á prestssetrinu á Mountain, bæði fyrír og eftir messuna, en hurfu svo heim aftur santdægurs. Athygli er hér með dregin að aug- lýsingu um hinn vinsæla sjónleik “.Efintýri á gönguför” er verður sýndur í Nýja íslandi í hinum næstu vikum. Vandað hefir verið til æf- inga og alls útbúnaðar. Leikurinn verður leikinn af hinum vinsæla leikflokki frá Árborg. Búast má við miklu fjölmenni. MERKUR BLAÐAMAfíUR LATINN. Þann 12. þ. m., varð bráðkvadd- ur í Victoria, B.C., Robert J. Cro- mie, eigandi blaðsins Vancouver Sun, einn af áhrifamestu blaða- mönnum hinnar canadisku þjóðar, tæplega fimtugur að aldri. Mr. Croniie var maður víðförull og þótti 'að sama skapi viðfróður i heims- pólitik.

x

Lögberg

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.