Lögberg - 21.05.1936, Qupperneq 1
49. ÁRGANGUR
WINNIPEG, MAN., FIMTUDAGINN 21. MAl, 1936.
/
OLOF ANNA JONASSON,
B.Sc.
Þessi bráðvelgefna og glæsilega
stúlka, sem nýlokið hefir prófi í
Home Economics viÖ Manitobahá-
skólann með hárri fyr.stu einkunn,
er dóttir þeirra merkishjónanna
Einars heitins Jónassonar, er um
eitt skeið var þingmaður Gimli kjör-
dæmis og frú Önnu Jónasson, dóttur
þeirra Mr. og Mrs. Peter Tergesen
á Gimli. Olof Anna er fædd á
Gimli þann 18. október 1916.
• ___________________
A T VINNUMÁLANEFND
SKIPUÐ
Þann 15. þessa mánaðar lýsti
verkamálaráðherrann, Hon. Nor-
man Rogers yfir því í sambands-
þinginu að stjórnin hefði með tilliji
til loforða frjálslynda flokksins fyr-
ir síðustu sambandskosningar, skip.
að alþjóðarnefnd atvinnumálum
þjóðarinnar viðvíkjandi. Nefndin
er þannig samsett: Arthur B.
Purvis, Montreal, forseti; A. N.
McLean, Black’s Harbor, N.B.;
Alfred Marois, Quebec; Tom
Moore, Ottawa; Mrs. Mary M.
Sutherland, Wells, B.C.; W. A.
Mackintosh, Kingston, Ont., og E.
J. Young, Dummer, Sask.
Nefnd þessi er alveg áreiðanlega
vel rnönnuð. Forsetinn Mr. Purvis,
víðkunnur ágætismaður, Tom
Moore þjóðkunnur sem forseti
Canadian Trades and Labor Con-
gress um langt ára skeið og Mr.
Young, fyrrum sambandsþingmað-
ur fyrir Weyburn kjördæmið í Sas-
katchewan, mikilsvirtur atgerfis-
vnaður. Vel hlýtur það að mælast
fyrir, að kona skyldi hljóta sæti í
þessari þýðingarmiklu nefnd.
í niðurlagi fæðu sinnar nefndar-
skipuninni viðvíkjandi, komst Mr.
Rogers þannig að orði:
“Stjórnin er sannfærð um það,
og svo er hin nýja atvinnumála-
nefnd, að þjóðin sé nú að verða fær
um að hrista af sér hlekki krepp-
unnar og ganga fagnandi til verks
gegn nýjum degi.
VERÐUR BRÁÐKVADDUR
Mr. Benjamin Charles Nicholas,
ritstjóri blaðsins Victoria Daily
Times, sem gefið er út í borginni
Victoria í British Columbia fylki,
varð bráðkvaddur á skrifstofu sinni
síðastliðinn þriðjudag; imætur mað.
ur og mikilsvirtur frekra fimtiu ára
gamall.
STINGUR TJPP A SAMEIN-
INGU CANADA OG
BANDARIKJANNA
Neðri málstofu þingmaður i þjóð.
þingi Bandaríkjanna, William T.
Sirovitch, demokrat frá N. Y., bar
nýlega fram tillögu til þingsálykt-
unar um það, að kosin yrði þing-
nefnd, er það verkefni hefði með
höndum, að kynna sér skilyrðin fyr-
ir sameiningu Canada og Bandaríkj-
anna og þann hagnað, er af slíku
mætti leiða hvorri þjóðinni um sig
til handa.
HARALDUR EGILL
GISLASON, M.D.
Nýlokið hefir læknaprófi við há-
skóla Manitobafylkis, Haraldur
Egill Gíslason, með hinum ágætasta
vitiýsburði. Er hann sonur þeirra
Guðmundar F. Gíslasonar og frú
íngibjargar Gíslason, er heima eiga
í Vancouver. Haraldur er. hinn
mannvænlegasti maður og líklegur
til góðs frama.
-----/--------
ALLENBY LÁVARÐUB
LÁTINN
Hinn 14. þ. m. lézt í London lá-
varður Allenby, sá er hafði með
höndum umboðsmannsembætti af
hálfu Bretastjórnar á Egyptalandi
frá 1919 til 1925 og frægur varð
fyrir afskifti sin af Palestínumál-
unum meðan á heimsstyrjöldinni
stóð. Hann var 75 ára að aldri.
TJÁIST IILYNTUR VOPNA-
TAKMÖRKUN
Simað er frá París þann 19. þ. m.,
að Leon Blum, sá er við völdum
tekur á Frakklandi þann 1. júní
næstkomandí, sé því eindregið
fylgjandi, að kvatt verði til alþjóða.
fundar í nálægri framtíð viðvíkj-
andi takmörkun vígvárna. Fylgir
það sögunni, að hann hafi þegar ráð-
fært sig við Anthony Eden utanrík.
isráðgjafa Breta um þetta efni.
TYRKNESKT SKYR
I AMERIKU
Tyrkir búa til skyr eins og Is-
lendingar, og þeir hafa flutt aðferð-
ina með sér til Ameriku, þar sem
hún hefir breiðst svo út, að þétti
fæst þar keyptur í búðum, og er þá
auðvitað í pillu- eða plötu-formi að
ameriskum sið.
Tyrkir eru mestu snillingar í
skyrgerð, og nota það á ýmsa vegu,
t. d. í stað sósu á kjöt og grænmeti
og setja þá í það salt og pipar. Þá
borða þeir það með sykri, líkt og
íslendingar, en þó án mjólkur. Loks
nota þeir það til drykkjar og blanda
það til helminga með vatni, en slík-
ur siður var líka alþektur hér á ís-
landi í gaimla daga.
Tyrkir búa til fleiri en eina teg-
und skyrs. Ein er það, að sjóða
niður mjólkina um alt að 3/4 af
efnismagni, og verður skyrið þá svo
þykt, að éta má það með hnif og
gaffli.
Hvar sem skyr er notað, þykir
það hin hollasta fæða. Tyrkneska
namið á skyri er “Yogurt.”
Frá Islandi
FRO PETREA
ÞO RSTEINSDÓTTIR
kona sr. Sigfúsar Jónssonar alþing.
ismanns, andaðist að heimili sinu á
Sauðárkróki 16. þ. m. Hún var
fædd 12. september 1866 og giftist
sr. Sigfúsi vorið 1890. Þau hjón
eignuðust 6 börn og eru 4 enn á lífi.
Þau bjuggu í Hvammi í Laxárdal
til ársins 1900, síðan að Mælifelli
til ársins 1919 að þau fluttust til
Sauðárkróks.
Frú Fetrea var mjög óhraust og
oftast rúmföst síðustu 20 árin. —
N. dab.l 10. apríl.
# # #
HELMINGI MINNI
AFLI EN I FYRRA
Ilinn 15. þ. m. var aflinn á öllu
landinu, samkvæmt heimild Eiski-
félagsins, 12,522 smál., miðað við
fullverkaðan fisk, en var á isama
tíma í fyrra 24,905 smál.
Þessar verðstöðvar hafa fengið
meiri afla en í fyrra (svigatalan) :
Stokkseyri ......179 smál. ( 84)
Eyrarbakki ...... 105 smál. ( 25)
Þorlákshöfn og
Selvogur......133 smál. ( 64)
Grindavík........480 smál. (332)
Hinar allar minni afía.
Afli togaranna í Reykjavík var í
fyrra 5,164 smál., en nú 1.553 smál.
eða tæpur 3. hluti af fyrra árs afla
á sama tíma. Önnur skip í Reykja-
vík 412 smál. á móti 1450 smál. á
fyrra ári.
Hafnarf jarðartogarar hafa aðeins
rúman 5. hluta af fyrra árs afia eða
610 smái. gegn 2,936 smál. í fyrra.
Vestmannaeyjar 3,629 smál., en 4,-
828 á fyrra ári. Akranes 937 en
2,194 smál. í fyrra.—N. dagbl. 19.
apríl.
# # #
NORÐFIRÐINGAR
KAUPA TOGARA
í gær var togarinn Ver keyptur
fyrir hlutafélag í Neskaupstað i
Norðfirði. Jónas Guðmundsson al-
þingismaður skýrir svo frá:
í hlutafélagi því, sem kaupir tog-
arann, eru Hafnarsjóður Neskaup-
staðar og Fóðurmjölsverksmiðja
Norðfjarðar stærstir hluthafar. Auk
þess eiga nokkrir einstaklingar hlut
í skipinu. Skipið hefir ríú verið
keypt og er að fullu gengið frá
samningum við fyrri eigánda —
Landsbanka íslands — þá hefir
skipið verið endurskýrt og heitir nú
Brímir.
Skipið fór á veiðar frá Rvík í
gærkvöldi. Skipstjóri er Gunnar
Pálsson, en framkv.stjóri Jónas
Guðmundsson alþingismaður.
Tilgangurinn með skipakaupum
þessu'm er að auka atvinnulíf í Nes_
kaupstað. Skipið á að leggja fisk-
afla sinn á land í Neskaupstað.
Einnig á það að veiða karfa og síld
fyrir fóðurmjölsverksmiðjuna þar á
staðnum. Loks er skipinu ætlað að
flytja austfirskan bátafisk til út-
landa að haustinu. Var það gert í
fyrra og gafst þá vel.—N. dagbl.
19. apríl.
# # #
SALTFISKUR SELDUR
TII. AMERIKU
í gærkvöldi fór flutningaskipið
Katla áleiðis til Banadaríkjanna með
rúmlega 800 tonn af saltfiski óg
hefir fiskurinn verið seldur vestra
fyrir 280 ísl. kr. tonnið.
Undanfarið hefir staðið til, að
sendur yrði skipsfarmur af fiski til
Bandaríkjanna. Hefir fisktöku-
skipið Katla verið fengið til farar-
innar og fór skipið á leið vestur í
gærkvöldi.
Hefir skipið meðferðis 710 tonn
af saltfiski til Gloucester í Banda-
ríkjunum, 50 tonn til New York, og
auk þess 1,000 kassa af saltfiski, er
skipað verður í land i New York og
verður sá fiskur sendur þaðan til
Cuba. — Ennfremur fór skipið með
350 tunnur af lýsi til Gloucester og
New York.
Alls fór skipið með 805 tonn af
saltfiski, er allur hefir verið seldur
fyrirfram fyrir 280 kr.
—N. dagbl. 18. apríl.
*
FYRSTA ISLENZKA
SKIPIÐ LENDIR
I BOSTON
“Að flytja fisk til Gloucester er
hliðstætt kolaflutningi til Newcastle.
Þó var það þetta, sem fyrir kom, er
vöruflutningaskipið Katla, kom
hlaðið af fiski til Gloucester í fyrri
viku. Katla, er nú að innbyrða jám-
vöru, sem flytjast á til brezkrar
hafnar; við hún hennar blasir þjóð'-
fáni íslands, og mun það vera í
fyrsta skiftið, sem verzlunarskip
hefir sézt á þessari höfn með þann
fána.
Skipstjóri á Kötlu er Rafn Sig-
urðsson, en hásetar sextán. Eram að
síðastliðnum áratugi sagði Mr. Sig-
urðsson að hafísar hefðu oft gert
mikinn usla; en af einhverjum lítt
iskiljanlegum ástæðum hefði þeirra
ekki orðið vart í síðastliðin tíu ár.
Mr. Sigurðsson lét þess getið að
vegna opinna hafna og frjálsra sigl-
inga, væru Islendingar óðum að
stækka verz'lunarflota sinn; hefðu
þeir nú um tylft slíkra skipa í för-
um, auk 40 tógara, er stunduðu
veiðar umhverfis land.
Undanfarandi hefir Katla siglt
með fiskfarma til hinna ýmsu hafna
við Miðjarðarhafið.” — Boston
Herald, 12. maí.
ORÐAFJÖLDI ÝMSRA
MÁLA
Sagt er, að arabiska sé orðflest
allra mála, en það hefir þó ekki ver-
ið rannsakað svo,«að hægt sé að
nefna nokkrar tölur. Aftur á móti
er orðaf jöldi enskunnar talinn 260,-
000, þýzku 80,000, ítölsku 45,000,
frönsku 30,000 og spönsku 20,000.
Auk arabisku eru ýms önnur Asíu-
mál mjög orðmörg. T. d. er talið,
að í máli Dravídanna í Indlandi séu
70,000 orð. í kínversku eru talin
43,000 orð og tyrknesku alt að 25,-
000 orð.
Aftur á móti eru mál flestra
frumstæðra þjóðflokka mjög orðfá,
oftast um 2—3000. Þó er sagt, að
í málinu, sem talað er á Hawaii, séu
15,500 orð, og í máli Kaffanna í
Stiður-Afríku eru talin 8,000 orð.
I
Enginn veit, hve mörg orð ís-
lenzkan hefir, en einn færasti is-
lenzkumaðurinn gizkaði nýlega á,
að þau væru nálægt 100,000, en hann
lét þó fylgja því, að þetta væri í
raun og veru ágizkun út í bláinn. ís-
lenzkan hefir m. a. hinn mesta
fjölda orða í skáldamáli, sem erfitt
myndi að telja saman svo að tæm-
andi yrði.
TRYGGVI OLESON, M.A.
Þessi ungi mentamaður, sem lok-
ið hefir meistaraprófi í sögu Róma-
veldis hins forna og latínu við
Manitobaháskólann, er sonur þeirra
Mr. og Mrs. G. J. Oleson í Glen-
boro. Tryggvi er námsmaður mik-
ill og liklegur til visindamensku.
STÖRBREYTINGAR Á
ÚTLITI BIFREIÐA
I VÆNDUM
Eftir nýkomnum skýrslum bif-
reiðaverkfræðinga eru meiri breyt-
ingar í vændum á bifreiðum en orð-
ið hafa á síðastliðnum tuttugu ár-
um. Stærst þessara breytinga er
flutningur vélarinnar úr framhluta
bifreiðarinnar og i afturhlutann og
flutningur geymsluplássins úr aft-
urhlutanum í framhlutann. Á hin-
um nýja stað getur vélin verið í
beinu og hægu sambandi við aftur-
hjólaöxulinn, en það þykir hag-
kvæmara' og auk þess gerir þessi
breyting mögulegt að ná hinu full-
komna straumlínulagi með sporð-
löguninni, sem fyrirbyggir alt loft-
sog aftan frá. Bifreiðin verður þá
snubbótt að framan, líkt og byssu-
kúla, og ökumaðurinn situr fram-
ar og sér betur veginn og þá,
sem framhjá fara. Handföng hurð-
anna að utan, sem oft eru nú inn-
greypt, hverfa með .öllu, og þarf
ekki annað en að styðja á hnapp til
þess að opna hurðina. Aurbrettin
hverfa einnig. Varahömlum og
“gírum” verður komið fyrir á mæla_
borðinu. Stundum verða “gir”-
skiftin sjálfvirk.
Aukið strainnlínulag bifreiðanna,
ásamt léttari málmum í grind þeirra,
gefur möguleika til þess að minka
kraft vélanna, án þess þó að draga
úr istarfsorku bifreiðarinnar, en
þetta gerir þær ódýrari í byggingu
og rekstri.
RAS TAFARI1RAFMAGNS-
STÓLNUM
Menelik keisari, sem réði ríkjum
í Abessiníu um langt skeið, ákvað
eitt sinn að hætt skyldi að hengja
afbrotamenn í ríki hans, en í þess
stað tekin upp aðferð Ameríku-
manna, að lífláta þá í rafmagnsstól.
I þeim tilgangi lét hann panta átta
ra*fmagnsstóla frá Bandaríkjunum.
Stólarnir voru þó aldrei notaðir
samkvæmt því, sem til var ætlast,
en í þess stað fluttir inn í samkomu-
sal ríkisráðsins, og þegar Ras Tafari
heldur ráðstefnur með ráðgjöfum
sínum, sitja þeir allir í rafmagns-
stólum.
FRÁ HÁSKÓLAPRÓFUNUM
Bachclor of Arts:
(IJonours Course)
Eiríkur Herbert Bergman
Doctor of Medicine:
Elmer F. Christopherson
Haraldur Egill Gíslason
Stephen Benedikt Thorson
Bachelor of Science:
Gunnthor John Henrickson
Bachelor of Arts:
Sigrún Anna Jóhannson
Bernice Baldwin
Marion Erlendson.
Kirkjuþing 1936
Hið fimtugasta og annað ársþing Hins evangeliska
lúterska kirkjufélags Islendinga. í Vesturheimi verður
sett fimtudaginn 18. júní, 1936, í kirkju Árdalssafnaðar
í Árborg, Manitoba. Þingsetningarguðsþjónusta með
altarisgöngu hefst kl. 8 e. h. Búist er við að þingið
standi yfir þar til á þriðjudag 23. júní.
Söfnuðir kirkjufélagsins eru beðnir að senda erind-
reka á þingið eftir því sem þeim er heimilt að lögum.
Embættsmenn og fastanefndir minnist þess að skýrsl-
ur ber að leggja fram á fyrsta þingdegi.
Dagsett ýSeattle, Wash.,
8. maí, 1936.
Kristinn K. ólafsson,
forseti Kirkjufélagsins.
-----—.— -------------——„—,——,—.—... 4.
NÚMER 21
IIERBERT STANLEY
SAMSON, M.Sc.
Árið 1934 lauk þessi efnismaður
B.Sc. prófi við háskóla Manitoba-
fylkis, en nú í vor meistara-prófi;
á hann að baki sér næsta sjaldgæf-
an mentaferil; hefir verið fastur
starfsmaður Crescent Creamery fé-
lagsins alla sína háskólatíð og stund-
að nám að lokinni daglegri önn og
verið forstjóri efnarannsóknarstofu
þess. Hann er sonur þeirra Mr. og
Mrs. J. J. Samson hér í borginni.
LITIfí TIL BAKA
(Aður óprentað kvæði)
Eftir Ólínu Andrésdóttur
Hásumar lífs mins var heljarkalt
og hjarta mitt kvaldi þorstinn.
Hver svalalind fraus, þá fölnaði alt,
af fárviðri blómin lostin
féllu við frostin,
féllu við harmanna hret og frostin.
En haustið var betra, það húmaði
seint, v
í hjartanu lifði rótin,
og alt af var lífið í einhverju treint.
Það ómaði strengur i sálinni leynt,
sem sagði, þó hefði eg harmað og
reynt,
á hörmunum fengist bótin
við himnesku hótin,
við himnesku kærleikans hótin.
Og alt er nú dáið, sem deyja má,
og dauðinn, mér finst hann sætur.
Eg er hætt að óska og hætt að þrá,
i himnunum trú og von eg á.
Sá fögnuður finst mér sætur
og fullkomnar bætur,
og fullkomnar raunabætur.
—Eimreiðin.
GALEIÐUÞRÆLL I 100 ÁR
•
Maður er nefndur Jean Baptiste
Mouron. Hann átti heima í Toulon
í Frakklandi. Hann var uppvöðslu-
samur þegar í æsku og árið 1684 var
hann dæmdur i æfilanga þrælkunar-
vinnu á galeiðu. Hann var þá 17
ára að aldri. Nákvæmlega 100 ár-
um og einum degi seinna, staulaðist
riðandí öldungur upp á hafnarbakk.
ann i Toulon. Það var Mouron.
Hann var nú loksins laus úr prís-
undinni.
Það var venja í Miðjarðarhafs-
löndunum að dæma menn til þrælk-
unar á galeiðum á ófriðartímum.
En Mouron slapp að mestu leyti við
að róa, þvi að á þessum tíma urðu
galeiður úreltar sem herskip. Þeim
var lagt við festar í ýmsum höfnum,
svo sem Marseilles og Toulon, og í
einni slíkri galeiðu var Mouron
hlekkjaður við þóftu og ár.
Þegar Loðvik 15. frétti um þenn.
an mann, vildi hann láta hann laus-
an. En það var ekki við það kom-
andi, að karlinn vildi sleppa úr prís-
undinni fyr en hann hefði verið þar
i 100 ár og einn dag. Hann lifði 6
ár eftir það. — Lesb. Mbl.