Lögberg - 30.07.1936, Síða 1
49. ÁRG-ANGUB | WINNIPEG, MAN., FIMTUDAGINN 30. JiÚLl, 1936 NÚMER 31
Glundroði í stjórnmálum. í M Eng lanii inn fl :oba ] okkur fær ákveðinn meirihl linginu luta
Fréttabréf frá Islandi
“GUÐS BLÆR”
Menn hafa löngum kveinkað
undan sársauka, og þegar illa geng-
ur, þá er kvarta'S. Lofgerð manna
er ekki æfinlega aÖ sama skapi há-
róma, þótt vel gangi, og sitt sýnist
og finst hverjum einum. Einn
bragsnillingur raular raunalag á
hörpu sína og syngur um þaÖ, hve
móðurjörð vor sé “beinaber”; en
annar skáldjöfur nær hinum hæstu
tónum bjartsýninnar og hefir orð
fyrir þjóðina frammi fyrir Guði
landsins: “Vér lofum 'þitt heilaga,
heilaga nafn.”
Það eru jafnan nógir til þess, að
tala háróma um ófarnað manna og
þjóða. Það er óspart sagt frá því,
sem illa er gert, sem' illa fer og frá
erfiðleikum og hörmungum. Á-
hyggjur manna magnast og hjörtu
manna vanmegnast við vond “tíð-
indi” um atvinnuleysi, fjárhags-
vandræði, gjaldþrot og ihrun, og
ýrnsar virkilegar eða ímyndaðar
skelfingar. — Því má þó ekki
gleyma, að á milli hretanna “andar
Guðs blær,” og sár mannanna gróa.
Yfir fsland andar nú “Guðs
blær,” og sár mannanna gróa.
Yfir fsland andar nú “Guðs
blær.” — Það er gott að geta sagt
það og gott að gleðjast yfir ársæld
og vonum um batnandi hag manna.
—Vorið og sumarið hefir verið
gott, það sem komið er. í sveitum
landsins hefir gróandinn verið i
bezta lagi og nú er sláttur þegar
byrjaður hér og þar. Landburður
af síld hefir verið við alt Norður-
land, svo mikill undanfarið, að á
betra verður tæpast kosið. Horfur
eru því fremur góðar um atvinnu-
líf til lands og sjávar. Karfaveið-
arnar eru nýjung útgerðarinnar og
hafa þær gefið aukna atvinnu á
fleiri stöðum. Sogsvirkjunin er
stærsta fyrirtækið í framkvæmdum
á landi og vinnur þar nú mikill
fjöldi manna. Áhugi er að vakna
fyrir nýbýlaræktun og þyrfti að
verða gott framhald í þeim efnum,
því sjálfsagt getur móðurmoldin
frjóa” veitt sonum landsins brauð,
ef þess er freistað með hagsýni og
heilum hug. — f Reykjavík fer iðn-
aður stöðugt í vöxt, og hefir þar
orðið mikil breyting siðasta áratug-
inn, þó sérstaklega síðustu 5-6 árin.
Nýjar verksmiðjur rísa stöðugt upp
og nýjar iðngreinar þróast. Um
nýjar byggingar er alt af töluvert
mikið í bænum og Reykjavík stækk.
ar óðum. Strætisvagna-kerfið er
nýr liður í bæjarlífinu. Nú er verið
að fullgera sundhöllina, nýja leik-
húsið gnæfir hátt við himinn og er
prýði borgarinnar. Stúdentagarð-
inn hefir hún eignast nýlega og
undirbúningur er hafinn að veglegri
liáskólabyggingu. Bálstofa er einn-
ig i uppsiglingu, svo við fylgjumst
svo sem með tímanum.
Gestkvæmt hefir verið í Reykja-
vík í sumar. Nú koma annanhvern
og stundum hvern dag mikil ferða-
mannaskip, og erlendir ferðamenn
heimsækja landið i þúsundatali.
Með merkustu viðburðunum í þeim
sökum verður að telja kamu dönsku
konungsf jölskyldunnar, norræna
stúdentamótið, sænsku vikuna, komu
sænska stúdentakórsins og ann-
arra merkra manna og prófessora
frá Sviþjóð. Alt hefir þetta sett
sérstakan svip á bæjarlífið síðustu
vikurnar, og yfirleitt finst manni
vera lif og f jör í hlutunum. — Þrátt
Fjallkona Islendingadaginn á Gimli
FRO BJÖRG V. ISFELD, A.T.C.M., ein hin tígulegasta kona í hópi
Islendinga vestan hafs, kemur fram sem táknmynd íslands, eða Fjall-
konunnar norður við heimskaut, á íslendingadeginum á Gimli þann 3.
ágúst næstkomandi.
fyrir erfiðleika undanfarinna ára,
og þrátt fyrir alt, sem að kann að
vera, verður þó ekki annað fundið
en að íslenzkt þjóðlíf þróist jafnt
og þétt, fremur heilbrigðum vexti,
og sem stendur er frá náttúrunnar
hendi bjart yfir landi og lýð, og
“hér andar Guðs blær.”
Pétur Sigurðsson.
Orðsending til Vestur-
Islendinga
Eins og kunnugt er voru rírnur
og rímnakveðskapur öldum saman
ein af höfuðskemtunum íslenzkrar
alþýðu. Þessari sérkennilegu grein
íslenzkra bókmenta hefir verið
rninni gaumur gefinn en vert er, og
um rímnagerð eftir 1600 hefir sama
sem ekkert verið ritað. Eg hefi um
allmörg undanfarin ár viðað að mér
efni í rit um rímnakveðskap síðari
alda, og er það nú kornið vel á veg.
Verður þar getið allra skálda og
hagyðinga, sem kunnugt er um að
ort hafi rímur eftir 1600, sögð á
þeim nokkur deili og lýst rimum
þeirra. Eigi er enn fullkannað, hve
margir hafa ort rímur á þessu tíma.
bili, en þeir skifta hundruðum.
Meginhluti verka þeirra hefir aldrei
verið gefinn út, en mikill fjöldi
rímnahandrita er varðveittur í opin-
berum söfnum, einkum í handrita-
safni Landsbókasafnsins í Reykja-
vík. Þó vantar þar allimarga flokka,
sem vitað er um, að ortir hafa ver-
ið, og eru sumir þeirra vafalaust
glataðir. Þó er eigi loku fyrir það
skotið, að enn kunni að vera í eigu
einstakra manna rímnahandrit, sem
ekki eru til í opinberum söfnum, og
hugsanlegt er, að slík handrit séu
jafnvel til i íslendingabygðum vest-
an hafs. Það eru því vinsamleg
tilmæli mín til Vestur-Islendinga,
sem kynnu að eiga rímnahandrit i
fórum sinum eða hafa orðið slíkra
handrita varir, að þeir geri mér að-
vart v(ið ýyrsta tækifæri, ef ske
kynni, að á þann hátt kærni eitthvað
í leitirnar, sem glatað er hér heima.
Mér þætti t. d. gaman, ef einhver
gæti fært mér þá fregn, að lengstu
rímur, sem ortar hafa verið á ís-
landi, Bragða-Mágusarrímur, eftir
Jón nokkurn, sem kallaður var
“langur”, 70 að tölu, væru enn til
vestra. Þær hafa eigi fundist hér
heirna, en mér er sagt, að handrit af
þeim muni hafa borist vestur um
haf. — Eg skal að lokum láta þess
getið, að ef einhver Vestur-Islend-
ingur kynni að óska upplýsinga um
rímur eða rimnaskáld er eg reiðu-
búinn að láta þær í té eftir föng-
um.
Með kærri kveðju,
Finnur Sigurðsson,
bókavörður.
LTtanáskrift: Landsbókasafnið, *
Reykjavík.
KONUNGUR RRETLANDS
afhjúpar minnismerhi cana-
disku þjóðarinnar við Vimy
yfir canadiska hermenn, er
þar hera heinin.
Síðastliðinn sunnudag afhjúpaði
Játvarður Bretakonungur minnis-
merki það hið veglega, er þjóðin
canadiska lét reisa við Vimy á
Frakklandi þeim sonum sínum, er
féllu í styrjöldinni miklu frá 1914,
og bera beinin í franskri mold.
Mannfjöldi mikill víðsvegar að var
viðstaddur þessa alvarlegu og há-
tíðlegu athöfn; þar af 6,000 cana-
diskir menn.
Or borg og bygð
Messað verður í Árborg kl. 11
árd. 2. ágúst, og í Riverton sama dag
kl. 8 síðd. (ensk messa). Allir boðn-
ir velkomnir.
S. ólafsson.
Sunnudaginn 2. ágúst messar séra
Guðm. P. Johnson í Templarahús-
inu kl. 7 e. h. Allir boðnir hjartan-
lega velkomnir.
ALLAN LEASK SJÓÐUR
undir umsjón I.O.D.E.
Jón Sigurdson Chapter.
Með upphæð sem áður hefir verið
auglýst í blöðunum og $10.00 frá
Jóns Sigurðssonar félaginu og $2.00
frá H. Guðnason, Arnes, P.O., er
komin upphæð, sem fullnægir.
Með innilegu þakklæti, er þá þess.
ari fjársöfnun lokið.
Mrs. J. B. Skaptason,
Mrs. B. S. Benson
Dr. Tweed verður staddur í Ár-
borg á fimtudaginn þann 6. ágúst
næstkomandi.
Dr. A. B. Ingimundson verður til
viðtals í Riverton Drug Store á
þriðjudaginn þann 4. ágúst.
Séra Haraldur Sigmar frá Moun-
tain, N. Dak., kom vestan frá Ar-
gyle á þriðjudaginn, úr kynnisför
til ættmenna sinna og| hélt heim
samdægurs.
Messur í prestakalli séra H. Sig-
mar, sunnudaginn 2. ágúst:
Vídalíns kirkju kl. 11 f. ih.
Péturskirkju kl. 2.30 e. h.
í vikunni sem leið voru stödd hér
í borginni þau Mr. Thordarson og
Mts. Kjartansson frá Amaranth,
Man.
Messur sunnudaginn 2. ágúst
verða j Mozart kl. 11 f. h. og í HóL
arbygðinni kl. 2 e. h. Mountain
Time. (Messan fer fram í sam-
komuhúsi lúterska safnaðarins í
Hólarbygðinni).
Jakob Jónsson.
Séra Jóhann Fredriksson messar
í Piney sunnudaginn 9. ágúst á
venjulegum tima.
JÓN BJARNASON ACADEMY
Gjafir í styrktarsjóð er notaður skal
samkvæmt því sem áður hefir verið
auglýst, til þess að greiða skatt-
skuldina og með því losa skólaeign-
ina við öll veðbönd:
Áður auglýst..........$272.30
Mr. og Mrs. G. S. Grímsson,
Red Deer, Alta.......... 5.00
Mrs. Steinunn Sveinsson,
Red Deer, Alta.......... 1.50
Mr. Swanson, Red Deer, Alta. 1.00
Halldor Johnson, Wynyard,
Sask.................... 2.00
Samtals.............$281.80
Alúðarþakklæti forstöðunefndar
skólans vottast hér með fyrir þess-
ar gjafir.
Winnipeg 29. júlí, 1936.
N. W. Melsted,
gjaldkeri skólans.
673 Bannatyne Ave.,
Winnipeg, Man.
ÞAKKARAVARP
Hér með þakka eg af hjarta öll-
um þeim kjósendum í St. George
kjördæmi, sem greiddu mér atkvæði
MISS THELMA GUTTORMSSON
Stúlka þessi lauk nýverið prófi í
hljómfræði og píanóspili við
Toronto Conservatory of Music,
og hlaut þá hæztu einkunn, sem
nokkrum nemanda i þeirri grein
veittist í Manitobafylki. Foreldr-
ar hennar eru þau Rjörn Gutt-
orinsson og frú Helga (Kerne-
sted) Guttormsson í Winnipeg.
Miss Guttormsson er 17 ára að
aldri.
í nýaf stöðnum kosningum, og sömu-
leiðis öllum sem beittu áhrifum sín.
um og veittu mér dásamlegt liÖ á
annan hátt til þess að hjálpa því
málefni, sem eg berst fyrir til sig-
urs.
Salóme Halldórson.
Mrs. Jolhn David Eaton (Signý
Stephenson) frá Toronto, sem
dvalið hefir hér i borginni undan-
farinn þriggja vikna tíma hjá for-
eldrurn sínum, Mr. og Mrs. F.
Stephenson, 694 Victor Street, lagði
af stað heimleiðis á þriðjudags-
kvöldið var. Með henni fór aust-
ur bróðir hennar, Mr. Harald
Stephenson verzlunarmaður, er
dveljast mun eystra í rúman hálfs-
mánaðartíma.
Séra K. K. Ólafsson forseti
kirkjufélagsins lagði af stað vestur
til Seattle í býtið á kosnipgadags-
morguninn, eftir að hafa ferðast
náttfari og dagfari um Islendinga-
bygðirnar við Winnipeg og Mani-
toba vatn, og lagt sína síðustu bless-
un yfir þær Salóme og Ástu og
Social Credit kuklið í Manitoba.
%
Breyting hefir orðið á “bus”
ferðum til Gimli þann 3. ágúst,
þannig, að einungis tvö “bus” fara
kl. 8 að morgninum, en hin ekki fyr
en kl. 10.
Mr. og Mrs. Júlíus Anderson frá
Chicago komu til borgarinnar á
mánudaginn og dvelja hér í hálfs-
mánaðartíma. Með þeim kom Mrs.
Sigurður Arnason, ásamt syni sín-
um.
Mr. George Long, verkfræðingur
frá Chicago, dvelur í borginni um
þessar mundir, ásamt frú sinni og
dóttur. Kom George hingað í
heimsókn til föður síns, Mr. Berg-
sveins Long.
I Mrs. Ásgeir Guðjohnsen hefir
dvalið um hríð á Lundar, ásamt syni
sínum, hjá móður sinni, Mrs. Adam
Þorgrímsson.
Mr. B. J. Lifman, oddviti Bifröst
I sveitar var staddur í borginni á
' miðvikudagsmorguninn.
GUÐRÚN JóHANNA BJERRING
Þessi unga og efnilega stúlka
er dóttir þeirra Mr. og Mrs. S. O.
Bjerring, 550 Banning St„ og
stundað hafði nám við Daniel
Mclntyre miðskólann, hlaut Is-
bister verðlaun við vorprófin fyr-
ir frábæra ástundun og náms-
hæfileika.
KOSNINGAÚRSLIT I
ÝMSUM KJÖRDÆMUM
Stjórnarmcnn (kosnir) —
Arthur—J. R. Pitt
Birtle—F. C. Bell
Carillon—E. Prefontaine
Cypress—J. L. Ohristie
Dufferin—Dr. J. A. Munn
Fairford—Stuart Garson,
(kosinn án gagnsóknar)
Fisher N. V. Bachynsky
Gladstone—William Morton
Glenwood—James Breakey
Iberville—J. L. Lamont
Lakeside—D. L. Campbell
LaVerandrye—S. Marcoux
Morris—Hon. W. R. Clubb
Mountain—Ivan Schulzt
Russell—Hon. I. B. Griffiths
Virden—R. H. Mooney
Stjórnarmenn (á undan)—
Dauphin-—Robert Hawkins
Lansdowne—M. S. Sutherland
St. Boniface—L. P. Gagnon
St. Rose—Dane McCarthy
Springfield—E. S. Shannon
Ihaldsmenn (kosnir) —
Brandon—George Dinsdale
Deloraine—Errick F. Willis
Killarney—J. B. Laughlin
Manitou—H. Morrison
Morden-Rhineland—W. C. Miller
Portage la Pairie—W. R. Sex-
smith
Rockwood—Dr. M. T. Lewis
Turtle Mountain—A. R. Weloh
Winnipeg—R. H. Webb
Ihaldsmenn (á undan)—
Beautiful Plains—Dr. J. S. Poole
Kildonan-St. Andrews — J. Mc-
Lenaghen
Minnedosa—Dr. E. J. Rutledge
Norfolk—J. P. Lawrie
Swan River—George Renouf
Social Credit (kosnir) —
Gilbert Plains—Dr. S. W. Fox
Hamiota—N. L. Turnbull
Roblin—E. S. Rogers
St. George—Miss'S. Halldorson
Social Credit (á undan)—
Ethelbert—William Lisowsky
Óháður (kosinh)—
Wjmnipeg—L. St. George Stubbs
Óháður (á undan) —
Emerson—H. H. Wright
C.C.F. (kosinn)—
Assiniboia—J. Aiken
C.C.F. (á undan)—
St. Clements—*H. Sulkers
Gimli—F. Wawryko
Commúnisti (kosinn)—
Winnipeg—J. Litterick.