Lögberg - 30.07.1936, Side 5
LÖGBERGr, FIMTUDAGINN 30. JÚLl, 1936
5
Guðshugmynd nútímans
(Framh.)
IV.
Eg hefi orðit5 langorður um að
skýra þetta undirstöðuatriði, af þvi
að það er einmitt ein af staðreynd-
unum, seni guðlstrú og guðshug-
mynd nútímans byggist á, og því
nauðsynlegt að skilið sé til fulln-
ustu til að byrja með.
Þetta er þá það, sem eg hefi hald-
ið fram, að það liggi ýmsar leiðir
til þekkingar, ekki aðeins' hin ytri
heldur og hin innri. Þessi ytri leið
er venjulegast viðurkend af flestum
en þó ekki öllum. Hin innri leið hef-
ir átt örðugt uppdráttar til viður-
kenningar í heimi vísindamannanna,
þó að henni hafi jafnan verið haldið
fram af imestu vitmönnum mann-
kynsins, eins og Plato og Spinoza, og
visindamenn séu nú óðum að komast
á þau vegamót, að sjá takmörkun-
ina i aðferðum efnisvísindanna, og
viðurkenna, að efnið verði ekki út-
skýrt með sjálfu sér.
En nú er það orðið auðvelt að
gera sér það ljóst, í hverju verk-
efni guðfræðinganna er fólgið. Það
er einmitt að gera rannsóknir á
þessum staðreyndum, bera þær sani-
an, greina á milli skilnings og mis-
skilnings á þeim og leitast við að
draga af þeim allsherjar ályktanir
og andleg lögmál — alveg eins og
eðlisfræðingar gera í efnisheimin-
um. Þetta er hægt að gera eftir al-
veg venjulegum rannsóknaraðferð-
um. Undirstöðuatriðið er að kynn-
ast hinuim andlegu fyrirbrigðum á
sem víðtækastan hátt og með sem
hleypidómaminstu hugarfari. Þá er
og nauðsynlegt að kynnast skoðun-
um hinna vitrustu og djúpskygnustu
manna, sem um þetta hafa hugsað
og ritað. Alveg eins og þeir, sem
vilja leita sér skýringar á einhverju
efnisfyrirbrigði eða t. d. afstæðis-
kenningunni, fara i rit Einsteins eða
einhvers þesskonar vitrings, er
skarplegast hefir hugsað um þau
efni, eins fara trúfræðingarnir í rit
innblásinna og goðmálugra manna.
En jafnframt er alt lífið grundvöll-
ur og rannsóknarefni þessarar
fræðigreinar.
Nú hefði eg helzt kosið í sam-
ræmi við það, sem áður er sagt, að
gera ofurlitla grein fyrir því á sögu-
legan hátt, hvernig guðshugmyndin
hefir þróast, jafnhliða hinni vaxandi
opinberun frá töfratrú og frumstæð-
uim hugmyndum, eftir leiðum vax-
andi siðfágunar og vitsmunaþroska
til þess forms, sem hún hefir nú. En
það yrði of langt mál. Sný eg mér
þessvegna að því í seinni hluta þessa
erindis að gera í sem styztu máli
grein fyrir aðaldráttunum i guðs-
hugmynd nútiimans.
Guðfræðingar nútímans lýsa eig.
inleikum Guðs á þann hátt, að hann
sé almáttugur, alvitur og algóður,
skapari himins og jarðar. Það skal
játað, að það er ekki unt að skýra
til hlýtar hvað þessi lýsingarorð
tákna. Þau eru eins og t. d. hið
óendanlega í stærðfræðinni, sem vér
reiknum með, enda þótt það verði
aldrei til fulls ákveðið. En af því
að þessi lýsingarorð eru þó miðuð
við vissa eiginleika vora, vitum vér
til hverrar áttar þau stefna. Vér
hugsum oss aðeins, að hjá Guði sé
mátturinn, vizkan og kærleikurinn á
óendanlega miklu hærra stigi en hjá
oss.
Það hefir verið reynt að sýna
fram á, að af því að Guð sé þannig
bersýnilega ' framlenging (projec-
tion) á persónueðli mannsins og
siðahvötum, sé hann imyndaður, en
ekki verulegur, Þetta er öldungis
ekki gefið, og skoðanirnar á þessu
hljóta einungis að fara eftir trú
manna um sambandið milli Guðs og
manns. Með hinni kristilegu lífs-
skoðun, að mennirnir séu sannarleg
börn Guðs, verður það engin f jar-
stæða, heldur eðlilegasti hlutur, að
slík hljóti einmitt að vera afstaða
Guðs og manns. Það er enginn
eðlismunur, heldur vaxtanmunur.
Maðurinn er hið ófullkomna, Guð
hið fullkomna, maðurinn hið tíman-
lega, Guð hið eilífa, maðurinn frurn.
visirinn, Guð takmarkið.
Að Guð er almáttugur þýðir þá,
að hans er orkan, sem allsstaðar
birtist í efni og hræringum alheims-
ins. Ekkert getur hindrað framrás
hennar til þess, sem ætlað er og til-
veran stefnir að. Að Guð er alvitur,
þýðir, að heimurinn hefir skynsam-
legt markmið, að ekkert er til einskis
eða þýðingarlaust og að öllu er
stjórnað af þeirri vizku, sem ger-
þekkir upphaf og endi. Það þýðir
jafnframt, að vitsmunir vorir stinga
ekki í stúf við alt eðli tilverunnar,
fremur en likamir vorir stinga i stúf
við efni hennar. Þeir lifa, hrærast
og eru sprottnir upp úr þeirri æðri
skynsemi, sem býr í rás heimsins.
Að Guð er algóður merkir, að til-
veran sé ekki hirðulaus um einstakl-
ingana, heldur að eins og hún hefir
gefið þeim líf af sinu lífi, þannig
vilji hún og vernda þetta líf og efla
það til meiri fagnaðar og fullkomn.
unar. Það þýðir, að þegar vér lát-
um stjórnast af kærleika, lifum vér
mest samkvæmt vilja Guðs og að
það ríki, sem þannig skapast, verð-
ur fullkomnun á tilgangi hans.
Að Guð er skapari himins og jarð-
ar þýðir það, að það er hans vilji,
sem birtist í hinni skapandi þróun
og að vér erum öll börn hans, sköp-
uð í hans mynd, því að hann er faðir
allra.
Þettá eru aðeins örfáir drættir i
guðs hugmynd nútímans, en af þeim
sjáum vér, hváð átt er við með orð-
inu Guð. Guð er í raun og veru að-
eins nafn, sem vér gefum lífi al-
heimsins í víðtækustu mynd. Það
er allsherjarnafn á því fyrirbrigðinu,
sem er raunverulegast allra: Óþrjót-
andi starfsemi tilverunnar. Vísinda-
menn þeir, sem halda að þeir séu
vaxnir upp úr guðstrúnni, verða
samt sem áður að standa andspænis
þessum veruleika og skýra hann ein-
hverjum nöfnum. Þeir nefna hann
ef til vill: Alheimsorkuna, en hvað
er það, nema annað nafn á Guði al-
máttugum. Þeir nefna hann: Hina
skapandi þróun, en það lýtur að vits-
munum og vilja Guðs. Hér er að-
allega mismunur á orðum og nöfn-
uim. Og megin ágreiningurinn staf-
ar hér, eins. og annarsstaðar, ekki
að litlu leyti af mismunandi notkun
orða.
En aðeins þessi dæmi sýna, áð
Guð er ekki fyrst og fremst ímynd-
uð persóna á bak við skýin, sem
sagt er frá í einhverri heilagri bók,
en enginn hefir annars orðið var við.
Guð er sjálfur verulcikur lífsins,
sem vér daglega skynjum og þreif-
u rn á. Hann er lífið í hinni fylstu,
dýpstu og œðstu merkingu þess.
Hvað er meiri veruleikur og hvað
eru auðsærri sannindi ? En með
þessu er þó ekki sagt, að Guð verði
umsvifalaust skilinn og skýrður til
hlítar. Það er alvege ins og þegar
vér horfum á stjömuhimininn. Vér
efumst ekki um tilveru hans, en vér
vitum jafnframt, að hann geymir
óteljandi leyndardóma. Vér getum
ef til vill mælt f jarlægðir hans undra
langt í burtu með furðulegri ná-
kvæmni. Vér getum gert oss meira
eða minna skýrar hugimyndir um
hann. En samt sem áður þekkjum
vér hann aldrei til fulls.
V.
Það, sem guðfræðinginn^greinir
á við hin orthodoxu vísinda, er ekki
svo mjög um grundvallarstaðreynd-
ir tilverunnar, heldur skýringuna á
þeim, þýðingu þeirra og gildi. Guð-
fræðingurinn vill skýra tilveruna
með því fyrirbrigði, sem hann þekk-
ir æðst, lífinu, eins og það birtist í
mannlegri skynsemi og siðferðis*
kend. Efnisvísindamennirnir hafa
hinsvegar reynt að skýra tilveruna
með dauðu efninu, sem af tilviljun
hafi öðlast líf og skynsemi. Er þessi
skoðun reyndar þeim mun óröksam.
legri, sem sú stefna hefir meir að-
The Á ( trctic Ice & Fuel !ompany Limited
1’ ■— - ■ Öskar Islendingum til hamingju í tilefni af þjóðhátíð þeirra, og þakkar jafnframt Lögbergi vinsamlegan stuðning í viðskift- um á liðnum árum! r.— - í
L The Á ( trctic Ice & Fuel -ompany Limited SlMI 42 321
^atctiexv<m
A Beautiful Approach to the Qu’Appelle
Valley
er Hvíldardagalandið
í Vestur-Canada!
X.jótið hvíldardaga í Saskatchewan. Komist að þvi af reynslunni hve
unaðslegt þetta Vesturfylki er. pað er land vatna, skemtigarða og
skðga, sem laðar að sér allra hugi; land útsýnisins og náttúru dýrð-
arinnar, er engum gleymist, er átt hefir þar nokkra hvíldar eða helgi-
daga.
Víðkunnustu skemtistaðir í kaskatchcwan cru rið Watrous,
Kcnosee, Cypress Hills, Qu’Appetle Lake, Duck Mountain,
Greenwater Lake, Good Spirit Lake, og Prince Albert
National Park.
PRINCE AL/BERT NATIONAL PARK—Sá staður, sem allir þeir, er
fögru útsýni unna, undrast og dá. pessi skemtigarður nær yfir 1,869
fermílur, og liggur við suður jaðar norður-skógabeltisins I Saskatchewan.
Afbragðs hótel og íbúðir í bændabýla stll, veita ánægðum ferðamönnum
þægindi.
CAHLSBAD VE8TURLANDSIN8—Læknislyfin I Lake Manitou voru
fyrir öldum þekt af Indíánum og njðta viðurkenningar nútíma vísinda.
Vndisleg strandlengja og hvílusælir bakkar veita vatni þessu óviðjafnan-
legt aðdráttarafl.
KATEPWE VATN—Liggur I hinum undurfagra Qu’Appelle dal Um-
hverfið við þetta vatn er eitt hið allra fegursta I Vestur-Canada. pað
minnir að nokkru á vatnasvæðin ensku og dregur að sér fjölda gesta;
enda einn af mestu uppáhaldsstöðum fylkisins. Allur útbúnaður til
róðra, fiskiveiða og baða. Hótel með öllum nútlðar þægindum til taks.
Sunset on Lake Waskesui (Prince Albert
National Park)
Þjóðvegir í Saskatchewan
Saskatchewan hefir meira þjóðvegakerfi að mílufjölda en nokkurt annað
fylki I landinu. óteljandi álmur liggja að meginvegunum, er hafa I för
með sér greiðan aðgang að markaðsstöðum hvar sem er. Vegadeild
Saskatchewan-stjórnarinnar heldur öllum þessum vegum við. Alls nema
mölbornir bílvegir, er þessi stjórnardeild lieldur við, 5,935 mílum.
Good Gravel and Oil-Gravel Highrcays
SKRIFIÐ EFTIR BÆKLINGUM, UPPDRÁTTUM ÖG ÖÐRUM UPPLÝSINGITM TIL
Dept. L. Bureau of Publications
LEGISLATIVE
BUILDINGS
Regina, Sask.
hylst órjúfanlega eÖlisnauðsyn, þar
sem ekkert verkur af tilviljun. Þann.
ig komast efnisvísindin í mótsögn,
er þau fara a'S reyna til að útskýra
lifið. Niðurstaðan hefir orSið sú,
að þau hafa sem mest reynt að ganga
fram hjá hinni mannlegu meðvitund,
draumum hennar og dýrmætum, og
ýmist talið þetta algerlega “óraun-
verulegt” eða reynt til að rekja
hugsanalíf mannsins til sem einfald-
astra frumhvata, er þeir hafa talið
raunverulegri. Þessi stefna í sálar-
| fræði nútímans er álika röksamleg
og ef vér teldum fræið raunveru-
legra en hlómið, en moldina, sem
| fræið er sprottið úr, raunverulegast
\ alls.
En þetta er í raun og veru aðeins
1 aðferð til að vikja úr vegi fyrir
| aðalvandamálinu. Vér vitum, að
i moldin verður ekki skilin án fræs-
j ins og ekki fræið án blómsins. Til-
jgangur fræsins er blómið og þess-
vegna er það engu síður vottur um
eðli tilverunnar. Lik er afstaða
guðfræðinganna til lífsins og tilver-
unnar í heild. Þeim virðist eðlileg-
ast að skýra það með því æðsta, er
þeir þekkja í tilverunni: mannlegri
skynsemi. Guðfræðingurinn heldur
því fram, að lífið og skynsemin sé
hinn raunverulegasti vottur um
hinzta eðli tilverunnar og það sé á-
kveðinn vilji, er mótar hinar hverf-
ulu tilverumyndir efnisins. Þessi
vilji og skynsemi keinur meðal ann.
ars fram i hinni skapandi þróun.
Frá því að frumþokan varð til í eyði
og tómi geymsins og til þess tima, að
jörð eins og vor jörð skapast, hafa
márgir atburðir gerst. En þeir hafa
allir miðað að hinu sama, að fratrr
leiða fjölbreytt og merkilegt líf.
Meðan ennþá var ekkert lifandi lif
á jörðinni, var þó undirbúningur-
inn undir það gerður með hinni
mestu nákvæmni.
Er það liklegt, að slíkt sé stöðug
tilviljun á tilviljun ofan, að sköpun
verði úr óskapnaði ? Mundi ekk. til-
viljunin fremur, ef hún væri hugs-
anleg, steypa sérhverri sköpun i ó-
skapnað ?
Öll þekking bendir til þess, að til-
verumyndirnar hafi þróast frá hinu
einfalda til hins fjölþætta og full-
komnara. Þannig hafi frumefnin
bundist i f jölbreyttari efnasambönd
og lífið byrjað með einfrumungum,
en síðan þróast til fullkomnari og
fullkotnnari myndar, unz það með
manninum er loks orðið fært um að
fóstra lifandi sál, sem getur hugs-
að og fundið til og orðið meðvitandi
um tilveru sína og takmark.
Sumir hafa viljað draga í efa
hugmyndina um hina skapandi þró-
un og bent á það, að afturkippir og
hnignunartímabil hafi komið öðru
hvoru í sögu mannkynsins og alt
virðist því róa í sama farinu. En
á það ber að líta, að þróunin fer
hægt í samanburði við vor stuttu
jarðarlif. í sögu hennar eru aldirn.
ar eins og augnablik. En að rás
þróunarinnar hafi áamt sem áður
stefnt til vaxandi fjölbreytni og
fullkomnara og innihaldsríkara lífs,
það virðist mér hafið yfir allan efa.
Öll þekking virðist staðfesta það.
Ogvaxtarbroddur þessarar fram-
stigulu þróunar lifsins á jörðunni
er, eftir því sem vér þekkjum til-
veruna bezt, maðurinn, með viti sínu
og andlegum hæfileikum. Hann er
hið æsta fyrirbrigði lífsins, sem
komið hefir fram á þessari jörð, og
hann hefir farið svo langt fram úr
öllu öðru, að það vekur undrun.
Það setn nú öll heimspeki skerst
í odda um er einmitt þetta: Hvort
heldur tilveran skuli vera útskýrð
frá eðlislögum efnisins og hinnar
lífvana náttúru, eða frá sjónarmiði
mannsins og hans andlegu eiginleika
og möguleika. Efnishyggjan telur
mannlífið aðeins bergmál af efnis-
heiminum og vill slá stryki yfir alla
andlega starfsemi mannsandans,
sem staðlausa girnd efnisins, er í
draumutn sínum byggir sér vonar-
hallir, sem hljóta að hrynja fyrir
miskunnarfausum staðreyndum
dauðra náttúruaf lanna. Sihungraður
og lífsþyrstur hugur mannsins
hvarflar munaðarlaus og örvona
fyrir harðlæstum hliðum. Lífið
og veruleikinn á ekki til nein úrræði,
er fullnægja þrá mannsins. Síðan
er líkaminn af miklum lærdómi
sundurliðaður í frumefni og með
því er svo maðurinn talinn að fullu
skýrður. Með öðrum orðum: Efn-
ishyggjan skýrir tilveruna frá hinni
ófullkomnari hlið hennar, stað-
reyndum efnisheimsins, sem þó fer
fjarri, að hún þekki til fulls.
Trjúarbrögðín fara þveröf'ugt lað.
Þau halda því fram, að ef það sé
unt að þekkja nokkuð, þá sé mann-
inum fyrst og fremst mögulegt að
þekkja sjálfan sig. Þess vegna
byrja trúarbrögðin skýringuna á
heiminum og lifinu á manninum,
hugsunum hans, tilfinningum og
verðmætum. Þau halda því einnig
fram, að í engu lifandi hafi hinn
skapandi máttur opinberað fullkom.
legar sitt insta eðli. Tilveruna beri
því áreiðanlega að skýra frá hinni
fuUkomnari hlið. Insta eðli hennar
sé lífið og vitsmunirnir en ekki vits-
munalaust efnið. (Framh.)
Borgin Burry-Mountain í Ala-
bama í Bandarikjunum var nýlega
komin að gjaldþroti.
Borgarstjórinn var þó ekki ráða-
laus. Hann lét það boð út ganga,
að hann ætlaði, til þess að bjarga
fjárhag borgarinnar, að selja dótt-
ur sína, 18 ára gamla, á uppboði.
Vakti þetta auðvitað mikið umtal,
því að dóttir borgarstjórans var feg-
ursta stúlkan þar. Og hún tók sjálf
af skarið og tilkynti að hún ætlaði
sér að giftast þeim manni, sem hæst
byði í sig, til að bjarga fjárhag
borgarinnar. — Svo kom uppboðs-
dagurinn. Stúlkan kom með upp-
boðshaldara á aðaltorg bæjarins og
stóð þar á háum palli, svo að allir
gætu séð sig. Ungur bankastjóri
bauð þegar 75 þús. dollara—og varð
einn um boðið. Hann gaf út ávis-
un fyrir upphæðinni, Fjárhag borg-
arinnar var borgið og bráðum verð-
ur haldið eftirminnilegt brúðkaup í
Burry-Mountain. (Eftir “Syd-
svenska Dagbladet”).