Lögberg - 27.08.1936, Síða 8

Lögberg - 27.08.1936, Síða 8
8 LÖGrBERG-, FIMTUDAGINN 27. AGÚST, 1936 Ur borg og bygð Kvenfélag Fyrsta lúterska safn- aðar heldur sinn fyrsta fund á þessu hausti í samkomusal kirkjunnar á fimtudaginn þann 3. september næstkomandi, klukkan þrjú. Áríð- andi að félagskonur sæki fundinn sem allra bezt. Mr. Grímur Eyford, 512 Toronto Street, er nýkominn til borgarinnar vestan af Kyrrahafsströnd, þar sem hann hafði verið sárlasinn um all- langt skeið. Heilsa hans er nú nokkru betri, og er hinum mörgu vinum hans það mikið ánægju^fni. Miss Ingibjörg Sigurgeirsson, skólakennari frá Hecla, Man. flyt- ur fyrirlestur um íslandsferð sína og sýnir myndir frá Islandi, í River. ton hall á föstudagskvöldið þann 28. ágúst, og á Gimli á laugardagskvöld- ið þann 29. ágúst, kl. 9 á báðum stöðum. Þetta verður óvenjulega fræðandi skemtun, og má því búast yið mikilli aðsókn á báðum stöðum. Mrs. Haraldur Sigmar frá Moun- tain, N. Dak., dvelur í borginni þessa dagana. Á miðvikudagskvöldið þann 2. september næstkomandi, kl. 9, fer fram sönghátíð í lútersku kirkjunni í Riverton, þar sem sungin verða einvörðungu lög eftir Gunnstein tónskáld Eyjólfsson, og verður þessi kvöldstund því í raun réttri helguð minningu hans. Mr. Sigurbjörn Sigurðsson hefir æft söngflokk fyr. ir þetta tækifæri, en Grace Thorlak- son-Johnson syngur þar nokkra ein. söngva, auk þess sem hún syngur líka í flokknum. Eins og getið hefir vqrið áður um hér í blaðinu, þá hafa börn Gunn- steins héitins nú gefið út sönglög hans í bókarformi, og gefst því þeim, er samsöng þenna sækja þar ágætur kostur á að kynnast þeim. Búast má alveg vafalaust, allra hluta vegna, við mikilli aðsókn að söng- skemtan þessari. Mr. og Mrs. B. T. Björnson frá Portland, Oregon, komu til borgar- innar snöggva ferð í vikunni sem leið, ásamt tveim dætrum sínum. Ferðafólk þetta heimsótti einnig ís- lenzku bygðarlögin í North Dakota. Mr. Bjiirnsson var laust fyrir alda- mótin ráðsmaður Ivögbergs, en rak um eitt skeið verzlun í Milton-bæn- um í N. Dak. Mr. Björnson er bróðir Mrs. Árni Fredrickson i Vancouver og þeirra systkina, en kona hans dóttir Jakobs Eyford, sem Eyford bygðin er kend við. Bróð- ir hennar, Bogi, er búsettur hér í borginni. Mr. og Mrs. Connie Benson frá Chicago eru stödd í borginni um þessar mundir í heimsókn til ætt- ingja og vina. Frú Guðrún Helgason, píanó- kennari, er nýlega komin heim sunnan frá New York, þar sem hún dvaldi um hríð. Mrs. B. S. Benson, bókhaldari Columbia Press, Ltd., kom heim síðastliðinn sunnudag ásamt Normu dóttur sinni, úr hálfsmánaðar skemtiferð suður í Bandaríki. Þær mæðgur dvöldu mest tímans í Min- neapolis og Chicago og nutu ósegj- anlegrar ánægju af ferðalaginu og heimsóknum til frænda og vina. T. S. Guðmundson, Thorsteinn Hólm, Mundi Guðmundson og Rob- ert Steinólfson frá Mountain, N. Dak., komu til borgarinnar síðast- liðinn laugardag og dvöldust hér fram á sunnudaginn. Séra Jóhann Bjarnason frá Gimli, er staddur í borginni þessa dagana, ásamt frú sinni. Mr. J. J. Myres frá Crystal, N. Dak., var staddur í borginni á fimtudaginn var. Mrs. Sigrún Johnson frá Hólmi í Argylebygð var stödd í borginni á fimtudaginn í vikunni sem leið, kom hún norðan frá Riverton frá útför móður sinnar. Mrs. Lilju Eyjólfs- son. I för með Mrs. Johnson var Lilja dóttir hennar. Mr. og Mrs. Eiríkur A. Isfeld, 668 Alverstone Street, komu heim um miðja vikuna sem leið, úr bíl- ferð suður til St. Paul, Minneapolis og ýmsra annara staða í Minnesota. ríki. Með þeim var í ferð þessari dóttir þeirra, Miss Mae ísfeld. Mr. Grímur Scheving frá Garðar, N. Dak., kom til borgarinnar á föstudaginn, ásamt frú sinni og dótt- ur. til þess að vera við útför Stefáns bróður síns, fyrrum heilbrigðisfull- trúa. Mr. Oli G. Johnson frá Garðar, N. Dak., kom til borgarinnar síðast- Iiðinn föstudag til þess að vera við útför Stefáns ScheVing. Hjónavígslur Thorsteinn V. Guðmundson og Merle Sando, bæði frá Árborg, voru gefin saman í hjónaband af Dr. *Birni B. Jónssyni, miðvikudaginn 19. ágúst. Meseuboð FYRSTA LÚTERSKA KIRKJA íslenzk guðsþjónusta í Fyrstu lút- ersku kirkju næsta sunnudag, 30. ágúst, kl. 7 að kvöldi. Messur í Argylebygð 30. ágúst: Glenboro, ir a.m. Grund, 2.30 p.m. Baldur, 7 p.m. Brú 9 p.m. Rev. E. H. Fáfnis. Guðsþjónusta boðast í kirkju Betelsafnaðar sunnudaginn 6. sept- ember kl. 2 eftir hádegi. S. S. Christopherson. Messa næsta sunnudag, 30. ágúst, kl. 11 f. h. í Grandy, en kl. 2 e. h. í Wynyard, og flyt í Wynyard á- framhald af ræðunni á sunnudaginn var. Hún fjallaði um einn kaflann í bók Þorbergs Þórðarsonar, “Rauðu hættunnar.”—Jakob Jónsson. Séra K. K. Ólafson flytur gu&s- þjónustu, á þessum stöðum í Vatna- bygðunum í Saskatchewan sunnu- daginn 30. ágúst: Wynyard, kl. 11 f. 'h. Elfros, kl. 2 e. h. Mozart, kl. 4 e. h. Kandahar, kl. 7.30 e. h. Guðsþjónustan í Kandahar verður á ensku, hinar á íslenzku. Sunnudaginn 6. sept. flytur séra K. K. Ólafson guðsþjónustur sem fylgir: Otto, kl. 11 f. h. Lundar, kl. 3 e. h. Oak Point, kl. 7.30 e. h. Fyrislestra á sömu stöðum flytur séra Kristinn einnig: Fimtudaginn 3. sept., að Oak Point, kl. 8 e. h. Föstudaginn 4. sept., á Lundar, kl. 8 e. h. Laugardaginn 5. sept., að Otto, kl. 8 e. h. Umtalsefni að Oak Point og Otto : “Nýstefnur og nauðsynjamál.” Á Lundar: “Hlutverk kirkjunnar.”— Frjáls samskot. Séra Carl J. Olson flytur guðs- þjónustu og prédikar í efri sal Good. templarahússins næsta sunnudag kl. ! 7 síðdegis. Ræðuefni: “Ytri merki kristilegs lífs.” Allir hjartanlega boðnir og velkomnir! Gleymið ekki að koma með sálmabækur. Messur í Gimli prestakalli næsta sunnudag, þ. 30. ágúst, eru fyrir- hugaðar þannig, að morgunmessa verður í Betel á venjulegum tíma, síðdegismessa i Víðineskirkju kl. 2, og íslenzk messa í kirkju Gimli safnaðar kl. 7 e. h. Sunnudaginn 30. ágúst flytur séra Haraldur Sigmar guðsþjónustu und- ir umsjón sunnudagsskóla Vídalíns safnaðar kl. 10. f. h., og að Moun- tain, N Dak., kl. 8 e. h. Báðar mess- urnar á ensku. Allir velkomnir, sér- staklega unga fólkið. I Mannalát Miss Þórey Ólafsson, því nær áttatíu og fjögra ára að aldri, lézt hér í borginni síðastliðið sunnu- dagskvöld. Útför hennar fer fram í dag (fimtudaginn þann 27.) frá Fyrstu lútersku kirkju klukkan 2. Þórey heitin var vinsæl og vellátin manneskja. Hún var föðursystir K. K. Ólafsson, forseta kirkjufé- lagsins, en ömmusystir Hjálmars A. Bergman, K.C. Miss Aurora Johnson, hjúkrunar- kona, dóttir þeirra Mr. og Mrs. Páll Johnson, að Belmont, Man., er ný- látin á Almenna sjúkrahúsinu hér i borginni. Var hún 25 ára að aldri. Mrs. Halla Crawford, lézt nýver. ið hér í borg, 43 ára að aldri, dóttir þeirra Mr. og Mrs. Þiðrik Eyvinds- son, sem lengi bjuggu í grend við Westbourne, Man., en látin eru nú fyrir nokkrum árum. Halla heitin lætur eftir sig, auk manns síns, sex börn og allmörg systkini. Látið ekki hjá líða að borga Lögberg nú þegar. Uppskera er /iV / V viða goð í bygðum íslendinga--- Þess œtti Lögberg að njóta! Halastjarna er á leiðinni til jarð. arinnar um þessar mundir og fer 5 miljónir kílómetra á dag. I ágúst er mælt að hægt verði að sjá stjörnu þessa með berum augum. Stjörnufræðingar hafa reiknað út, að stjarna þessi hafi verið á ferðinni á þessum slóðum fyrir um 40,000 árum. --------J--- Mr. Chris. Thomasson, útgerðar- maður frá Hecla, Man., er staddur i borginni þessa dagana. AUGNASKOÐUN og gleraugu löguð við hœfi J. F. HISCOX Optometrist Formerly of Hudson’s Bay Co. Successor to Maitland Tinlin 209 Curry Bldg. Ph. 93 960 Opposite Post Office IIAFIÐ ÞÉR SVEFNROM í BILNUM? Sparið hótelgjöld á ferðum yðar i sumar. Sérfræðingar i árekstrar aðgerðum. AOTO BODY WORKS Burnell & Portage Winnipeg, Man. Jakob F. Bjarnason TRANSFER Annast greiðlega um alt, sem »8 flutningura lýtur, smáum e8a Btór- um. Hvergi sanngjarnara ver8. Heimili: 591 SHERBURN ST. Slmi: 35 909 Býflugnaræktendur ! Veitið athygli ! HIVES — SUPERS — FRAMES FÓUNDATION Sendið vax yðar til okkar, 24c I pening- um, 27c 1 vöruskiftum. Skrifið eftir 1936 verðskrá. Alt handa býflugnarœktendum. Andrcws & Son Co. PORTAGE AVE. AT VICTOR Winnipeg E • S • ' fÍEIÐSTEl JEWELLERS jVIYNIPí! Úr, klukkur, gimsteinar og aðrtr skrautmunir. Oiftingaleyfis bréf 447 PORTAGE AVE. Slml 26 224 Sönglög Eftir GUNNSTEIN EYJÓLFSSON tónskáld og rithöfund Nýkomin á markaðinn, “Mimeographed” eftir Gunnar Erlendsson. Afar vandaður frágangur. Verð $1.25 Fæst í bókaverzlun Ó. T. Thorgeirsson, 674 Sargent Ave., og hjá frú Þórdísi Thompson í Riverton. Börn Gunnsteins heitins hafa annast um útgáfuna til minningar um föður sinn. Hellisgerði í Hafnar- firði Hefirðu litið Hellisgerði— Hafnarfjarðar bjarka-Iund? sótt á reynis fagnafund— glæsiimeiða í grýttum sverði? \ Þarna geta þau úr bergi þolvirk sogið kjarna-gnótt, upp í loftið sólbað sótt, fætt sig vel á f jallamergi. Gerðið yfir sér lítið lætur; lystigarðs er þröngur skór; sitja þar að sumbli tór, drykkja sér á dögg um nætur Gott er í þessu Gerði hljóta guðaveig um kveldin hljóð. Sóley blá og sóley rjóð, þeirra gæða þurfa njóta, Þarna mundi ástúð yngja instu þrá um sumarkvöld, þegar himins heiðblá tjöld sól og máni silfri slyngja. Landvættir og álfar eiga í því byrgi griðastað, undir bláum hömrum hlað, bergs við rætur blóma teiga. Hefirðu komið í Hellisgerði— Hafnarfjarðar gróður-ver? Hafirðu ekki, hraðaðu þér! Naumast bregst, að vel þér verði Skáld með vængjum syngja, suða sumardægrin þar, af list: fiðrildi og fugl á kvist yndislega á Gerðið guða. HAROLD EGGERTSON Insurance Counselor NEW1 TORK LIFE INSURANCE f COMPANY Room 218 Curry Bldg. 233 Portage Ave., Winnipeg Office Phone 93 101 Res. Phone 86 828 The Watch Shop Diamonds - Watches - Jewelry Agents for Bulova Watches Marriage Licenses Issued THORLAKSON & BALDWIN Watchmakers & Jewellen 699 SARGENT AVE., WPO. Skóla bœkur Við kaupum og seljutn notaðar skólabækur fyrir alla bekki. Hvergi betri kaup. Einnig úr- val af bókum og timaritum. Afar sanngjarnt verð. Mrs. Ingibjörg Shefley The Better Ole 548 ELLICE AVE. Heilagur andi í Hellisgerði hefir í seli, ef menning vill. En tálmað geta ólög ill að af þeirri dásemd verði. Hellisbyrgið heitið getur, hafi fólkið vilja og ráð, himininn veiti hlýju-náð: Hafnarfjarðar helgisetur. Guðmundur Friðjónsson. —Lesb. Mbl. Krishnamurti Framh. frá bls. 5 Að endingu vil eg geta þess, að ef nokkur eða nokkrir vildu hrinda ein- hverju á stað í sambandi við starf- semi Krishnamurtis, væri mér sú stærsta ánægja að vera með í verki. ef til framkvæmda kemur, og gefa allar þær upplýsingar, sem eg gæti náð í viðvíkjandi þessu málefni. “Vinnum meðan dagur er.” Ingibjörg Lindal, Wynyard, Sask. J. Walter Johannson Umbo8sma8ur NEW TORK L.IFE INSURANCE COMPANT 219 Curry Bldg. Winnipeg Minniát BETEL 1 erfÖaskrám yðar! WHAT IS IT— 9 ■ That makes a business man choose one appli- cant for employment in preference to another? Efficient business training, important though it is, is only half the story. To sell your services you must understand the employer’s needs and his point of view. You must be able to “put yourself over.” DOMINION graduates are taught not only the details of their work but also the principles of good business personality. They can sell their services. DOMINION BUSINESS COLLEGE ON THE MALL And at Elmwood, St. James, St. John’s —------—------ 1

x

Lögberg

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.