Lögberg


Lögberg - 10.09.1936, Qupperneq 1

Lögberg - 10.09.1936, Qupperneq 1
49. ABGANGUB j WINNIPEG, MAN., FIMTUDAGINN 10. SEPTEMBER, 1936 | NÚMEtR 37 Lávarður Tweedsmuir heiðrar islendinga með heimsókn til Gimli Hans hágöfgi, landstjórinn í Canada, lávarður Tweedsmuir, heimsækjir Nýja Island þann 21. þessa mánaðar—kemur til Gimli kl. 12.15 þann dag og ávarpar þar Islendinga Frá Íslandi Síldveiðin glæðist í Faxaflóa Bátar, sem stunda reknetaveiðar hér í Faxaflóa, hafa aflað dável tvo undanfarna daga. Veiðist síldin bæði vestan og austan til í flóanum, og gera sjómenn sér því vonir um aS síldarganga sé að aukast í Faxaflóa. I gær kom hingað vélbáturinn Ármann frá Akranesi með 65 tunn ur af síld, sem veiddist í Jökul- djúpinu um 40 mílur frá Reykjavík. Síldin er yfirleitt stór og feit, en nokkuð misjöfn. Einnig kom hingað í gær vélbát- urinn Ingólfur með dágóðan afla. Síldin er fryst i Sænsk-íslenzka frystihúsinu. Til Keflavíkur komu í fyrradag tveir bátar með síld: Svanur með 28 tunnur og Trausti frá Sandgerði með 40 tunnur. í gær komu þrír bátar með síld til Keflavíkur. Svanur rtieð 20 tunnur (veitt austan til í flóanum), Gylfi frá Ytri-Njarðvík með 40 tunnur og Ása, Keflavík, með 40 tunnur. Tveir síðastnefndir bátar öfluðu síldina á Jökuldjúpi. Frá Akranesi hafa 6 bátar stund- að síldveiðar með reknetum, hefir afli verið misjafn undanfarið þang. að til tvo síðustu dagana. Þessir bátar stunda sildveiðar frá Akranesi: Ægir, Ármann, Bára, Hrafn Sveinbjarnarson, Aldan og Sæfari. Komu þeir allir inn í gærmorgun með 40—100 tunnur. Þeir voru að veiðum í Jökuldjúpi. Lúðuveiðar frá Akranesi. Haraldur Böðvarsson útgerðar- tnaður á Akranesi hefir gert út 6 báta í sumar til lúðuveiða. Hefir afli bátanna verið 30—75 lúður eftir 6 daga útilegu. Lúðan <er stór, alt að 300 pund. Haraldur sendir lúðuna jafnóðum til Englands í ís.—Mbl. 12. ágúst. # * # ■500 manns á Hallgrímshátíð siðastliðinn simnudag Eins og ákveðið var, fór Hall- grimshátíðin fram í Saurbæ á Hval- f jarðarströnd í gær, sunnudaginn 9. ágúst. Dagana næstu á undan hafði veðurútlitið verið nokkuð brigðult, ■og óttuðust menn, að veðrið mundi verða óhagstætt þennan dag, og mun það hafa dregið allmikið úr þátttök. nnni að þessu sinni. En sunnudag- urinn rann upp, bjartur og fagur, svo að eigi sást ský á lofti frá hafs- brún til hæstu f jallatinda. Og sama blíðviðrið hélst stöðugt fram yfir sólarlag. — Þessi dagur var hinn dýrðlegasti frá náttúrunnar hendi, —Það var eins og hann væri sér- staklega samræmdur minningu Hall- gríms Péturssonar.— Kl. 12 á hádegi hófst guðsþjón- usta í Saurbæjarkirkju. — Voru þar 5 prestar íklæddir messuskrúða: Sóknarpresturinn séra Sigurjón Guðjónsson, séra Þorsteinn Briem, prófastur, séra Friðrik Friðriksson,# séra Þórður Ólafsson, og séra Eirik- ur Brynjólfsson. — Séra Eiríkur flutti stólræðuna. En séra Þor- steirtn Briem var fyrir altari. Guðs- þjónustunni lauk með því, að séra Friðrik Friðriksson lagði fagran blómsveig (kross) á leiði H. P., við kirkjudyr, og flutti fagra ræðu. En á eftir var sunginn kafli úr Hall- grímsminningarljóðum Péturs Páls. sonar.— Kl. 3 e. 'h. hófst enn lúðraþytur og ræðuhöld uppi í Fannahlíð (sem Fetar í fótspor íslandsvinarins mikla, Dwfferins lávarðar, er flutti sína nafntoguðustu ræðu á Gimli 1877. Lávarður Tweedsmuir Þess hefir verið farið á leit, að sveitarstjórnir í Gimli og Bifröst, eins vel mætti nefna Birkihlíð). Var þar fagurt um að litast í logni og sólskinsbliðu. Þar hafði verið reistur ræðustóll, og gjallarhorni komið fyrir. Hóf nú séra Sigurjón Guðjónsson ræðu. Lýsti hann m. a. hvernig nú horfði kirkjubyggingar- málinu, Qg lét þess getið, að byrjað myndi að byggja Hallgrímskirkju á næstkomandi vori. Enda hefir þeg- ar verið leyst af hendi allmikil undir- búningsvinna, svo sem með bryggju- gerð, vegalagningu, grunnsléttun, o. fl. — Þá flutti séra Þorsteinn Briem ítarlega og ágæta ræðu, er einkum lýsti eðli og áhrifum H. P., sem trúmanns og afburðaskálds. Enda er það svo, að kjarninn í ljóð- um Hallgríms, mun seint fyrnast. Hann getur ávalt sameinast heil- brigðri hugsun, — þótt tímar og stefnur breytist. — Eftir að hátíðinni var lokið, kringum kl. 5 síðd., fóru hátíðar- gestir að smáhverfa á burt af há- tíðasvæðinu. Innanhéraðsfólk til hesta sinna og bifreiða, en Reykvík- ingar gengu til strandar, þar sem E.s. “Súðin” beið þeirra, alskreytt fánum. — Allir hátíðargestir voru ásamt bæjarstjórninni á Gimli, ann. ist um undirbúning móttökunnar í samráði við Mr. J. T. Thorson, þingmann Selkirk kjördæmis, að svo miklu leyti sem í valdi þeirra stend- ur. Stuðningur af hálfu Wlinnipeg íslendinga ætti að vera alveg sjálf- sagður, því þessi virðulega heimsókn landstjórans varðar alla Islendinga jafnt, hvar sem þeir eiga búsetu í þessu landi og hvernig sem högum þeirra er háttað. Lávarðurinn er hámentaður and- legur aðalsmaður, sem hafist hefir til hárrar tignar stig af stigi, fyrir sjálfsrækt og samvizkusemi; hann er kunnur um allan hinn brezkment- aða heim sem sagnaskáld og ljóða, með djúpa innsýn i sálræn sérkenni mismunandi þjóðflokka. Hann hef- ir sjálfur heimsótt ísland og lagt svo mikla rækt við bókmentir vorar og tungu, að hann hefir lesið sumar Islendingasögurnar á frummálinu. Þegar slíka gesti ber að garði er það skylda vor að vera allir eitt! ánægðir yfir blíðu og helgi þessa dags. Og rétt er að geta þess, að ekki sáust áhrif víns á neinum. Var síðan siglt suður, móti bliki lækk- andi sólar, er loks hvarf oss í skín- andi kveldbjarma yfir skygðum hjálmi Snæfellsjökuls. Hátiðinni var lokið. Dagurinn að kveðja. Hann skilur oss eftir fagrar endur- minningar. Rvík, 10. ágúst, 1936. Einn af hátíðargestunum. —Mbl. 12. ágúst. HÖRMULEGT SLYS Á laugardaginn þann 29. ágúst siðastliðinn, lézt af bílslysi skamt frá Woodbury í Connecticut-ríkinu, Mrs. Delia Lárusson, kona Mr. Hjartar Lárussonar, kennara við McPhail School of Music í Minne- apolisborg. Mr. Lárusson var ör- skamt á eftir i bíl, þegar þetta hörmulega slys vildi til, og varð sjónarvottur að því, er bill sá, er kona hans var i ásamt systur sinni, rakst á simastaur, þar sem slysið or. sakaðist. Lögberg vottar Mr. Lárusson innilega samúð í þeirri þungu sorg. er honum hefir að höndum borið. Á sjötugsafmæli Jóns tónskáids Frið- finnssonar, 16. ágúát Hver liljómur þinn er lofgerð, ljós í geði, sem lífsins dásemd þarf að skýra frá: um landnám, vormenn, vonir, fjör og gleði og vorlífs djúpu, heitu ástarþrá. Og Breiðdals sól reist björt í þínum tónum, sem beggja megin hafsins flutti vor. Og þú ert einn af okkar beztu Jónum, sem ísinn liafa brætt og markað spor. Yið plóginn söngstu um svani blárra geima og sólarris liins falda morgundags. Og söngvar grænna grana spruttu heima úr gróðrarmold þíns unga bygðarlags. Og hvað er það, sem æsku dreymir ekki sem áifa tveggja sýgur móðurbrjóst f • Og menning sú á marga skólabekki en meira en lítinn tveggja skauta gjóst. Ilver sjötíu árin eru ei deigur dropi að drekka fyrir þyrsta æskusál, en þó er verra að deyfist sérliver sopi og svölun litla færir elliskál. En samt er eftir eitt: þú getur sungið í ormagarði fræm á hinztu stund, og sjálfd elli svefnsins þorni stungið, en sigurminning helgað liverja und. Þ. Þ. Þ. —Alþýðublaðið. DR. HJÖRTUR C. THORDARSON Idjinn víðfrægá Islendingur, dr. Hjörtur C. Thordarson verksmiðju. eigandi og raffræðingur frá Chi- cago, 111., kom til borgarinnar á föstudaginn var vegna fráfalls Guð- rúnar systur sinnar, sem þá var ný- látin á Betel. Dr. Thordarson hafði ekki alls fyrir löngu verið sárlasinn og var vinum hans það því hið mesta fagnaðarefni að vita hann endur- hrestan til muna. Dr. Thordarson dáðist mjög að umgangi öllum og aðbúnaði á Betel, þessari Paradís hins aldurhnigna fólks vors, er bíð- ur þar sólarlagsins með bros á vör. Dr. Thordarson lagði af stað heim- leiðis á sunnudagskvöldið. MERK KONA DÁIN Að morgni laugardagsins var, 5. seþt., andaðist á Elliheimilinu Betel, þar sem hún hafði dvalið nær ár- langt, konan Guðrún Thordarson, rétt áttræð að aldri. Hún var al- svstir þeirra merku bræðra Thordar læknis Thodarsonar í Minneota og Hjartar Thordarsonar í Chicago. Hjörtur kom til systur sinnar dag- inn áður en hún dó. Lagði hann á stað með líkið suður á sunnudaginn var og fer útförin fram í Minne- apolis. Áður en lagt var á stað, fór fram guðrækileg kveðju-athöfn á Betel. Henni stýrði séra Bjarni Rjaruason, sóknarprestur á Gimli. Hér geta ekki skráð verið til hlít- ar æfiatriði hinnar látnu konu. Hún var fædd í Hrútafirði á Islandi. Kom vestur kringum 1880. Dvaldi Valdiné Condie Valdine Condie og kennari henn- ar Sigrid Helgason, ásamt Mrs. Condie, komu til bæjarins, eftir sjö vikna dvöl í New York borg, þar sem Mrs. Helgason stundaði nám í nýjunt aðferðum i pianó-kenslu. Valdine spilaði Mozart Concerto D Major, sem er sextíu blaðsiður á lengd, utan bókar, með Juilliard Symphony Orchestra. Valdine spil- ar yfir útvarp og Central Network hjá CJRC á hverjum föstudegi kl. 3:30, sem nemandi Mrs. Helgason. Mrs. Helgason biður blaðið að flytja innilegt þakklæti og kveðjur til góðra vina i New York, sem hafi sýnt þeim alla þá alúð og gestrisni sem mögulegt var, og heiðrað þær með samsætum. Mr. og Mrs. Emile Walters, sesn buðu þeim á sitt tígu. lega heimili í fínasta parti borgar- innar, til veizlu, með heiðursgestin- um Viljhálmi Stefánsson. Einnig Mr. og Mrs. Fred Dalman, fyrir alla þá vináttu og gestrisni sýnda þeirn. Islendingar ættu að vera stoltir að eiga tvo svo framúrskarandi lista- menn sem Emile Walters listtmál- ara og Fred Dalman, sem teljast má einn rnesti musician, setn Islend- ingar hér vestanhafs eiga. Miss Elva Eyford, B.A. Þessi bráðvelgefna og glæsilega stúlka, útskrifaðist í vor sem leið af háskóla Manitobafylkis með fyrstu ágætiseinkunn. Nú hefir hún verið skipaður kennari við Jóns Bjarna- sonar skóla. Miss Eyford er dóttir sæmdar og gáfumannsins Grims Eyford, Ste. 3 Nova Villa Apts., hér í borginni. hún lengi í Chicago. Var það fyrir hennar tilstyrk, að Hjörtur bróðir hennar komst á ungum aldri til þeirrar borgar, og henni þakkar hann það mest allra, að hann komst til manns — varð sá afburðamaður, sem þjóðkunnugt er. Um hríð var Guðrún sál. ráðskona hjá Thorði lækni bróður sínum í Minneota, en lengst var hún með venslafólki sínu öðru í Minnesota og N. Dakota. Hún var ógift alla æfi. Guðrún sál. var gáfukona, svo sem hún átti ætt til. Alt hennar ráð var jafnan gjörhugsað. Mannkostir hennar voru miklir. Réttlæti og sannleikur voru förunautar hennar. Allir, sem henni kyntust, báru virð- ingu fyrir henni. Fáskiftin var hún, en frábærlega trygglynd. Þá tíð, sem hún dvaldi á Betel, ávann hún sér virðing og velvild allra. Or borg og bygð Þóra Ásgeirsson, 9 ára gömul dóttir þeirra Mr. og Mrs. Jón Ás- geirsson hér í borginni, hlaut þá allra hæztu einkunn við Preparatory prófin í pianospili við Toronto Con- servatory of Music, sem nokkrum Manitoba nemanda hlotnaðist í vor sem leið. Þessi bráðefnilega stúlka er nemandi Miss Snjólaugar Sig- urdson. Miss Inga Johnson, forstöðukona við Betel, og systir hennar, Mrs. Lára Burns, lögðu nýlega á stað í tveggja til þriggja vikna ferð til Minneapolis. Mrs. Agnes Gunnlaugsson er ný- komin heim úr ferð vestan af Strönd í heimsókn til sonar síns, Mr. Fred Gunnlaugsson í Vancouver. Með henni ferðaðist dóttir hennar, Mrs. Dodds, Brandon, Man. Var þetta einkar skemtileg ferð. Frú Elísabet Jensen-Brand, lagði af stað áleiðis til íslands á miðviku- dagskvöldið í vikunni sent leið, á- samt Svövu Andreu dóttur sinni. Þær mæðgur sigldu frá Montreal á föstudagsmorguninn. Ráðgerðu þær að dvelja heima í vetur eða jafnvel árlangt. Sonur þeirra Mr. og Mrs. Brand dvelur á íslandi sem stendur og hefir verið þar hálft annað ár. Frú Elísabet Brand er systir frú Þorbjargar Halldórs fá Höfnum. Tryggvi Oleson, M.A. þessi ungi og stórhæfi mentamaður, hefir verið ráðinn kennari við Jóns Bjarnasonar skóla yjir skólaár það, sem nú fer í hönd. Mr. Jón Jóhannesson frá Elfros, Sask., kom til borgarinnar í vikunni sem leið og dvelur hér fram í lok yfirstandandi viku. Eldri söngflokkur Fyrsta lúterska safnaðar heldur söngæfingu í kirkj. unni á sunnudagskvöldið þann 13. þ. m., kl. 6. Mrs. Guðmundur Eyford, Ste. 15 Manitou Apts., kom heim á mánu- daginn var eftir því nær þriggja mánaða dvöl hjá Björgu dóttur sinni, sem búsett er í Muskegon, Mich. Mr. B. J. Lifman, oddviti sveitar- innar Bifröst, kom til borgarinnar á mánudaginn, ásamt Laufeyju dótt. ur sinni, sem byrjað hefir þegar á námi við Dominion verzlunarskól- ann. Meðal þeirra héðan úr borg, er sóttu 50 ára afmælishátíð Vídalíns safnaðar að Akra, N. D., siðastlið- inn sunnudag, voru Mr. og Mrs. O. G. Björnson, Mr. og Mrs. Fred Thordarson, Mr. J. J. Samson, Mr. S. Oddson, Mrs. H. Hinriksson, Mr. og Mrs. Walter Johnson, Mr. og Mrs. Sigurður Sturlaugsson og Einar P. Jónsson. Mrs. Sveinbjörn Gíslason, Home Street, hér í borg, er nýkomin heim úr skemtiferð vestan af Kyrrahafs- strönd. Mr. G. J. Johnson, 109 Garfield Street, er fyrir skömrnu kominn heim úr sjö vikna ferðalagi vestur um Albertafylki og Kyrrahafs- strönd. Mrs. Jón Júlíus, 757 Home Street, kom heim á þriðjudaginn, eftir tveggja vikna dvöl á heimili þeirra Mr. og Mrs. C. P. Paulson á Gimli. ERFIÐLEIKAR MEÐ SALT- EISKSÖLU I FÆREYJUM Blaðið “Dimmalætting” í Fær- eyjunt gerir þá uppástungu að Dan- ir kaupi allan óseldan saltfisk Fær- eyinga og noti til matgjafa handa atvinnulausum mönnum. Bendir blaðið á þau miklu vand- ræði, sem nú steðji að með saltfisk. söluna, vegna borgarastyrjaldarinn- ar á Spáni, en Spánn hefir verið aðalkaupandi Færeyjafisks. Blað sósíalista í Færeyjum krefst þess, að nú þegar verði rannsakaðir möguleikar þess, að útvega nýja markaði fyrir Færeyjafiskinn og bendir sérstaklega á Ameríku í því sambandi.—Mbl. 18. ág. HERMALA RÁÐGJAFI ' RANDARIKJANNA LÁTINN Þann 27. ágúst síðastliðinn lézt á sjúkrahúsi í Washington, D.C., her- málaráðg j af i Bandar ík jast jórnar. innar, George Henry Dern, 68 ára að aldri. Hjartabilun orsakaði dauða hans.

x

Lögberg

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.