Lögberg - 24.12.1936, Side 3
LÖGBERG, FIMTUDAGINN 24. DESEMBER, 1936
3
indamenn hafið nýja rannsókn í því
.skyni að reyna að svifta hulunni af
þessum atburðum. Hefir þeim ]>eg-
ar orðið nokkuð ágengt, og skal nú
segja frá píslarvætti postulanna í
ljósi þess.
II.
Hinn 19. júli árið 64 gaus upp
eldur í vörubúðum uinhverfis Cirkus
maximus í Róm. Vörubirgðirnar
voru miklar og eldfimar og hvass-
viðri á, svo að bálið læstist þar
skjótt eftir dalnum og stefndi í átt-
ina til Forurn og Capitoliumhæðar.
Magnaðist það svo, að ekki varð við
ráðið, enda voru borgarstrætin
bugðótt og mjó og húsin sumstaðar
bygS yfir þau. Jafnhliða breiddist
sá orðrómur út, að logatungur hefðu
sézt blakta í senn á ýmsum stöðum
og menn verið þar við og æst eldana
og kvaðst gjöra það samkvæmt æðri
skipun. Fimm daga æddi eldurinn
og tókst loks að stöðva hann með
því að brjóta niður stórhýsi við
Esquilinhæð. Vorú þá þrjú hverfi
Rómaborgar gjörfallin, sjö lágu að
mestu leyti í rústum, en fjögur að-
eins stóðu eftir. Ógurleg æsing fór
að gagntaka borgarbúa. Sögur bár-
ust um það mann frá manni, að
Neró keisari væri valdur að brun-
.anum, hann hafði sézt með hörpu í
höndum og kveðið um eyðing Tróju-
borgar. Hatursbylgja var rétt að
skella á honum í fyrsta sinni á æfi
hans. Nú voru góð ráð dýr. Með
djöfullegri lævísi tókst honum að
skjóta sér undan. Hann vissi það,
að lýðurinn heimtaði hefnd, og líf
hans lá við, að hann fengi beint
þeim heiftarhug að öðrum. Hann
valdi til þess kristna menn og leitaði
sannana á hendur þeim fyrir því,
að þeir hefðu kveikt í Róm. Þeir
áttu enga vini i borginni. Rómverj-
ar töldu þá alment til Gyðinga, sem
þeir hötuðu, og Gyðingar höfðu fyr-
irlitníngu og viðbjóð á þeim. Allri
skuldinni var skelt á þá. Tacitus
sagnaritari fer um það þessum orð-
samkvæmt vitnisburði þeirra ótelj-
andi grúi sannur að sök, ekki svo
mjög um íkveikju i borginni, heldur
um hatur til mannkynsins.”
Það verður ekki sýnt með rökum,
að nokkur kristinn maður hafi játað
á sig hlutdeild í brunanum. “Sökin,”
sem þeir játuðu, var blátt áfram sú,
að þeir væru kristnir. Engin ástæða
er heldur til að ætla, að þeir, sem
fyrst voru handteknir, hafi sagt til
bræðra sinna, enda þótt reynt væri
að pína þá til þess. En það er
sennilegast, að yfirvöldin hafi náð
í bréf og skjöl kristinna manna og
komist þannig að raun um, að þeir
voru ekki gyðinglegur sértrúarflokk-
ur, heldur vildu stofna ný heimstrú-
arbrögð og þá jafnframt kollvarpa
trú og helgisiðum Rómaveldis.
Þetta er það sem Tacitus kallaði
“hatur til mannkynsins.” Nú vildi
Neró bæði svala blóðþorsta borgar-
múgsins og veita honum og sjálfum
sér þá skemtun, að hætt yrði að
brjóta fieilann um upptök eldanna í
Róm.
Skemtistaður var ákveðinn hring-
leikasviðið á hálsdraginu á hægri
hönd við Tiber, þar sem Vatikan-
liallirnar standa nú. Lystigarðar
keisarans lágu umhverfis og hafði
eldurinn ekki komist þangað. Þeir
voru opnaðir öllum borgarlýðnum,
sem streymdi að þúsundum saman.
Tacitus gefur með nokkrum orðum
hugmynd um það, sem fór fram á
leikvellinum. Þeir, sem dæmdir voru
til dauða, voru fyrst látnir ganga í
lángri fylkingu hringinn í kring. Það
átti að gefa áhorfendunum nokkurs
konar forsmekk að því, er við myndi
taka. Því næst var rekinn inn flokk-
ur af kristnum mönnum, körlum og
konum, vöfðum villidýrahúðum, og
ólmum hundum slept á hópinn til
þess að rífa hann í sig. Þegar á-
horfendur höfðu fengið nægju sína
af þessum ójafna leik, þá voru
krossar bornir fram og reistir, og
aðrir menn festir á þá. Síðan var
um: “Fyrst voru allir þeir hand- hleypt út á þá banhungruðum villi-
teknir, sem játuðu, því næst varð dýrum. Ekkert af þessu var þó
INNKÖLLUNAR-MENN LÖGBERGS
Amaranth, Man B. G. Kjartanson
Akra, N. Dakota .... B. S. Thorvardson
Arborg, Man .. .Tryggvi Ingjaldson
Árnes, Man
Baldur, Man
Bantry, N. Dakota . .. .. .Einar J. Breiðfjörð
Bellingham, Wash. . ..
Blaine, Wash.
Bredenbury, Sask. ...
Brown, Man.
Cavalier, N. Dakota .. ....B. S. Thorvardson
Churchbridge, Sask....
Cypress River, Man. .
Dafoe, Sask
Edinburg, N. Dakota..
Elfros, Sask Mrs. J. H. Goodmundson
Foam Lake, Sask
Garðar, N. Dakota....
Gerald, Sask
Geysir, Man • -Tryggvi Ingjaldsson
Gimli, Man
Glenboro, Man
Hallson, N. Dakota .. .. .S. J. Hallgrímsson
Hayland, P.O., Man.. . .Magnús Jóhannesson
Hecla, Man
Hensel, N. Dakota ....
Husavick, Man
Hnausa, Man
Ivanhoe, Minn
Kandahar, Sask
Langruth, Man
Leslie, Sask
Lundar, Man
Markerville, Alta. ....
Minneota, Minn
Mountain, N. Dak. ... .... S. J. Hallgrímson
Mozart, Sask
Oak Point, Man
Oakview, Man
Otto, Man.
Point Roberts, Wash. . S. J. Mýrdal
Red Deer, Alta
Reykjavík, Man
Riverton, Man .. .Björn Hjörleifsson
Seattle,( Wash.
Siglunes P.O., Man. .. . Magnús Jóhannesson
Silver Bay, Man
Svold, N. Dak. .. .B. S. Thorvardson
Tantallon, Sask
Upham, N. Dakota .. , . .Einar J. Breiðfjörð
Viðir, Man . .Tryggvi Ingjaldsson
Vogar, Man .Magnús Jóhannesson
Westbourne, Man
Winnipegosis, Man Finnbogi Hjálmarsson
Wynyard, Sask J. G. Stephanson
Winnipeg Beadh 1 * — F. O. Lyngdal
EF ÞÉR KENNIÐ MAGNLEYSIS
NOTÍÐ NUGA-TONE
pau hin ýmsu eiturelni, er setjast að
í líkamanum og frá meltingarleysi stafa,
verða að rýma sæti, er NDGA-TONE
kemur til sögunnar; gildir þetta einnig
um höfuðverk, o. s. frv.
NUGA-TONE vísar öhollum efnum 4
úyr, enda eiga miljónir manna og
kvenna því heilsu slna að þakka.
Kaupið aðeins ekta NUGA-TONE 1
ábyggilegum lyfjabúðum.
Við hægðaleysi notið UGA-SOL —
bezta lyfið, 60c.
mjög nýstárlegt á hringleikasviðum
Rómaborgar. En að áliðnum degi
skyldi sýna hópmyndir úr goðsögn-
unum og þjóðsögunum, Herkúles
brendan á báli, Orfevs tættan sund-
ur, Dirke bundna við horn á mann-
ýgu nauti o. s. frv. Þegar kvöld-
skuggarnir breiddust yfir garðana,
stigu upp logar þaðan til þess að
lýsta þá. Um þá alla höfðu verið
reistir krossar og píslarstaurar, og
við þá feldir kristnir menn, en tjara
og terpentína borin í klæði þeirra.
Allan daginn höfðu þeir séð dauða-
stríð félaga sinna og heyrt kvalaóp
þeirra og hróp mannfjöldans. Svo
var kveikt í klæðum þeirra og þeir
hafðir að næturblysum. En Neró
og höfðingjar hans óku fram með
þessum lifandi blysaröðum og fólks-
grúinn gekk. Ýmsir hyltu keisarann
með fagnaðarópum, annað var ekki
þorandi, en mörgum blöskraði ó-
seðjandi grimd hans. Og stilling og
hugprýði hinna deyjandi manna
vöktu undrun og aðdáun. Þeir
hvorki bölvuðu né börmuðu sér,
engir kveinstafir heyrðust. Birta og
friður var yfir svip þeirra og þeir
dóu með bros á vör.
Loks var þessi hryllilegi leikur á
enda. Ljósin blöktuðu, og dó á
blysunum. Eftir var brunnið og
stiknað hold. Áhorfendurnir héldu
aftur heim og næturmyrkrin huldu
garða Nerós. Þá kom fram nýr
mannfjöldi og dreifðist um leik-
sviðið og garðana, karlar, konur og
börn. Sama hættan vofði yfir þeim
öllum. Þeim var dauðinn vís að
morgni, ef þau fyndust á þessum
slóðum. En þau skeyttu því engu.
Þau söfnuðu í kyrþey sarnan jarð-
neskum leifum píslarvottanna og
jörðuðu þær skamt frá í einni gröf,
þar sem nú er grafreitur Vatíkans-
ins.
Þannig hófst Nerós ofsóknin.
III.
I þessum fyrsta hóp píslarvotta
var hvorugur þeirra Péturs né Páls.
Þó hefir Pétur þá verið aðalleið-
togi safnaðarins í Róm. Hvenær
hann kom þangað alkominn, verður
ekki' með vissu sagt, en sennilega
hefir verið tiltölulega skamt síðan.
Hann er hvorki nefndur í Róm-
verjabréfi Páls frá árinu 56, né í
frásögn Postulasögunnar um komu
Páls til Róm 61, eða í bréfum þeim,
• sem Páll skrifar þar í fangelsi 61—
63. Mætti gizka á, að Pétur hefði
flust til Rómaborgar 63 og tekið þá
þegar við forstöðu safnaðarins.
Erfikenningin segir, að hann hafi
átt heima í húsi höfðingja eins á
Viminalishæð og stjórnað málum
safnaðarins þaðan, þegár ofsóknin
braust út. Hefði hann haldið þar
áfram störfum eins og áður, þá var
söfnuðurinn forystulaus innan
stundar, hjörðin tvístruð öll, hrjáð
og hrakin. Hann mátti ekki meta
hlutskifti píslarvættisins meira en
það að vera með söfnuðinum og
leiða hann gegnum margar þrautir.
Hann hefir hugsað líkt og Páll
skrifaði áður: “Mig langar til að
fara héðan og vera með Kristi, þvi
að það væri miklu betra, en yðar
vegna er það nauðsynlegra, að eg
haldi áfram að lifa í líkamanum.”
Hann hefir tekið sama ráðið og
margir ágætustu leiðtogar kristn-
innar á ofsóknartímum eftir hans
dag. Hann dró sig í hlé um sinn og
fór huldu höfði, huggaði söfnuð-
inn og styrkti og var brjóst fyrir
honum eftir því sem auðið var. En
ofsóknunum lint! ekki. Alla stjórn-
artíð Nerós grúfðu helskýin dag frá
degi yfir kristnum mönnum, og það
ekki aðeins í Rómaborg heldúr um
Rómaveldi. Fyrra Pétursbréf
bregður birtu á þessa tíma, þetta
dásamlega bréf, dýpra og innilegra
ef til vill í allri sinni einfeldni og
ást á Kristi heldur en önnur bréf
N.t. Það virðist skrifað skömmu
eftir fyrstu líflátin og heldur á lofti
mynd Krists líðandi og deyjandi
frammi fyrir söfnuðunum í dreif-
ingunui, sem mega vænta hins sama
og Rómasöfnuðurinn: “Þér elsk-
aðir, látið yður eigi undra eldraun-
ina, sem yfir yður er komin yður til
reynslu, eins og yður hendi eitthvað
kynlegt, heldur gleðjið yður að sarna
skapi, sem þér eruð hluttakandi í
pislurn Krists, til þess að þér rnegið
gleðjast miklum fögnuði við opin-
berun dýrðar hans. Sælir eruð þér,
því að andi dýrðarinnar og andi
Guðs hvílir yfir yður. Því að eng-
vnn yðar liði sem manndrápari eða
þjófur eða illvirki . . . en ef hann
líður svo sem kristinn maður, þá
er þér eruð smáðir fyrir nafn Krists,
fyrirverði hann sig ekki, heldur
gjöri Guð vegsamlegan með þessu
nafni.”
Páll postuli var aftur á móti ekki
i Róm um þessar mundir. Það sýnir
niðurlagið á síðara bréfinu til
Tímóteusar. Því að hvort sem bréf-
ið í heild sinni er eftir Pál eða ekki,
þá er sá kafli eftir hann. Hann er
sönnun þess, að Páll losnar úr varð-
haldinu í Róm, sem Postulasagan
segir frá, og kemur aftur til safnaða
sinna í Asíu. Varðhaldsvist hans
hefir ekki staðið skemur en til 63,
og verður að ætla til þessarar síð-
ustu ferðar hans að minsta kosti tvö
ár, enda þótt frásögn Klemensar
rómverska um Spánarför Páls
kunni að vera bygð á getgátum ein-
um. Kemur Páll því ekki aftur til
Rómaborgar fyr en nokkuð er lið-
ið á Nerósofsóknina árið 65 eða 66.
I fornu riti um Pál segir, að hann
hafi ekki farið inn í sjálfa borgina,
heldur sezt að í búgarði eða litlu
húsi fyrir utan hana og fengið læri-
sveina sína þangað til sín. Þetta er
í sjálfu sér mjög sennilegt, þvi að
Páll var alþektur bæði af lífvörðum
keisrans og hermönnum og myndi
því ekki hafa getað dulist lengi í
Róm. Þeir Pétur hittast eflaust
mjög fljótt og starfa saman hlið við
hlið að safnaðarstjórninni og standa
í bréfasambandi við söfnuðina um
Rómaveldi.
IV.
Vísindamenn greinir á um það,
hvar þessi miðstöð kristnistarfsins
hafi verið. En í nýju vísindariti,
bygðu á fornleifarannsóknum í
Róm og í grend við hana, er Domus
Petri, eða hús Péturs, talið staður-
inn. Það er suður við Via Appia,
rétt hjá Katakombum Sebastians
helga, og er ekki langt síðan það var
grafið upp. Á einn vegginn er krot-
að nafnið “Domus Petri,” og munu
þau orð lúta að Damasusar-áletrun-
inni frægu frá seinni hluta fjórðu
aldar. En í safni rétt hjá eru forn-
leifar frá þessum stöðum og þar á
meðal sú áletrun eða stafir úr henni.
Hún er á þessa leið:
“Þú, sem spyrð um nöfn Pturs
og Páls skalt vita, að hér bjuggu
fyrrum hinir heilögu menn. Austur-
lönd sendu oss þá postula, vér könn-
umst fúslega við það — þeir hafa
nú fylgt Kristi á stjörnuvegum og
eru komnir í himneskt skaut og riki
trúaðra — en við blóðugt píslarvætti
þeirra hefir Róm fengið réttinn til
þess að telja þá borgara sína. Þetta
kveður Damasus yður tiMofs, nýju
stjörnur.” \
Orðin “bjuggu” geta að vísu tákn-
að sama sem “hvíldu,” báru beinin,
en í eiginlegri merkingu gefa þau til
kynna, að þarna hafi þeir postul-
arnir Pétur og Páll átt heima. og
kemur þá trauðla til greina annar
tími en sá, sem líður frá endurkomu
Páls til Róm og þangað til þeir
verða handteknir af keisaravaldinu.
í þessu litla húsi, sem þar hefir ver-
ið áfast stórum búgarði, var gott
að dyljast, og postularnir hafa leitt
safnaðarfólkið í gleði og sorg, lífi
og dauða og orðið því svo hjart-
fólgnir báðir, að ekki hefir verið
minst svo annars þeirra, að hinn
kæmi þá ekki einnig í hug. Þannig
hefir liðið mánuður eftir mánuð og
blóð píslarvottanna sífelt orðið út-
sæði kirkjunnar. Við þessa tíma er
tengd forn og fögur helgisaga, sem
hefir mikinn andlegan sannleika að
geyma, eins og hún er í upphaflegri
mynd. Ætla eg því að segja hana
þannig, enda varð hún mér enn
minnisstæðari við komu mína til
kapellunnar “Quo vadis” við Via
Appia, en inni þar er Kristsmynd
Business and Professional Cards
PIÍYSICIANS and SURGEONS
DR. B. J. BRANDSON 216-220 Medical Arts Bldg. Cor. Graham og Kennedy Sts. Phone 21 834—Office timar 2-3 Heimili: 214 WAVERLEY ST. Phone 403 288 Winnipeg, Manitoba DR. B. H.OLSON Phones: 35 076 906 047 Consultation by Appointment Only Heimili: 5 ST. JAMES PLACE Winnipeg, Manitoba
Dr. Herbert J. Scott 306-7 BOYD BLDG. Stundar augna-, eyrna-, nef- og kverka-sjúkdðma Viðtalstfmi 2-5, by appointment Sími 80 745 Gleraugu útveguB Dr. P. H. T. Thorlakson 205 Medical Arts Bldg. Cor. Graham og Kennedy Sts. Phone 22 866 Res. 114 GRENFELL BLVD. Phone 62 200
DR. ROBERT BLACK Sérfrœðingur í eyrna, augna, nef og hálssjúkdðmum. 216-2 20 Medical Arts Bldg. Cor. Graham & Kennedy Viðtalstfmi — 11 til 1 og 2 til 5 Skrifstofusími — 22 251 Heimili r 401 991 DR. JON A. BILDFELL 216 Medical Arts Bldg. Viðtalstfmi frá 4-6 e. h., nema öðruvísi sé ráðstafað. Sfmi 21 834 Heimili 238 Arlington Street. Sími 72 740
Dr. S. J. Johannesson DRS. H. R. & H. W.
TWEED
Viðtalstfmi 3-5 e. h. Tannlœknar 406 TORONTO GENERAL
218 SHERBURN ST. TRUSTS BUILDING
Sfmi 30 877 Cor. Portage Ave. og Smith St. PHONE 26 545 WINNIPEG
RARRISTERS, SOLICITORS, ETC.
H. A. BERGMAN, K.C. íslenzkur lögfrœðingur J. T. THORSON, K.C.
Skrifstofa: Room 811 McArthur íslenzkur lögfrœöingur
Building, Portage Ave. P.O. Box 1656 800 GREAT WEST PERM. BLD.
PHONES 95 052 og 39 043 Phone 94668
RUSINESS CARDS
Ákjósanlegur gististaður Fyrir tsiendingal G. W. MAGNUSSON
Vingjarnleg aðbúð. Nuddlœknir
Sanngjarnt verð.
Cornwall Hotel 41 FURBY STREET
Phone 36137
MAIN & RUPERT
Sími 94 742 Símið og semjið um samtalstfma
A.S. BARDAL 848 SHERBROOKE ST. Selur líkkistur og annast um út- ' farir. Allur útbúnaður sá bezti. Ennfremur selur hann allskonar minnisvarða og legsteina. Skrifstofu talsími: 86 607 Heimilis talsfmi: 501 562 J. J. SWANSON & CO. LIMITED 601 PARIS BLDG., WINNIPEG Fasteignasalar. Leigja hús. Út- vega peningalán og eldsábyrgð af öllu tægi. PHONE 94 221
A. C. JOHNSON 907 CONFEDÉRATION LIFE BUILDING, WINNIPEG Annast um fasteignir manna. Tekur að sér að ávaxta sparifé fðlks. Selur eldsábyrgð og bif- reiða ábyrgðir. Skriflegum fyrir- spurnum svarað samstundis. Skrifst.s. 96 757—Heimas. 33 328 ST. REGIS HOTEL. 285 SMITH ST., WINNIPEG pœgilegur og rólegur bústaBur i miðbiki borgarinnar. Herbergi $2.00 og þar yfir; með baðklefa $3.00 og þar yfir. Ágætar máltfðir 40c—60c Free Parking for Guests
Michaels Angelos og fótspor Krists
höggvin í marmara, eins og menn
hugsuðu sér þau á þjóðveginum eft-
ir fund þeirra Péturs:
“Lögregla Rómaborgar hafði haf-
ið leit að Pétri alveg sérstaklega og
skyldi honum engrar undankomu
auðið. Þá fóru vinir hans til hans
og báðu hann að forða sér á flótta:
“Ó, þú, sem ert tryggastur af feðr-
unum, minstu orðanna, er þú sagðir
svo oft, að þú værir fús til að fóma
lifi þínu til þess, að vér gætum verið
öruggir. Megum vér ekki biðja þig
í nafni sáluhjálpar vorrar að vera
fúsan til að bera dálítið lengur byrði
lífsins? Því næst kvaddi hann þá
og blessaði bræðurna og lagði einn
af stað til þess að leita hælis utan
múranna. Hann var rétt genginn út
um borgarhliðið, þegar hann sá
Krist koma á móti sér, og hann féll
fram, tilbað hann og sagði við hann:
“Drottinn, hvert ætlar þú?” Og
Kristur sagði við hann: “Eg kem
til Rómaborgar til þess að kross-
festast á ný.” Og Pétur sagði við
hann: “Drottinn, vilt þú láta kross-
festa þig á ný?” Og drottinn sagði
við hann: “Já, eg á að krossfestast
á ný.” Og Pétur sagði: “Eg ætla
að snúa við og fylgja þér.” Og
þegar hann hafði sagt það, steig
drottinn upp til himins. Og Pétur
mændi á eftir honum með djúpri
þrá og tárum í augum, og þá, þegar
hann kom til sjálfs sín, skildi hann,
að það var hans eigin kvöl, sem
Kristur hafði talað um, og að drott-
inn ætti að líða á ný i honum, því
að þannig þjáist hann í öllum sínum
útvöldu fyrir hluttekningu náðar
sinnar og mátt dýrðar sinnar. Og
Pétur sneri aftur og kom fagnandi
til borgarinnar, vegsamaði Guð og
sagði bræðrunum hvernig Kristur
hefði mætt sér og birt það, að hann
ætti að krossfestast á ný í honum.”
Hér kennir hvergi hugleysis, held-
ur kemur fram hetjulund Péturs,
hrein og sönn, eins og hún hefir
verið orðin í eldraununum.
Máttarstólpar kristninnar i Róma-
horg voru báðir traustir og bygging-
in reis sifelt hærri og vegsamlegri.
Steypiregn kom ofan, og beljandi
lækir og stormar blésu, og skullu á
því húsi, en það féll ekki, því að það
var grundvallað á bjargi, Kristi og
kenningu hans. En nú leið óðum að
því, að máttarstólpunum yrði burtu
kipt.
(Framhald i næsta blaði)
♦ Borgið LÖGBERG !