Lögberg


Lögberg - 31.12.1936, Qupperneq 4

Lögberg - 31.12.1936, Qupperneq 4
4 LÖGBERG, FIMTUDAGINN 31. DESEMBEE 1936 Högberg Gefið út hvern fimtudag af THE COEUMBIA PfiESS L I MITED 695 Sargent Avenue Winnipeg, Manitoba Utanáskrift ritstjúrans: EDITOR LÖGBERG, 69 5 SARGENT AVE. WINNIPEG, MAN. Verð $3.00 um drið — Borgist fyrirfram The “Lögberg” is printed and published by The Columbia Press, Limited, 69 5 Sargent Avenue, Winnipeg, Manitoba PHONE 86 327 Þáttarlok Tjaldið er í þann veginn að falla við lok síðasta þáttar í litbrigðaríkri og hádrama- tískri viðburðasýningn slokknandi árs. Leik- sviðið er veröldin öll; leikendur forustumenn manníélagsmálanna; áhorfendur allur al- menningur. Leiksviðsútbúnað og leikstjórn hefir haft með höndum Tími konungur enn sem fyr. Misjöfn skil liafa leikendur gert hlut- verkum sínum og fer það að vonum; þannig hefir það æfinlega gengið til frá upphafi. vega, því bæði er nú það að misjafn skilning- ur er lagður í sjálf viðfangsefnin, auk þess sem jarðvegurinn til sannmáts af hálfu á- horfenda er hvergi nærri eins móttækilegur og vera ætti. Glöpin eru sjaldnast öll á aðra hlið en ágætin á hina. Yið áramótin, sem nú fara í hönd, eins og reyndar við flest eða öll önnur tímamót í lífi vor mannanna, er margs að minnast og margs að sakna; margir hafa kvatt vini sína hinstu kveðjunni; aðrir heilsað nýjum vinum í fyrsta sinn. Að heilsast og kveðjast; það er lífsins saga. Slíkt alt er í samræmi við tor- ráðin tilverurök, og verður eigi um þokað. En þegar stofnað er til bræðravíga svo sem viðgengst á Spáni, verður viðhorfið nokkuð á annan veg; þar eru það sjálfskaparvítin, villandi barátta um völd og vegsemdir, sem stofnað hafa til f jörráða við heila þjóð, undir yfirskyni frelsis og mannréttinda. Við róttæka íhugun harmsögunnar á Spáni, kemur ósjálfrátt fram í hugann vísa Jóhanns Sigurjónssonar: “Bak við mig bíður dauðinn, ber hann í hendi styrkri hyldjúpan næturhimin heltan fullan af myrkri.” Svona er myrkramenning tuttugustu ald- arinnar; vitfirring og myrkur, í stað kross- göngunnar miklu og göfgandi frá myrkri til ljóss! Til raunaþáttanna á leiksviði líðandi árs verður að telja Abessiníu-deiluna og innlim- un þeirrar umkomulitlu og óupplýstu þjóðar í draumóraveldi Mussolinis hins ítalska. A- takanlegt og eftirminnilegt verður úrræða- leysi Þjóðabandalagsins viðvíkjandi meðferð málsins og spáir ekki góðu um framtíð þeirra samtaka, er mannkynið hafði bygt friðarvon- ir sínar á. Hrei-n og bein andleg gjaldþrot á sviði mannfélagsforustunnar hafa sjaldan verið skýrar skráð á söguspjöld en þau, er í sambandi standa við ofbeldið gegn Abessiníu- mönnum. Til stórra og einstæðra tíðinda á hinu hverfanda ári teljast að sjálfsögðu konunga- skiftin á Bretlandi og þær aðstæður, vafa- laust fleiri en sú, sem mest var á orði höfð, er til grundvallar lágu. Frá sölum Sökkva- bekks skýrist það sérstæða mál alveg vafa- laust á sínum tíma betur, en tök eru nú á. Til lýsihnattanna, eins af fáum, á himni þeim, sem meðferð mannfélagsmálanna spegl- ast í, verður að teljast endurkosning Boose- velts forseta í Bandaríkjunum í haust er leið; þar varð það ábærilegt hlutverk Bandaríkja- þjóðarinnar að vísa veginn og standa vörð um lýðræðis- og frelsishugsjónir mannkyns- ins; þar opinberaðist alþjóð manna á dásam- legan hátt raunverugildi hinnar sönnu og einbeittu mannfélags forustu. Jafntímis því sem Norðurálfuþjóðir brugga launráð og skjalla hinn “vopnaða frið,” situr Roosevelt forseti friðarþing amerískra þjóða í einni af höfuðborgum Suður-Ameríku.------- Vér, sem hið mikla meginland Norður- Ameríku byggjum, hvort heldur sem um Canada eða Bandaríkin ræðir, höfum gilda á- stæðu til þess að fagna yffr því, þrátt fyrir ýmiskonar erfiðleika, að hafa notið hinnar óumræðanlegu blessunar innbyrðis friðar og góðviljaðrar afstöðu út á yið. Vér getum horft á tjaldið falla í sátt við Guð og menn! Fjarst við sjónbaug eygjum vér fyrstu ljósdregla hins mikla, komandi dags, nýárs- dagsins 1937. Vér skulum fagna honum, ganga til móts við hann eins og sæmir djarf- huga mönnum af tápmiklum, íslenzkum stofni. Að svo mæltu ámar Lögberg Islending- um beggja megin Atlantsála gæfu og Guðs friðar á ári því, sem nú fer í hönd! Áramótakveðja til íslands Eftir prófessor Richard Beck. Margvíslegar eru þær raddir—og ekki allar blíðmálar—sem berast að hljómnæmum íslenzkum eyrum á þeim áramótum, er nú standa fyrir dyrum. Þungar sem brimsog við klettaströnd eru herdrunurnar yfir Atlants- haf og Kyrrahaf frá blóðugum bræðravígum. Grátþrungnar, líkt og neyðaróp dmknandi manna, stíga stunumar frá brjóstum þúsund- anna, stjúpbörnum mannfélagsins, sem sitja með tóman disk við nægtaborð þess.—“Öll skepnan stynur.” Eigi láta þær raddir ósnortinn' neinn þann son norðursins, sem “elskar allar þjóð- ir, «r allra manna bróðir’’ meir en að nafni til. En sé hann sannborinn sonur síns norð- læga heimalands, heyrir hann einnig sem þýtt undirspil ölduróts tímans, raddir ætt- lands og erfða, hjalandi blíðmál minninganna —“Islands lag.” Svo fer oss vafalaust mörgum heimaöld- um Islandssonum og dætrum við þessi ára- mót, ]Tegar vér stöndum á krossgötunum og leggjum hlustir við röddum líðandi stundar. “Islands lag” ómar oss skært í eyrum. Þakklátum huga minnumst vér hollra uppeldisáhrifa ættlands vors, og vildum feg- in eiga meira af skapi Hergilseyjar bóndans, sem ekki vildi ódrengur gerast, og Kletta- fjallaskáldið lýsti svo eftirminnilega: “Því sál hans var stælt af því eðli sem er í ættlandi hörðu, sem dekrar við fátt, sem fóstrar við hættur — því það kennir þér, að þrjózkast við dauðann með trausti á þinn mátt, í voðanum skyldunni víkja .ei úr, og vera í lífinu sjálfum þér trúr.” Jafn ræktarsömum huga minnumst vér ættmenna og ættþjóðarinnar norður þar, og viljum leggja hönd að því, að byggja sem traustast hrúna yfir hafið milli Islendinga beggja megin Atlantsála. En vér erum þess jafnframt minnug, að eigi brúarsmíð sú, að heppnast til frambúðar, verður brúin að byggjast frá háðum endum. Máttarviðir hennar eru gagnkvæmur skilningur, víðfeðm samúð og bróðurhugur. Því réttum vér hlýja hönd til kveðju yfir hafið til Islandsstranda við þessi áramót, og segjum með skáldinu (D. Stef.): “Við biðjum öll um bættan þjóðarhag. Við blessum hvern, sem vinnur þreyttum höndum. Við hyllum þann, sem högg af öðrum ber. Við hötum þann, sem tjón vill öðrum vinna. Vargur er sá, er vébönd heilög sker og virðir einkis frelsi bræðra sinna.” Oss er það hugstætt, að ættjörðin megi það eitt af oss frétta, að henni sé sæmdar- auki fremur en hið gagnstæða. Jafnsatt er hitt, að oss eru engar fregnir hugþekkari en góðar fréttir af Islandi. Því er það einlæg nýársósk vor, að heimaþjóð vor megi eignast í auknum mæli: “Trú, er sólseturs silfurnámu metur sem morgungull. eldmóð eilífrar íturhyggju konungs, er krossinn bar.” (G. Friðj.) Hvers eiga þeir að gjalda? • • ^ * Þó milt væri að vísu veðrið um nýafstað- I in jól og gott umferðar, gat manni ekki annað en runnið til rifja að sjá bréfbera póststjórn- arinnar á ferð og flugi allan liðlangan jóla- daginn. Hvers áttu þeir að gjalda? Því máttu ekki þessir þjónar hins opinbera njóta heimilishamingjunnar við arinn jólanna, eins og þeir aðrir, er sömu eiga húsbændurna? Hið opinbera, eða ríkið sjálft, ætti að vera nærgætnasti vinnuveitandinn. Og þó gaman sé að fá kveðjuspjöld frá vinum sín- um um jólin, er ánægjan ofgreidd með því, að varna einni stétt mannfélagsins, annari fremur, frá því að njóta samvista við ástvini sína, og það á sjálfan jóladaginn. Draumóra-bréf til ritstjóra “Löghergs” Humbug Bay, við Winnipegvatn g. désember 1936. Kæri ritstjóri Lögbergs! Nú á þessum síðustu títnum, þeg- ar kóngar og keisarar eru að kom- ast í mát, og alt vort riki leikur á reiðiskjálfi út af ástamálum og alls konar öðrum stórmálum, þá finn eg hvöt hjá mér til þess að setjast niður við matborð i fiskimannakofa norður í óbygð, langt frá siðmenn- ingu og sætleika kvenna, til þess að skrifa þér nokkrar línur, mér til af- þreyingar, en þér og öðrum til leið- inda, því að mér finst í rauninni að eg megi alveg eins rita og rugla eins og aðrir, nú á þessari öld stórastíls og stórviðburða.. Reyndar hefi eg ekki frá neinum stórtíðindum að segja, þessi miði á hvorki að vera fréttabréf né’ stjórnmálaleiðari; eg skrifa þetta aðeins til þess að láta alla þá vita, sem hafa séð mig lif- andi, að eg er ennþá lifandi, og hefi það embætti á hendi að halda við lifinu í ellefu bráðfjörugum og harðsnúnum fiskimönnum; við er- um því tólf með sjálfum mér, og minnir þessi tala mig á lærisvein- ana í Gyðingalandi forðum, sem voru fiskimenn, og urðu sumir þeirra að síðustu rithöfundar og guðspjallamenn, og lifa enn á vör- um margra. Reyndar segir sagan að einn þeirra hafi svikið meistara sinn og tekið sitt eigið líf, þegar hann sá hvaða afleiðingar svikin höfðu. En svikin eru enn þann dag í dag að endurtaka sig í ýmsum myndum, eg t. d. vaknaði nýlega við þann vonda draum, að eg skulda “Lög- bergi’’; eg legg því hér með þrjá dali, sem eg bið þig, ritstjóri góður, að afhenda gjaldkeranum, og sjá til þess, að blaðið verði sent áfram til Kristjáns föður míns á íslandi; hann hefir gaman af að lesa vestur- íslenzku blöðin, og sjálfsagt margir fleiri heima. Við, sem erum svo rík- ir að eiga þrjá dali í vasa og kunn- ingja eða ættmenn á gamla landinu, erum, að mínu áliti, ekki of góðir til þess að láta þessa dali ganga til annars hvors blaðsins hér vestra, og slá með því tvær flugur í einu höggi, sem sé að styrkja blöðin og gleðja kunningja vora austan hafs. Blöð- in hér eru að berjast hinni góðu bar- áttu — þau eru að viðhalda íslenzku þjóðerbi — en eftir því sem mér skilst, er fjárhagur þeirra mjög erfiður, vegna vanskila kaupend- anna. En það er hugboð mitt, að eitthvað rakni fram úr þessari kreppu áður en langt líður, a. m. k. ættu akuryrkjubændurnir að verða færir um að borga Lögberg og Heimskringlu þegar hveitimælirinn fer yfir hálfan annan dal, og segi eg nú þetta áður en það kemur fram, til þess að menn trúi því þegar það er komið fram. En reyndar hefi eg ekki annað fyrir mér í þessu en það sem mig dreymdi í haust norður á vatni. Mér þótti að hr. Ásm. P. Jó- hannsson, góðkunningi vor, kæmi til mín og segði: “Jæja, Stefán minn, það er bara ein leið fyrir hveitið — hún er upp.’’ Þetta var í byrjun september, hveitið var þá fyrir neð- an einn dollar mælirinn, en fór á stuttuim tíma upp eitthvað um 18 cents mælirinn, og á víst eftir að fara miklu hærra. Eg lagði strax trúnað á drauminn, ekki sizt fyrir það, að hr. Á. P. Jóhannsson er á- byggilegur og mikill f jármálamaður, og til gamans lét eg hann vita um drauminn strax og eg fékk ferð til Winnipeg. Og nokkrum dögum síð- ar dreymdi mig að eg væri að lesa í einhverju' ensku blaði um hveiti- markaðsfréttirnar, og verður þá fyrir mér efst á blaði talan 169, og ræð eg þann draum fyrir því að hveitið eigi eftir að fara upp í einn dollar og sextíu og níu cents, en hve- nær það verður, hefi eg ekki enn fengið að vita, Eg er nú ekki að biðja menn að leggja trúnað á þetta þótt eg trúi því sjálfur, og ætla ekki að hvetja menn til þess að .fara í hveiti-brask, en eg ætla þó að taka það fram, að draumur, sem mig dreymdi í febrúar í fyrravetur kom nákvæmlega fram. Eg þóttist vera kominn inn í afar- stórt bakarí, þar sem mikið var af alls konar brauðtegundum. Eg sá engan mann, en alt í einu sé eg afar stórt naut, sem var lokað þar inni, en eftir nokkra stund rekur það hausinn út um glugga og niður jörðina, sem var laufgræn, og fer að bita. Eg sagði hinum og öðrum drauminn, og réði hann svo, að hveitið myndi hækka í verði þegar kæmi eitthvað fram á sumarið, eða þegar jörðin væri orðin laufgræn. Það vita nú allir, að hveitið tók að hækka i verði síðastl. sumar, þegar útlitið fór að verða ískyggilegt með uppskeruna vegna þurkanna. Til skýringar vil eg taka það fram, að kauphallar-braskarar hafa naut (bull) sem tákn styrkleika eða upp- ferðar í markaði, en bjarndýr (bear) tákn niðurferðar. Það lík- lega muna margir eftir kauphallar- hruninu mikla haustið 1929. Það var í september það haust, að eg var á ferð norður á Winnipegvatni á litlu vélskipi. Eg svaf í lestinni á- samt nokkrum fiskimönnum, sem eg ætlaði að matreiða fyrir norður frá um haustið. Mig dreymdi þá ógurlegt bjarndýr, og varð svo hræddur í svefninum að eg rak upp hátt hljóð og vaknaði eg við það og allir hinjr, sem sváfu í kringum mig, og fóru þeir að spyrja, hvort eitthvað gengi að mér, en eg sagði blátt áfram að mig hefði dreymt stórt og grimdarlegt bjarndýr. Eg býst við að eg hefði reynt að nota mér þennan draum, ef eg hefði ver- ið í umsvifamiklu kauphallarbraski. Hveitiverðið á kauphöllinni í Win- nipeg hrapaði þá eftir nokkra daga um 14 cents mælirinn. Þá var björninn að koma til sögunnar, og allir vita hvaða usla hann gerði næstu mánuði og misseri þar á eftir. Áður en eg lýk þessu, ætla eg að birta enn einn stiittan draum, sem mig dreymdi um miðjan október 1935. Mér þótti að verið væri að jarðsetja Jón Sigurðsson forseta og frelsishetju Islendinga. Mér leið illa í svefninum yfir því að svo mik- ill og góður maður skyldi vera aus- inn moldu og allir viðstaddir voru daprir og alvarlegir á svip. Það er ekki víst að þessi draumur hafi nokkra merkingu, — eg vona að minsta kosti að hann merki ekki það að íslendingar eigi eftir að tapa fengnu frelsi eða fjárforráðum. Það er til þýzkur málsháttur, sem segir, að draumar séu froða eða hjóm, en eg hefi oftar en einu sinni rekið mig á það, að sumir draumar eru alls engin froða eða hjóm. Þeir hafa verið mér stundum aðvörunar- eða eggjunarefni, stundum hrygðar- eða fagnaðarefni, en um eðli þeirra læt eg mér hæfari menn rita. Að svo mæltu óska eg öllum Is- lendingum gleðilegra jólahátíða og dýrðlegs og draumaríks nýárs! Virðingarfylst, Á. B. Kristjánsson. “Drotning íslenzkra trjáa” fallin 27. nóv. Reynitréð fræga í Nauthúsagili undir Eyjafjöllum er fallið. — Fréttaritari útvarpsins að Brúnum segir það hafi brotnað niður við rót sennilega í ofviðrinu 18.—19. þ. m. Reynitréð í Nauthúsagili var merkast allra skógartrjáa á Islandi og stundum nefnt Drotning ís- txwmm lenzkra trjáa.— Fréttastofan hefir átt tal við Einar Sæmundssen, skógarvörð um tré þetta, og fer hér á eftir frásögn hans: Tréð stóð tæpt á barmi Nauthúsa- gils og slútti fram yfir gilið, sem var 15—20 metra djúpt. Hefir því sauðfé ekki náð að bíta lim trésins og hefir það hlíft því, einkum í æsku. Tréð var margstofna, eins og títt er um reynitré, en aðalstofn- arnir voru þó tveir. Óx annar ská- halt upp á við og teygði sig fram yfir gilið og var hann um gVz metri á lengd og 150 cm. að ummáli niður við rót. — Hinn stofninn hafði lagst út af þvert yfir gilið. Hafði hann sennilega bognað undan snjóþyngsl- um. Brúaði hann gilið, þannig að limið nam við barminn hinum meg- in gilsins, og eru dæmi til þess að gengið var á greinum þess yfir gljúfrið. Þessi stofn var 10 metrar á lengd og neðst um 150 cm. að um- máli. Naut hann mikils skjóls og var afar þroskamikill og var breidd laufkrónunnar um 15 metrar. — Auk þessara tveggja stofna voru margir minni stofnar. Einn þeirra var 90 cm. að ummáli niður við rót, en 3—4 aðrir voru 30—60 cm. — Mælingar þessar gerði Ragnar As- geirsson og hefir hann meðal ann- ara ritað um tréð. Reynitré þetta var mjög veður- barið, en ákaflega þróttmikið og bar af öllum íslenzkum trjám sakir stærðar, auk einkennilegra staðhátta á vaxtarstað trésins. Vegna snjó- þyngsla og storma hafa nokkrir stofnar brotnað af trénu, en flest- ir fyrir löngu. Nálægt siðustu alda- mótum brotnaði'einn slíkur stofn af trénu og var greinin niðurhöggvin klyfjar á 6 hesta. Líklegt er að það hafi átt tals- verðan þátt í þroska trésins, að neð- ar í gilinu er fjárhellir og hefir sauðfé frá Stóru-Mörk legið þar frá ómunatíð og safnað þar taði, en niður í þetta fjárbæli hefir tréð teygt rætur sínar og dregið þaðan næringu. Aldur trésins veit enginn með vissu, en vafalaust er það hátt á ann- að hundrað ára gamalt. Koefoed Hansen, fyrverandi skógræktar- stjóri áleit það um 200 ára gamalt, enda telur hann reynitré ná hér hærri aldri en annarsstaðar á Norð- urlöndum. Þjóðtrúin hefir átt talsverðan þátt í að vernda þetta tré, því almenn trú var í nágrenni þess, að tréð mætti ekki skerða, að viðlögðu tjóni, er af hlytist. Reyniviðarhríslan í Nauthúsagili er ættmóðir margra trjáa. Laust fyrir síðustu aldamót tók Guðbjörg húsfreyja í Múlkaoti litla grein, sem vaxið hafði upp af fræi, sem fallið hafði af trénu, og gróðursetti hana heima hjá sér í Múlakoti, en út af þeirri hríslu eru komin öll reynitré í garði hennar í Múlakoti. Árið 1911 tók Árni bóndi í Múlakoti smá- hríslur um 10 cm. háar í nágrenni trésins og gróðursetti heima hjá sér og er sú hæsta nú 8 metra hátt té. Þá hefir og verið tekið af trénu og afkomendum þess i Múlakoti mikið fræ og hefir því verið sáð viða um land.—Vísir 28. nóv. Til allra vorra íslenku vina í Veátur-Canada sendum vér óskir um Gleðileg Jól og Anœgjuríkt og Farsælt Nýár ,Um hátíðaleytið, engu síður en á öðrum tímum, skuluð þér halda heimilum yðar hlýjum með því að nota beztu tegundir canadiskra kola. Biðjið eldsneytissala yðar um GLOCOAL ROSEDALE eða STAR GREAT WEST COAL CO. LTD. míL Brandon Regina Calgary Weyburn Saskatoon Winnipeg Mí

x

Lögberg

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.