Lögberg - 06.01.1938, Side 1
PIIONE 86 311
Seven Lines
. f á i
Dry Cleaning
aná Laundry
51. ÁRGrANGUR
WINNIPEG, MAN., FIMTUDAGINN 6. JANÚAR, 1938
NÚMER 1
Sagan um góða hirðinn
Gunnar Gunnarsson: Advent.
Gyldendal gaf út. 82 bls
VerÖ kr. 3.60 ób., 8.40 innb.
í skinn.
Hin nýja skáldsaga Gunnars
Gunnarssonar, Advent (Jólafasta),
sern kom út i Kaupmannahöfn í
haust, er fyrir skömrnu sí'Öan komin
í bókabúÖir bæjarins. Þetta er jóla-
saga eins og nafnið bendir til, ör-
stutt og gerist á fáum dögum.
Aldurhniginn liúsníaður, Bene-
dikt aÖ nafni, leggur síðla hausts af
stað inn á öræfi að leita kinda, sem
leitarmönnum befir ekki tekist að
smala til rétta í aðalgöngunum þrem-
ur og orðið hafa inniliggsa á f jallinu,
þegar snjó tók að kyngja niður.
Sjálfur á þó Benedikt fátt fé og
vantar enga kind. Hann hefir með
sér fjárhund sem heitir Leó, og
reyndan forustusauð, einn af stærri
spámönnununr um veðurfar. Hann
heitir Kvistur, nafnið er táknandi
fyrir harðgervi hans. Hans hlutverk
á að vera að brjótast í gegnum snjó-
skaflana á unan hinu fénu.
Hin fyrsta dagleið er löng, svo
löng, að Benedikt getur ekki hlýtt
messu þótt sunnudagur sé, en hann
les sjálfur texta dagsins, um' innreið
Jesú í Jerúsalem, i Matt. 21. kap.
Svo heldur hann af stað áleiðir inn
til fjallanna, til að freista þess að
bjarga fáeinum kindum, sem annars
biðu þar vofeiflegan dauða, og veltir
fyrir sér frásögninni um innreið
frelsarans i höfuðborg Gyðinganna.
Um kvöldið nær !hann að Botni,
fremsta bæ , bygðinni. Hann þarf
ekki að knýja að dyrum, hans hefir
verið beðið. Það er nefnilega ekki
í fyrsta skiífti, að hann fer slíka
ferð. 1 tuttugu og sjö haust hefir
Benedikt komið að Botni í sömu
Jón Sigurðsson
póstafgreiðstumaður í Víðir-bygð,
og fyrrum oddviti Bifr'óst-sveitar.
Fæddur 1. september 1870.
Dáinn 17 m.aí 1935-
(f nafni systkina hins látna)
Bróðir kær! Frá bjástri dagsins
Brottu svifin þín er önd;
Sveiptur roða sólarlagsins
Sæluríka kannar strönd.
Hverjum ys og ama frí,
Ekkert lítur framar ský.
—Misskilningur manna gleymist.
Minningin hjá vinum geymist.
Skarð er fyrir skildi gljáum;
Skarð, sem1 verður trauðla fylt.
Verkið talar, tign þess dáum,
Traust er vekur ljúft og milt.
Sveitarinnar sæmd i þraut,
Samfylgdar á meðan naut.
Lítilmagnans vinur varstu,
Velferð hans á örmurn barstu.
Byrðir léttir brautryðjandans,
Bjar.föst trú á innri mátt;
Gresjar leið uni gjögur vandans,
Glöggvar spor í rétta átt;
Öldubrjótur varst í vör,
Vina þinna að rýmka kjör.
Grettistökum rniðla máttir;
Meir af samúð flestum áttir.
Barna þinna skjól og skjöldur,
Skilningsnæmi aldrei brást,
Þeini frá bægja ama öldur,
Ef að þeirra merki sást.
Ástvinanna óskift vörn,
Ei þín trygð var brotagjörn.
Fram að hinsta feigðarskeri
Fékst að nausti snúið kneri.
Ástar þakkir, elsku bróðir!
Áður miðluð gæða fjöld.
Myndin þín um þankans slóðir
þekur friði hinsta kvöld.
Bak við húm og hrygðarský
Hamingja oss birtist ný.
Farðu vel og sofðu sætast,
Siðar fáum1 öll að mætast.
Jóhannes H. Húnfjörð.
Vinur saumakonunnar
Á kvöldin þeg-ar einmani við sauminn minn eg sit
Og sönglið í mér blandast köldum vetrargolu þyt,
Eg amast ekki við því, þótt hann horfi héma inn,
Því hef eg aldrei látið blæju fyrir gluggann minn.
Hann kemur þögull, skimandi hans fótatak er fimt;
Hann fer með sömu varúð livort sem bjart er eða dimt.
En það er eitthvað ástúðlegt í augnaráði hans,
Og einlægasti vinur minn er — hundur nágrannans.—
Lúðvík Kristjánsson.
erindagerðum, oftast þennan sama
dag.
Nú verður hann hríðarteptur á
bænum en er veðrinu slotar og rofar
til, leggur hann af stað upp á fjall-
ið, í fylgd m'eð bónda, sem átt hefir
sauði sfna á heiðinni, þótt áhætta
væri ærin. Benedikt tefst við leitina
að sauðum bóndans. Að $eim
fundnum hittir hann pilt úr bygðar-
laginu, sem leitar ásjár hans um að
gá að hestum, sem hann á að huga
að, og fleira tefur Benedikt.
Loks vinst honum tími til þess að
sinna eigin erindum. Hann heldur
enn dagleið lengra inn á öræfin. Þar
gistir hann um nætursakir í jarðfalli
einu, það er venja hans. Nú brestur
á aftaka veður og hann neyðist til að
dveljast hvern sólarhringinn eftir
annan inni á fjöllunum, við lítinn
kost matar. En hann spyrnir gegn
broddunum, jafnvel þótt það svo
væru broddar dauðans. Jólin ganga
i garð, og að síðustu verður Bene-
dikt að skilja Kvist og kindurnar,
sem hann hefir fundið, eftir. Sjálf-
ur nær hann til bygða með hundi
sínum, en ungir menn, er hafa týgj-
að sig til leitar, finna kindurnar og
reka þær oían að Botni.
Þetta er þráður sögunnar.
f henni er dregin upp sönn mynd
af hinum þrautseiga bóndamanni og
baráttunni sem þeir oftlega heyja
með misjafnri sigursæld.
í flestum sveitum landsins er að
finna mtenn svipaðrar tegundar og
Benedikt, syni hrjóstrugra bygða,
sem ekki er betur lýst en með þess-
um orðurn höfundarins: “Lát alt
frjósa . . . lát loftið frjósa og sáldra
niður snjóflyksum . . . lát andar-
dráttinn frjósa á vörum þínum, bæn-
ina í hjarta þínu og blóðið í æðum
þínum á dauðastundinni, djúpt niðri
lifir eldurinn.” Svo er það um hið
norðlæga. eldf jallaland, sem um
suma syni þess.
Þessi jólasaga, sagan um einn
hinna góðu hirða úr hópi íslenzku
bændanna, er líkt og fleiri sögur
Gunnars túlkun á því mesta dýrmæti
sem manni verður gefið, friður
flekklausrar samvizku eftir happa-
sælt erfiði; sem þó veitir engan jarð-
arauð. Frásögnin öll er hárnákvæm,
hugsanir Benedikts eru raktar til
síðasta þráðar, sál hans könnuð að
ista grunni. Bóndinn í Grímsdal
og húsfreyjan í Botni eru einnig
Ijóslifandi persónur minnisstæðar og
mannlegar, hann í sínu andvaraleysi,
hún í trygð sinni og umihyggju fyrir
Benedikt.
Þetta er áreiðanlega bezta sagan,
sem komið hefir út eítir íslenzkan
mann á þessu ári.
Hið eina, sem skerðir ánægju
manns, ér hve endaslept niðurlag
bókarinnar er. Maður hefði kosið
nánari frásögn, nánari lýsingu á
þeim atvikum, sem þar er lauslega
drepið á.
J.H.
Nýja. dagbl. 14. des.
LEIÐRÉTTING
í wfiminningu Mrs. Thoru Jo-
hannson í síðustu blöðum, er fyrir
vangá miína, ein villa: Húsafellsætt,
en á að vera: Háafellsætt.
R. M.
Bruninn í Vík
f gærmorgun varð eldur laus í
gömlu rafmagnsstöðvarbyggingunni
i V'ík í Mýrdal og brann hún til
grunna á krskajwmri stundu. Gömul
kona fórst í elaimim. Engu varð
bjargáð af/munmn!né áhöldum sem
inni /voriL
lf!ús /þettaV var timhurbygging,
reist 1913, og næstelzta rafmagns-
stöðin i sýslunni. Fyrir nokkrum
árum síðan var bygð ný og orku-
meiri stöð, en jafnhliða voru vélar
eldri stöðvarinnar starfræktar í
kjallara gam'la hússins.
Á hæðinni yfir kjallaranum bjó
Guðni Bjarnason, stöðvarstjóri og
kona hans, Þoribjörg Guðmunds-
dóttir, en uppi á loftinu bjó Þórður
Stefánsson með konu sinni, og sjö
börnum sem þau áttu, og konan sem
inni brann, Kristín Magnúsdóttir,
móðir Ingibjagrar. Var hún aldur-
hnigin og lasburða. Yngsta barn
hjónanna var fyrir skömmu síðan
fætt.
Eldurinn kviknaði með þeim
hætti, að Ingihjörg var að nota olíu-
vél í eldhúsi sínu og dró kveikinn
niður í því skyni að tempra loganu,
en þá komst eldurinn í belg ohuvél-
arinnar. Þá ætlaði Þorbjörg, kona
stöðvarstjórans, sem nærstödd var,
að bera vélina út í flýti, en hrasaði
í stiganum og misti hana. Varð þeg-
ar mikið bál. Tókst Ingibjörgu
naumlega að bjarga út börnunum
sem inni voru, en það var tafsamt,
því ekki voru annarsstaðar útgöngu-
dyr á húsinu en í kjallara þess. Mun
jafnvel ein telpan, sem inni var, hafa
orðið að forða sér út um glugga.
Uppgangan og húsið alt varð alelda
áður^en svigrúm gæfist til að forða
gömlu konunni, en annað fólk var
ekki heima en konur og börn þegar
slysið bar að höndum.
Fólk þusti von bráðar að húsinu,
þegar eldurinn ágerðist, en engum
slökkvitilraunum varð við komið,
svo fljótt hafði bálið magnast.
Báðar konurnar, Ingibjörg og
Þorbjörg, hlutu brunarsár við björg-
unartilraunir sínar og Kristján
Zophoníasson verkamaður skarst
talsvert á gleri, er hann freistaði inn.
göngu í húsið. Fleiri hlutu minni
meiðsli.
Húsið brann
stuttri stundu.
til kaldra kola á
Fatnaður og innanhússmunir allir
brunnu og innbú beggja fjölskykl-
anna óvátrygð. Vélar rafmagns-
stöðvarinnar ónýttust, en þær voru
vátrygðar, svo og húsið.
Líki Kristínar varð náð úr bruna-
rústunum í gærdag. Var það all-
mikið skaddað.
—Nýja dagbl. 14. des.
EKKI MYRKUR 1 MÁLL
Röosevelt Bandaríkjaforseti hefir
nýverið 'hvorki rneira né minna en
sagt auðkýfinga og éinokunarhring-
unum í Bandarákjunum stríð á hend-
ur. Staðhæfir hann að kapítalism-
inn þar í landi hljóti að falla á eigin
bragði fyr en varir, nema því aðeins,
að auðkýfingar skifti skjótt um hug-
arfar, og beiti auði sínum í þjónustu
þjóðarinnar allrar. í sama streng
tekur innanríkisráðherra Mr. Roose-
velts, er telur það sýnt að ameriska
þjóðin sætti sig ekki lengur þið það,
að sextíu fjölskyldur hafi ráð henn-
ar í 'hendi sér viðvíkjandi efnahags-
legri afkom'u hennar.
Nokkrar líkur til að Karlakór Reykjavíkur
takiál á hendur söngför til Ameíku
SIR (IEORGE PERLEY
LÁTINN
Síðastliðinn mánudag lézt í Ot-
tawa Sir George Perley, fyrrum ráð-
herra í ráðuneyti Sir Roberts Bor-
den, og einn af áhrifamestu stjórn-
málamönnum íihaldsflokksins í þessu
landi. Hann var freklega áttræður
að aldri.
LAUGARDAGSSKÓLINN
Islenzku kensla Þjóðræknisfélags-
ins sem fram fer i Jóns Bjarnasonar
skóla, hefst á ný á laugardagsmorg-
uninn kemur, að loknu hátíðaleyf-
inu.. íslendingum ber til þess heilög
skylda að nytfæra sér þessa ókeypis
kenslu eins og framast má verða.
Foreldrar íslenzkra barna verða því
að hvetja þau til þess að leggja rækt
við íslenzkuna, tala hana í heimahús-
um, og umfram alt láta þau sækja
Laugardagsskólann reglulega, þvi
með þeim hætti einum, nær kenslan
að fullu tilgangi sinum. Festið það
í minni, að íslenzkukenslan hefst á
venjulegum bíma á laugardaginn
kenuir!
“NORGES VEL” OG ISLAND
Félagið “Noregs Vel” i Osló hélt
fjölmennan fund í gærkvöldi og
flutti ritari félagsins Ole Hersoug
þar erindi með skuggamyndum um
landbúnað og atvinnuhætti á íslandi.
Ole Hersoug kom hingað til lands
sem fulltrúi Norðmanna á hundrað
ára afmæli Búnaðarfélags íslands
síðastliðið vor og var erindi hans
bygt á ýmsum athugunum, er ihann
gerði í þeirri för.—Mbl. 11. des.
Hér fer á eftir kafli úr bréfi
til hr. Ásmundar P. Jóhanns-
sonar frá söngstjóra Karlakórs
Reykjavíkur, hr. Sigurði Þórð-
arsyui. Lét Asm.'undúr Lög-
bergi bréfkaflann góðfúslega í
‘té til birtingar, og kunnum vér
honum beztu þakkir fyrir:
Reykjavík 15. des., 1937.
"Herra Ásm. Jóhannsson,
910 Palmerston Ave.,
Winnipeg, Canada.
Háttvirti herra!
Þá er nú lokið söngför Karlakórs
Reykjavikur til Danmerkur, Þýzka-
lands, Austurríkis og Tékkóslóvakíu.
Munu allir á einu máli um það, að
ferðin hafi gengið prýðilega og orð-
ið landi og þjóð til sóma. Alsstaðar
mættum við hinum ágætustu viðtök-
um og blaðadómar allir einróma lof.
Við erum að ljúka við að láta þýða
á íslenzku alla blaðadómana og mun
eg senda yður eitt eintk af þeim svo
fljótt sem þýðingunni er lokið og er
eg því eigi að taka upp í þessar lín-
ur alt það lof, sem kórinn fékk.
Annars var ferðin nokkuð erfið
vegna þess hve tíminn var naumur
og fljótt farið yfir, samt var allur
hópurinn vel hress allan tímann og
glaður yfir hverjum sigri. Stefán
Guðmundsson var einsöngvari kórs-
ins og fékk sömuleiðis mikið lof fyr-
ir söng sinn. Stefán er nú farinn til
ítalíu og verður þar fram til vors
til frekara náms. Hans mesta og
heitasta ósk er að komast til Ame-
ríku, enda veit eg að hann myndi slá
þar fljótt í gegn, því rödd hans er
dásamlega fögur. Verði úr því, að
Kanlakór Reykjavíkur fari söngför
til Ameríku á næstunni, sem eg mun
reyna að vinna að eftir megni, mun
■hann taka þátt í þeirri för.
Eftir því, sem eg hefi fregnað frá
umboðsnianni Columbia Broadcast-
ing, New York, sem búsettur er í
Víparborg og hlustaði á konsert okk-
ar í Vín, hefir hann skrifað okkur
um það að Columbia sé interesserað
fyrir að*fá kórinn til Ameriku og
biður um að Golumbia verði send öll
kritik úr ferðinni, og munum við
gera það næstu daga.”
STÚDENTAFERÐALÖG
NORÐURLÖND OG
ROSSLAND
UM
Á fundi í Þrándheimi, sem hald-
inn var fyrir nokkru og þar sem
saman voru komnir stúdentar frá
Noregi, Danmörku, Svíþjóð og
Finnlandi var ákveðið að setja á
stofn sameiginlega norræna skrif-
stofu fyrir félagsskap stúdenta á
Norðurlöndum' og að heimilisfang
hennar skyli vera í Oslo.
Á þessum fundi var einnig ákveð-
ið að vinna skyldi að því að stúdent-
ar á Norðurlöndum gætu sumarið
1038 tekið á laigu stórt gufuskip og
farið á því kynningarför um Norð-
urlöndin og til Rússlands, en jafn-
framt skyldi vera haldið uppi
fræðslu og fyrirlestrum meðan á
ferðalaginu stæði svo að þarna yrði
einskonar samnorrænn háskóli. Var
ákveðið að leggja til að lagt skyldi
af stað frá Kaupmannahöfn, farið
þaðan til Gautaborgar þá til Qslo,
þá til Þrándheims, síðan norður um
Noreg í gegnum Hvítahafsskurðinn
til Leningrad, þaðan til Stokkhólms
og aftur til Kaupmannahafnar.
Var samþykt að fallast á þessa til-
lögu og ákveðið að ferðin skyldi
taka 18—19 daga og stúdentarnir fá
ferðina fyrir 75—100 krónur bæði
fargjald og fæði. Jafnframt var það
ákveðið að einungis stúdentar við
norræna háskóla gætu orðið þátttak-
endur í þessari ferð.
Mbl. 16. des.
Hon, Angus MacDomld,
Nova Scotia
Hon. T. D. Pattullo,
Britioh Columbia.
Hon. Mitchell F. Hcpburn,
Ontario
Forsætisráðherrar þriggja fylkja, þar sem frjálslyndi flohk-
urinn gekk sigrandi af hólmiá árinu sem leið.
Gullbrúðkaup á
Mountain
Föstudaginn 30. des. var gullbrúð-
kaupsveizla haldin í samkomuJiús-
inu á Mountain, N.D., undir umsjón
Víkursafnaðar og kvenfélagsins á
Mountain. Veizla þessi var höfð
til þess að heiðra sæmdarhjónin
Árna F. Björnsson og konu hans
Guðrúnu Magnúsdóttur, sem búa í
grend við Mountain, og hafa hér
búið um langt skeíð. Höfðu þau
hjón verið vigð til hjónabands af
séra Friðrik sál. Bergmann, í kirkj-
unni á Mountain 30. des. 1887, um
kl. 2 e. h.
Eitthvað um 250—300 manns
sóttu gullbrúðkaupsveizluna. Byrj-
aði veizlan nálægt 2.30 e. h., með
því að gullbrúðhjónin voru leidd til
sætis í veislusalnum og þegar sung-
inn sálmurinn; “Hve gott og fag-
urt” . . . Flutti séra H. Sigmar sið-
an bæn og setti svo samsætið með
stuttri ræðu, er stíluð var sérstak-
lega til gullbrúðhjónanna. Skiftust
svo á ræðuhöld og söngur. Voru
ræðurnar yfirleitt stuttar en kjarn-
góðar og söngurinn ágætur. Er þetta
hafði staðið um langa stund, báru
kvenfélags- og safnaðarkonur fram
mjög rausnarlegar og ágætar veit-
ingar. Borð voru fagurlega skreytt
og veizlusalurinn sömuieiðis. Þegar
búið var að neyta hinna miklu góð-
gjörða er konumar framreiddu, hélt
prógrammið enn áfram um stund.
Afhenti þá H. B. Grímsson gull-
brúðhjónunuim gjafir frá börnum
þeirra og barnabörnum og fylgdi því
viðeigandi ávarp frá honum. Síðan
afhenti séra H. Sigmar Mr. og Mrs.
Björnson gjafir nokkrar frá vinum
þeirra. Frá kvenfélaginu afhenti
hann Mrs. Björnson brúðarköku
fagra með 50 kertum á, og peninga-
gjöf. Og svo afhenti hann hjónun-
um báðum silfurbakka, sem á var
letrað tilefni gjafarinnar. Var á
bakkanum nokkur peningaupphæð
frá vinum þeirra. Þökkuðu hjónin
bæði fyrir sig á viðeigandi hátt.
Voru svo loks nokkrir söngvar
sungnir af söngsveitinni. Hurfu
síðan veizlugestir heim til sin laust
fyrir kl. 6 e. h. Mun það hafa ver-
ið tilfinning allra að veizlan hafi
verið geðþekk og skemtileg; en líka
það, að þau Guðrún og Ámi Bjöms-
son liafi átt það margfaldlega skilið
af samferðafólki sínu, að þau væru
þannig glödd og heiðruð við þessi
merkilegu tímamót í lífi þeirra.
H. S.