Lögberg - 16.06.1938, Síða 1
51. ÁRGrANGUR
WINNIPEG, MAN., FIMTUDAGINN 16. JÚNÍ, 1938
NÚMER 24
Einar H. Kvaran rithöfundur látinn
Urslit fyikiskosninganna
í Saskatchewan
Við fylkiskosningaraar í Saskat-ohewan, sem fram
fóru þann 8. þ. m., fóru leikar þannig, að frjálslyndi
flokkurinn undir forystu Patterson forsætisráðlierra
vann hinn glæsilegasta sigur. . Þingstvrkur flokkanna
verður þannig:
Liberalar ..............36
C.C.F...................10
Social Credit........... 2
Progressive ............ 1
Utan flokka ........... 1
Kosningar í tveimur kjördæmum fara ekki fram fyr
en þann 28' júlí, og má víst telja, að þau sendi frambjóð-
endur frjálslyndu stefnunnar á þing. Alls eiga sæti í
Saskatchewan þinginu 52 þingmenn.
Samkvæmt nýkomnum Islands-
blöðum, lézt í Reykjavík þann 21.
mai siÖastliðinn, rithöfundurinn
vinsæli og víðkunni, Einar H.
Kvaran, því nær 79 ára að aldri:
heilsu hans hafði farið smáhnign-
andi upp á »ðkastið, og lagðist hann
rúmfastur skömmu fyrir páska; ár-
um saman hafði hann verið veill
fyrir brjósti, og þoldi því ver langa
FORSÆTISRAÐHERRA
KEMUR VESTUR
Ottawa-blöð flytja þær fregnir
um þessar mundir, að telja megi
víst, að King forsætisráðherra leggi
upp i ferðalag um Vesturlandið að
afloknum þingstörfum, og flytji
ræður í hinurn stærstu borgum
vestra.
CZECHOSLÓ VAKIA
EYKUR HERAFLA
Símað er frá Praha þann 10. þ.
m., 'að stjórn Czeohoslóvakiu hafi
ákveðið, að auka fastaher þjóðar-
innar um hundrað þúsundir manna,
og framtengja núgildandi herskyldu-
lög um tvö ár að minsta kosti.
BRETAR KAUPA STRÍÐS-
FLUGVÉLAR l BANDA-
RIKJUNUM
Símað er frá Lundúnum þann 10.
þ. m., að stjórn Breta hafi gert
samninga við flugvélaverksmiðjur í
Bandaríkjunum um að kaupa af
þeim á næstu tveimur árum fjögur
hundruð stríðsflugvélar, sem ráð-
gert er að kosta muni $35,000,000
eða jafnvel meira.
LIK RÆNDA BARNSINS
FUNDIÐ
Þær fregnir bárust frá Miami,
Elorida, á fimtudaginn var, að lög-
reglan hefði fundið lík James
Bailey Cash, drengsins, sem illvirkj-
ar rændu fyrir skemstu, og heimt-
uðu $10,000 lausnarfé fyrir. Upp-
hæðina hafði faðir drengsins þegar
greitt. Unglingsmaður hefir þegar
verið tekinn fastur, og er grunaður
um -að h'afa verið viðriðinn glæp-
inn. Skömmu áður en líkið fanst,
hafði Roosevelt forseti farið fram á
$50,000 f járveitingu í þjóðþinginu
til þess að reyna að grafast fyrir um
rætur þessa hryllilega barnsráns.
Eftir ítrekaðar gagnspurningar hefir
þessi ungi m'aður, sem er prestsson-
ur játað á sig sök.
rúmlegu en ella mætti verið hafa;
þó var hann málhress fram til hins
síðasta. Með Einari H. Kvaran er
hniginn í,Val maður, sem i meira en
hálfa öld hefir haft víðtæk áhrif á
andlega menningu 'hinnar islenzku
þjóðar; hann dvaldi allengi vestan
hafs, var einn af stofnendum I-<og-
bergs og hinn fyrsti ritstjóri þess.
Er með fráfalli hans rofið stórt
skarð í bókmentamúr þjóðar vorrar.
Margrét Johnson látin
Á föstudagskveldið þann 10. þ.
m., lézt á Almenna sjúkrahúsinu hér
í borginni Miss Margrét Johnson, sú
er haift hafði á hendi um alllangt
skeið ritstjórn deildar þeirrar í blað-
inu Winnipeg Free Press, er un
garðrækt og alifularækt sérstak’ega
fjallaði. Margrét var fædd að
Carlyle i North Dakota, 6. maí árið
1880; foreldri hennar voru þau
hjónin Arngrímur Johnson, bróðir
Hon. Thomasar H. Johnson, fyrrum
dónfcmálaráðherra Manitobafylkis
og Helga Thorsteinsson, uppeldis
systir B. L. Baldvinssonar, fyrrum
aðstoðar fylkisritara; stóðu að henni
hinar beztu ættir á báðar hliðar.
Margrét fluttist ung með foreldrum
sínum til Victoria, B.C., og lauk þar
miðskólanámi; stundaði hún þvi
næst kenslustörf um hríð, en hóf því
næst nám við ríkisháskólann í
Oregon og tók þar B. Sc. mentastig
með hinum ágætasta vitnisburði;
fékst hún eftir það ýmist við kenzlu
eða ritstörf þar til hún fékk fasta
stöðu við Winnipeg Free Press;
báru störf hennar öll vott um staka
nákvæmni og skyldurækni. Margrét
heitin lwtur eftir sig þrjár systur,
Miss Jónínu S. John'son og Mrs. H.
M. Hannesson í Winnipeg, og Mrs.
O. T. Smythe, búsetta í Duncan,
B.C. Útförin fór fram undir um-
sjón Bardals á þriðjudaginn frá All
Saints kirkjunni, að viðstöddum
fjölda vina og samferðamanna.
MRS. KRISTIN BBNSON
In loving memory of our dear
rnobher whp passed away June 12,
1935:
Sunshine passes, shadows fall,
Love’s remembrance outlasts all.
And thouffh the yectrs be many or
few,
They are filled with remembrcmce
of you,
Always remembered by her chil-
dren: Anne, Jean, Sylvia, Barney
and Bill.
Norðmenn í Grand Forks
heiðra dr. Richard Beck
Félagar í Þjóðræknisdeild Norð-
manna í Grand Forks, North Dak-
ota, “Varden” Lodge of Sons of
Norway, heiðruðu dr. Richard
Beck á fundi sínum í vikunni sem
leið, i tilefni af afmælisdegi hans,
samkvæmt fréttagrein í “Grand
Forks Herald” 9. þ. m.
Hr. G. I. Gulliksen, kunnur,
norskur listmálari, flutti aðalræðuna
til beiðursgestsins og afhenti honurn
veglega gjöf af hálfu félagsmanna.
Fór ræðumaður fögrunt viðurkenn-
ingarorðum urn dr. Beck fyrir víð-
tækt starf háns í þágu bókmenta og
menningar Norðurlanda vestan hafs,
einkum Noregs og íslands, og kvað
hann hafa drjúgum aukið á sæmd
hins norræna þjóðstofns.
Margir aðrir tóku í sarna streng,
meðal þeirra hr. Henry Holt, prent
tstniðjustjóri og útgefandi biaðsins
“Grand Forks Skandinav” ; hr. Bert
Holte, forseti “Varden” Lodge; hr.
John A. Alphson lögfræðingur, for-
seti “Sons of Norway” þjóðræknis-
félagsins í Mið-Vestur rikjunum og
Canada; og hr. E. A. Fladland, fyr-
verandi borgarstjóri í Grand Forks,
sem hrósaði dr. Beck sérstaklega
fyrir félagslyndi hans og áhttga á
almennum velferðarmálum.
Dr. Beck hefir tekið rnikinn þátt i
störfum þjóðræknisdeildarinnar
“Varden” síðan hann kom til Grand
Forks; er nú ritari hennar annað
kjörtím'abil og hefir unnið í fjölda-
mörgum nefndum hennar; þannig
var hann nýlega kosinn formaður í
nefnd þeirri, sent sér utn heimsókn
og fyrirlestrahöld hr. C. J. Hambro,
forseta Stórþingsins norska, en
liann kemur til Grand Forks seinni
partinn í júlí.
SAMNINGSUMLEITANIR
STRANDA
Nú er svo komið, að tilraunir um
verzlunarsamningja milli Bretlands
og Bandaríkjanna, eru strandaðar
að minsta kosti fyrst um sinn. Sér-
fræðinganefnd sú frá Bretlandi, er
verið hefir að verki í Washington
undanfarandi í sambandi við samn-
ingsumleitanir þessar, er nú lögð af
stað heimleiðis, og lét sá, er orð
hafði fyrir nefndinni þegar hún
steig á skip, þannig ummælt, að litl-
ar líkur væri til að samningstilraun-
ir yrði hafnar á ný fyr en einhvem
tíma í október eða jafnvel síðar.
A FÖRUM ÚR BORGINNl
Mr. W. L. MacTavish, sem verið
hefir um alllangt skeið aðalritstjóri
blaðsins Winnipeg Tribune, lætur af
þeirri stöðu um næstu mánaðamót
og tekst á hendur við byrjun júlí-
mánaðar ritstjórn blaðsins Daily
Province, sem gefið er út í Van-
couver. Mr. MacTavish er í hví-
vetna hinn mesti ágætismaður og
hefir tekið mikinn og giftudrjúgan
þátt í menningarmálum Winnipeg-
borgar. Eftirmaður hans við Tri-
bune verður John Bird, fyrrum
meðritstjóri við Montreal Star; kom
hann hingað fyrir rúmu ár-i.
KREFST IILUTLEYSIS
FYRIR HÖND CANADA
Mr. J. S. Woodsworth, foringi
C. C. F. flokksins í Canada, og
sambandsþingmaður fyrir Mið-
Winnipeg kjördæmið hið nyrðra, lét
þess getið í viðtali í Winnipeg á
miðvikudagskveldið í fyrri viku, er
hann var á leið til Ottawa að lok-
inni kosningahríðinni í Saskatohe-
wan, áð hann eigi aðeins teldi það
æskilegt, heldur og beinlínis sjálf-
sagt, að canadrska þjóðin lýsti yfir
hlutleysi' sínu og vildi engan þátt
eiga í öðru Norðurálfustríði.
Benedikt Jónsson
Benson
1853 —1938
Á mánudaginn þann 13. þ. m.,
lézt að heimili dóttur sinnar og
tengdasonar, þeirra Dr. og. Mrs
B. J. Brandson, 214 Waverley
Street hér í borg, Benedikt Jónsson
Benson frá Stóruvöllum í Bárðar-
dal, hniginn mjög að aldri, ljúf-
menni hið mesta, er ekki mátti
vamm sitt vita í neinu.—
Benedikt var i heim þennan bor-
inn þann 6. dag júlímánaðar á
Stóruvöllum í Bárðardal, árið 1853 ;
voru foreldri hans þau merku hjón,
Jón Dannebrogsmaður Benediktsson
og Aðalbjörg Pálsdóttir. Árið 1876
kvæntist Benedikt og gekk að eiga
Nönnu Arngrímsdóttur; var faðir
'bennar Arngrímur málari, þjóð-
kunnur maður. Þau Benedikt og
kona hans fluttu af Islandi 1883
og settust þegar að i Winnipeg;
stóð heimili þeirra þar jafnan siðan.
Svo að segja allan sinn langa starfs-
feril í Winnipeg, vann Benedikt hjá
Great Wlest söðlasmíða verksmiðj-
unni, og naut frábærra vinsælda hjá
yfirboðuruni sínum og samvefka-
mönnum; end'a var hann hinn á-
byggilegasti maður í hvivetna og
skyldurækinn við störf sín. Konu
sína, Nönnu, sem var óvenjulega
sköruleg friðleikskona, misti Bene-
dikt árið 1932. Hið eina barn
þeirra hjóna, isem komst á legg, er
frú Aðalbjörg, kona Dr. B. T.
Brandson, ein höfðinglegasta og á-
gætasta kona, sem nú er uppi með
íslendingum vestanhafs; mun það
ekki ofsagt, að sakir sjaldgæfs per-
sónuleiks og mannkosta, rísi þau
Brandson-hjón einna hæzt í félags-
l'ífi Vestur-íislendinga, þeirra, er um
þessar mundir standa ofar moldu.
I á heimili þeirra bjó Benedikt all-
| mörg síðustu æfiárin og naut þar
alls þess ástríkis, er úrvalsfólk get-
ur veitt, og þar seig honum hinsti
blundur á brá áminstan mánudags-
morgunn.
Benedikt heitinn var framúrskar-
andi viðmótsþýður maður og vin-
falstur; söngvinn var hann langt
fram um það, er alrnent gerist, og
var lengur starfandi meðlimur í
söngflokki Fyrsta lúterska safnaðar
en nokkur annar maður, eða í full
f jörutiu ár; á þessu sviði sem öðr-
um, kom skyldurækni hans glögg-
lega í ljós; hann var heill og allur
hvar sem hann var.
Benedikt lætur eftir sig þrjá
bræður á íslandi, Pál bónda á Stóru-
völlum, Sigurgeir, fyrrum organista
og hljómlistarkennara á Akureyri,
og Albert, er um eitt skeið rak bú
á föðurleifð sinni. Systur sína,
Pálínu, misti ihann fyrir nokkrum
árum.
Útför Benedikts fór fram frá
Fyrstu lútersku kirkju á núðviku-
daginn þann 15. þ. m. undir um-
sjón Bardals. Séra Rúnólfur Mar-
teinsson flutti kveðjumálin í kirkj-
unni og stýrði útfararsiðum í
Rrookside grafreit, þar sem þús-
undir íslenzkra landnema og afkom-
enda þeirra bera beinin.
E. P. J.
HEILSA Á FASISTAVISU
Foringi Fasistaflokksins í Canada
var nýverið staddur í Toronto og
hélt þar fund. Á fundinn ko'mu
meðal annara fjórir hermenn í ein-
kennisbúningum sinum og heilsuðu
á Fasistavísu. Þetta vakti það mikla
athygli, að gerð var i sambands-
þinginu fyrirspum til hermálaráð-
gjafans um það, hvort viðeigandi
væri að can'adiskir hermenn heilsi
að Hitlers sið. Ekki vildi ráðgjaf-
inn svara fyrirspurninni að svo
kointiu máli, en gaf í skyn, að yfir-
foringi þess hermannaumdæmis, sem
Torontoborg væri í, hefði tekið at-
burð þenna til yfirvegunar.
Að lokum leik
Kandahar, 11. júní, 1938.
Herra ritstjóri:—
Mér finst eg ekki gieta orða
bundist um kosningaúrslit okkar hér
í Saskatchewanfylki, svo eg sendi
þér fá einar linur því viðvíkjandi,
því eg hdd það sé óhætt að segja,
að það hafi verið meira áhugamál
kjósenda 'en nökkru sinni áður, og
mun það mikið til stafa frá loforðum
um umbætur C.C.F. flokksins (C»-
operative Co'mmonwealth Federa-
tion) sem lætur sem hann ætli og
geti alt bætt; en sumir af okkur eru
ekki ánægðir mfeð að trúa því, þar
sem þeir hafa verið mótstöðumenn
Liberal-stj órnarinnar nú í fjögur
ár og hafa ékki komið með neitt í
uppástungum sínum í þinginu sem
sjáanlega gæti bætt ástand búenda í
fylkinu, fen alt af verið harðorðir og
illgjarnir í garð stjórnarinnar, sem
er nú búin að sanna með þvi fvlgi
sem hún fékk, að það væri mikill
ábyrgðarhluti að finna sanngjarn-
lega að gjörðum hennar gagnvart
íbúum fylkisins þar sem fylkið varð
fyrir því óhappi að missa uppsker-
una að mestu leyti; samt álít eg það
sé óhætt að segja, að enginn búandi
hafi liðið skort og mjög lítið af heil-
brigðum búpeningi liðið, þó að
stöku skepna hafi fallið frá fyrir
aldurs sakir og ekki eins gott viður-
væri og þurfti til að halda þeim við.
Úrslit kosninganna sýndu að
frjálslyndi flokkurinn misti færri
atkvæði í ginið á hvalnum frá Al-
berta (Social Credit) heldur en hin-
ir flokkarnir, og sannar það hvað
íbúarnir virða stjórnarfyrikomulag
fjálslynda flokksins^ þar sfem þeir
nú halda 36 sætum af 50 í fylkinu og
skiftast hin 14 á milli hinna flokk-
anna, og við íbúar í Vatnabygðum
ættum að vera ánægðir með úrslit-
in þar sem C.C.F. flokkurinn kom
inn sínu átrúnaðargoði George H.
Williams, leiðtoga síns flokks, og
frjálslyndir menn komu inn sinni
stjórn í fylkinu, og nú erum við
búnir að fá ijómandi rigningu svo
nú er útlitið með því betra sem við
höfum haft í mörg síðastliðin ár.
N. / .Sveinbjörnson.
Afmæli Siglurfjarðar
Hátiðahöld fóru fram á Siglu-
firði í gærdag í tilefni af því að
Siglufjörður átti 20 ára afmæli sem
kaupstaður og 120 ára afmæli sem
verzlunarstaður.
Hátíðahöldin hófust kl. 2 e. h.
á leikvelli barnaskólans, með þvi að
bæjarfógeti 'hélt ræðu og rakti sögu
Siglufjarðar.
Séra Óskar Þorláksson sóknar-
prestur talaði fyrir minni íslands
Karlakórinn Vísir skemti með söng.
Veður var hið ákjósanlegasta og
mikill fjöldi fólks tók þátt í hátíða-
höldunum.
I gærkvöldi var haldin skemti-
samkoma í Bíó. Ræðumenn þar
voru bæjarfógetinn Guðm. H'annes-
son, Erlendur Þorsteinsson alþ.m.
og Þóroddur Guðmundssön. Einnig
sungu þar Karlakórinn Vísir og
Karlakór Sigluf jarðar.
Skátar gáfu út blað í tilefni af
deginum er þeir nefna “20. maí.”
Efni bl'aðsins er: Afmælisljóð, eftir
Hannes Jónasson, Siglufjörður
1818, 1918 og 1938, eftir Guðmund
Hannesson. Siglufjörður fyrir 36
árum, eftir Jón Jóhannesson o. m.
fleira:
20. maí er almennur fridagur
Siglfirðinga. Sölubúðir eru lokað-
ar og hvegi unnið nema nauðisyn
kefji, enda vinna greidd helgidaga-
kaupi.
Fjöldi Siglfirðinga naut góðviðr-
isins úti í gær og fóru hátiðahöldin
hið bezta fram, símar fréttaritari
Mbl. á Siglufirði.
—Mbl. ii. tnaí.
Belgiskir vísindamenn
á Islandi
Tveir belgiskir vísindamenn, Paul
van Oye, prófessor og dr. Lucien de
Coninck, aðstoðannaður hans ætla
að dvelja hér um þriggja vikna
skeið og rannsaka smáverulíf í sjó,
ám, vötnum, mýrum og hverum.
Þeir komu með belgiska skólaskip-
inu “Mercator.”
Dr. \'oninck skýrði Morgunblað-
fnu svo frá í gær, að prófessor van
Oye hafi ákveðið að fara til íslands
þegar hann frótti að Mercator ætl-
aði hingdð. En nokkuð þurfti að
breyta ferðaáætlun skipsins, svo að
það gæti sótt þá aftur, að afloknum
rannsóknum þeirra. I stað þess að
fara norður i höf fer Mercator til
Akureyrar og kemur síðan aftur að
sækja vísindamennina þegar vika er
af júní.
Van Oye (Oye þýðir svanur) er
prófessor við háskólann í Gent.
Hann ætlar að rannsaka hér með
aðstoð dr. Conincks smáverulif í
Þingvallavatni, Öxará, i hverunum í
Hveragerði, í Ölfusi ofarlega og
niður við ósana, í hverunum á Laug-
arvatni, Geysi og Gullfossi (smá-
verulíf í fossum) í mýrlendi og
meðfram ströndinni hér miðvestan
lands og svif í sjó. Þessar rann-
sóknir hafa fyrst og fremst vísinda-
legt gildi.
Van Oye hefir unnið að smáveru-
rannsóknutn í hitabeltislöndunum í
belgisku Kongo og víðar.
—Mbl. 21. maí.
WISE SAYINGS
Great men’s faults are never small.
Money makes not so many real
friends as real enemies.
The sting of a reproach is the
truth of it.